Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. E-3146/2016:

A

(Einar Gautur Steingrímsson hrl)

gegn

íslenska ríkinu

I.

(Ólafur Helgi Árnason hrl)

Miskabætur. Skaðabætur. Skaðabótamál.

Því var hafnað að rannsókn lögreglu hafi falið í sér ólögmæta meingerð gegn frelsi, friði, æru eða persónu stefnanda þannig að leiddi til bótaskyldu stefnda eða að hún hafi farið í bága við 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 70. gr. stjórnarskrárinnar um réttláta málsmeðferð.

Dómkröfur stefnanda er þær að stefnda verði gert að greiða stefnanda miskabætur að fjárhæð 4.000.000 króna auk dráttarvaxta samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 frá 10. apríl 2016 til greiðsludags. Þá er krafist málskostnaðar.

Stefndi krefst sýknu af öllum kröfum stefnanda, auk málskostnaðar, en til vara að dómkröfur verði lækkaðar verulega og málskostnaður felldur niður.

II.

[...] 2014 var gefin út ákæra á hendur stefndu fyrir manndráp af gáleysi og brot á hjúkrunarlögum Á þessum tíma starfaði stefnandi sem hjúkrunarfræðingur á [...] þar sem hún var í 60% starfi. Þegar umrætt atvik átt sér stað var stefnandi á aukavakt á [...] þar sem hún var í 20% starfshlutfalli.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu fór með rannsókn málsins. Í skýrslu lögreglu, dags. [...] 2012, segir að lögreglu hafi borist tilkynning [...] 2012, frá yfirlækni   [...]   Landspítala,   um   að   sjúklingur   hefði   látist   „vegna   mistaka hjúkrunarfræðings,   A“.   Lögreglan   hafi   skömmu   eftir   tilkynninguna   farið   á Landspítala   og   hitt   fyrrgreindan   yfirlækni   [...],   auk   deildarstjóra   á   [...]   og aðstoðarframkvæmdastjóra   [...].   Hafi   greindir   aðilar   lýst   því   fyrir   lögreglu   að stefnandi hafi verið að vinnu kvöldið áður og að hlutverk hennar hafi verið að fylgjast með sjúklingnum. Hún hafi sett á hann talventil, „en henni hafi láðst“ að lofttæma blöðku á barkaraufarventlinum. Það hafi orðið til þess að fall hafi orðið á súrefnismettun sjúklingsins og blóðþrýstingur fallið. Að lokum hafi það leitt til þess að sjúklingur hafi látist. „Hún fór þannig ekki eftir gátlista deildarinnar um notkun talventils og barkaarraufarventils.“ Þá var tekið fram í skýrslu að súrefnismettunarvaki sem settur hafi verið á sjúklinginn hafi ekki virkað, en um flókinn tölvutengdan búnað væri að ræða og framleiðendur gætu einir staðfest hvort hann hefði verið rétt stilltur. Verið væri að kanna hvort hann hafi virkað sem skyldi.

Stefnandi var boðuð til skýrslugjafar hjá lögreglu daginn eftir, þ.e. [...] 2012, þar sem hún var upplýst um að grunur léki á að henni hefðu orðið á mistök í starfi sem hafi leitt til dauða sjúklings [...] 2012. Var stefnandi beðin um að segja frá með sínum orðum hvað hefði gerst. Lögregla spurði stefnanda einnig um ástæðu þess að sjúklingur hefði farið í hjartastopp og nánar um öndunarvélina og tengingu hennar. Þá svarar stefnandi því að hún hafi gleymt að taka loft úr svokölluðum köffi, en jafnframt að mælitæki fyrir súrefnismettun hafi ekki verið í lagi og hefði átt að gefa merki ef súrefnismettun hefði fallið. Í skýrslutökunni er farið yfir það aftur hvað hafi gerst, lögreglumaður spyr og stefnandi leitast við að svara því sem spurt er um.

Teknar voru skýrslur af öðrum starfsmönnum spítalans [...] 2012.

Stefnandi var boðuð aftur til skýrslutöku hjá lögreglu [...] 2014. Var henni greint frá tilefni yfirheyrslunnar, sem væri grunur um að henni hefðu orðið á mistök við hjúkrun sem hafi orðið þess valdandi að sjúklingur lést. Hún var spurð að því hvort hún vildi breyta eða bæta við þá skýrslu sem hún hefði áður gefið í málinu. Kvaðst hún hvorki vilja breyta né bæta við fyrri skýrslu. [...] 2014 var tekin lögregluskýrsla af forstjóra Landspítala.

