Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. E-4610/2014:

Atli Ísleifur Ragnarsson

(Þorsteinn Einarsson hrl)

gegn

Tryggingamiðstöðinni hf. og

Vátryggingafélagi Íslands hf.

I.

(Hjörleifur Kvaran, Hákon Árnason hrl)

Skaðabætur. Skaðabótamál. Vinnuslys.

Viðurkenndur var réttur stefnanda til skaðabóta úr ábyrgðartryggingu, vegna slyss sem hann varð fyrir um borð í skipi sem lá við bryggju í Hafnarfjarðarhöfn.

Stefnandi er Atli Ísleifur Ragnarsson, til heimilis að Heiðarhrauni 31a, Grindavík, en stefndu eru Tryggingamiðstöðin hf., Síðumúla 24, Reykjavík, og Vátryggingafélag Íslands hf., Ármúla 3, Reykjavík.

Stefnandi krefst þess að viðurkenndur verði réttur hans til skaðabóta in solidum úr ábyrgðartryggingu Vélsmiðju Grindavíkur ehf., hjá Vátryggingafélagi Íslands hf., og ábyrgðartryggingu Þorbjarnar hf., hjá Tryggingamiðstöðinni hf., vegna   vinnuslyss   sem   stefnandi   varð   fyrir   þann   6.   júní   2012.   Þá   er   krafist málskostnaðar.

Stefndi, Tryggingamiðstöðin hf., krefst aðallega sýknu af öllum kröfum stefnanda, en til vara að stefnandi verði látinn bera hluta tjóns síns sjálfur að verulegu leyti. Þá krefst stefndi málskostnaðar.

Stefndi,   Vátryggingafélag   Íslands   hf.,   krefst   aðallega   sýknu   af   öllum kröfum stefnanda, auk málskostnaðar, en til vara er þess krafist að bótaréttur stefnanda verði aðeins viðurkenndur að hluta og málskostnaður felldur niður.

II.

Stefnandi var starfsmaður hjá Vélsmiðju Grindavíkur ehf. þegar hann slasaðist á fæti þann 6. júní 2012 við vinnu að viðgerð á skipinu Hrafni GK 111 sem lá við bryggju   í   Hafnarfjarðarhöfn.   Skipið   er   eigu   útgerðarfélagsins   Þorbjarnar   hf.   í Grindavík. Við vinnuna notaði stefnandi vinnupall í eigu Þorbjarnar hf. Þegar stefnandi fór niður af vinnupallinum að lokinni vinnu sinni hrundi pallurinn. Féll stefnandi niður með pallinum og hlaut slæmt brot á hægri fæti.

Stefnandi var 59 ára á slysdegi, vélsmiður að mennt, og hafði starfað hjá Vélsmiðju Grindavíkur ehf. við almennar viðgerðir og rafsuðu í um 13 ár þegar slysið varð.

Lögregla var kvödd samdægurs á vettvang slyssins. Samkvæmt vettvangsskýrslu lögreglunnar, sem dagsett er sama dag og slysið varð, þ.e. þann 6. júní   2012,   skoðaði   lögregla   vinnupallinn   og   tók   myndir   af   honum.   Segir   í vettvangsskýrslu lögreglu að stefnandi hafi verið að vinna við breytingar á skipinu. Hann hafi verið á pallinum í einhvern tíma þegar hann færði sig til. Pallurinn hafi þá fallið saman og stefnandi fallið á gólfið. Segir í skýrslu lögreglu að við skoðun á pallinum þá er hann samsettur með 4 þverstífum 2 neðarlega og 2 ofarlega og einni skástífu. Læsing er á efri hluta skástífunnar og hefur hún losnað. Segir í lögregluskýrslunni   að   óskað   hafi   verið   eftir   starfsmanni   frá  Vinnueftirlitinu   á vettvang.

Samkvæmt skýrslu lögreglu, þann 28. ágúst 2012, lýsir stefnandi aðstæðum þannig að hann hafi verið við vinnu á pallinum í tvo og hálfan tíma. Að lokinni vinnu þegar hann hafi verið á leið niður af pallinum hafi hann dottið í sundur. Kvaðst hann ekki vita hvers vegna pallurinn datt í sundur. Hann hafi sjálfur sett pallinn saman og það hafi hann gert hundrað sinnum og kunni alveg á þetta. Þetta væri mjög einfalt.

