Héraðsdómur Suðurlands
Dómur 18. maí 2010.
Mál nr. E-434/2009:
Héðinn
hf.
(Indriði Þorkelsson hrl)
gegn
Dala-Rafni
ehf.
Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir hdl.)
Lykilorð
Aðild. Ábyrgð. Skuldamál. Sönnun.
Útdráttur
Deilt um greiðslu vegna viðgerðar á grandaravindumótor.
Dómkröfur stefnanda eru þær að stefndi verði dæmdur til að greiða stefnanda skuld að fjárhæð 838.386 krónur ásamt dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. vaxtalaga nr. 38/2001 frá 9. maí 2008 til greiðsludags og málskostnað samkvæmt reikningi.
Dómkröfur stefnda eru þær að hann verði sýknaður af öllum kröfum stefnanda. Þá krefst stefndi málskostnaðar úr hendi stefnanda samkvæmt reikningi.
Málavextir.
Málavextir eru þeir samkvæmt lýsingu stefnda að hann mun hafa keypt skipið Dala-Rafn VE-508 af B.P. skipum ehf. og fengið það afhent í desember 2007. Hafi B.P. skip ehf. keypt spilkerfi í það af Rolls-Royce Marine AS og sé stefnandi þjónustu- og umboðsaðili Rolls-Royce á Íslandi. Stefnandi hefur lagt fram gögn sem sýna að gerður hafi verið samningur 11. nóvember 2005, en ekki 2006 eins og standi í samningnum, og hafi hann snúist um smíði á spilkerfi í eitt skip á vegum BP skipa, með möguleika á að smíða slík kerfi í tvö skip til viðbótar. Mun þarna vera um að ræða skipin Vestmannaey, Bergey og Vörð, sem í framlögðum gögnum eru sögð skip nr. 44, 45 og 46. Samningur mun hafa verið gerður 18. janúar 2006 um smíði á spilkerfi í skip nr. 44 og hafi hann komið í stað fyrrnefnds samnings sem gerður hafi verið 11.nóvember 2005, en sá samningur hafi ekki verið efndur af hálfu kaupanda. Þessi samningur og samhljóða samningur um skip nr. 45 hafi verið undirritaðir og séu milli Rolls-Royce, Noregi og BP skipa ehf., en samningur um skip nr. 46 hafi ekki verið undirritaður. Þá liggur fyrir sýnishorn af samningi dagsettum 15. febrúar 2007 um skip nr. 47, Dala-Rafn VE-508, en þessi samningur mun aldrei hafa verið undirritaður af BP skipum ehf. Í framangreindum drögum og hinum undirrituðu samningum var ákvæði þess efnis að spilkerfið væri í ábyrgð í 12 mánuði frá afhendingu. Um þremur mánuðum eftir afhendinguna, eða í mars 2008, mun hafa komið upp galli í spilkerfinu, svokölluðum SB innri grandaravindumótor og tilkynnti stefndi stefnanda um hann. Munu spíssar í stjórnlokum hafa afskrúfast við notkun sökum þess að gleymst hefði að líma þá fasta. Stefndi heldur því fram að stefnandi hafi sagst myndu gera við spilkerfið enda væri það enn í ábyrgð og stefnandi þjónustu- og umboðsaðili Rolls- Royce á Íslandi. Í kjölfar viðgerðarinnar sendi stefnandi stefnda reikning en stefndi neitaði greiðsluskyldu sinni, enda væri um að ræða galla í spilkerfi sem enn væri í ábyrgð.
Málsástæður og lagarök stefnanda.
Stefnandi byggir á reikningi að fjárhæð 838.386 krónur, útgefnum þann 9. maí 2008 með gjalddaga sama dag. Reikningurinn sé tilkominn vegna viðgerðar starfsmanna stefnanda á grandaravindumótor að beiðni stefnda, en viðgerðin hafi farið fram í Vestmannaeyjum á tímabilinu 14. mars til 9. maí sama ár. Hafi skuldin ekki fengist greidd þrátt fyrir innheimtutilraunir og sé því nauðsynlegt að höfða mál til greiðslu hennar.
Stefnandi vísar til meginreglna kröfu- og samningaréttar um efndir fjárskuldbindinga sem fái m.a. lagastoð í 45., 47., 52. og 54. gr. laga nr. 50/2000. Um gjalddaga kröfunnar er einkum vísað til meginreglu 49. gr. sömu laga. Dráttarvaxtakröfur eru reistar á reglum III. og IV. kafla vaxtalaga nr. 38/2001 og krafa um málskostnað er byggð á 129. gr. og 130. gr. laga nr. 91/1991.
Málsástæður og lagarök stefnda.
Stefndi byggir á því að um sé að ræða galla sem framleiðandi spilkerfisins beri ábyrgð á og hafi stefnandi gert við hann sem umboðs- og þjónustuaðili framleiðandans á Íslandi. Enginn samningur sé á milli stefnda og stefnanda heldur hafi viðgerðin verið unnin á grundvelli ábyrgðar í framangreindum samningi. Beri stefnanda því ekki greiðsla úr hendi stefnda fyrir viðgerðina. Telji stefnandi sig eiga einhverjar fjárkröfur vegna vinnu sinnar verði hann að beina þeim að Rolls- Royce en ekki stefnda, enda hafi stefnandi verið að sinna vinnu fyrir Rolls-Royce í skipinu vegna galla í spilkerfinu sem verið hafi í ábyrgð.