Eins og áður segir var gefin út ákæra í málinu á hendur stefnanda [...] 2014. Í tilkynningu ríkissaksóknara til Héraðsdóms Reykjavíkur, var þess getið að ætla mætti að með málið yrði farið að hætti 164. gr. laga um meðferð sakamála.

Með dómi Héraðsdóms Reykjavíkur 9. desember 2015 var stefnandi sýknuð af öllum kröfum ákæruvaldsins. Í forsendum dómsins kemur m.a. fram að ráða megi af gögnum málsins að það sem fram hafi komið á fundi ákærðu með tveimur hjúkrunarfræðingum   um   hálfum   sólarhring   eftir   atvikið   [...]   2012,   hafi   orðið grundvöllur lögreglurannsóknar málsins, þar sem talið var að andlát sjúklingsins hefði mátt rekja til mistaka ákærðu. Segir svo í dóminum: „Aðrar hugsanlegar skýringar á andlátinu virðast ekki hafa verið rannsakaðar eftir þetta. Þegar metinn er vitnisburður B og C er það mat dómsins að ýmislegt bendi til þess að of geyst hafi verið farið í sakir að morgni [...] 2012. Mál sýnast hafa skipast svo í þeirri hröðu atburðarás sem lýst var að hrapað hafi verið að niðurstöðu um það hver hafi verið meginorsök andláts D.“ Var stefnandi sýknuð af öllum kröfum ákæruvaldsins.

Dómi héraðsdóms var ekki áfrýjað til Hæstaréttar. Að kvöldi [...] 2015, var fjallað um dóminn í fréttum, þar sem sérstaklega var tekið fram að ríkissaksóknari hefði undrast gagnrýni forstjóra Landspítala vegna ákærunnar. Í viðtali sjónvarps við ríkissaksóknar að kvöldi [...] 2015, segir svo af þessu tilefni: „Þarna voru samsöfnuð nokkur atriði sem hún bar jú öll ábyrgð á. Hún bar ábyrgð á þeim öllum sem leiddu til þess að maðurinn lést. Þetta var nú niðurstaðan af öllum gögnunum og því sem rannsókn leiddi í ljós innanhúss líka og krufningin og svo framburður sem sagt ákærðu, hún lýsir þessu og samstarfsfólk hennar. [...] síðan tók málið stórkostlegum   breytingum   fyrir   dómi.   Þarna   komu   upplýsingar   og   breyttir framburðir um atvikin og ákærða kvaðst ekki muna hvort hún hafi gleymt þessu eða ekki.“ Í viðtalinu er því nánar lýst hvernig framburður vitna hafi breyst fyrir dómi og nýjar tilgátur komið fram um dánarorsök. Segir ríkissaksóknari í viðtalinu að það hafi komið sér á óvart að framburður hafi breyst fyrir dóminum. Segir nánar svo í viðtalinu: „...það má alltaf gera betur í rannsóknum og auðvitað er þetta mjög sérhæft svið og lögreglan hérna auðvitað verður að rannsaka öll refsiverð brot. Það er   enginn   annar   sem   kemur   til   álita   og   þá   verða   þeir   að   leita   sér   eftir sérfræðiþekkingu m.a. hjá spítalanum.“

Ákæran á hendur stefnanda vakti töluverða athygli og um hana var mikið fjallað í fjölmiðlum.

Ákæran hafði mikil áhrif á líf stefnanda og fjölskyldu hennar. Liggja fyrir í gögnum málsins upplýsingar um að stefnandi hafi leitað til læknis vegna vanlíðunar hennar á vinnustað, auk þess sem stefnandi sótti áfallameðferð hjá sálfræðingi spítalans.

Með   bréfi,   dags.   7.   mars   2016,   krafði   stefnandi   ríkissjóð   um   greiðslu skaðabóta með vísan til 1. mgr. 228. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Með bréfi ríkislögmanns, dags. 15. júlí 2016, var bótakröfunni hafnað, þar sem ekki lægi nægjanlega fyrir að um væri að ræða bótaskyldu íslenska ríkisins. Segir í svari ríkislögmanns að jafnvel þó að 1. mgr. 228. gr. laganna eigi við þá þurfi að hafa í huga ákvæði 2. mgr. lagagreinarinnar.

