Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. E-145/2016:

E-145/2016:

A

(Bjarni Þór Sigurbjörnsson hdl)

gegn

Vátryggingafélagi Íslands hf. og

Íllgili ehf.

(Heiðar Örn Stefánsson hrl)

Laun. Skaðabætur. Uppgjör.

Ágreiningur var um hvaða árslaun ætti að leggja til grundvallar við útreikning bóta fyrir varanlega örorku.

Stefnandi krefst þess aðallega að stefndu verði dæmdir óskipt til að greiða honum 4.622.636 krónur að viðbættum 4,5% vöxtum, skv. 16. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993, frá 7. janúar 2012 til 7. september 2014 og dráttarvöxtum, skv. 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr., laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu, frá þeim degi til greiðsludags, allt að frádreginni innborgun að fjárhæð 1.898.154 krónur þann 27. febrúar 2015.

Til vara krefst stefnandi þess að stefndu verði dæmdir óskipt til að greiða honum 3.572.673 krónur að viðbættum 4,5% vöxtum, skv. 16. gr. laga nr. 50/1993, frá 7. janúar 2012 til 7. september 2014 og dráttarvöxtum, skv. 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr., laga nr. 38/2001, frá þeim degi til greiðsludags, allt að frádreginni innborgun að fjárhæð 1.898.154 krónur þann 27. febrúar 2015.

Til þrautavara krefst stefnandi þess að stefndu verði dæmdir óskipt til að greiða honum 3.569.231 krónu að viðbættum 4,5% vöxtum, skv. 16. gr. laga nr. 50/1993, frá 7. janúar 2012 til 7. september 2014 og dráttarvöxtum, skv. 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr., laga nr. 38/2001, frá þeim degi til greiðsludags, allt að frádreginni innborgun að fjárhæð 1.898.154 krónur þann 27. febrúar 2015.

Þá krefst stefnandi í öllum tilfellum málskostnaðar, ásamt virðisaukaskatti, óskipt úr hendi stefndu eins og mál þetta væri eigi gjafsóknarmál. Stefndu krefjast sýknu af öllum kröfum stefnanda og málskostnaðar.

I

Stefnandi lenti í umferðarslysi þann 7. september 2011 er ekið var aftan á bifreiðina,   [...],   sem   hann   var   farþegi   í,   á   Smiðjuvegi   í   Kópavogi.   Eigandi bifreiðarinnar SB-178 sem ók aftan á var stefndi Íllgil ehf. Stefnandi hlaut af þessu skaða   m.a.   á   hálsi,   baki   og   vinstri   fæti.   Stefndi  Vátryggingafélag   Íslands   hf. hafnaði,   með   bréfi   dags.   6.   október   2011,   bótaskyldu   vegna   slyssins   á   þeim grundvelli   að   orsakatengsl   milli   slyssins   og   áverka   stefnanda   væru   ósönnuð. Stefnandi höfðaði mál á hendur stefndu nr. E-4119/2013, til viðurkenningar á bótaskyldu, sem þingfest var í Héraðsdómi Reykjavíkur 17. október 2013. Undir rekstri málsins öfluðu báðir aðilar matsgerða dómkvaddra matsmanna. Var þar komist að þeirri niðurstöðu að orsakatengsl væru milli slyss stefnanda og einkenna hans og var varanlegur miski hans metinn 8 stig og varanleg örorka 5%. Varð sátt með aðilum um bótaskyldu í málinu. Ágreiningur varð hins vegar með aðilum um viðmiðunarlaun við útreikning á bótum fyrir varanlega örorku. Stefndi taldi að miða bæri við lágmarkslaunaviðmið 3. mgr. 7. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993, en stefnandi að beita ætti 2. mgr. 7. gr. laganna og meta árslaun sérstaklega. Gert var upp við stefnanda 27. febrúar 2015 miðað við lágmarkslaunaviðmið. Stefnandi gerði fyrirvara við þá niðurstöðu við uppgjörið.

