Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. E-8/2019:

Þrotabú DV ehf.

(Kristján B. Thorlacius lögmaður)

gegn

NRS Media (UK) Ltd. og

NRS Media (Europe) Ltd.

(Lúðvík Örn Steinarsson lögmaður)

Aðild. Gjaldþrotaskipti. Riftun. Riftunarmál þrotabúa. Aðildarskortur.

Fallist var á kröfu stefnanda, þrotabús DV, um riftun á greiðslu til stefnda NRS EU sbr. 141. gr. laga nr. 91/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. Þá var stefnda gert að greiða stefnanda þá fjárhæð sem um ræddi sbr. 3. mgr. 142. gr. laganna. Stefndi NRS UK var sýknaður af kröfum stefnanda vegna aðildarskorts, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.

Mál þetta, sem var dómtekið 26. september sl. var höfðað 13. nóvember 2018 af þrotabúi DV ehf., Laugavegi 7 í Reykjavík, gegn NRS Media (UK) Ltd. og NRS Media (Europe) Ltd., báðum til heimilis í Rotterdam House, 116 Quayside, Newcastle Upon Tyne í Englandi.

Stefnandi krefst þess að rift verði með dómi greiðslum DV ehf. á skuld við stefndu sem nam samtals 11.700.000 krónum, en þar af voru 7.700.000 krónur greiddar 3. október 2017 og 4.000.000 króna 31. október 2017. Þess er krafist að stefndu verði óskipt gert að greiða stefnanda 11.700.000 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu af 7.700.000 krónum frá 3. til 31. október 2017, en af 11.700.000 krónum frá þeim degi til greiðsludags. Þá er krafist málskostnaðar óskipt úr hendi stefndu.

Stefndi NRS Media (UK) Ltd. krefst sýknu, en til vara að kröfur stefnanda verði lækkaðar verulega. Í báðum tilfellum er krafist málskostnaðar úr hendi stefnanda.

Mætt var af hálfu beggja stefndu við þingfestingu málsins 8. janúar 2019 og þeim veittur frestur til að leggja fram greinargerð. Þegar málið var næst tekið fyrir 19. febrúar sama ár var ekki mætt fyrir hönd stefnda NRS Media (Europe) Ltd. og ekki skilað greinargerð fyrir hans hönd. Aftur á móti var lögð fram greinargerð fyrir hönd stefnda NRS Media (UK) Ltd.

Stefndi NRS Media (UK) Ltd. krafðist upphaflega frávísunar málsins og vísaði héraðsdómur kröfum á hendur því félagi frá dómi með úrskurði 10. maí 2019. Sá úrskurður var felldur úr gildi með úrskurði Landsréttar 26. júní sama ár og var lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar.

I

Helstu málsatvik

Mál þetta er höfðað af stefnanda til riftunar á tilteknum greiðslum, sbr. XX. kafla laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. DV ehf. og stefndi NRS Media (Europe) Ltd., fyrirtækjanúmer 06384495, gerðu samning 28. október 2014 sem varðaði öflun hins síðarnefnda félags á auglýsingum í miðla stefnanda. Af hálfu stefnanda er byggt á því að stefndi NRS Media (UK) Ltd., fyrirtækjanúmer 04408565, hafi jafnframt átt aðild að samningnum. Reikningar vegna þjónustunnar voru ritaðir á bréfsefni NRS Media (Europe) Ltd. og var óskað greiðslu á nánar tilgreindan reikning hjá breskum banka. Á reikningunum var einnig tilgreint fyrirtækjanúmer NRS Media (UK) Ltd. Af hálfu stefnda NRS Media (UK) Ltd. er byggt á því að félagið hafi alfarið staðið utan við samninginn og samningssamband eingöngu myndast á milli stefnanda og NRS Media (Europe) Ltd. Fram kemur í lið 24 í samningnum að um hann gildi íslensk lög og að skýra beri samninginn í samræmi við íslensk lög. Þá segir að íslenskir dómstólar hafi einir lögsögu til að taka ákvarðanir rísi ágreiningur sem varði samninginn.