Með   matsbeiðni,   dags.   19.   janúar   2017   óskaði   stefnandi   eftir   því   að dómkvaddur yrði matsmaður til að meta í fyrsta lagi hvort stefnandi hefði orðið fyrir   miska   frá   því   að   grunsemdir   vöknuðu   um   að   hún   hefði   valdið   dauða sjúklingsins   [...]   2012   og   vegna   lögreglurannsóknar   og   ákærumeðferðar   í framhaldinu. Í öðru lagi var óskað eftir mati á því í hverju miskinn fælist. Ekki var farið fram á að miskinn væri færður til stiga heldur aðeins lýsing á afleiðingum umræddra atburða fyrir stefnanda.

Var   E   sérfræðingur   í   geð-   og   embættislækningum   dómkvaddur   til   að framkvæma matið. Í niðurstöðum matsgerðarinnar, dags. 17. apríl 2017, telur matsmaður m.a. að málið hafi haft mikil áhrif á heilsu stefnanda sem og fjölskyldu hennar. Telur matsmaður að stefnandi hafi orðið fyrir miska sem hann lýsir nánar í þremur liðum í matsgerðinni. Telur matsmaður að málið sé fallið til þess að vera henni þungbært til framtíðar. Ætla megi að mál stefnanda sé almennt kunnugt meðal heilbrigðisstarfsfólks. Þar sem sem það sé fyrsta sinnar tegundar hér á landi og mikilvæg siðferðileg álitaefni þar til umfjöllunar sé ljóst að komandi kynslóðir heilbrigðisstarfsmanna muni þekkja til þess. Bæði vegna almennrar umræðu og vegna þess að málið sé til þess fallið að verða til umfjöllunar í námi þessara stétta. Megi ætla að áreiti af málinu muni halda áfram til framtíðar að einhverju marki. Þetta áreiti og í ljósi þess hve viðkvæm stefnandi sé orðin sé málið til þess fallið að vera henni þungbært til framtíðar. Matsmaður telur einnig ljóst að þó að stefnandi hafi haldið áfram starfi sínu á sviði [...] hjá sama vinnuveitanda, þá geti orðið erfiðara fyrir hana að leita á ný mið. Telur matsmaður að málið hafi haft margvísleg áhrif   á   stefnanda,   hvort   tveggja   persónulega   og   á   faglegan   orðstír   hennar. Umfjöllun um hana sé til þess fallin að halda áfram, innan raða þeirrar fagstéttar sem hún tilheyri.

Stefnandi gaf skýrslu fyrir dóminum við aðalmeðferð málsins. Vitnaskýrslur gáfu F lögreglumaður, C hjúkrunarfræðingur og E embættis- og geðlæknir.

III.

  1. 1. Helstu málsástæður og lagarök stefnanda Stefnandi   telur   að   stefndi   beri   hlutlæga   ábyrgð   á   tjóni   hennar   sem   leiddi   af lögreglurannsókn og ákærumeðferð, sbr. 1. mgr. 228. gr. laga nr. 88/2008 og bæta beri   henni   þann   miska   sem   hún   hafi   orðið   fyrir.  Telur   stefnandi   að   2.   mgr. lagagreinarinnar eigi ekki við og ekki beri því að lækka bætur af þeim sökum. Telur stefnandi   að   líta   megi   til   24.   gr.   skaðabótalaga   nr.   50/1993   í   því   sambandi. Samhliða   en   einnig   til   vara   reisir   stefnandi   kröfu   sína   um   bætur   á   almennu skaðabótareglunni og að dæma beri miskabætur samkvæmt 26. gr. laga nr. 50/1993. Ekki sé um eigin sök að ræða og þó að svo væri þá bæri að beita 24. gr. laga nr. 50/1993 og fella slíkan frádrátt niður.

    Stefnandi vísar til dóms í málinu S-514/2014. Dómurinn sé sönnun um atvik þar til hið gagnstæða sannast, sbr. 4. mgr. 116. gr. laga nr. 88/2008.

    Telur stefnandi að virða beri stefnda til sakar að skýrslur hafi verið teknar af henni innan spítalans sem urðu síðan grundvöllur að sakamálarannsókn og ákæru. Rannsókn málsins innan sjúkrahússins hafi farið í bága við 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 70. gr. stjórnarskrárinnar um réttláta málsmeðferð. Málsmeðferðin sem var viðhöfð hafi m.a. villt ríkissaksóknara sýn, þannig að hann taldi að málið væri játningarmál. Þessi galli á málsmeðferðinni hafi haft efnislegar afleiðingar og orsakasamband sé á milli gallans og miska stefnanda. Óheimilt sé að láta rannsókn innan spítala vera grundvöll sakamálarannsóknar.

