Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-215/2011:

Árið 2011,

fimmtudaginn 20. október, er á dómþingi Héraðsdóms Suðurlands, sem háð er í

dómsal embættisins að Austurvegi 4, Selfossi af Hirti O. Aðalsteinssyni

Ákæruvaldið

(Dröfn Kærnested aðstoðarsaksóknari)

gegn

Agnari Bent Brynjólfssyni

kveðinn upp svohljóðandi

dómur:

(Grímur Hergeirsson hdl)

Skilorð. Umboðssvik.

Fyrrum verslunarstjóri hjá byggingavöruverslun dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir umboðssvik.

Mál þetta, sem tekið var til dóms að lokinni aðalmeðferð 25. ágúst sl., er höfðað með ákæru ríkissaksóknara dagsettri 4. maí 2011 á hendur ákærða, Agnari Bent Brynjólfssyni, kt. 000000-0000, til heimilis að Úthaga 16, Selfossi, „fyrir umboðssvik, með því að hafa á árinu 2007, ítrekað misnotað aðstöðu sína sem verslunarstjóri Byko, Langholti 1, Selfossi, og án heimildar komið því til leiðar að 5x ehf. fékk afhentar vörur frá versluninni án þess að staðgreiða þær, sem var andstætt lánareglum Byko hf., en vörur að fjárhæð kr. 6.508.140 hafa ekki fengist greiddar úr hendi 5x ehf. Telst þetta varða við 249 gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Einkaréttarkrafa:

Af hálfu Byko ehf. (áður Byko hf.), kennitala 000000-0000, er þess krafist að ákærði verði dæmdur til  greiðslu skaðabóta að fjárhæð kr. 6.508.140, auk vaxta skv. 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, af kr. 1.312.181 frá 31. janúar 2007 til 6. febrúar 2007, af kr. 5.067.883 frá þeim degi til 9. maí 2007, af kr. 5.583.216 (svo)frá þeim degi til þess dags er liðinn var mánuður frá því að krafan var kynnt ákærða, en frá þeim degi með dráttarvöxtum skv. 1. mgr. 6.gr., sbr. 9. gr. sömu laga til greiðsludags. Þá er þess krafist að ákærði greiði Byko ehf. málskostnað að skaðlausu.“

Ákærði krefst aðallega sýknu af öllum kröfum ákæruvaldsins í máli þessu en til vara vægustu refsingar sem lög leyfa. Ákærði krefst þess að bótakröfu verði vísað frá dómi og þá krefst verjandi hans málsvarnarlauna úr ríkissjóði.

Málavextir.

