Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-451/2012:

Ákæruvaldið

(Anna Barbara Andradóttir aðstoðarsaksóknari)

gegn

Bergþóri Ásgeirssyni

Ár

2012, föstudaginn 21. september, er á dómþingi héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð

(Borgar Þór Einarsson hdl)

(Guðrún Sveinsdóttir lögmaður)

Ávana- og fíkniefni. Eignaspjöll. Fangelsi. Líkamsárás. Miskabætur. Ökuréttarsvipting. Upptaka.

Ákærði dæmdur til 15 mánaða fangelsisvistar fyrir líkamsárás og fyrir fíkniefnalaga- og umferðarlagabrot. Hann var einnig dæmdur til greiðslu miskabóta og til að sæta sviptingu ökuréttar.

Ár 2012, föstudaginn 21. september, er á dómþingi héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Pétri Guðgeirssyni, héraðsdómara,  kveðinn upp dómur í sakamálinu nr. 451/2012:  Ákæruvaldið (Guðrún Sveinsdóttir) gegn Bergþóri Ásgeirssyni (Borgar Þór Einarsson hdl.) sem tekið var til dóms hinn 13. september sl. að aflokinni aðalmeðferð.

Málið er höfðað með tveimur ákæruskjölum lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu á hendur ákærða, Bergþóri Ásgeirssyni, kt. 000000-0000, Skeiðakri 2, Garðabæ.

Í fyrsta lagi er málið höfðað með  ákæru, dagsettri 24. apríl sl., fyrir líkamsárás, með því að hafa laugardaginn 25. september 2010, í blokkaríbúð að Kötlufelli 3 í Reykjavík, ráðist á Hjördísi Fríðu Hjörvarsdóttur og slegið hana hnefahöggi í andlitið, með þeim afleiðingum að hún nefbrotnaði og hlaut mar og yfirborðsáverka á kinnbeini.

Telst þetta varða við 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 11. gr. laga nr. 20, 1981 og 111. gr. laga nr. 82, 1998.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Í málinu gerir Hjördís Fríða Hjörvarsdóttir þá kröfu að ákærði verði dæmdur til greiðslu miskabóta samtals að fjárhæð kr. 400.000,-með vöxtum skv. 8. gr. vaxtalaga nr. 38/2001 frá 25. september 2010, en síðan með dráttarvöxtum skv. 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. vaxtalaga, frá þeim degi er árásarmanni er kynnt krafa þessi til greiðsludags. Þá er þess jafnframt krafist að ákærða verði gert að greiða Hjördísi Fríðu málskostnað að skaðlausu, skv. síðar framlögðum málskostnaðarreikningi að viðbættum 25,5% virðisaukaskatti, fyrir að halda fram bótakröfu sinni í málinu.

Í öðru lagi er málið höfðað á hendur ákærða með ákæru dagsettri 15. maí sl.

I.

Fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa, í félagi við Óðin Örn Sigurðsson, miðvikudaginn 5. maí 2010, að Síðumúla 13 í Reykjavík, haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 254,45 g af kannabislaufum, 552,49 g af kannabisstönglum og 40 kannabisplöntur, og hafa um nokkurt skeið fram til þess dags ræktað greindar plöntur.

007-2010-28447

Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 4., 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

II.

Fyrir eftirtalin brot:

  1. 1. Umferðarlagabrot, með því að hafa laugardaginn 15. maí 2010, ekið bifreiðinni TP-864, sviptur ökurétti, undir áhrifum áfengis (vínandamagn í útöndunarlofti mældist 0,54 mg/l) og með 92 km hraða á klst., vestur Sæbraut að Höfðatúni í Reykjavík, þar sem leyfður hámarkshraði var 60 km á klst., uns lögregla stöðvaði aksturinn.

    007-2010-31186

    Telst þetta varða við 1., sbr. 3. mgr. 37. gr., 1. sbr. 2. mgr. 45. gr. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðalaga nr. 50/1987, sbr. 1. gr. laga nr. 48/1997.