    Málið hafi ekki verið rannsakað jöfnum höndum til sektar eða sýknu. Þá hafi bæði lögregluskýrslur og réttarmeinafræðingur fullyrt um hvernig atvik hafi verið   áður   en   nokkur   rannsókn   hafi   farið   fram.   Ríkissaksóknari   hafi   haft rótargreiningu undir höndum þegar hann samdi ákæruna. Ákæra hafi verið gefin út án   þess   að   grundvöllur   væri   fyrir   henni.   Þá   hafi   ríkissaksóknari   þyrlað   upp efasemdum um sýknudóminn með því að tala um breyttan framburði.

    Stefnandi telur miska sinn margvíslegan vegna málsins.

    Hún hafi misst friðhelgi einkalífs sem vernduð sé af 71. gr. stjórnarskrárinnar. og sé nú opinber persóna sem talin sé hafa valdið dauða manns.

    Hún hafi dæmt sjálfa sig og beri stefndi ábyrgð á þeim aðilum sem áttu þátt í að skapa þessa röngu hugmynd hjá stefnanda.

    Stefnandi hafi þurft að horfa upp á börn sín og eiginmann þjást vegna málsins, hjónaband hennar hafi gefið sig með tilheyrandi þjáningum fyrir stefnanda og börn hennar.

    Stefnandi hafi verið talin sek af þorra landsmanna og starfsmanna spítalans þar til hið sanna hafi komið í ljós. Stefnandi hafi þurft að umgangast sjúklinga, starfsmenn og aðstandendur án þess að vita hvort henni væri treyst með nagandi óþægindi um hvað væri hugsað um hana.

    Ríkissaksóknari hafi gert stefnanda og samstarfsfólk hennar tortryggilegt eftir að dómur féll og það hafi valdið henni miska.

    Stefnandi hafi þurft að þola félagslega einangrun. Hún hafi þurft að þola reglubundna umfjöllun fjölmiðla, hún hafi orðið háð lyfjagjöf til að komast í gegnum dagana. Hún hafi orðið að hverfa frá námi, þar sem félagskvíði hafi borið hana ofurliði auk þess sem hún hafi þurft að þola líkamlegar þjáningar sem nánar er lýst í stefnu.

  2. 2. Helstu málsástæður og lagarök stefnda Stefndi hafnar öllum málsástæðum og lagarökum stefnanda. Hafa verði í huga að Landspítala beri lagaleg skylda til þess að skrá og fylgja eftir óvæntum atvikum sem verða við heilbrigðisþjónustu, sbr. 9. gr. laga um landlækni og lýðheilsu nr. 41/2007. Tilgangur ákvæðisins sé að finna skýringar á þeim og leita leiða til að tryggja að atvik endurtaki sig ekki. Þessi skylda verði ekki uppfyllt ef atvik máls liggi ekki fyrir. Ef ætla megi að óvænt dauðsfall sé að rekja til mistaka, vanrækslu eða óhappatilviks við meðferð eða forvarnir vegna sjúkdóms beri heilbrigðisstofnunum einnig skylda til þess að tilkynna slík atvik til lögreglu, sbr. 3. mgr. 10. gr. sömu laga.

    Eftir að stjórnendur Landspítala hafi rætt við þá hjúkrunarfræðinga sem komið hafi að meðferð hins látna að kvöldi [...] 2012 hafi þótt ljóst að um tilkynningaskylt   atvik,   skv.   3.   mgr.   10.   gr.   laga   nr.   41/2007   væri   að   ræða. Stjórnendur meti hverju sinni hvort tilefni sé til tilkynningar. Fyrir hafi legið í þessu tilviki að slökkt hafði verið á vaktara á mónitor, hjúkrunarfræðingur hafði farið frá sjúklingi til að aðstoða annan hjúkrunarfræðing og mögulegt var talið að gleymst hefði að tæma loft úr köffinu. Af þessum ástæðum þótti nauðsynlegt að ræða við þá sem   komu   að   umönnun   sjúklingsins   til   þess   að   kanna   hvort   tilefni   væri   til tilkynningar.