Með bréfi til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra dagsettu 7. janúar 2008 var komið á framfæri kæru Byko hf. á hendur ákærða vegna óheimilla úttekta í verslun Byko að Langholti 1 á Selfossi, en talið var að úttektunum hafi verið leynt vísvitandi. Var talið að um væri að ræða úttektir á vörum samtals að fjárhæð 6.508.140 krónur. Segir í kærubréfinu að síðastliðið sumar hafi komið í ljós að fyrirtækið 5x ehf., kt. 000000-0000, hefði fengið að taka út vörur í versluninni með vitund og samþykki ákærða, sem þá var verslunarstjóri. Hafi þetta verið gert þrátt fyrir að viðskiptaráðgjöf Byko hafi bannað lánsviðskipti við fyrirtækið. Í kjölfarið hafi 5x ehf. greitt kröfur vegna úttekta þannig að 18. maí 2007 hafi verið greiddur reikningur að fjárhæð 2.946.700  krónur og 22. júní sama ár hafi verið greiddir þrír reikningar að fjárhæð 2.947.020 krónur, 1.784.673 krónur og 970.323 krónur og hafi heildargreiðslur því numið 8.658.716 krónum. Að baki tveimur síðasttöldu reikningunum hafi verið útskrift úr tilboðskerfi Byko á hendur Ingvari Björnssyni, kt. 000000-0000, samtals að fjárhæð 2.844.748 krónur en úttektirnar hafi verið færðar að mestu leyti á 5x ehf. samkvæmt tveimur síðastgreindu reikningunum. Ákærði hafi aðspurður talið að ekki væri um frekari skuldir að ræða hjá 5x ehf. og í framhaldi af þessu var gerður starfslokasamningur við ákærða sem sagði upp störfum 31. ágúst sama ár. Í kærubréfinu kemur fram að við vörutalningu í versluninni þann 20. október sama ár hafi komið í ljós óeðlileg vörurýrnun eða vöruvöntun. Hafi Atli Rafn Viðarsson vörustjóri hjá Byko á Selfossi upplýst að skráðar hafi verið vöruúttektir í tilboðskerfi Byko á nokkra aðila og við leit hafi komið í ljós að mest hafi verið skráð á nafn fyrrgreinds Ingvars en hann mun vera fyrrum starfsmaður 5x ehf. Í kærubréfinu segir að tilboðskerfinu sé alls ekki ætlað að halda utan um vörur sem afhentar séu úr verslunum Byko, því sé eingöngu ætlað að halda utan um tilboð sem gerð séu og leitað hafi verið eftir af ýmsum aðilum. Vörur sem skráðar séu í tilboðskerfið skráist ekki út úr birgðabókhaldi eða lager Byko og taldi kærandi að með því að skrá úttektir í tilboðskerfið hafi alvarlegt brot verið framið, enda líti þannig út sem vörurnar hafi ekki verið afhentar út úr verslun. Hafi afhendingu á vöru sem hagnýtt hafi verið af 5x ehf. þannig verið leynt með tvennum hætti, annars vegar með því að halda utan um úttektirnar í tilboðskerfinu og hins vegar með  því að skrá úttektirnar á kennitölu annars aðila. Í tölvupóstbréfi Eggerts Kristinssonar, framkvæmdastjóra verslunarsviðs Byko, til verslunarstjóra hjá Byko dags. 6. nóvember 2006, hafi verið áréttað að óheimilt væri að afgreiða vörur úr verslun án þess að þær væru skráðar og að brot gegn því varðaði fyrirvaralausri brottvikningu úr starfi. Fram kemur í kærubréfinu að ákærði hafi komið á fund lögmanns Byko, framkvæmdastjóra verslunarsviðs og rekstrarstjóra verslunarsviðs 1. nóvember 2007. Kvað ákærði engar líkur á því að vörur hafi farið óútskrifaðar á 5x ehf. eða aðila tengda því fyrirtæki og þá kvaðst hann ekki vita hver hefði fært vörur í tilboðskerfi á Ingvar Björnsson sem hefðu farið til 5x ehf. Hann hafi haldið að 5x ehf. hafi klárað sín mál með því að greiða um 8,6 milljónir og hafi ákærði viðurkennt að hafa leyft þær úttektir.  Áðurgreindur Ingvar Björnsson mun hafa komið á fund Byko-manna 2. nóvember 2007 og hafi hann þá sagt allar úttektir sem fundist hefðu á hans nafni í tilboðskerfinu hafa verið fyrir 5x ehf. og hafi varan verið notuð í nýbyggingar á vegum þess fyrirtækis. Hafi mest af vörunum verið teknar út á árinu 2007 en hann grunaði að eftir uppgjör 5x ehf. við Byko í júní 2007 hafi enn verið til eldri skuld sem sett hafi verið yfir á nafn hans. Ingvar kvað Sigurð Eiríksson, eiganda 5x ehf., hafa komið að máli við sig skömmu eftir uppgjörið og spurt hvort hann hafi viljað gera sér þann greiða að vöruúttektir 5x ehf. yrðu settar til skamms tíma á hans nafn hjá Byko. Eftir þetta hefði ákærði hringt í sig og spurt hvort það væri í lagi að setja úttektir 5x ehf. á nafn Ingvars. Hafi Ingvar látið til leiðast þar sem ákærði hefði óttast um starf sitt hjá Byko. Hafi megnið af vörunum verið notað í húsbyggingar í Þorlákshöfn á vegum 5x ehf. Hafi Ingvar margoft rætt við ákærða um stöðuna á úttektunum og hvenær þær yrðu greiddar en ákærði hafi reynt að koma sér út úr þessu með því að fá Sigurð Eiríksson til að ganga frá greiðslu.

Kærandi taldi að ógreiddar úttektir fyrir 5x ehf. á nafni Ingvars Björnssonar væru samkvæmt eftirtöldum útskriftum úr tilboðskerfi Byko: 31. janúar 2007, 1.312.181 króna, 6. febrúar sama ár, 3.755.702 krónur, 9. maí sama ár 515.333 krónur og 31. maí sama ár, 924.924 krónur, eða samtals 6.508.140 krónur.

Lögð hefur verið fram í máli þessu starfslýsing verslunarstjóra og kemur fram í gr. 3.1.1. að verslunarstjóri beri ábyrgð á að öllum vinnuferlum sé framfylgt og lokið. Þá kemur fram í gr. 11.6. að fyrirtæki og einstaklingar geti komist í mánaðarleg reikningsviðskipti hjá Byko. Skuli viðskiptavinir sem óski eftir að komast í slík reikningsviðskipti snúa sér til viðskiptaráðgjafar Byko eða til verslunarstjóra sem einnig taki við slíkum umsóknum.

