Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-651/2013:

Ákæruvaldið

(Hulda Elsa Björgvinsdóttir saksóknari)

gegn

Daða Frey Kristjánssyni

Árið

2013, 8. október, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu

við Lækjartorg af Arnaldi Hjartarsyni, settum héraðsdómara, kveðinn upp dómur í

sakamálinu nr. 651/2013: Ákæruvaldið gegn Daða Frey Kristjánssyni, en málið var

dómtekið 30. september 2013.

Málið

er höfðað af ríkissaksóknara með ákæru dagsettri 2. júlí 2013 á hendur:

„Daða

Frey Kristjánssyni, kennitala 000000-0000, Hraunbæ 196, Reykjavík, fyrir

eftirgreind hegningarlagabrot framin í Reykjavík miðvikudaginn 9. janúar 2013:

(Sigmundur Hannesson hrl)

Fangelsi. Frelsissvipting. Kynferðisbrot. Miskabætur.

Ákærði dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar og til greiðslu miskabóta fyrir kynferðis- sifskapar- og frelsissviptingarbrot.

Árið 2013, 8. október, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Arnaldi Hjartarsyni, settum héraðsdómara, kveðinn upp dómur í sakamálinu nr. 651/2013: Ákæruvaldið gegn Daða Frey Kristjánssyni, en málið var dómtekið 30. september 2013.

Málið er höfðað af ríkissaksóknara með ákæru dagsettri 2. júlí 2013 á hendur: „Daða Frey Kristjánssyni, kennitala 000000-0000, Hraunbæ 196, Reykjavík, fyrir eftirgreind hegningarlagabrot framin í Reykjavík miðvikudaginn 9. janúar 2013:

  1. Sifskapar- og frelsissviptingarbrot með því að hafa, sagt telpunum A, kennitala 000000-0000, og B, kennitala 000000-0000, báðum sjö ára, sem voru í strætisvagnabiðskýli við [...] skammt frá heimilum þeirra, að fara inn í bifreið sína, ND-006, með einkanúmerið RFNECK, sem var lagt í bifreiðastæði við Brautarás 18, undir því yfirskini að ætla að fara með þær í verslunina Krónuna við Rofabæ 39 þar sem þær hefðu verið að stela úr versluninni, en ella hringja á lögreglu ef þær hlýddu ekki. Ákærði ók hins vegar með þær sem leið lá á malarveg sunnan við Morgunblaðshúsið, Hádegismóum 2, stöðvaði þar bifreiðina og braut gegn þeim eins og lýst er 2. ákærulið. Að því loknu ók ákærði þeim aftur í [...] skammt frá þeim stað þar sem hann neyddi þær upp í bifreiðina og hleypti þeim út.

    Telst þetta varða við 193. gr. og 1. mgr. 226. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 en til vara við 193. gr. og 225. gr. sömu laga.

  2. Kynferðisbrot með því að hafa, meðan á framangreindri frelsissviptingu stóð, sest í aftursæti bifreiðarinnar þar sem telpurnar sátu, spurt hvort þær ættu kærasta, kysst A á kinnina og snert maga og læri telpnanna utan klæða.

    Telst þetta varða við 2. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga.

    Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.“

    Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar er lög leyfa. Komi til ákvörðunar um frelsisskerðingu ákærða er þess krafist að frelsisskerðingin verði undir öllum kringumstæðum skilorðsbundin með vísan til 57. gr. almennra hegningarlaga og að gæsluvarðhaldsvist ákærða komi til frádráttar tildæmdri refsingu. Þá krefst verjandinn hæfilegrar þóknunar sér til handa.

    Af hálfu Guðrúnar Sesselju Arnardóttur hrl., fyrir hönd A, kt. 000000-0000, er þess krafist að ákærða verði gert að greiða A „miskabætur að fjárhæð kr. 800.000 auk vaxta skv. 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001, frá 9. janúar 2013 þar til mánuður er liðinn frá því ákærða var kynnt bótakrafa þessi, en dráttarvaxta skv. III. kafla vaxtalaga nr. 38/2001 frá þeim degi til greiðsludags, sbr. 9. gr. sömu laga“. Þá er krafist þóknunar réttargæslumanns að mati dómara eða síðar framlögðum reikningi, auk virðisaukaskatts á réttargæsluþóknun, en áskilinn er réttur til að leggja fram reikning eigi síðar en við aðalmeðferð máls, ef til hennar kemur.