    Þá sé það rangt sem haldið sé fram að samtal stjórnenda á [...] við stefnanda hafi verið fyrsta yfirheyrsla í skilningi sakamálalaga. Ekki sé unnt að fallast á slíkar fullyrðingar enda hvíli á spítalanum sjálfstæð rannsóknarskylda. Ekki sé heldur rétt að Landspítali hafi tilkynnt atvikið til lögreglu áður en stjórnendur [...] ræddu við stefnanda. Stefnandi mætti til viðtals við stjórnendur um kl. 9:30 að morgni [...] 2012, en atvikið hafi ekki verið tilkynnt til lögreglu fyrr en eftir það.

    Stefndi   telur   að   innri   rannsókn   Landspítala   geti   aldrei   þýtt   bótaskyldu samkvæmt 228. gr. laga nr. 88/2008, enda falli sú rannsókn ekki undir lög um meðferð sakamála.

    Stefndi tekur fram að lögregla rannsakaði málið. Samkvæmt 145. gr. laga nr. 88/2008 taki ákærandi ákvörðun um hvort sakamál skuli höfðað. Sakamál var höfðað með ákæru, dags. [...] 2014 á grundvelli þess sem upplýstist við rannsókn málsins.

    Þá bendir stefndi á að við aðalmeðferð málsins hafi stefnandi neitað sök en hafi þó kannast við atvik að miklu leyti. Í því samhengi vísar stefndi til bls. 19–20 í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli stefnanda, en þar komi einmitt fram að stefnandi   hafi   breytt   framburði   sínum   fyrir   dómi   frá   því   sem   fram   kom   við skýrslutöku hjá lögreglu [...] 2012. Breytir þar engu um þótt dómurinn meti ástæður breytts framburðar trúverðugar. Ákæruvald hafi hlotið að byggja á því sem fram kom   í   skýrslutöku   hjá   lögreglu.   Beri   að   hafa   það   í   huga   við   mat   á   meintri bótaskyldu stefnda í samræmi við 2. mgr. 228. gr. laga nr. 88/2008.

    Þá   tekur   stefndi   fram   að   rótargreiningin   hafi   ekki   verið   lögð   fram   í sakamálinu að beiðni forstjóra Landspítalans. Ekki fáist séð að það hafi þær afleiðingar að stefnandi eigi miskabótakröfu á hendur stefnda samkvæmt 228. gr. laga   nr.   88/2008.   Útgáfa   ákæru   hafi   verið   tekin   af   ákæranda   og   byggð   á rannsóknargögnum og mati í samræmi við 145. gr. laga nr. 88/2008.

    Stefndi telur erfitt að átta sig á málatilbúnaði stefnanda, þ.e. hvort verið sé að krefja um miskabætur samkvæmt við 228. gr. laga nr. 88/2008 eða miskabætur samkvæmt 26. gr. laga nr. 50/1993. Að þessu leyti er stefna ekki eins glögg og gera verði kröfu um, sbr. 1. mgr. 80. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991.

    Stefndi hafnar því að 26. gr. laga nr. 50/1993 eigi við enda sýni stefnandi ekki fram á að skilyrði þess lagaákvæðis séu uppfyllt. Þannig telur stefndi að ekki komi   fram   rökstuðningur   í   stefnu   eða   gögnum   málsins   fyrir   miskabótakröfu byggðri á 26. gr. laga nr. 50/1993.

    Að   lokum   er   því   mótmælt   að   stefnandi   hafi   ekki   fengið   réttláta málsmeðferð. Um málsástæðu stefnanda til vara vísar stefndi til sömu málsástæðna og lagaraka sem þegar hafa komið fram. Þá telur stefndi fjárhæð kröfu stefnanda ekki í neinu samræmi við dómaframkvæmd undanfarinna ára. Í 2. mgr. 228. gr. laga nr. 88/2008 segir að fella megi niður bætur eða lækka þær ef bótakrefjandi hefur valdið eða stuðlað að þeim aðgerðum sem krafa byggir á. Ef fallist er á með stefnanda að stefndi sé bótaskyldur beri að hafa hliðsjón af þessu ákvæði enda hafi sakamálið verið byggt á framburði stefnanda og vitna en sá framburður breyttist við aðalmeðferð málsins. Loks er mótmælt vaxtakröfu stefnanda.

IV.