II

Stefnandi reisir kröfu sína á því að hann hafi orðið fyrir líkamstjóni við slysið 7. september 2011 sem stefndi Íllgil ehf. beri skaðabótaábyrgð á sem eigandi bifreiðarinnar SB-178, samkvæmt 1. mgr. 88. gr., sbr. 1. mgr. 90. gr., umferðarlaga nr. 50/1987. Bifreiðin hafi verið tryggð með lögbundinni ábyrgðartryggingu hjá stefnda   Vátryggingafélagi   Íslands   hf.   sem   málið   beinist   að   skv.   97.   gr. umferðarlaga.   Stefndu   hafi   viðurkennt   bótaskyldu   vegna   slyssins   og   greitt stefnanda   bætur   sem   hann   hafi   tekið   við   með   fyrirvara   um   viðmiðunarlaun. Ágreiningur málsins lúti því eingöngu að fjárhæð bóta fyrir varanlega örorku stefnanda, nánar tiltekið hvaða viðmið eigi að nota við útreikning þeirra bóta.

Stefnandi byggi á því að við útreikning bótanna skuli beita 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 sem kveði á um að árslaun skuli metin sérstaklega þegar óvenjulegar aðstæður séu fyrir hendi og ætla megi að annar mælikvarði sé réttari á líklegar framtíðartekjur tjónþola heldur en árslaun skv. 1. mgr. 7. gr. laganna. Um leið telji stefnandi ljóst að lágmarksviðmið 3. mgr. 7. gr. laganna sé ekki réttmætt viðmið í þessu tilviki enda endurspegli það ekki rauntjón stefnanda til framtíðar.

Lögð hafi verið fram skattframtöl og staðgreiðsluskrár stefnanda sem sýni meðalatvinnutekjur hans þrjú síðustu almanaksárin fyrir slysið, þ.e. almanaksárin 2008, 2009 og 2010. Á þessum tíma hafi stefnandi verið í byggingarvinnu í 8 mánuði árið 2008 og í 5 mánuði árið 2009. Hann hafi hins vegar að öðru leyti verið atvinnulaus   á   þessum   tíma.   Stefnandi   telji   að   atvinnuleysi   hans   hafi   verið óvenjulegar aðstæður í skilningi 2. mgr. 7. skaðabótalaga. Tímabundið atvinnuleysi hans á árunum eftir efnahagshrunið á Íslandi megi rekja til þeirra óvenjulegu aðstæðna sem hafi skapast í kjölfar hrunsins. Þessar aðstæður hafi falið í sér óvenjulegt   og   verulegt   bakslag   í   íslensku   efnahagslífi   með   auknu   almennu atvinnuleysi og ekki síst algjöru hruni á sviði byggingariðnaðar þar sem stefnandi hafi fyrst og fremst starfað. Stefnanda hafi því verið óhægt um vik að fá vinnu á þessu tímabili.

Ekkert bendi til annars en að sú atvinna sem stefnandi hafi sannarlega stundað árin 2007 til 2009 gefi raunhæfa mynd af ætluðum framtíðarhorfum hans og tekjum. Til þess sé einnig að líta að frá apríl 2015 og til þessa dags hafi stefnandi stundað byggingarvinnu áþekka þeirri sem hann hafi stundað árin 2007 til 2009. Ekki sé hægt að ganga út frá því að stefnandi verði atvinnulaus um aldur og ævi. Það telji stefnandi ófyrirsynju og ósanngjarnt í sinn garð, enda hafi hann sannarlega atvinnusögu og hafi nýlega sýnt fram á að hann vilji og geti starfað á vinnumarkaði   eftir   því   sem   atvinnutækifæri   bjóðist   og   starfsorka   hans   leyfi. Aðstæður þær sem hann hafi verið í á viðmiðunartímabilinu 2008 til 2010, þegar hann hafi um nokkurt skeið verið atvinnulaus, hafi því sannarlega verið óvenjulegar í skilningi 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga.

Stefnandi telji að túlka beri 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga rúmt í samræmi við dómaframkvæmd og álit fræðimanna og að ganga megi langt í að áætla þær tekjur sem tjónþoli hefði haft í framtíðinni ef launatekjur síðustu ára fyrir slys eru ekki viðmiðunarhæfar. Ekki verði annað ráðið en að það hafi verið vilji löggjafans með breytingunni sem gerð hafi verið á skaðabótalögum með lögum nr. 37/1999. Í greinargerð   frumvarps   þess   er   orðið   hafi   að   lögum   nr.   37/1999   segi   í athugasemdum með 6. gr.: „Þá er gerð tillaga um að 2. mgr. 7. gr. verði rýmkuð þannig að mati verði beitt í þeim tilvikum þegar viðmiðun við síðustu þrjú tekjuár fyrir slys þykir af einhverjum ástæðum ekki réttmæt.“ Stefnandi telji því ljóst að uppfyllt   séu   skilyrði   2.   mgr.   7.   gr.   laganna   og   að   annar   mælikvarði   en meðalvinnutekjur hans síðustu þrjú almanaksárin fyrir slysið teljist réttari á líklegar framtíðartekjur hans.