Á ljósmyndum á bls. 2, sem lögregla tók á slysstað þann 6. júní 2012, er tiltekið að trégrind undir pallinum hafi verið „óstöðug og hreyfðist til ef þungi var settur ofan á hana þar sem fóturinn var.“ Á ljósmynd á bls. 4, sem er nærmynd tekin af pallinum, segir eftirfarandi: „... efri festing stífunnar var laus frá grind pallsins. Ekkert athugavert var að sjá við skoðun á festingunni.“

Í slysatilkynningu Vélsmiðju Grindavíkur ehf. til Sjúkratrygginga Íslands, dags. 30. ágúst 2012, segir í reit 20 um lýsingu á tildrögum og orsökum slyssins m.a. eftirfarandi: „Rýmið var þröngt hjá honum og þurft hann að smogra sér af stillansinum og niður stigann á hliðinni. Þegar hann stígur svo þar á skiptir engum togum en að stillansinn byrjar að falla með honum og datt megnið af stillansinum ofaná hann og braut á honum hnéð.“

Vélsmiðja Grindavíkur ehf. tilkynnti Vinnueftirliti ríkisins um slysið þann 5. desember 2012. Segir m.a. í tilkynningu að vinnueftirlitið hafi verið kallað til þegar slysið varð en hafi fyrst neitað að koma þar sem slysið hafi orðið um borð í skipi. Segir í tilkynningunni að stefnandi hafi verið á vinnupalli í lest Hrafns GK. Þegar hann hafi farið niður af pallinum hafi hann þurft að „smokra“ sér af honum og hafi festingar losnað, því þegar hann stígi niður á þrepin til að komast niður hafi pallurinn hrunið. Hafi stefnandi dottið niður um 2,5-3 metra og pallurinn ofan á hann.

Samkvæmt því sem greinir í tölvuskeyti Vinnueftirlits ríkisins til lögmanns stefnanda, dags. 3. september 2015, fékk vinnueftirlitið tilkynningu um slysið sama dag og það gerðist. Segir þar að vinnueftirlitið hafi farið á slysstaðinn, en þegar þangað var komið hafi enginn verið á staðnum. Er tekið fram í tölvuskeytinu að erfitt sé að rannsaka slys sem þetta án þess að ná sambandi við einhvern sem þekki aðstæður vel og/eða hafi orðið vitni af slysinu. Því hafi verið tekin ákvörðun um að ræða við vitni síðar og skoða lögregluskýrslu þegar hún lægi fyrir. Eftirlitsmaður sem kom á staðinn tók ljósmyndir af vettvangi slyssins sem liggja fyrir í gögnum málsins. Á greindum ljósmyndum eru engar myndir af vinnupallinum.

Stefnandi   gaf   aðilaskýrslu   fyrir   dóminum.   Einnig   gáfu   skýrslu   fyrir dóminum þeir Ómar Davíð Ólafsson, verkstjóri hjá Vélsmiðju Grindavíkur ehf. og Jón Halldór Gíslason, fyrrverandi verkstjóri á vélaverkstæði Þorbjarnar hf. Stefnandi   kvaðst   hafa   verið   að   breyta   umbúðaliftu   þegar   slysið   varð. Þorbjörn hf. hafi afhent honum vinnupall til þess að vinna verkið. Pallurinn hafi verið hífður ofan í lest skipsins og kom í bútum. Hann hafi notað allar einingar sem hafi fylgt pallinum til þess að setja hann saman. Ein skástífa hafi fylgt pallinum og hana setti stefnandi undir miðjan pallinn. Þverböndin setti hann í lárétt bönd pallsins og herti vel með lykli. Engar leiðbeiningar hafi verið á staðnum hvernig bæri að setja pallinn upp. Enginn verkstjóri hafi verið á staðnum til að leiðbeina honum um uppsetningu. Starfsmenn Þorbjarnar hf. hafi verið uppi, en stefnandi niðri í lest þegar hann setti upp pallinn. Enginn hafi tekið pallinn út áður en hann hafi verið tekinn til notkunar. Hann kvaðst margoft hafa sett upp vinnupalla og uppsetning þessa vinnupalls hafi ekki verið á annan hátt en hann var vanur að setja þá saman. Hann tók fram að gólfið undir pallinum væri trégólf og að það hafi ekki verið laust í sér. Hann kvaðst hafa verið að vinna í tvo tíma á pallinum þegar pallurinn lagðist á hliðina. Hann hafi verið búinn að fara oft upp og niður af honum áður en hann hrundi. Stefnandi kvað þann pall sem skoðaður var á vettvangi með dóminum ekki vera sama pall og hann notaði umrætt sinn. Stefnandi tók fram að enginn á vegum Vélsmiðjunnar hafi fylgt honum á vinnustað í skipinu hjá Þorbirni hf. Hann tók fram að Ómar Davíð, verkstjóri hjá Vélsmiðjunni Grindavík ehf. hafi ekkert komið að málinu. Verkfyrirmæli hafi verið  gefin af Jóni Gíslasyni. Hann hafi sett upp pallinn einn og taldi sig ekki þurfa á aðstoð vegna þess.