Fyrir liggur að DV ehf. gat ekki staðið við skuldbindingar sínar samkvæmt samningnum og eru ógreiddir reikningar frá 20. júlí 2015 til 20. október 2016 meðal gagna málsins. Af þessum sökum höfðaði NRS Media mál gegn DV ehf., sem var þingfest 1. desember 2016. Þar var krafist greiðslu á 20.981.599 krónum vegna þjónustu sem veitt hefði verið samkvæmt samningnum frá 28. október 2014. Ekki var tilgreint í stefnu hvort stefnandi væri NRS Media (UK) Ltd. eða NRS Media (Europe) Ltd. og var fyrirtækjanúmers heldur ekki getið. Stefna vegna skuldarinnar var árituð 26. maí 2017. Þá var gert árangurslaust fjárnám vegna skuldarinnar hjá stefnanda með gerð sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu 17. ágúst 2017. Jafnframt voru fjögur önnur árangurslaus fjárnám gerð vegna skulda stefnanda á árinu 2017. Það liggur einnig fyrir að NRS Media hafði óskað eftir því að stefnandi yrði tekinn til gjaldþrotaskipta með beiðni sem var móttekin hjá Héraðsdómi Reykjavíkur 12. september 2017. Þá höfðu aðrir kröfuhafar stefnanda lagt 22 beiðnir um gjaldþrotaskipti inn til héraðsdóms á árinu 2017.

Hinn 5. september 2017 var gerður samningur um kaup Frjálsrar fjölmiðlunar ehf. á útgáfuréttindum Pressunnar ehf. Kaupverðið nam 276.000.000 króna og var greiðslutilhögun nánar skýrð í viðauka við samninginn frá 15. sama mánaðar.

Samningaviðræður fóru fram á árinu 2017 á milli þáverandi lögmanna aðila og tóku þær bæði til uppgjörs vegna skuldar stefnanda og vegna skuldar Pressunnar ehf., móðurfélags stefnanda, sem gert hafði sams konar samning við NRS Media (Europe) Ltd. Á meðan þessar viðræður stóðu yfir greiddi Pressan ehf. 5.000.000 króna inn á fjárvörslureikning lögmanns NRS Media 7. september 2017. Aðilar náðu samkomulagi um uppgjör og er gerð grein fyrir því í tölvubréfi frá 3. október 2017 sem þáverandi lögmaður stefnanda og Pressunnar ehf. sendi. Þar segir að fyrir liggi að samningur komist á um uppgjör krafna sem lögmaðurinn hafi í innheimtu gagnvart DV ehf. og Pressunni ehf. gegn „fullnaðargreiðslu á kr. 16.700.000, að uppfylltum skilyrðum um greiðslu í dag og frestun á gjaldþrotaskiptabeiðnum á morgun í fjórar vikur“. Nánar tiltekið var vísað til „krafna umbjóðanda þíns NRS (kröfuhafa), fyrir tveimur árituðum stefnum, annars vegar á DV (skuldari) fyrir u.þ.b. kr. 16.600.000, og hins vegar á Pressuna (skuldari) fyrir u.þ.b. kr. 21.000.000“. Gert var ráð fyrir því að NRS Media fengi greiddar 16.700.000 krónur, annars vegar með greiðslu 7.700.000 króna af fjárvörslureikningi lögmanns skuldara til lögmanns NRS Media og hins vegar með greiðslu 4.000.000 króna til lögmanns NRS Media í síðasta lagi 1. nóvember 2017. Þá var lögmanni NRS Media „veitt heimild til að taka af fjárvörslureikningi sínum kr. 5.000.000, sem þegar hafa verið lagðar þar inn af skuldurum“. Fram kom að þegar síðasta greiðslan hefði borist þá yrðu fyrrgreindar beiðnir um gjaldþrotaskipti afturkallaðar. Lögmaður NRS Media staðfesti samkomulagið með tölvubréfi sem sent var samdægurs og upplýsti um reikningsnúmer vegna fjárvörslureiknings síns sem leggja skyldi umræddar fjárhæðir inn á. Í kjölfar þessa greiddi DV ehf. 7.700.000 krónur á fjárvörslureikning lögmanns síns, sem greiddi sömu fjárhæð til lögmanns NRS Media hinn 3. október 2017. Þá greiddi DV ehf. 31. október 2017 lokagreiðslu til lögmanns NRS Media. Hinn 1. nóvember 2017 afturkallaði lögmaður NRS Media beiðni um að stefnandi yrði tekinn til gjaldþrotaskipta, sem hafði verið beint til Héraðsdóms Reykjavíkur.

