Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-1424/2022:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Lína Ágústsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Þorvaldi Ægi Þorvaldssyni

(Snorri Sturluson lögmaður)

Akstur sviptur ökurétti. Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Fangelsi. Ítrekun. Játningarmál. Ökuréttarsvipting. Umferðarlagabrot.

Ákærði sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og dæmdur í 20 mánaða fangelsi. Ævilöng svipting ökuréttar áréttuð.

Dómur

Mál þetta, sem dómtekið var í dag, er höfðað með þremur ákærum. Fyrsta ákæran er útgefin af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 22. mars 2022, á hendur Þorvaldi Ægi Þorvaldssyni, kt. […], […], […], fyrir eftirtalin umferðarlagabrot með því að hafa:

  1. Föstudaginn 18. desember 2020, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði ákærða mældist amfetamín 875 ng/ml og MDMA 75 ng/ml) um Reykjanesbraut í Reykjavík og að Lækjargötu við Reykjanesbraut, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

    Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

  2. Miðvikudaginn 30. desember 2020, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði ákærða mældist amfetamín 970 ng/ml) um Austurveg á Selfossi, og að Langholti við verslun BYKO, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

    Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

  3. Sunnudaginn 2. maí 2021, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði ákærða mældist amfetamín 325 ng/ml og MDMA 85 ng/ml) austur Suðurlandsveg í Flóahreppi og að Uppsölum, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn. Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.
  4. Miðvikudaginn 5. maí 2021, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði ákærða mældist amfetamín 155 ng/ml) austur Suðurlandsveg í Flóahreppi og að Ölkelduháls á Hellisheiði, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

    Telst brot þetta varða við 1,. sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

    Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019.

    Önnur ákæran er gefin út af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 21. júní 2022, á hendur ákærða fyrir umferðarlagabrot með því að hafa miðvikudaginn 3. nóvember 2021, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði ákærða mældist amfetamín 600 ng/ml, metýlfenidat 21 ng/ml og MDMA 65 ng/ml) úr bifreiðastæði við Nettó í Borgarnesi, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

    Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

    Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 99. gr. og 101. gr. laga nr. 77/2019.

    Þriðja ákæran er gefin út af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 13. september 2022, á hendur ákærða fyrir umferðarlagabrot með því að hafa, mánudaginn 25. apríl 2022, ekið bifreiðinni […] sviptur ökurétti um Vesturlandsveg við Stórhöfða í Reykjavík, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

    Telst háttsemi þessi varða við 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

    Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

    Mál samkvæmt ákæru dagsettri 22. mars var þingfest 27. apríl sl. og frestað til 22. júní sl. en þá var ákæra dagsett 21. júní lögð fram. Málið var svo aftur tekið fyrir 10. ágúst og frestað til 14. september sl. Í þinghaldi þann dag var þriðja ákæran dagsett 13. september sl. lögð fram. Málin voru öll sameinuð og í þinghaldi 29. september játaði ákærði sök samkvæmt öllum ákærum.

    Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Verjandi ákærða krafðist vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegra málsvarnarlauna sér til handa. Fram kom meðal annars í máli verjanda ákærða að ákærði væri nú sakfelldur fyrir umferðarlagabrot og að um það færi samkvæmt umferðarlögum nr. 77/2019 en að ekki væri heimilt til að beita ítrekunarákvæði almennra hegningarlaga. Verjandi hélt því einnig framað lögreglustjórasátt sú er ákærði gekkst undir 12. apríl 2021 sýndi fram á að ítrekunaráhrif væru fallin niður enda væru viðurlög ákvörðuð samkvæmt henni eins og um fyrsta brot væri að ræða. Þá hélt verjandi því fram að ekki ætti að miða upphaf ítrekunartíma við það þegar ákærði hefði lokið samfélagsþjónustu.

    Sækjandi hélt því meðal annars fram að ítrekunaráhrif hefðu ekki verið rofin og fór fram á refsingu í samræmi við það.

    Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

    Ákærði er fæddur í […]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 16. mars 2022, var ákærða gert að greiða sekt með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 25. júní 2012 meðal annars fyrir akstur sviptur ökurétti. Þá var ákærða gert að greiða sekt með lögreglustjórasátt 18. desember 2012 fyrir akstur sviptur ökurétti. Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur […] 2014 var ákærði dæmdur í 75 daga fangelsi, þar af 30 daga skilorðsbundna til tveggja ára, meðal annars fyrir akstur sviptur ökurétti. Þá var ákærði dæmdur í 90 daga fangelsi, þar af 30 dagar skilorðsbundna til tveggja ára, með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur […] 2015, meðal annars fyrir akstur sviptur ökurétti. Samkvæmt framlögðu sakavottorði lauk ákærði samfélagsþjónustu vegna tveggja síðastgreindra dómanna þann 12. október 2017. Loks var ákærða gert að greiða sekt með lögreglustjórasátt 12. apríl 2021 fyrir akstur sviptur ökurétti. Að öðru leyti kemur sakarferill ákærða ekki til skoðunar við ákvörðun refsingar nú.

    Brot ákærða samkvæmt ákæruliðum nr. 1 og 2 voru framin áður en ákærði gekkst undir framangreinda sátt frá 12. apríl 2021 og verður ákærða því dæmdur hegningarauki nú, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

    Fastmótuð dómvenja er fyrir því að umferðarlagabrot líkt og þau er um ræðir í þessu máli hafi ítrekunaráhrif með stoð í 5. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Er í því sambandi tekið mið af skilyrðum 71. gr. sömu laga fyrir ítrekunaráhrifum brota, og vísast meðal annars til dóma Landsréttar í málum 3/2020 og 532/2021 og dóms Hæstaréttar í máli nr. 30/2021 varðandi þetta atriði.

    Þá hafa lögreglustjórasáttir ítrekunaráhrif með sama hætti og dómar sbr. lokamálslið 71. gr. laga nr. 19/1940. Breytir þá engu þótt viðurlög samkvæmt sátt hafi verið vægari en í raun hafi staðið efni til á þeim tíma er sáttin var gerð, varðandi þá túlkun vísast meðal annars til dóma Landsréttar í málum nr. 110/2019 og nr. 79/2021.

    Samkvæmt 2. mgr. 71. gr. falla ítrekunaráhrif niður, ef liðið hafa 5 ár frá því að sökunautur hefur tekið út fyrri refsinguna, eða frá því að hún hefur fallið niður eða verið gefin upp, þangað til hann fremur síðara brotið. Á sakavottorði ákærða kemur fram að samfélagsþjónustu vegna tveggja dóma sem ákærði hlaut hafi lokið 12. október 2017 er því ljóst að hann var ekki búinn að taka út refsingu vegna þeirra dóma fyrr en á því tímamarki og ítrekunaráhrif því ekki fallin niður. Samkvæmt sakaferli ákærða og að teknu tilliti til alls sem að ofan greinir verður því miðað við það að ákærði sé nú, að teknu tilliti til hegningaraukasjónarmiða, í fimmta og sjötta sinn, innan ítrekunartíma í skilningi 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, gerð refsing fyrir akstur sviptur ökurétti og í fjórða sinn fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Við ákvörðun refsingar í máli þessu verður það virt ákærða til refsimildunar að hann hefur játað brot sín greiðlega fyrir dómi, sbr. 8. tölulið 70. gr. almennra hegningarlaga.

    Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls, dómvenju og 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin 20 mánaða fangelsi. Með vísan til dómvenju þykja ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna. Með vísan til lagaákvæða í ákæru er áréttuð ævilöng svipting ökuréttar ákærða.

    Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipað verjanda síns, Snorra Sturlusonar lögmanns, 251.100 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 498.035 krónur í annan í sakarkostnað sbr. framlögð gögn þar um.

    Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Silja Rán Arnarsdóttir aðstoðarsaksóknari fyrir Línu Ágústsdóttur aðstoðarsaksóknara. Harpa Sólveig Björnsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Þorvaldur Ægir Þorvaldsson, sæti fangelsi í 20 mánuði. Áréttuð er ævilöng svipting ökuréttar ákærða.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipað verjanda síns, Snorra Sturlusonar lögmanns, 251.100 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti, og 498.035 krónur í annan sakarkostnað.

Harpa Sólveig Björnsdóttir

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 70. gr.1. mgr. 70. gr.71. gr.77. gr.78. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 164. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 2. mgr. 50. gr.1. mgr. 58. gr.1. mgr. 95. gr.99. gr.101. gr.