Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 8. nóvember 2024.
Lykilorð
Endurgreiðslukrafa. Málskostnaður. Umsýsluviðskipti.
Útdráttur
Stefnandi og stefndi sammæltust um að kaupa saman 44 bifreiðar. Stefnandi millifærði inn á stefnda staðfestingargjald fyrir 22 bifreiðar sem greiddi þær til erlenda söluaðilans, en stefndi sá alfarið um samskiptin við erlenda söluaðilann. Stefndi hafði frumkvæði að því að falla frá kaupunum og reis upp ágreiningur um hvort honum bæri að endugreiða staðfestingagjaldið til stefnanda. Engin gögn lágu fyrir um þetta í málinu en litið var svo á að það hefði staðið stefnda nær að tryggja sér sönnun um það. Skýringar stefnda að fallið hefði verið frá kaupunum vegna verðlækkunar bifreiðanna voru ekki í samræmi við gögn málsins. Var stefndi dæmdur til að endurgreiða fjárhæðina.
Dómur
Málsmeðferð og dómkröfur aðila
- Mál þetta, sem dómtekið var 16. október 2024, var höfðað 20. október 2023 af Car-rental ehf., Njarðarbraut 1E, Reykjanesbæ, gegn GG bílainnflutningi ehf., Malarhöfða 2,
- Reykjavík.
- Stefnandi krefst þess að stefndi verði dæmdur til að greiða honum 3.069.010 kr., með dráttarvöxtum skv. 6. gr. laga nr. 38/2001 frá 21. júlí 2023 til greiðsludags auk málskostnaðar.
- Stefndi krefst sýknu af kröfum stefnanda auk málskostnaðar.
Helstu málsatvik
- Ágreiningur er um málsatvik. Stefnandi á og rekur bílaleiguna Car-rental á Suðurnesjum.
Stefndi starfar við bílainnflutning frá Evrópu og Bandaríkjunum. Stefnandi og stefndi gerðu samkomulag um kaup stefnda á 22 bílum af gerðinni Kia Xceed fyrir stefnanda í júní 2022. Stefnandi fékk upplýsingar frá stefnda um að þeir gætu keypt 44 bifreiðar af þessari tegund frá Belgíu og myndi þá hvor aðili kaupa 22 bíla.
- Í málinu liggja fyrir tölvuskeytasamskipti stefnda við belgískan aðila frá 14. júní 2022, um kaup á umræddum bifreiðum. Í þessum samskiptum er vísað til þess að greitt sé staðfestingargjald að fjárhæð 1.000 evrur fyrir hverja bifreið.
- Hinn 22. júní 2022 greiðir stefnandi inn á reikning stefnda 3.069.010 kr. vegna kaupa á 22 bílum af gerðinni Kia Xceed, sem samsvarar 22.000 evrum m.v. gengi gjaldmiðla á þeim tíma. Sama dag greiðir stefndi 44.000 evrur inn á erlendan bankareikning, með þeirri skýringu að um sé að ræða greiðslu vegna Kia Xceed. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum var kaupverð hverrar bifreiðar 24.990 evrur, en stefndi vísar til þess að til að tryggja það verð hafi þurft að kaupa 44 bíla.
- Samkvæmt tölvuskeyti stefnda til stefnanda 23. janúar 2024 er kaupverð Kia Xceed komið í 25.050 evrur. Tekið er fram að búið sé að greiða 1000 evrur inn á bílana. Gert er ráð fyrir afhendingu bifreiðanna í apríl eða fyrr.
- Samkvæmt gögnum málsins sendi belgíski söluaðilinn tölvuskeyti 6. febrúar 2023 til stefnda, þar sem staðfest er móttaka 12 bifreiða af gerðinni Kia Xceed vegna pöntunarinnar. Sama dag upplýsir stefndi að hann hafi hætt við kaupin og ákveðið að gefa eftir staðfestingargjaldið. Hinn 14. febrúar 2023 sendir belgíski söluaðilinn riftunaryfirlýsingu þar sem fram kemur að hætt hafi verið við kaup á 44 bifreiðum og staðfestingargjaldið sé gefið eftir.