  2. 2. Umferðarlagabrot og stórfelld eignaspjöll, með því að hafa aðfaranótt sunnudagsins 1. ágúst 2010, ekið bifreiðinni TP-864, sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna bifreiðinni örugglega vegna áhrifa fíkniefna (MDMA í blóði mældist 380 ng/ml.), frá Skeiðakri í Garðabæ, austur Suðurlandsveg og suður Landeyjahafnarveg (nr. 254) Rangárþingi eystra, og þar án nægjanlegrar aðgæslu eða varúðar, með þeim afleiðingum að hann ók bifreiðinni á og utan í alls níu bifreiðar (fastnr. RU-210, NZ-953, MK-640, MY-K59, SL-048, LZ-099, KY-376, OE-627 og VA-455) sem stóðu við Landeyjaveg (254), og olli þannig tjóni á bifreiðunum samtals að fjárhæð 3.585.253,- og jafnframt með því að hafa ekki sinnt lögboðnum skyldum sínum við umferðaróhapp, en ákærði tilkynnti hvorki tjónþola né lögreglu um tjónið.

    031-2010-2439

    Telst brot ákærða varða við 1. mgr. 4. gr., 2. mgr. 10. gr., 1., sbr. 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 með áorðnum breytingum og 2. mgr. 257. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

  3. 3. Fíkniefnalagabrot, með því að hafa sunnudaginn 9. janúar 2011, á skemmtistaðnum Vegamót við Vegamótastíg í Reykjavík, haft í vörslum sínum 0,37 g af maríhúana, sem ákærði framvísaði til lögreglu.

    007-2011-1724

    Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

  4. 4. Fíkniefnalagabrot, með því að hafa sunnudaginn 5. júní 2011, á veitingastaðnum TGI Fridays, í Smáralind við Hagasmára 1 í Kópavogi, haft í vörslum sínum 4,27 g af kókaíni, sem lögreglan fann og lagði hald á inn á salerni staðarins.

    007-2011-34298

    Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002 og auglýsingu nr. 232/2001.

  5. 5. Fíkniefnalagabrot, með því að hafa aðfararnótt sunnudagsins 22. janúar 2012, á skemmtistaðnum Austur, við Austurstræti 7 í Reykjavík, haft í vörslum sínum 0,31 g af amfetamíni, sem lögreglumenn fundu við leit á ákærða.

    007-2012-3720

    Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

    Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þess er jafnframt krafist að ákærða verði gert að sæta sviptingu ökuréttar skv. 101. og 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987, með áorðnum breytingum. Krafist er upptöku á 254,45 g af kannabislaufum, 552,49 g af kannabisstönglum, 40 kannabisplöntum,  0,31 g af amfetamíni, 0,37 g af maríhúana og 4,27 g af kókaíni, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001. Þá er krafist upptöku á 10 gróðurhúsalömpum, 3 loftdælum, 1 kolasíu, 9 vatnsdælum, 1 rafmagnstöflu og 1 raka- og hitamæli, samkvæmt 7. mgr. 5. gr. sömu laga, en munirnir voru notaðir til framleiðslu kannabisplantnanna og lagt var hald á þá í máli 007-2010-28447.

    Það athugast að þáttur Óðins Arnar Sigurðssonar var skilinn frá málinu og dæmdur sér hinn 8. júní 2012.

    Ákæra, dagsett 24. apríl 2012.

Málavextir

Miðvikudaginn 29. september 2010 kom á lögreglustöðina við Hverfisgötu í Reykjavík Hjördís Fríða Hjörvarsdóttir, kt. 000000-0000, og kærði yfir því að hinn 25. sama mánaðar hefði hún orðið fyrir líkamsárás í íbúð í Kötlufelli 3.  Hefði hún verið stödd þar í samkvæmi og hefði annar gestur slegið hana vinstra megin í andlitið svo að hún féll við.  Kvaðst hún hafa nefbrotnað við þetta og misst sjón tímabundið á vinstra auga.  Hjördís leitaði samdægurs með meiðsli sín til slysadeildar Landspítalans í Fossvogi.  Segir í staðfestu vottorði Harðar Ólafssonar læknis segir að við tölvusneiðmynd af höfði hafi komið í ljós nánast ótilfært brot í vinstri hluta nefbeins.  Þá hafi mjúkvefir þar verið mjög bólgnir og blætt hafði undir húð framan við vinstra kinnbein.

