Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 12. desember 2013.
Mál nr. S-127/2012:
Ákæruvaldið
(Björn Þorvaldsson saksóknari)
gegn
Hreiðari Má Sigurðssyni,
(Hörður Felix Harðarson hrl)
Sigurði Einarssyni,
(Ólafur Eiríksson hrl)
Ólafi Ólafssyni og
(Þórólfur Jónsson hdl)
Magnúsi Guðmundssyni
(Karl Axelsson hrl)
Lykilorð
Útdráttur
Ákærðu dæmdir fyrir umboðssvik og markaðsmisnotkun.
Mál þetta, sem tekið var til dóms að lokinni aðalmeðferð 14. nóvember sl., er höfðað af Embætti sérstaks saksóknara með ákæru 16. febrúar 2012 á hendur Hreiðari Má Sigurðssyni, kt. 000000-0000, búsettum í Lúxemborg, Sigurði Einarssyni, kt. 000000-0000, búsettum í Bretlandi, Ólafi Ólafssyni, kt. 000000- 0000, búsettum í Bretlandi, og Magnúsi Guðmundssyni, kt. 000000-0000, búsettum í Lúxemborg, fyrir eftirtalin brot gegn almennum hegningarlögum og lögum um verðbréfaviðskipti:
I.
a) Á hendur ákærða Hreiðari Má fyrir umboðssvik, með því að hafa í september 2008 misnotað aðstöðu sína sem forstjóri Kaupþings banka hf., þegar hann fór út fyrir heimildir sínar til lánveitinga með því að láta bankann veita Brooks Trading Ltd., eignalausu félagi með takmarkaðri ábyrgð, skráðu á Tortola á Bresku Jómfrúaeyjum, í eigu Mink Trading Corp., félags í eigu Sheikh Mohamed bin Khalifa Al Thani, 50.000.000 Bandaríkjadala lán, í formi óundirritaðs peningamarkaðsútláns, án þess að fyrir lægi samþykki lánanefnda bankans og án þess að endurgreiðsla lánsins væri tryggð með nokkrum hætti og hafa þannig valdið bankanum verulegri fjártjónshættu. Var lánið veitt þann 19. september 2008 og lánsfjárhæðin sama dag lögð inn á reikning lántaka í Kaupthing Bank Luxembourg S.A., með milligöngu þess banka, félaginu til frjálsrar ráðstöfunar. Peningamarkaðsútlánið var á gjalddaga 30. september 2008 en var þá framlengt til 14. október 2008 og síðan til 18. nóvember 2008. Lánsfjárhæðin hefur síðan verið í vanskilum og verður að telja hana Kaupþingi banka hf. að fullu glataða.
b) Á hendur ákærða Magnúsi, framkvæmdastjóra Kaupthing Bank Luxembourg S.A., fyrir hlutdeild í umboðssvikum meðákærða Hreiðars Más, með því að hafa tekið þátt í undirbúningi og framkvæmd þeirra. Fólst hlutdeild hans í undirbúningnum í því að Magnús hafði bæði milligöngu um samningaviðræður við raunverulegan eiganda Brooks Trading Ltd., Sheikh Mohamed bin Khalifa Al Thani, og um að útvega félagið sem notað var af hálfu Mohamed í viðskiptunum. Hlutdeild Magnúsar í framkvæmd brotsins fólst í því að taka þátt í því með meðákærða Hreiðari Má að fyrirskipa starfsmönnum bankans að greiða út lánið. Hlaut honum að vera ljóst að Hreiðar Má brast heimild til lánveitingarinnar og að lánið var veitt án nokkurra ábyrgða eða trygginga.
II.
a) Á hendur ákærðu Hreiðari Má og Sigurði fyrir umboðssvik, með því að hafa misnotað aðstöðu sína, Hreiðar Már sem forstjóri Kaupþings banka hf. og Sigurður sem starfandi stjórnarformaður og formaður lánanefndar stjórnar bankans, þegar þeir fóru út fyrir heimildir sínar til lánveitinga í september 2008 með því að láta í sameiningu bankann veita Gerland Assets Ltd., kt. 000000-0000, eignalausu félagi með takmarkaðri ábyrgð, skráðu á Tortola á Bresku Jómfrúaeyjum, í eigu meðákærða Ólafs, sem átti 9,88% hlut í bankanum í gegnum félög sín, 12.863.497.675 króna lán, í formi óundirritaðs peningamarkaðsútláns, án þess að fyrir lægi samþykki lánanefnda bankans og án þess að endurgreiðsla lánsins væri tryggð með nokkrum hætti og hafa þannig valdið bankanum verulegri fjártjónshættu. Lánið var greitt út þann 29. september 2008 og lánsfjárhæðinni ráðstafað á reikning Gerland Assets Ltd. nr. 0358-26-005909 í Kaupþingi banka hf. og sama dag millifærð á reikning Choice Stay Ltd., kt. 000000-0000 nr. 0358-26- 009160 í bankanum og þaðan á vörslureikning nr. 0329-26-494601 í eigu Q Iceland Finance ehf. í bankanum. Lánsfjárhæðinni var varið til kaupa á hlutafé í Kaupþingi banka hf. eins og nánar er rakið í III. kafla ákæru. Allar millifærslurnar voru framkvæmdar 29. september 2008. Lánsfjárhæðin var ekki endurgreidd á gjalddaga hinn 31. október 2008. Lánsfjárhæðin hefur síðan verið í vanskilum og verður að telja hana Kaupþingi banka hf. að fullu glataða.
b) Á hendur ákærða Ólafi, aðallega fyrir hlutdeild í umboðssvikum meðákærðu Hreiðars Más og Sigurðar, en til vara fyrir hylmingu og peningaþvætti, með því að hafa, ásamt meðákærðu Hreiðari Má og Sigurði, lagt á ráðin um að umrætt lán yrði greitt úr sjóðum bankans, þrátt fyrir verulega fjártjónshættu fyrir bankann og láta félag sitt Gerland Assets Ltd. taka við lánsfjárhæðinni án nokkurra ábyrgða eða trygginga, til þess að henni yrði ráðstafað áfram til félagsins Q Iceland Finance ehf. til þeirra viðskipta sem lýst er í III. kafla ákæru.
III.
a) Á hendur ákærðu Hreiðari Má og Sigurði fyrir markaðsmisnotkun í viðskiptum með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. í september 2008 með því að láta ranglega líta svo út að þekktur fjárfestir frá Katar, Sheikh Mohamed bin Khalifa Al Thani, hefði lagt fé til kaupa á 5,01% hlutafjár í Kaupþingi banka hf. og borið af þeim fulla markaðsáhættu, þegar Q Iceland Finance ehf., dótturfélag í eigu eignarhaldsfélags hans Q Iceland Holding ehf., keypti umræddan hlut af bankanum, og leyna fullri fjármögnun bankans á hlutabréfakaupunum og aðkomu meðákærða Ólafs að þeim, en hann átti á þeim tíma 9,88% hlutafjár í bankanum í gegnum félög sín. Um var að ræða kaup á 37.100.000 hlutum í Kaupþingi banka hf. og var kaupverðið 690 krónur á hvern hlut og voru viðskiptin að fullu fjármögnuð af bankanum. Viðskiptunum var flaggað 22. september 2008 í Kauphöll Íslands (OMX Nordic Exchange á Íslandi) í samræmi við ákvæði 78. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007. Uppgjörsdagur viðskiptanna var 29. september 2008. Í þessum tilgangi var sett upp viðskiptaflétta sem var fólgin í því að Kaupþing banki hf. lánaði helming kaupverðsins, eða 12.863.497.675 krónur, félaginu Serval Trading Group Corp., kt. 000000-0000, eignalausu félagi með takmarkaðri ábyrgð, skráðu á Bresku Jómfrúaeyjum, í eigu Sheikh Mohamed bin Khalifa Al Thani sem gekkst í persónulega ábyrgð fyrir láninu. Kaupþing banki hf. lánaði hinn helming kaupverðsins, eða 12.863.497.675 krónur, félaginu Gerland Assets Ltd., kt. 000000-0000, eignalausu félagi með takmarkaðri ábyrgð, skráðu á Bresku Jómfrúaeyjum, í eigu meðákærða Ólafs, án þess að endurgreiðsla lánsins væri tryggð með nokkrum hætti og án samþykkis lánanefnda Kaupþings banka hf. Báðar lánsfjárhæðirnar voru greiddar á bankareikninga þessara félaga hjá Kaupþingi banka hf. en þaðan millifærðar á reikning Choice Stay Ltd. nr. 0358-26- 009160 í bankanum og þaðan á vörslureikning nr. 0329-26-494601 í eigu Q Iceland Finance ehf. í bankanum en allar millifærslurnar voru framkvæmdar 29. september 2008. Ákærðu Hreiðar Már og Sigurður tóku sameiginlega ákvörðun um hlutabréfaviðskiptin og fjármögnun þeirra og gaf ákærði Hreiðar Már starfsmönnum bankans fyrirmæli um framkvæmd þeirra. Var um að ræða viðskipti með stóran hlut í Kaupþingi banka hf. sem fólu í sér blekkingu og sýndarmennsku og voru líkleg til að gefa eftirspurn og verð hlutabréfa í bankanum misvísandi til kynna þar sem dulin var full fjármögnun bankans sjálfs á viðskiptunum og að auki aðkoma stórs hluthafa bankans, meðákærða Ólafs, að þeim og einnig dulið að helmingur markaðsáhættu vegna hlutabréfanna hvíldi á bankanum sjálfum eftir viðskiptin.
b) Á hendur ákærðu Magnúsi og Ólafi fyrir hlutdeild í markaðsmisnotkun meðákærðu Hreiðars Más og Sigurðar. Áttu þeir milligöngu um að koma viðskiptunum á og áttu samskipti við Sheikh Mohamed bin Khalifa Al Thani um þau. Þá tók ákærði Magnús þátt í undirbúningi og útfærslu viðskiptafléttunnar.
Ákærði Ólafur tók einnig þátt í undirbúningi viðskiptafléttunnar og í að gera hlutabréfaviðskiptin að veruleika með aðkomu að fjármögnun þeirra, eins og lýst er í II. kafla ákæru.
IV.
Á hendur ákærðu Hreiðari Má, Sigurði, Magnúsi og Ólafi fyrir markaðsmisnotkun, með því að hafa í september 2008, í fréttatilkynningu sem birt var á vef Kauphallar Íslands og viðtölum við fjölmiðla í kjölfarið, dreift fréttum og upplýsingum sem hver fyrir sig og í heild gáfu eða voru líklegar til að gefa misvísandi upplýsingar og vísbendingar um þau hlutabréfaviðskipti sem lýst er í III. kafla ákæru. Í upplýsingunum voru gefnar vísbendingar um að með sölunni á 5,01% hlutafjár Kaupþings banka hf. til félagsins Q Iceland Finance ehf. í september 2008 væri fjármagn að koma inn í bankann frá Katar en því leynt að Kaupþing banki hf. fjármagnaði að fullu umrædd hlutabréfakaup með lánveitingum. Jafnframt var gefið til kynna að Sheikh Mohamed bin Khalifa Al Thani stæði einn að viðskiptunum en aðkomu ákærða Ólafs að þeim leynt. Um var að ræða stór viðskipti með hlutafé bankans fyrir alls um 26 milljarða króna á tímum þar sem bankinn stóð höllum fæti og því afar mikilvægt að upplýst væri um hina óvenjulegu fjármögnun viðskiptanna og þá sem stóðu að viðskiptunum og fjármögnuninni með réttum og nákvæmum hætti. Þær upplýsingar sem ákærðu veittu voru misvísandi og gáfu einnig misvísandi vísbendingar um hlutabréfaviðskiptin og þýðingu þeirra fyrir Kaupþing banka hf. þar sem þær gáfu til kynna að bankinn nyti mikils trausts virts erlends fjárfestis sem væri tilbúinn að verja miklu fé til að fjárfesta í hlutabréfum hans. Upplýsingarnar voru til þess fallnar að hafa áhrif á ákvarðanir varðandi viðskipti með hlutabréf bankans. Þær misvísandi upplýsingar og vísbendingar, sem ákærðu veittu og fela í sér markaðsmisnotkun hver fyrir sig og í heild sinni, voru eftirfarandi:
a) Ákærðu Hreiðar Már, Sigurður, Magnús og Ólafur lögðu atbeina sinn að því að Kaupþing banki hf. birti svohljóðandi fréttatilkynningu vegna viðskiptanna á vef Kauphallarinnar kl. 6.56 að morgni 22. september 2008: „Q Iceland Finance ehf., dótturfélag í eigu Q Iceland Holding ehf., sem er eignarhaldsfélag hans hátignar Sheikh Mohamed bin Khalifa Al-Thani, hefur keypt 5,01% hlut í Kaupþingi banka hf. Q Iceland Finance keypti alls 37,1 milljón hluta á genginu 690 krónur á hlut og verður þar með þriðji stærsti hluthafi bankans. Hans hátign Sheikh Mohamed er í konungsfjölskyldunni sem verið hefur við völd í Qatar frá því á nítjándu öld. Hans hátign Sheikh Mohamed: „Við höfum fylgst náið með Kaupþingi í nokkurn tíma og teljum þetta góða fjárfestingu. Staða Kaupþings er sterk og við höfum trú á stefnu og stjórnendum bankans, enda hefur Kaupþing náð góðum árangri við þær erfiðu aðstæður sem nú eru á markaðnum og sýnt fram á getu til þess að breytast og laga sig að nýjum veruleika í bankastarfsemi. Við lítum á hlut okkar í Kaupþingi sem langtímafjárfestingu og hlökkum til að eiga góð samskipti við stjórnendur bankans.“ Sigurður Einarsson, stjórnarformaður: „Okkur er mikil ánægja að bjóða hans hátign Sheikh Mohamed bin Khalifa Al-Thani velkominn í hluthafahóp Kaupþings. Það hefur lengi verið stefna okkar að laða nýja fjárfesta að bankanum og því er ánægjulegt að sjá að við höfum nú náð að breikka hluthafahópinn enn frekar. Við hlökkum til að vinna með hans hátign Sheikh Mohamed í framtíðinni.“
b) Ummæli ákærða Hreiðars Más:
- Í viðtali í morgunfréttum Ríkisútvarpsins 22. september 2008 í kjölfar spurningar fréttamanns: „En útvíkkar þetta starfsemi bankans til nýrra landa?“ Ákærði Hreiðar Már: „Nei, við erum búin að vera með starfsemi núna í Katar í eitt ár og í Mið-Austurlöndum í rúmlega ár, bæði í Katar og Dubai og þetta er í sjálfu sér fyrsta beina fjárfestingin þeirra til okkar eftir að við hófum starfsemi þar.“ Fréttamaður: „Er þetta vísun á meira af því sama?“ Ákærði Hreiðar Már: „Það kemur okkur ekkert á óvart og vonandi munum við sjá fleiri fjárfesta koma til liðs við bankann.“
- Í viðtali í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins 22. september 2008: a. Ákærði Hreiðar Már: „Það er náttúrulega mikil auðsöfnun sem á sér stað í Mið-Austurlöndum í dag í kjölfar hás orkuverðs. Og þeir er hugsa til framtíðar og hvernig þeir ráðstafi þessum auð á sem bestan hátt og því það er ljóst að þessar auðlindir duga ekki til eilífðar þó að Katar sé reyndar í bestri stöðu allra ríkja í heiminum hvað það varðar. Svo það er þeirra markmið að ávaxta sitt pund vel, að fjárfesta til framtíðar.“ b. Fréttamaður: „Hreiðar Már kveðst vonast til þess að þessi kaup séu undanfari fleiri slíkra, enda þurfi bankinn á erlendri fjárfestingu að halda til frekari vaxtar. Þá segir hann stöðu bankans styrkjast á alþjóðlegum fjármálamörkuðum við þessi kaup.“ Ákærði Hreiðar Már: „Alveg klárlega og við höfum séð að þeir bankar sem hafa náð að sækja peninga, fjármuni til Asíu, Mið-Austurlanda, að þeir standa sterkar að vígi en margir aðrir. Við sjáum Katar fjárfesta með myndarlegum hætti í Barcleys nýlega fyrir u.þ.b. tveimur mánuðum síðan og við sjáum að Barcleys er að taka yfir Lehman Brothers í dag. Og ég er sannfærður um að Barcleys væri ekki í þessari stöðu og væri ekki að fara í þessa yfirtöku á Lehman Brothers ef þeir hefðu ekki fengið fjármuni frá Katar á sínum tíma.“
- Í viðtali í Markaðsfréttum Stöðvar 2, kvöldið 22. september 2008:
Ákærði Hreiðar Már: „Þetta hefur mikla þýðingu fyrir okkur, það er mjög mikilvægt í þessu umhverfi að fá fjársterka fjárfesta að bankanum.“
- Í viðtali í fréttum Sjónvarpsins kl. 19, 22. september 2008:
Ákærði Hreiðar Már: „Ég held þetta styrki bankann. Það er ljóst að það er óraunhæft fyrir okkur að sækja mikið meira fjármagn til íslenskra fjárfesta, bankinn er orðinn það stór og ef við ætlum að halda áfram að vaxa á alþjóðlegum markaði þá verðum við að ná í alþjóðlega fjárfesta.“
- Í viðtali í Morgunblaðinu 23. september 2008:
Ákærði Hreiðar Már: „Við teljum að þetta sé mikil traustsyfirlýsing fyrir félagið. Það er búið að fara í gegnum mikla úttekt og grandskoðun á rekstri bankans á undanförnum mánuðum og þessi fjárfesting er gerð í kjölfar þess.“
c) Ummæli ákærða Ólafs:
- Í viðtali í Morgunblaðinu 23. september 2008:
Ákærði Ólafur: „Þetta er mikil viðurkenning fyrir Kaupþing.“
- Í frétt í 24 stundum 23. september 2008: a. Ákærði Ólafur: „Ég er ekki í vafa um að þessi kaup munu skipta miklu fyrir Kaupþing. Bankar og fjármálafyrirtæki út um allan heim hafa legið utan í mönnum í Katar með það fyrir augum að fá þá inn sem hluthafa. Það gefur því góða mynd af styrk Kaupþings að Sheikh Mohamed skuli kaupa hlut í bankanum.“ b. „Ólafur segir mikilvægt að íslensk fyrirtæki geti sýnt að þau séu tilbúin að vinna með erlendum fjárfestum. „Það hefur tekist hjá Kaupþingi að fá góða erlenda fjárfesta inn í hópinn og það mun skipta sköpum í framtíðinni.““
d) Ummæli ákærða Sigurðar: Í viðtali í Viðskiptablaðinu 23. september 2008: „Við erum búin að vera með annan fótinn í Katar í töluverðan tíma og þekkjum þennan mann ágætlega og hans fólk. Þeir eru alltaf að leita að fjárfestingartækifærum enda hafa safnast saman mikil auðæfi þarna niður frá.“
Er háttsemi ákærða Hreiðars Más í I. og II. kafla ákæru og háttsemi ákærða Sigurðar í II. kafla ákæru talin varða við 249. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Er háttsemi ákærða Magnúsar í I. kafla ákæru talin varða við 249. gr., sbr. 1. mgr. 22. gr. laga nr. 19/1940.
Er háttsemi ákærða Ólafs í II. kafla ákæru talin aðallega varða við 249. gr., sbr. 1. mgr. 22. gr. laga nr. 19/1940, en til vara við 254. og 264. gr. sömu laga.
Er háttsemi ákærðu Hreiðars Más og Sigurðar í III. kafla ákæru talin varða við a-lið 1. tl. og 2. tl. 1. mgr. 117. gr., sbr. 146. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007.
Er háttsemi ákærðu Ólafs og Magnúsar í III. kafla ákæru talin varða við a- lið 1. tl. og 2. tl. 117. gr., sbr. 146. gr., sbr. 3. mgr. 147. gr., laga nr. 108/2007, sbr. 1. mgr. 22. gr. laga nr. 19/1940.
Er háttsemi allra ákærðu í IV. kafla ákæru talin varða við 3. tl. 1. mgr. 117. gr., sbr. 146. gr. laga nr. 108/2007.
Er þess krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Ákærðu krefjast sýknu og að sakarkostnaður, þ.m.t. málsvarnarlaun, verði greiddur úr ríkissjóði.
Með bréfi Fjármálaeftirlitsins 13. mars 2009 var beint til Embættis sérstaks saksóknara rannsókn Fjármálaeftirlitsins á kaupum Q Iceland Finance ehf. á hlutabréfum í Kaupþingi banka hf., vegna gruns um refsiverða háttsemi stjórnenda Kaupþings banka hf. Í bréfi Fjármálaeftirlitsins kemur fram að Fjármálaeftirlitinu hafi 9. desember 2008 borist bréf bankastjóra Seðlabanka Íslands vegna grunsamlegra fjármagnsflutninga Kaupþings banka hf. skömmu fyrir fall bankans 8. október 2008. Þá hafi Fjármálaeftirlitinu 9. janúar 2009 borist skýrsla frá óháðum sérfræðingum sem skilanefnd Kaupþings banka hf. hafi fengið til að kanna hvort vikið hafi verið frá lögum og reglum eða innri reglum bankans á tímabilinu 1. september 2008 til 21. október sama ár. Í skýrslunni hafi ítarlega verið fjallað um nefnd hlutabréfaviðskipti sem gefið hafi til kynna að nauðsynlegt væri að þau yrðu rannsökuð frekar. Í kjölfarið, eða 16. janúar 2009, hafi Fjármálaeftirlitið, á grundvelli 9. gr. laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi nr. 87/1998, skipað Árna Ármann Árnason héraðsdómslögmann sem sérfræðing, til að skoða kaup Q Iceland Finance ehf. á hlutabréfum í Kaupþingi banka hf. og viðskiptahætti Kaupþings banka hf. í aðdraganda og kjölfar umræddra viðskipta. Hafi sérfræðingurinn skilað álitsgerð sinni um viðskiptin 6. mars 2009. Í bréfi Fjármálaeftirlitsins kom fram að hugsanlega væru, að mati Fjármálaeftirlitsins, um að ræða tvö aðskilin mál. Annars vegar hugsanleg umboðssvik við lánveitingar Kaupþings banka hf. og hins vegar hugsanlega markaðsmisnotkun af hálfu bankans, þar sem viðskipti með hlutabréfin væru hluti af umfangsmeira máli.
Um atvik málsins kom fram í bréfi Fjármálaeftirlitsins að 22. september 2008 hafi Kaupþing banki hf. birt fréttatilkynningu þess efnis að Q Iceland Finance ehf., íslenskt félag í eigu Sheikh Mohamed Al Thani, hafi keypt 5,01% hlut í bankanum, það er 37.100.000 hluti á genginu 690 fyrir samtals 25.600.000.000 króna. Kaupin hafi verið fjármögnuð með lánum sem Kaupþing banki hf. hafi annars vegar veitt til félagsins Serval Trading Ltd., að fjárhæð 12.863.675 krónur, gegn sjálfskuldarábyrgð Sheikh Mohamed Al Thani, en hins vegar lán, án ábyrgðar, til félagsins Gerland Assets Ltd. Þessi lán hafi verið færð í gegnum Kýpur til Q Iceland Finance ehf. til að fjármagna hlutabréfakaupin, en gjalddagi á báðum þessum lánum hafi verið 31. október 2008. Þessu til viðbótar hafi félagið Brooks Trading Ltd., þann 19. september 2008, fengið lán frá Kaupþingi banka hf. að fjárhæð 50.000.000 Bandaríkjadala. Lánið hafi virst greitt sem ,,fyrirfram greiddur hagnaður“ af fyrirhuguðum afleiðuviðskiptum Brooks Trading Ltd. við Deutsche Bank, en um hafi verið að ræða viðskipti með svokölluð ,,Credit Link Notes“ eða CLN, á skuldatryggingarálag Kaupþings banka hf. Aldrei hafi orðið af þessum afleiðuviðskiptum, þannig að lánið hafi í raun verið veitt án nokkurra trygginga. Lánið til Serval Trading Group Corp hafi verið greitt upp fyrir gjalddaga með tveim greiðslum. Sú fyrri hafi farið fram 8. október 2008 með millifærslu fjárhæðar að upphæð 12.520.750.000 krónur frá félaginu Brooks Trading Ltd., en félagið hafi notað 50.000.000 Bandaríkjadala sem það hefði fengið lánaða frá Kaupþingi banka hf. til að kaupa krónur á genginu 250. Mótaðilinn í gjaldeyrisviðskiptunum hafi verið Kaupþing banki hf. Síðari greiðslan hafi farið fram 21. október 2008 þegar Ólafur Ólafsson hafi greitt 401.885.137 krónur af eigin reikningi inn á lánið. Lánin til Brooks Trading Ltd. og Gerland Assets Ltd. hefðu ekki fengist greidd og mætti telja víst að þau væru töpuð.
Í bréfi Fjármálaeftirlitsins er rakið að svo virðist sem lánveitingar Kaupþings banka hf. til félagana í eigu Sheikh Mohamed Al Thani og Ólafs Ólafssonar hafi brotið gegn verklagsreglum Kaupþings banka hf. og góðum viðskiptaháttum og venjum. Vegna þess um hve háar fjárhæðir hafi verið að ræða í umræddum lánveitingum hafi lánanefnd stjórnar Kaupþings banka hf. þurft að samþykkja lánveitingarnar fyrirfram. Samþykki lánanefndar hafi einnig þurft til að unnt væri að veita lán án trygginga. Lán til Serval Trading Group Corp. hafi verið tryggt með sjálfskuldarábyrgð Sheikh Mohamed. Lánið hafi verið kynnt fyrir lánanefnd stjórnar Kaupþings banka hf. sem lán vegna fjárfestinga í skuldatryggingum, en ekki hlutabréfum. Hafi lánið að öðru leyti virst hafa fengið eðlilega afgreiðslu. Lánanefnd stjórnar hafi aldrei veitt heimild fyrir lánveitingu til félagsins Gerland Assets Ltd., auk þess sem engar tryggingar hafi verið fyrir því. Lán til félagsins Brooks Trading Ltd. hafi verið veitt 19. september 2008, en ekki verið kynnt fyrir lánanefnd stjórnar fyrr en 24. september sama ár. Lánveitingin hafi verið samþykkt með tryggingum, en engin trygging í raun lögð fram. Lánið hafi síðan verið nýtt til að greiða niður lánið til Serval Trading Group Corp., þar sem Sheikh Mohamed hafi verið með persónulega ábyrgð. Kaupþing banki hf. hafi að öllum líkindum tapað að minnsta kosti 25.726.995.360 krónum á viðskiptunum, en sennilega meiru þar sem Kaupþing banki hf. hafi líklega selt hlutabréfin á lægra verði en bankinn hafi keypt þau á. Framangreind viðskipti kunni að teljast varða við 249. gr. laga nr. 19/1940 sem umboðssvik.
Umrædd hlutabréfaviðskipti veki einnig upp grun um hugsanlega markaðsmisnotkun af hálfu Kaupþings banka hf., sbr. 117. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007. Kaupþing banki hf. hafi tilkynnt um viðskiptin við Q Iceland Finance ehf. 22. september 2008 og viðskiptunum verið flaggað þann dag. Tilkynningin gefi til kynna að Sheikh Mohamed hafi verið eini kaupandinn og hvergi minnst á Ólaf Ólafsson. Þá hafi hvergi komið fram að viðskiptin hafi að öllu leyti verið fjármögnuð af Kaupþingi banka hf. Þetta gefi til kynna að KaupþingI banka hf. hafi verið mikið í mun að tilkynningin kæmi út sem fyrst og gæfi til kynna að staða bankans væri svo góð að hún laðaði að fjársterka erlenda fjárfesta. Stjórnendur bankans hafi haft beinna hagsmuna að gæta, enda allir stórir hluthafar í bankanum.