- Með bréfi lögmanns stefnanda til stefnda, dagsettu 21. júní 2023, skorar stefnandi á stefnda að endurgreiða móttekna innborgun að fjárhæð 3.069.010 kr. vegna fyrirhugaðra kaupa stefnanda á Kia-bifreiðum sem stefndi hafði milligöngu um.
- Lögmaður stefnda svaraði bréfinu með töluvuskeyti 26. júní 2023 þar sem hann sagði stefnda reiðubúinn að afhenda umrædda bíla sem gætu komið til afhendingar í næstu viku frá kaupunum. Eðlilegt sé að ganga frá kaupsamningi um kaupin og áskilji stefndi sér allan rétt til bóta verði ekki staðið við þau. Stefnandi svaraði með tölvuskeyti um að enginn samningur væri lengur fyrir hendi um kaupin og ítrekaði kröfu um endurgreiðslu.
Í tölvuskeyti stefnda til stefnanda 26. júní 2023 vísar stefndi til samskipta við belgíska söluaðilann nokkrum dögum áður, vegna kaupa stefnda á 22 bifreiðum af gerðinni Kia Xceed. Kaupverð hverrar bifreiðar á þeim tíma var 22.100 evrur.
- Ágreiningur stefnanda og stefnda varðandi málavexti lýtur að því að stefnandi heldur því fram að stefndi hafi upplýst hann í janúar 2023 um að hann vildi að í stað Kia-bifreiðanna kæmu Nissan Leaf-bifreiðar sem hann teldi vera á hagstæðari kjörum, en slíkar bifreiðar hafi stefnandi ekki talið henta til útleigu og hafnað þessu. Aðilar hafi sammælst um að láta kaupin ganga til baka og stefndi myndi endurgreiða stefnanda umrædda innborgun við endursölu Nissan Leaf-bifreiðanna. Á þetta hafi stefndi fallist og skyldi endurgreiðslan eiga sér stað á vormánuðum 2023. Í framhaldi af því keypti stefnandi aðrar bifreiðar til að nota í rekstri sínum. Stefndi hafi ekki getað endurgreitt fjármunina og eftir árangurslausar innheimtuaðgerðir hafi stefndi leitað til lögmanns sem sendi áðurnefnt bréf til stefnda, dagsett 21. júní 2023. Því bréfi hafi stefndi svarað með því að hann gæti enn útvegað umræddar Kia-bifreiðar þó rúmlega ár væri liðið frá því að greiðslan fór fram og allar forsendur fyrir viðtöku bílanna sem átti að afhenda eigi síðar en í apríl 2023 brostnar, auk þess sem aðilar höfðu komist að samkomulagi um uppgjör.
- Stefndi heldur því aftur á móti fram að aldrei hafi verið rætt um að bifreiðarnar skyldu afhendast í apríl heldur þyrftu þær að vera komnar um sumarið. Viðskiptin með bílana 44 hafi verið gerð til að tryggja áðurgreint verð. Stefndi hafi ekki fengið neina þóknun fyrir viðskiptin, auk þess sem engin álagning hafi verið lögð á bílana af hálfu stefnda.
Um umsýsluviðskipti hafi verið að ræða og því hafi enginn samningur verið gerður um bílakaupin. Verð á þessum bifreiðum hafi lækkað um mánaðamótin nóvember og desember 2022 og haldið áfram að lækka og það hafi leitt til þess að hægt hafi verið að kaupa bifreiðarnar á lægra verði. Það hafi því verið hagstæðara að hætta við kaupin og tapa staðfestingargjaldinu en að standa við kaupin. Stefndi hafi aldrei gengist undir þá skuldbindingu að endurgreiða stefnanda umrædda greiðslu.