Aðalkrafa stefnanda lúti að því að miðað sé við laun hans árið 2007. Stefnandi hafi sannarlega verið í verkamannavinnu árin 2007-2009 sem sé áþekk þeirri vinnu sem hann hafi stundað síðar. Hann hafi verið í fullri vinnu allt árið 2007, árið 2008 hafi hann verið í vinnu í átta mánuði og þar af í fullri vinnu í sex mánuði. Árið 2009 hafi hann verið í vinnu í fimm mánuði en þar af þó aðeins í fullri vinnu í tvo mánuði. Stefnandi telji því að til viðmiðunar við útreikning tjónsins, sbr. 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga, sé raunhæfast að líta til ársins 2007 þegar hann   hafi   verið   í   fullri   vinnu   allt   árið.   Aðalkrafa   hans   reiknist   þannig   að heildartekjur hans árið 2007 hafi verið 4.777.216 krónur. Meðaltalslaunavísitala ársins 2007 hafi verið 319,1 og launavísitala á stöðugleikapunkti hafi verið 418,2. Þegar árslaunin 2007 séu uppreiknuð miðað við launavísitölu og 8% mótframlagi í lífeyrissjóð bætt við nemi fjárhæðin 6.761.699 krónum. Með tilliti til margföldunarstuðuls og örorkustigs stefnanda reiknist krafan þannig: 6.761.699 krónur (árslaun) x 13,673 (stuðull) x 5% (örorkustig) = 4.622.636 krónur. Til frádráttar   heildarkröfunni   og   vöxtum   komi   svo   innborgun   stefnda   að   fjárhæð 1.898.154 krónur þann 27. febrúar 2015.

Varakrafa stefnanda miðist við að við útreikning tjónsins sé litið til þeirra sex mánaða sem hann hafi verið í fullri vinnu árið 2008 og þær tekjur uppreiknaðar á tólf mánuði. Um mánuðina janúar, febrúar, mars, október, nóvember og desember 2008 sé að ræða, en í apríl og september það ár hafi ekki verið um fullt starf að ræða og því sé þeim mánuðum sleppt. Varakrafa stefnanda reiknist því þannig að heildartekjur hans í framangreindum mánuðum árið 2008, þar sem hann hafi verið í fullu starfi, hafi verið 1.995.909 krónur. Sé sú fjárhæð uppreiknuð á tólf mánuði nemi hún 3.991.818 krónum sem reiknist þannig: 1.995.909 krónur (samtals laun í janúar, febrúar, mars, október, nóvember og desember 2008) / 6 (fjöldi mánaða sem stefnandi hafi unnið fulla vinnu) x 12 (heildarfjöldi mánaða í ári) = 3.991.818 krónur.   Meðaltalslaunavísitala   ársins   2008   hafi   verið   345,0   og   launavísitala   á stöðugleikapunkti hafi verið 418,2. Þegar framangreind uppreiknuð laun stefnanda árið 2008 séu uppreiknuð miðað við launavísitölu og 8% mótframlagi í lífeyrissjóð bætt við nemi fjárhæðin 5.225.880 krónum. Með tilliti til margföldunarstuðuls og örorkustigs stefnanda reiknist krafan þannig: 5.225.880 krónur (árslaun) x 13,673 (stuðull) x 5% (örorkustig) = 3.572.673 krónur. Til frádráttar heildarkröfunni og vöxtum komi svo innborgun stefnda þann 27. febrúar 2015.