Ómar Davíð Ólafsson, verkstjóri hjá Vélsmiðju Grindavíkur tók fram að unnið væri reglulega fyrir Þorbjörn. Stefnandi hafi verið sendur í afmarkað verk í lest skipsins. Hann hafi ekki skoðað sérstaklega vinnuaðstæður í skipinu og í þessu tilviki hafi starfsmaður unnið undir verkstjórn Þorbjarnarins. Vélsmiðjan hafi ekki skipt sér sérstaklega af verkinu. Almennt væru vinnuaðstæður ekki teknar út áður en starfsmenn Vélsmiðjunnar færu til vinnu á einstaka staði. Hann tók fram að öryggisfulltrúi væri í fyrirtækinu. Hann tók fram að það væri allur gangur á því hvernig pallar væru settir upp og hvort þverbönd væru sett í láréttu böndin eða lóðréttu stoðina. Hann vissi ekki hvernig þessu hefði verið háttað með umræddan vinnupall þar sem hann hefði ekki séð hann. Hann taldi sig ekki þurfa að leggja neinar leiðbeiningar fyrir stefnanda um það hvernig vinnupallar væru settir upp.

Jón Halldór Gíslason var verkstjóri hjá Þorbirni hf. 2012, þegar slysið varð. Hann tók fram að hann hefði óskað eftir því að umrætt verk yrði unnið og sýnt starfsmanninum hvaða verki væri óskað eftir. Þorbjörn hf. hefði átt umræddan vinnupall. Hann kvaðst hafa híft pallinn um borð í skipið og síðan hafi stefnandi sett pallinn saman. Einingar pallsins hafi verið tvær endagrindur, fjórar langstífur, tvær skástífur og tveir pallar sem unnið væri á og að pallarnir húkkuðust upp á endagrindurnar. Hann taldi að langstífur virkuðu betur ef þær væru settar á lóðréttar stoðir pallsins. Þá hefði pallurinn verið settur upp aftur eftir slysið og annar starfsmaður komið til að ljúka verkinu. Hann taldi að pallurinn væri enn í notkun. Hann taldi að fleiri starfsmenn Vélsmiðjunnar hefðu verið að vinna um borð í skipinu   þennan   dag.  Hann   sjálfur   og   starfsmenn   Þorbjarnar   hefðu   farið   heim klukkan fimm þennan sama dag. Hann taldi að Vinnueftirlit hefði haft greiðan aðgang að skipinu og lest þess þar sem væri stigi niður. Þá tók hann fram að hann hefði haft verkstjórn yfir stefnanda meðan hann var að vinna um boð í skipinu. Hann taldi að honum hefðu ekki verið veittar leiðbeiningar um uppsetningu pallsins og að engar leiðbeiningar hafi verið til staðar um uppsetningu pallsins.

Þann 28. nóvember 2016, gekk dómurinn ásamt lögmönnum málsaðila á vettvang þar sem skoðaður var vinnupallur sem stillt hafði verið upp á starfsstöð Þorbjarnar ehf. í Grindavík. Með samanburði á ljósmyndum sem liggja fyrir í gögnum málsins og teknar voru af lögreglu á slysstað þann 6. júní 2012, og þeim palli sem stillt hafði verið upp til skoðunar á vettvangi, kom í ljós að ekki var að öllu leyti um sömu pallaeiningar að ræða. Þannig mátti sjá að þverstífur við skoðun á vettvangi voru  aðrar en þær sem komu fram á ljósmyndum lögreglu.

III.