Ákærði var yfirheyrður hjá lögreglu 22. október 2010.  Kvaðst hann hafa verið mjög ölvaður í umrætt sinn þó en muna nokkuð vel eftir sér í samkvæminu í Kötlufelli ásamt þremur kunningjum sínum, Davíð, Ástþóri og Guðmundi.  Neitaði hann hafa slegið stúlku og hlyti einhver annar en hann að eiga þar hlut að máli. Hann kvaðst ekki muna eftir átökum í samkvæminu og kvaðst hafa yfirgefið það ásamt félögum sínum og þeir ekið á brott.

Aðalmeðferð málsins Ákærði segist ekki muna eftir neinu sem gerðist í samkvæminu.  Hann kveðst hafa verið mjög drukkinn.  Hann neitar því að hafa slegið Hjördísi Fríðu.

Hjördís Fríða Hjörvarsdóttir hefur skýrt frá því að hún hafi verið um stund í samkvæminu þegar ákærði kom þar og var hann kynntur fyrir þeim sem fyrir voru. Hafi hún ekki sagt annað við hann en að hann væri með „flottan“  hatt.  Kærasti hennar hafi svo komið í samkvæmið og þau tvö farið út á svalir en þar hafi einnig verið kunningi kærastans.  Hafi þau svo verið á leið úr samkvæminu en þá mætt ákærða í stofunni sem þá hafi sagt við hana að hún hefði verið að pirra hann allt kvöldið.  Hafi hún andmælt því.  Hafi hann þá endurtekið þessi orð en kærasti hennar komið á milli þeirra og beðið ákærða að láta hana í friði og kallað ákærða asna.  Hafi hún þá fengið hnefahögg í andlitið svo að hún féll við.  Við þetta hafi orðið uppnám og hafi ákærði og vinir hans hlaupið út og niður stigann.  Hafi þeir ekið á brott.  Hún hafi nefbrotnað og marist í andliti um augun og niður á kjálka. Kveðst hún hafa orðið fyrir andlegu áfalli við þetta og getur þess að hún hefði verið nýbúin að ná sér af áfalli eftir bílslys.  Hafi þetta orðið til þess að hún féll saman, einangraðist og fylltist kvíða, sem hún sé enn að kljást við.  Hún kveðst hafa verið búin að neyta áfengis þegar þetta gerðist en ekki verið drukkin.

Þorbjörn Eiríksson, kærasti Hjördísar Fríðu, hefur skýrt frá því hann hafi komið í samkvæmið að beiðni hennar eftir að hún hringdi þaðan og sagði að henni litist ekki á suma gestina.  Hann kveðst hafa verið allsgáður.  Hafi hann verið í rúman klukkutíma þarna og hafi hann að mestu verið úti á svölum að spjalla við fólk þar.  Þegar þau Hjördís Fríða hafi verið á leið út hafi ákærði, sem hafi virst vera í annarlegu ástandi, kvartað við Hjördísi Fríðu yfir því að hafa verið að skaprauna honum í samkvæminu en hún andmælt því.  Kveðst hann hafa sagt honum að þegja.  Kveðst hann hafa verið á milli hennar og ákærða og séð ákærða reiða til höggs.  Hafi honum fundist það beinast að sér og vikið sér undan en hnefahögg ákærða þá lent á henni.  Húsráðandinn hafi komið þarna að og ákærði og fleiri piltar þá hlaupið út.  Hafi mennirnir farið á brott á bíl.  Hann segir Hjördísi Fríðu hafa bólgnað upp og virst vera brotin.  Sé hún ekki búin að ná sér eftir höggið og finni fyrir eymslum og kulda í andlitinu.

Fyrir dóminn hafa komið þrjú önnur vitni sem voru stödd í samkvæminu. Ekkert þeirra sá atvikið og eru ekki efni til þess að rekja framburð þeirra hér.