Verði ekki fallist á aðal- eða varakröfu stefnanda geri hann þá kröfu til þrautavara að miðað verði við meðallaun verkamanna á árinu 2010, árið fyrir slysið, við útreikning bóta vegna varanlegrar örorku. Ef frá er talin framangreind viðmiðun við tekjur 2007 og uppreiknaðar tekjur stefnanda árið 2008, telji hann að meðallaun verkamanna á árinu 2010 gefi réttasta mynd af líklegum framtíðartekjum hans, sbr. 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga. Í ljósi þess að stefnandi hafi sögu um atvinnuþátttöku sem verkamaður í byggingariðnaði í hvert sinn sem honum hafi verið það kleift fyrir slysið, þ.m.t. allt árið 2007 og stóran hluta áranna 2008 og 2009, og jafnframt eftir slysið, telji hann eðlilegt og raunhæft að miða við meðaltekjur   verkamanna   við   mat   á   líklegum   framtíðartekjum.   Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands hafi meðallaun verkamanna á árinu 2010 verið að fjárhæð 4.344.000 krónur (362.000 x 12 = 4.344.000). Þegar tekið sé tillit til verðbreytinga og 8% mótframlags í lífeyrissjóð séu viðmiðunarlaun 5.220.845 krónur sem reiknist þannig: 4.344.000 krónur (meðallaun verkamanna 2010) x 1,08 (8% mótframlag í lífeyrissjóð) x 418,2 (launavísitala á stöðugleikapunkti) / 375,8 (meðaltalslaunavísitala 2010) = 5.220.845 krónur. Með tilliti til margföldunarstuðuls og örorkustigs stefnanda reiknist krafan svo þannig: 5.220.845 krónur (árslaun) x 13,673 (stuðull) x 5% (örorkustig) = 3.569.231 króna. Til frádráttar komi svo innborgun stefnda.

Krafa um vexti miðist við 7. janúar 2012 sem sé upphafsdagur metinnar örorku (stöðugleikapunktur), sbr. 1. mgr. 16. gr. skaðabótalaga. Dráttarvaxtakrafa miðist við 7. september 2014 en þá hafi mánuður verið liðinn frá því að matsgerð hafi legið fyrir sem hafi staðfest varanlegt tjón stefnanda, sbr. 9. gr. laga nr. 38/2001.

III

Stefndi byggir sýknukröfu sína á því að ekki séu uppfyllt skilyrði fyrir beitingu 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga um að óvenjulegar aðstæður hafi verið fyrir hendi síðustu þrjú almanaksárin fyrir slysdag og stefnandi hafi ekki sýnt fram á annan réttari mælikvarða á líklegar framtíðartekjur sínar.

Við uppgjör skaðabóta vegna varanlegs líkamstjóns sé leitast við að bæta tjónþola   þær   tekjur   sem   líkur   séu   á   að   hann   verði   af   vegna   örorku   sinar. Líkindaútreikningur sem þessi sé ýmsum annmörkum háður en til þess að koma í veg fyrir að meta þurfi tjónið með flóknum útreikningum í hverju tilviki fyrir sig hafi verið settar fram staðlaðar reglur um útreikninginn með skaðabótalögum. Meginregla íslensks skaðabótaréttar varðandi laun sem miða skuli við að tjónþoli hafi í framtíðinni sé að finna í 1. mgr. 7. gr. skaðabótalaga. Samkvæmt henni skuli árslaun til ákvörðunar bóta samkvæmt 6. gr. laganna teljast vera meðalatvinnutekjur tjónþola, að meðtöldu framlagi vinnuveitanda til lífeyrissjóðs, þrjú   síðustu   almanaksárin   fyrir   þann   dag   er   tjón   varð,   leiðrétt   samkvæmt launavísitölu til þess tíma sem upphaf varanlegrar örorku miðast við. Í 3. mgr. 7. gr. komi þó fram að þrátt fyrir þetta skuli aldrei miða við lægri fjarhæðir en settar séu fram í töflu í greininni. Gert hafi verið upp við stefnanda miðað við þessar fjárhæðir.

Krafa stefnanda byggist á undantekningarreglu 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga. Þar komi fram að árslaun skuli metin sérstaklega þegar óvenjulegar aðstæður séu fyrir hendi og ætla megi að annar mælikvarði sé réttari á líklegar framtíðartekjur tjónþola.   Gæta   þurfi   varúðar   við   beitingu   undantekningarreglna.   Þeim   skuli einungis beitt þegar ljóst sé að lagaskilyrði séu til þess. Sönnunarbyrði um að skilyrðum þessarar greinar sé fullnægt hvíli alfarið á stefnanda. Skilyrði fyrir beitingu 2. mgr. 7. gr. séu tvö. Annars vegar þurfi óvenjulegar aðstæður að hafa leitt til þess að ekki gefist rétt mynd af líklegum framtíðartekjum tjónþola við beitingu 1. mgr. 7. gr. Hins vegar þurfi að vera til annað og betra viðmið sem gefi réttari mynd af líklegum framtíðartekjum tjónþola.