  1. 1. Helstu málsástæður og lagarök stefnanda Stefnandi telur að slysið megi rekja til vanrækslu og vanbúnaðar sem Vélsmiðja Grindavíkur ehf. og Þorbjörn hf. beri sameiginlega skaðabótaábyrgð á. Vélsmiðja Grindavíkur ehf. hafi verið vinnuveitandi stefnanda og þannig borið ábyrgð á öryggi á vinnustað. Þorbjörn hf. hafi verið eigandi vinnupallsins og lagt stefnanda hann til við vinnuna. Það sé skylda vinnuveitanda að tryggja öruggt starfsumhverfi fyrir starfsmenn sína, hvort sem starfsmenn séu að vinna fyrir vinnuveitanda á starfsstöð hans eða annars staðar, auk þess að útvega starfsmönnum fullnægjandi og örugg tæki til að vinna vinnuna. Bæði Vélsmiðju Grindavíkur ehf. og Þorbirni hf. hafi borið að fylgja lögum nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og öryggisreglum, en þá skyldu hafi báðir vanrækt. Því beri þeir bótaábyrgð á tjóni stefnanda.

    Stefnandi vísar til 13., 14., 37., 42. og 65. gr. a í lögum nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Hafi ofangreindir aðilar ekki gætt að nefndum lagaákvæðum, enda brotið gegn skráðum hátternisreglum. Stefnandi vísar einnig til 8. gr. reglna um aðbúnað, hollustuhætti og öryggisráðstafanir á byggingarvinnustöðum og við aðra tímabundna mannvirkjagerð nr. 547/1996, sem mælir fyrir um að atvinnurekandi eða verktaki skuli við framkvæmd verks hverju sinni sjá til þess að skipulag á byggingarvinnustað sé fullnægjandi, sbr. einnig d-lið 3. tölul. sömu greinar. Þá vísar stefnandi til greinar 3.2. í reglum um röraverkpalla nr. 331/1989 þar sem segir að atvinnurekandi skuli sjá til þess að þeir sem noti verkpalla fái nauðsynlegar leiðbeiningar um notkun þeirra. Samkvæmt grein 4.1. í sömu reglum skuli aldrei taka verkpall í notkun fyrr en frá honum hafi verið gengið á fullnægjandi hátt. Enginn hluti í verkpalli megi geta losnað við notkun hans, sbr. grein 5.2.

    Stefnandi telur ljóst að orsök slyssins sé að rekja til þess að skrúfa eða læsing hafi losnað á vinnupallinum með þeim afleiðingum að pallurinn féll saman undir honum. Þetta komi fram í lögregluskýrslu sem gerð hafi verið eftir slysið og einnig í tilkynningu vinnuveitanda stefnanda til Vinnueftirlitsins þann 5. desember 2012. Því sé ljóst að vinnupallurinn hafi ekki uppfyllt lögbundnar öryggiskröfur og að skyldum Vélsmiðju Grindavíkur ehf. og Þorbjarnar hf. hafi ekki verið fullnægt.

    Stefnandi   vísar   til   þess   sem   fram   kemur   í   lögregluskýrslu   um   að vinnupallurinn hafi staðið á trégrind sem hafi verið óstöðug og hreyfst ef þungi var settur ofan á hana. Slíkur aðbúnaður sé ófullnægjandi, sbr. grein 4.3.3. í viðauka með reglugerð nr. 367/2006 um notkun tækja. Í greindu ákvæði komi fram að tryggja skuli að burðareiningar vinnupalls renni ekki til, með því að festa þær við undirstöðuna eða með búnaði sem hindri að þær renni til eða á einhvern annan hátt með sömu áhrifum. Auk þess verði undirstöður og gólfeiningar að hafa nægilegt burðarþol og að tryggja verði að vinnupallur sé stöðugur. Á þeim vanbúnaði beri Vélsmiðja Grindavíkur ehf. og Þorbjörn hf. ábyrgð.

    Stefnandi vísar til skyldna verkstjóra í 21. og 23. gr. laga nr. 46/1980. Hafi áðurgreindir aðilar vanrækt að hafa verkstjóra á staðnum til að tryggja öryggi á vinnustað   í   samræmi   við   greindar   reglur.   Þá   vísar   stefnandi   til   5.   og   7.   gr. reglugerðar nr. 367/2006, varðandi ráðstafanir atvinnurekanda til að tryggja að tæki hæfi því verki sem verið sé að vinna að og um upplýsingaskyldu varðandi notkun tækja. Stefnandi vísar einnig til 10. gr. sömu reglugerðar um skoðunarskyldu atvinnurekanda eftir að tæki hafi fyrst verið sett upp.