Með yfirlýsingu stjórnarformanns DV ehf. 31. október 2017 var því lýst yfir að félagið gæti ekki staðið í skilum við lánardrottna sína með gjaldfallnar kröfur eða kröfur sem falla síðar í gjalddaga. Væri ekki sennilegt að greiðsluörðugleikar liðu hjá innan skamms tíma. Tekið var fram að yfirlýsingin væri gefin með hliðsjón af 4. tl. 65. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti, sbr. 1. mgr. 64. gr. sömu laga.

Bú stefnanda var tekið til gjaldþrotaskipta með úrskurði sem var kveðinn upp 7. mars 2018. Kröfulýsingafresti lauk 21. maí 2018 og námu lýstar kröfur í búið 241.756.998 krónum, en þar af námu forgangskröfur 51.411.454 krónum. Þegar úrskurður um gjaldþrotaskipti var kveðinn upp voru um 74.000 krónur á bankareikningum stefnanda. Stefnandi kveður eignir búsins hafa verið óverulegar, en að útistandandi kröfur séu gamlar og ólíklegar til að innheimtast eins og fram hafi komið á skiptafundi 21. júní 2018.

Skiptastjóri stefnanda lýsti yfir riftun á fyrrgreindum greiðslum með bréfi 26. október 2018 og var það sent lögmanni NRS Media.

II

Helstu málsástæður og lagarök stefnanda

Stefnandi byggir riftunarkröfu sína aðallega á 134. gr. laga nr. 21/1991, enda hafi þær greiðslur sem um ræðir skert greiðslugetu þrotamanns verulega. Um sé að ræða hlutlæg skilyrði og skipti huglæg afstaða stefndu til riftunarinnar og vitneskja stefndu um fjárhag stefnanda því engu við mat á því hvort ákvæðið eigi við. Miðað við fjárhagsstöðu stefnanda á þeim tíma sem skuldin var greidd hafi greiðslurnar skert greiðslugetu hans verulega, en við mat á því beri meðal annars að líta til hlutfalls greiðslnanna og eigna stefnanda þegar greiðslur fóru fram og við gjaldþrotaskiptin. Hafi í dómaframkvæmd og norrænum rétti verið litið til nokkurra sjónarmiða, þar með talið þess hvort greiðslan sé meira en 10% af eignum þess aðila sem sé gjaldþrota. Þegar kveðinn hafi verið upp úrskurður um gjaldþrotaskipti hafi verið um 74.000 krónur á bankareikningum stefnanda. Þá hafi innheimtar útistandandi kröfur á skiptafundi 21. júní 2018 verið taldar nema um 148.000 krónum. Hefði ekki komið til þeirra greiðslna sem krafist sé riftunar á hefðu eignir búsins hins vegar numið þeim greiðslum sem krafist sé riftunar á eða verið um 79 sinnum hærri en raunin varð. Sé fjárhæð greiðslnanna því langt yfir viðurkenndum viðmiðunarmörkum við mat á því hvort skilyrði 134. gr. laga nr. 21/1991 um verulega rýrnun á greiðslugetu þrotamanns séu fyrir hendi. Vísað er til þess að þegar greiðslurnar fóru fór fram hafði stefnandi selt nær allar eignir félagsins, þ.e. vörumerki og vefsíður allra miðla félagsins og fleiri eignir. Þetta hafi stefndu vitað, enda verið töluverð umfjöllun um umrædda sölu í fjölmiðlum í september 2017. Hafi því verið ljóst að litlar sem engar tekjulindir væru eftir í félaginu. Þá geti umræddar greiðslur ekki talist venjulegar eftir atvikum, en um margra mánaða uppsöfnuð vanskil hafi verið að ræða og hafi verið gefinn verulegur afsláttur af kröfunum vegna bágrar fjárhagsstöðu félagsins. Áréttað er að stefndu hafi verið að fullu kunnugt um slæman fjárhag félagsins, enda höfðu þeir sjálfir gert árangurslaust fjárnám hjá félaginu og lagt inn beiðni um gjaldþrotaskipti til héraðsdóms. Vilji stefndu halda því fram að félagið hafi verið gjaldfært þegar greiðslurnar voru inntar af hendi beri þeir sönnunarbyrðina fyrir því og allan halla af sönnunarskorti. Þá hafi greiðslurnar verið inntar af hendi innan sex mánaða frá frestdegi og séu því öll skilyrði 134. gr. laga nr. 21/1991 uppfyllt.