Með bréfi Fjármálaeftirlitsins til Embættis sérstaks saksóknara var álitsgerð Árna Ármanns Árnasonar héraðsdómslögmanns frá 6. mars 2009 varðandi sölu á hlutabréfum í Kaupþingi banka hf. til Q Iceland Finance ehf. Í álitsgerðinni kemur fram að hún sé byggð á gögnum sem lögmaðurinn hafi fengið frá Fjármálaeftirlitinu, skilanefnd Kaupþings banka hf. og PriceWaterHouseCoopers. Til viðbótar hafi verið ráðist í sjálfstæða gagnaöflun. Í niðurstöðu sinni kemst skýrsluhöfundur að því, að því er varði lánveitingar til félaganna Gerland Assets Ltd., Serval Trading Group Corp og Brooks Trading Ltd., að ljóst sé að Kaupþing banki hf. hafi tapað gríðarlegum fjárhæðum á lánveitingum til félaganna. Í Reglubók Kaupþings banka hf., sem beri heitið ,,Internal Control and Procedural Handbook“, komi skýrt fram að óheimilt sé að veita útlán án tryggingatöku nema með samþykki viðeigandi lánanefnda. Að því er varði lán til Brooks Trading Ltd. hafi lánið verið veitt áður en heimild lánanefndar stjórnar hafi legið fyrir og engar tryggingar teknar fyrir lánveitingunni. Í tilviki Gerland Assets Ltd. hafi verið um að ræða lán hárrar fjárhæðar án trygginga og án þess að lánveitingin hafi verið borin undir lánanefnd stjórnar. Væru þessir fjármunir tapaðir.
Samþykktir fyrir Kaupþing banka hf. eru frá 7. mars 2008, undirritaðar af Hreiðari Má Sigurðssyni forstjóra. Fram kemur í 9. gr. samþykkta að félaginu sé heimilt að kaupa eigin hluti, að því marki sem lög leyfi. Æðsta vald í málefnum félagsins séu í höndum lögmæltra hluthafafunda. Stjórn félagsins skuli skipuð 9 mönnum kjörnum á aðalfundi til eins árs í senn. Stjórn kjósi sér formann úr sínum hópi. Hafi stjórn æðsta vald í málefnum félagsins milli aðalfunda. Stjórn félagsins skuli ekki hafa afskipti af ákvörðunum félagsins um einstök viðskipti, nema þau séu veruleg miðað við stærð félagsins. Ráði stjórn félagsins framkvæmdastjóra. Framkvæmdastjóri og félagsstjórn fari sameiginlega með stjórn félagsins. Annist framkvæmdastjóri daglegan rekstur félagsins og skuli í þeim efnum fara eftir þeirri stefnu og fyrirmælum, sem félagsstjórn hafi ákveðið. Hinn daglegi rekstur taki ekki til ráðstafana og fyrirætlana sem séu óvenjulegar eða mikils háttar. Slíkar ráðstafanir geti framkvæmdastjóri aðeins gert samkvæmt sérstakri heimild frá félagsstjórn, nema ekki sé unnt að bíða ákvarðana félagsstjórnar án verulegs óhagræðis fyrir starfsemi félagsins. Í slíkum tilvikum skuli hann tafarlaust tilkynna félagsstjórn um ráðstöfunina. Fram kemur að þar sem ákvæði samþykktanna taki ekki til um hvernig með skuli farið skuli fara samkvæmt lögum nr. 161/2002, ákvæðum laga um hlutafélög og öðrum lagaákvæðum sem við geti átt. Í 2. mgr. 21. gr. samþykktanna er mælt fyrir um að stjórn Kaupþings banka hf. skuli setja reglur um verkaskiptingu stjórnar og framkvæmdastjóra þar sem fram komi mörk lánaheimilda framkvæmdastjóra, svo og reglur varðandi ákvarðanir um fjárfestingar.
Kaupþing banki hf. hefur gefið út handbók um innra eftirlit og verkferla, en hún ber heitið ,,Internal Control and Procedural Handbook“. Í upphafsákvæðum handbókarinnar kemur fram að reglur handbókarinnar skuli ávallt endurspegla nýjustu reglur og gildandi fyrirmæli innan Kaupþings banka hf. Gildi reglur handbókarinnar um einstaka deildir félagasamstæðu Kaupþings banka hf. sem tilgreindar eru og er Kaupthing Bank Luxembourg S.A. þar á meðal. Skuli reglurnar endurspegla lög og samninga í viðkomandi landi. Handbókina skuli gefa út í nóvember eða desember ár hvert. Uppfæra skuli bókina um leið og breytingar séu gerðar á innri reglum bankans. Breytingar að ráði og breytingar sem áhrif hafi á mörk lánveitinga skuli lagðar fyrir stjórn bankans til staðfestingar áður en þær öðlist gildi. Að öðru leyti sé framkvæmdastjórn bankans heimilt, á milli stjórnarfunda, að gera breytingar á bókinni. Handbókin skuli lögð fyrir stjórnarfund í september á hverju ári til samþykktar. Ákvæði kafla 3.3 í handbókinni varða útlána- og mótaðilaáhættu. Samkvæmt ákvæði 3.3.1 er útlánaáhætta skilgreind sem mögulegar vanefndir mótaðila á skuldbindingum sínum samkvæmt samningi. Skuli þær gilda um alla starfsemi bankans sem skapi útlánaáhættu fyrir bankann. Samkvæmt kafla 3.3.1.1 hafi bankinn komið upp stöðluðu mati á skuldurum sem magngreini áhættu á vanskilum skuldara. Í kafla 3.3.3 er mælt fyrir um lánveitingavald. Í kafla 3.3.3.1.2 er mælt fyrir um lánafyrirmæli fyrir lánanefnd stjórnar. Fram kemur að lánanefnd stjórnar skuli skipuð formanni stjórnar bankans, tveimur fulltrúum stjórnar bankans og forstjóra samstæðunnar. Formaður stjórnar bankans sé formaður lánanefndar stjórnar og forstjóri samstæðu varaformaður. Hinir tveir fulltrúar lánanefndar skuli kjörnir af stjórn bankans. Lánanefnd stjórnar hittist eftir þörfum, en yfirleitt mánaðarlega. Formaður lánanefndar boði fundi lánanefndar en varaformaður í hans fjarveru. Ákvörðunarvald lánanefndar stjórnar sé endanlegt. Nefndin taki ákvarðanir um útlán sem nemi eða séu hærri en 165.000.000 evra. Almennt þurfi gild útlánaákvörðun að vera undirrituð af formanni lánanefndar stjórnar og tveim öðrum lánanefndarmönnum. Í fjarveru formanns megi samþykkja lánaákvörðun með undirskrift þriggja fulltrúa lánanefndar stjórnar. Ef um brýna lánatillögu er að ræða sem ekki geti beðið næsta reglulega fundar lánanefndar megi taka gilda og framkvæmanlega lánaákvörðun, svo fremi hún sé undirrituð af aðilum sem myndu geta fullgilt hana á reglulegum fundi. Slík ákvörðun skuli kynnt, skoðuð og skráð í fundargerð næsta reglulega fundar lánanefndar. Nefndinni sé heimilt að fela einstökum starfsmönnum ákvörðunarvald undir sérstökum kringumstæðum. Fram kemur að áhætta gagnvart einstökum mótaðila eða hópi fjárhagslega tengdra aðila megi aldrei vera meiri en sem nemi 25% af eiginfjárgrunni bankans. Samkvæmt kafla 3.3.3.1.5 þurfi allar áhættuskuldbindingar gagnvart fjármálastofnunum samþykki til þess bærrar lánanefndar sem notist við ramma og mörk fyrir lán til almennra viðskiptamanna. Innlán og áhættuskuldbindingar vegna peningamarkaðsgerninga skuli fá sömu meðferð og venjuleg útlán en með tilvísunarmörkum á grundvelli mats á mótaðila sem byggt sé á innra matslíkani fyrir fjármálastofnanir. Ef innra mat sé ekki til staðar megi nota mat Moody´s, S&P eða Fitch til viðmiðunar. Samkvæmt ákvæði 3.3.8 megi engar greiðslur, að hluta eða fullu, vera heimilar áður en gild útlánaákvörðun hafi verið tekin. Öll lánsskjöl, sem þurfi fyrir lánaákvörðun, verði að liggja fyrir, réttilega undirrituð af lántaka, ábyrgðaraðilum og öðrum viðkomandi aðilum.
Brooks Trading Ltd. var stofnað á Bresku Jómfrúaeyjum 18. júlí 2008, og skráð til heimilis á Tortola á eyjunum. Við stofnun félagsins var eini hluthafi í félaginu Mink Trading Corp., einnig skráð til heimilis á Tortola á Bresku Jómfrúaeyjum. Choice Stay Ltd. er félag skráð á Kýpur. Eigendur þess félags eru Gerland Assets Ltd. að 42,85% hluta, Serval Trading Group Corp., að 42,85% hluta, og Jackal Finance Inc., að 13,30% hluta. Öll eru þessi félög skráð á sama heimili á Tortola á Bresku Jómfrúaeyjum. Samkvæmt yfirliti frá Kaupthing Bank Luxembourg A.S. er Ólafur Ólafsson skráður eigandi, eða ,,beneficial owner“ félagsins Gerland Assets Ltd. Þá er Sheikh Mohamed Al Thani skráður eigandi að félaginu Mink Trading Corp. Samkvæmt yfirliti úr Hlutafélagaskrá er Q Iceland Finance einkahlutafélag og samþykktir félagsins frá 19. september 2008. Stjórn félagsins skipa Telma Halldórsdóttir, sem stjórnarmaður, og Inga Lillý Brynjólfsdóttir, sem varamaður í stjórn. Firmað ritar stjórnarmaður og er Telma Halldórsdóttir skráður framkvæmdastjóri félagsins. Er tilgangur félagsins kaup og sala hlutabréfa og fleiri skyld atriði. Stofnandi félagsins er Kristinn Hallgrímsson. Samþykktir fyrir félagið Q Iceland Finance ehf. voru samþykktar á fundi félagsins 19. september 2008, en þær voru mótteknar hjá Fyrirtækjaskrá 22. september 2008. Er hlutafé félagsins skráð 500.000 krónur.
Hluthafasamþykkt fyrir Gerland Assets Ltd. er frá í september 2008, en félagið var stofnað á Tortola á Bresku Jómfrúaeyjum 18. júlí 2008. Fram kemur að eini hluthafi félagsins ætli að taka lán hjá Kaupþingi banka hf. að heildarupphæð allt að 150.000.000 evra. Þá ætli hluthafinn að kaupa 42,85% hlut í félagi sem nefnist Choice Stay Ltd. eða félagi sem stofnað sé samkvæmt lögum á Kýpur, samkvæmt þeim skilningi að Gerland Assets Ltd. muni eiga 42,85% hluta í Choice Stay Ltd. og að Jackal Finance Inc. muni eiga 14,30% hluta í Choice Stay Ltd. Þá gefi hluthafinn Choice Stay Ltd. skipun um að veita dótturfélagi að fullu í eigu Q Iceland Holding ehf., stofnað samkvæmt íslenskum lögum, lán að heildarfjárhæð 200.000.000 evra. Loks gefur eigandi stjórnanda Choice Stay Ltd. fyrirmæli um að undirrita skjöl í þeim tilgangi að miðla seinna láninu til dótturfélags að fullu í eigu Q Iceland Holding ehf. Í viðauka A við hluthafasamþykktina kemur fram að lánsform sé ótryggt peningamarkaðslán, allt að 150.000.000 evra, til þriggja mánaða. Láninu verði breytt í 3 ára langtímalán með sömu vöxtum, tryggt með veði sem Kaupthing Bank Luxembourg S.A. taki gilt, á því þriggja mánaða tímabili sem peningamarkaðslánið sé endurgreitt. Á stjórnarfundi í Gerland Assets Ltd. í september 2008 var samþykkt að taka að láni hjá Kaupþingi banka hf. lán, að fjárhæð allt að 150.000.000 evra, í samræmi við hluthafasamþykkt Gerland Assets Ltd. Undir stjórnarfundargerð rita fulltrúar félaga í stjórn Allied Directors Corp., Global Managers Inc. og International Officers Limited, þeir Andri Sigurðsson, Magnus Palmbeck og Gianni de Bortoli.
Á meðal rannsóknargagna málsins er óundirritað skjal sem stafar frá Kaupþingi banka hf. sem auðkennt er sem peningamarkaðsútlán nr. 398424/449463. Samkvæmt þessu skjali, sem dagsett er 19. september 2008, gera Brooks Trading Ltd. og Kaupþing banki hf. með sér samkomulag um að Kaupþing banki hf. láni til Brooks Trading Ltd. 50.000.000 Bandaríkjadala miðað við 19. september 2008 sem fyrsta vaxtadag. Er gjalddagi lánsins 30. september 2008. Ekki kemur fram inn á hvaða reikning lánið skuli greiða en greiðslur lántaka skuli berast inn á reikning nr. 0011-39-0325. Þá er meðal rannsóknargagna málsins millifærsluskjal á milli Kaupþings banka hf. og Kaupthing Bank Luxembourg S.A., sem dagsett er 19. september 2008, skráð miðað við kl. 13.39 þennan dag. Samkvæmt texta í skjalinu eru 50.000.000 Bandaríkjadala fjárhæð sem Kaupþing banki hf. á að greiða viðskiptavini Kaupthing Bank Luxembourg S.A. þennan sama dag. Muni Kaupthing Bank Luxembourg S.A. lána Kaupþingi banka hf. fjáræðina frá 19. september 2008 til 29. september sama ár. Sé um að ræða ,,netting against lending“. Þá er á meðal rannsóknargagna málsins beiðni félagsins Brooks Trading Ltd., frá 19. september 2008, sem beint er til Kaupþings banka hf., um útgreiðslu lánsins inn á reikning félagsins nr. 402296 í Kaupthing Bank Luxembourg S.A.
Óundirrituð fundargerð lánanefndar stjórnar Kaupþings banka hf. frá 24. september 2008 er á meðal gagna málsins. Fund lánanefndar eru viðstaddir stjórnarmennirnir Sigurður Einarsson, Hreiðar Már Sigurðsson, Bjarnfreður Ólafsson og Gunnar Páll Pálsson. Aðrir viðstaddir á fundi eru Bjarki H. Diego, framkvæmdastjóri útlána, og Guðrún Harðardóttir, ritari lánanefndar. Samkvæmt fundargerðinni ber eitt af fundarefnum yfirskriftina Sheikh Mohamed Al Thani. Í fundargerð kemur fram að fyrirtæki Sheikh Mohamed Al Thani séu á skrá yfir undanþágur hvað varði lánshæfismat. Beiðnin sé að heildarfjárhæð allt að 320.000.000 evra, í þrem mismunandi tillögum. Snúi hún í fyrsta lagi að Brooks Trading Ltd. sem sé félag með sérstakan tilgang með það að markmiði að fjárfesta í tvöfalt skuldsettu lánshæfistengdu skuldabréfi (CLN) sem gefið sé út af Deutsche Bank með tengingu við Kaupþing banka hf. Skuldabréfið sé með lokagjalddaga 20. september 2013. Grundvallarfjárhæð skuldabréfsins sé 125.000.000 evra. Að baki Brooks Trading Ltd. standi eitt eignarhaldsfélag, Mink Trading Corp. Sheikh Mohamed sé raunverulegur eigandi Mink Trading Corp. Deutsche Bank láni Brooks Trading Ltd. 125.000.000 evra og þær 130.000.000 evra sem þá vanti upp á komi frá Mink Trading Corp. Mink Trading Corp vilji fá að láni allt að 130.000.000 evra sem sé framlagt eigið fé fyrirtækisins í þessum viðskiptum, auk lántökugjalds og viðskiptakostnaðar. Brooks Trading Ltd. vilji þar að auki fá að láni 50.000.000 Bandaríkjadala sem sé hluti hagnaðar af viðskiptunum. Til tryggingar láni til Mink Trading Corp. taki bankinn veð í hlutafé í Mink Trading Corp. ásamt þeim hlutum sem Mink Trading Corp. eigi í Brooks Trading Ltd. Til tryggingar áni til Brooks Trading Ltd. taki bankinn veð í CLN-bréfinu. Í annan stað snúi lánsbeiðni Sheikh Mohamed að Serval Trading Group Corp., sem sé félag með sérstakan tilgang skráð á Bresku Jómfrúaeyjum sem ætli að fjárfesta í ákveðnum verðbréfum. Sheikh Mohamed sé raunverulegur eigandi félagsins. Hafi Sheikh Mohamed farið þess á leit að bankinn láni Serval Trading Group allt að 150.000.000 evra. Lagt sé til að bankinn bjóði félaginu lán, fyrst með skammtíma peningamarkaðsláni, sem síðar yrði endurfjármagnað, líklega í gegnum ,,KSF“. Persónuleg ábyrgð verði lögð fram sem trygging og að henni verði líklega skipt út gegn veði í ákveðnum eignum á síðara stigi. Í þriðja lagi hafi Sheikh Mohamed um þessar mundir engar útistandandi stöður gagnvart Kaupþingi banka hf. Bankinn vinni þó að því að veita honum 28.000.000 evra í lán í gegnum félag með sérstakan tilgang sem nefnist Q Iceland Holding ehf. til þess að fjárfesta í hlutabréfum í Alfesca. Til tryggingar fái bankinn veð í 850.000.000 hluta í Alfesca með núverandi 60% útlánahlutfalli og veðkalli við 80% útlánahlutfall. Þegar öll framangreind lán hafi verið greidd út verði heildarskuldbindingar Sheikh Mohammed um 350.000.000 evra. Fram kemur að lánanefnd hafi samþykkt beiðnina. Önnur óundirrituð fundargerð frá sama fundi liggur fyrir í málinu. Er hún samhljóða þeirri fyrri utan að í þeirri síðari hefur Steingrími P. Kárasyni, framkvæmdastjóra áhættustýringar, verið bætt við fundarmenn á lánanefndarfundinum. Þá hefur verið tekið út úr fundargerð varðandi lán til Brooks Trading Ltd. að Mink Trading Group Corp vilji fá að láni allt að 130.000.000 evra og að Brooks Trading Ltd. vilji að auki fá að láni 50.000.000 Bandaríkjadala sem sé hluti hagnaðarins af viðskiptum. Meðfylgjandi fundargerð lánanefndar stjórnar er lánsumsókn frá Sheikh Mohamed til lánanefndar stjórnar Kaupþings banka hf. að fjárhæð um 320.000.000 evra, tengd þrem félögum í eigu Sheikh Mohamed. Fram kemur að lánsumsóknin sé útbúin af Halldóri Bjarkari Lúðvígssyni viðskiptastjóra og er hún dagsett 19. september 2008. Í lánsumsókninni kemur meðal annars fram að til viðbótar láni að fjárhæð 125.000.000 evra til Brooks Trading Ltd. komi lán að fjárhæð 50.000.000 Bandaríkjadala sem sé hagnaður vegna viðskipta. Til tryggingar því láni taki bankinn veð í CLN-bréfum.
Samkvæmt óundirrituðu lánsskjali, dagsettu 29. september 2008, veitir Kaupþing banki hf. félaginu Gerland Assets Ltd. þann dag peningamarkaðsútlán nr. 398625/449668 að fjárhæð 12.863.497.675 krónur. Ekki kemur fram inn á hvaða reikning félagsins lánsfjárhæð skuli greidd, en endurgreiðsla lánsins fari inn á reikning nr. 0300-26-001010. Er gjalddagi lánsins 31. október 2008. Þá er með samsvarandi hætti í gögnum málsins óundirritað skjal sem stafar frá Kaupþingi banka hf. þar sem bankinn veitir Serval Trading Group Corp. lán, 29. september 2008, að fjárhæð 12.863.497.675 krónur. Reikningur sem lánsfjárhæð á að greiðast inn á er ótilgreindur, en endurgreiðsla skal berast inn á tilgreindan reikning í Sparisjóðabanka. Er gjalddagi lánsins 31. október 2008. Á meðal rannsóknargagna málsins er bréf félagsins Serval Trading Group Corp., dagsett 26. september 2008, þar sem félagið gefur Kaupþingi banka hf. þau greiðslufyrirmæli að færa út af reikningi félagsins í bankanum 100.000.000 evra inn á reikning félagsins Choice Stay Ltd. nr. 0358-38-718042 í Kaupþingi banka hf. Með samsvarandi hætti er bréf frá Gerland Assets Ltd., dagsett sama dag, þar sem Kaupþingi banka hf. eru gefin þau greiðslufyrirmæli að færa 100.000.000 evra af reikningi félagsins í Kaupþingi banka hf. inn á reikning félagsins Choice Stay Ltd. í bankanum. Samkvæmt kaupnótu útgefinni af Kaupþingi banka hf., miðað við viðskiptadag 26. september 2008, kaupir Q Iceland Finance ehf. 37.100.000 hluti í Kaupþingi banka hf. á genginu 690 fyrir samtals 25.726.995.350 krónur, að teknu tilliti til þóknunar og annars kostnaðar. Er uppgjörsdagur viðskipta skráður 29. september 2008.
Á meðal rannsóknargagna málsins eru tölvupóstssamskipti frá 15. september 2008 á milli Eggerts Hilmarssonar, framkvæmdastjóra lögfræðisviðs í Kaupthing Bank Luxembourg S.A., og Magnúsar Guðmundssonar, framkvæmdastjóra bankans. Ber tölvupósturinn yfirskriftina ,,Structure Proposal 16-09-08.ppt“. Ber tölvupósturinn með sér að viðhengi við póstinn hefur verið gagn sem borið hefur sömu yfirskrift og tölvupósturinn. Með póstinum var glærukynning merkt Kaupthing Bank Luxembourg S.A. á fjármögnunarverkefni sem Sheikh Mohamed Al Thani myndi fara í ásamt Ólafi Ólafssyni, og hugsanlega öðrum. Í almennum texta kynningarinnar kemur meðal annars fram að tilgangurinn sé að fjármagna sérstakt fjárfestingarfélag, sem aftur muni fjármagna fjárfestingarfélagið Q Iceland Holding ehf. Samhliða fjármögnun á hinu sérstaka fjárfestingarfélagi muni Q Iceland Holding ehf. stefna að því að kaupa 5,01% hlut í Kaupþingi banka hf. Sheikh Mohamed og Ólafur Ólafsson muni hvor um sig taka lán hjá Kaupþingi banka hf. að fjárhæð 150.000.000 evra, sem þeir muni hvor um sig veita veð sem tryggingu fyrir. Lánin muni renna inn í hið sérstaka fjárfestingarfélag sem stofnað verði og Sheikh Mohamed og Ólafur Ólafsson eiga að jöfnu. Fjárfestingarfélagið muni verja 200.000.000 evra til kaupa á 5,01% hlut í Kaupþingi banka hf. með lánveitingu í gegnum félagið Q Iceland Holding ehf. Lánskjör á því láni verði háð gengi hinna keyptu hlutabréfa í Kaupþingi banka hf. sem Q Iceland Holding ehf. kaupi. Í kynningunni er að finna myndræna uppsetningu viðskiptanna. Þar kemur fram að fjárfestingarfélagið Q Iceland Holding ehf. skuli að fullu vera í eigu Sheikh Mohamed. Samkvæmt gögnum málsins sendi Eggert Hilmarsson, framkvæmdastjóri lögfræðisviðs, tölvupóst 18. september 2008 til Sölva Sölvasonar, Löru Schweiger, starfsmanna lögfræðideildar Kaupthing Bank Luxembourg S.A., og Bjarnfreðs Ólafssonar lögmanns, með yfirskriftinni ,,Structure Proposal – II 16-09-08.ppt“. Í póstinum kemur fram að um sé að ræða uppfærða útgáfu af tillögu að strúktúr. Í almennum texta kynningarinnar hafa breytingar verið gerðar á orðalagi, án þess að efnisinnihald sæti breytingum, fyrir utan að bætt hefur verið við að tvö félög, í eigu Ólafs Ólafssonar annars vegar og Sheikh Mohamed hins vegar, stofni í sameiningu hið sérstaka fjárfestingarfélag, sem auk Ólafs og Sheikh Mohamed geti látið í té ábyrgðir fyrir lánum til félaga Ólafs og Sheikh Mohamed. Þá hefur því verið bætt við að hið sameiginlega fjárfestingarfélag Ólafs og Seikh Mohamed skuli staðsett á Kýpur. Áfram er í kynningunni gert ráð fyrir að kjör lána séu háð gengi hlutabréfa í Kaupþingi banka hf. Kaupþing banki hf. gaf út fréttatilkynningu 22. september 2008 í tilefni af kaupum á 5,01% hlut í bankanum. Í fréttatilkynningunni segir eftirfarandi: Q Iceland Finance ehf., dótturfélag í eigu Q Iceland Holding ehf., sem er eignarhaldsfélag hans hátignar Sheikh Mohamed bin Khalifa Al-Thani, hefur keypt 5,01% hlut í Kaupþingi banka hf. Q Iceland Finance keypti alls 37,1 milljón hluta á genginu 690 krónur á hlut og verður þar með þriðji stærsti hluthafi bankans. Hans hátign Sheikh Mohamed er í konungsfjölskyldunni sem verið hefur við völd í Katar frá því á nítjándu öld. Hans hátign Sheikh Mohamed: „Við höfum fylgst náið með Kaupþingi í nokkurn tíma og teljum þetta góða fjárfestingu. Staða Kaupþings er sterk og við höfum trú á stefnu og stjórnendum bankans, enda hefur Kaupþing náð góðum árangri við þær erfiðu aðstæður sem nú eru á markaðnum og sýnt fram á getu til þess að breytast og laga sig að nýjum veruleika í bankastarfsemi. Við lítum á hlut okkar í Kaupþingi sem langtímafjárfestingu og hlökkum til að eiga góð samskipti við stjórnendur bankans.“ Sigurður Einarsson, stjórnarformaður: „Okkur er mikil ánægja að bjóða hans hátign Sheikh Mohamed bin Khalifa Al-Thani velkominn í hluthafahóp Kaupþings. Það hefur lengi verið stefna okkar að laða nýja fjárfesta að bankanum og því er ánægjulegt að sjá að við höfum nú náð að breikka hluthafahópinn enn frekar. Við hlökkum til að vinna með hans hátign Sheikh Mohamed í framtíðinni.“ Hreiðar Már Sigurðsson, Sigurður Einarsson og Ólafur Ólafsson veittu viðtöl vegna þessara viðskipta sem birtust í fjölmiðlum 22. og 23. september 2008, en til þeirra er vitnað í ákæruskjali.
Í greinargerð rannsakenda í málinu kemur fram að við rannsókn málsins hafi verið teknar skýrslur af alls 40 vitnum. Flest hafi vitnin verið yfirheyrð á Íslandi, en 5 í Lúxemborg af lögreglu þar í landi í febrúar 2010. Við tvö vitni hafi verið rætt í óformlegri skýrslutöku í London í október 2009 og október 2011. Í þágu rannsóknarinnar hafi verið ráðist í umfangsmikla gagnaöflun. Hafi gagnaöflunin tengst rannsóknum annarra mála vegna starfsemi Kaupþings banka hf. Í þágu rannsóknar málsins hafi verið framkvæmdar húsleitir 22. maí 2009 í Reykjavík, Kópavogi og á Snæfellsnesi. Mikils magns skjala og rafrænna gagna hafi verið aflað í húsleitunum. Í þágu rannsóknar málsins hafi réttarbeiðnir verið lagðar fram við yfirvöld í Þýskalandi og Lúxemborg. Á grundvelli réttarbeiðnanna hafi húsleitir farið fram í Lúxemborg 9. til 12. febrúar 2010. Gögn úr þeim húsleitum hafi borist Embætti sérstaks saksóknara í febrúar 2011. Þá hafi í þágu rannsóknar málsins verið aflað heimilda dómstóla til símahlustana. Hreiðar Már Sigurðsson og Magnús Guðmundsson hafi sætt gæsluvarðhaldi vegna málsins, Hreiðar Már frá 7. til 17. maí 2010 og Magnús frá 7. til 14. maí 2010. Loks hafi Hreiðar Már og Magnús sætt farbanni vegna málsins, Hreiðar Már frá 17. til 28. maí 2010 og Magnús frá 14. til 28. maí 2010.