Framburður ákærða og vitna fyrir dómi.

Ákærði skýrði svo frá fyrir dómi að hann kannaðist við að hafa vitað af umræddum viðskiptum, þ.e. að hafa notað ákveðna biðreikninga og verslunarstjórareikninga en menn hefðu fengið ákveðna fyrirgreiðslu þar til fokheldisvottorð fékkst og menn fengu greiðslur og gætu gert upp skuldir sínar við Byko. Hann kvaðst hafa verið verslunarstjóri og hafa haldið utan um reksturinn, hann hafi séð um mannahald og verið æðstráðandi á staðnum. Hann kannaðist við að hafa kynnt sér starfslýsingu en tók fram að hann hefði haft mjög lítið með fjármál fyrirtækisins að gera. Hann kvaðst hafa tekið við umsóknum en svokölluð viðskiptaráðgjöf hafi tekið ákvörðun um reikningsviðskipti, það hafi ekki verið í verkahring verslunarstjóra. Hann kvað tilboðskerfið ekki hafa verið notað sem afgreiðslukerfi en ef tilboði hafi verið tekið hafi varan verið færð í reikning hjá viðkomandi aðila eða staðgreidd. Hann kvað verslunarstjórareikning hafa verið notaðan utan skrifstofutíma þegar ekki hafi verið hægt að ná í viðskiptaráðgjöfina. Hafi mönnum þá verið gefið tækifæri til að taka út vöru og síðan hefði verið gengið frá málinu þegar næðist í starfsmenn hjá viðskiptaráðgjöfinni. Ákærði taldi fullvíst að þessi háttur hefði verið hafður á áður en hann hóf störf hjá fyrirtækinu. Hann taldi menn hafa haft ákveðið svigrúm en menn hefðu afgreitt vörur sem þeir teldu að þeir gætu fengið greiddar á einhverjum tímapunkti. Hann kvað engan einn mann hafa haldið utan um þetta, allar færslur hafi verið aðgengilegar í tölvukerfinu. Hann kvað sölumenn nokkrum sinnum hafa leitað til sín þegar greiðsla hafi ekki borist frá viðskiptavinum. Ákærði kvað 5x ehf. ekki hafa verið í reikningsviðskiptum hjá Byko, því hafi verið synjað þar sem þeir hafi ekki getað sett nægar tryggingar. Hann kvaðst ekki hafa vitað til þess að fyrirtækið væri í fjárhagserfiðleikum en það hafi fengið nóg af lóðum og hafi haft næg verkefni. Hann kvaðst hafa tvívegis innheimt greiðslur hjá fyrirsvarsmanni 5x ehf. Hann kannaðist ekki við að hafa afgreitt vörur til þessa fyrirtækis og hafi hann ekki komið að þessu öðru vísi en að starfsmenn Byko hafi vitað að ákærði hafi vitað af úttektunum. Hann kvað starfsemina hafa snúist um að auka veltu Byko, enda hafi fyrirtækið átt í harðri samkeppni. Ákærði kannaðist við að hafa gefið heimild til þess að halda mætti áfram að afgreiða 5x ehf., hann myndi sjá um að innheimta hjá þeim. Hann kvaðst hafa fengið staðfestingu hjá Íslandsbanka að fyrirtækið væri með framkvæmdir í Þorlákshöfn og væri beðið eftir fokheldisvottorði. Ákærði kannaðist við að úttektir hafi verið færðar á nafn Ingvars Björnssonar og hafi skýringin verið sú að greiðslur hefðu dregist og hefðu þeir verið að kaupa sér tíma. Ákærði kvaðst ekki hafa haft fulla yfirsýn yfir skuld fyrirtækisins en ekki haft neina ástæðu til að ætla annað en að skuldin yrði greidd. Hann kvaðst ekki hafa hagnast sjálfur á þessum viðskiptum. Hann kvað þennan hátt hafa verið hafðan á með önnur fyrirtæki en þau hefðu ekki fengið fyrirgreiðslu í bönkum fyrr en fokheldisvottorð hafi legið fyrir. Hefði verið lokað fyrir viðskiptin hefði fokheldisvottorð ekki fengist og þar af leiðandi hefði engin greiðsla fengist.

