Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-177/2013:

Ákæruvaldið

(Kristín Þórðardóttir ftr)

gegn

[A]

svofelldur

d ó m u r :

(sjálf)

Fjársvik. Frestun. Játningarmál. Refsiákvörðun. Skaðabætur. Skilorð. Skilorðsbundnir dómar.

Fjársvik - Játningarmál - Ákvörðun um refsingu frestað skilorðsbundið - Fallist á einkaréttarkröfu

Mál þetta var þann 7. mars 2013 klofið út úr máli S-19/2103, sem þingfest var þann 14. febrúar 2013. Mál þetta, sem dómtekið var 13. mars sl., er höfðað með ákæru útgefinni af lögreglustjóranum á Hvolsvelli, þann 3. janúar 2013, á hendur [A], kt. [...], til heimilis að [...], [B], kt. [...], til heimilis að [...] og [C], kt. [...], til heimilis að [...].

Líkt og áður greinir var mál þetta klofið út úr máli S-19/2013 og varðar aðeins þátt ákærðu [A]. Þáttum meðákærðu [B] og [C] var lokið með dómi uppkveðnum 21. mars 2013. Mál þetta er höfðað gegn ákærðu [A]: fyrir fjársvik með því að hafa í sameiningu [með meðákærðu B] sunnudaginn 10. júlí 2011, í heimildarleysi í neðangreindum tilvikum, notað debetkort [D], kt. [...], til að svíkja út vörur samtals að andvirði 27.513,-.

  1. Greitt Kjarval, Suðurlandsvegi 1, Hellu, fyrir vörur að fjárhæð kr. 4.033,-
  2. Greitt Olís, Þrúðvangi 2, Hellu, fyrir vörur að fjárhæð kr. 1.954,-
  3. Greitt Kjarval Suðurlandsvegi 1, fyrir vörur að fjárhæð 4.066,-
  4. Greitt Olís, Þrúðvangi 2, Hellu, fyrir vörur að fjárhæð kr. 3.991,-
  5. Greitt Olís, Þrúðvangi 2, Hellu, fyrir vörur að fjárhæð kr. 907,-
  6. Greitt Olís, Þrúðvangi 2, Hellu, fyrir vörur að fjárhæð kr. 5.862,-
  7. Greitt Besta Grillinu, þá staðsett á Bestu útihátíðinni, Gaddstaðaflötum, Hellu, fyrir vörur að fjárhæð kr. 500,-
  8. Greitt Besta Grillinu, þá staðsett á Bestu útihátíðinni, Gaddstaðaflötum, Hellu, fyrir vörur að fjárhæð kr. 1.800,-
  9. Greitt Besta Grillinu, þá staðsett á Bestu útihátíðinni, Gaddstaðaflötum, Hellu, fyrir vörur að fjárhæð kr. 900,-
  10. Greitt Besta Grillinu, þá staðsett á Bestu útihátíðinni, Gaddstaðaflötum, Hellu, fyrir vörur að fjárhæð kr. 1.500,-
  11. Greitt Besta Grillinu, þá staðsett á Bestu útihátíðinni, Gaddstaðaflötum, Hellu, fyrir vörur að fjárhæð kr. 2.000,- Telst brot [...] ákærðu varða við 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 [...]. [...] Þess er krafist að ákærð[a] verði dæmd[...] til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“

    Þá er í ákæru tilgreind svofelld einkaréttarkrafa Olíuverslunar Íslands hf.: „Í málinu gerir Olíuverslun Íslands hf., kt. 500269-3429 kröfu um að ákærðu verði með dómi gert að greiða skaðabætur að fjárhæð kr. 12.714,-, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá tjónsdegi, en síðan dráttarvaxta samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga að liðnum mánuði frá birtingu kröfunnar til greiðsludags. Þá er krafist málskostnaðar fyrir héraðsdómi að mati dómsins eða samkvæmt síðar framlögðum málskostnaðarreikning [sic] komi til málflutnings í málinu skv. 176. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.“