Jafnframt er byggt á því að greiðslurnar séu riftanlegar samkvæmt hinni almennu riftunarreglu 141. gr. laga nr. 21/1991. Hafi háttsemi þáverandi fyrirsvarsmanna Pressunnar ehf. og stefndu verið ótilhlýðileg, en með hinum umdeildu greiðslum hafi verið gerðar upp skuldir við stefndu og kröfuhöfum verið mismunað. Nánar tiltekið hafi verið gert upp við stefndu, sem áttu um 5% af heildarskuldum stefnanda, en ekkert verið greitt til annarra kröfuhafa. Hafi ráðstöfunin því verið til hagsbóta fyrir stefndu á kostnað annarra kröfuhafa og leitt til þess að umræddir fjármunir voru ekki til ráðstöfunar til greiðslu skulda þrotabúsins. Bent er á að eignir þrotabúsins samanborið við lýstar kröfur séu óverulegar og muni stór hluti þeirra renna í skiptakostnað. Samkvæmt dómaframkvæmd beri einnig að líta til þess að kröfur stefndu á hendur stefnanda voru sumar greiddar upp mánuðum eftir gjalddaga þeirra ásamt dráttarvöxtum. Þá hafi umræddar greiðslur ekki farið fram vegna endurskipulagningar á fjárhag stefnanda eða til að bjarga verðmætum, heldur eingöngu til að tryggja hagsmuni stefndu. Áréttað er að stefndu hafi verið eða mátt vera ljóst að stefnandi væri ógjaldfær þegar greiðslurnar voru inntar af hendi. Stefnandi hafi verið í verulegum vanskilum við stefndu, sem og aðra kröfuhafa, og hafi stefndu getað séð í hendi sér að greiðslurnar væru ótilhlýðilegar og fælu í sér mismunun kröfuhafa.

Stefnandi byggir skaðabóta- og endurgreiðslukröfu sína einkum á 1. og 3. mgr. 142. gr. laga nr. 21/1991. Verði fallist á riftun á grundvelli 134. eða 141. gr. laganna séu stefndu jafnframt skaðabótaskyldir, óháð því hvort ákvæðið eigi við. Stefndu hafi verið kunnugt um að greiðslurnar væru riftanlegar, sbr. lokamálslið 1. mgr. 142. gr. laganna, og beri þeim að greiða bætur samkvæmt ákvæðinu.

Jafnframt er byggt á því að stefnandi eigi rétt á endurgreiðslu auðgunar úr hendi stefndu samkvæmt 1. mgr. 142. gr. laga nr. 21/1991. Auðgun stefndu samsvari greiðslum til stefndu og beri þeim að greiða fjárhæðina óháð því hvort um skaðabóta- eða endurgreiðslukröfu sé að ræða. Til stuðnings kröfu um dráttarvexti vísar stefnandi til 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001. Aðallega er byggt á því að miða beri upphafsdag dráttarvaxta við 3. og 31. október 2017 þegar greiðslurnar voru inntar af hendi. Til vara beri að miða upphafsdag dráttarvaxta við 26. nóvember 2018 þegar mánuður var liðinn frá því að stefnandi lýsti yfir riftun greiðslunnar og krafðist skaðabóta úr hendi stefndu, sbr. 3. mgr. 5. gr. laga nr. 38/2001.