    Af hálfu Margrétar Gunnlaugsdóttur hrl., fyrir hönd B, kt. 000000-0000, er þess krafist að ákærða verði gert að greiða B „miskabætur að fjárhæð kr. 900.000 auk vaxta skv. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá 10. janúar 2013 þar til mánuður er liðinn frá birtingu skaðabótakröfu þessarar en með dráttarvöxtum skv. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 38/2001 frá þeim degi til greiðsludags“. Einnig er þess krafist að ákærða verði gert að greiða málskostnað að mati dómsins eða samkvæmt síðar framlögðum málskostnaðarreikningi að viðbættum virðisaukaskatti á málflutningsþóknun.

    Ákærði hefur skýlaust játað brot sín og var því farið með mál þetta samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga auk þess sem réttargæslumenn höfðu reifað bótakröfur umbjóðenda sinna og verjandi rakið afstöðu ákærða í þeim efnum.

    Sannað er með skýlausri játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

    Ákærði er fæddur í ágúst árið 1982. Samkvæmt sakavottorði gekkst hann undir lögreglustjórasátt í mars árið 2013, þ.e. stuttu eftir að atvik þessa máls áttu sér stað, vegna brots gegn 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni. Að öðru leyti hefur ákærði ekki áður sætt refsingu. Við ákvörðun refsingar verður hliðsjón höfð af þessu. Til þess þykir einnig mega líta að ákærði gaf sig sjálfviljugur fram við lögreglu eftir að lýst var eftir honum og gekkst greiðlega við brotum sínum. Loks benda gögn málsins til þess að ákærði hafi að einhverju marki reynt að vinna bug á vanda sínum eftir að atvik málsins áttu sér stað. Á hinn bóginn verður ekki fram hjá því litið að hér var um alvarleg brot að ræða sem beindust gegn tveimur sjö ára gömlum stúlkum, sbr. 1. tölulið 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga.

    Refsing ákærða er ákvörðuð með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga og þykir hæfilega ákveðin þriggja ára fangelsi. Gæsluvarðhald, er ákærði sætti frá 15. janúar 2013 til 21. sama mánaðar, skal dragast frá refsingunni að fullri dagatölu.

    Ákærði hefur viðurkennt bótaskyldu í málinu en kveður fjárhæð bótakrafnanna of háa. Með brotum þeim sem ákærði hefur verið sakfelldur fyrir hefur hann bakað sér bótaábyrgð gagnvart brotaþolum samkvæmt 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Þykja miskabætur hæfilega ákveðnar 800.000 krónur til hvors brotaþola um sig, í báðum tilvikum auk vaxta sem í dómsorði greinir. Ákærða voru birtar bótakröfurnar við þingfestingu málsins 27. ágúst 2013 og miðast upphaf dráttarvaxta því við það tímamark þegar 30 dagar voru liðnir frá þeim degi.

    Þá ber að dæma ákærða til að greiða málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Sigmundar Hannessonar hrl., 301.200 krónur, og þóknun réttargæslumanna, Guðrúnar Sesselju Arnardóttur hrl., 172.563 krónur, Margrétar Gunnlaugdóttur hrl., 75.300 krónur, og Þórdísar Bjarnadóttur hrl., 106.675 krónur, en sú síðastnefnda var réttargæslumaður B fram til 4. september 2013 er Margrét Gunnlaugsdóttir hrl. tók við af henni. Við ákvörðun þóknunar lögmanna hefur verið tekið tillit til virðisaukaskatts. Ákærði greiði 228.000 krónur í annan sakarkostnað.

    Arnaldur Hjartarson, settur héraðsdómari, kveður upp dóm þennan.

DÓMSORÐ:

Ákærði, Daði Freyr Kristjánsson, sæti fangelsi í þrjú ár. Gæsluvarðhald, er ákærði sætti frá 15. janúar 2013 til 21. sama mánaðar, skal koma til frádráttar refsingunni að fullri dagatölu.

Ákærði greiði A 800.000 krónur auk vaxta samkvæmt 8. gr., sbr. 4. gr., laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 9. janúar 2013 til 26. september 2013, en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.

Ákærði greiði B 800.000 krónur auk vaxta samkvæmt 8. gr., sbr. 4. gr., laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 9. janúar 2013 til 26. september 2013, en með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.

Ákærði greiði málsvarnarþóknun skipaðs verjanda síns, Sigmundar Hannessonar hrl., 301.200 krónur, þóknun réttargæslumanna brotaþola, Guðrúnar Sesselju Arnardóttur hrl., 172.563 krónur, Margrétar Gunnlaugdóttur hrl., 75.300 krónur, og Þórdísar Bjarnadóttur hrl., 106.675 krónur, og greiði jafnframt 228.000 krónur í annan sakarkostnað Arnaldur Hjartarson