Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 30. maí 2018.
Mál nr. S-220/2018:
Ákæruvaldið
(Kristmundur Stefán Einarsson saksóknarfulltrúi)
gegn
Jaroslaw Krupa
Lykilorð
Ávana- og fíkniefni. Fangelsi. Hegningarauki. Ítrekun. Játningarmál. Ökuréttarsvipting. Svipting ökuréttar. Umferðarlagabrot.
Útdráttur
Ákærði var sakfelldur fyrir margítrekuð umferðarlagabrot sem og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Var hann dæmdur til að sæta fangelsi í 15 mánuði.
Mál þetta, sem dómtekið var 23. maí sl., er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 17. apríl 2018, á hendur Jaroslaw Krupa, kt. 000000-0000, [...], Reykjavík, fyrir eftirtalin fíkniefna- og umferðarlagabrot:
I.
Umferðarlagabrot með því að hafa, miðvikudaginn 21. desember 2016, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti suður Suðurlandsbraut í Reykjavík, gegn rauðu umferðarljósi á gatnamótum Suðurlandsbrautar og Reykjavegar með þeim afleiðingum að ákærði ók á bifreiðina [...], sem ekið var inn á gatnamótin af Reykjavegi, og í kjölfarið ekið á brott af vettvangi án þess að nema staðar.
Teljast brot þessi varða við 1. mgr. 5. gr., 1. mgr. 10. gr. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.
II.
- Umferðarlagabrot með því að hafa, mánudaginn 23. janúar 2017, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 240 ng/ml, í þvagi mældist amfetamín og tetrahýdrókannabínólsýra) af Stekkjarbakka inn á Smiðjuveg í Kópavogi, uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.
- Fíkniefnalagabrot með því að hafa, á þeim tíma sem greint er frá í 1. tl., haft í vörslum sínum 1,16 g af amfetamíni sem ákærði framvísaði við leit lögreglu.
Teljast brot í 1. tl. varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr., 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987 og í 2. tl. varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.
III.
Umferðarlagabrot með því að hafa, þriðjudaginn 4. apríl 2017, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti á Smiðjuvegi í Kópavogi við Skemmuveg, uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.
Telst brot þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.
IV.
Umferðarlagabrot með því að hafa, laugardaginn 8. apríl 2017, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti á Reykjanesbraut við Bústaðarveg, uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.
Telst brot þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.
V.
Fíkniefnalagabrot með því að hafa, sunnudaginn 21. maí 2017, sem farþegi í bifreiðinni [...] við Seljabraut 109 í Reykjavík, haft í vörslum sínum í buxnavasa 0,39 g af marijúana og 0,14 g af amfetamíni, sem lagt var hald á.
Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.
VI.
Umferðarlagabrot með því að hafa, fimmtudaginn 25. maí 2017, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 435 ng/ml, í þvagi mældist amfetamín) norður Smiðjuveg í Kópavogi, uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar við Smiðjuveg 2.
Teljast brot þessi varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr., 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.
VII.
Umferðarlagabrot með því að hafa, fimmtudaginn 1. júní 2017, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti austur Sæbraut í Reykjavík við Laugarnesveg, uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.
Telst brot þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.
VIII.
Umferðarlagabrot með því að hafa, miðvikudaginn 7. júní 2017, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti og óhæfur um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 370 ng/ml, í þvagi mældist amfetamín) í suður á bifreiðastæði við verslun Hagkaups í Skeifunni 15 í Reykjavík, uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.
Teljast brot þessi varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr., 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.
IX.
Umferðarlagabrot með því að hafa, laugardaginn 22. júlí 2017, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti á Suðurlandsbraut í Reykjavík við Hátún, uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.
Telst brot þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.
X.
Umferðarlagabrot með því að hafa, fimmtudaginn 10. ágúst 2017, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti austur Sæbraut í Reykjavík, inn Katrínartún til suðurs, uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.
Telst brot þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.
XI.
Umferðarlagabrot með því að hafa, þriðjudaginn 24. október 2017, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti austur Reykjanesbraut í Reykjanesbæ, í átt að komusvæði Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.
Telst brot þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.
XII.
Umferðarlagabrot með því að hafa, miðvikudaginn 22. nóvember 2017, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti á Háaleitisbraut í Reykjavík við Olís, uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.
Telst brot þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.
XIII.
Umferðarlagabrot með því að hafa, föstudaginn 16. febrúar 2018, ekið bifreiðinni [...] sviptur ökurétti í Vesturbergi í Reykjavík við verslun Iceland, uns aksturinn var stöðvaður skömmu síðar.
Telst brot þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þess er einnig krafist að ákærði verði dæmdur til sviptingar ökuréttar, skv. 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 25. gr. laga nr. 44/1993 og 18. gr. laga nr. 66/2006.
Þess er einnig krafist að gerð verði upptæk framangreind 1.16 g af amfetamíni, 0,14 g af amfetamíni og 0,39 g af marijúana samkvæmt heimild í 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974, sbr. 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001. Ákærði krefst vægustu refsingar sem lög leyfa.
Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga.
Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði er fæddur í febrúar 1990. Hann á að baki nokkurn sakaferil. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 16. apríl 2018, hefur ákærði í tvígang gengist undir sektarrefsingu með lögreglustjórasátt vegna fíkniefnaaksturs og í þrígang vegna sviptingaraksturs. Hann er nú í fjórða sinn innan ítrekunartíma fundinn sekur um brot gegn 1. mgr. 48. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 og í þriðja sinn gegn 1. mgr. 45. gr. a. sömu laga. Ákærði var sakfelldur fyrir sviptingarakstur og dæmdur í 45 daga fangelsi með dómi Héraðsdóms Reykjaness, uppkveðnum 2. febrúar 2017. Þau brot sem ákærði er sakfelldur fyrir í þessu máli samkvæmt I. og II. kafla ákæru voru framin fyrir uppkvaðningu framangreinds dóms og verður ákærða því dæmdur hegningarauki nú hvað þau brot varða, samkvæmt 78. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærði er nú meðal annars fundinn sekur um að hafa margítrekað á tímabilinu, 21. desember 2016 til 16. febrúar 2018, ekið sviptur ökurétti og undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Ákærði hefur játað brot sín greiðlega og verður það virt honum til málsbóta.
Með hliðsjón af framangreindu, sakarefni þessa máls og 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 15 mánuði.
Með vísan til lagaákvæða í ákæru, einkum 3. mgr. 101. gr. umferðarlaga, er ákærði sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dóms þessa að telja.
Með vísan til lagaákvæða í ákæru eru gerð upptæk til ríkissjóðs 1,3 g af amfetamíni og 0,39 g af marijúana, sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins. Ákærði greiði 298.340 krónur í sakarkostnað.
Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Kristmundur Stefán Einarsson saksóknarfulltrúi. Lilja Rún Sigurðardóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.
D Ó M S O R Ð:
Ákærði, Jaroslaw Krupa, sæti fangelsi í 15 mánuði. Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt frá birtingu dómsins að telja. Upptæk eru gerð til ríkissjóðs 1,3 g af amfetamíni og 0,39 g af marijúana. Ákærði greiði 298.340 krónur í sakarkostnað. Lilja Rún Sigurðardóttir