Til stuðnings aðild stefndu vísar stefnandi til 1. mgr. 19. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Af reikningum vegna greiðslu skuldarinnar og samningi verði ekki annað séð en að báðir stefndu hafi verið kröfuhafar þar sem nafn annars og fyrirtækjanúmer hins sé skráð á reikningana. Þá hafi ekki verið tilgreint í stefnu NRS Media, þar sem krafist hafi verið greiðslu á grundvelli reikninganna, hvort félagið væri stefnandi og gildi hið sama um aðfararbeiðni vegna kröfunnar. Hafi lögmaður NRS Media sem annaðist innheimtu kröfunnar haustið 2017 ekki viljað afhenda kvittanir vegna uppgjörs þegar eftir því hafi verið leitað. Verði að telja ljóst að bæði félögin hafi notið góðs af þeim greiðslum sem krafist sé riftunar á og eigi aðild að málinu, sbr. 141. og 142. gr. laga nr. 21/1991.

III

Helstu málsástæður og lagarök stefnda NRS Media (UK) Ltd.

Stefndi NRS Media (UK) Ltd. krefst aðallega sýknu á grundvelli aðildarskorts, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991. Félagið hafi hvorki átt aðild að því samkomulagi sem var gert 28. október 2014 um auglýsingaöflun né samkomulagi um uppgjör frá 3. október 2017. Samningssambandið hafi alla tíð verið á milli stefnanda og NRS Media (Europe) Ltd. Þá hafi þær greiðslur sem málið varðar, sem og aðrar greiðslur samkvæmt samkomulagi um uppgjör, verið lagðar inn á reikning stefnda NRS Media (Europe) Ltd. Þetta megi sjá af fyrirliggjandi bankayfirliti þess félags þar sem fram komi að 13. október 2017 hafi 93.782,21 evra verið lögð inn á reikninginn og jafnframt 25.893,72 evrur 10. nóvember 2017. Hafi báðar greiðslurnar komið frá lögmannsstofunni Hovmøller & Thorup og verið greiddar á grundvelli fyrrgreinds samkomulags að frádregnum lögmannskostnaði félagsins á Íslandi og í Danmörku. Sé því ljóst að þær greiðslur sem krafist sé riftunar á hafi verið greiddar til stefnda NRS Media (EU) Ltd. og að stefndi NRS Media (UK) Ltd. hafi ekki haft nokkurn hag af greiðslunum, sbr. 1. mgr. 142. gr. laga nr. 21/1991. Verði riftunarkröfunni því ekki beint að þessum stefnda og beri að sýkna hann vegna aðildarskorts.

Verði ekki fallist á sýknu stefnda vegna aðildarskorts er byggt á því að ekki séu uppfyllt skilyrði til riftunar. Greiðslurnar skerði ekki greiðslugetu stefnanda verulega í skilningi 134. gr. laganna, enda liggi fyrir að þegar þær voru inntar af hendi hafði stefnandi nýverið selt útgáfuréttindi sín til að greiða upp skuldir. Hafi umræddar greiðslur því aðeins numið smávægilegri fjárhæð í samanburði við þá fjármuni sem komu inn í félagið vegna sölunnar. Jafnframt er á því byggt að greiðslurnar hafi verið venjulegar eftir atvikum, meðal annars í ljósi þess að stefnandi hafi augljóslega verið að freista þess að koma nýrri skipan á fjármál sín með uppgreiðslu skulda. Því er jafnframt mótmælt að riftun geti stuðst við 141. gr. laganna. Stuttu áður en greiðslurnar áttu sér stað hafi verið töluverð umfjöllun í fjölmiðlum um sölu stefnanda á útgáfuréttindum sínum fyrir hundruð milljóna króna og að gerðar yrðu upp helstu skuldir félagsins. Tekið er fram að stefndi hafi ekki haft aðrar upplýsingar um stöðu stefnanda en þær sem voru opinberar. Hafi því ekki verið um ótilhlýðilega háttsemi að ræða og stefndi verið grandlaus um meinta ógjaldfærni stefnanda. Því er einnig mótmælt sem ósönnuðu að stefnandi hafi verið ógjaldfær.