Vitnið Eggert Kristinsson skýrði svo frá fyrir dómi að hann hefði verið framkvæmdastjóri verslunarsvið hjá Byko og yfirmaður ákærða þegar mál þetta kom upp. Hann kvað verslunarstjóra hafa sent inn reikningsumsóknir til viðskiptaráðgjafar sem hafi metið hvort reikningsviðskipti yrðu heimiluð. Hann kvað verslunarstjóra hafa til umráða reikninga sem þeir hafi getað notað til lánsviðskipta utan skrifstofutíma. Hafi þetta eingöngu verið hugsað sem bráðabirgðaúrræði. Hann kannaðist ekki við að svokallað tilboðskerfi hefði verið notað nema í því tilviki sem hér um ræðir. Hann kvað þessa aðferð stranglega bannaða og hafi ákærða verið kunnugt um það. Hann hafi sent tvo tölvupósta, í október og nóvember 2006 þar sem sérstaklega hafi verið áréttað að algjörlega óheimilt væri að afhenda vörur út úr húsi án þess að þær væru skráðar. Tilboðskerfið hafi aðeins verið hugsað til að gera verðtilboð, ekki til þess að halda utan um viðskipti. Hann kvað 5x ehf. ekki hafa verið í reikningsviðskiptum, því hafi verið hafnað. Hann kvað sér fyrst hafa orðið kunnugt um viðskiptin við fyrirtækið um vorið 2007 þegar í ljós kom að því hefði verið lánað í gegnum verslunarstjórareikning. Vitnið kvað verslunarstjóra ekki heimilt að nota verslunarstjórareikninginn til lánsviðskipta við þá sem viðskiptaráðgjöf hafði ekki heimilað í reikningsviðskipti.

Vitnið Birgir Örn Friðjónsson skýrði svo frá fyrir dómi að hann hefði verið rekstrarstjóri verslunarsviðs hjá Byko. Um vorið 2007 hefðu komið í ljós ógreiddar nótur á bak við á fyrirtækið 5x ehf. Hefði ákærði gengið í að innheimta kröfuna á hendur fyrirtækinu og hefðu fengist greiddar um 8,6 milljónir. Hafi þá verið farið stranglega yfir það að þetta væri bannað. Eftir að vörutalning hafi farið fram um haustið hafi komið fram óeðlilega mikill mismunur og hafi þá komið í ljós að vörur fyrir rúmar 6 milljónir hefðu verið afhentar 5x ehf. úr tilboðskerfinu en á nafni Ingvars Björnssonar. Hefði starfsfólk borið að ákærði hefði heimilað þessar úttektir og á fundi með ákærða hafi hann í fyrstu ekki viljað kannast við þetta en sagt að hann skyldi reyna að fá þetta greitt. Hann kvað þetta eina tilvikið sem hann hafi vitað um að tilboðskerfið hafi verið notað með þessum hætti hjá Byko. Hann kvað þetta engan veginn í samræmi við lánareglur Byko. Ákærða hafi verið fullkunnugt um að viðskiptaráðgjöf hefði hafnað því að hafa 5x ehf. í reikningsviðskiptum. Hann kvað verslunarstjórareikning hafa verið á ábyrgð verslunarstjóra og hugsaðan til að lána smærri upphæðir utan skrifstofutíma en ekki hefði verið heimilt að lána þeim fyrirtækjum sem ekki hefðu fengið samþykkt reikningsviðskipti.

Vitnið Ingvar Björnsson skýrði svo frá fyrir dómi að hann hefði starfað fyrir 5x ehf. og m.a. hafi hann sótt efni í Byko. Hann kvað sér ekki hafa verið kunnugt um að fyrirtækið væri ekki í reikningsviðskiptum hjá Byko. Fyrst hafi allar vörur verið staðgreiddar en síðar hafi verið um reikningsviðskipti að ræða. Eftir að fyrirtækið hafi lent í greiðsluerfiðleikum hafi ákærði spurt hvort hann mætti flytja viðskiptin yfir á nafn vitnisins þar til fyrirsvarsmaður 5x ehf. greiddi reikningana. Vitnið kvaðst ekki hafa gefið leyfi fyrir þessu en ekki bannað það heldur. Eftir þetta hafi vitnið gefið upp sína kennitölu þegar það tók út vörur en úttektirnar hafi verið í þágu 5x ehf. Hann kvað það hafa komið fyrir að fyrirtækinu hafi verið neitað um úttekt en þá hafi verið haft samband við ákærða sem hafi heimilað úttektir.

Vitnið Sigurbjörn Jónasson skýrði svo frá fyrir dómi að hann hafi verið staddur á skrifstofu Byko þegar ákærði hafi kynnt hann fyrir Sigurði, fyrirsvarsmanni 5x ehf. Hann hafi staðgreitt vörur í fyrstu en síðar hafi það gerst að vörur hafi verið settar í tilboðskerfið, þær hafi verið afhentar en ekki hafi verið greitt fyrir þær. Vitninu hafi verið sagt að hann væri að bíða eftir fokheldisvottorði og myndi hann greiða þegar það kæmi. Vitnið staðfesti að þessi háttur hefði verið hafður á um fleiri viðskiptavini og kvað vitnið ákærða hafa haft frumkvæði að þessum viðskiptaháttum.