Í máli þessu krefst stefnandi miskabóta úr hendi stefnda annars vegar á grundvelli hinnar hlutlægu bótareglu 2. mgr., sbr. 1. mgr. 228. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og hins vegar samkvæmt 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 á grundvelli sakarreglunnar, 70. gr. stjórnarskrárinnar og 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Til   grundvallar   bótakröfu   sinni   vísar   stefnandi   til   dóms   Héraðsdóms Reykjavíkur í málinu nr. S-514/2014, þar sem niðurstaða dómsins var m.a. að rannsókn lögreglu hafi verið verulega ábótavant, eins og nánar greinir hér að framan. Telur stefnandi sök starfsmanna stefnda felast í því að teknar hafi verið skýrslur af stefnanda innan spítalans sem lagðar hafi verið til grundvallar rannsókn lögreglu og útgáfu ákæru. Rannsókn málsins hafi því farið í bága við 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 70. gr. stjórnarskrár. Málsmeðferðin hafi villt ríkissaksóknara sýn þannig að hann taldi málið játningarmál. Þá hafi málið ekki verið rannsakað jöfnum höndum til sektar eða sýknu.

Í 1. mgr. 228. gr. laga nr. 88/2008 segir að maður, sem borinn hefur verið sökum í sakamáli, eigi rétt til bóta eftir 2. mgr. sömu lagagreinar, ef mál hans hefur verið fellt niður eða hann sýknaður með endanlegum dómi án þess að það hafi verið gert vegna þess að hann var talinn ósakhæfur. Eftir fyrri málslið 2. mgr. greinarinnar skal dæma bætur vegna aðgerða samkvæmt IX. til XIV. kafla laganna ef   skilyrði   1.   mgr.   eru   fyrir   hendi.   Stefnandi   sætti   ekki   þvingunaraðgerðum samkvæmt   IX.   til   XIV.   kafla   laganna.   Verður   krafa   stefnanda   um   greiðslu miskabóta því ekki reist á 228. gr. laga nr. 88/2008.

Víkur þá að málsástæðu stefnanda um bótaskyldu stefnda á grundvelli 26. gr. skaðabótalaga. Ákvæði b-liðar lagagreinarinnar felur í sér heimild til þess að láta þann sem ábyrgð ber á ólögmætri meingerð gegn, frelsi, friði, æru eða persónu annars manns greiða miskabætur til þess sem misgert var við. Við mat á því hvort lögregla hafi sýnt af sér saknæma hegðun verður að leggja til grundvallar hvort við rannsókn   lögreglu   á   andláti   sjúklingsins   hafi   ekki   verið   farið   að   lögum   um rannsókn sakamála.

Í VII. kafla laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála er mælt fyrir um almennar reglur um rannsókn sakamála. Samkvæmt 52. gr. laganna skal lögregla hefja rannsókn út af vitneskju eða grun um að refsivert brot hafi verið framið. Einnig skal lögregla rannsaka mannslát þótt ekki liggi fyrir grunur um refsiverða háttsemi.   Í   53.   gr.   laganna   segir   að   markmið   rannsóknar   sé   að   afla   allra nauðsynlegra gagna til þess að ákæranda sé fært að ákveða að henni lokinni hvort sækja skuli mann til sakar, svo og að afla gagna til undirbúnings málsmeðferð fyrir dómi. Samkvæmt 2. mgr. lagagreinarinnar skulu þeir sem rannsaka sakamál vinna að því að hið sanna og rétta komi í ljós og gæta jafnt að þeim atriðum sem horfa til sýknu og sektar. Í 54. gr. segir m.a. að rannsaka skuli og afla allra tiltækra gagna um verknað þann sem um er að ræða, svo sem stað og stund og öll nánari atvik, sem ætla má að skipt geti máli. Þá segir einnig að rannsaka skuli vettvang ef við á og yfirleitt öll ummerki sem kunna að vera eftir brot. Samkvæmt 56. gr. laganna tekur lögregla saman skýrslu um rannsókn sína í hverju máli um sig þar sem getið skal einstakra rannsóknaraðgerða og niðurstaðna þeirra. Þar skal koma fram það sem sakborningur og vitni bera við skýrslutöku, sbr. 64. og 65. gr., athugun lögreglu sjálfrar og niðurstaða skoðunar og rannsóknar sérfróðra manna. Þegar rannsókn er lokið sendir lögregla eftir atvikum ákæranda rannsóknargögnin ásamt skýrslu lögreglu. Getur ákærandi mælt fyrir um frekari rannsóknaraðgerðir af hálfu lögreglu telji hann þess þörf, sbr. 57. gr. laganna.