Ákærði, Hreiðar Már Sigurðsson, kvaðst hafa starfað sem forstjóri Kaupþings banka hf. í september 2008. Á sama tíma hafi hann verið stjórnarformaður lánanefndar samstæðu bankans og einn af þremur lánanefndarmönnum. Einnig hafi ákærði setið í lánanefnd stjórnar bankans og verið þar einn af fjórum lánanefndarmönnum. Þessu til viðbótar hafi ákærði setið í lánanefndum dótturbanka Kaupþings banka hf., þ.e. Kaupthing Singer og Friedlander, FIH, Kaupþings í Svíþjóð og Kaupthing Bank Luxembourg S.A. Kaupþing banki hf. hafi verið stór banki með um 3.000 starfsmenn. Hafi bankinn verið með starfsemi í 15 löndum. Hafi ákærði setið í stjórn dótturfélaga flestallra stærstu dótturfélaga bankans. Helstu verkefni ákærða hafi verið á samstæðugrundvelli innan bankans. Undir það síðasta hafi ákærði ekki sinnt daglegum störfum á Íslandi þar sem búið hafi verið að ráða forstjóra fyrir Kaupþing á Íslandi. Forstjóri hafi verið fyrir hverja einingu í viðkomandi landi. Kaupthing Bank Luxembourg S.A. hafi verið sjálfstætt starfandi fyrirtæki, 100% í eigu Kaupþings banka hf. á Íslandi. Ákærðu, Hreiðar Már og Sigurður, hafi setið í stjórn þess banka, sem tveir af fjórum stjórnarmönnum. Kaupthing Bank Luxembourg S.A. hafi fyrst og fremst boðið upp á alþjóðlega einkabankaþjónustu. Meðákærði, Magnús, sem verið hafi framkvæmdastjóri Kaupthing Bank Luxembourg S.A., hafi ekki haft heimildir til að skuldbinda Kaupþing banka hf. á Íslandi og ekki verið á sérstökum undirskriftarlista í bankanum yfir þá sem heimildir hefðu til þess. Meðákærði hafi að engu leyti komið að starfsemi Kaupþings banka hf. á Íslandi og því ekki haft neina eftirlitsskyldu vegna lánareglna Kaupþings banka hf. á Íslandi. Þannig hafi meðákærði ekki komið að ákvörðun um lánveitingu til félagsins Brooks Trading Ltd. í september 2008.
Töluverður aðdragandi hafi verið að viðskiptunum við Sheikh Mohamed Al Thani með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. Forsaga málsins hafi verið sú að stjórnendur Kaupþings banka hf. hafi allt frá árinu 2003 talið mikilvægt fyrir bankann að fá alþjóðlega fjárfesta sem hluthafa í bankanum til að styðja við vöxt og viðgang bankans. Þeim hafði orðið nokkuð ágengt á árunum 2003 til 2007 við að fá nýja erlenda hluthafa, m.a. sænska fjárfesta við skráningu bankans í Kauphöllinni í Svíþjóð og eins um það bil fjörtíu fjárfesta í hlutafjárútboði bankans haustið 2006 sem verið hafi í umsjón alþjóðlegu fjárfestingarbankanna Morgan Stanley og Citigroup. Á undanförnum áratug hafi orðið mikil auðsöfnun í ríkjunum við botni Miðjarðarhafs sem haft hafi gott aðgengi að olíuauðlindum. Af þeim sökum hafi margar alþjóðlegar fjármálastofnanir beint augum sínum að þessum ríkjum á árunum 2007 og 2008 þegar þær hófu leit að hugsanlegum fjárfestum til að styrkja stöðu sinna stofnana í þeim ólgusjó sem geisað hafi á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Kaupþing banki hf. hafi þar engin undantekning verið og raunar fyrr en flestir aðrir alþjóðlegir bankar byrjað að leita hófanna í Miðausturlöndum að fjárfestum. Fyrsti formlegi fundurinn vegna þessarar vinnu hafi verið í Washington haustið 2007 með fjármálaráðherra Katar sem ákærðu, Hreiðar Már og Sigurður, stjórnarformaður bankans, hafi átt. Á þeim fundi hafi fjármálaráðherra Katar lýst yfir áhuga á að skoða fjárfestingu á verulegum hlut í Kaupþingi banka hf. í gegnum Qatar National Bank. Viðræðurnar við Qatar National Bank í árslok 2007 og í ársbyrjun 2008 hafi ekki leitt til fjárfestinga í Kaupþingi banka hf. Þess í stað hafi farið af stað viðræður við Qatar Investment Authority, eða QIA sem væri í raun olíusjóður Katar, um að fjárfesta í Kaupþingi banka hf. Hafi stjórnendur Kaupþings banka hf. talið það enn betri kost fyrir Kaupþing banka hf. þar sem QIA væri einn stærsti fjárfestingarsjóður heims. Sumarið 2008, í Suður Frakklandi, hafi ákærði, ásamt meðákærðu, Sigurði og Ólafi, átt fund með Hamad bin Jassim bin Jaber Al Thani, forsætisráðherra Katar og stjórnarformanni QIA, á þeim tíma. Meðákærði, Ólafur, hafi verið lykilmaður í að setja upp þann fund og án tengsla hans við ráðamenn í Katar ólíklegt að stjórnendur Kaupþings banka hf. hefðu náð fundi með forsætisráðherranum. Á þeim fundi hafi verið ákveðið að stefna að kaupum QIA á 20% hlut í Kaupþingi banka hf. að undangenginni áreiðanleikakönnun. Í framhaldi af þessum fundi hafi KPMG í London verið fengið til að ljúka við áreiðanleikakönnun á Kaupþingi banka hf. Sú áreiðanleikakönnun, sem m.a. hafi falist í könnun á útlánasafni bankans og stærstu rekstrareiningum, hafi komið vel út fyrir Kaupþing banka hf. og engin atriði í skýrslu KPMG í London sem mælt hafi gegn kaupum QIA á hlutum í bankanum. Í framhaldi af vinnu KPMG í London hafi verið boðað til fundar í Doha, höfuðborg Katar, þar sem ákærði hafi eytt nokkrum dögum með ráðgjöfum QIA. Niðurstaða þeirra viðræðna hafi verið að ekki yrði gengið til viðskipta þar sem QIA hafi farið fram á háan afslátt frá gengi hlutabréfa Kaupþings banka hf. á markaði á þeim tíma. Er borið var undir ákærða hvort QIA hafi boðið 399 krónur á hlut kvað ákærði það geta staðist. Ekki væri í sjálfu sér óalgengt að gefinn væri afsláttur við kaup alþjóðlegra fjárfesta á nýútgefnu hlutafé í bönkum. QIA hafi hins vegar farið fram á það mikinn afslátt að stjórnendur bankans hafi talið ómögulegt að fá hluthafa til að samþykkja útgáfu nýs hlutafjár á því verði. Hafi því ekki orðið af viðskiptum. Meginröksemd QIA fyrir miklum afslætti hafi verið ósk um að viðskiptavild sem var á efnahagsreikningi Kaupþings banka hf., vegna kaupa á Singer og Friedlander, og FIH bankans, drægist frá virði bankans. Sheikh Mohamed Al Thani, bróðir emírsins í Katar og fyrrum fjármálaráðherra landsins, og ráðgjafar hans, hefðu fylgst með viðræðum bankans og QIA í gegnum tengsl við meðákærða, Ólaf.
Sumarið 2008 hafi farið af stað vinna að stofnun sameiginlegs fjárfestingarfélags meðákærða, Ólafs, og Sheikh Mohamed Al Thani. Kaupþing banki hf. hafi átt að koma að uppsetningu fjárfestingarfélagsins sem fjármögnunaraðili og eins sem ráðgjafi við hugsanlegar fjárfestingar. Ætlunin hafi verið að stofna fjárfestingarfélag sem myndi fjárfesta fyrir um 350.000.000 evra. Hugmyndin hafi verið sú að Sheikh Mohamed legði fyrst í stað fram sjálfskuldarábyrgð að fjárhæð 150.000.000 evra til tryggingar vegna fjármögnunar Kaupþings banka hf. Ráðgjafi Sheikh Mohamed, Sheikh Sultan, hafi að sama skapi ætlað að leggja fram sjálfskuldarábyrgð að fjárhæð 50.000.000 evra. Þessum sjálfskuldarábyrgðum yrði síðar skipt út fyrir traust veð. Þessar fyrirhuguðu fjárfestingar hafi verið án nokkurra tengsla við hlutabréfaviðskipti sem síðar hafi orðið, enda þau ekki komið til tals gagnvart Sheikh Mohamed á þessum tímapunkti. Í framhaldi af þessari vinnu við uppsetningu á fjárfestingarfélaginu og í ljósi þess að ekki varð af kaupum QIA á 20% hlut í Kaupþingi banka hf., hafi ákærði leitað til meðákærða, Ólafs, og spurt hvort hann teldi að Sheikh Mohamed hefði áhuga á að koma sjálfur að fjárfestingu á hlutabréfum í Kaupþingi banka hf. Svo hafi farið að samkomulag hafi náðst á milli Kaupþings banka hf. og Sheikh Mohamed í september 2008 um að fjárfestingarfélag í eigu Sheikh Mohamed myndi kaupa 5,01% hlut í bankanum. Kaupin yrðu fjármögnuð að fullu af Kaupþingi banka hf. en Sheikh Mohamed kæmi með tryggingu fyrir 50% af kaupverðinu, fyrst í formi sjálfskuldarábyrgðar sem fljótlega yrði breytt í tryggingu í fasteignum og löndum í hans eigu. Kaupþing banki hf. myndi fjármagna kaup á svokölluðum ,,credit link notes“ eða CLN-bréfum, en um hafi verið að ræða skuldabréf útgefin af Deutsche Bank þar sem vextir og áhætta bréfanna fylgdi skuldaálagi og greiðsluhæfi Kaupþings banka hf. Í þriðja lagi myndi Kaupþing banki hf. lána fjárfestingarfélagi í eigu Sheikh Mohamed, 50.000.000 Bandaríkjadala. Þeir fjármunir skyldu notaðir til fjárfestinga og til tryggingar kæmu einnig CLN-skuldabréf útgefin af Deutsche Bank. Áfram hafi verið ætlunin að vinna að stofnun fjárfestingarsjóðs sem yrði í eigu þriggja einstaklinga, Sheikh Mohamed, Sheikh Sultan og meðákærða, Ólafs. Af þeim sökum hafi sjálfskuldarábyrgð Sheikh Mohamed ekki verið upp á 90.000.000 evra, sem hafi verið helmingur kaupverðs hlutabréfanna, heldur 150.000.000 evra. Af sömu ástæðu hafi Sheikh Sultan einnig undirritað sjálfskuldarábyrgð að fjárhæð 50.000.000 evra, en hvorki hann né meðákærði, Ólafur, hafi átt neina hlutdeild í hlutabréfakaupunum. Þrátt fyrir að hlutabréfakaup Sheikh Mohamed hafi að fullu verið fjármögnuð af Kaupþingi banka hf. hafi ákærði talið að um mjög góð viðskipti fyrir bankann væri að ræða. Ástæðurnar hafi verið nokkrar. Í fyrsta lagi hafi Katar ríki verið eitt auðugasta ríki heims og fyrirséð að sú auðsöfnun myndi halda áfram og það að fá kjölfestufjárfesta frá Katar gæti veitt Kaupþingi banka hf. aðgang að mörgum viðskiptatækifærum. Í öðru lagi hafi verið stöðugt innstreymi á innlánsreikninga bankans á öllum mörkuðum í Evrópu og september 2008 verið metmánuður, með yfir 800.000.000 evra í innstreymi. Bankinn hafi ekki talið sig í þörf fyrir lausafé þar sem Edge reikningarnir svonefndu myndu duga til að gjörbreyta fjármögnun bankans. Að fá inn fjársterkan aðila sem hluthafa hafi hins vegar skipt miklu máli. Í þriðja lagi hafi kaupin verið hugsuð sem fyrsta skref í mun meiri viðskiptum við Sheikh Mohamed á vegum einkabanka- og fjárfestingarbankahluta Kaupþings banka hf. sem myndi skila sér í tekjum af vöxtum vegna lánveitinga og þóknunum af eignastýringu og fjárfestingarverkefnum. Í fjórða lagi hafi Kaupþing banki hf. ekki verið eini bankinn í Evrópu sem metið hafi það svo að það væri gott að fá fjárfesta frá Katar, en fjárfestar frá Katar hefðu fjárfest í þremur bönkum í Evrópu haustið 2008. Um hafi verið að ræða Kaupþing banka hf., og tvo af stærstu bönkum Evrópu, þ.e. Credit Suisse og Barclays.
Þegar stjórnendur Kaupþings banka hf. hafi talið að viðskiptin væru í meginatriðum samþykkt hafi verið ákveðið að senda mann frá Kaupþingi banka hf. til Doha í Katar og setjast niður með Sheikh Mohamed. Hafi ákærði farið fram á það við meðákærða, Magnús, þáverandi framkvæmdastjóra Kaupthing Bank Luxembourg S.A., að fara til Katar þar sem ákærði hafði séð fyrir sér að Kaupthing Bank Luxembourg S.A. myndi sjá um rekstur fjárfestingarfyrirtækja sem sett yrðu upp og mikið viðskiptatækifæri í því fólgið fyrir Kaupthing Bank Luxembourg S.A. að fá meðlimi konungsfjölskyldunnar í Katar í viðskipti. Á þessum tímapunkti hafi verið komin nokkuð endanleg mynd á viðskipti við Sheikh Mohamed. Hafi viðskiptin verið komin á nokkurn rekspöl er meðákærða, Magnúsi, hafi verð kynnt þau. Meðákærði, Magnús, hafi ekki tekið þátt í eiginlegum samningaviðræðum við Sheikh Mohamed. Meðákærði, Ólafur, hafi sennilega farið í þessa ferð þar sem hann hafi komið á tengslum við Sheikh Mohamed, auk þess sem þeir hafi þá verið að stofna sameiginlegan fjárfestingarsjóð. Ákærði kvaðst hafa talið að Sheikh Mohamed hafi á þessum tíma vitað um aðkomu meðákærða, Ólafs, að þessum kaupum. Miðað við gögn málsins hafi Sheikh Mohamed borið að hann hafi ekki vitað um aðkomu meðákærða, sem væri sérkennilegt þar sem hann hafi vitað um sameiginlegt fjárfestingarfélag þeirra. Meðákærði, Ólafur, hafi komið að viðskiptunum á fyrstu stigum og komið boðum aðallega í gegnum Sheikh Sultan og lögmann hans, Simon Southall. Meðákærði, Ólafur, hafi hins vegar ekki komið að frágangi viðskiptanna. Eftir fund meðákærðu, Magnúsar og Ólafs, og Sheikh Mohamed 16. september 2008 hafi ákærði fengið símtal frá meðákærða, Magnúsi, þar sem meðákærði hafi staðfest að Sheikh Mohamed væri samþykkur viðskiptunum og vildi ganga til þeirra eins og rætt hafi verið um við ráðgjafa hans. Hafi ákærði glaðst mjög yfir ákvörðun Sheikh Mohamed og talið hana afskaplega góða fyrir Kaupþing banka hf. á tímum þar sem mikið fárvirði hafi geisað á fjármálamörkuðum í kjölfar falls alþjóðlegra banka og tryggingafélaga. Ákærði hafi í kjölfarið tekið viðskiptin áfram. Aðkoma ákærða að þessum viðskiptum hafi þó fyrst og fremst snúist um stóru myndina, það er að segja að ná samkomulagi við ráðgjafa Sheikh Mohamed og koma málinu í réttan farveg innan bankans. Gerð kynninga fyrir lánanefnd, gerð lánssamninga, fyrirmæli um útgreiðslu lána og fleiri atriði sem væru nauðsynleg í viðskiptum af þessu tagi, hafi ákærði ekki komið að.
Þann 18. september 2008 hafi ákærði leitt málið í þann farveg sem hann hefði talið réttan innan Kaupþings banka hf. og í samræmi við vinnuferla og hvernig ætíð hafi verið staðið að sambærilegum málum. Samkvæmt gögnum málsins hafi verið haldinn símafundur þann dag með tveimur viðskiptastjórum, þeim Halldóri Bjarkari Lúðvígssyni og Guðmundi Þór Gunnarssyni, ásamt Bjarka H. Diego, framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs. Bjarki hafi verið yfirmaður viðskiptastjóranna beggja. Bjarki hafi sennilega setið fundinn að hluta. Verið geti að meðákærði, Magnús, hafi einnig tekið þátt í fundinum. Ákærði hafi sjálfur verið staddur á skrifstofu sinni í bankanum í London. Fyrirmælin sem ákærði hafi gefið á fundinum hafi verið tiltölulega einföld varðandi lánveitingar. Í fyrsta lagi að lána skyldi 100% til kaupa á 5,01% hlut í bankanum. Lánin færu í gegnum tvö félög. Annars vegar félag í eigu Sheikh Mohamed og hins vegar í gegnum félag í eigu meðákærða, Ólafs. Nöfn félaganna hafi ákærði ekki þekkt á þessum tíma. Í öðru lagi að lána skyldi fjárfestingarfélagi Sheikh Mohamed til kaupa á skuldabréfum útgefnum af Deutsche Bank sem væri tengt skuldatryggingarálagi bankans, allt að 130.000.000 evra. Í þriðja lagi að lána skyldi 50.000.000 Bandaríkjadala til nýstofnaðs félags Sheikh Mohamed, Brooks Trading Ltd., sem myndi fara í fjárfestingar á vegum félagsins og tryggingar fyrir því láni yrðu eignir félagsins og skuldabréf útgefið af Deutsche Bank sem væri tengt skuldatryggingarálagi Kaupþings banka hf. Félög sem stofnuð yrðu í tengslum við fyrirhugaðan fjárfestingarsjóð yrðu notuð við fjármögnunina. Öryggi yrði fyrir bankann fólgið í því að starfsmenn Kaupthing Bank Luxembourg S.A. yrðu í stjórnum félaganna og myndu þannig tryggja að félögin færu ekki gegn hagsmunum bankans. Í svonefndum opnunarskjölum þessara félaga hjá bankanum kæmi fram að allar eigur félaganna væru veðsettar bankanum. Aðrar leiðir hefðu verið mögulegar en þetta verið einfalt, án aukinnar áhættu fyrir bankann, auk þess sem með þessari framkvæmd hefði það náðst fram að sjálfskuldarábyrgð Sheikh Mohamed tæki einungis til helmings kaupverðsins, líkt og samið hefði verið um. Þau félög sem lánað hafi verið til hafi aldrei átt að eiga neitt tilkall til hlutabréfanna. Þau hafi einungis verið milliliður við fjármögnunina. Afskiptum ákærða af þessu máli hafi í reynd lokið á þessum fundi, fyrir utan að ákærði hafi setið fund lánanefndar stjórnar 24. september 2008 sem einn fjögurra lánanefndarmeðlima þar sem samþykktar hafi verið lánveitingarnar vegna viðskipta Sheikh Mohamed. Að auki hafi ákærði komið beint að málinu í tengslum við samskipti við fjölmiðla eftir að viðskiptin hefðu verið tilkynnt.
Ákærði hafi litið svo á að það væri viðskiptastjórans, Halldórs Bjarkar Lúðvígssonar, að taka málið áfram, en það hafi verið hlutverk viðskiptastjóra í samræmi við skilgreind ferli innan bankans. Hafi ákærði ekki gefið Halldóri Bjarkari eða öðrum fyrirmæli um hvaða lánsform skyldi nota varðandi lánveitinguna. Ekki hafi ákærði verið í sambandi við viðskiptastjórana Halldór Bjarkar eða Guðmund í tengslum við framkvæmd lánveitinga tengda hlutabréfakaupunum, fyrir utan, eins og áður segir, að taka þátt í lánanefndarfundi stjórnar 24. september 2008. Ákærði kvaðst ekki þora að fullyrða hversu nákvæmlega hann hafi lýst strúktúr viðskiptanna á símafundinum 18. september 2008, en farið hafi verið yfir stóru myndina. Ákærði hafi ekki gefið sérstök fyrirmæli um einstök atriði, eins og að greiða út svokölluð peningamarkaðslán, svo sem gert hafi verið. Legið hafi fyrir að engir fjármunir myndu í reynd fara út úr bankanum. Um hafi verið að ræða færslur milli reikninga innan bankans. Það sem átt hafi sér stað hafi verið að samtímis því að bankinn hafi afhent hlutabréf í Kaupþingi banka hf., sem hann hafi sjálfur átt, hafi hann fengið í staðinn tvo lánssamninga. Bankinn hafi þannig afhent hlutabréf að verðmæti 25.000.000.000 króna og fengið á móti tvo lánssamninga hvorn að verðmæti 12.500.000.000 króna. Keyrðar hafi verið færslur inn og út af bankareikningum þessara félaga. Engir fjármunir hafi hins vegar farið út til félaganna. Félögin hafi sjálf ekki getað gert neitt með fjármunina. Meðákærði, Sigurður, hafi verið upplýstur um lánveitingar vegna hlutabréfakaupanna og verið þeim samþykkur. Hafi meðákærði meðal annars vitað um lánveitinguna til félagsins Brooks Trading Ltd. að fjárhæð 50.000.000 Bandaríkjadala. Meðákærði hafi setið í lánanefnd stjórnar, þar sem lánveitingin hafi verið samþykkt. Meðákærði hafi vitað um þá stóru mynd er ákærði hafi lýst á fundinum 18. september 2008. Ákærði kvaðst ekki líta svo á að viðskiptin með kaup á hlutabréfum í bankanum hafi verið komin á 18. september 2008. Það hafi ekki verið fyrr en 21. september 2008, við undirritun Sheikh Mohamed á sjálfskuldarábyrgð vegna kaupanna.
Viðskipti bankans og Sheikh Mohamed hafi gengið í gegn helgina 19. – 21. september 2008 með undirritun viðeigandi samninga, þá einkum sjálfskuldarábyrgðarinnar. Þau hafi síðan verið tilkynnt á mánudeginum 22. september 2008. Skipt hafi miklu máli að tilkynna strax um viðskiptin vegna reglna Kauphallarinnar. Ekki hafi á þeim tíma þurft að vera búið að ganga frá öllum lánveitingum. Það sem átt hafi sér stað á þeim degi hafi verið að Kaupþing banki hf. hafi selt hlutabréf til Q Iceland Finance ehf. og um leið átt kröfu á hendur félaginu. Ákærði hafi örugglega gefið fyrirmæli um að þessi viðskipti ættu að ganga hratt fyrir sig. Miðað við reynsluna skipti miklu að viðskipti sem þessi gengju hratt fyrir sig. Lausafjárstaða bankans í erlendum gjaldeyri hafi verið góð á þessum tíma. Hafi það verið staðfest á stjórnarfundi í bankanum 25. og 26. september 2008, en framkvæmdastjóri fjárstýringar hafi gert grein fyrir henni. Bankinn hafi verið með lánalínur upp á yfir 1.500.000.000 evra, sem bankinn hafi getað gengið á. Næsti stóri gjalddagi á skuldabréfum bankans hafi ekki verið fyrr en í maí 2009. Þá hafi um 6.000.000.000 evra safnast saman á fyrstu 9 mánuðum ársins í nýjum innlánum. Með sama áframhaldi hefði bankinn getað endurfjármagnað alla skuldabréfaútgáfu bankans. Einstök ummæli starfsmanna bankans um stöðu bankans yrði að skoða í ljósi þess að þeir hefðu ekki haft heildaryfirlit yfir stöðu bankans. Á fyrsta ársfjórðungi 2008 hafi verið leitað til Deutsche Bank um ráðgjöf varðandi mikið innstreymi á reikninga félagsins í útlöndum og hvernig best væri að verja þeim fjármunum. Hafi ráðleggingar Deutsche Bank falist í því annars vegar að kaupa til baka skuldabréf sem bankinn hefði gefið út, sem myndi hafa jákvæð áhrif á vaxtaálag bankans og hins vegar að finna fjárfesta sem gætu tekið þátt í skuldatryggingarmarkaðinum í London. Hvort tveggja hafi verið framkvæmt, en bankinn hafi meðal annars fundið fjárfesta og fjármagnað þá til að kaupa skuldabréf, Credit Link Notes, útgefin af Deutsche Bank, sem tengd hafi verið skuldatryggingarálagi bankans. Hafi áhætta bankans af þessum viðskiptum verið metin mjög lítil þar sem annað tveggja hafi þurft til að bankinn tapaði á viðskiptunum, útgefandi bréfanna Deutsche Bank færi á hausinn eða Kaupþing banki hf. Hafi ákærði talið mjög jákvætt að selja Sheikh Mohamed ríflega 5% hlut í Kaupþingi banka hf. Það hafi verið mjög jákvætt fyrir bankann að geta flaggað viðskiptunum. Ákærði kvaðst telja að lánanefnd stjórnar bankans hafi 24. september 2008 átt að gera sér grein fyrir hvernig fjármögnun kaupa á hlutabréfum í bankanum væri háttað. Þar hafi verið upplýst að Sheikh Mohamed hafi komið með sjálfskuldarábyrgð upp á 12.500.000.000 króna fyrir helmingi kaupverðsins. Miðað við það hafi lánanefndin átt að geta ályktað að kaupin yrðu að fullu fjármögnuð. Stjórn bankans sjálfs hafi hins vegar ekki verið upplýst sérstaklega um þetta. Einstök lánamál hafi aldrei verið tekin upp í stjórn. Einu sinni á ári hafi verið farið yfir lánabók bankans og þar gerð grein fyrir öllum stærstu útlánum. Margoft hafi gerst að bankinn hafi fjármagnað kaup á hlutabréfum í bankanum sjálfum. Hafi Fjármálaeftirlitið skoðað lánabók bankans og séð þetta í útlánaúttekt. Engar athugasemdir hafi verið gerðar af hálfu eftirlitsins.