Vitnið Heimir Frederiksson Bates skýrði svo frá fyrir dómi að hann hefði verið sölumaður hjá Byko og hefði að frumkvæði ákærða verið sett upp reikningsviðskiptakerfi fyrir 5x ehf. með þeim hætti að tilboðskerfið hélt utan um það. Hann kvað þetta hafa verið gert með fleiri fyrirtæki en alltaf með samþykki ákærða.

Vitnið Tinna Rún Ragnarsdóttir skýrði svo frá fyrir dómi að hún hafi unnið á skrifstofu Byko og hafi henni verið kunnugt um að skuld 5x ehf. hafi verið geymd í tilboðskerfinu. Ákærði hafi gefið fyrirmæli um að hafa þennan hátt á og hafi þetta verið gert með fleiri fyrirtæki en ekki hafi verið um eins háar fjárhæðir að ræða. Hún vissi ekki til þess að tilboðskerfið hafi verið notað með þessum hætti áður en ákærði hóf störf hjá Byko. Hún kvaðst hafa vitað að 5x ehf. hafi ekki verið í reikningsviðskiptum hjá Byko þar sem fyrirtækið hafi verið á vanskilaskrá. Hún hélt að ákærða hafi verið kunnugt um þessar reglur.

Vitnið Atli Rafn Viðarsson skýrði svo frá fyrir dómi að hann hefði unnið að talningu árið 2007 og hafi þá komið mikið misræmi í ljós. Hann kvaðst þá hafa látið vita af því að vörur hefðu verið afhentar en settar á biðreikning eða tilboðsreikning hjá 5x ehf. Vitnið Haraldur Bergsson skýrði svo frá fyrir dómi að hann hafi tekið við af ákærða sem verslunarstjóri hjá Byko og hafi Atli Rafn komið til hans og bent honum á nótur eða tilboð sem legið hafi á bak við tölvukerfið eða í tilboðskerfi sem flutt hafi verið á nafn Ingvars Björnssonar frá 5x ehf., greinilega í þeim tilgangi að hylja slóðina. Hann kvað þessum viðskiptaháttum ekki hafa verið haldið áfram eftir að hann hóf störf hjá Byko.

Vitnið Ólafur Guðni Stefánsson skýrði svo frá fyrir dómi að hann hefði verið aðstoðarverslunarstjóri á umræddum tíma. Hann kvaðst lítið geta borið um málsatvik og kvað sér ekki hafa verið kunnugt um tilboðskerfið. Hann kvaðst hafa talið að 5x ehf. hefði verið í reikningsviðskiptum.

Vitnið Brynjar Örn Sveinsson skýrði svo frá fyrir dómi að hann hefði hætt störfum hjá Byko í júní 2006. Hann  mundi eftir því að starfsmaður 5x hafi á laugardegi ætlað að taka út vöru en reikningurinn hafi verið lokaður. Hafi hann haft samband við ákærða sem hafi sagt að ekki mætti afhenda vöru án þess að hún væri staðgreidd. Hann vissi ekki til þess að tilboðskerfið hefði verið notað á þessum tíma.

Vitnið Ómar Vignir Helgason skýrði svo frá fyrir dómi að hann hefði á umræddum tíma verið starfsmaður Byko. Hann kannaðist við að hafa afgreitt pöntun frá 5x ehf. og hafi varan verið greidd nokkrum dögum síðar.

Niðurstaða.

Ákærða er gefið að sök að hafa framið umboðssvik með því að hafa á árinu 2007 ítrekað misnotað aðstöðu sína sem verslunarstjóri Byko og án heimildar komið því til leiðar að fyrirtækið 5x ehf. fékk afhentar vörur frá versluninni án þess að staðgreiða þær. Er þessi háttsemi ákærða talin hafa verið andstæð lánareglum Byko og er í ákæru talið að vörur að fjárhæð um sex og hálf milljón króna hafi ekki fengist greiddar frá fyrirtækinu.