Helstu málsástæður og lagarök stefnanda
- Stefnandi byggir á því að stefndi hafi ekki afhent umsamdar Kia-bifreiðar í samræmi við samkomulag aðila heldur boðið fram aðrar bifreiðar sem stefnandi hafnaði, þar sem þær þjónuðu ekki hagsmunum hans. Hafi stefndi nýtt fjármunina m.a. til innflutnings á rafmagnsbifreiðum með samþykki stefnanda, en gegn þeirri sjálfsögðu kröfu að fá þá endurgreidda.
- Stefnandi vísar til þess að upphaflegt samkomulag aðila um kaup stefnanda á Kiabifreiðum hafi fallið niður með samþykki beggja og stefndi lofað stefnanda endurgreiðslu móttekins fjár við endursölu annarra bifreiða, þó eigi síðar en á vormánuðum 2023.
Stefndi hafi ekki staðið við samkomulag um endurgreiðslu fjárins og fyrst tilkynnt stefnanda, eftir að lögmaður stefnanda hóf innheimtuaðgerðir, að hann gæti afhent umræddar Kia-bifreiðar án þess að framvísa nokkrum gögnum um þær og löngu eftir að upphaflega stóð til að afhenda þær. Stefnandi hafi aldrei samþykkt þetta.
- Stefnandi vísar til þess að grundvöllur upphaflega samkomulagsins hafi brostið við það að stefndi hafi ekki afhent bifreiðarnar um vorið 2023, þ.m.t. greiðsla kaupverðs. Stefndi hafi ekki getað vænst þess að að stefnandi væri bundinn við kaupin rúmu ári eftir að samkomulag aðila var gert, án þess að tilkynna það stefnanda innan hæfilegs tíma eftir að staðfestingargreiðslan var innt af hendi. Slík tilkynning löngu síðar bindi ekki stefnanda. Til þess að svo væri hefði stefndi þurft að tilkynna um efndahindrun mun fyrr, ef ætlun hans var að byggja rétt sinn til að efna samkomulagið við stefnanda með breyttu efni, sbr. grunnreglur 28. gr. lausafjárkaupalaga nr. 50/2000 og reglur um tillitsskyldu í samningum.
- Stefnandi bendir á að stefndi hafi atvinnu af því að flytja inn bifreiðar til endursölu, og hafi m.a. þjónustað bílaleigur í því skyni. Honum hafi því mátt vera ljóst, eftir að hann gat eða vildi ekki standa við samkomulag aðila, að stefnandi gæti ekki beðið í rúmlega eitt ár með að fá bifreiðarnar afhentar. Háttsemi og framkoma stefnda sýni einnig að hann gerði ekkert til að afhenda bifreiðarnar allt fram til þess tíma er stefnandi leitaði til lögmanns.
- Stefnandi byggir á því að ástæðu þess að stefndi hafi ekki sent neina tilkynningu þess efnis að hindrun stæði í vegi fyrir efndum upphaflegs samkomulags sé einungis að rekja til þess að aðilar sammæltust um að láta kaupin ganga til baka, án skyldu til greiðslu skaðabóta. Áskilnaður stefnda um skaðabætur sé allt of seint fram kominn og í blóra við það samkomulag sem aðilar gerðu með sér.
Helstu málsástæður og lagarök stefnda
- Stefndi byggir sýknukröfu sína á því að ekkert samningssamband sé á milli málsaðila.
Stefndi hafi aldrei gengist undir þá skuldbindingu að endurgreiða stefnanda umrædda tryggingu sem stefnandi segi vera innborgun. Tryggingin hafi ekki verið nýtt af stefnda heldur greidd til bílasölu í Belgíu sem hafi nýtt trygginguna til þess að gera upp tjón sem hafi leitt af vanefndum málsaðila á að standa við umrædd bílakaup. Stefnandi hafi tapað 22.000 evrum og stefndi sömu fjárhæð. Stefndi byggir á því að stefnanda, sem sé reyndur í viðskiptum, hafi verið fullkunnugt um það frá upphafi að 44.000 evra tryggingin sem var millifærð myndi tapast ef ekki yrði staðið við kaupin. Það hafi því aldrei komið til tals að stefndi myndi endurgreiða stefnanda trygginguna eða nýta hana í öðrum viðskiptum ef hætt yrði við kaupin.