Niðurstaða

Ákærði neitar sök og ber við minnisleysi.  Tvö vitni, Hjördís Fríða Hjörvarsdóttir og Þorbjörn Eiríksson, sem dómurinn metur áreiðanleg, hafa borið að ákærði hafi slegið Hjördísi Fríðu hnefahögg.  Verður að telja þetta sannað í málinu.  Þá telst sannað með vætti þeirra og staðfestu vottorði Harðar læknis Ólafssonar að konan hlaut þá áverka sem lýst er í ákærunni.  Hefur ákærði með þessu orðið sekur um brot gegn 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga og skiptir hér ekki máli þótt ákærði kunni að hafa ætlað öðrum höggið.

Ákæra, dagsett 15. maí 2012.

I.

Málavextir

Fyrir liggur að lögregla gerði húsleit í bílskúr í Síðumúla 13. hér í borg hinn 5. maí 2010 og fundust þá lifandi kannabisplöntur og plöntuhlutar auk búnaðar eins og tilgreint er í ákærunni.  Meðal annarra gagna eru í málinu leigusamningur ákærða við leigusalann og reikningur frá Húsasmiðjunni á fyrirtæki föður ákærða, Flotgólf ehf., fyrir úttekt byggingarefni 14. apríl 2010.  Í málinu er myndupptaka úr verslun Húsasmiðjunnar þann dag sem sýnir ákærða og Óðin Örn fara þar um í erindum sínum.

Ákærði var yfirheyrður hjá lögreglu 9. júní 2010 og var yfirheyrslan tekin upp í hljóð og mynd.  Í fyrstu neitaði ákærði því að eiga nokkurn þátt í fíkniefnabrotinu en að því kom að hann kannaðist við það að eiga hlut að máli. Kvaðst hann hafa komið í húsnæðið í nokkur skipti og hjálpað Óðni Erni að einhverju leyti.  Hefðu þeir verið að fylgjast með því hvort ekki væri kveikt á öllu og jafnframt sett næringarefni í vatnið.  Þá hefði hann hjálpað Óðni Erni að setja upp tjald sem plönturnar voru hafðar á bak við og ræktunin þá verið komin í gang. Hefðu plönturnar verið 30 til 40 talsins og þarna hefðu verið 4 eða 5 lampar.  Þá sagðist hann örugglega hafa getað fengið eitthvað fyrir hjálpina.  Kvaðst hann halda að hver planta hefði getað gefið af sér 30 – 40 grömm.  Hann kvaðst síðast hafa komið í skúrinn skömmu áður en lögreglan stöðvaði ræktunina.  Hann sagði þá Óðin Örn eiga ræktunina saman og hefðu þeir áreiðanlega skipt með sér afrakstrinum til helminga.  Hefði hluti af uppskerunni verið ætlaður til eigin neyslu en hluta hefði átt að selja.  Hann kvaðst halda að aldrei hefði komið til þess að leiga hefði verið greidd.  Þá kannaðist hann við að hafa skrifað undir leigusamninginn. Hann kvað Óðin Örn hafa verið með lykla að húsnæðinu, nema í þær 2 eða 3 vikur sem hann hefði verið með lyklana.

Óðinn Örn var einnig yfirheyrður hjá lögreglu þennan sama dag.  Gekkst hann við sínum þætti í málinu en sagði ákærða ekki hafa haft neitt með starfsemina að gera.  Hefði ákærði aðeins tekið að sér að skrifa undir leigusamninginn og eins hefði hann tekið að sér að greiða leiguna með peningum sem hann, Óðinn Örn, lét ákærða fá.