Ákærði kannaðist við að hafa vitað af umræddum viðskiptum, þ.e. að hafa notað ákveðna biðreikninga og verslunarstjórareikninga. Hefðu viðskiptavinir sem stóðu í byggingaframkvæmdum fengið ákveðna fyrirgreiðslu hjá Byko þar til fokheldisvottorð fékkst, en það mun hafa verið skilyrði frekari fjármögnunar framkvæmda og gerðu menn að því vottorði fengnu upp skuldir sínar við Byko. Ákærði kannaðist við að hafa kynnt sér starfslýsingu en tók fram að hann hefði haft mjög lítið með fjármál fyrirtækisins að gera. Hann kvaðst hafa tekið við umsóknum en svokölluð viðskiptaráðgjöf hafi tekið ákvörðun um reikningsviðskipti, það hafi ekki verið í verkahring verslunarstjóra. Hann kvað tilboðskerfið ekki hafa verið notað sem afgreiðslukerfi en ef tilboði hafi verið tekið hafi varan verið færð í reikning hjá viðkomandi aðila eða staðgreidd. Hann kvað verslunarstjórareikning hafa verið notaðan utan skrifstofutíma þegar ekki hafi verið hægt að ná í viðskiptaráðgjöfina. Hafi mönnum þá verið gefið tækifæri til að taka út vöru og síðan hefði verið gengið frá málinu þegar næðist í starfsmenn hjá viðskiptaráðgjöfinni. Ákærði kannaðist við að 5x ehf. hafi ekki  verið í reikningsviðskiptum hjá Byko, því hafi verið synjað þar sem þeir hafi ekki getað sett nægar tryggingar. Hann kvaðst ekki hafa vitað til þess að fyrirtækið væri í fjárhagserfiðleikum en það hafi fengið nóg af lóðum og hafi haft næg verkefni. Hann kannaðist ekki við að hafa afgreitt vörur til þessa fyrirtækis en kvaðst hafa vitað af úttektunum. Hann kvað starfsemina hafa snúist um að auka veltu Byko, enda hafi fyrirtækið átt í harðri samkeppni. Ákærði kannaðist við að hafa gefið heimild til þess að halda mætti áfram að afgreiða 5x ehf., hann myndi sjá um að innheimta hjá þeim. Hann kvaðst hafa fengið staðfestingu hjá Íslandsbanka að fyrirtækið væri með framkvæmdir í Þorlákshöfn og væri beðið eftir fokheldisvottorði. Ákærði kannaðist við að úttektir hafi verið færðar á nafn Ingvars Björnssonar og hafi skýringin verið sú að greiðslur hefðu dregist og hefðu þeir verið að kaupa sér tíma. Ákærði kvaðst ekki hafa haft fulla yfirsýn yfir skuld fyrirtækisins en ekki haft neina ástæðu til að ætla annað en að skuldin yrði greidd. Hann kvaðst ekki hafa hagnast sjálfur á þessum viðskiptum. Hann kvað þennan hátt hafa verið hafðan á með önnur fyrirtæki en þau hefðu ekki fengið fyrirgreiðslu í bönkum fyrr en fokheldisvottorð hafi legið fyrir. Hefði verið lokað fyrir viðskiptin hefði fokheldisvottorð ekki fengist og þar af leiðandi hefði engin greiðsla fengist.

Vitnið Eggert Kristinsson sem var framkvæmdastjóri verslunarsvið hjá Byko skýrði svo frá fyrir dómi að verslunarstjórar hafi sent inn reikningsumsóknir til viðskiptaráðgjafar sem hafi metið hvort reikningsviðskipti yrðu heimiluð. Hann kvað verslunarstjóra hafa til umráða reikninga sem þeir hafi getað notað til lánsviðskipta utan skrifstofutíma. Hafi þetta eingöngu verið hugsað sem bráðabirgðaúrræði. Hann kannaðist ekki við að svokallað tilboðskerfi hefði verið notað nema í því tilviki sem hér um ræðir. Hann kvað þessa aðferð stranglega bannaða og hafi ákærða verið kunnugt um það. Hann hafi sent tvo tölvupósta, í október og nóvember 2006 þar sem sérstaklega hafi verið áréttað að algjörlega óheimilt væri að afhenda vörur út úr húsi án þess að þær væru skráðar. Tilboðskerfið hafi aðeins verið hugsað til að gera verðtilboð, ekki til þess að halda utan um viðskipti. Hann kvað 5x ehf. ekki hafa verið í reikningsviðskiptum, því hafi verið hafnað. Hann kvað sér fyrst hafa orðið kunnugt um viðskiptin við fyrirtækið um vorið 2007 þegar í ljós kom að því hefði verið lánað í gegnum verslunarstjórareikning. Vitnið kvað verslunarstjóra ekki heimilt að nota verslunarstjórareikninginn til lánsviðskipta við þá sem viðskiptaráðgjöf hafði ekki heimilað í reikningsviðskipti.