- Stefndi vísar til þess að hann hafi ekki fengið neina þóknun fyrir viðskiptin og því séu engar forsendur til þess að endurgreiða stefnanda trygginguna. Stefnandi hafi verið sammála stefnda um að hagstæðara væri að hætta við kaupin en efna þau. Stefnandi hafi ákveðið að hætta við viðskiptin vegna breyttra aðstæðna. Stefndi beri ekki ábyrgð á þeirri ákvörðun enda hefði stefndi ávallt getað haft milligöngu um afhendingu bílanna. Þar sem stefndi hafi aldrei gengist undir umrædda skuldbindingu beri að sýkna hann af dómkröfu stefnanda.
- Stefndi vísar til þess að bílasalan í Belgíu hafi hvenær sem var getað afhent umrædda bíla og stefndi haft milligöngu um það, gegn því að umsamið kaupverð yrði greitt. Ef stefnandi telur sig eiga einhverja kröfu geti hann beint þeirri kröfu að bílasölunni í Belgíu og fengið allar viðeigandi upplýsingar um bílasöluna frá stefnda.
- Stefndi vísar til þess að viðskipti aðila hafi ekki komið frekar til tals milli málsaðila og því hafi stefnandi gengið út frá að þeim væri lokið. Komið hafi til frekari viðskipta milli aðila eftir þetta án þess að rætt hafi verið um framangreind bílakaup og endurgreiðslur vegna þeirra. Ef stefnandi taldi sig hafa gert samning við stefnda og að viðskiptin væru enn í gildi hafi honum verið í lófa lagið að gera kröfu á grundvelli þeirra, krefjast efnda og eftir atvikum rifta kaupunum, sbr. 22. gr. laga nr. 50/2000. Stefnandi hafi hins vegar ekki haft neinn áhuga á því.
- Verði gegn væntingum stefnda komist að þeirri niðurstöðu að samningssamband sé á milli málsaðila byggir stefndi á því að félagið eigi skaðabótakröfu á hendur stefnanda vegna vanefnda hans á því að standa við umsamin bílakaup. Óumdeilt sé í málinu að stefnandi skuldbatt sig til þess að kaupa 22 bíla af gerðinni Kia Xceed. Kaupunum hafi aldrei verið rift af hálfu stefnanda enda engin skilyrði til þess. Þá hafi engar forsendur verið til að ógilda kaupin eða hætta við þau. Stefndi hafi ekki vanefnt skyldur sínar enda hafi hann getað afhent umrædda bíla gegn greiðslu kaupverðsins. Stefnandi hafi vanefnt kaup sín á bílunum þrátt fyrir áskorun stefnda og það hafi leitt til þess að stefndi tapaði hagnaði af sölu bílanna, en stefndi hefði getað útvegað bílana á 22.000 evrur og hagnast þannig um 3.000 evrur á hverjum bíl. Krafa um skaðabætur byggist á 57. og 60. gr. laga nr. 50/2000. Skaðabótakrafa stefnda komi til skuldajafnaðar á móti dómkröfu stefnanda og stefndi áskilji sér rétt til þess að höfða sérstakt dómsmál fyrir mismuninum.
Niðurstaða
- Ágreiningur aðila lýtur að því hvort stefnandi eigi rétt á því að fá endurgreiddar 3.069.010 kr. sem hann lagði inn á reikning stefnda vegna bílakaupa eða hvort um hafi verið að ræða staðfestingargjald vegna bílakaupa sem sé óendurkræft, þar sem fallið hafi verið frá kaupunum.
- Í málinu er óumdeilt að stefnandi og stefndi voru ásáttir um kaup á 44 bifreiðum af gerðinni Kia Xceed. Jafnframt liggur fyrir í gögnum málsins að stefnandi millifærði 22. júní 2022 inn á reikning stefnda 3.069.010 krónur vegna kaupa á 22 bifreiðum af þessari tegund. Fjárhæðin svarar til 22.000 evra á þessum tíma eða 1.000 evra á hverja bifreið.