Bankinn hafi fallið 8. október 2008, eða rúmum tveimur vikum eftir stjórnarfundinn dagana 25. og 26. september. Við fall hans hafi ekki verið farið í fjárfestingu á skuldabréfi útgefnu af Deutsche Bank í tengslum við skuldatryggingu Kaupþings banka hf., eins og til hafi staðið, en annar hluti viðskiptanna gengið eftir. Eftir fall bankans hafi komið í ljós, sem ákærði hafi ekki gert sér grein fyrir, að mistök hefðu átt sér stað innan bankans við framkvæmd lánveitinganna. Það hafi ekki verið gert að beiðni ákærða né með hans vitneskju. Það hafi verið vilji ákærða að lánveitingar vegna þessara viðskipta færu í einu og öllu eftir réttum ferlum innan bankans. Það hafi verið rétt hjá ákærða að kalla viðskiptastjórana og framkvæmdastjóra útlánasviðs á fund eins og ákærði hafi gert 18. september 2008 og gera þeim grein fyrir meginþáttum fyrirhugaðra viðskipta og hvaða samkomulag hafði í grundvallaratriðum náðst við Sheikh Mohamed. Ef ætlun ákærða hefði verið að þessar lánveitingar færu leynt og ekki eftir ferlum bankans, hefði ákærði vart kallað á sinn fund tvo viðskiptastjóra og framkvæmdastjóra á fyrirtækjasviði bankans til að ganga frá viðskiptunum. Það hafi verið hlutverk viðskiptastjóra að sjá um skjalagerð, fá samþykki lánanefnda og sjá til þess að lánin yrðu ekki greidd út án samþykkis réttra aðila innan bankans. Með þessu væri ekki ætlun ákærða að varpa ábyrgð á aðra starfsmenn bankans. Um hafi verið að ræða hreina og klára yfirsjón og engu breytt um efni viðskiptanna þótt allra réttra ferla hefði verið gætt. Engin áhöld hafi verið um ágæti þessara viðskipta fyrir bankann. Ákærði hafi ekki gefið fyrirmæli um að lánveitingar færu ekki fyrir lánanefnd og lánaskjöl ekki undirrituð. Liðið hafi tæplega sólarhringur frá því að ákærði hafi átt fund með viðskiptastjórum bankans þar til fyrirmæli virðist hafa verið gefin um lánveitingu. Nægur tími hafi gefist til að tryggja að réttum vinnubrögðum og ferlum yrði fylgt eins og mörg dæmi væru um í sögu Kaupþings banka hf. Að sama skapi hafi það ekki verið vilji ákærða að ellefu dögum eftir fund með viðskiptastjórum bankans 18. september 2008 skyldi lán vera veitt til Gerland Assets Ltd. að fjárhæð 12.800.000.000 króna í formi óundirritaðs peningamarkaðsláns. Í millitíðinni hafi verið haldinn lánanefndarfundur í lánanefnd stjórnar og því augljóst að nægur tími hafi verið fyrir viðskiptastjóra að fá samþykki lánanefndar. Teldi ákærði upplýst að um hafi verið að ræða mistök hjá Halldóri Bjarkari Lúðvígssyni viðskiptastjóra. Málið hafi fallið á milli skips og bryggju. Engin fyrirmæli hafi verið gefin um að lánveitingunni skyldi haldið utan lánanefndar og engin leynd verið innan bankans um þetta fyrirkomulag lánveitingar vegna hlutabréfaviðskiptanna. Ákærði kvaðst ekki hafa gefið nein fyrirmæli um að lán til Brooks Trading Ltd. skyldi vera fyrir fram greiddur hagnaður af svokölluðum CLN-viðskiptum. Að því marki sem Halldór Bjarkar Lúðvígsson hafi borið um það hafi verið um misskilning að ræða af hálfu Halldórs Bjarkar. Halldór Bjarkar hafi gefið fyrirmæli um lánveitingu til Gerland Assets Ltd., en það mætti sjá af gögnum málsins. Hafi Halldór sjálfsagt talið sig vera að vinna að málinu í samræmi við fundinn 18. september 2008. Kaupþing banki hf. hafi verið lánveitandi og eignir Gerland Assets Ltd. til tryggingar lánveitingunni. Komið hafi í ljós síðar að lán til Gerland Assets Ltd. hafi fyrir mistök ekki farið fyrir lánanefnd. Eins og áður sagði hafi viðskiptastjórinn Halldór Bjarkar borið ábyrgð á því. Að því er það lán varðaði hafi ekki staðið til að meðákærði, Ólafur, legði fram persónulega ábyrgð vegna aðkomu að kaupum félagsins á hlutafé í bankanum. Einungis hafi verið um það að ræða að lán hafi verið veitt í gegnum félag meðákærða. Það hafi verið gert þar sem þessi strúktúr um sameiginlegar fjárfestingar meðákærða, Ólafs, og Sheikh Mohamed hafi verið til og heppilegast að nota hann vegna kaupa Sheikh Mohamed á hlutabréfum í Kaupþingi hf. Með því að nota þennan strúktúr, sem legið hafi fyrir, hafi verið mestar líkur á að viðskiptin fengjust samþykkt og gengju fyrir sig hratt og örugglega. Þrátt fyrir þessa uppsetningu hafi ákærði ekki litið á kaup á hlutabréfunum sem viðskipti meðákærða, Ólafs. Ávinningur meðákærða, Ólafs, hafi verið fólginn í því að með þessu yrði Sheikh Mohamed stór hluthafi í Kaupþingi banka hf. Félagið Gerland Assets Ltd. hafi verið svokallað ,,Special Purpose Vehicle“ eða félag sett upp í ákveðnum tilgangi. Tilgangur félagsins hafi verið einungis einn, þ.e. að veita lán inn í Choice Stay Ltd. Búið hafi verið að rita undir opnunarskjöl í Lúxemborg þar sem allar eigur félagsins Gerland Assets Ltd. hafi staðið til tryggingar skuldbindingum félagsins. Þá hafi starfsmenn bankans komið að félaginu. Með þessu hafi áhætta bankans verið takmörkuð við lánveitingu til félagsins. Meðákærði, Ólafur, sem eigandi Gerland Assets Ltd., hafi átt margar eignir á þessum tíma en jafnframt verið skuldsettur.
Fjármögnun kaupa Q Iceland Finance ehf., sem hafi að fullu verið í eigu Sheikh Mohamed, hafi að hluta komið frá félagi í eigu meðákærða, Ólafs. Þrátt fyrir að Kaupþing banki hf. hafi lánað félagi í eigu meðákærða, Ólafs, sem lánað hafi til félaga í eigu Sheikh Mohamed, hafi engin skylda eða kvöð myndast fyrir aðila viðskiptanna að tilkynna um hvernig fjármögnun þeirra hafi verið háttað. Meðákærði, eða félag í hans eigu, hafi ekki átt að fá hlutdeild í hækkun eða lækkun hlutabréfa í Kaupþingi banka hf. Raunverulegur eigandi bréfanna, og það félag sem borið hafi alla áhættu af hækkun og lækkun hlutabréfanna í Kaupþingi banka hf., hafi verið Q Iceland Finance ehf. Meðákærði hafi ekki átt rétt til arðgreiðslna, hækkunar á virði bréfanna, né hafi hann haft ákvörðunarvald um hvort bréfin yrðu seld eða keypt. Ekki hafi verið um neina markaðsmisnotkun að ræða í viðskiptum. Fréttatilkynning Kaupþings banka hf. til Kauphallar Íslands, sem birst hafi í innlendum fjölmiðlum, hafi verið rétt og ekkert rangt sem þar hafi komið fram.
Dagurinn 8. október 2008 hafi verið örlagadagur í lífi Kaupþings banka hf. Íslensku viðskiptabankarnir, Glitnir hf. og Landsbanki Íslands hf., hefðu fallið á dögunum og vikunum á undan. Alþingi hefði samþykkt svokölluð neyðarlög að kvöldi 6. október 2008 og traust erlendra aðila á íslensku bankakerfi hrunið. Um morguninn 8. október 2008 hafi bresk yfirvöld tekið ákvörðun um að loka starfsemi Kaupthing Singer & Friedlander og færa innlánastarfsemi bankans yfir til annarrar fjármálastofnunar. Við fall Kaupthing Singer & Friedlander hafi starfsemi Kaupþings banka hf. í raun verið sjálfhætt þar sem allir lánasamningar bankans hafi verið komnir í uppnám vegna gjaldfellingarákvæða. Stjórn bankans hafi ákveðið á fundi 8. október 2008 að leita til Fjármálaeftirlitsins með starfsemi bankans. Fleira hafi gerst 8. október 2008 sem ákærði hafi ekki verið upplýstur um fyrr en eftir fall bankans. Þannig hafi 50.000.000 Bandaríkjadala lán til fjárfestingarfélags Sheikh Mohamed verið notað til að kaupa krónur af Kaupþingi banka hf. á um 250 krónur fyrir Bandaríkjadal. Fyrir 50.000.000 Bandaríkjadala hafi fengist 12.500.000.000 króna. Þær krónur hafi verið notaðar til að borga að stærstum hluta upp lán félagsins Serval Trading Group Corp., sem tryggt hafi verið með sjálfskuldarábyrgð Sheikh Mohamed. Strax í fyrstu yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara í júní 2009 hafi ákærði bent starfsmönnum embættisins á að þetta væri mjög óeðlilegt og slitastjórn Kaupþings banka hf. hlyti að hefja innheimtuaðgerðir vegna þessa. Slíkar aðgerðir hafi reyndar hafist löngu síðar og leitt til milljarðagreiðslna frá Sheikh Mohamed.
Ekki hafi verið um nein sýndarviðskipti að ræða með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. heldur raunveruleg viðskipti þar sem Sheikh Mohamed hafi tekið raunverulega áhættu og orðið fyrir umtalsverðu fjártjóni vegna kaupa á hlutabréfum í Kaupþingi banka hf. Eins sé ljóst að engin markaðsmisnotkun eða umboðssvik hafi verið framin í þessum viðskiptum. Engin leynd hafi hvílt yfir aðkomu meðákærða, Ólafs, að viðskiptunum. Félög í eigu meðákærða hafi verið stofnuð í kerfum bankans og meðákærði farið í gegnum peningaþvættisathugun. Viðskiptin hafi verið gerð í þágu Kaupþings banka hf. og ásetningur stjórnenda bankans aldrei staðið til annars. Bankinn hafi orðið í mun betri stöðu eftir viðskiptin en fyrir þau. Kaupþing banki hf. hafi fengið greitt frá Sheikh Mohamed um 3.500.000.000 króna vegna viðskiptanna. Það sé sú fjárhæð sem Kaupþing banki hf. hafi orðið betur settur með vegna þessara viðskipta en ef ekki hefði verið gengið til þeirra. Ef ekki hefði komið til ráðstöfunar á 50.000.000 Bandaríkjadala 8. október 2008 hefði bankinn verið enn betur settur, eða sem nemur tæplega 13.000.000.000 króna. Þau viðskipti sem ákærði hafi átt þátt í að koma á hafi sannanlega bætt stöðu bankans sem þeirri fjárhæð nemi. Lán Kaupþings banka hf. til Brooks Trading Ltd. hafi ekki verið ætlað sem hvati fyrir Sheikh Mohamed til að kaupa hlutabréf í Kaupþingi banka hf. Ákærði kvaðst ekki fyrr en á rannsóknarstigi málsins hafa séð svokallaða glærukynningu af viðskiptum með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. sem útbúin hafi verið af starfsmönnum Kaupthing Bank Luxembourg S.A. Ekki hafi ákærði gefið Eggerti Hilmarssyni, starfsmanni Kaupthing Bank Luxembourg S.A., nein fyrirmæli varðandi vinnu við teikningarnar. Ákærði kvaðst aldrei hafa gefið nein fyrirmæli um hagnaðartengd lán, svo sem gefið væri í skyn á teikningunum. Aldrei hafi staðið til að Gerland Assets Ltd. nyti hækkunar eða lækkunar hlutabréfa í Kaupþingi banka hf. Þá hafi ekki staðið til að félagið fengi arðgreiðslur af hlutabréfakaupunum í Kaupþingi banka hf. Fjármagn til kaupa á hlutabréfum í Kaupþingi banka hf. hafi að hálfu leyti komið í gegnum Gerland Assets Ltd. sem lán. Fjárfestingar meðákærða, Ólafs, og Sheikh Mohamed Al Thani, í gegnum sameiginlegt fjárfestingafélag, hafi ekki verið farnar af stað er félagastrúktúr þeirra hafi verið notaður. Þó kvaðst ákærði telja að þegar hafi verið búið að taka ákvörðun af þeirra hálfu um að fjárfesta í Alfesca. Ákærði kvaðst ekki muna sérstaklega eftir umræðu á sínum tíma um hvort flagga þyrfti aðkomu meðákærða, Ólafs, að viðskiptum með hlutabréfin í Kaupþingi banka hf. Ákærði kvaðst þó öruggur um að ekki hafi þurft að flagga hans aðkomu að viðskiptunum. Flaggað hafi verið með réttum hætti í þessum viðskiptum. Q Iceland Finance ehf. hafi verið eini eigandi hlutabréfanna í Kaupþingi banka hf. Ákærði lýsti því að svokölluð peningamarkaðslán væru skammtímalánveitingar. Þau hafi verið veitt bæði til fjármálastofnana og fyrirtækja. Ákærði kvaðst hafa setið fund lánanefndar stjórnar 24. september 2008. Að því er varðaði svokallaða undanþágulista hafi það almennt verið þannig að fyrirtæki hafi farið í gegnum lánshæfismat áður en lán hafi verið veitt. Ef lánshæfismat fór ekki fram þyrftu fyrirtæki að fara á nefndan undanþágulista. Lán til verðbréfakaupa hafi almennt farið á undanþágulista yfir lánshæfismat. Ekki hafi verið kerfi innan bankans til að útbúa lánshæfismat fyrir fjármögnun verðbréfa. Ákærði staðfesti að reglubók Kaupþings banka hf. hafi verið samþykkt af stjórn bankans 27. september 2007. Lánanefnd stjórnar Kaupþings banka hf. hafi haft heimild til að veita lán án trygginga og ekkert hámark verið á þeim lánveitingum. Þá hafi lánanefndin einnig haft heimildir til að veita víkjandi lán. Þannig hafi bankinn veitt fjármálastofnunum og fyrirtækjum í rekstri lán án trygginga sem orðið hefðu víkjandi fyrir öðrum kröfuhöfum. Hvað reglubókina varðaði hafi í henni falist rammi fyrir deildir og starfsmenn bankans. Ákærði kvaðst í starfi sínu fyrir Kaupþing banka hf. aldrei sjálfur hafa veitt einstök lán. Það hafi ekki verið hlutverk hans í bankanum. Hafi hann aldrei gefið fyrirmæli um að greiða út lán og lán alltaf átt að fara fyrir lánanefndir. Viðskiptastjórar bankans hafi átt að bera ábyrgð á því að ritað væri undir lánsskjöl. Ákærði kvaðst þeirrar skoðunar að fréttatilkynning Kaupþings banka hf. frá 22. september 2008 um viðskipti með hlutabréf í bankanum hafi gefið rétta mynd af viðskiptum með hlutabréf í bankanum. Ekki hafi verið getið um fjármögnun kaupanna þar sem engin skylda hafi verið til þess. Þá hafi engin venja staðið til þess heldur. Ekki hafi verið ástæða til að geta aðkomu meðákærða, Ólafs, að kaupunum. Ákærði kvaðst ekki muna nákvæmlega hvaða áhrif fréttatilkynningin hefði haft á virði hlutabréfa í bankanum. Ákærði kvaðst hafa lesið yfir drög að tilkynningunni. Samskiptasvið bankans hafi séð um gerð fréttatilkynningarinnar. Framkvæmdastjóri sviðsins hafi haft yfirumsjón með gerð hennar. Það hafi verið sameiginleg ábyrgð þeirra að tilkynningin væri rétt. Meðákærði, Magnús, hafi ekki komið mikið að gerð tilkynningarinnar, svo hann vissi til. Meðákærði hafi verið búinn að vera í einhverjum samskiptum við ráðgjafa Sheikh Mohamed. Ákærði kvaðst ekki þekkja aðkomu meðákærða, Ólafs, að tilkynningunni. Ákærði kvaðst ekki þekkja hvort tilkynningin hefði verið borin undir Sheikh Mohamed sjálfan. Að því er varðaði viðtal við ákærða í morgunfréttum Ríkisútvarpsins 22. september 2008 kvaðst ákærði þeirrar skoðunar að viðtalið gæfi rétta mynd af viðskiptum með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. Hægt hafi verið að halda því fram að verið væri að sækja fjármuni til Asíu þar sem Sheikh Mohamed hafi undirritað sjálfskuldarábyrgð vegna kaupanna, en í því hafi verið fólgnir fjármunir. Engu máli hafi skipt í þessu sambandi þó að Kaupþing banki hf. hafi að fullu fjármagnað kaup hlutabréfanna. Með sama hætti hafi viðtal við ákærða í Markaðsfréttum Stöðvar 2 að kvöldi 22. september 2008 gefið rétta mynd af viðskiptunum, sem og önnur viðtöl sem ákærði hefði veitt og fram kæmu í ákæru.
Ákærði, Sigurður Einarsson, kvaðst hafa verið stjórnarformaður Kaupþings banka hf. í september 2008. Ákærði hafi á sama tíma verið formaður lánanefndar stjórnar. Kaupþing banki hf. hafi verið móðurfélagið og Kaupthing Bank Luxembourg S.A. dótturfélag þess. Sá banki hafi verið rekinn sem sjálfstæður banki. Meðákærði, Magnús, hafi verið framkvæmdastjóri Kaupthing Bank Luxembourg S.A. en engar heimildir haft gagnvart móðurfélaginu á Íslandi. Hafi hann af þeim sökum ekki getað skuldbundið Kaupþing banka hf. Þá hafi hann ekkert boðvald haft gagnvart einstökum starfsmönnum Kaupþings banka hf. á Íslandi.
Að því er varðaði sölu á ríflega 5% hlut í Kaupþingi banka hf. í september 2008 til Q Iceland Finance ehf., sem hafi verið félag í eigu Sheikh Mohamed Al Thani frá Katar, hafi aðdragandi sölunnar verið sá að fyrirsvarsmenn Kaupþings banka hf., líkt og stjórnendur fjölmargra annarra banka um allan heim, hefðu um nokkurt skeið á árunum 2007 og 2008 haft það sem markmið að fá til liðs við sig stönduga fjárfesta. Hafði töluvert af tíma ákærða farið í viðræður við hina ýmsu aðila er lotið hafi að þessu markmiði, enda ákærði búið í útlöndum síðan árið 2004. Meðal fjárfesta sem ákærði hefði rætt ítrekað við hafi verið fjárfestar frá Katar. Þeir hafi þó langt í frá verið þeir einu sem ákærði hafi átt í samskiptum við. Á árunum 2007 og 2008 hafi ákærði farið fjölmargar ferðir til Katar, auk þess sem ákærði hafi hitt þarlenda fjárfesta bæði í Evrópu og Ameríku. Meðal þeirra sem ákærði hafi átt viðræður við hafi verið bankastjórar og ráðherrar, þar á meðal forsætisráðherra og fjármálaráðherra Katar. Viðræður hafi átt sér stað við QIA sjóðinn um fjárfestingu í Kaupþingi banka hf. Einn af fjölmörgum aðilum sem ákærði hafi kynnst hafi verið Sheikh Mohamed Al Thani, fyrrum fjármálaráðherra landsins. Það hafi verið ákærða og Kaupþingi banka hf. fagnaðarefni er í ljós hafi komið að Sheikh Mohamed hafi viljað kaupa ríflega 5% hlut í bankanum, enda Sheikh Mohamed einn af efnameiri fjárfestum heimsins. Hugmynd að viðskiptum Sheikh Mohamed með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. hafi væntanlega komið frá meðákærða, Hreiðari Má, sem borið hafi hana undir meðákærða, Ólaf. Í framhaldi hafi hugmyndin, fyrir milligöngu meðákærða, Ólafs, verið borin undir Sheikh Mohamed.
Aðkoma ákærða að útfærslu og framkvæmd viðskiptanna hafi þó eðlilega verið engin, frekar en endranær með viðskipti í bankanum, hvort sem hafi verið við kaup eða sölu eigna eða lánveitingar. Ákærði hafi verið stjórnarformaður bankans og sem slíkur ekkert umboð haft við útfærslu eða framkvæmd viðskipta, svo sem við ákvörðun lánsfjárhæða, trygginga, greiðsluskilmála o.s.frv. Ákærði hafi verið ánægður með viðskiptin enda verið upplýstur um það að lánveiting vegna viðskiptanna væri tryggð með veði í bréfunum sjálfum sem og 50% sjálfskuldarábyrgð frá Sheikh Mohamed. Hugmyndin hafi verið kynnt þannig fyrir ákærða að Kaupþing banki hf. myndi fjármagna kaup bréfanna að fullu. Fráleitt hefði verið að ákærði hefði farið fram á það að starfsmenn Kaupþings banka hf. greiddu lánsfjárhæð eða útbyggju lána- og tryggingaskjöl með ákveðnum hætti. Í raun myndi ákærði ekki eftir að hafa, í aðdraganda kaupa Sheikh Mohamed á hlutabréfum í bankanum, rætt við neinn starfsmann Kaupþings banka hf. nema meðákærða, Hreiðar Má, forstjóra bankans. Aðkomu ákærða að viðskiptunum hafi lokið þegar ákærði, ásamt öðrum nefndarmönnum í lánanefnd stjórnar, hafi 24. september 2008 samþykkt lán til Serval Trading Group Corp., félags í eigu Sheikh Mohamed. Í framhaldi þess hafi ákærði sent Sheikh Mohamed bréf og óskað honum til hamingju með viðskiptin og boðið hann velkominn í hluthafahóp bankans.
Ákærði kvað lán til félagsins Brooks Trading Ltd., félags í eigu Sheikh Mohamed, veitt í september 2008, ekki hafa verið ætlað sem hvata fyrir Sheikh Mohamed til að kaupa hlutabréf í Kaupþingi banka hf. Ákærði kvaðst ekki þekkja til eða hafa séð svonefndan strúktúr að baki kaupum Sheikh Mohamed á hlutabréfum í bankanum, sem starfsmenn Kaupthing Bank Luxembourg S.A. hafi verið að vinna með. Hafi ákærði ekki vitað hver hafi hannað umræddan strúktúr.
Ákærði kvaðst ekki hafa samþykkt lánveitingu til Gerland Assets Ltd. í september 2008. Hafi lánið ekki farið fyrir lánanefnd stjórnar. Hann hafi því ekki þekkt sérstaklega til þessarar lánveitingar eða vitað um stóru mynd viðskiptanna. Það væri því ekki unnt fyrir ákærða að álykta hvort lánveitingin hafi staðist lánareglur bankans. Lánareglur hafi hins vegar verið brotnar að því leyti að lánið hafi ekki verið lagt fyrir lánanefnd. Kvaðst ákærði þeirrar skoðunar að viðskiptastjóri bankans hafi borið ábyrgð á því að setja lánið fyrir lánanefnd. Lán tengd þessum viðskiptum hafi verið ein heild og ekki ástæða til að líta á hvert þeirra eitt og sér. Þannig beri að líta á lán sem veitt hafi verið áfram í gegnum félög í eigu meðákærða, Ólafs, og Sheikh Mohamed. Aldrei hafi staðið til að meðákærði, Ólafur, færi að leggja fram persónulegar ábyrgðir í tengslum við kaup Sheikh Mohamed á hlutabréfum í Kaupþingi banka hf. enda félagið einungis milliliður um færslu fjármuna. Áhætta meðákærða hafi því aldrei verið nein af viðskiptunum og hagnaður til hans aldrei átt að verða neinn. Aðrar leiðir hafi verið færar til að koma á kaupum milli bankans og Sheikh Mohamed, en niðurstaðan hafi orðið sú sama. Sú leið sem valin hafi verið hafi einfaldlega þótt heppileg. Öll áhætta í viðskiptunum hafi lent á Sheikh Mohamed, hinum raunverulega kaupanda bréfanna. Hafi kaupandinn enda lagt fram sjálfskuldarábyrgð vegna kaupanna fyrir helmingi kaupverðsins. Meðákærði, Ólafur, hafi ekki komið að kaupum á hlutabréfum í bankanum að öðru leyti en því að koma á tengslum við Sheikh Mohamed. Ákærði kvaðst ekki hafa þekkt sérstaklega fjárhagsstöðu meðákærða, Ólafs, á þeim tíma er viðskipti hafi gengið í gegn. Lán af hálfu bankans hafi stundum verið samþykkt utan reglulegra funda. Hafi það verið í þeim tilvikum er hraði hafi verið mikill í viðskiptum, sérstaklega í tengslum við viðskipti með verðbréf. Komið gat fyrir að lánanefndarmenn væru á ferðalögum og hafi ákærði þá hringt eða sent skeyti, sem formaður lánanefndar, til að fá viðhorf lánanefndarmanna til lánveitinga.
Ákærði kvaðst telja að Kaupþing banki hf. hafi notið góðra trygginga vegna viðskipta við Sheikh Mohamed. Bæði hafi kaupandi lagt fram sjálfskuldarábyrgð, auk þess sem félög, sem staðið hafi að baki kaupunum, hafi verið í vörslum Kaupþings banka hf. Ef þau félög hefðu ekki staðið í skilum hefðu þau verið tekin yfir af bankanum. Jafngilti það því að Kaupþing banki hf. hafi haft hald í bréfunum. Kaupþing banki hf. hafi eftir viðskiptin verið í fjárhagslega mun betri stöðu en ef viðskiptin hefðu ekki átt sér stað. Engir fjármunir hafi farið út úr bankanum en inn komið sjálfskuldarábyrgð fjársterks aðila sem Kaupþing banki hf. hafi endað með að ganga á og innheimta nær helming skuldarinnar. Hefði Kaupþing banki hf. ekki selt hlutabréf í bankanum sjálfum hefði ekkert komið inn í bankann vegna þeirra enda bréfin verðlaus stuttu síðar. Af því leiði að ásakanir um fjártjón hafi verið fráleitar og hvað þá að yfir viðskiptunum hafi verið einhvers konar leynd eða þau falið í sér markaðsmisnotkun. Ákærði kvaðst telja að Sheikh Sultan hafi kynnt viðskipti með hlutabréfin fyrir Sheikh Mohamed og þá væntanlega eftir að meðákærði, Ólafur, hafi, að beiðni meðákærða, Hreiðars Más, sent Sheikh Sultan boðið. Ákærði kvaðst geta sér þessa til, en nákvæmlega hvernig þetta hafi atvikast hafi hann ekki þekkt. Ákærði kvaðst ekki hafa þekkt ástæðu þess að söluhluturinn hafi verið 5.01% af hlutabréfum í Kaupþingi banka hf. Meðákærði, Hreiðar Már, hafi ákveðið efni tilboðsins til Sheikh Mohamed. Ákærði hafi sjálfur ekki verið í sambandi við Sheikh Mohamed vegna kaupanna, eða lögmann hans Simon Southall. Það sem eftir ákærða væri haft í fjölmiðlum og gagnvart Kauphöll, samkvæmt d-lið IV. kafla ákæru, væri satt og rétt og ekkert rangt í þeirri umfjöllun. Þá hafi fréttatilkynning er Kaupþing banki hf. hafi sent út vegna viðskiptanna gefið rétta mynd af viðskiptunum. Hafi það verið mat bankans að tilkynningin uppfyllti allar þær kröfur sem um hana giltu, t.d. varðandi Kauphöllina. Kaupandi hlutabréfanna, Sheikh Mohamed, hafi lagt fram sjálfskuldarábyrgð vegna kaupa hlutabréfa í bankanum og hafi það verið hans beina framlag. Ákærði kvaðst telja að lánanefndarmenn hefðu getað ályktað að bankinn fjármagnaði kaup bréfanna að fullu. Þá hafi þessi mál verið kynnt á stjórnarfundi í bankanum dagana 25. og 26. september 2008, en ákærði hafi gert grein fyrir þeim á fundinum. Stjórn bankans hafi verið ánægð með kaupin. Engin leynd hafi verið yfir aðkomu meðákærða, Ólafs, að viðskiptunum. Þá kvaðst ákærði ekki muna eftir umræðu um að flagga þyrfti aðkomu meðákærða, Ólafs, að kaupunum. Þá væri ljóst að komast mætti fram hjá slíkum vangaveltum, t.d. með því að bankinn lánaði beint til Q Iceland Finance ehf., kaupanda hlutabréfanna.