Stefndi byggir sýknukröfuna á aðildarskorti skv. 2. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991. Ekkert réttarsamband sé á milli stefnanda og stefnda en stefnandi hafi sinnt viðgerð á hlut sem verið hefði í ábyrgð á grundvelli framangreinds samnings. Enginn samningur sé á milli stefnanda og stefnda um það verk sem stefnandi krefjist greiðslu á og beri stefndi enga ábyrgð á kröfu stefnanda. Stefndi hafi ekki ráðið stefnanda í verkið, heldur hafi það verið Rolls-Royce sem hafi ráðið stefnanda sem umboðs- og þjónustuaðila fyrir fyrirtækið á Íslandi. Sé fráleitt að stefnandi geti krafið stefnda um greiðslu kostnaðar vegna viðgerðar á hlutum sem verið hafi í ábyrgð og stefnandi hafi sinnt fyrir framleiðanda sem umboðs- og þjónustuaðili hér á landi. Stefnandi beri sönnunarbyrðina fyrir því að samningur liggi fyrir milli stefnanda og stefnda og að hann hafi ekki verið að sinna viðgerðinni vegna ábyrgðar Rolls-Royce.
Stefndi vísar til meginreglna samninga- og kröfuréttar og vísar um málskostnað til XXI. kafla laga nr. 91/1991.
Niðurstaða.
Í máli þessu krefur stefnandi stefnda um greiðslu vegna viðgerðar á grandaravindumótor í spilkerfi umrædds skips sem óumdeilt er að fór fram að beiðni stefnda. Ekki er deilt um reikningsfjárhæð en stefndi hafnar greiðsluskyldu sinni á þeim forsendum að samkvæmt samningi milli BP skipa ehf. og Rolls-Royce hafi kerfið enn verið í ábyrgð er bilunin varð. Stefnandi sé þjónustu- og umboðsaðili Rolls-Royce á Íslandi og falli kostnaður vegna viðgerðarinnar því undir ábyrgðarskilmála samningsins. Beri því að sýkna stefnda á grundvelli aðildarskorts. Stefnandi byggir á því að ekki hafi verið gerður skriflegur samningur um smíði þessa skips og sé ábyrgð Rolls-Royce því ekki fyrir hendi.
Gunnar Helgi Hauksson, starfsmaður stefnanda, skýrði svo frá fyrir dómi að fyrirsvarsmanni stefnda hefði verið skýrt frá því símleiðis að svo gæti farið að hann þyrfti sjálfur að bera kostnað af viðgerðinni. Hann kvað hafa legið ljóst fyrir á þessum tíma að Rolls-Royce tæki ekki þátt í neinum ábyrgðarmálum af þessu tagi, nema BP skip gerðu upp sín mál. Hann kvað stefnanda vera samstarfsaðila Rolls-Royce hér á landi og sæi hann um ýmsa þjónustu fyrir það fyrirtæki.
Þórður Rafn Sigurðsson, fyrirsvarsmaður stefnda skýrði svo frá fyrir dómi að það hefði ekki komið fram af hálfu stefnanda að stefndi þyrfti að greiða fyrir viðgerðina fyrr en eftir að hún hafði farið fram. Hefði honum þá verið tjáð að spilið hefði verið tekið úr ábyrgð vegna ágreinings við BP skip.
Björgvin Ólafsson, fyrirsvarsmaður BP skipa ehf., skýrði svo frá fyrir dómi að samningur vegna skips nr. 44 hefði einnig átt að gilda um skip nr. 47 en hann mundi ekki eftir því að hafa skrifað sérstaklega undir samning vegna þess skips. Hann kannaðist við að ágreiningur hefði verið við samningsaðilann um greiðslur. Hann kvað að eftir að smíði skipanna hafi verið lokið hafi hann framselt ábyrgð til kaupenda skipanna, þar á meðal stefnda.
Umrædd viðgerð fór fram á tímabilinu 14. mars til 9. maí 2008 og var reikningur gefinn út þann dag. Gerðir voru samningar milli BP skipa ehf. og Rolls- Royce um smíði spilkerfis í önnur skip og heldur fyrirsvarsmaður BP skipa því fram að samningur vegna skips nr. 44 hefði einnig átt að gilda um skip stefnda. Stefndi samdi við BP skip ehf. um kaup á skipinu og heldur fyrirsvarsmaður BP skipa því fram að hann hafi framselt ábyrgðina samkvæmt samningnum til stefnda. Ósannað er að fyrirsvarsmanni stefnda hafi verið gerð grein fyrir því að ábyrgðin væri hugsanlega ekki í gildi vegna vanefnda BP skipa ehf. og þá benda gögn málsins til þess að honum hafi ekki verið kunnugt um það fyrr en eftir að honum barst tölvupóstur frá starfsmanni Rolls-Royce þann 22. maí 2008, eða eftir að viðgerð lauk. Stefndi var ekki aðili að samningi BP skipa ehf. og Rolls-Royce og stóð það því stefnanda næst að tryggja sér sönnun fyrir því að ábyrgðin væri ekki í gildi gagnvart stefnda. Stefnandi ber hallann af því að hafa látið það undir höfuð leggjast og verður stefndi því sýknaður af öllum kröfum stefnanda í máli þessu.
Eftir þessum úrslitum ber að dæma stefnanda til að greiða stefnda 250.000 krónur í málskostnað.
Hjörtur O. Aðalsteinsson dómstjóri kvað upp dóminn. Dómsuppkvaðning hefur dregist fram yfir lögbundinn frest en dómari og lögmenn aðila töldu ekki þörf endurflutnings.
DÓMSORÐ:
Stefndi, Dala-Rafn ehf., skal vera sýkn af öllum kröfum stefnanda, Héðins hf. í máli þessu.
Stefnandi greiði stefnda 250.000 krónur í málskostnað.
Hjörtur O. Aðalsteinsson.