    Stefnandi tekur fram að kallað hafi verið eftir lögreglu þegar slysið átti sér stað og að hún hafi mætt á slysstað. Vinnuveitandi hafi ekki tilkynnt slysið til vinnueftirlitsins samdægurs eins og lög geri ráð fyrir og því hafi engin rannsókn farið fram á tildrögum þess og á því hvers vegna festingin losnaði eða gaf sig með þeim afleiðingum að pallurinn hrundi. Stefnandi vísar til 79. gr. laga nr. 46/1980 þar sem fram kemur að atvinnurekandi skuli án ástæðulausrar tafar tilkynna til Vinnueftirlitsins slys þar sem starfsmaður verður óvinnufær í einn eða fleiri daga. Telur stefnandi að sinnuleysi gagnvart lögbundinni tilkynningarskyldu hafi komið í veg fyrir að Vinnueftirlit og lögregla könnuðu tildrög slyssins. Beri stefndu hallann af þeim sönnunarskorti.

  2. 2. Helstu málsástæður og lagarök stefnda, Tryggingamiðstöðvarinnar hf. Sýknukrafa stefnda er í fyrsta lagi byggð á aðildarskorti. Ekkert samningssamband hafi verið á milli stefnda og Útgerðarfélagsins Þorbjarnar hf. og hafi félagið ekki borið vinnuveitandaábyrgð á stefnanda þegar hann vann verk sín. Bendir stefndi á að Vélsmiðja Grindavíkur ehf. hafi tekið umrætt verk að sér fyrir útgerðarfyrirtækið Þorbjörn hf. og sinnt því verki sem sjálfstæður verktaki. Stefnandi hafi verið starfsmaður þessa sjálfstæða verktaka. Fram komi í lögregluskýrslu, dags. 28. ágúst 2012, sem tekin var af stefnanda þann sama dag, að verkstjóri og yfirmaður stefnanda hafi verið Ómar Davíð Ólafsson, starfsmaður Vélsmiðju Grindavíkur ehf. Stefnandi   hafi   því   sjálfur   litið   svo   á   að   hann   starfaði   undir   verkstjórn vélsmiðjunnar.   Hafi   vinnuveitanda   hans   borið   að   sjá   honum   fyrir   öruggu starfsumhverfi.

    Þá bendir stefndi á að tilkynningu til vinnueftirlitsins hafi verið fullnægt, sbr. það sem segir í lögregluskýrslu, dags. 6. júní 2012. Starfsmaður þess hafi komið á vettvang.

    Stefndi   tekur   fram   að   ekkert   sé   komið   fram   sem   bendi   til   þess   að vinnuumhverfi á slysstað hafi ekki verið forsvaranlegt. Þá telur stefndi að slysið verði fyrst og fremst rakið til rangrar uppsetningar vinnupallsins. Stefnandi hafi einn unnið að uppsetningu hans. Stefndi telur að eignarhald á vinnupallinum skipti engu máli í tengslum við mat á bótaskyldu í máli þessu. Það sem skipti máli sé hvort pallurinn hafi verið forsvaranlegur og hvort hann hafi verið settur saman á réttan hátt. Samkvæmt gögnum málsins hafi pallurinn verið í fullkomnu ástandi. Það sem hafi orsakað slysið hafi verið röng uppsetning hans og hann því óstöðugri en annars hefði verið, sem stefnandi beri einn ábyrgð á. Hann beri því alla ábyrgð á eigin tjóni og beri því að sýkna stefnda af öllum kröfum.

    Varakrafa stefnda um eigin sök stefnanda byggir á því að stefnandi hafi sjálfur sett upp vinnupallinn og það hafi hann í þessu tilviki gert með röngum hætti. Stefnanda hafi borið að kanna styrkleika vinnupallsins áður en hann hóf störf á honum og með því að gera það ekki hafi hann sýnt af sér stórkostlegt gáleysi. Á því beri hann einn ábyrgð og eigi hann að bera verulegan hluta tjónsins sjálfur.

  3. 3. Helstu málsástæður og lagarök stefnda, Vátryggingarfélags Íslands hf. Krafa stefnda um sýknu er í fyrsta lagi byggð á því að Vélsmiðja Grindvíkur ehf. eigi enga sök á slysi stefnanda, þar sem vélsmiðjan hafi hvorki haft umráðarétt yfir þeim vinnustað sem slysið varð á, þ.e. um borð í togaranum Hrafni GK 111, né heldur   verkstjórnarvald   á   staðnum.   Það   hafi   verið   í   höndum   eiganda   og útgerðarmanns togarans. Þá átti Vélsmiðja Grindavíkur ehf. ekki rörapallinn eða lét stefnanda hann í té. Þannig hafi vélsmiðjan ekki borið ábyrgð á vinnustaðnum og vinnuörygginu þar sem slysið varð eða tækjum og tólum sem þar voru notuð. Telur stefnandi það meginreglu í íslenskum rétti að vinnuveitandi beri ekki bótaábyrgð á öðrum   vinnustað   en   sínum   eigin.   Eigi   staðhæfingar   stefnanda   um   meint   brot Vélsmiðju Grindavíkur ehf. á tilvísuðum lögum og reglum um aðbúnað og öryggi á vinnustöðum, um rörapalla og um notkun tækja sér því enga stoð.