Aðalmeðferð málsins Ákærði neitar sök og segir vin sinn, Óðin Örn, hafa komið að máli við sig og beðið um að hann léði nafn sitt við leigusamning þar sem hann væri gjaldþrota. Kveðst ákærði hafa orðið við þessu.  Hann hafi ekki vitað hvað Óðinn Örn ætlaði sér með húsnæðið en getur þess að Óðinn Örn hafi verið atvinnulaus á þessum tíma og líklega ætlað að „búa sér til peninga“.  Kveðst hann einskis hafa spurt.  Hann kveðst ekki muna til þess að hafa greitt leiguna af þessu húsnæði.  Þó geti Óðinn Örn hafa látið sig hafa peninga til þess að greiða leiguna.  Um reikning frá Húsasmiðjunni á „Flotgólf“, fyrirtæki föður hans, sem fannst í húsnæðinu segir ákærði að hann hafi farið með Óðni Erni í verslunina og lánað honum úttekt þar, enda hafi Óðinn Örn verið félaus.  Hann kveðst ekki hafa vitað til hvers nota átti þessar vörur og Óðinn Örn ekki sagt það heldur.  Ekki muni hann hvaða vörur þetta voru.  Um það sem hann sagði í lögregluyfirheyrslu segir ákærði það að hann hafi verið vakinn af svefni í fangaklefa til skýrslugjafarinnar og geti hann ekki staðið við þann framburð.  Kveðst hann hafa játað brot sitt til þess að losna úr höndum lögreglunnar.  Hann kveðst ekki hafa verið með aðgang að húsnæðinu andstætt því sem hann sagði í lögregluyfirheyrslunni.  Hafi hann komið þar einu sinni eða tvisvar til þess að skoða húsnæðið sem þá hafi verið tómt.  Muni þetta hafa verið fljótlega eftir gerð leigusamnings.  Hann neitar því að hafa komið þar eftir að ræktunin hófst til þess að sinna plöntunum.  Þó hafi hann farið einu sinni inn þarna með Óðni Erni þegar hann fór til þess að vökva plöntunum og „gera eitthvað.“ Hann kveðst hafa verið í fíkniefnaneyslu á þessum tíma.  Ákærði ítrekar að hann hafi ekki átt að fá hluta af ágóðanum heldur hafi Óðinn Örn ætlað að greiða upp í skuld sína við ákærða.

Óðinn Örn Sigurðsson hefur skýrt frá því að hann hafi einn átt og rekið starfsemina í bílskúrnum.  Hafi hann einn staðið að þessu fyrirtæki og ágóðinn af því ekki verið ætlaður öðrum.  Hins vegar hafi hann ætlað sér að greiða skuld við ákærða með fé sem hann fengi út úr þessu.  Ákærði hafi ekki gert annað en að skrifa undir samninginn þar sem hann var á vanskilaskrá.  Þá hafi hann tekið að sér að greiða leiguna með peningum sem vitnið lét hann fá.  Loks hafi hann leyft að teknar væru út vörur í nafni fyrirtækis föður ákærða.  Hafi vörurnar verið ætlaðar í ræktunina.  Ákærði hafi í ekki vitað hvað til stóð og fram fór, enda einskis spurt. Hafi hann ekki vitað þarna fór fram fyrr en eftir að málið komst upp.  Hafi hann aðeins komið inn í ytra skilrúmið geti ekki hafa séð það sem var fyrir innan.

Bjarni Ólafur Magnússon lögreglumaður hefur skýrt frá því að mikill raki hafi verið í húsnæðinu þegar leitin var gerð.  Inn um glugga hafi mátt sjá dæmigerð ræktunarljós á bak við tjald sem skipti rýminu.

Stefán Sveinsson lögreglumaður hefur komið fyrir dóm og sagt að skýrslutakan af ákærða hafi verið með hefðbundnu sniði og ekkert óvenjulegt borið við í henni.  Ekki kveðst hann minnast þess að ákærði hafi verið illa fyrir kallaður þegar hann gaf skýrslu sína.