Stefnandi hafi verið 28 ára á slysdegi og hafi ekki aflað sér sérstakra starfsréttinda annarra en kranaprófs og hafi ekki haslað sér völl á tilteknu sviði atvinnulíf fremur en öðru. Þau gögn sem liggi fyrir um atvinnuþátttöku hans bendi til þess að hún hafi verið stopul. Hann hafi lent í slysi árið 2005 sem hafi valdið honum   25%   örorku,   auk   þess   sem   hann   hafi   lengi   átt   við   þunglyndi   og vímuefnavandamál að stríða. Þá hafi hann greinst með brjósklos eftir slysið sem ekki sé talin vera afleiðing þess.

Stefnandi byggi á því að síðustu þrjú árin fyrir slysið hafi verið óvenjuleg sökum   efnahagshrunsins   í   september   2008.   Engin   gögn   í   málinu   staðfesti   að stefnandi hefði getað nýtt vinnugetu sína með öðrum hætti fyrir þann tíma en eftir þann tíma og enn síður að hann hefði í raun gert það ef ekki hefði verið fyrir slysið. Þvert á móti komi skýrt fram í matsgerð sem stefnandi byggi á að fyrra slys, brjósklos, þunglyndi og vímuefnavandi hafi helst ráðið því að stefnandi hafi ekki komist í vinnu eða haldið vinnu. Ætla verði að þetta ástand hefði hrjáð stefnanda til framtíðar óháð slysinu enda séu umrædd einkenni ótengd því. Stefnandi hafi í öllu falli hvorki lagt fram staðfestingu vinnuveitanda um að hann hafi misst vinnu sökum efnahagshrunsins né upplýsingar um tekjur vegna áranna frá því hann hóf störf á almennum markaði fram til ársins 2007. Þá sé óútskýrt hvers vegna hann hafi ekki stundað fulla atvinnu í apríl til september 2008. Stefnandi hafi því ekki sannað að nokkuð hafi verið óvenjulegt við síðustu þrjú tekjuár fyrir slysið. Þvert á móti bendi gögn málsins til þess að ætla megi að þau gefi góða mynd af því sem búast hefði mátt við í framtíðinni. Það sé því eðlilegt að ætla að atvinnuþátttaka stefnanda hefði áfram verið stopul líkt og fyrir slys.

Aðalkrafa stefnanda miði við tekjur á árinu 2007 og varakrafa við þá sex mánuði sem hann hafi verið í fullri vinnu á árinu 2008. Bæði þessi tímabil séu nokkuð löngu fyrir slys og taki yfir mikinn uppgangs- og uppgripstíma í íslensku atvinnulífi. Það sé óraunhæft að miða framtíðartekjur við framreiknaðar tekjur frá þessum tímabilum. Þá séu þau það stutt að engin leið sé til þess að draga nákvæmar ályktanir um framtíðartekjur út frá þeim.

Það sé einnig ósannað að meðallaun verkamanna séu betri mælikvarði á líklegar framtíðartekjur stefnanda en tekjur hans sjálfs síðustu þrjú ár fyrir slys. Í fyrsta lagi nái ekki allt verkafólk meðalárslaunum verkamanna á starfsævinni og ekkert sérstakt bendi til þess að stefnandi hefði náð þeim launum hefði slysið ekki orðið. Stefnandi hafi því ekki sýnt fram á að meiri líkur en minni séu til þess að hann   hefði   náð   meðaltekjum   verkamanna   í   framtíðinni.   Þá   séu   meðaltekjur verkafólks og annarra starfstétta óhæfur viðmiðunargrundvöllur þegar í hlut eigi tiltölulega   ungir   tjónþolar   þar   sem   inn   í   margföldunarstuðul   1.   mgr.   6.   gr. skaðabótalaga   sé   reiknað   sérstakt   aldursálag   fyrir   tjónþola   yngri   en   30   ára. Aldursálagið hækki eftir því sem tjónþoli sé yngri. Það valdi því að uppreiknuð viðmiðunarlaun ungra einstaklinga sem njóti aldursálags verði í raun verulega hærri en   ella.   Þannig   sé   ótækt,   þegar   mjög   ungir   tjónþolar   eigi   í   hlut,   að   leggja meðaltekjur verkafólks eða annarra starfstétta til grundvallar sem viðmiðunarlaun við útreikning bóta fyrir varanlega örorku nema tekið sé tillit til þessa miðvægis og viðmiðunarlaunin lækkuð sem því svari.