    Þá   hafi   Vélsmiðja   Grindavíkur   ehf.   ekki   haft   neitt   verkstjórnarvald   á umræddum vinnustað. Verkstjórnarvald hafi verið í höndum Þorbjarnar hf. Auk þess   hafi   engin   þörf   verið   fyrir   sérstaka   eða   viðvarandi   verkstjórn   af   hálfu verkstjóra   við   að   setja   saman   rörapallinn,   þegar   litið   sé   til   fagþekkingar   og starfsreynslu stefnanda og þess að um einfalt verk hafi verið að ræða.

    Stefndi mótmælir því að vinnuveitandi hafi ekki tilkynnt slysið strax til vinnueftirlitsins og að stefndi beri af þeim sökum ábyrgð á tjóni stefnanda. Sé staðhæfing þessi röng og bótaregla þar að lútandi ekki til í íslenskum rétti. Slysið var   tilkynnt   strax   til   vinnueftirlitsins   eins   og   fram   kemur   í   vettvangsskýrslu lögreglu og slysatilkynningu Vélsmiðju Grindavíkur ehf. Þá telur stefndi ósannað að slysið megi rekja til saknæmrar vinnuaðstöðu um borð í togaranum, skorts á viðhaldi með búnaði og tækjum eða til bilunar eða galla í rörapallinum, skorts á leiðbeiningum við uppsetningu, skorts á verkstjórn eða skorts á áhættumati. Það eina sem liggi fyrir um orsök slyssins sé að skrúfa eða læsing   á   efri   hluta   skástífunnar   hafi   losnað,   sbr.   það   sem   fram   kemur   í lögregluskýrslu, og að pallurinn hafi hrunið af þeim ástæðum. Hvergi sé í skýrslum lögreglu minnst á bilun eða galla í pallinum eða búnaði hans.

    Telur stefndi að orsök slyss stefnanda sé ekki að rekja til annars en að skrúfa eða læsing á efri hluta skáskífunnar hafi losnað og pallurinn þess vegna hrunið. Um það hafi stefnandi hins vegar ekki við aðra að sakast en sjálfan sig. Stefnandi hafi sett saman rörapallinn og staðið einn að því verki. Átti stefnandi í ljósi reynslu og fagþekkingu sinnar að vita manna best, hvað þyrfti til að skrúfan eða   læsingin   losnaði   ekki   meðan   hann   væri   að   vinna   á   pallinum.  Vélsmiðja Grindavíkur ehf. og Þorbjörn hf. áttu ekki að þurfa að vaka yfir og leiðbeina stefnanda um þetta. Leiði þetta einnig til sýknu stefnda.

    Varakrafa stefnda sé byggð á því að stefnandi hafi sýnt af sér stórfellt gáleysi með því að búa ekki svo um hnútana að skrúfan eða festingin á skáskífunni gæti ekki losnað, en það hafi verið mjög brýnt þar sem unnið hafi verið í mikilli hæð. Beri því að skerða rétt stefnanda til bóta verulega og viðurkenna aðeins bótarétt að hluta, sbr. 1. mgr. 23. gr. a í skaðabótalögum nr. 50/1993. Telur stefndi að   skerða   beri   rétt   stefnanda   til   bóta   eigi   minna   en   að   hálfu,   verði   fallist   á bótaskyldu.

IV.