Vitnið Birgir Örn Friðjónsson sem var rekstrarstjóri verslunarsviðs hjá Byko skýrði svo frá fyrir dómi að um vorið 2007 hefðu komið í ljós ógreiddar  nótur á bak við á fyrirtækið 5x ehf. Hefði ákærði gengið í að innheimta kröfuna á hendur fyrirtækinu og hefðu fengist greiddar um 8,6 milljónir króna. Hafi þá verið farið stranglega yfir það að þetta væri bannað. Eftir að vörutalning hafi farið fram um haustið hafi komið fram óeðlilega mikill mismunur og hafi þá komið í ljós að vörur fyrir rúmar 6 milljónir hefðu verið afhentar 5x ehf. úr tilboðskerfinu en á nafni Ingvars Björnssonar. Hefði starfsfólk borið að ákærði hefði heimilað þessar úttektir og á fundi með ákærða hafi hann í fyrstu ekki viljað kannast við þetta en sagt að hann skyldi reyna að fá þetta greitt. Hann kvað þetta eina tilvikið sem hann hafi vitað um að tilboðskerfið hafi verið notað með þessum hætti hjá Byko. Hann kvað þetta engan veginn í samræmi við lánareglur Byko. Ákærða hafi verið fullkunnugt um að viðskiptaráðgjöf hefði hafnað því að hafa 5x ehf. í reikningsviðskiptum. Hann kvað verslunarstjórareikning hafa verið á ábyrgð verslunarstjóra og hugsaðan til að lána smærri upphæðir utan skrifstofutíma en ekki hefði verið heimilt að lána þeim fyrirtækjum sem ekki hefðu fengið samþykkt reikningsviðskipti.

Vitnið Ingvar Björnsson kvaðst hafa starfað fyrir 5x ehf. og m.a. hafi hann sótt efni í Byko. Hann kvað sér ekki hafa verið kunnugt um að fyrirtækið væri ekki í reikningsviðskiptum hjá Byko. Fyrst hafi allar vörur verið staðgreiddar en síðar hafi verið um reikningsviðskipti að ræða. Eftir að fyrirtækið hafi lent í greiðsluerfiðleikum hafi ákærði spurt hvort hann mætti flytja viðskiptin yfir á nafn vitnisins þar til fyrirsvarsmaður 5x ehf. greiddi reikningana. Vitnið kvaðst ekki hafa gefið leyfi fyrir þessu en ekki bannað það heldur. Eftir þetta hafi vitnið gefið upp sína kennitölu þegar það tók út vörur en úttektirnar hafi verið í þágu 5x ehf. Hann kvað það hafa komið fyrir að fyrirtækinu hafi verið neitað um úttekt en þá hafi verið haft samband við ákærða sem hafi heimilað úttektir.

Vitnið Sigurbjörn Jónasson, starfsmaður Byko, skýrði svo frá fyrir dómi að fyrirsvarsmaður 5x ehf. hafi staðgreitt vörur í fyrstu en síðar hafi það gerst að vörur hafi verið settar í tilboðskerfið, þær hafi verið afhentar en ekki hafi verið greitt fyrir þær. Vitninu hafi verið sagt að hann væri að bíða eftir fokheldisvottorði og myndi hann greiða þegar það kæmi. Vitnið staðfesti að þessi háttur hefði verið hafður á um fleiri viðskiptavini og kvað vitnið ákærða hafa haft frumkvæði að þessum viðskiptaháttum.

Vitnið Heimir Frederiksson Bates skýrði svo frá fyrir dómi að hann hefði verið sölumaður hjá Byko og hefði að frumkvæði ákærða verið sett upp reikningsviðskiptakerfi fyrir 5x ehf. með þeim hætti að tilboðskerfið hélt utan um það. Hann kvað þetta hafa verið gert með fleiri fyrirtæki en alltaf með samþykki ákærða.

Vitnið Tinna Rún Ragnarsdóttir skýrði svo frá fyrir dómi að hún hafi unnið á skrifstofu Byko og hafi henni verið kunnugt um að skuld 5x ehf. hafi verið geymd í tilboðskerfinu samkvæmt fyrirmælum ákærða.