Loks telji stefndi rétt, ef miða á við meðalatvinnutekjur starfstétta, að miða við meðalatvinnutekjur þriggja síðustu ára í takt við meginregluna í 1. mgr. 7. gr. skaðabótalaga, en ekki aðeins við síðasta árið fyrir slys. Þá beri að sjálfsögðu að miða við meðallaun starfstéttarinnar óháð kyni en ekki eingöngu við meðallaun annars kynsins, enda væri það í andstöðu við meginreglu laga um jafnan rétt karla og kvenna, en næsta víst sé að sá launamunur sem stefnandi reikni sér muni ekki haldast út starfsævi stefnanda.

IV

Stefnandi lenti í umferðarslysi þann 7. september 2011. Bótaskylda er óumdeild en aðila greinir á um viðmiðunarlaun við útreikning bóta fyrir varanlega örorku. Stefnandi byggir á því að við útreikning bóta skuli beita 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Aðalkrafa hans miðar við laun hans á árinu 2007, varakrafa við laun hans þá mánuði sem hann var í fullu starfið árið 2008 og þrautavarakrafa hans við meðaltekjur verkamanna árið 2010. Stefndi telur hins vegar   rétt   að   miða   við   lágmarkslaun,   sbr.   3.   mgr.   7.   gr.   skaðabótalaga,   en samkvæmt því hafi stefnandi fengið tjón sitt að fullu bætt.

Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. skaðabótalaga skulu árslaun til ákvörðunar bóta fyrir   varanlega   örorku   teljast   vera   meðalatvinnutekjur   tjónþola   að   meðtöldu framlagi vinnuveitanda til lífeyrissjóðs þrjú síðustu almanaksárin fyrir þann dag er tjón varð, leiðrétt samkvæmt launavísitölu til þess tíma sem upphaf varanlegrar örorku miðast við. Samkvæmt 2. mgr. skulu árslaun þó metin sérstaklega þegar óvenjulegar aðstæður eru fyrir hendi og ætla má að annar mælikvarði sé réttari á líklegar framtíðartekjur tjónþola. Þá segir í 3. mgr. að þrátt fyrir ákvæði 1.-2. mgr. skuli ekki miða við lægri árslaun en þar eru tilgreind.

Samkvæmt framangreindu eru tvö skilyrði fyrir því að ákvarða megi árslaun sérstaklega á grundvelli 2. mgr. 7. gr. Annars vegar þarf að vera um að ræða óvenjulegar aðstæður hjá tjónþola og hins vegar þarf að vera fyrir hendi annar réttari   mælikvarði   á   líklegar   framtíðartekjur   hans   en   laun   síðustu   þriggja almanaksára.

Stefnandi var 28 ára á slysdegi. Eftir að hann lauk grunnskólanámi árið 1999 stundaði hann nám í tölvunarfræði í iðnskólanum í eina önn en síðan í stuttan tíma   nám   í   rafiðnaði   og   húsasmíði.   Þá   hefur   hann   aflað   sér   kranaréttinda.   Í matsgerð dómkvaddra matsmanna, Björns Péturs Sigurðssonar bæklunarskurðlæknis og Ingvars Sveinbjörnssonar hrl., í málinu nr. E-4119/2013, kemur fram að stefnandi hafi lengst af verið við ýmis störf í byggingariðnaði, svo sem stjórn krana, smíðavinnu og almenn verkamannastörf. Hann hafi einnig unnið við að þrífa og bóna bíla og starfað hjá föður sínum í Noregi sem reki þar gler- og smíðafyrirtæki. Þá hafi stefnandi hug á því að komast í einhvers konar smíðavinnu. Stefnandi greindi frá því fyrir dóminum að hann hefði byrjað í byggingarvinnu í kringum árið 2002. Frá þeim tíma hefði hann verið nánast stöðugt í byggingarvinnu til ársins 2007, með stuttri viðkomu við störf hjá Ingvari Helgasyni ehf. Þá hefði hann unnið við byggingarstörf hjá föður sínum í Noregi, m.a. um sumarið 2008. Honum   hefði   verið   sagt   upp   störfum   árið   2009   vegna   verkefnaskorts   í byggingariðnaði. Eftir það hafi hann verið að leita að vinnu á þessu sviði. Hann hafi starfað í Noregi frá ársbyrjun 2010 og fram á sumar og byrjað aftur störf hér heima árið 2011 þegar hann hafi lent í slysinu og þurft að hætta. Hann hafi hugsað sér að starfa áfram á sama sviði en hugsanlega fara í nám og læra eitthvað þessu tengt.