Niðurstaða Fyrir liggur í máli þessu að þegar stefnandi slasaðist á fæti þann 6. júní 2012 var hann starfsmaður hjá Vélsmiðju Grindavíkur ehf. Stefnandi er vélsmiður að mennt og hafði unnið hjá Vélsmiðjunni í um 13 ár þegar slysið varð. Hann var sendur til vinnu um borð í togara sem er í eigu útgerðarfélagsins Þorbjarnar hf. Við vinnu sína um borð í skipinu notaði hann vinnupall sem var í eigu Þorbjarnar hf. Stefnandi setti vinnupallinn sjálfur saman um borð í skipinu og liggur fyrir að hann hafi oft áður reist slíka vinnupalla. Við uppsetningu pallsins í umrætt sinn setti hann þverstífurnar á láréttu böndin eins og hann hafði ávallt gert þegar hann reisti vinnupalla. Þá setti hann hann upp eina skástífu sem hann festi undir miðjan pallinn. Í skýrslu lögreglu sem kom á slysstað í kjölfar slyssins segir, m.a. að pallurinn sé samsettur með fjórum þverstífum og einni skástífu og að læsing á efri hluta skástífunnar hafi losnað. Vinnueftirlit ríkisins var kvatt á staðinn af lögreglu sama dag og slysið varð. Á þeim tíma þegar eftirlitið kom á staðinn til að kanna slysstað var enginn á vettvangi til þess að taka á móti fulltrúa þess og því var slysið ekki rannsakað af vinnueftirlitinu, hvorki þá né síðar. Í skýrslum fyrir dóminum hefur komið fram að fleiri menn hafi verið að vinna um borð í skipinu þegar slysið varð og síðustu menn yfirgefið það í lok vinnudags klukkan fimm og því hafi ekkert verið því til fyrirstöðu að eftirlitið skoðaði aðstæður um borð í skipinu. Ekki liggur fyrir nákvæm tímasetning um það hvenær eftirlitið kom á slysstað. Telur dómurinn því ósannað að á þeim tíma sem eftirlitið kom hafi starfsmenn frá stefnda, Þorbirni ehf. eða Vélsmiðju Grindavíkur ehf. verið um borð í skipinu.

Ekki   liggja   fyrir   gögn   í   málinu   um   hver   hafi   verið   rétt   uppsetning   á umræddum   rörapalli.   Stefnandi   kvaðst   hafa   sett   þverstífur   í   lárétt   bönd vinnupallsins og hert vel með lykli. Á hinn bóginn telur vitnið Jón Halldór Gíslason að þverstífur virki betur ef þær eru festar á lóðréttar stoðir pallsins. Vitnið Ómar Davíð Ólafsson telur að allur gangur sé á því hvernig pallar væru settir upp og þar með hvort þverstífur væru settar á lárétt bönd eða lóðréttar stoðir vinnupalla.

Samkvæmt framansögðu er í máli þessu deilt um tilurð slyssins. Er einkum deilt um hvað hafi orðið þess valdandi að vinnupallurinn féll saman þegar stefnandi steig niður af pallinum. Stefnandi telur ljóst að slysið sé að rekja til þess að skrúfa eða læsing hafi losnað af vinnupallinum með þeim afleiðingum að pallurinn féll saman undir stefnanda, sbr. skýrslu lögreglu. Stefndu telja að slysið verði fyrst og fremst rakið til rangrar uppsetningar vinnupallsins, með vísan til sömu lögregluskýrslu,   enda   séu   engin   gögn   eða   upplýsingar   um   bilun   eða   galla   í umræddum vinnupalli.

Úrlausn málsins ræðst af því hvort tildrög slyssins hafi verið nægjanlega upplýst við skoðun lögreglu á slysadegi og þar með hvort rannsókn vinnueftirlitsins á vinnupallinum hefði varpað öðru ljósi á orsök þess ef hún hefði farið fram strax eftir slysið.

Í 1. mgr. 79. gr. laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum er kveðið á um skyldu vinnuveitanda að tilkynna slys til Vinnueftirlits ríkisins.   Eins   og   þar   kemur   fram   er   skylda   þessi   tengd   við   alvarleika   slyss. Samkvæmt ákvæðinu skal atvinnurekandi, m.a. tilkynna til Vinnueftirlits ríkisins öll slys þar sem starfsmaður verður óvinnufær í einn eða fleiri daga. Eins og áður segir var slysið tilkynnt Vinnueftirliti ríkisins samdægurs af lögreglu, en eftirlitið sá sér ekki kleift að rannsaka slysstað, þar sem enginn var um borð í skipinu við komu þess. Því liggja ekki fyrir aðrar upplýsingar um vinnupall þennan en þær sem fram koma í skýrslu lögreglu. Telja verður að með skoðun vinnueftirlitsins hefði mátt fá nánari upplýsingar um orsök slyssins og þar með hvað hafi orðið þess valdandi að skrúfa eða læsing losnaði af vinnupallinum, hvort ein eða tvær skástífur hafi fylgt pallinum, hvort tryggara væri að festa þverstífur á lárétt bönd eða lóðrétta stoð pallsins eða hvort e.t.v. aðrar ástæður kunni að hafa valdið slysinu. Þá hefur ekki verið upplýst nákvæmlega hvaða tegund vinnupalls var um að ræða, en uppsetning þeirra getur verið breytileg eftir tegundum.

