Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-193/2018:

Ákæruvaldið

(Margrét Herdís Jónsdóttir saksóknarfulltrúi)

gegn

Elísabetu Margréti Bjarnadóttur

(Stefán Karl Kristjánsson lögmaður)

Ávana- og fíkniefni. Fangelsi. Játningarmál. Ökuréttarsvipting. Svipting ökuréttar. Umferðarlagabrot. Upptaka. Vörslur.

Ákærða var fundin sek um að hafa ítrekað ekið bifreið svipt ökurétti og jafnframt í þrígang undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Þá var hún einnig sakfelld fyrir vörslur fíkniefna. Var hún dæmd til að sæta fangelsi í 24 mánuði.

Mál þetta, sem dómtekið var 16. maí sl., er höfðað með ákæru, útgefinni af lögreglustjóranum   á   höfuðborgarsvæðinu   10.   apríl   2018,   á   hendur   Elísabetu Margréti Bjarnadóttur, kt. 000000-0000, [...], Reykjavík fyrir eftirtalin umferðarlagabrot framin á árinu 2017, nema annað sé tekið fram, með því að hafa:

  1. Föstudaginn 23. desember 2016 ekið bifreiðinni [...] svipt ökurétti vestur Krókháls, Reykjavík, uns lögregla stöðvaði aksturinn.

    Telst þetta varða við 1. mgr. 48. gr. sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

  2. Fimmtudaginn 12. janúar ekið bifreiðinni [...] svipt ökurétti um Vínlandsleið og inn á bifreiðastæði Húsasmiðjunnar á Vínlandsleið, Reykjavík, þar sem lögregla hafði afskipti af henni skömmu síðar.

    Telst þetta varða við 1. mgr. 48. gr. sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

  3. Þriðjudaginn 7. mars ekið bifreiðinni [...] svipt ökurétti og óhæf um að stjórna   henni   örugglega   vegna   áhrifa   ávana-   og   fíkniefna   (í   blóði   mældist amfetamín 335 ng/ml og kókaín 75 ng/ml) að bensínstöð Orkunnar Reykjavíkurvegi 58, Hafnarfirði, þar sem lögregla hafði afskipti af henni og á sama tíma haft í vörslum sínum 0,25 g af afmetamíni sem lögregla lagði hald á.

    Telst þetta varða 1. mgr., sbr. 2. mgr., 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 og 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

  4. Miðvikudaginn 15. mars ekið bifreiðinni [...] svipt ökurétti og óhæf um að stjórna   henni   örugglega   vegna   áhrifa   ávana-   og   fíkniefna   (í   blóði   mældist amfetamín 295 ng/ml og metýlfenídat 10 ng/ml) um bifreiðastæði verslunarinnar 10-11, Vesturlandsvegi, Reykjavík, uns lögregla stöðvaði aksturinn.

    Telst þetta varða við 1. sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr. sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

  5. Mánudaginn 17. júlí ekið bifreiðinni [...] svipt ökurétti og óhæf um að stjórna   henni   örugglega   vegna   áhrifa   ávana-   og   fíkniefna   (í   blóði   mældist amfetamín 405 ng/ml) austur um Miklabraut, Reykjavík, og upp á umferðareyju en lögregla hafði afskipti af ákærðu skömmu síðar við Atlantsolíu á Sprengisandi, Bústaðavegi, Reykjavík.

    Telst þetta varða við 1. sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr. sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

  6. Sunnudaginn 6. ágúst ekið bifreiðinni [...] svipt ökurétti austur Miklabraut, Reykjavík, uns lögregla stöðvaði aksturinn. Telst þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.
  7. Sunnudaginn   17.   september   ekið   bifreiðinni   [...] svipt   ökurétti   um Gullinbrú og að Stórhöfða 16, Reykjavík, þar sem lögregla hafði afskipti af ákærðu.

    Telst þetta varða við 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987.