Ákærði, Ólafur Ólafsson, bar að tengsl hans við Kaupþing banka hf. mætti rekja til sameiningar Búnaðarbankans og Kaupþings en félagið Egla Invest, sem ákærði hafi átt hlut í, hefði við sameiningu þeirra orðið hluthafi í sameinuðum banka. Við yfirtöku Fjármálaeftirlitsins á Kaupþingi banka hf. haustið 2008 hafi eignarhlutur Eglu Invest í Kaupþingi banka hf. samtals numið 9,88%. Ákærði hafi ekki setið í stjórn þess félags en það hafi verið félag í óbeinni eigu Kjalars ehf., sem að stærstum hluta hafi verið í eigu ákærða. Frá því síðla árs 2006 hafi ákærði hvorki selt né keypt, eða félög í eigu ákærða, eitt einasta hlutabréf í Kaupþingi banka hf. Hafi ákærði aldrei setið í stjórn, ráðum eða nefndum á vegum Kaupþings banka hf., forvera hans, né dótturfyrirtækja. Þá hafi ákærði aldrei verið starfsmaður Kaupþings banka hf. eða tengdra félaga.
Sheikh Mohamed Al Thani væri sonur fyrrum emírs af Katar, en eldri bróðir Sheikh Mohamed hafi verið emírinn af Katar. Árið 1997 hafi Sheikh Mohamed verið aðstoðarforsætisráðherra Katar. Hafi hann hætt afskiptum af opinberri stjórnsýslu í kringum árin 2003 og 2004 og farið að stunda sín eigin viðskipti. Sheikh Sultan væri frændi Sheikh Mohamed. Hann hefði unnið fyrir Sheikh Mohamed og rekið margvísleg viðskipti fyrir hann. Hafi ákærði fyrst kynnst umræddum mönnum haustið 2005 á skotveiðum á landi Simon Southall, sem hafi verið lögfræðingur þeirra. Á árunum 2006, 2007 og 2008 hafi ákærði hitt þá oft, en Sheikh Sultan oftar, við ýmis tækifæri.
Meðákærði, Sigurður, stjórnarformaður Kaupþings banka hf., hafi lýst yfir áhuga Kaupþings banka hf. á að hasla sér völl í Mið-Austurlöndum. Árið 2007 hafi ákærði komið á fundi milli Sheikh Sultan og meðákærða, Sigurðar, í London til að ræða mögulega ferð til Mið-Austurlanda í því skyni. Sheikh Sultan hafi aðstoðað við að skipuleggja þá ferð og komið á fundum bæði í Katar og í Dubai við ýmsa aðila. Í byrjun árs 2008 hafi Sheikh Sultan bent á Qatar Investments Authorities, sem væri í eigu ríkisins, sem mögulegan áhugaverðan kost fyrir Kaupþing banka hf., m.a. vegna hins mikla fjárhagslega styrks sjóðsins. Talið væri að sjóðurinn hefði yfir að ráða 80.000.000.000 Bandaríkjadala, eða 10 þúsund milljörðum króna. Hafi ákærði rætt hugmyndina við meðákærða, Sigurð. Í framhaldinu hafi Sheikh Sultan haft samband við forsætisráðherra Katar, sem jafnframt hafi verið forstjóri Qatar Investments Authorities. Í kjölfarið hafi átt sér stað fjórir fundir á tímabilinu mars til júlí 2008. Meðal annars hafi ákærði átt tvo einkafundi með forsætisráðherra Katar og forstjóra Qatar Investments Authorities og ráðgjafa hans. Annars hafi fundirnir verið við stjórnir Qatar Investments Authorities. Qatar Investments Authorities hafi látið KPMG og Barclays Bank framkvæma ítarlega áreiðanleikakönnun á Kaupþingi banka hf. Hafi ákærði engan þátt átt í viðræðum milli aðila og engan þátt tekið í vinnu við áreiðanleikakönnunina. Í júlí 2008 hafi komið fram að Qatar Investments Authorities litist vel á bankann en þeir gert athugasemdir við verðmæti viðskiptavildar tveggja dótturfélaga bankans, FIH í Danmörku og Kaupthing Singer & Friedlander í London. Hafi ákærði sent forsætisráðherra Katar bréf í kjölfarið. Hafi ákærði fengið þau skilaboð að rétt væri að taka upp þráðinn eftir Ramadan. Ramadan hafi lokið 30. september árið 2008.
Á fyrsta ársfjórðungi 2008 hafi farið af stað viðræður við Sheikh Sultan um mögulega fjárfestingu Sheikh Mohamed í Alfesca. Ákærði hafi verið stjórnarformaður Alfesca á þessum tíma og einn stærsti hluthafi. Þeir frændur hafi sýnt félaginu mikinn áhuga og lýst yfir áhuga á því að fjárfesta í Alfesca. Umtalsverð vinna hafi farið í gang því tengd. Um mitt ár 2008 hafi verið gengið frá samningum um kaup á nýju óútgefnu hlutafé í Alfesca fyrir um 5.500.000.000 króna. Þannig myndi Sheikh Mohamed eignast allt að 12,6% af hlutafé félagsins. Vegna bankahrunsins hafi samningsaðilar samþykkt að falla frá samningnum. Samhliða samningaviðræðum Sheikh Mohamed um kaup á hlutum í Alfesca hafi verið rætt um stofnun fjárfestingarsjóðs. Fyrstu ítarlegu umræðurnar um formlega stofnun sjóðsins hafi átt sér stað 1. júní 2008 í London og verið á milli ákærða og Sheikh Sultan. Rætt hafi verið um að eignarhald fjárfestingarsjóðsins ætti að vera að jöfnu milli ákærða og Sheikh Mohamed. Frekari ítarlegar umræður um sjóðinn hafi verið í júlí annars vegar í Doha og hins vegar í London. Það hafi síðar verið ákveðið að Sheikh Sultan yrði einnig meðstofnandi og eigandi sjóðsins. Þannig ættu þeir frændur meirihluta í sjóðnum. Hlutföllin yrðu þannig að Sheikh Mohamed og ákærði ættu hvor um sig að eiga 42,85% og leggja til 115.000.000 evra en Sheikh Sultan 14,3% og leggja 50.000.000 evra til sjóðsins. Ýmis fjárfestingaverkefni hafi verið rædd. Mætti þar nefna fasteignaverkefni í Doha, í París, ýmis verkefni í Íran, kaup á hlutabréfum í fyrirtæki eins og Mitchell og Butler í Bretlandi og fleira. Jafnframt hafi verið rætt um fjárfestingu sem Sheikh Mohamed hafi þá þegar átt í súkkulaðiverksmiðju í Belgíu. Ákærði hefði rætt þessi áform um fjárfestingarsjóðinn við meðákærða, Hreiðar Má, á fyrri stigum en farið ítarlega yfir áformin með meðákærða á fundi með honum og Sheikh Sultan í Doha 1. júlí 2008. Meðákærði hafi lýst yfir miklum áhuga af hálfu bankans og á samstarfi um slík verkefni. Félli það vel að hugmyndum bankans um frekara samstarf við aðila frá Mið-Austurlöndum. Meðákærði hafi lýst yfir vilja til þess að bankinn fjármagnaði sjóðinn þannig að hlutafé eða tryggingar væru minnst 50% af heildarfjármagni sjóðsins og að Kaupthing Bank Luxembourg S.A. tæki að sér ákveðna umönnum og utanumhald um eignir sjóðsins. Rætt hafi verið um að lagðar yrðu fram ábyrgðir eða tryggingar fyrir fjármögnun sjóðsins. Sheikh Sultan og Sheikh Mohamed hafi ætlað að leggja fram persónulegar ábyrgðir. Ákærði hafi hins vegar átt að leggja fram ábyrgðir eða tryggingar sem Kaupþing banki hf. mæti nægjanlega góðar. Til að stýra sjóðnum hafi verið ákveðið að nota skrifstofu Eglu Invest í London, en þar hafi Sheikh Mohamed og Sheikh Sultan jafnframt átt að hafa starfsaðstöðu. Ákveðið hafi verið að skattaleg heimilisfesti sjóðsins yrði þar sem hagkvæmast yrði fyrir aðila, sem búið hefðu í mismunandi löndum. Ákærði hafi haft samband við Kristin Hallgrímsson, lögmann á lögmannsstofunni Fulltingi, vegna þessara fyrirætlana. Kristinn hafi lýsti yfir áhuga stofunnar á því að aðstoða við uppsetningu á fjárfestingarsjóðnum og samningsgerð því samfara. Hafi hann mælt með því að Telma Halldórsdóttir, lögmaður á Fulltingi, kæmi að verkinu. Ákærði hafi í kjölfarið átt fund með Telmu í London um uppsetningu á sjóðnum og hún í framhaldinu átt fund í Lúxemborg með Eggerti Hilmarssyni, lögfræðingi hjá Kaupthing Bank Luxembourg A.S.
Um mánaðamótin júlí ágúst 2008 hafi Sheikh Sultan, ásamt forstjóra Alfesca og fleirum, komið til Íslands, m.a. til laxveiða. Með þeim í för hafi verið meðákærði, Sigurður. Meðan á Íslandsdvölinni stóð hafi Sheikh Sultan farið á kynningarfund með meðákærða, Hreiðari Má, í Kaupþingi banka hf. Meðákærði hafi kynnt fyrir honum rekstur bankans, afkomu og uppbyggingu. Dagana 26. og 27. ágúst 2008 hafi Sheikh Mohamed, Sheikh Sultan, meðákærði, Sigurður, ásamt ákærða og fleirum, verið við skotveiðar í Englandi. Þar hafi komið fram að Sheikh Sultan væri hrifinn af Kaupþingi banka hf. og þeir frændur borið traust til meðákærða, Sigurðar, og þeirra stjórnenda sem Sheikh Sultan hefði hitt. Í lok ágúst 2008 hafi meðákærði, Hreiðar Már, borið þá hugmynd upp við ákærða, hvort Sheikh Mohamed kynni að vera áhugasamur um að kaupa hlutabréf í Kaupþingi banka hf. Hafi ákærði borið þá hugmynd til Sheikh Sultan, sem honum hafi fundist áhugaverð. Sheikh Sultan hafi spurst fyrir um verð og kjör. Meðákærði hafi sagt að verðið tæki mið af markaðsvirði bréfanna og bankinn myndi fjármagna söluverðið gegn 50% eigin áhættu Sheikh Mohamed. Sheikh Sultan hafi sagst hafa rætt við John El Khahir, sem hafi verið ráðgjafi forsætisráðherra, og forstjóra Qatar Investments Authorities, um áreiðanleikakönnun Qatar Investments Authorities á Kaupþingi banka hf. og hafi John Khahir mælt með bankanum. Í byrjun september 2008 hafi Sheikh Sultan staðfest áhuga Sheikh Mohamed á að kaupa hlutabréf í Kaupþingi banka hf. Hlutabréf bankans hafi þá lækkað um 19% frá því viðræður hafi farið af stað við Qatar Investments Authorities.
Eftir að ljóst varð að Sheikh Mohamed hygðist kaupa hlutabréf í Kaupþingi banka hf. hafi meðákærði, Hreiðar Már, lagt til að ábyrgðin sem Sheikh Mohamed hefði samþykkt að veita, vegna fjárfestingarsjóðsins, yrði til að byrja með notuð til tryggingar fyrir 50% af kaupverði bréfanna, þar til búið væri að ganga frá formlegum tryggingum í eignum hans í Katar. Sheikh Sultan hafi einnig gengist í formlega ábyrgð fyrir 50.000.000 evra, sem hafi verið hans hlutur vegna fjárfestingarsjóðsins og ábyrgðin verið lögð fram til Kaupþings banka hf. Ábyrgð Sheikh Mohamed hafi hins vegar hljóðað upp á 150.000.000 evra. Tilboð bankans hafi falið í sér að kaupandinn yrði einungis krafinn um tryggingar fyrir helmingi kaupverðsins, eða 90.000.000 evra, sem þá hafi verið 12.800.000.000 króna. Ljóst hafi verið að ef átt hafi að notast við ábyrgð sem Sheikh Mohamed hefði þá þegar lagt fram eða stefndi að leggja fram, yrði að hámarka hana við 50% verðmæti þeirra hlutabréfa sem hann væri að kaupa, sem hafi verið mun lægri upphæð heldur en ábyrgðin hljóðaði upp á. Margar leiðir hafi sjálfsagt verið færar til þess að ná því markmiði en tillaga meðákærða, Hreiðars Más, hafi verið að notast við fyrirhugaðan fjárfestingarsjóð, sem ákærði, Sheikh Sultan og Sheikh Mohamed hefðu ákveðið að stofna. Ákærði hafi samþykkt tillögu meðákærða að félag í eigu ákærða myndi fjármagna helming kaupanna til skamms tíma, þ.e.a.s. þriggja mánaða, enda ljóst að það skipti engu varðandi fjárhagsáhættu bankans og því fylgdi hvorki áhætta né hagnaðarvon fyrir ákærða. Persónuleg ábyrgð Sheikh Mohamed næði til félags hans. Þannig hafi verið búið að tryggja að hann bæri aðeins ábyrgð á 50% kaupverði bréfanna. Innan 90 daga ætti að ganga frá fjármögnun Sheikh Mohamed með veði í landi eða öðrum eigum og hreinsa upp fjármögnunina í gegnum fjárfestingarsjóðinn, sem hugsaður hafi verið til annarra verkefna. Aðkoma ákærða að umræddri fjármögnun hafi því aðeins verið ætluð til skamms tíma. Ákærði hafi aldrei átti neinn hlut og ekki átt að njóta nokkurs hagnaðar af hlutafjárviðskiptum Sheikh Mohamed. Sjálfir kaupendurnir hafi verið mjög áhugasamir um fjárfestinguna. Þann 16. september 2008, á miðjum Ramadam, hafi ákærði, ásamt meðákærða, Magnúsi, framkvæmdastjóra Kaupthing Bank Luxembourg S.A., farið til Doha til að hitta Sheikh Sultan og Sheikh Mohamed. Ákærði hafi, án meðákærða, Magnúsar, hitt Sheikh Sultan og átt með honum langan fund. Eftir sólsetur hafi þeir þrír farið á búgarð Sheikh Mohamed til fundar við hann. Sheikh Mohamed, Sheikh Sultan og ákærði hafi fyrst haldið fund og rætt hugmyndir um fjárfestingarsjóðinn og næstu skref. Eins hafi verið gengið frá því á þessum fundi að Sheikh Sultan yrði meðfjárfestir í sjóðnum. Meðákærði, Magnús, hafi ekki setið þann fund, en hafi síðan verið kallaður inn á fundinn. Hafi hann afhent þeim gögn frá bankanum sem sennilega hafi tengst stofnun félagsins í eigu Sheikh Mohamed. Ákærði hafi ekki þekkt innihald gagnanna og ekki skipt sér af frágangi þeirra.
Vegna þátttöku ákærða í fyrirhuguðum fjárfestingarsjóði hafi Kaupthing Bank Luxembourg S.A. lagt til að Gerland Assets Ltd., sem bankinn hafði sjálfur stofnað 18. júlí 2008, yrði notað í þessu sambandi. Þann 20. september 2008 hafi ákærði tekið félagið yfir og skrifað samtímis undir hluthafasamþykkt. Hún hafi veitt starfsmönnum Kaupthing Bank Luxembourg S.A., sem átt hafi sæti í stjórn félagsins, umboð til að taka lán allt að 150.000.000 evra. Lánið hafi átt að vera ótryggt fyrstu 90 dagana en skyldi endurfjármagnað til þriggja ára innan 90 daga og það tryggt með veðum sem bankinn teldi fullnægjandi. Þann 20. september 2008 hafi verið haldinn fundur á skrifstofu ákærða í London með Simon Southall, lögmanni sheikanna, og meðákærða, Magnúsi. Þar hafi meðákærði afhent Simon Southall gögn, sem tengst hafi viðskiptum sheikanna við bankann. Á sama fundi hafi Simon Southall skýrt frá sjónarmiðum sheikanna og opinberri tilkynningu viðskiptanna. Á sama fundi hafi Simon óskað eftir því að Kaupthing Bank Luxembourg S.A. myndi opna sjálfstætt og sérstakt félag á Kýpur til að vera eignarhaldsfélag um hlutinn í Alfesca. Þann 21. september 2008, eða daginn eftir, hafi ákærði fengið send drög að fréttatilkynningu um kaup Sheikh Mohamed á hlutum í Kaupþingi banka hf. frá starfsmönnum Kaupþings banka hf. Hafi ákærði talið fréttatilkynninguna gefa rétta mynd af viðskiptunum og vera í samræmi við það sem fram hafi komið á fundinum deginum áður með Simon Southall. Ákærði hafi ekki náð tali af Simon Southall því Simon hafi verið í flugi til Doha með skjalapakkann í töskunni. Í framhaldi hafi ákærði hringt í Guðmund Oddsson, íslenskan lögmann Sheikh Mohamed og stjórnarmann í Q Iceland Holding ehf., og borið undir hann innihald tilkynningarinnar. Hafi Guðmundur ekki gert neina athugasemd við tilkynninguna. Ákærði hafi svaraði því í tölvupósti ,,Er ok.“
Ákærði kvaðst ítreka að öll formleg samskipti milli Kaupþings banka hf. og sheikanna eða lögmanna þeirra, vegna hlutabréfakaupanna, hafi verið bein og milliliðalaus og án þátttöku ákærða. Öll skjalagerð, sem hafi verið margvísleg og náð yfir mörg félög í þeirra eigu, hafi verið bein og milliliðalaus milli bankans og þeirra. Í eitt skipti hafi ákærði áframsent skjöl í tölvupósti en þau líka farið eftir formlegri leið lögmanna sheikanna til bankans. Ákærði hafi engin samskipti átt við nokkurn stjórnarmann bankans vegna fjármögnunar á kaupum Sheikh Mohamed á 5,01 % hlut í bankanum. Ákærði hafi aldrei rætt við lánanefndarmenn eða stjórnarmenn bankans. Ákærði hafi einungis átt samskipti við meðákærða, Hreiðar Má. Ákærði hafi aldrei óskað eftir láni frá Kaupþingi banka hf. f.h. Gerlands Assets Ltd., og aldrei skrifað undir lánsfjárbeiðni. Ákærði hafi aldrei litið svo á að það væri verið að veita Gerlandi Assets Ltd. sjálfstætt lán, heldur einvörðungu verið að verða við beiðni bankans um að fjármagna sölu á hlutabréfum í bankanum, þannig að hægt væri að nýta fyrirliggjandi ábyrgð Sheikh Mohamed og takmarka áhættu hans á fjárfestingunni við 50%, eins og tilboð bankans hafi kveðið á um.
Ákærði hafi talið þessi viðskipti milli bankans og Sheikh Mohamed um hlutabréf í Kaupþingi banka hf. góð fyrir bankann. Ákærði hafi haft fulla trú á því að forstjóri bankans hefði umboð til þess að selja þessi hlutabréf í bankanum og fjármagna þau með þeim hætti sem hann sjálfur hafi lagt til. Ákærði hafi ekki séð neina áhættu fyrir bankann samfara þessum viðskiptum og þau einungis getað verið bankanum til hagsbóta. Ákærða hafi verið kynnt að bankinn hygðist fjármagna kaup Sheikh Mohamed á hlutabréfum að jafnvirði 200.000.000 evra, sem reynst hafi 180.000.000 evra, gegn 100.000.000 evra sjálfskuldarábyrgð Sheikh Mohamed, sem reynst hafi 90.000.000 evra. Ákærði hefði samþykkt að þessi fjármögnun mætti flæða í gegnum þau fyrirtæki sem sett hefðu verið á stofn í tengslum við fjárfestingarsjóð ákærða, Sheikh Sultan og Sheikh Mohamed. Að öðru leyti hafi ákærði ekki komið að tæknilegri útfærslu kaupanna og ekki verið um hana kunnugt. Hafi einhverjum vinnuferlum, frágangi skjala, eða samþykktum í nefndum og ráðum Kaupþings banka hf. verið ábótavant, hafi það verið eitthvað sem ákærði hafi enga vitneskju haft um og ekki haft aðstöðu til að hafa vitneskju um það. Ákærði kvaðst fyrst hafa séð svonefndan strúktúr að viðskiptum Sheikh Mohamed með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. á rannsóknarstigi málsins. Ákærði kvaðst í viðskiptum við Kaupþing banka hf. aldrei hafa lagt fram persónuleg veð fyrir persónulegum fjárfestingum sínum. Þegar um félög í eigu ákærða hafi verið að ræða hafi ávallt verið lagðar fram tryggingar eða veð. Lán til Gerlands Assets Ltd. hafi verið sérstakt að þessu leyti, en lánið hafi einungis verið til 90 daga og átt að greiðast upp þegar Sheikh Mohamed myndi leggja fram aðrar tryggingar fyrir láninu. Það skyldi þar með hreinsað úr strúktúrnum en þá tækju við ný lán sem yrðu veðtryggð til þriggja ára. Fjárhagsleg áhætta vegna viðskipta með hlutabréfin hafi öll verið hjá Sheikh Mohamed. Félagið Gerland Assets Ltd. hafi getað tapað á þessum viðskiptum. Það hafi í raun orðið niðurstaðan því slitastjórn Kaupþings banka hf. hafi tekið félagið yfir. Hefði bankinn verið með verðmæti í höndum sem hafi verið undirliggjandi hlutabréf í Kaupþingi banka hf., hefði verið gengið eftir því. Það hafi ekki verið gert því hlutabréfin hafi orðið verðlaus. Ekki hafi staðið til að Gerland Assets Ltd. færi af stað í sín fjárfestingarverkefni á meðan lán til félagsins hafi verið áhvílandi á félaginu. Þegar því yrði aflétt hafi átt að fara af stað með Sheikh Sultan og Sheikh Mohamed í gegnum félög þeirra. Ákærði kvaðst ekki viss, eftir að hafa séð framburð Sheikh Sultan og Sheikh Mohamed, við lögreglurannsókn málsins, að þeir hafi vitað að skipulag í gegnum fjárfestingarsjóð þeirra og ákærða yrði notað til að koma lánsfénu frá Kaupþingi banka hf. til kaupanda bréfanna, Q Iceland Finance ehf. Það gæfu svör þeirra hjá lögreglu til kynna.
Ákærði kvaðst ekki hafa séð svokallaða glærukynningu sem starfsmenn Kaupthing Bank Luxembourg S.A. hefðu unnið að í tengslum við viðskiptin með hlutabréfin í Kaupþingi banka hf. Bjarnfreður Ólafsson lögmaður hafi ekki tekið þátt í vinnu við þennan strúktúr sem lögmaður eða ráðgjafi ákærða. Bjarnfreður hafi hins vegar á sínum tíma aðstoðað ákærða og fjölskyldu hans við flutning til London vegna skattalegra mála, sem hafi verið flókin. Eggert Hilmarsson, yfirlögfræðingur Kaupthing Bank Luxembourg S.A., og Bjarnfreður Ólafsson hafi sjálfsagt verið að huga að skattalegum atriðum í sambandi við þessi viðskipti. Það hafi sjálfsagt leitt af sér einhvern misskilning varðandi það að ákærði ætti í gegnum Gerland Assets Ltd. að njóta einhvers hagnaðar af kaupum á bréfum í Kaupþingi banka hf. Svo hafi hins vegar ekki átt að vera. Ákærði hafi ekki verið að taka hagnaðartengt lán með þessum viðskiptum. Þá hafi vinna þessara lögfræðinga augljóslega verið á vinnslustigi þar sem gögn hafi borið með sér að vera vinnuskjöl. Ákærði kvaðst ekki þekkja til umræðu um að flagga þyrfti aðkomu ákærða að þessum viðskiptum. Hafi hann ekki verið inni í neinni umræðu um slíkt. Að því er varðaði viðtal við ákærða í Kastljósi 19. janúar 2009 hafi ákærði rætt vítt og breytt um viðskipti Sheikh Mohamed með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. Ákærði hafi talið að Sheikh Mohamed hafi tapað verulegum fjármunum í þessum viðskiptum. Ákærði kvaðst ekki kannast við að hafa gefið nein fyrirmæli um að lán til félagsins Brook Trading Ltd. skyldi notað til að greiða upp lán Serval Trading Group Corp. Hafi ákærði að engu leyti komið að þeirri ákvörðun. Þá vissi ákærði ekki hver hafi átt frumkvæðið að því. Sheikh Sultan hafi komið að máli við ákærða og viljað gera upp eftirstöðvar af láni til Serval Trading Group Corp. Seðlabanki Íslands hafi verið lokaður og lánið í íslenskum krónum. Sheikh Sultan hafi vantað íslenskar krónur og spurt ákærða hvort ákærði gæti gengið frá láninu. Hafi ákærði samþykkt það og greitt 401.000.000 króna. Ákærði kvaðst kannast við fréttatilkynningu er Kaupþing banki hf. hafi sent frá sér við kaup Sheikh Mohamed á 5.01% hlut í Kaupþingi banka hf. Ákærði kvaðst þeirrar skoðunar að fréttatilkynningin hafi gefið rétta mynd af kaupum á hlutabréfum í bankanum. Aldrei hafi verið rætt við ákærða um að koma þyrfti fram í tilkynningunni aðkoma ákærða að viðskiptunum. Hafi ákærði talið að ekki þyrfti í tilvikum sem þessum að geta um fjármögnun kaupa hlutabréfa. Ákærði kvaðst sjálfur ekki hafa látið frá sér efni í tilkynninguna. Ákærði hafi setið fund með meðákærða, Magnúsi, og Simon Southall í London að morgni 20. september 2008. Þar hafi tilkynninguna borið á góma. Ákærði hafi hins vegar ekki verið textahöfundur að tilkynningunni. Meðákærði, Magnús, hafi afhent Simon Southall gögn. Á fundinum hafi komið fram ósk frá Simon um að meðákærði, Magnús, myndi beita sér fyrir því að Kaupthing Bank Luxembourg S.A. myndi opna eignarhaldsfélag fyrir sheikana á Kýpur vegna annarra viðskipta. Einnig hafi verið rætt um fréttatilkynningu. Næsta dag hafi Simon farið til Doha. Ákærði hafi fengið tölvupóst frá samskiptasviði Kaupþings banka hf. þar sem fullsköpuð fréttatilkynning hafi legið fyrir. Ákærði hafi ekki talið í sínum verkahring að taka afstöðu til hennar. Hafi ákærði gert það eina sem hann hafi getað, sem hafi verið að reyna að hringja í Simon Southall. Þar sem ekki hafi verið hægt að ná í Simon, þar sem hann hafi verið í flugi, hafi ákærði hringt í lögmann þeirra, Guðmund Oddsson. Guðmundur hafi engar athugasemdir gert. Þar með hafi afskiptum ákærða af tilkynningunni lokið. Að því er varðaði ummæli ákærða samkvæmt c lið IV. kafla ákæru kvaðst ákærði þeirrar skoðunar að ummælin hefðu verið rétt. Ummælin hafi gefið rétta mynd af viðskiptum.
