Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Suðurlands

Mál nr. S-380/2007:

Ákæruvaldið

(Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður)

gegn

Daníel Erni Sigurðssyni og

Stefáni Birni Gunnarssyni

svofelldur

d ó m u r :

(enginn)

Upptaka. Vörslur. Ávana- og fíkniefni. Ökuréttarsvipting.

Ákært fyrir vörslur fíkniefna og fíkniefnaakstur. Ákærðu báðir dæmdir til greiðslu sektar og þola upptöku á fíknefnum. Annar ákærði auk þess sviptur ökurétti í 10 mánuði og til greiðslu sakarkostnaðar.

Mál þetta, sem þingfest var þann 24. september sl. og dómtekið sama dag, er höfðað með ákæru lögreglustjórans á Selfossi, dagsettri 28. mars 2007, á hendur Daníel Erni Sigurðssyni, kt. 000000-0000, Brekkuhjalla 1, Kópavogi, og Stefáni Birni Gunnarssyni, kt. 000000-0000, Sæbólsbraut 33, Kópavogi, „ I. gegn ákærða Daníel fyrir fíkniefnalagabrot: með því að hafa, að kvöldi þriðjudagsins 6. febrúar 2007 haft í vörslu sinni í bifreiðinni AM-043, á bifreiðastæði við Esso í Skógarseli í Reykjavík, samtals 1,52 g af tóbaksblönduðu kannabisefni sem lögregla fann við leit á ákærða og í bifreið ákærða umrætt sinn.

Telst brot ákærða varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, 75/1982, 13/1985, 68/2001 og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001 með síðari breytingum.

II. gegn ákærðu Daníel og Stefáni fyrir fíkniefnalagabrot:

með því að hafa, að kvöldi sunnudagsins 22. apríl 2007 í Hjalladal í Heiðmörk haft í sameiginlegri vörslu sinni í bifreiðinni TG-738 0,57 g af kannabisefni, sem ákærðu hentu út um glugga á hægri hlið bifreiðarinnar er þeir urðu lögreglu varir.

Telst brot ákærðu varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, 75/1982, 13/1985, 68/2001 og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001 með síðari breytingum.

III. gegn ákærða Daníel fyrir fíkniefnalagabrot:

með því að hafa, aðfaranótt laugardagsins 28. apríl 2007 haft í vörslu sinni í bifreiðinni VS-745 0,58 g af tóbaksblönduðu kannabisefni sem ákærði henti frá sér og sparkaði undir bifreiðina eftir að lögregla kom að fyrrgreindri bifreið á bifreiðastæði Smáratorgs í Kópavogi.

Telst brot ákærða varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, 75/1982, 13/1985, 68/2001 og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001 með síðari breytingum.

IV. gegn ákærða Daníel fyrir umferðarlagabrot

með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 4. mars 2007 ekið bifreiðinni AM-043 með ótendruðum afturljósum, vestur Suðurlandsveg við Arnberg á Selfossi, óhæfur til að stjórna bifreiðinni örugglega vegna áhrifa tetrahýdrókannabínóls.

Teljast brot ákærða varða við 1. mgr. og 2. mgr. 32. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. 7. gr. reglugerðar um gerð og búnað ökutækja nr. 822, 2004 með síðari breytingum og 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. umferðarlaga nr. 50, 1987 sbr. 5. gr. laga nr. 66, 2006, sbr. 1. mgr. 100. gr. nefndra umferðarlaga.

V. gegn ákærða Daníel fyrir fíkniefnabrot

með því að hafa á sama stað og stund og frá greinir í ákærulið IV. haft í vörslu sinni 0,71 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, sem lögregla fann við leit í bifreið ákærða umrætt sinn.

Telst brot ákærða varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, 75/1982, 13/1985, 68/2001 og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001 með síðari breytingum.

Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til að sæta upptöku á haldlögðum fíkniefnum (efnaskrá nr. 11150, 11151, 11548, 11595 og 11279), samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001, einnig er þess krafist að ákærða Daníel verði gert að sæta sviptingu ökuréttar samkvæmt 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50, 1987, sbr. lög nr. 44, 1993, lög nr. 57, 1997, lög nr. 23, 1998, lög nr. 132, 2003, lög nr. 84, 2004 og lög nr. 66, 2006.“

Ákærðu mættu ekki við þingfestingu málsins þrátt fyrir löglega birta ákæru þann 14. og 17. september sl. ásamt fyrirkalli þar sem þess var getið að málið kynni að verða dæmt að ákærðu fjarstöddum. Málið var því tekið til dóms samkvæmt 1. mgr. 126. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

Um málavexti vísast til ákæruskjals. Sannað er að ákærðu frömdu brot þau sem greinir í ákæru og eru þau réttilega færð til refsiákvæða. Ákærðu hafa með háttsemi sinni unnið sér til refsingar. Samkvæmt sakavottorði ákærða Daníels var ákvörðun refsingar frestað þann 23. febrúar 2006 í Héraðsdómi Reykjaness, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir brot gegn 244. gr. almennra hegningarlaga. Þann 14. febrúar 2007 var ákærða gert að greiða 83.000 krónur í sekt fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og umferðarlagabrot og gert að sæta sviptingu ökuréttar í þrjá mánuði og þann 19. mars 2007 var ákærða gert að greiða 31.000 krónur í sekt fyrir fíkniefnabrot. Í máli þessu hefur ákærði Daníel verið sakfelldur fyrir fjögur fíkniefnabrot auk aksturs undir áhrifum fíkniefna. Brot ákærða samkvæmt ákærulið I er framið áður en dómur gekk í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 14. febrúar sl. og ber því að dæma ákærða hegningarauka samkvæmt reglum 78. gr. hegningarlaga. Þá voru brot samkvæmt ákæruliðum IV og V framin áður en ákærði gekkst undir sátt þann 19. mars sl. hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu og verður honum ákvörðuð refsing með hliðsjón af 78. gr. hegningarlaga. Þá verður að líta til þess að um ítrekuð brot er að ræða hjá ákærða. Þykir refsing hans með hliðsjón af ofansögðu hæfilega ákveðin 250.000 króna sekt til ríkissjóðs, sem ákærða ber að greiða innan fjögurra vikna frá birtingu dóms að telja en sæta ella fangelsi í átján daga.

Þá skal ákærði sviptur ökurétti í tíu mánuði.

Að þessari niðurstöðu fenginni skal ákærða Daníel gert að greiða allan sakarkostnað sem er vegna blóðrannsóknar 110.453 krónur.

Þá skal ákærði sæta upptöku á fíkniefnum eins og í dómsorði greinir.

Ákærði Stefán gekkst undir sátt þann 12. janúar 2006 vegna fíkniefnalagabrota og var gert að greiða 37.000 króna sekt. Refsing ákærða þykir nú hæfilega ákveðin 30.000 króna sekt til ríkissjóðs sem ákærða ber að greiða innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms að telja en sæta ella fangelsi í fjóra daga.

Þá sæti ákærði upptöku á fíkniefnum eins og í dómsorði greinir.

Ástríður Grímsdóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð :

Ákærði Daníel Örn Sigurðsson greiði 250.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá birtingu dóms þessa en sæti ella fangelsi í átján daga.

Ákærði skal sviptur ökurétti í tíu mánuði frá birtingu dóms að telja.

Ákærði sæti upptöku á 2,81 grammi af tóbaksblönduðu kannabisefni.

Ákærði greiði allan sakarkostnað, 110.453 krónur.

Ákærði Stefán Björn Gunnarsson greiði 30.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dóms að telja en sæti ella fangelsi í fjóra daga.

Ákærðu báðir sæti upptöku á 0,57 grömmum af kannabisefni.

Ástríður Grímsdóttir.