Samkvæmt framansögðu verður að telja fullsannað að ákærða hafi verið kunnugt um að af hálfu fyrirsvarsmanna Byko hafði því verið hafnað að hafa fyrirtækið 5x ehf. í reikningsviðskiptum. Er fram komið í málinu að ástæða þess hafi verið sú að fyrirtækið hafi ekki getað sett nægar tryggingar fyrir slíkum viðskiptaháttum. Hlaut ákærða því að hafa verið ljóst að af þessum sökum var honum óheimilt að afhenda umræddu fyrirtæki vörur án þess að þær væru staðgreiddar. Ákærði gegndi störfum verslunarstjóra og var því í aðstöðu til þess að koma því til leiðar þrátt fyrir þessi skýru fyrirmæli  að fyrirtækið fékk afhentar vörur frá Byko án þess að staðgreiða þær. Það gerði ákærði með því að skrá vörurnar í svokallað tilboðskerfi en það leiddi til þess að vörurnar voru ekki skráðar út af lager í birgðabókhaldi og því gátu stjórnendur fyrirtækisins ekki séð fyrr en við birgðatalningu að vörurnar hefðu verið afhentar. Þá gerði ákærði sér far um að leyna því að vörur hefðu verið afhentar fyrirtækinu 5x ehf. með því að skrá þær á nafn og kennitölu Ingvars Björnssonar, starfsmanns þess fyrirtækis. Ákærða hlaut að vera ljóst að veruleg hætta væri á því að fyrirtækið 5x ehf. væri ekki í stakk búið til þess að greiða fyrir vöruúttektir sínar og hefur hann því með háttsemi sinni misnotað aðstöðu sína sem verslunarstjóri hjá Byko með því að afhenda umræddu fyrirtæki vörur eins og nánar er rakið í ákæru. Hefur ákærði því gerst sekur um brot gegn 249. gr. almennra hegningarlaga og hefur hann unnið sér til refsingar.

Samkvæmt sakavottorði ákærða hefur hann ekki áður sætt refsingu. Þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 8 mánuði en fullnustu refsingarinnar skal frestað og skal hún niður falla að liðnum 2 árum frá uppkvaðningu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.

Bótakrafa sem fyrir liggur í máli þessu er byggð á úttektum fyrir 5x ehf. á nafni Ingvars Björnssonar sem fundust í tilboðskerfi Byko og er þannig sundurliðuð að úttekt 31. janúar 2007 er talin nema 1.312.181 krónu, úttekt 6. febrúar sama ár er talin nema 3.755.702 krónum, úttekt 9. maí sama ár er talin nema 515.333 krónum og úttekt 31. maí sama ár er talin nema 924.924 krónum, eða samtals 6.508.140 krónum. Vísað er til almennu skaðabótareglunnar og að því er vexti varðar er vísað til 1. mgr. 8. gr. laga nr., 9. gr. og 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001. Krafist er málskostnaðar með vísan til 3. mgr. 176. gr. laga nr. 88/2008. Að mati dómsins er bótakrafan nægum gögnum studd og verður hún tekin til greina eins og í dómsorði greinir. Með vísan til 3. mgr. 176. gr. síðastgreindra laga ákveðst málskostnaður lögmanns brotaþola 300.000 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti sem ákærða ber að greiða.

Með vísan til 1. mgr. 218. gr., sbr. 217. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála ber að dæma ákærða til greiðslu alls sakarkostnaðar, þ.m.t. þóknun skipaðs verjanda ákærða, Gríms Hergeirssonar hdl., 439.250 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti. Þá verður ákærða gert að greiða kostnað og þóknun vegna vitna samkvæmt yfirliti sækjanda, samtals 164.626 krónur.

Hjörtur O. Aðalsteinsson dómstjóri kveður upp dóm þennan. Dómsuppkvaðning hefur dregist fram yfir lögbundinn frest en dómari og sakflytjendur töldu ekki þörf endurflutnings.

Dómsorð:

Ákærði, Agnar Bent Brynjólfsson, sæti fangelsi í 8 mánuði en fullnustu refsingarinnar skal frestað og skal hún niður falla að liðnum 2 árum frá uppkvaðningu dómsins haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.

Ákærði greiði allan sakarkostnað, þ.m.t. þóknun skipaðs verjanda ákærða, Gríms Hergeirssonar hdl., 439.250 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti auk kostnaðar og þóknunar vegna vitna 164.626 krónur.

Ákærði greiði Byko ehf. (áður Byko hf.), kennitala 000000-0000, skaðabætur að fjárhæð 6.508.140 krónur, auk vaxta skv. 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, af 1.312.181 krónu frá 31. janúar 2007 til 6. febrúar 2007, af 5.067.883 krónum frá þeim degi til 9. maí 2007, af 5.583.216 krónum (svo) frá þeim degi til dómsuppsögu, en frá þeim degi með dráttarvöxtum skv. 1. mgr. 6.gr., sbr. 9. gr. sömu laga til greiðsludags og 300.000 krónur í málskostnað að meðtöldum virðisaukaskatti.

Hjörtur O. Aðalsteinsson