Ákærði, Magnús Guðmundsson, kvaðst hafa komið til starfa hjá Kaupþingi banka hf. á árinu 1994. Fjórum árum síðar, eða 1998, hafi ákærði flutt búferlum til Lúxemborgar til þess að stofna fyrsta dótturfyrirtæki Kaupþings banka á erlendri grundu, Kaupthing Bank Luxembourg S.A. Hafi ákærði veitt því dótturfyrirtæki forstöðu í áratug eða þar til að bankinn hafi farið í greiðslustöðvun, eins og aðrar einingar innan Kaupþings samstæðunnar. Í september 2008 hafi í stjórn Kaupthing Bank Luxembourg S.A. setið meðákærðu, Hreiðar Már og Sigurður, og Björn Jónsson. Kaupthing Bank Luxembourg S.A. hafi verið stór alþjóðlegur banki með útibú í Belgíu og Sviss. Einkabankaþjónusta hafi verið meginstarfsemin, en í tengslum við hana verið veitt ráðgjöf varðandi uppsetningu eignarhaldsfélaga. Meðan á greiðslustöðvun Kaupthing Bank Luxembourg S.A. hafi staðið hafi ákærði í 9 mánuði unnið með skilanefnd bankans við það að endurskipuleggja bankann og tryggja hag kröfuhafa. Hafi ákærði unnið náið með Fjármálaeftirlitinu í Lúxemborg, Seðlabanka Lúxemborgar og Seðlabanka Evrópu. Einnig hafi ákærði unnið með skilanefnd og þeim kröfuhöfum sem komið hafi að bankanum. Þegar þessari vinnu hafi lokið hafi bankinn verið endurreistur sem Bank Haveland. Hafi ákærði starfað sem bankastjóri þess banka allt þar til að ákærði hafi verið handtekinn af sérstökum saksóknara í maí 2010 í tengslum við rannsókn þessa máls. Ákærði kvaðst í starfi sínu sem framkvæmdastjóri Kaupthing Bank Luxembourg A.S. ekki hafa haft neinar heimildir gagnvart móðurfélaginu á Íslandi. Þannig hafi ákærði ekki getað gefið einstökum starfsmönnum Kaupþings banka hf. á Íslandi fyrirmæli, né ritað undir skjöl á Íslandi í bankanum svo skuldbindandi væri fyrir hann. Ekki hafi ákærði þekkt til lánareglna í Kaupþingi banka hf., en þær reglur hafi verið frábrugðnar þeim sem gilt hafi í Lúxemborg.
Einhverjum fáum dögum fyrir 15. september 2008 hafi ákærði fyrst frétt af fyrirhugaðri fjárfestingu Sheikh Mohamed Al Thani í hlutabréfum í Kaupþingi banka hf. Verið geti að það hafi verið dagana 8. eða 9. september. Ákærði kvaðst hafa verið í hádegismat í London með meðákærðu, Hreiðari Má og Ólafi, þar sem meðákærði, Hreiðar, hafi greint frá því að til stæði að Sheikh Mohamed myndi kaupa bréf í bankanum. Fyrir þann tíma hafi ákærða verið ljóst að til hafi staðið af hálfu Sheikh Mohamed að taka þátt í kaupum á skuldabréfi gefnu út af Deutsche Bank með afleiðutengda skuldatryggingu á Kaupþing banka hf. Ákærði kvaðst ekki vita hver hafi átt hugmynd að viðskiptum við Sheikh Mohamed. Ákærði kvaðst hafa frétt frá meðákærða, Hreiðari Má, að til stæði að senda fulltrúa bankans til Katar vegna viðskiptanna. Hafi ákærði sóst eftir því að fara í þá ferð þar sem ákærði hafi séð tækifæri í því að ná auðugum manni í einkabankaþjónustu Kaupthing Bank Luxembourg S.A. Ákærði, ásamt meðákærða, Ólafi, hafi haldið til Katar og lent að morgni dags. Á meðan beðið hafi verið eftir því að sól settist í Katar, hafi ákærði fundað með forstjóra Kaupþings í Katar. Um kvöldið hafi ákærðu og Sheikh Sultan Al Thani farið til fundar við Sheikh Mohamed. Hlutverk ákærða í ferðinni hafi verið að fá Sheikh Mohamed í einkabankaþjónustu við Kaupthing Bank Luxembourg S.A. og bera til hans skjöl sem gerð hefðu verið í lögfræðideild bankans í Lúxemborg. Hafi ákærði haft þá tilfinningu að viðskiptin hefðu þegar verið komin á er ákærði hafi komið til fundar við Sheikh Mohamed. Hafi ákærði skynjað það svo að Sheikh Mohamed ætlaði að ganga til viðskipta um kaup á hlutabréfunum. Hafi ákærði ekki þurft að útskýra fyrir honum neitt varðandi viðskiptin. Hinn svokallaði strúktúr viðskiptanna hafi ekki verið kynntur á þessum fundi. Kynning sem Eggert Hilmarsson, yfirlögfræðingur Kaupthing Bank Luxembourg S.A., hefði verið búinn að undirbúa hafi t.a.m. ekki verið kynnt. Fundurinn hafi verið stuttur og staðið í 5 til 10 mínútur. Um hafi verið að ræða eins konar kurteisisfund. Áður en ákærði hafi komið til fundarins hafi meðákærði, Ólafur, átt fund með Sheikh Mohamed og Sheikh Sultan. Ákærði kvaðst þess fullviss að Sheikh Mohamed hafi vitað um aðkomu meðákærða, Ólafs, að viðskiptunum. Í þeim skjölum er ákærði hafi afhent á þessum fundi hafi það komið fram. Í hluthafasamþykkt fyrir Serval Trading Group Corp., sem hafi verið eitt af þeim skjölum sem Sheikh Mohamed hafi þurft að undirrita, hafi komið fram hvernig láni frá Kaupþingi banka hf. skyldi ráðstafað og nöfn félaga í því tilliti komið fram. Þar hafi komið fram um fjárfestingarfélag meðákærða, Ólafs. Kvaðst ákærði þeirrar skoðunar að ekki hafi nægjanlega skýrt komið fram í skýrslum er lögregla hefði tekið af Sheikh Mohamed og Sheikh Sultan að hvaða marki þeir hafi vitað af aðkomu meðákærða, Ólafs, að viðskiptunum. Lögregluyfirheyrslan hafi ekki verið nægjanlega vönduð að því leyti. Meðákærði hafi tjáð ákærða að á fundi meðákærða með Sheikh Mohamed og Sheikh Sultan hafi verið rætt um sameiginleg fjárfestingarverkefni þeirra þriggja. Ákærði kvaðst hafa verið í sambandi við meðákærða, Hreiðar Má, vegna fararinnar en meðákærði hafi beðið ákærða um að fara þessa ferð. Eins hafi ákærði verið í sambandi við meðákærða, Sigurð, vegna fararinnar. Þeir báðir hafi viljað vita um niðurstöðu fundarins. Ákærði kvaðst telja að hann hefði verið með í fórum sínum á leið sinni á fundinn drög að skjölum vegna þessara fyrirhuguðu viðskipta. Hafi ákærði reiknað með að þurfa að fara með Sheikh Mohamed yfir skjölin á fundinum og því undirbúið þau með hliðsjón af því. Um hafi verið að ræða svonefnd opnunarskjöl viðskipta. Skjölin hafi hins vegar verið sett til hliðar á fundinum og sagt að lögmenn myndu í framhaldi sjá um skjölin. Ákærðu hafi flogið til baka frá Katar samdægurs, eða 16. september 2008. Við komu til Lúxemborgar hafi lögfræðideild bankans tekið til við að vinna áfram að gerð skjalanna. Ákærði hafi farið til London að morgni 19. september 2008. Næsta dag, eða 20. september 2008, hafi ákærði hitt á fundi meðákærða, Ólaf, og lögfræðilegan ráðgjafa Sheikh Mohamed, Simon Southall. Fundurinn hafi verið á skrifstofu meðákærða í London. Hlutverk ákærða á fundinum hafi verið að afhenda Simon Southall skjölin sem komin hafi verið í endanlega mynd. Á meðal þessara gagna hafi verið sjálfskuldarábyrgð fyrir Sheikh Mohamed til að rita undir í tengslum við viðskiptin. Simon Southall hafi átt að fara til Katar með skjölin til að afla nauðsynlegra undirritana og senda þau til baka. Það hafi gengið eftir og skjölin síðar borist til Lúxemborgar.
Ákærði kvaðst ekki hafa farið þess á leit við Eggert Hilmarsson, yfirmann lögfræðideildar Kaupthing Bank Luxembourg S.A., að hann hannaði svokallaðan strúktúr að viðskiptunum. Eggert hafi verið yfir lögfræðisviði bankans og ákærði hans næsti yfirmaður. Ákærði hafi gefið Eggerti grófa hugmynd að viðskiptum Sheikh Mohamed með hlutabréf í bankanum. Ákærði hafi sagt að stofna ætti sameiginlegt fjárfestingarfélag Sheikh Mohamed og meðákærða, Ólafs. Kaupþing banki hf. myndi lána 50.000.000 Bandaríkjadala vegna kaupa á skuldabréfum útgefnum af Deutsche Bank tryggðum með CLN. Þetta hafi verið stóra myndin. Eggert hafi í framhaldi farið að vinna að þessum viðskiptum og átt mörg samskipti við lögmennina Bjarnfreð Ólafsson og Thelmu Halldórsdóttur. Ákærði hafi hins vegar ekki gefið Eggerti nákvæm fyrirmæli varðandi fyrirkomulagið. Í þeim strúktúr sem Eggert hafi sett upp hafi síðar komið fyrir hagnaðartengt lán tengt viðskiptunum. Það hafi verið eitthvað sem Eggert hafi komið inn með sjálfur. Ákærði hafi ekki gefið nein fyrirmæli um slíkt. Væri það í raun það eina sem rangt væri við þá glærukynningu sem fram hafi komið við rannsókn málsins hjá lögreglu. Ákærði hafi í raun ekki gefið fyrirmæli um að hanna ætti einhvern strúktúr. Fyrirmælin hafi einungis lotið að grófri hugmynd að viðskiptunum. Eggert hafi án vafa sett viðskiptin upp þannig að sem hagstæðast væri fyrir viðskiptavini bankans. Þessi strúktúr hafi ekki verið sýndur Sheikh Mohamed. Ákærði kvaðst ekki muna hvort hann hafi leiðrétt þetta atriði í samtölum við Eggert. Þrátt fyrir aðkomu meðákærða, Ólafs, að viðskiptunum hafi meðákærði ekki átt að fá neinn hagnað af viðskiptunum. Félag hans hafi einungis verið notað sem milliliður við að koma lánsfé frá Kaupþingi banka hf. til fjárfestingarfélags á Kýpur, sem aftur hafi komið fénu til Q Iceland Finance ehf., sem keypt hafi hlutabréfin í Kaupþingi banka hf. Hagur meðákærða, Ólafs, af þessum viðskiptum hafi sjálfsagt verið fólginn í því að sterkur fjárfestir hafi keypt umtalsverðan hlut í bankanum, sem meðákærði hafi átt stóran hluta í. Á engan hátt hafi verið leynt aðkomu meðákærða, Ólafs, að kaupunum. Ákærði kvaðst ekki vita ástæðu þess að Bjarnfreði Ólafssyni lögmanni hafi verið blandað í vinnu við gerð viðskiptanna. Að því er varðaði flöggunarskyldu hafi lögfræðideild Kaupthing Bank Luxembourg S.A. verið mjög varkár er komið hafi að slíkum atriðum. Af þeim ástæðum hafi deildin látið kanna sérstaklega um skyldu til flöggunar. Ákærði kvaðst ekki þekkja ástæðu þess að Sheikh Sultan hafi komið inn í strúktúrinn á síðari tímum. Án þess að ákærði myndi það væri ekki útilokað að ákærði hafi verið milligöngumaður um að koma upplýsingum um það atriði til Eggerts Hilmarssonar. Uppfæra hafi þurft skjöl sem útbúin hafi verið miðað við þær upplýsingar. Upplýsingar um þetta atriði geti hafa komið frá Simon Southall eða meðákærða, Ólafi.
Meðákærði, Heiðar Már, hafi sent fundarboð um símafund 18. september 2008. Ákærði kvaðst ekki geta staðfest að hafa verið á fundinum, þó svo gögn málsins bentu til þess. Ákærði hafi sennilega verið í Lúxemborg á þessum tíma. Ákærði kvaðst kannast við lán sem Kaupþing banki hf. hafi veitt Brooks Trading Ltd. í september 2008, að fjárhæð 50.000.000 bandaríkjadalir. Ákærði hafi sent meðákærða, Hreiðari Má, upplýsingar um hver ætti að vera lántaki að láni til Sheikh Mohamed. Lánið hafi verið tengt CLN-viðskiptum sem Sheikh Mohamed hafi áformað að ráðast í. Útreiknaður hagnaður af þeim lánum hafi að lágmarki verið 50.000.000 Bandaríkjadala. Það hafi verið reiknað út. Það hafi leitt til rangrar hugtakanotkunar sem m.a. hafi komið fram í öðrum tölvupóstsamskiptum síðar. Þetta tiltekna lán hafi hins vegar verið venjulegt lán sem viðskiptastjórinn Halldór Bjarkar Lúðvígsson hafi afgreitt með lánsbeiðni til lánanefndar stjórnar með beiðni um afgreiðslu á láni til félagsins Brooks Trading Ltd. Lánið hafi átt að vera tryggt, en það hafi komið fram í lánsbeiðninni, með veði í skuldabréfum útgefnum af Deutsche Bank, tengt skuldatryggingarálagi Kaupþings banka hf. Um hafi verið að ræða örugg viðskipti, því annað tveggja hafi þurft að koma til svo tap yrði á viðskiptunum; fall Deutsche Bank eða Kaupþings banka hf. Ákærði ætti sök á því að röng hugtakanotkun hafi farið af stað varðandi þetta lán. Aldrei hafi staðið til að um væri að ræða hagnaðartengt lán. Kaupthing Bank Luxembourg S.A. hafi útvegað félagið Brooks Trading Ltd., svo sem venja hafi staðið til í þjónustu við viðskiptavini. Fyrirtækjaráðgjafi á Bresku Jómfrúaeyjum hafi stofnað félagið. Starfsmenn lögfræðisviðs Kaupthing Bank Luxembourg S.A. hafi örugglega hringt í Karim Van Den Ende og sagt að það vantaði félag fyrir viðskipti sem ættu að eiga sér stað. Ákærði hafi sjálfur ekki verið í sambandi við Karim vegna málsins. Hafi bankinn oft útvegað félög fyrir viðskiptavini bankans. Ákærði hafi gefið Eggerti Hilmarssyni fyrirmæli um að útvega félög tengd viðskiptum með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. Lán til Brooks Trading Ltd. hafi ekki verið þóknun til handa Sheikh Mohamed fyrir að kaupa hlutabréfin í Kaupþingi banka hf. Ákærði kvaðst ekki hafa litið svo á að innstæða á reikningi Brooks Trading Ltd., eftir að andvirði lánsins hafi verið greitt inn á reikning félagsins, væri því laust til ráðstöfunar. Í skjölum sem lögð hafi verið inn til lánanefndar stjórnar vegna lánveitingarinnar hafi komið fram að lánið yrði tryggt með veði í CLN-viðskiptunum. Ákærði kvaðst ekki þekkja ástæður þess að lán til Brooks Trading Ltd. hafi verið notað til að greiða upp lán Serval Trading Group Corp. 8. október 2008. Hafi ákærði ekkert komið að þeirri ráðstöfun. Ákærði kvaðst líta svo á að í þeim tilvikum sem starfsmenn Kaupthing Bank Luxembourg S.A. hafi setið í stjórn félaga sem sett hefðu verið á stofn af bankanum og lánað til, hafi starfsmennirnir haft að leiðarljósi hagsmuni bankans og látið þá ganga framar öðru. Ákærði kvaðst telja að brotið hafi verið gegn lögum með ráðstöfun fjármuna á grundvelli lánsins til Brooks Trading Ltd. til greiðslu lánsins til Serval Trading Group Corp. 8. október. Félagið hafi ekki getað ráðstafað fénu að eigin vild. Félagið hafi verið bundið af reglum hlutafélagalaga. Sheikh Mohamed hafi átt að bera alla áhættu af viðskiptum með bréf í Kaupþingi banka hf. enda eigandi félagsins Q Iceland Finance ehf. Enginn hagnaður hafi átt að renna til meðákærða, Ólafs. Ákærði kvaðst ekki vita hver hefði tekið ákvörðun um að veita félaginu Gerland Assets Ltd. lán að fjárhæð 12.800.000.000 króna í september 2008. Þá hafi ákærði ekki þekkt hvaða lánsform hafi verið notað varðandi lánið. Ákærði hafi hins vegar vitað að umrætt félag hafi verið hluti af sameiginlegu fjárfestingarfélagi Sheikh Mohamed, Sheikh Sultan og meðákærða, Ólafs. Ekki hafi verið nein leynd yfir láni Kaupþings banka hf. til þessa félags.
Fundur hafi verið haldinn á skrifstofu meðákærða, Ólafs, í London. Á þeim fundi hafi verið ákærði, ásamt meðákærða og Simon Southall, lögmanni Sheikh Mohamed. Á fundinum hafi verið rætt stuttlega um hvers konar tilkynning myndi koma fram af hálfu Kaupþings banka hf. vegna hlutabréfakaupanna og hvað væri heimilt að nýta frá Sheikh Mohamed í þeirri tilkynningu. Síðan hafi ákærði ekki vitað meira um það atriði fyrr en Jónas Sigurgeirsson, yfirmaður samskiptasviðs Kaupþings banka hf., hafi hringt í ákærða. Þá hafi meðákærði, Hreiðar Már, verið búinn að hringja í Jónas og sagt að til stæði að Sheikh Mohamed myndi kaupa hlutabréf í bankanum. Ákærði hafi sent á Jónas grunnupplýsingar um kaupin, svo sem varðandi nafn kaupandans. Á þeim tíma hafi legið fyrir drög nr. 2 af tilkynningunni, en þar hafi verið misfarið með nafn kaupandans. Fréttatilkynningin hafi verið á ábyrgð samskiptasviðs Kaupþings banka hf. Ekkert rangt hafi hins vegar verið í tilkynningunni. Ákærða hafi verið annt um að ekkert rangt væri í henni og því beðið um það sérstaklega að fá að sjá lokaeintak hennar til að ákærði gæti verið viss um að tilvitnanir í Sheikh Mohamed væru réttar. Hafi það verið í samhengi við það sem rætt hafi verið um á fundinum með Simon Southall og meðákærða, Ólafi, í London. Hafi ákærði hringt í meðákærða, Ólaf, og meðákærði fengið lokaeintak af tilkynningunni. Hann hafi borið hana undir einhvern fyrir hönd Sheikh Mohamed. Ákærði kvaðst þeirrar skoðunar að tilkynningin hafi gefið rétta mynd af þeim viðskiptum sem átt hafi sér stað. Ekki hafi verið venjan að geta um fjármögnun kaupa í viðlíka tilfellum.
Eggert J. Hilmarsson kvaðst hafa verið framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Kaupthing Bank Luxembourg S.A. í september 2008. Næstu yfirmenn hans hafi verið bankastjórar bankans, ákærði, Magnús, og Björn Jónsson. Fyrirmæli til Eggerts vegna starfa í bankanum hafi einkum komið frá bankastjórunum tveim. Bankinn hafi á þessum tíma verið með mjög marga viðskiptavini í einkabankaþjónustu. Í upphafi hafi bankinn verið nánast einvörðungu með einkabankaþjónustu, en síðar þróast út í fyrirtækjaþjónustu til viðbótar. Hlutverk lögfræðisviðs bankans hafi verið stuðningur við einkabankaþjónustuna. Í því hafi meðal annars verið fólgið að setja upp félög og yfirferð skattalegra atriða fyrir viðskiptavini. Undir lok starfseminnar hafi Eggert verið með um 20 starfsmenn í sinni deild. Á þeim tíma hafi deildin verið orðin umsvifameiri en áður en til viðbótar hafi komið umsýsla með verðbréfasjóði og eignarhaldsfélög. Lögfræðideildin hafi ýmist séð um að stofna félög fyrir viðskiptavini sína eða að afla félaganna fyrir utan bankann. Sömuleiðis hafi þjónustuaðilar utan bankans getað gert það. Starfsmenn bankans hafi getað stofnað félög í Lúxemborg, en ef stofna hafi þurft félög í öðrum löndum hafi þurft að fá þjónustuaðila til þess. Ákærði, Magnús, hafi á fyrri stigum sjálfur haft með höndum slíka vinnu fyrir viðskiptavini bankans, en á síðari tímum hafi sú vinna færst yfir á lögfræðisviðið. Að því er varðaði stofnun félaga vegna kaupa Sheikh Mohamed Al Thani á hlutafé í Kaupþingi banka hf. hafi verið um tíðkaða starfsemi að ræða sem ekki hafi verið frábrugðin annarri sams konar vinnu starfsmanna bankans.
Að því er varðaði lán til félagsins Brooks Trading Ltd. í september 2008, hafi Kaupþing banki hf. á Íslandi veitt það lán. Lánsskjöl vegna viðskiptanna hafi verið dregin upp í Kaupþingi banka hf. Hafi starfsmenn Kaupthing Bank Luxembourg S.A. engar heimildir eða boðvald haft gagnvart Kaupþingi banka hf. til að mæla fyrir um lánveitingar fyrir hönd bankans. Ekki hafi starfsmenn Kaupthing Bank Luxembourg S.A. getað stýrt útgreiðslu lána Kaupþings banka hf. Þá hafi það ekki verið hlutverk starfsmanna Kaupthing Bank Luxembourg S.A. að hafa eftirlit með því að starfsmenn Kaupþings banka hf. færu eftir réttum lánareglum við afgreiðslur lána. Lánið til Brooks Trading Ltd. hafi í raun verið peningamarkaðslán, en samskipti á þessum tíma milli Kaupþings banka hf. á Íslandi og Kaupthing Bank Luxembourg S.A. hafi gefið til kynna að um hafi verið að ræða fyrir fram greiddan hagnað af svonefndum CLN-viðskiptum. Upphaflega hafi félagið Brooks Trading Ltd. verið sett upp í þeim tilgangi að vera aðili að CLN-viðskiptum, en þau hefðu ekki gengið í gegn og greiðslan því verið veitt áður en viðskiptin voru sett í gang. Ákærði kvaðst ekki þekkja frá hverjum hafi komið að lánið yrði skilgreint sem fyrir fram greiddur hagnaður. Eggert kvaðst ekki hafa verið í vinnu sinni á starfsstöð í Lúxemborg 19. september 2008 er lán til Brooks Trading Ltd. hafi verið greitt út. Hann hafi hins vegar þekkt til þess að gengið hafi verið frá undirritun nauðsynlegra skjala varðandi lánveitinguna þá dagana. Ákærði kvaðst hins vegar ekki geta fullyrt hvort lánið hafi verið greitt út áður en nauðsynleg skjöl hafi verið undirrituð vegna lánveitingarinnar. Kaupthing Bank Luxembourg S.A. hafi gengið frá hluthafasamþykkt fyrir félagið Brooks Trading Ltd. fyrir eigandann, Sheikh Mohamed, til að rita undir. Í samþykktinni hafi komið fram að lánið skyldi vera án trygginga og lánsformið vera peningamarkaðslán. Upplýsingar um þessi atriði hafi væntanlega komið frá lánveitanda, Kaupþingi banka hf. Á þessum tíma hafi starfsmenn bankans í Lúxemborg unnið með starfsmönnum Kaupþings banka hf. að málinu. Um hafi verið að ræða starfsmennina Sölva Sölvason og Löru Schweiger frá Lúxemborg og viðskiptastjórana Halldór Bjarkar Lúðvígsson og Guðmund Þór Gunnarsson frá Kaupþingi banka hf. Þessir aðilar hafi starfað mest í kringum skjalagerð og uppsetningu viðskipta. Eggert kvaðst ekki geta svarað því af hverju komið hafi greiðslufyrirmæli um að leggja fjárhæðina inn á reikning Brooks Trading Ltd. í Lúxemborg en ekki á Íslandi. Inni á reikningi Brooks Trading Ltd. hafi verið unnt að velja svokallað ,,time deposit“. Sá tími hafi getað verið 3, 6 eða 12 mánuðir, allt eftir því um hvað hafi verið samið. Samkomulagsatriði hafi verið við bankann hvort hægt yrði að nota fjármunina á meðan þeir hafi verið bundnir með þessum hætti. Ef bankinn heimilaði notkun fjármunanna innan þessa tíma hefði það verið eiganda heimilt.
Að því er varðaði svonefnd CLN-viðskipti, hafi uppleggið ávallt verið þannig að um hafi verið að ræða tvö félög. Félagið Brooks Trading Ltd. hafi verið annað tveggja félaga í þessum viðskiptum. Mink Trading Corp. hafi verið móðurfélag Brooks Trading Ltd. Öll fyrirmæli er Eggert hafi fengið varðandi þessi viðskipti Brooks Trading Ltd. hafi komið frá ákærða, Magnúsi. Í tvígang áður hafi verið stofnað til CLN-viðskipta, en um hafi verið að ræða félögin Partraits og Chesterfield. Þau viðskipti hafi enn verið opin við fall bankans í október 2008 og því ekki reynt á hagnað í viðskiptunum. Aldrei hafi verið lokið við CLN-viðskipti tengd Brooks Trading Ltd. og Mink Trading Corp. Í hinum tilvikunum hafi ekki verið um það að ræða að hagnaður af viðskiptunum yrði greiddur út fyrir fram, hvorki í formi greiðslu né láns. Umræða á meðal starfsmanna bankans í Lúxemborg á þessum tíma sem tengst hafi málinu hafi verið á þann veg að starfsmönnum hafi þótt einkennilegt að verið væri fyrir fram að greiða út hagnað vegna CLN- viðskipta, þar sem viðskiptin hefðu ekki verið komin í hús.
Ákærðu, Ólafur og Magnús, hafi gengið frá viðskiptum við Sheikh Mohamed vegna kaupa Sheikh Mohamed á hlutabréfum í Kaupþingi banka hf. Í tölvupósti hafi ákærði, Ólafur, rætt um að ákærðu væru búnir með ,,helgarstubb“. Hafi ákærðu væntanlega verið að vísa til þess að þeir hafi fengið nauðsynlegar undirritanir á skjöl varðandi viðskipti með hlutabréfin, en um hafi verið að ræða hluthafasamþykktir, lánsskjöl og ábyrgðir. Að því er varðaði lánsformið kvaðst Eggert ekki hafa verið í sambandi við Sheikh Mohamed og því ekki vitað niðurstöðu samningaviðræðna við kaupanda. Starfsmenn bankans hafi einfaldlega fengið fyrirmæli um að þessi atriði skyldu vera með þessum hætti. Þau skilaboð hafi eins og áður segði komið í gegnum ákærða, Magnús. Sama hafi verið um atriði eins og að lánið skyldi ekki vera tryggt. Eggert kvaðst ekki hafa þekkt samspil lánveitingar til Brooks Trading Ltd. og lána til fjárfestingarfélaga vegna kaupa á hlutabréfum í Kaupþingi banka hf. þar sem Eggert hafi ekki verið aðili að samskiptum um kaupin.