Þá liggur jafnframt fyrir að stefndi greiddi sama dag belgíska félaginu Rent 4 Less samtals 44.000 evrur og nam skuldfærsla vegna þessa í íslenskum krónum samtals 6.138.120 kr.
- Af gögnum málsins verður ekki annað séð en að afhenda hafi átt þessar bifreiðar í apríl 2023 eða fyrr, þannig að þær myndu nýtast stefnanda í rekstri bílaleigunnar þá um sumarið. Kaupverð bifreiðanna var 25.050 evrur auk kostnaðar við að flytja þær til landsins. Þá er óumdeilt að stefndi hafði frumkvæði að því að fallið yrði frá kaupunum og í staðinn keyptar Nissan Leaf-bifreiðar. Ágreiningurinn varðar hins vegar með hvaða hætti kaupin hafi átt að ganga til baka. Um það liggur ekkert fyrir í gögnum málsins.
Stefnandi heldur því fram að þetta hafi verið í janúar 2023, en fyrir liggur að stefndi rifti kaupunum við belgíska söluaðilann 14. febrúar 2022. Stefndi hefur vísað til þess að ástæða þess að kaupin gengu til baka hafi verið sú að verð bifreiðanna hefði lækkað það mikið að ekki hefði borgað sig að halda sig við kaupin. Hægt hefði verið að kaupa bifreiðarnar á lægra verði og hagnast á þeim viðskiptum miðað við upphaflegt kaupverð þrátt fyrir að innborganir væru óafturkræfar. Stefnandi heldur því aftur á móti fram að þetta sé eftiráskýring sem stefndi hafi fyrst upplýst um þegar stefnandi fór að ganga eftir endurgreiðslu.
- Meðal gagna málsins er tölvuskeyti frá stefnda til stefnanda 23. janúar 2023. Þar er vísað til kostnaðarverðs umræddra Kia Xceed í evrum, samtals 25.050 evrur. Jafnframt er rakið kostnaðarverð á fleiri bifreiðum, þ.á m. Tesla-bifreiðum. Síðan segir orðrétt „Það eina sem er slæmt við pakkann eru Tesla bílarnir sem lækkuðu mikið um áramótin. Þeir eru hins vegar afhentir síðast og það var ekki greitt neitt deposit inn á þá. Það eru búið að greiða EUR1000 inn á alla hina bílana.“ Þessi ummæli stefnda sjálfs styðja ekki þær fullyrðingar hans í greinargerð og fyrir dómi að verð umræddra Kia Xceed-bifreiða hafi lækkað í nóvember og desember 2022 og enn frekar í byrjun árs 2023, þegar ákveðið var að falla frá kaupunum.
- Stefndi hefur ekki lagt fram önnur gögn um umrædda verðlækkun en tölvuskeytasamskipti milli stefnda og belgíska söluaðilans Rent 4 Less, frá 22. og 23. júní 2023, en þar býðst belgíski söluaðilinn til að afhenda 10 bifreiðar keyrðar 17.000 km á 22.100 evrur. Seinna í samskiptunum kemur fram að hægt sé að útvega 22 bifreiðar, en ekkert kemur fram um hversu mikið þær séu keyrðar. Eins og áður hefur verið rakið áttu umrædd kaup á Kia Xceed-bifreiðunum sér stað 22. júní 2022. Þeim var síðan rift 14. febrúar 2023. Upplýsingar um kaupverð bifreiðanna í júní 2023 til þess að sýna fram á lækkun á tímabilinu frá nóvember 2022 til 14. febrúar 2023 eru haldlausar. Hvorki liggur fyrir hvaða árgerð þessar bifreiðar voru né hversu mikið þær voru keyrðar, auk þess sem fyrirfram má gera ráð fyrir að umræddar bifreiðar lækki í verði einu ári eftir að þær voru pantaðar.
