Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-6697/2020:

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu

(Elín Hrafnsdóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Guðfinnur Hafliði Einarsson

(Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)

Akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Endurupptaka. Fangelsi. Ítrekun. Játningarmál. Sakarkostnaður. Svipting ökuréttar.

Ákærði sakfelldur fyrir að hafa í þriðja sinn, innan ítrekunartíma 71. gr. laga nr. 19/1940, gerst sekur um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Ákærða gert að sæta fangelsi í 30 daga og hann sviptur ökurétti ævilangt.

Dómur

Mál þetta, sem þingfest var 5. nóvember 2020 og það dómtekið sama dag, er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 13. október 2020, á hendur Guðfinni Hafliða Einarssyni, kt. [...], [...], [...], „fyrir umferðarlagabrot með því að hafa miðvikudaginn 8. apríl 2020, ekið bifreiðinni [...] án þess að hafa ökuskírteini meðferðis og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist tetrahýdrókannabínól 8,2 ng/ml) um Brekkugötu í Hafnarfirði, við Flensborg, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

Telst brot þetta varða við 1., sbr. 2. mgr. 50. gr. og 1., sbr. 8. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 95. gr. umferðarlaga nr. 77/2019.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu ökuréttar skv. 101. gr. laga nr. 77/2019.“

Ákærði mætti ekki við þingfestingu málsins 5. nóvember sl. þrátt fyrir löglega birtingu ákæru og fyrirkalls 27. október 2020 þar sem þess var getið að málið kynni að verða dæmt að ákærða fjarstöddum. Málið var því tekið til dóms samkvæmt 161. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála, og kveðinn upp dómur í því samdægurs þar sem ákærða var gert að sæta fangelsi í 30 daga, hann sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dómsins að telja og einnig gert að greiða 77.314 krónur í sakarkostnað.

Með beiðni dags. 7. desember sl. fór verjandi ákærða þess á leit við dóminn að málið yrði endurupptekið með vísan til heimildar 1. mgr. 187. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála. Í beiðninni kemur fram að skilyrðum fyrir endurupptöku málsins samkvæmt framangreindu lagaákvæði sé fullnægt. Þá kemur fram að ákærði krefjist þess að fyrri dómur verði felldur úr gildi þar sem ákærði ætli að dómurinn sé ranglega ákveðinn.

Málið var tekið fyrir 17. desember 2020 þar sem endurupptökubeiðni ákærða var lögð fram. Í þinghaldinu upplýsti verjandi ákærða að dómurinn hafði verið birtur fyrir ákærða 20. nóvember 2020. Þar sem endurupptökubeiðnin hafi borist innan tímamarka 1. mgr. 187. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála, var málið endurupptekið í því þinghaldi.

Við fyrirtöku málsins 17. desember 2020 sótti ákærði þing ásamt verjanda sínum og játaði skýlaust sök. Fram kom í máli verjanda ákærða að við endurupptöku málsins sé farið fram á mildun refsingar frá fyrri dómi þar sem það brot sem ákærði hafi verið sakfelldur fyrir með fyrri dómi sé í reynd annað brot ákærða gegn umferðarlögum en ekki önnur ítrekun, þar sem ítrekunaráhrif milli brota samkvæmt sakavottorði hafi verið fallin niður, sbr. 3. mgr. 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þá krafðist verjandi ákærða hæfilegrar þóknunar sér til handa. Ákæruvaldið ítrekaði refsikröfu og krafðist staðfestingar á fyrri dómi. Kom fram í máli sækjanda að refsikrafa ákæruvaldsins miði við að ítrekunaráhrif séu ekki fallin niður. Miða eigi ítrekunaráhrif við dagsetningu brots samkvæmt lögreglustjórasátt en ekki dagsetningu sáttarinnar. Þar sem brot samkvæmt sáttinni hafi verið framið á ítrekunartíma sé um að ræða ítrekun á fyrra broti og ítrekunaráhrif því ekki fallin niður í skilningi 3. mgr. 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

Líkt og að framan greinir játaði ákærði sök. Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008, um meðferð sakamála, og það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga, sbr. framangreint.

Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og er brot hans rétt heimfært til refsiákvæða í ákæru. Ákærði hefur með háttsemi sinni unnið sér til refsingar.

Ákærði er fæddur í [...]. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 8. október 2020, gerði ákærði sátt hjá lögreglustjóra 23. febrúar 2012 og var gert að greiða sekt fyrir m.a. ölvunarakstur og akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Var hann einnig sviptur ökurétti í 13 mánuði frá 13. september 2011. Ákærði gerði aðra sátt hjá lögreglustjóra 19. maí 2017 fyrir ölvunarakstur, akstur undir áhrifum vímuefna og fyrir vörslur fíkniefna. Sakavottorð ákærða hefur að öðru leyti ekki þýðingu við ákvörðun refsingar í máli þessu.

Við ákvörðun refsingar í máli þessu kemur til skoðunar hvort ítrekunaráhrif hafi fallið niður frá því ákærði gerði sátt 23. febrúar 2012 vegna umferðarlagabrots þar til ákærði gerði aðra sátt 19. maí 2017 fyrir sömu sakargiftir. Við mat á því hvort ítrekunaráhrif hafi fallið niður er litið til þess að brot það sem seinni sáttin varðar var framið 9. desember 2016, á ítrekunartíma í skilningi 3. mgr. 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Að mati dómsins þykir liggja ljóst fyrir að það brot fól í sér rof á ítrekunaráhrifum og telst því sem ítrekun á broti samkvæmt sátt 23. febrúar 2012, sbr. 3. mgr. 71. gr. laga nr. 19/1940.

Með vísan til framangreinds verður því við ákvörðun refsingar í máli þessu við það miðað að brot ákærða telst nú ítrekað öðru sinni. Áralöng dómvenja er fyrir því að refsing fyrir slíkt brot sé 30 daga óskilorðsbundið fangelsi og svipting ökuréttar ævilangt. Verður refsing ákærða því ákveðin fangelsi í 30 daga.

Með vísan til lagaákvæða í ákæru er ákærði sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja.

Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Sigurður Ólafsson aðstoðarsaksóknari fyrir Elínu Hrafnsdóttur aðstoðarsaksóknara.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar lögmanns, 117.800 krónur, að meðtöldum virðisaukaskatti, og 77.314 krónur í annan sakarkostnað. Sigríður Dagmar Jóhannsdóttir aðstoðarmaður dómara kveður upp dóm þennan.

Dómsorð:

Ákærði, Guðfinnur Hafliði Einarsson, sæti fangelsi í 30 daga. Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt. Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar lögmanns, 117.800 krónur, og 77.314 krónur í sakarkostnað.

Sigríður Dagmar Jóhannsdóttir

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 71. gr.3. mgr. 71. gr.
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 161. gr.164. gr.1. mgr. 187. gr.
Lög nr. 77/2019 Umferðarlög 2. mgr. 50. gr.8. mgr. 58. gr.1. mgr. 95. gr.101. gr.