    Þess   er   krafist   að   ákærða   verði   dæmd   til   refsingar,   til   greiðslu   alls sakarkostnaðar   og   til   sviptingar   ökuréttar   skv.   101.   og   102.   gr.   nefndra umferðarlaga, sbr. 25. gr. laga nr. 44/1993 og 18. gr. laga nr. 66/2006. Þess er jafnframt krafist að fíkniefni þau sem haldlögð voru af lögreglu, sjá ákæruliði nr. 3, verði gerð upptæk, sbr. 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 Verjandi ákærðu krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa.

    Farið var með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu þegar sækjanda og verjanda ákærðu hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Ákærða hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærðu og öðrum gögnum málsins að ákærða er sek um þá háttsemi sem henni er gefin að sök og eru brot hennar rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Ákærða er fædd í janúar 1990. Samkvæmt framlögðu sakavottorði, dagsettu 6. apríl 2018, hefur hún margítrekað verið fundin sek um umferðarlagabrot. Ákærða gekkst undir sektarrefsingu með lögreglustjórasátt 25. janúar 2011 fyrir umferðarlagabrot, m.a. fyrir að hafa ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Henni var gert að sæta sektarrefsingu með dómi 20. júní 2011 fyrir fíkniefnaakstur, sviptingarakstur sem og fíkniefnalagabrot. Þá var hún dæmd í sex mánaða fangelsi, skilorðsbundið   til   tveggja   ára,   með   dómi,   23.   apríl   2012,   fyrir   fíkniefna-   og sviptingarakstur sem og fyrir brot gegn valdstjórninni. Ákærða var dæmd í 45 daga fangelsi fyrir sviptingarakstur og þjófnað, 15. nóvember 2012. Hún var dæmd í 60 daga fangelsi á ný fyrir þjófnað og sviptingarakstur, 30. apríl 2013. Með dómi 28. júní 2013 var  henni gerður hegningarauki við fyrrgreindan dóm frá 30. apríl 2013 vegna sviptingarakstursbrots. Ákærða var dæmd í þriggja mánaða fangelsi, 20. mars 2014, fyrir sviptingarakstur. Hún hlaut sjö mánaða fangelsisdóm, 23. janúar 2015, fyrir umferðarlagabrot, m.a. sviptingarakstur. Hún var enn á ný dæmd fyrir sviptingarakstursbrot, 26. nóvember 2015, og var gert að sæta fangelsi í fjóra mánuði. Þá hlaut hún fimm mánaða fangelsisrefsingu fyrir m.a. sviptingar- og fíkniefnaakstur, 27. nóvember 2015. Nú síðast var ákærða dæmd í sex mánaða fangelsi   fyrir   að   aka   svipt   ökurétti   með   dómi   Héraðsdóms   Reykjavíkur, uppkveðnum 7. desember 2016. Með   hliðsjón   af   framangreindu,   sakarefni   málsins   og   ákvæðum   77.   gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þykir refsing ákærðu hæfilega ákveðin fangelsi í 24 mánuði. Með vísan til lagaákvæða í ákæru er áréttuð ævilöng svipting ökuréttar ákærðu frá birtingu dóms þessa að telja. Með vísan til lagaákvæða í ákæru eru gerð upptæk til ríkissjóðs 0,25 g af amfetamíni, sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins. Ákærða   greiði   málsvarnarþóknun   skipaðs   verjanda   síns,   Stefáns   Karls Kristjánssonar   lögmanns,   210.800   krónur,   að   meðtöldum   virðisaukaskatti,   og 403.595  krónur í annan sakarkostnað. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Kristmundur Stefán Einarsson saksóknarfulltrúi. Lilja Rún Sigurðardóttir, aðstoðarmaður dómara, kveður upp dóminn.

D Ó M S O R Ð:

Ákærða, Elísabet Margrét Bjarnadóttir, sæti fangelsi í 24 mánuði. Áréttuð er ævilöng svipting ökuréttar ákærðu frá birtingu dómsins að telja. Upptæk eru gerð til ríkissjóðs 0,25 g af afmetamíni. Ákærða   greiði   málsvarnarþóknun   skipaðs   verjanda   síns,   Stefáns   Karls Kristjánssonar lögmanns, 210.800 krónur og 403.595 krónur í annan sakarkostnað. Lilja Rún Sigurðardóttir