    Í ákæru er einnig tilgreind einkaréttarkrafa Kaupáss hf., en við þingfestingu málsins S-19/2013, var ekki sótt þing af hálfu Kaupáss hf., og telst krafan því niður fallin með vísan til 2. mgr. 174. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

    Ákærða [A] mætti ekki við þingfestingu málsins S-19/2103, né heldur við fyrirtökur þess þann 28. sama mánaðar og 7. mars 2013, en þann dag var þáttur ákærðu klofinn í mál þetta, líkt og áður greinir og hafði sækjandi þá lýst yfir að lagt yrði fyrir lögreglu að færa ákærðu fyrir dóminn. Ákærða kom loks fyrir dóminn þann 13. mars 2014, og lýsti yfir að hún óskaði ekki eftir skipun verjanda. Ákærða viðurkenndi skýlaust að hafa gerst sek um þá háttsemi sem henni er gefin að sök í ákæru. Þá samþykkti ákærða framkomna bótakröfu.

    Með vísan til skýlausrar játningar ákærðu og þar sem dómari taldi ekki ástæðu til að draga í efa að játning hennar væri sannleikanum samkvæm var farið með málið í samræmi við ákvæði 1. mgr. 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, eftir að sækjanda og ákærðu sjálfri hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.

    Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærða hefur gerst sek um þá háttsemi sem henni er gefin að sök í ákæru og þar þykir rétt færð til refsiákvæða. Ákærða hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.

    Samkvæmt framlögðu sakavottorði ákærðu [A], hefur hún þrívegis áður sætt refsingu, í öll skiptin samkvæmt sátt við lögreglustjóra, fyrst þann 23. maí 2012 vegna umferðarlagabrota, þá 23. ágúst 2012 þá fyrir brot gegn ákvæðum lögreglulaga nr. 90/1996, laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni og umferðarlagabrota. Loks var ákærðu þann 25. janúar 2013 gerð refsing vegna umferðarlagabrota. Brot það sem ákærða er nú sakfelld fyrir er framið fyrir undirritun allra ofangreindra sátta og verður því höfð hliðsjón af 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, við ákvörðun refsingar hennar. Að virtum atvikum málsins og að teknu tilliti til ungs aldurs ákærðu á verknaðarstundu sem og skýlausrar játningar hennar, þykir rétt að fresta ákvörðun refsingar ákærðu og skal hún falla niður að liðnum tveimur árum haldi hún almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

    Engan sakarkostnað leiddi af þætti ákærðu [A] í máli þessu.

    Meðal gagna málsins liggur frammi greinargerð bótakrefjanda, Olíuverslunar Íslands hf., sem að mati dómsins uppfyllir skilyrði 2. mgr. 173. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Ákærða hefur samþykkt bótakröfuna og verður fallist á hana líkt og greinir í dómsorði. Þá ber að geta þess að samkvæmt gögnum málsins var bótakrafa kynnt ákærðu [A] við skýrslutöku hjá lögreglu þann 21. október 2011. Málskostnaður vegna einkaréttarkröfu er hæfilega ákveðinn 35.000 krónur.

    Sólveig Ingadóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð :

Ákvörðun um refsingu ákærðu, [A], skal frestað og fellur hún niður að liðnum tveimur árum frá birtingu dómsins haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Ákærða greiði Olíuverslun Íslands hf., kt. 500269-3429, skaðabætur að fjárhæð 12.714 krónur, auk vaxta samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá 10. júlí 2011, en síðan dráttarvaxta samkvæmt 1. mgr. 6. gr., sbr. 9. gr. sömu laga frá 21. nóvember 2011 til greiðsludags.

Ákærða greiði Olíuverslun Íslands hf., 35.000 krónur í málskostnað.

Sólveig Ingadóttir.