Þorbjörn hf. var eigandi vinnupallsins sem stefnandi féll af og lagði honum til pallinn í því skyni að hann notaði hann við störf sín um borð í skipi félagsins. Telur dómurinn með vísan til fyrrgreinds ákvæðis að sú skylda hafi hvílt á Þorbirni hf. að tilkynna um slysið til vinnueftirlitsins og sjá til þess að vinnueftirlitinu væri gert kleift að skoða slysstað um borð í skipi félagsins.

Verður því að leggja til grundvallar í málinu að stefnandi hafi orðið fyrir líkamstjóni umrætt sinn sem rekja megi til bilunar í festingum pallsins eða öðrum búnaði hans eða skorts á leiðbeiningum við uppsetningu hans og frágang. Ber Þorbjörn hf. því skaðabótaábyrgð á tjóni sem stefnandi varð fyrir og rekja má til ófullnægjandi búnaðar pallsins. Í ljósi þessa telur dómurinn ósannað að stefnandi hafi viðhaft rangt verklag við uppsetningu vinnupallsins umræddan dag. Er því viðurkenndur réttur stefnanda til skaðabóta úr ábyrgðartryggingu Þorbjarnar hf. hjá stefnda, Tryggingamiðstöðinni hf. vegna vinnuslyss sem stefnandi varð fyrir þann 6. júní 2012. Samkvæmt framansögðu er varakröfu stefnda, Tryggingamiðstöðvarinnar hf. um að bótaréttur stefnanda verði aðeins viðurkenndur að hluta hafnað.

Sem fyrr segir var Þorbjörn hf. eigandi vinnupallsins sem stefnandi notaði um borð í skipi félagsins. Vélsmiðja Grindvíkur ehf. hafði því hvorki boðvald yfir stefnanda við það verk, auk þess sem Vélsmiðja Grindavíkur ehf. hafði engan umráðarétt yfir starfsaðstöðu stefnanda um borð í skipi Þorbjarnar hf. Með vísan til þeirrar meginreglu íslensks réttar og dómafordæma að vinnuveitandi beri ekki ábyrgð á öðrum vinnustað en sínum eigin, verður stefndi, Vátryggingafélag Íslands hf. því sýknaður af öllum kröfum stefnanda í máli þessu.

Stefnandi nýtur gjafsóknar í málinu. Með vísan til 1. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 verður stefnda, Tryggingamiðstöðinni hf. gert að greiða málskostnað sem rennur í ríkissjóð, samtals 1.830.000 krónur.

Málskostnaður á milli stefnanda og stefnda, Vátryggingafélags Íslands hf., fellur niður.

Gjafsóknarkostnaður stefnanda fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur greiðist úr ríkissjóði,   þar   með   talin   þóknun   lögmanns   hans,   Þorsteins   Einarssonar   hrl., 1.800.000 krónur.

Dóm   þennan   kveða   upp   Ragnheiður   Snorradóttir   héraðsdómari   og meðdómsmennirnir Ásmundur Ingvarsson byggingaverkfræðingur og Björn Marteinsson, byggingaverkfræðingur og arkitekt.

DÓMSORÐ:

Viðurkenndur   er   réttur   stefnanda,  Atla   Ísleifs   Ragnarssonar   til   skaðabóta   úr ábyrgðartryggingu Þorbjarnar hf. hjá Tryggingamiðstöðinni hf., vegna vinnuslyss sem stefnandi varð fyrir þann 6. júní 2012.

Stefndi, Vátryggingafélag Íslands hf., er sýknað af öllum kröfum stefnanda í máli þessu.

Stefndi, Tryggingamiðstöðin hf. greiði 1.830.000 krónur í málskostnað sem rennur í ríkissjóð.

Málskostnaður á milli stefnanda og stefnda, Vátryggingafélags Íslands hf., fellur niður.

Allur málskostnaður stefnanda fyrir héraðsdómi greiðist úr ríkissjóði, þar með talin þóknun lögmanns hans, Þorsteins Einarssonar hrl., 1.800.000 krónur.

Ragnheiður Snorradóttir (sign.) Ásmundur Ingvarsson (sign.) Björn Marteinsson (sign.)