Eggert kvaðst hafa verið á Íslandi 8. október 2008. Þann dag hafi hann fengið símhringingu frá ákærða, Ólafi, þar sem ákærði hafi verið ,,í öngum sínum“ yfir stöðu mála. Hafi ákærði spurt hvort til væru einhverjar lausnir til að fella niður ábyrgðir Sheikh Mohamed tengdar lánum til Serval Trading Group Corp. Hafi Eggert tjáð ákærða að Eggert hefði ekkert vald í þeim efnum. Í framhaldi hafi spunnist umræða um Bandaríkjadali sem Sheikh Mohamed hafi fengið greidda inn á reikning Brooks Trading Ltd. í Lúxemborg. Í kjölfarið hafi farið af stað vinna við að skoða hvort þessir fjármunir væru lausir til ráðstöfunar þar sem þeir hefðu á sínum tíma verið skilgreindir sem fyrir fram greiddur hagnaður. Fram hefði komið að fjármunirnir væru lausir til ráðstöfunar, en staðfesting hefði fengist frá starfsmönnum bankans í Lúxemborg á að svo væri. Um hafi verið að ræða starfsmennina Löru Schweiger og Björn Knútsson. Að auki hafi Eggert rætt þetta atriði við ákærða, Magnús. Hefði verið sameiginleg niðurstaða þessara aðila að fjármunirnir væru lausir til ráðstöfunar. Engar tryggingar eða veð hafi hamlað því. Í framhaldi hafi farið af stað vinna við að selja Bandaríkjadali á reikningum og kaupa fyrir þá krónur á markaðsgengi krónunnar. Hefði ákærði, Ólafur, óskað eftir að fjármunir Brooks Trading Ltd. yrðu notaðir til greiðslu á láninu til Serval Trading Group Corp. Stjórn Brooks Trading Ltd. eða Mink Trading Corp. hafi eftir vitneskju Eggerts ekki komið að þessari ákvörðun. Hafi Eggert síðan verið í sambandi við viðskiptastjórann Halldór Bjarkar Lúðvígsson vegna greiðslu fjármunanna. Hafi Halldór Bjarkar vitað um uppruna fjármunanna. Við að fá verð á gengi gjaldmiðla hafi Eggert verið í sambandi við Ólaf Frímann Gunnarsson, forstöðumann á millibankaborði í fjárstýringu Kaupþings banka hf., auk Guðnýjar Örnu Sveinsdóttur fjármálastjóra og Steingríms P. Kárasonar, framkvæmdastjóra áhættustýringar. Eggert kvaðst ekkert hafa komið að lánveitingu Kaupþings banka hf. til félagsins Gerland Assets Ltd. Fullt forræði á lánveitingu til félagsins og annarra, tengt kaupum á hlutabréfum í Kaupþingi banka hf., hafi verið hjá Kaupþingi banka hf. Aðkoma starfsmanna Kaupthing Bank Luxembourg S.A. að málinu hafi tengst undirbúningi og uppsetningu skjala tengdum viðskiptunum. Allar upplýsingar um kjör á lánum, lánsform og tryggingar hafi komið frá lánveitanda.
Að því er varðaði svonefndan strúktúr að baki viðskiptunum hafi upphafleg fyrirmæli varðandi uppsetningu kaupanna komið frá ákærða, Magnúsi, sem æðsta yfirmanns Eggerts. Ekki kvaðst Eggert minnast þess að hafa fengið fyrirmæli varðandi strúktúrinn frá ákærðu, Hreiðari Má eða Sigurði. Í upphafi hafi komið fyrirmæli um að tvö félög tækju lán og fjármögnuðu síðan annað félag eða ættu í öðru félagi. Uppsetningin hafi þróast. Ákærði, Magnús, hafi falið Eggerti að vinna að þessari uppsetningu í byrjun september 2008. Öll fyrirmæli innan úr bankanum varðandi uppsetningu strúktúrsins hafi komið frá ákærða. Vinnan hafi farið af stað í samstarfi við Bjarnfreð Ólafsson lögmann. Venja hafi staðið til þess að uppsetningar í viðlíka tilvikum hafi verið unnar þannig að starfsmenn bankans kæmu að þeim og fulltrúar viðskiptavina. Hafi Eggert litið á Bjarnfreð sem lögmann ákærða, Ólafs. Hafi það verið í ljósi þess að ákærði, Ólafur, hafi komið að þessum viðskiptum. Hafi Bjarnfreður virst hafa góða yfirsýn yfir hvernig strúktúrinn ætti að líta út. Hafi Eggerti skilist að lögmannsstofan Logos, þar sem Bjarnfreður hafi starfað, hafi unnið fyrir Sheikh Mohamed í öðru verkefni við uppsetningu á Q Iceland Finance ehf. Hafi Eggert tekið við fyrirmælum frá Bjarnfreði um hvernig strúktúrinn ætti að líta út. Ekki kvaðst Eggert geta svarað því hver hefði beðið Bjarnfreð um að sinna þessu verkefni. Eggert hefði ekki gert það.
Eggert kvaðst hafa útbúið svokallaða glærukynningu sem hann hafi sent ákærða, Magnúsi, í tölvupósti 15. september 2008. Það hafi verið vinnuregla hjá Eggerti að vinna með strúktúra til að allir er koma þyrftu að málum áttuðu sig betur á eignarhaldi, fjármagnsflæði o.s.frv. Upphaflegar forsendur í þessa kynningu hafi komið frá ákærða, Magnúsi, og síðan þróast í samvinnu við Bjarnfreð. Ef komið hefðu athugasemdir, t.d. frá ákærða, Magnúsi, hefði verið við þeim brugðist. Í kynningunni og strúktúrnum hafi komið fram að lán ætti að vera háð gengi hlutabréfa í Kaupþingi banka hf. Hafi Eggert fengið það upplegg í vinnuna að lán til Q Iceland Finance ehf. ætti að vera hagnaðartengt lán. Með því væri átt við að afkoma félagsins af fjárfestingunni myndi leiða til þess að vextir af láninu myndu hækka ef ávinningur fjárfestingarinnar yrði hærri. Myndi það endurspeglast til baka í láninu. Lánið myndi verða greitt í samræmi við skilmála þess. Hugmyndin væri sú að höfuðstóll lánsins yrði greiddur til baka til þess aðila sem veitti lánið. Þannig myndi greiðslan enda í höndum þess aðila sem upphaflega lánaði félaginu, annað hvort í formi vaxta eða arðs. Þær forsendur hafi komið í vinnu með Bjarnfreði Ólafssyni. Ekki mundi Eggert eftir því að ákærði, Magnús, hefði komið með þá forsendu. Ekki hafi verið búið að ganga frá einstökum atriðum varðandi hagnaðartenginguna er bankinn hafi fallið, eins og hversu hátt hlutfall af hagnaðinum hafi átt að streyma til félagsins. Sú vinna hafi öll verið í gangi. Eitt af félögunum hafi verið skrásett á Kýpur. Endurskoðunarskrifstofan Ernst & Young á Kýpur hafi verið að vinna að því að útfæra þetta í ljósi þess að félagið hafi verið skrásett þar. Þeirri vinnu hafi ekki verið lokið við fall bankans. Miðað við þá vinnu sem hafi verið í gangi hafi verið við það miðað að 90% af hagnaði fjárfestingarinnar ætti að renna til Choice Stay Ltd. Að því er 10% sem eftir stæðu varðaði yrði alltaf við hagnaðartengda vinnu sem þessa að hafa ákveðið gólf eða grunnvexti, þar sem ella myndu yfirvöld í viðkomandi ríki aldrei samþykkja strúktúra sem þessa. Vextir yrðu í raun einungis vextir og myndu greiðast sem slíkir. Afgangurinn yrði hagnaðartengdur. Eggert kvaðst hafa haft af því áhyggjur að flagga þyrfti aðkomu ákærða, Ólafs, að kaupunum. Ákærði hafi í raun verið það sem kallað væri ,,beneficial owner“, eigandi að félögum sem hafi verið lántaki og lántaki sem hefði ávinning af útkomu fjárfestingar í bréfum í Kaupþingi banka hf. Skoða þyrfti hvort það gæti haft áhrif á stöðu hans sem stórs hluthafa í bankanum. Hafi Eggert rætt þetta atriði við lögmann á lögfræðiskrifstofunni Logos, sem skoðað hafi málið. Niðurstaða þessa lögmanns hafi verið að ekki þyrfti að flagga aðkomu ákærða eins og strúktúrinn væri settur upp. Að því er varðaði félög, sem síðar urðu Gerland Assets Ltd. og Serval Trading Group Corp., sem bætt hefði verið ofan á strúktúrinn í seinni útgáfum, hafi hugmyndir um þá viðbót komið frá Bjarnfreði Ólafssyni. Hafi það verið afrakstur vinnu á lögmannsstofunni Logos, að félög ættu að vera inni í strúktúrnum. Eggert kvaðst ekki þekkja forsendur þess að ástæða hafi þótt til að bæta félögunum inn. Eggert kvaðst hafa átt fund með ákærða, Ólafi, í Lúxemborg um strúktúrinn og viðbótarverkefni sem ætlunin hafi verið að setja af stað í tengslum við þessar fjárfestingar. Hafi ákærði óskað eftir því, eftir þann fund, að Thelma Halldórsdóttir fengi ekki að vita um að félag ákærða hefði fengið að láni frá Kaupþingi banka hf. 150.000.000 evra. Ekki hefði verið óvenjulegt að viðskiptavinur óskaði eftir einhverju sérstöku á þessum nótum. Starfsmenn Kaupthing Bank Luxembourg S.A., þau Eggert, Sölvi Sölvason og Lara Schweiger, hafi ekki þekkt efni fjárfestinga Sheikh Mohamed að því leyti að Kaupþing banki hf. væri að fjármagna kaup á hlutabréfum í eigu bankans. Þau hafi í raun ekki vitað hver væri mótaðili Sheikh Mohamed í viðskiptunum fyrr en um það leyti er viðskiptin hefðu átt sér stað. Sá strúktúr sem starfsmenn Kaupthing Bank Luxembourg S.A. hafi sett upp varðandi kaup á hlutafé hafi verið hluti af öðru. Ætlunin hafi verið að annað kæmi inn í framhaldi af kaupum á hlutabréfunum. Gert hafi verið ráð fyrir öðrum fjárfestingum. Í tengslum við þann strúktúr er Eggert hafi teiknað upp hafi hins vegar einungis verið gert ráð fyrir kaupum á hlutabréfum í Kaupþingi banka hf. Spurður um símtal er Eggert hafi átt þar sem hann hafi sagt að uppsetning á strúktúrnum hafi verið til að forða því að flagga þyrfti ákærða, Ólafi, hafi virst sem átt hafi að láta strúktúrinn vera með þeim hætti til að ákærði, Ólafur, hefði ekki ,,control“ á bréfunum og væri því væntanlega ekki flöggunarskyldur. Eins hafi Eggert viðhaft orðatiltækið að ,,lengja í lúpunni“ en með því hafi hann verið að segja að hafa þyrfti ákærða, Ólaf, ofar í keðjunni.
Bjarnfreður Ólafsson kvaðst hafa verið í stjórn Kaupþings banka hf. frá árinu 2003 allt þar til bankinn hafi fallið í október 2008. Þá hafi hann átt sæti í lánanefnd stjórnar bankans. Viðskipti Sheikh Mohamed með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. hafi átt langan aðdraganda. Bankinn hafi opnað skrifstofu í Katar 2007. Hafi lengi verið unnið að því að fá fjárfesta frá þessum heimshluta til að fjárfesta í bankanum og koma þannig inn í hluthafahópinn. Viðskiptin við Sheikh Mohamed hafi verið í samræmi við stefnu og markmið bankans. Bjarnfreður kvaðst hafa setið stjórnarfund í Kaupþingi banka hf. dagana 25. og 26. september 2008. Þar hafi verið tilkynnt um viðskipti Sheikh Mohamed og mikil ánægja verið með þau innan stjórnar. Á stjórnarfundum hafi ekki verið farið yfir einstök lánamál. Á þessum fundi hafi verið farið yfir lausafjárstöðu bankans sem, þrátt fyrir ástand á alþjóðlegum fjármálamörkuðum, hafi þótt góð. Bjarnfreður kvaðst hafa setið fund lánanefndar stjórnar 24. september 2008 er lán til félagsins Brooks Trading Ltd. hafi verið tekið fyrir og samþykkt. Hafi Bjarnfreður gert sér ljóst að Kaupþing banki hf. væri að fjármagna kaup Sheikh Mohamed á hlutabréfum í bankanum sjálfum. Undir rannsókn málsins hafi Bjarnfreði verið kynnt að lán til félagsins hefði verið greitt út 19. september 2008 og það komið Bjarnfreði á óvart. Hafi framburður hans hjá lögreglu borið þess vitni. Bjarnfreður hafi hins vegar kynnt sér þessi atriði betur síðar í gögnum málsins og þá komist að því að lán Kaupþings banka hf. til Brooks Trading Ltd. hafi verið greitt út 29. september 2008. Hafi atburðarásinni verið lýst þannig í lögregluyfirheyrslu að lánin hafi verið greidd út 19. september. Ef það hefði verið málið hefði lánanefndin verið blekkt þar sem samþykki hafi þá ekki legið fyrir. Hins vegar hafi lánið verið greitt út 29. september 2008, að því er Bjarnfreður teldi. Bjarnfreður kvaðst hafa rætt þessi mál við verjanda ákærða, Hreiðars Más, eftir að ákæra hefði verið gefin út. Hafi Bjarnfreður fengið aðgang að gögnum málsins hjá honum til undirbúnings fyrir skýrslutökuna. Lánanefndin hefði því í raun ekki verið blekkt. Í lánanefndarsamþykkt hafi komið fram að lánið væri fyrir fram greiddur hagnaður. Slíkt hefði Bjarnfreður ekki séð áður í starfi í lánanefndinni. Hefði þetta atriði eitthvað verið rætt á fundinum. Bjarnfreður kvaðst hafa verið þeirrar skoðunar að umrætt lán hefði verið með tryggingu í svonefndum CLN-bréfum. Lánanefnd stjórnar hefði haft heimildir til að veita lán án trygginga. Að því er varðaði umrætt lán hafi bankinn átt að njóta hagnaðar af lánveitingunni í formi vaxta og þóknana. Engin áhætta hafi verið fólgin í lánveitingunni fyrir lántaka. Áhætta hafi legið hjá lánveitanda. Áhættan hafi verið venjubundin eins og hjá lánastofnun almennt.
Bjarnfreður kvaðst ekki hafa þekkt til lánveitingar til félagsins Gerland Assets Ltd. í september 2008. Hann hafi síðar frétt af lánveitingu til félagsins, sem ekki hafi komið fyrir lánanefnd stjórnar. Þar hafi verið um hrein og klár mistök að ræða af hálfu starfsmanna bankans. Að því er varðaði svonefndan strúktúr viðskipta kvaðst Bjarnfreður hafa komi að því máli að beiðni Kaupthing Bank Luxembourg S.A. Hafi hann ekki komið að málinu sem lögmaður ákærða, Ólafs. Hafi hann aldrei rætt þessa vinnu við ákærða. Hafi hann unnið málið í samvinnu við Eggert Hilmarsson, yfirmann lögfræðideildar bankans, og Magnus Palmberg, starfsmann deildarinnar. Bjarnfreður hafi í gegnum tíðina reglulega aðstoðað starfsmenn bankans við ýmsa lögfræðilega vinnu. Hafi þessi vinna verið af þeim toga. Hafi vinna Bjarnfreðs tengst skattalegum þætti viðskipta. Í vinnu við strúktúrinn hafi Bjarnfreður verið að veita endurráðgjöf á hugmyndir sem lagðar hafi verið fram af hálfu bankans í Lúxemborg. Ekki hafi Bjarnfreður haft vitneskju um hvaðan Eggert Hilmarsson hefði upplýsingar sínar eða fyrirmæli varðandi uppsetningu strúktúrsins. Huga hafi þurft að þætti ákærða, Ólafs, vegna tengsla hans við Bretland. Bjarnfreður hafi sennilega séð nefndan strúktúr fyrst er hann hafi fengið sendan tölvupóst með honum frá Eggerti Hilmarssyni 17. september 2008. Engar forsendur í strúktúrnum væru frá Bjarnfreði komnar. Í strúktúrnum hafi komið fyrir svonefnt hagnaðartengt lán. Allar hugmyndir um hagnaðartengt lán hafi komið frá starfsmönnum Kaupthing Bank Luxembourg S.A. Í umræðu við Eggert hafi sennilega einnig komið upp umræða um flöggun og hvort flagga þyrfti aðkomu ákærða, Ólafs, að fjárfestingunni. Hafi Bjarnfreður farið yfir þann þátt með Ólafi Arinbirni Sigurðssyni, héraðsdómslögmanni á lögmannsstofunni Logos. Niðurstaðan hafi verið sú að ekki þyrfti að flagga aðkomu ákærða. Ástæða þess að tveim félögum hafi verið bætt ofan á strúktúrinn síðar hafi tengst umræðu um flöggunarskylduna. Einnig hafi Eggert nefnt það að lengja þyrfti í ,,lúpunni“. Bjarnfreður kvaðst hafa skilið þann strúktúr sem starfsmenn Kaupthing Bank Luxembourg S.A. hefðu sett saman þannig að ákærði, Ólafur, ætti að njóta hagnaðar af fjárfestingu í strúktúrnum. Ekki hafi verið ætlunin með uppsetningu strúktúrsins að leyna aðkomu ákærða, Ólafs, að viðskiptunum. Bjarnfreður kvaðst ekki hafa komið að samningaviðræðum við Sheikh Mohamed vegna viðskiptanna eða nokkru sinni haft samband við kaupandann. Þá hafi Bjarnfreður ekki verið í sambandi við ákærðu, Hreiðar Má eða Sigurð, við gerð strúktúrsins í Kaupþingi í Lúxemborg. Bjarnfreður kvaðst kannast vel við vinnu Kaupthing Bank Luxembourg S.A. að stofna aflandsfélög fyrir viðskiptavini bankans í skattalegum tilgangi. Starfsmenn bankans hefðu setið í stjórnum þessara félaga og átt að gæta að hagsmunum bankans í starfsemi félaganna. Í starfi í lánanefnd stjórnar hafi Bjarnfreður litið til þessara þátta varðandi áhættu bankans. Bjarnfreður kvaðst kannast við svonefnd CLN-viðskipti en í þeim tilvikum hafi viðkomandi fjárfest í skuldatryggingarálagi Kaupþings banka hf. Slík viðskipti hafi verið góð fyrir bankann. Hafi verið litið svo á að engin raunveruleg tapsáhætta væri í þessu fólgin fyrir bankann. Áhætta af lánveitingu til Brooks Trading Ltd. í september 2008 hafi verið metin út frá þessu. Kaupþing banki hf. hafi 22. september 2008 sent frá sér fréttatilkynningu um kaup Sheikh Mohamed á hlutabréfum í bankanum. Ekki hafi verið tekið fram í tilkynningunni um fjármögnun kaupa. Hafi ekki verið ástæða til þess og það ekki þurft á grundvelli lagaskyldu. Bjarnfreður kvaðst standa við þann framburð sinn hjá lögreglu, að þrátt fyrir að lagafyrirmæli kvæðu ekki á um að fjármögnun þyrfti að tilgreina, hefði verið ástæða til að setja spurningamerki við að ekki hafi verið veitt vitneskja um að bankinn kæmi að fjármögnun kaupanna. Þetta væri meira samviskuatriði en annað. Það væri hins vegar löggjafans að ákveða þessa hluti.
Sölvi Sölvason kvaðst hafa starfað í lögfræðideild Kaupthing Bank Luxembourg S.A. í september 2008. Hafi Eggert Hilmarsson, framkvæmdastjóri deildarinnar, verið hans yfirmaður. Í september 2008 hafi Eggert farið þess á leit við Sölva og Löru Schweiger að vinna skjöl varðandi stofnun félaga sem myndu taka lán til kaupa á hlutabréfum í Kaupþingi banka hf. Þetta hafi verið nokkuð óvenjulegt þar sem Sölvi og Lara hafi almennt ekki unnið að skjalagerð varðandi stofnun félaga í eigu bankans. Hafi þau verið tekin úr sínum venjulegu verkefnum til að sinna þessu og samkvæmt fyrirmælum veitt þessu forgang. Ekki vissi Sölvi hvaðan Eggert hefði fengið sín fyrirmæli um stofnun þessara félaga. Eggert hafi kynnt fyrir Sölva og Löru glærukynningu sem hafi lýst þessum strúktúr. Þaðan í frá hafi verið unnið að málinu í gegnum tölvupóst og síma við starfsmenn Kaupþings banka hf. á Íslandi. Mynd sú sem dregin hafi verið upp fyrir Sölva hafi verið á þann veg að Kaupþing banki hf. myndi lána tilgreindum félögum, sem yrðu í eigu Sheikh Mohamed annars vegar og ákærða, Ólafs, hins vegar og myndu þau félög setja fjármunina inn í félag á Kýpur, sem aftur myndi fjárfesta í íslensku félagi sem að lokum myndi kaupa hlutabréf sem næmi 5,01% hlut í Kaupþingi banka hf. Vinna Sölva hafi alfarið snúist um að setja upp stjórnarbókanir fyrir umrædd félög, sem hafi verið Gerland Assets Ltd. og Serval Trading Group Corp., og lánasamninga sem því hafi fylgt. Ótal spurningar hafi vaknað í tengslum við þetta og Sölvi og Lara aðallega verið í sambandi við viðskiptastjórana Halldór Bjarkar Lúðvígsson og Guðmund Þór Gunnarsson vegna málsins. Þeir hafi komið með forsendur í vinnuna. Þegar frá upphafi hafi legið fyrir að fjármögnun kaupanna kæmi frá Kaupþingi banka hf. Ljóst hafi verið að Kaupthing Bank Luxembourg S.A. væri ekki að lána þessa fjármuni. Ekki kvaðst Sölvi þekkja ástæðu þess að lán til Brooks Trading Ltd. hefði verið greitt inn á reikning félagsins í Lúxemborg. Á þessum tíma hafi verið unnið að nokkrum atriðum samhliða. Inn í þessa vinnu hafi blandast vinna við kaup Sheikh Mohamed á skuldabréfum í gegnum Deutsche Bank tengd skuldatryggingarálagi á Kaupþing banka hf. Kvaðst Sölvi muna eftir að hafa spurt ákærða, Magnús, af hvaða ástæðu Kaupþing banki hf. væri að lána félaginu Brooks Trading Ltd. og hafi ákærði, Magnús, svarað því til að um væri að ræða fyrir fram greiddan hagnað til Sheikh Mohamed af CLN-viðskiptunum með skuldabréfin í Deutsche Bank. Af þeim viðskiptum hafi hins vegar aldrei orðið. Sölvi kvaðst ekki muna nákvæmlega hvernig atvik hefðu þróast varðandi peningagreiðslurnar sjálfar, en sennilega hafi fjármunir farið út úr Kaupþingi í Lúxemborg til Brooks Trading Ltd. og átt að skuldajafna þeim við Kaupþing banka hf. á Íslandi í framhaldi en þetta hafi verið gert til að flýta greiðslunni frá Íslandi. Sölvi kvaðst ekki þekkja önnur dæmi þess að greiða hafi átt út fyrir fram hagnað af viðskiptum. Hafi honum þótt þetta stórfurðulegt þar sem ekki hafi verið búið að setja upp og ganga frá nefndum CLN-viðskiptum við Deutsche Bank. Að greiða út fyrir fram hagnað af viðskiptum sem hafi átt að innleysa að 5 árum liðnum, af samningi sem ekki hafi verið búið að gera eða farið að vinna neina pappírsvinnu við, hafi Sölva þótt stórfurðulegt. Sölvi kvaðst telja að ástæða þess að notast hafi verið við svokallað peningamarkaðslán í viðskiptum frá Íslandi við félögin Brooks Trading Ltd. og Gerland Assets Ltd. hafi verið sú að flýta fyrir. Starfsmenn Kaupthing Bank Luxembourg S.A. hafi verið búnir að biðja um upplýsingar um skilmála í lánasamningum við félögin og þær upplýsingar einfaldlega ekki legið fyrir á þeim tíma. Tími hafi ekki unnist til að klára þetta og ferlinu hraðað með því að greiða út fjárhæðina á grundvelli peningamarkaðsláns. Þau lán hafi síðar átt að leysa af hólmi með öðrum lánssamningi. Augljós flýtir hafi verið á málinu. Því hafi verið komið á framfæri við starfsmenn Kaupthing Bank Luxembourg S.A. og hafi þau verið beðin um að víkja til hliðar öðrum verkefnum. Annað hvort Eggert eða ákærði, Magnús, hafi gert þeim þetta ljóst. Vinnan hafi ekki átt ,,að fara hátt“. Sölvi kvaðst ekki hafa átt neina aðkomu að hinum svokallaða strúktúr. Sölvi og Lara hafi einungis unnið að skjölum tengdum félögunum og lánaskjölum. Hafi þau ekkert haft um strúktúrinn að segja. Hafi Sölvi og Lara því ekkert tengst ákvörðunum um hin hagnaðartengdu lán. Umræða um hugsanlega flöggunarskyldu tengda viðskiptunum hafi ekki verið á borði Sölva. Sölvi kvaðst á sínum tíma hafa velt fyrir sér hvort viðskiptin með hlutabréfin væru lögleg. Hafi hann fengið upplýsingar um að Kaupþing banki hf. væri í gegnum félög að fjármagna kaup Sheikh Mohamed á hlutabréfum í bankanum sjálfum. Þá væri verið að lengja í einhverjum keðjum. Hafi Sölvi snemma í ferlinu sagt við ákærða, Magnús, að hann teldi viðskiptin vera málamyndagerning. Hafi ákærði svarað því til að Sölvi skildi ekki út á hvað þetta gengi. Sölvi kvaðst ekki hafa litið svo á að einhver eftirlitsskylda hafi myndast hjá starfsmönnum Kaupthing Bank Luxembourg S.A. gagnvart störfum starfsmanna Kaupþings banka hf. varðandi lánveitingarnar eða skyld atriði. Það hafi ekki verið þeirra hlutverk.
Lara Schweiger kvaðst hafa starfað í lögfræðideild Kaupthing Bank Luxembourg S.A. í september 2008. Hafi hún komið að viðskiptum Sheikh Mohamed með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. tengd félaginu Q Iceland Finance ehf. Hafi hún komið að undirbúningnum í tengslum við vinnslu ákveðinna gagna. Yfirmaður lögfræðideildar, Eggert Hilmarsson, hafi beðið Löru um að vinna þessa vinnu. Í upphafi hafi Lara unnið að málinu í samvinnu við Eggert, en síðar hafi Sölvi Sölvason bæst í hópinn. Eggert hafi kynnt viðskiptin fyrir Löru. Viðskiptin hafi snúist um lán með ábyrgð og markmiðið verið fjárfesting í íslenska fyrirtækinu Q Iceland Finance ehf. Lara hafi undirbúið hluthafasamþykktir fyrir Gerland Assets Ltd. Einnig hafi hún unnið að viðauka við samþykktir. Fyrirmæli skilmála lána hafi komið frá starfsmönnum Kaupþings banka hf. Í upphafi hafi Lara ekki vitað hver fjármagnaði viðskiptin með hlutabréfin í Kaupþingi banka hf. Síðar hafi komið fram að bankinn myndi sjálfur fjármagna kaupin. Að því er varðaði lán til félagsins Brooks Trading Ltd., sem veitt hafi verið í september 2008, hafi Lara fengið upplýsingar um að það lán væri fyrirfram greiddur hagnaður vegna skuldabréfs tengdu skuldatryggingarálagi Kaupþings banka hf. Hafi Lara meðal annars sent tölvupóst til starfsmanns Deutsche Bank um að félagið Brooks Trading Ltd. hefði hug á að eiga viðskipti með CLN-bréf. Ekki hafi viðskiptavinur í öðrum tilvikum, að því er Lara þekkti til, fengið lán út á fyrir fram greiddan hagnað af viðskiptum. Kvaðst Lara hafa orðið undrandi á þessum viðskiptum og ekki fundist neitt vit í þeim. Kvaðst Lara telja að hún hefði fengið fyrirmæli um að lán yrði án tafar að greiðast út til Brooks Trading Ltd. Ákærði, Magnús, hafi gefið þau fyrirmæli. Ákærði hafi ekki komið að vinnunni fyrr en á leið og er komin hafi verið tímapressa á það. Hafi hann lagt áherslu á að lánið yrði greitt út strax. Lara kvaðst ekki hafa komið að því að fjármunir af reikningi Brooks Trading Ltd. yrðu 8. október 2008 notaðir til að greiða upp lán Serval Trading Group Corp. Lara kvaðst muna eftir að hafa komið að svonefndum strúktúr. Hafi Lara haft þann skilning að ákærði, Ólafur, hafi átt að reiða fram persónulega ábyrgð vegna viðskipta.