IV

Niðurstaða

Stefnandi beinir kröfum sínum annars vegar að NRS Media (UK) Ltd. og hins vegar að NRS Media (Europe) Ltd. Hann byggir á því að þær greiðslur sem krafist er riftunar á hafi runnið til beggja félaganna og að þau hafi bæði haft hag af ráðstöfuninni. Af hálfu NRS Media (UK) Ltd., sem hefur tekið til varna, er krafist sýknu vegna aðildarskorts. Því til stuðnings hefur einkum verið vísað til þess að félagið hafi ekki átt aðild að fyrrgreindum samningi frá 28. október 2014 sem leiddi til skuldar Pressunnar ehf. eða því samkomulagi um uppgjör sem greiðslurnar voru byggðar á. Þá hafi þær greiðslur sem krafist er riftunar á ekki runnið til félagsins.

Það liggur fyrir að sá samningur um öflun auglýsinga frá 28. október 2014 sem áður hefur verið gerð grein fyrir var gerður á milli DV ehf. og stefnda NRS Media (Europe) Ltd. Þá voru reikningar vegna viðskiptanna gefnir út af NRS Media (Europe) Ltd. og verður af þeim ráðið að greiðslu skyldi inna af hendi á nánar tilgreindan reikning þess félags hjá banka í Bretlandi. Það er aftur á móti óumdeilt að fyrrgreindur samningur var ritaður á bréfsefni stefnda NRS Media (UK) Ltd. og að á reikningum var tilgreint fyrirtækjanúmer þess félags. Við munnlegan málflutning kom fram hjá lögmanni stefnda NRS Media (UK) Ltd. að um mistök væri að ræða. Félögin væru sjálfstæðir lögaðilar, en stefndi NRS Media (UK) Ltd. annaðist einkum viðskipti innan Bretlands og stefndi NRS Media (Europe) Ltd. viðskipti annars staðar í Evrópu. Þrátt fyrir það misræmi sem hér um ræðir verður að mati dómsins ráðið af umræddum samningi, þar sem samningsaðilar eru skýrlega tilgreindir, og reikningum að gagnaðili DV ehf. hafi verið stefndi NRS Media (Europe) Ltd.

Eins og rakið hefur verið þá höfðaði NRS Media mál gegn DV ehf. til innheimtu skuldar sem stofnast hafði til vegna samningsins, en ekki kom fram í stefnunni hvort stefnandi væri NRS Media (UK) Ltd. eða NRS Media (Europe) Ltd. Þau gögn sem lögð voru fram við þingfestingu málsins 1. desember 2016 eru ekki meðal dómsskjala í því máli sem hér er til úrlausnar og geta því ekki varpað nánara ljósi á þetta atriði. Þar sem leggja verður til grundvallar að til skuldarinnar hafi verið stofnað vegna fyrrgreinds samnings DV ehf. og stefnda NRS Media (Europe) Ltd. verður jafnframt talið að síðargreint félag hafi staðið að málsókninni sem varðaði umrædda skuld. Þá verður í ljósi aðdraganda þess samkomulags um uppgjör sem gert var 3. október 2017 að leggja til grundvallar að sá lögmaður sem gætti hagsmuna NRS Media, án nánari tilgreiningar, hafi komið fram fyrir hönd NRS Media (Europe) Ltd., en um var að ræða þann lögmann sem hafði áður höfðað mál gegn DV ehf. vegna skuldarinnar. Þær greiðslur sem krafist er riftunar á voru, eins og áður greinir, greiddar lögmanninum 3. og 31. október 2017. Þá verður ráðið af framlögðum gögnum að greiðslur vegna uppgjörsins í heild sinni hafi borist stefnda NRS Media (Europe) Ltd. fyrir milligöngu dönsku lögmannsstofunnar Hovmøller & Thorup.