Skylda hvílir á Landspítala að skrá og fylgja eftir óvæntum atvikum sem verða   við   heilbrigðisþjónustu,   sbr.   9.   gr.   laga   um   landlækni   og   lýðheilsu   nr. 41/2007. Ef ætla má að óvænt dauðsfall sé að rekja til mistaka, vanrækslu eða óhappatilviks við meðferð eða forvarnir vegna sjúkdóms ber heilbrigðisstofnunum einnig skylda til þess að tilkynna slík atvik til lögreglu, sbr. 3. mgr. 10. gr. sömu laga.

Samkvæmt gögnum málsins rannsakaði lögregla málið. Tekin var skýrsla af stefnanda og vitnum skömmu eftir atburðinn og læknisfræðileg krufning fór fram á hinum látna. Stefnanda var einnig gefinn kostur á að gefa skýrslu í annað sinn [...] 2014,   mánuði   áður   en   ákæra   var   gefin   út.   Í   tilkynningu   ríkissaksóknara   til Héraðsdóms Reykjavíkur, var þess getið að ætla mætti að með málið yrði farið að hætti 164. gr. laga um meðferð sakamála. Við skýrslugjöf stefnanda og vitna við meðferð málsins fyrir dómi skýrðust síðan atvik málsins nánar, atburðarás og atvik öll að kvöldi [...] 2012. Var það síðan niðurstaða dómsins í sakamálinu S-514/2014, að ýmislegt benti til þess að of geyst hefði verið farið í sakir að morgni [...] 2012, þegar rannsókn málsins hófst, þannig að hrapað hafi verið að niðurstöðu um það hver hafi verið meginorsök andláts sjúklingsins. Þannig hafi aðrir þættir en þeir sem í ákæru greinir, sem hugsanlegu gátu valdið andláti sjúklingsins, ekki verið rannsakaðir eins og segir í dóminum.

Það er ákæruvalds að leggja mat á fram komin rannsóknargögn og þar með meta hvort höfða beri mál á hendur sakborningi, sbr. 145. gr. laga nr. 88/2008. Var það mat ákæruvalds [...] 2014, að virtum gögnum málsins eins og þau lágu þá fyrir að það væri rétt ákvörðun.

Sá sem sakaður hefur verið og ákærður fyrir refsiverða háttsemi, getur átt rétt á bótum samkvæmt sakarreglunni. Skilyrði þess er að lögreglumenn eða aðrir ríkisstarfsmenn hafi með ólögmætum og saknæmum hætti valdið honum tjóni. Eins og áður segir var málið rannsakað í tvö ár áður en ákæra var gefin út á hendur stefnanda og teknar skýrslur af stefnanda og vitnum. Þrátt fyrir forsendur þær sem fram   koma   í   niðurstöðu   dóms   Héraðsdóms   Reykjavíkur   í   sakamálinu   um   að rannsókn málsins hafi verið ábótavant, verður ekki talið að virtum gögnum málsins, að lögregla hafi sýnt af sér saknæma og ólögmæta hegðun eða að ákæruvaldið hafi ekki farið að lögum.

Með vísan til framangreinds verður ekki talið að rannsókn lögreglu hafi falið í sér ólögmæta meingerð gegn frelsi, friði, æru eða persónu stefnanda þannig að   leiði   til   bótaskyldu   stefnda   eða   að   hún   hafi   farið   í   bága   við   6.   gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 70. gr. stjórnarskrárinnar um réttláta málsmeðferð.

Er það því niðurstaða dómsins að sýkna beri stefnda af öllum kröfum stefnanda í máli þessu.

Málskostnaður   milli   aðila   fellur   niður.   Gjafsóknarkostnaður   stefnanda greiðist   úr   ríkissjóði,   þar   með   talin   þóknun   lögmanns   hennar,   Einars   Gauts Steingrímssonar hrl. sem telst hæfilega ákveðin 1.500.000 krónur.

Ragnheiður Snorradóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

DÓMSORÐ:

Stefndi, íslenska ríkið, er sýknaður af öllum kröfum stefnanda, A.

Málskostnaður milli aðila fellur niður.

Gjafsóknarkostnaður stefnanda greiðist úr ríkissjóði, þar með talin þóknun lögmanns hennar, sem telst hæfilega ákveðin 1.500.000 krónur.

Ragnheiður Snorradóttir (sign.)

Heimildaskrá