Samkvæmt staðgreiðsluskrá ríkisskattstjóra var stefnandi við störf allt árið 2007. Árið 2008 var hann við störf í janúar, febrúar, mars, apríl, september, október, nóvember og desember og árið 2009 frá janúar fram í maí. Eftir það hefur stefnandi haft launatekjur í júlí til september 2011 og svo aftur frá apríl 2015. Samkvæmt framangreindu var stefnandi í lítilli vinnu síðustu þrjú almanaksárin fyrir   slysið   í   september   2011   en   hann   kveðst   hafa   misst   vinnuna   vegna verkefnaskorts í byggingariðnaði. Alkunna er að sérstakar aðstæður sköpuðust í byggingariðnaði á framangreindum tíma. Stefnandi var í föstu starfi allt fram á árið 2009 þegar hann missti vinnuna og hafði lítið að gera eftir það. Hann hafði nýlega hafið   störf   að   nýju   árið   2011   þegar   hann   lenti   í   slysinu.   Með   hliðsjón   af framangreindu verður að fallast á að um óvenjulegar aðstæður í skilningi 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga hafi verið að ræða.

Stefnandi   hefur   takmarkaða   menntun   og   hafði   ekki   aflað   sér   sérstakra starfsréttinda þegar slysið varð, utan kranaréttinda. Hann hafði hins vegar starfað í nokkur ár við byggingarstörf, eins og sýnt hefur verið fram á með gögnum málsins, m.a. framlögðum matsgerðum úr málinu nr. E-4119/2013, og ætlaði sér að halda áfram á þeirri braut. Þá hefur hann aftur hafið störf á sama sviði. Aðal- og varakröfur stefnanda miða við tímabil þar sem aðstæður voru nokkuð óvenjulegar í byggingariðnaði og hefur stefnandi ekki sýnt fram á að raunhæft sé að miða líklegar framtíðartekjur við þau tímabil. Að öllu framangreindu virtu verður að telja réttast að miða líklegar framtíðartekjur stefnanda við meðallaun verkafólks eins og þrautavarakrafa stefnanda lýtur að. Þó þykja rök ekki standa til þess að greina á milli kynja í því sambandi. Að teknu tilliti til þess verður fallist á kröfu stefnanda að fjárhæð 3.372.036 krónur, með vöxtum eins og í dómsorði greinir, en stefnandi hefur lagt fyrir dóminn útreikning kröfunnar og hefur honum ekki verið andmælt.

Stefnandi hefur gjafsókn í máli þessu samkvæmt bréfi innanríkisráðuneytisins 15. júní 2015. Í samræmi við framangreinda niðurstöðu verður stefndu, með vísan til 1. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991, gert að greiða stefnanda málskostnað að fjárhæð 982.080 krónur sem renni í ríkissjóð. Allur gjafsóknarkostnaður stefnanda, þar með talin málflutningsþóknun lögmanns hans 982.080 krónur, greiðist úr ríkissjóði. Við ákvörðun málskostnaðar hefur verið tekið tillit til virðisaukaskatts á málflutningsþóknun.

Barbara Björnsdóttir héraðsdómari kveður upp þennan dóm.

D Ó M S O R Ð :

Stefndu, Vátryggingafélag Íslands hf. og Íllgil ehf., greiði óskipt stefnanda, A, 3.372.036 krónur ásamt 4,5% vöxtum frá 7. janúar 2012 til 7. september 2014 og dráttarvöxtum, skv. 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001, frá þeim degi til greiðsludags, allt að frádreginni innborgun að fjárhæð 1.898.154 krónur þann 27. febrúar 2015.

Stefndu greiði óskipt 982.080 krónur í málskostnað sem renni í ríkissjóð.

Allur gjafsóknarkostnaður stefnanda, þar með talin þóknun lögmanns hans, 982.080 krónur, greiðist úr ríkissjóði.