Samkvæmt þessu bera gögn málsins með sér að þær greiðslur sem krafist er riftunar á hafi verið inntar af hendi vegna skuldar DV ehf. við stefnda NRS Media (Europe) Ltd. samkvæmt samningi á milli þessara aðila. Greiðslurnar fóru fram á grundvelli samkomulags um uppgjör sem ekki verður séð að stefndi NRS Media (UK) Ltd. hafi átt aðild að. Verður þannig ekki séð að krafa um riftun á greiðslum vegna þeirrar skuldar sem um ræðir, sem byggð er á 134. og 141. gr. laga nr. 21/1991, geti beinst að stefnda NRS Media (UK) Ltd. Þá verður ekki ráðið af gögnum málsins að greiðslan hafi runnið til NRS Media (UK) Ltd. eða að það félag hafi með öðrum hætti haft hag af ráðstöfuninni í skilningi 1. mgr. 142. gr. laga nr. 21/1991, en stefnandi ber sönnunarbyrði fyrir því. Stefndi NRS Media (UK) Ltd. verður þegar af þeim sökum sýknaður af kröfum stefnanda, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991.

Af hálfu stefnda NRS Media (Europe) Ltd. var sótt þing þegar málið var þingfest, en þingsókn félagsins féll niður á síðari stigum án þess að lögð hefði verið fram greinargerð. Verður því leyst úr málinu á grundvelli krafna og málatilbúnaðar stefnanda að því leyti sem kröfurnar samrýmast framkomnum gögnum og eiga stoð í lögum, sbr. 2. mgr., sbr. 1. mgr., 96. gr. laga nr. 91/1991. Eins og rakið hefur verið er krafa stefnanda um riftun aðallega byggð á 134. gr. laga nr. 21/1991, en til vara á 141. gr. laganna. Stefnandi byggir á því að greidd hafi verið fjárhæð sem hafi skert greiðslugetu félagsins verulega í skilningi 134. gr. laganna og að greiðslan hafi ekki virst venjuleg eftir atvikum. Við mat á því verður að líta til þess hvert hlutfall fjárhæðar greiðslunnar var af þeim eignum DV ehf. sem voru til ráðstöfunar þegar greiðslurnar fóru fram 3. og 31. október 2017. Stefnandi hefur vísað til eigna búsins eftir að úrskurðað var um gjaldþrotaskipti og lagt fram gögn því til stuðnings. Aftur á móti liggja ekki fyrir gögn sem sýna hvernig eignastöðu DV ehf. var háttað á þeim tíma sem greiðslurnar fóru fram. Að þessu virtu telur dómurinn framlögð gögn ekki styðja málatilbúnað stefnanda um að riftun geti sótt stoð í 134. gr. laga nr. 21/1991 og er því ekki unnt að fallast á kröfuna á þeim grunni.

Stefnandi hefur jafnframt stutt kröfu um riftun við hina almennu riftunarreglu 141. gr. laga nr. 21/1991 og er rökstutt í stefnu að öll skilyrði ákvæðisins séu uppfyllt. Gögn málsins bera með sér að greiðslur vegna skuldarinnar hafi verið inntar af hendi þegar langt var liðið frá gjalddaga þeirra reikninga sem um ræðir. Þá styðja framlögð gögn að greiðslurnar hafi verið tilteknum kröfuhafa til hagsbóta, mismunað kröfuhöfum með ótilhlýðilegum hætti og leitt til þess að eignir voru ekki til reiðu til fullnustu kröfuhöfum. Þá fær það að mati dómsins stoð í gögnum málsins að DV ehf. hafi verið ógjaldfært þegar hin umdeilda ráðstöfun átti sér stað eða orðið það vegna ráðstöfunarinnar. Jafnframt styðja gögn málsins, svo sem aðgerðir til innheimtu skuldarinnar, að stefndi NRS Media (Europe) Ltd. hafi verið grandsamur um ógjaldfærni félagsins og að ráðstöfunin hafi verið ótilhlýðileg. Það eru því uppfyllt skilyrði til að rifta greiðslunum samkvæmt 141. gr. laga nr. 21/1991 og er fallist á þá kröfu stefnanda.