Niðurstaða

Ákærði neitar sök fyrir dómi og kveðst ekki hafa haft með ræktunina að gera.  Þá hefur hann skýrt aðkomu sína að leigumálanum og innkaupunum í Húsasmiðjunni.  Þá er þess að gæta að Óðinn Örn Sigurðsson hefur borið með ákærða og sagst einn hafa staðið að ræktuninni og ákærði ekki vitað hvað fram fór í bílskúrnum.  Dómurinn álítur framburð ákærða og Óðins Arnar um það að ákærði hafi ekki vitað af starfseminni frá upphafi vera ótrúlegan.  Ákærði játaði í yfirheyrslu hjá lögreglu að eiga í ræktuninni í félagi við Óðin Örn og að hafa átt að fá hlutdeild í hagnaðinum af henni.  Yfirheyrsla þessi var tekin upp í hljóð og mynd og verður ekki annað séð en að hún hafi farið óaðfinnanlega fram.  Skýring ákærða á breyttum framburði sínum í málinu er ótrúverðug.  Þykir mega leggja játningu ákærða hjá lögreglu til grundvallar í málinu og telja ákærða vera sekan um það athæfi sem hann er ákærður fyrir.  Hefur hann með því brotið gegn 2. gr., sbr. 4., 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni og 2. gr., sbr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni.

II.

Ákærði hefur skýlaust játað þau brot sem hann er saksóttur fyrir í II. kafla ákærunnar.  Hefur hann orðið sekur um athæfi það sem lýst er í ákærunni og réttilega er þar fært til refsiákvæða.

Viðurlög, skaðabætur og sakarkostnaður Ákærði á, samkvæmt sakavottorði, að baki nokkurn sakaferil, sem nær aftur til ársins 2004.  Hefur honum verið refsað tíu sinnum áður, aðallega fyrir umferðarlaga- og fíkniefnalagabrot.  Þá hefur honum einnig verið refsað fyrir þrjár líkamsárásir og fyrir frelsissviptingu.  Ákærði telst hafa rofið skilorð refsidóms frá 5. nóvember 2011.  Ber að dæma upp skilorðshluta þess dóms, 8 mánuði, og gera ákærða refsingu í einu lagi.  Refsing ákærða, sem er hegningarauki að hluta, þykir þannig hæfilega ákveðin fangelsi í 15 mánuði.

Dæma ber ákærða til þess að vera sviptur ökurétti í 3 mánuði frá dómsbirtingu að telja.

Dæma ber ákærða til þess að sæta upptöku á 806,94 g af kannabisplöntuhlutum og 40 heilum plöntum, 10 lömpum, 3 loftdælum, kolasíu, 9 vatnsdælum, rafmagnstöflu og raka- og hitamæli.

Að kröfu Hjördísar Fríðu Hjörvarsdóttur ber að dæma ákærða til þess að greiða henni 400.000 krónur í miskabætur ásamt almennum vöxtum samkvæmt 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá 25. september 2010 til 9. maí 2012 að telja en með dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla laganna frá dómsuppsögu til greiðsludags.

Dæma ber ákærða til þess að greiða verjanda sínum, Borgari Þór Einarssyni hrl, 450.000 krónur í málsvarnarlaun, sem dæmast með virðisaukaskatti.

Dæma ber ákærða til þess að greiða lögmanni brotaþola, Agnari Þór Guðmundssyni hdl., 150.000 krónur í þóknun fyrir að halda fram bótakröfunni í málinu.

Annan sakarkostnað, 530.377 krónur, ber að dæma ákærða til þess að greiða.

DÓMSORÐ:

Ákærði, Bergþór Ásgeirsson, sæti fangelsi í 15 mánuði.

Ákærði er sviptur ökurétti í 3 mánuði frá dómsbirtingu að telja.

Ákærði sæti upptöku á 806,94 g af kannabisplöntuhlutum og 40 heilum plöntum, 10 lömpum, 3 loftdælum, kolasíu, 9 vatnsdælum, rafmagnstöflu og raka- og hitamæli.

Ákærði greiði Hjördísi Fríðu Hjörvarsdóttur 400.000 krónur í miskabætur ásamt almennum vöxtum frá 25. september 2010 til 9. maí 2012, en með dráttarvöxtum frá dómsuppsögu til greiðsludags.

Ákærði greiði verjanda sínum, Borgari Þór Einarssyni hrl, 450.000 krónur í málsvarnarlaun.

Ákærði greiði lögmanni brotaþola, Agnari Þór  Guðmundssyni hdl., 150.000 krónur í þóknun.

Ákærði greiði 530.377 krónur í annan sakarkostnað.

Pétur Guðgeirsson