- Eins og áður hefur verið rakið liggja engin gögn fyrir um efni þess samnings sem gerður var á milli stefnanda og stefnda. Stefndi móttók 22.000 evra tryggingu frá stefnanda inn á bankareikning sinn og kom einn fram gagnvart hinum erlenda söluaðila. Um umsýsluviðskipti var því að ræða, þar sem stefndi tók að sér að flytja inn í eigin nafni 22 bifreiðar fyrir reikning stefnanda, án þess að áskilja sér þóknun vegna þessara viðskipta.
Stefndi, sem er bílasali og bílainnflytjandi, annaðist því einn innflutning á umræddum bifreiðum og verður að teljast sérfræðingur á umræddu sviði. Stefnandi er vissulega ekki hefðbundinn neytandi og viðskiptin ekki hefðbundin, en hann hefur þó ekki sérstaka reynslu af því að flytja inn bifreiðar. Þó gera megi þær kröfur til beggja aðila að ganga hefði átt frá því um hvað var samið varðandi umrædda endurgreiðslu verður að fallast á að það standi stefnda nær að tryggja sér sönnun þess að hann þurfi ekki að endurgreiða þá fjárhæð sem hann tók á móti frá stefnanda vegna bifreiðakaupanna. Þeirrar sönnunar hefði hann bæði getað aflað þegar hann móttók greiðslu frá stefnanda 22. júní 2022 og þegar hann ákvað að hætta við kaupin í byrjun árs 2022.
- Þá verður ekki fallist á að stefnandi geti beint kröfu að bílasölunni í Belgíu, Rent 4 Less.
Það leiðir af eðli umsýsluviðskipta að löggerningur sem verður milli stefnda og bílasölunnar í Belgíu skapar ekki beint réttarsamband milli stefnanda og belgísku bílasölunnar, Rent 4 Less. Stefnandi getur því ekki beint neinum kröfum að belgísku bílasölunni.
- Loks verður ekki fallist á að stefndi geti átt skaðabótakröfu á hendur stefnanda vegna kaupanna. Það er ósannað að þær bifreiðar sem stefndi hugðist bjóða stefnanda í júní 2023 hafi verið sambærilegar við þær bifreiðar sem voru upphaflega pantaðar. Þá hefur stefndi hvorki sýnt fram á að bifreiðarnar hafi fallið í verði á þeim tíma sem hann ákvað að hætta við kaupin né að hann hafi orðið fyrir tjóni vegna þeirrar ákvörðunar. Stefndi hafði sjálfur frumkvæði að því að hætta við kaupin, þar sem hann taldi að hann gæti gert betri kaup með því að flytja inn aðra tegund, þ.e. Nissan Leaf-bifreiðar. Liggur ekkert fyrir um það hvort hann hafi orðið fyrir tjóni vegna þeirrar ákvörðunar. Jafnframt var gengið út frá því í umræddum viðskiptum að bifreiðarnar yrðu afhentar í síðasta lagi í apríl 2023 en ekki í júní sama ár. Verður því að hafna því að 57. gr. og 60. gr. laga nr. 50/2000 eigi við í þessu tilviki.
- Með vísan til þess sem hér hefur verið rakið verður fallist á kröfu stefnanda um að stefndi endurgreiði honum 3.069.010 kr. auk dráttarvaxta samkvæmt 6. gr. laga nr. 38/2001 frá 21. júlí 2023 til greiðsludags.
- Sú ákvörðun beggja aðila að hlutast ekki til um að ganga frá sönnun um endurgreiðslu fjármuna veldur því að veruleg vafaatriði eru uppi í málinu sem auðvelt hefði verið fyrir báða aðila að komast hjá. Þykir því rétt, með vísan til 3. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991, að málskostnaður falli niður.
- Hilmar Magnússon lögmaður flutti málið fyrir stefnanda og Hilmar Gunnarsson lögmaður fyrir stefnda.
- Helgi Sigurðsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
Dómsorð:
Stefndi, GG Bílainnflutningur ehf., greiði stefnanda, Car-rental ehf., samtals 3.069.010 krónur, auk dráttarvaxta samkvæmt 6. gr. laga nr. 38/2001 frá 21. júlí 2023 til greiðsludags.
Málskostnaður fellur niður.
Helgi Sigurðsson