Samkvæmt 3. mgr. 142. gr. laga nr. 21/1991 skal sá sem hafði hag af ráðstöfun sem er riftanleg samkvæmt 141. gr. greiða bætur eftir almennum reglum. Með umræddum greiðslum voru 11.700.000 krónur greiddar frá DV ehf. sem ella hefðu komið til skipta í þrotabúinu. Stefnda NRS Media (Europe) Ltd. verður gert að greiða stefnanda þá fjárhæð. Stefnandi krefst dráttarvaxta af kröfunni og er sú krafa aðallega miðuð við þá daga sem greiðslurnar fóru fram en að því frágengnu við 26. nóvember 2018, þegar mánuður var liðinn frá því að stefnandi lýsti yfir riftun greiðslnanna og krafðist skaðabóta. Að teknu tilliti til 9. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu er rétt að reikna dráttarvexti frá þeim tíma er mánuður var liðinn frá því að stefnandi krafðist endurgreiðslu umræddrar fjárhæðar. Verða dráttarvextir því dæmdir af kröfunni frá 26. nóvember 2018.

Að teknu tilliti til 1. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 verður stefnanda gert að greiða stefnda NRS Media (UK) Ltd. málskostnað sem þykir hæfilega ákveðinn 300.000 krónur, en við ákvörðun málskostnaðar er litið til þess að málið er rekið samhliða öðru máli um sams konar sakarefni.

Samkvæmt 1. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 verður stefnda NRS Media (Europe) Ltd., sem ekki tók til varna, gert að greiða stefnanda málskostnað. Við ákvörðun málskostnaðar er meðal annars litið til upplýsinga um kostnað við þýðingu og birtingu stefnu, sem og til þess að samhliða þessu máli er rekið annað sams konar mál. Að teknu tilliti til þess þykir málskostnaður hæfilega ákveðinn 500.000 krónur.

Ásgerður Ragnardóttir, héraðsdómari, kveður upp dóm þennan.

DÓMSORÐ:

Stefndi, NRS Media (UK) Ltd., er sýkn af kröfum stefnanda, þrotabús DV ehf. Rift er greiðslu DV ehf. á skuld við stefnda, NRS Media (Europe) Ltd., sem nam samtals 11.700.000 krónum, en þar af voru 7.700.000 krónur greiddar 3. október 2017 og 4.000.000 króna 31. október 2017.

Stefndi, NRS Media (Europe) Ltd., greiði stefnanda 11.700.000 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 26. nóvember 2018 til greiðsludags.

Stefnandi greiði stefnda NRS Media (UK) Ltd. 300.000 krónur í málskostnað. Stefndi NRS Media (Europe) Ltd. greiði stefnanda 500.000 krónur í málskostnað.

Ásgerður Ragnarsdóttir Greitt kr. 1.500

Rétt endurrit staðfestir:

_____________________

Héraðsdómi Reykjavíkur,

22. október 2019

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 21/1991 Lög um gjaldþrotaskipti o.fl. 1. mgr. 64. gr.65. gr.134. gr.141. gr.142. gr.1. mgr. 142. gr.3. mgr. 142. gr.XX. kafli
Lög nr. 91/1991 Lög um meðferð einkamála 2. mgr. 16. gr.1. mgr. 19. gr.96. gr.1. mgr. 130. gr.141. gr.3. mgr. 142. gr.
Lög nr. 38/2001 Lög um vexti og verðtryggingu 3. mgr. 5. gr.1. mgr. 6. gr.9. gr.