Halldór Bjarkar Lúðvígsson kvaðst hafa verið viðskiptastjóri á útlánasviði Kaupþings banka hf. í september 2008. Næsti yfirmaður hans hafi verið Bjarki H. Diego framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs. Almennt hafi Halldór Bjarkar tekið við fyrirmælum frá Bjarka Diego, þó svo í einstaka tilvikum hafi fyrirmæli komið frá öðrum. Í því tilviki hafi aðallega verið um að ræða ákærða, Hreiðar Má. Halldór staðfesti að hafa átt símtal við Lilju Steinþórsdóttur, innri endurskoðanda Kaupþings banka hf., 17. janúar 2009. Símtalið hafi komið í kjölfar fyrirspurnar frá Lilju í tölvupósti, væntanlega tengt reikningsnúmerum í millifærslum fjármuna milli Choice Stay Ltd. og Q Iceland Finance ehf. Hafi Halldór Bjarkar verið að velta ýmsu fyrir sér í þessu símtali. Hafi hann velt fyrir sér af hverju hluti fjármuna til kaupa á hlutabréfum í Kaupþingi banka hf. hafi verið lánaður í gegnum félag í eigu ákærða, Ólafs. Hafi Halldór Bjarkar velt því fyrir sér hvort verið væri að fela einhverja slóð. Í raun hafi verið um getgátur að ræða af hálfu Halldórs Bjarkars eftir að hafa horft á þann strúktúr sem settur hafi verið upp vegna viðskipta Q Iceland Finance ehf. með hlutabréfin í Kaupþingi banka hf. Opinbera skýringin á strúktúr kaupanna hafi verið sú að greiðsla í formi láns til Brooks Trading Ltd. væri fyrir fram greiddur hagnaður af CLN-viðskiptum, en getgátur Halldórs Bjarkars hafi verið þær, eftir að haf horft á strúktúrinn, hvort óopinbera skýringin væri sú að um væri að ræða greiðslu fyrir að ljá nafn sitt við viðskipti með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. Halldóri Bjarkari hafi þótt sérkennilegt að verið væri að greiða út fjármuni áður en stofnað hafi verið til viðskipta á CLN-bréfum. Hafi hann heyrt um sameiginlegan fjárfestingarsjóð ákærða, Ólafs, og Sheikh Mohamed. Hann hafi þó ekki tengst vinnu við þann sjóð og lítið þekkt til hans.
Halldór Bjarkar staðfesti að hafa sem viðskiptastjóri komið að viðskiptum Q Iceland Finance ehf. með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. Aðild hans að því máli hafi byrjað með símafundi er ákærðu, Hreiðar Már og Magnús, hafi átt með honum, Guðmundi Þór Gunnarssyni viðskiptastjóra og Bjarka Diego framkvæmdastjóra, 18. september 2008. Ákærðu hafi verið í síma en hinir fundarmenn saman í bankanum. Kvaðst hann þar hafa fengið yfirlit um hvernig þau myndu líta út, eða hinn svokallaði strúktúr viðskiptanna. Því hafi verið lýst af ákærðu í sameiningu fyrir fundarmönnum að kaupa ætti 5,01% hlut í bankanum. Sheikh Mohamed myndi leggja fram persónulega ábyrgð en að lána ætti til tveggja félaga, annars vegar í eigu Sheikh Mohamed og hins vegar í eigu ákærða, Ólafs, og að þessir fjármunir yrðu notaðir til að kaupa hlutabréfin. Strúktúrnum hafi verið lýst í grófum dráttum. Þar hafi komið fram um hagnaðarhlutdeild á milli ákærða, Ólafs, og Sheikh Mohamed. Hafi Halldór Bjarkar spurt hvort hann ætti að koma að vinnu við þessa hagnaðarskiptingu en verið tjáð að sú vinna færi fram í Lúxemborg. Hafi Halldór Bjarkar, Guðmundur Þór og Bjarki Diego verið beðnir að vinna að málinu á móti starfsmönnum Kaupthing Bank Luxembourg S.A. og ljúka málinu. Í því hafi falist að sjá um gerð lánaskjala, útgreiðslu peninga, og annað viðskiptunum tengt. Á þessum fundi hafi komið fram að lána ætti félaginu Mink Trading Corp 120.000.000 eða 130.000.000 evra og fyrir þá fjármuni ætti að kaupa CLN-bréf hjá Deutsche Bank. Síðan ætti að lána Brooks Trading Corp 50.000.000 evra, en um hafi verið að ræða félög þar sem ,,beneficial owner“ hafi verið Sheikh Mohamed. Um hafi verið að ræða fyrir fram tekinn hagnað út úr nefndum CLN-viðskiptum. Hafi Halldór Bjarkar í tvígang áður komið að gerð viðlíka strúktúra. Í báðum tilvikum hafi staðið til að lána fyrir hagnaði til eigenda en ekki hafi verið búið að ganga frá því. Búið hafi verið að kaupa bréfin í þeim tilvikum, en ekki lána út á hagnaðinn. Í tilviki Brooks Trading Ltd. hafi þessu verið öfugt farið. Búið hafi verið að lána út á hagnaðinn en ekki kaupa bréfin. Ekki hafi komið fram á þessum símafundi 18. september að ákærði, Ólafur, ætti að leggja fram persónulega ábyrgð af sinni hálfu fyrir kaupunum. Á fundinum hafi komið fram að viðskiptin ættu að fara yfir 5% hlut í Kaupþingi banka hf. til að viðskiptin yrðu flöggunarskyld. Á það hafi verið lögð áhersla. Halldór Bjarkar og Guðmundur Þór hafi verið viðskiptastjórar á útlánasviði og í þeirra hlut komið að taka málið áfram. Komið hafi fram að flýtir væri á málinu. Það hafi komið fram af hálfu ákærðu beggja. Halldór Bjarkar kvaðst ekki hafa komið að því að ákveða hvernig strúktúr viðskipta með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. yrði settur upp. Hafi Halldór því ekki þekkt ástæðu þess að hinum endanlega kaupanda bréfanna yrði einfaldlega ekki lánað fyrir kaupum þeirra. Þá hefði hann engar skýringar á aðkomu ákærða, Ólafs, að kaupunum. Hafi það verið skilningur Halldórs Bjarkars að ákærði, Ólafur, ætti að fá hagnað út úr viðskiptunum. Þó hefði hann ekkert annað fyrir sér í því en uppsetningu á strúktúr kaupanna. Rætt hafi verið um á símafundinum 18. september 2008 að koma þyrfti á einhvers konar samningi milli Sheikh Mohamed og ákærða, Ólafs, vegna uppsetningar viðskiptanna. Hafi Halldór Bjarkar spurt hvort hann ætti að koma að þeirri vinnu, en verið tjáð að það yrði gert í Kaupþingi Lúxemborg. Ekki kvaðst Halldór þekkja aðkomu ákærða, Sigurðar, að kaupum Q Iceland Finance ehf. á kaupum á hlutabréfum í Kaupþingi banka hf. Halldór kvaðst ekki hafa verið í samskiptum við ákærða, Ólaf, í aðdraganda lánveitinga til félaganna í viðskiptunum. Einhverjum dögum eftir fall Kaupþings banka hf., í október 2008, hafi staðið eftir einhver hundruð milljóna af láninu til Serval Trading Group Corp. Hafi ákærði, Ólafur, snúið sér til Halldórs Bjarkars til að hafa milligöngu um að eftirstöðvar skuldar félagsins yrðu greiddar. Hafi Halldór hitt ákærða í bankanum þar sem ákærði hafi beðið um upplýsingar um stöðu lánsins og hvernig hann gæti hlutast til um að eftirstöðvarnar yrðu greiddar. Hafi Halldór fengið upplýsingar um stöðu lánsins frá fjárstýringu eða bakvinnslu og hvert bæri að millifæra þá fjármuni er út af hafi staðið. Hafi Halldór komið þeim upplýsingum áfram til ákærða, Ólafs.
Halldór Bjarkar staðfesti að hafa sent ákærða, Hreiðari Má, tölvupóst 18. september 2008 kl. 14.56, þar sem Halldór hafi spurt um kjör á láni til Brooks Trading Ltd. og hvort leyfa ætti lán að fjárhæð 50.000.000 Bandaríkjadala fyrir hagnaði. Hafi ákærði svarað því munnlega að leyfa ætti slíkt lán. Svörin í því samtali hafi verið að greiða ætti þetta lán út þegar í stað. Hafi Halldór Bjarkar spurt ákærða hvort ekki ætti að ganga frá CLN-viðskiptunum fyrst eins og gert hefði verið í fyrri tilvikum, en Halldór fengið þau fyrirmæli frá ákærða að hann þyrfti ekki að hafa áhyggjur af því þar sem það yrði gert í Kaupthing Bank Luxembourg S.A. Þá þyrfti Halldór Bjarkar ekki að hafa áhyggjur af samþykki fyrir þessari lánveitingu. Ætti hann einungis að greiða út peningana og það með hraði. Hafi Halldór Bjarkar borið þetta undir yfirmann sinn, Bjarka H. Diego, framkvæmdastjóra útlána, sem samþykkt hafi að þessi háttur yrði hafður á. Bæði Bjarki og ákærði, Hreiðar Már, hafi því verið þess full meðvitaðir að lánið yrði greitt út án þess að fyrir lægi samþykki lánanefndar. Halldór Bjarkar hafi útbúið lánsbeiðni vegna lánsins til Brooks Trading Ltd. Ekki hafi verið unnt að fá samþykki lánanefndar fyrir útgreiðslu lánsins miðað við þann flýti er hafi verið á málinu. Fyrirmælin hafi verið um greiðslu lánsins sem peningamarkaðsláns. Hafi Halldór Bjarkar talið ákærða, Hreiðar Má, hafa haft heimild til að mæla fyrir um útgreiðslu lánsins. Er greidd hafi verið út peningamarkaðslán hafi það verið gert með einblöðungi sem prentaður hafi verið út úr tölvukerfi bankans. Að greiða lánið út sem peningamarkaðslán hafi verið eini kosturinn í stöðunni miðað við þann flýti sem hafi verið á málinu. Peningamarkaðslán hafi verið skammtímalán og veitt aðilum sem hafi verið í miklum viðskiptum við bankann. Hafi Halldór Bjarkar komið mjög lítið að slíkum lánum. Ekki kvaðst Halldór Bjarkar viss um hvort ákærða, Magnúsi, hafi verið það ljóst að lánið yrði greitt út sem peningamarkaðslán. Fyrirmæli inn á hvaða reikning lánið til Brooks Trading Ltd. skyldi greitt hafi komið frá starfsmönnum Kaupthing Bank Luxembourg S.A. Halldór hafi annars almennt verið í litlum samskiptum við starfsmenn Kaupthing Bank Luxembourg S.A. og málið óvenjulegt að því leyti. Eignarhald umræddra félaga hafi verið í Lúxemborg, en þar hafi þau verið stofnuð og í stjórn þeirra aðilar sem staðið hafi að bankanum í Lúxemborg. Í því ljósi hafi verið eðlilegt að greiðsluleiðbeiningar kæmu þaðan, frá fyrirsvarsmönnum þessara félaga.
Hlutverk Halldórs Bjarkars sem viðskiptastjóra hafi almennt verið að útbúa lánsbeiðnir fyrir lánanefndir. Í slíkum tilvikum hafi viðskiptastjóri gengið úr skugga um að formlegar heimildir lægju fyrir áður en fyrirmæli væru gefin um greiðslu lána. Þá hafi bakvinnslan einnig haft hlutverki að gegna í því sambandi sem hafi átt að tryggja að ekki yrði greitt út án þess að heimildir væru fyrir hendi. Er mál hafi farið fyrir lánanefnd stjórnar hafi Bjarki H. Diego framkvæmdastjóri fylgt þeim úr hlaði. Halldór Bjarkar staðfesti að hafa átt símtal við Sölva Sölvason, starfsmann Kaupthing Bank Luxembourg S.A., kl. 19.10 að Lúxemborgartíma þann 18. september 2008. Hafi Halldór í því samtali sagt að hann hefði verið á fundi með ákærðu og þekkti allt til viðskiptanna. Þá staðfesti Halldór Bjarkar að hafa sent tölvubréf 19. september 2008, til Halldórs Sveins Kristinssonar og Ólafs Frímanns Gunnarssonar á millibankaborði í fjárstýringu, þar sem fram hafi komið að starfsmaður Kaupthing Bank Luxembourg S.A. hafi verið sammála því að ,,netta“ viðskiptin og því væri ekki um neina raunverulega millifærslu að ræða. Með því hafi Halldór verið að vísa til þess að lánið hafi átt að koma frá Kaupþingi banka hf., en verið færð úr bankanum í Lúxemborg inn á reikning félagsins Brooks Trading Ltd. og að skuldajafnað yrði á móti greiðslunni. Þannig yrði lánið flutt á efnahagsreikninga bankanna, annars vegar Kaupþings banka hf. og hins vegar Kaupthing Bank Luxembourg S.A. Að því er varðaði svonefnda undanþágulista varðandi lánshæfismat, hafi verið lánshæfismatskerfi í bankanum fyrir fyrirtæki sem tekið hafi venjuleg lán. Þau hafi verið lánshæfismetin miðað við hversu góðir lántakar þau væru. Kerfið hafi hentað vel fyrir venjuleg rekstrarfélög og félög með sjóðsstreymi. Þau hafi hins vegar ekki hentað fyrir eignarhaldsfélög og venja því staðið til að þau færu á nefndan undanþágulista. Ekki hafi verið óþekkt innan bankans að lán væru greidd út án þess að fyrir lægi heimild lánanefnda. Hafi formlegra heimilda verið aflað í kjölfarið. Eins hafi þekkst að tölvupóstur væri sendur til lánanefndarmanna og samþykkis þeirra aflað milli funda fyrir útgreiðslu lána. Guðmundur Þór Gunnarsson viðskiptastjóri hafi haldið utan um málefni ákærða, Ólafs, í bankanum. Hafi þeir viðskiptastjórarnir rætt saman í kjölfar fundarins 18. september og orðið ásáttir um að Halldór Bjarkar sæi um lánveitingu til Serval Trading Group Corp. og Guðmundur Þór sæi um lánveitingu til Gerland Assets Ltd. Lánsbeiðni vegna Gerland Assets Ltd. hafi ekki ratað fyrir lánanefnd. Hugsanlega hafi verið um einhvern misskilning að ræða milli Halldórs Bjarkars og Guðmundar Þórs varðandi það atriði. Halldór Bjarkar staðfesti að greidd hafi verið út lán í september 2008 tengt viðskiptunum með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. Hafi ákærði, Magnús, gefið Halldóri Bjarkari fyrirmæli um útgreiðslu lána til Gerland Assets Ltd. og Serval Trading Group Corp. Þau fyrirmæli hafi borist frá ákærða í tölvupósti 29. september 2008. Til hafi staðið að endurfjármagna þessi lán með hefðbundnum lánasamningum síðar. Hafi það átt að vera eins fljótt og tími ynnist til. Halldór Bjarkar hafi sent tölvupóst 29. september 2008 til Halldórs Sveins Kristinssonar í fjárstýringu um greiðslur lána til Gerland Assets Ltd. og Serval Trading Group Corp og þaðan til Choice Stay Ltd. og áfram á vörslureikning Q Iceland Finance ehf. Halldór Bjarkar kvaðst hafa verið milligöngumaður um að tengja saman starfsmenn Kaupthing Bank Luxembourg S.A. við starfsmenn fjárstýringar Kaupþings banka hf. þegar fjármunir á reikningi Brooks Trading Ltd. í Lúxemborg hafi verið notaðir til að greiða upp lán hjá félaginu Serval Trading Group Corp. Ekki hafi Halldór Bjarkar verið í neinum samskiptum við ákærða, Hreiðar Má, vegna þess. Hafi Halldóri skilist að Eggert Hilmarsson, yfirmaður lögfræðideildar Kaupthing Bank Luxembourg S.A., ræki það mál áfram. Hafi Halldór ekki komið nærri þessu uppgjöri að öðru leyti.
Guðmundur Þór Gunnarsson kvaðst hafa verið viðskiptastjóri á útlánasviði Kaupþings banka hf. í september 2008. Yfirmaður Guðmundar hafi verið Bjarki H. Diego, framkvæmdastjóri útlána. Auk þess að fá fyrirmæli frá Bjarka hafi Guðmundur stundum fengið fyrirmæli frá ákærða, Hreiðari Má. Í verkahring viðskiptastjóra hafi verið að útbúa lánsferil mála fyrir lánanefndir og afla undirritunar á lánsskjöl. Þá hafi viðskiptastjóri átt að taka málið áfram eftir samþykki lánanefnda og framfylgja ákvörðun nefndarinnar. Ekki hafi viðskiptastjóra verið heimilt að gefa fyrirmæli um lánveitingar án þess að samþykki lánanefnda lægi fyrir. Guðmundur kvaðst í starfi sínu hafa komið að viðskiptum bankans varðandi fjármögnun hlutabréfakaupa. Í þeim tilvikum hafi almennt verið meiri hraði á afgreiðslu mála. Hafi það verið nauðsynlegt því tilkynna hafi þurft um viðskipti um leið og þau hafi verið ákveðin. Þá hafi verið skammur tími þar til standa hafi þurft við greiðslur. Lítill tími hafi því gefist til að vinna málin. Guðmundur kvaðst eitthvað hafa komið að vinnu innan bankans á sínum tíma tengda kaupum Q Iceland Finance ehf. á hlutabréfum í Kaupþingi banka hf. Á þeim tíma hafi verið í gangi vinna tengd málinu á lánasviði bankans. Vegna anna á þeim tíma hafi Guðmundur hins vegar fjarlægst málið meira eða minna. Að einhverju leyti hafi honum samt sem áður verið haldið upplýstum, þó svo hann hafi ekki unnið beint að málinu. Um hafi verið að ræða peningamarkaðslán, en þau lán væru skammtímalán. Þau hafi ekki verið veitt hverjum sem var. Peningamarkaðslán hafi talsvert verið notuð ef hraða hafi þurft lánaafgreiðslu. Venjulega hafi Guðmundur ráðfært sig við yfirmenn sína, Bjarka H. Diego framkvæmdastjóra eða ákærða, Hreiðar Má, áður en slík lán hafi verið afgreidd. Ef mál hafi þurft að afgreiða fyrir næsta lánanefndarfund hafi nefndarmönnum verið kynnt málið milli funda. Hafi ákærði, Hreiðar Már, vitað að viðskiptavinum bankans hafi í sumum tilvikum verið veitt peningamarkaðslán. Í einhverjum tilvikum hafi Guðmundur fengið heimild frá ákærða til að veita slík lán. Þá hafi verið dæmi þess að ákærði hafi mælt fyrir um veitingu slíks láns. Guðmund kvað sig ráma í fund með ákærðu, Hreiðari Má og Magnúsi, og viðskiptastjórum, þeim Guðmundi og Halldóri Bjarkari, 18. september 2008. Um hafi veri að ræða símafund þar sem ákærðu hafi ekki verið á staðnum. Guðmundur myndi ekki annað eftir fundinum en að til umræðu hafi verið viðskipti Sheikh Mohamed með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. Þá hafi verið rædd fjármögnun kaupanna. Guðmundur kvaðst á þessum tíma hafa verið viðskiptastjóri ákærða, Ólafs. Er tekin hafi verð skýrsla hjá lögreglu af Guðmundi í fyrsta sinn hafi hann ekki munað eftir því að félag í eigu ákærða, Ólafs, hafi átt að fá lán vegna viðskiptanna. Þetta hafi komið fram í yfirheyrslunni og væri þetta því Guðmundi kunnugt. Myndi Guðmundur ekki eftir hvað honum og Halldóri Bjarkari hefði verið falið að gera á fundinum 18. september 2008. Að sumu leyti hafi verið eðlilegt að Guðmundi hefði verið falið að annast lánamál ákærða, Ólafs, eftir þennan fund en það hafi þó ekki verið algild regla. Annir hafi t.d. getað skýrt það.
Guðmundur kvaðst telja að sér hafi verið kunnugt um lánveitingu til Brooks Trading Ltd. á sínum tíma, sem afgreitt hafi verið í september 2008. Ekki myndi Guðmundur eftir því hvort það lán hafi átt að tengjast svonefndum CLN- viðskiptum. Guðmundur staðfesti að hafa sent tölvupóst til Halldórs Bjarkars, 18. september 2008, sem snúið hafi að útgreiðslu láns til Brooks Trading Ltd. Án þess að Guðmundur myndi eftir þessu tilviki hafi stundum komið fyrir að lán hafi verið greidd út af öðrum banka en veitt hafi lánið og hafi þá verið uppgjörsatriði á milli bankanna að ganga frá í kjölfarið. Ekki myndi Guðmundur eftir því hvaðan fyrirmæli hafi komið um að uppgjör láns Brooks Trading Ltd. milli Kaupþings banka hf. og Kaupthing Bank Luxembourg S.A. ætti að vera ,,funding neutral“. Ekki myndi Guðmundur eftir umræðu um að lánið hafi átt að vera greiðsla fyrir einhvers konar fyrir fram greiddan hagnað. Guðmundur kvaðst muna eftir lánveitingu til félagsins Gerland Assets Ltd. 29. september 2008. Hafi hann séð tölvuskeyti tengd því láni. Hann myndi þó í sjálfu sér ekki eftir málinu sem slíku. Ekki kynni Guðmundur skýringu á því að það lán hafi ekki farið fyrir lánanefnd bankans. Þó svo Guðmundur myndi ekki eftir málinu mætti ráða af tölvupóstsamskiptum hans frá þessum tíma að honum hafi verið kunnugt um að félag ákærða, Ólafs, Gerland Assets Ltd., fengi lán frá Kaupþingi banka hf. vegna kaupa Sheikh Mohamed á hlutabréfum í Kaupþingi banka hf. Ekki myndi Guðmundur eftir umræðu 19. september 2008, milli Guðmundar, Halldórs Bjarkars og Sölva Sölvasonar um hvernig ákærði, Ólafur, myndi tryggja sér hagnað af kaupum á hlutabréfum í Kaupþingi banka hf. með samningi við Sheikh Mohamed. Á þessum tíma hafi verið fylgst talsvert með eignum og skuldum ákærða, Ólafs, þar sem hann hafi átt stóran hlut í Kaupþingi banka hf. Hafi þau bréf hans lækkað í verði. Þrýstingur hafi verið kominn á allar eignir og það verið ástæða fyrir athugasemd Guðmundar í tölvupósti frá þessum tíma að ákærði væri undir stöðugu eftirliti. Í skýrslutöku hjá lögreglu hefði Guðmundur sagt að annaðhvort ákærði, Hreiðar Már, eða Halldór Bjarkar hefðu gefið fyrirmæli um að veita félaginu Gerland Assets Ltd. lán án veða. Guðmundur kvaðst vilja breyta þeim framburði fyrir dómi. Hefði hann nú áttað sig á því að hann vissi ekki hver hefði gefið slík fyrirmæli. Mætti ráða það af tölvupósti Guðmundar frá þessum tíma þar sem Guðmundur hefði sagt að það væri ekkert fyrir ákærða, Ólaf, að veðsetja. Það hafi verið á ábyrgðarsviði Halldórs Bjarkars að afgreiða lán til Gerland Assets Ltd. Varðandi endurgreiðslu á láni til Serval Trading Group Corp., 8. október 2008, sem greitt hafi verið með fjármunum inni á reikningi Brooks Trading Ltd., þá hefði Guðmundur ekkert komið að greiðslu lánsins þann dag. Guðmundur kvaðst eftir útgáfu ákæru í málinu hafa rætt við verjendur ákærðu, Hreiðars Más og Ólafs. Hafi það verið gert í aðdraganda aðalmeðferðar málsins.
Gianni De Bortoli kvaðst í september 2008 hafa starfað í lögfræðideild Kaupthing Bank Luxembourg S.A. Hafi Eggert Hilmarsson, yfirmaður deildarinnar, verið yfirmaður hans. Hefði Gianni óljósa minningu um félögin Serval Trading Group Corp., Gerland Assets Ltd. og Brooks Trading Ltd. og helst muna eftir einu þessara félaga. Hafi félögin verið sett á laggirnar fyrir viðskiptavini Kaupthing Bank Luxembourg S.A. Í stjórn þessara félaga hafi verið Allied Directors Corp., Global Managers Inc. og Internal Officers Inc. Hafi Gianni sennilega setið í stjórn allra þessara félaga að beiðni Eggerts Hilmarssonar. Hafi það verið hluti af starfi Gianni fyrir Kaupthing Bank Luxembourg S.A. Hafi Gianni tekið ákvarðanir í sambandi við þessi félög eftir fyrirmælum frá Eggerti eða ákærða, Magnúsi. Hafi Gianni ritað undir skjöl tengd þessum félögum.
Karim Van Den Ende kvaðst á árinu 2008 hafa starfað fyrir Kaupthing Bank Luxembourg S.A. Hafi Karim útvegað bankanum félög í Lúxemborg og annars staðar. Hafi vinnan tengst lögfræðisviði bankans í Lúxemborg. Hafi vinnan verið fyrir ýmsa aðila, t.a.m. Eggert Hilmarsson. Í sumum tilvikum hafi Karim setið í stjórnum þeirra félaga er hann hafi útvegað. Hafi það farið eftir ákvörðun starfsmanna bankans og viðskiptavina hans. Ekki hafi Karim í þeim störfum tekið sjálfstæðar ákvarðanir varðandi félögin. Hann hafi hins vegar unnið út frá hagsmunum viðskiptavinarins og getað tekið ákvarðanir eftir fyrirmælum eigenda fyrirtækjanna. Karim kvaðst hafa útvegað bankanum í Lúxemborg félagið Brooks Trading Ltd. Ekki þekkti Karim til fjármuna sem runnið hafi inn á reikning félagsins hjá bankanum í Lúxemborg. Ekki hafi Karim verið hafður með í ráðum er fjármunir á reikningi félagsins hafi verið notaðir til að greiða upp lán hjá félaginu Serval Trading Group Corp. í október 2008. Kaupthing Bank Luxembourg S.A. hafi stjórnað því ferli. Karim kvaðst einnig hafa setið í stjórn Choice Stay Ltd. sem hafi verið skráð á Kýpur. Hafi hann gegnt sams konar hlutverki í stjórn þess félags og endranær í störfum sínum fyrir Kaupthing Bank Luxembourg S.A.
Telma Halldórsdóttir greindi frá því að föstudaginn 19. september 2008 hafi verið haft samband við lögmannsstofuna Fulltingi, er Telma hafi unnið hjá. Hafi stofan verið beðin um að selja félag sem myndi halda utan um viðskipti með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. Hafi Telma verið beðin um að sitja í stjórn þess félags. Að mestu hafi verið gengið frá gögnum í tengslum við þetta sama dag en félagið hafi borið nafnið Q Iceland Holding ehf. Að einhverju leyti hafi verið unnið að málinu um helgina. Skjöl málsins hafi farið fyrir Fyrirtækjaskrá á mánudeginum 22. september 2008. Hafi Telma skrifað undir flöggunartilkynningu frá Kaupþingi banka hf., en hún hafi verið í sambandi við Ólöfu Emblu Einarsdóttur, regluvörð Kaupþings banka hf., vegna þess. Einnig hafi hún ritað undir spurningalista um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Hafi Telma ekki komið að málinu að öðru leyti og því t.a.m. ekki komið að fjármögnun kaupa á hlutabréfum í bankanum. Ákærði, Ólafur, hafi verið í sambandi við Telmu og beðið hana um að vera skráður framkvæmdastjóri og stjórnarmaður í félaginu fyrir hönd Sheikh Mohamed. Ekki hafi hún verið í sambandi við Sheikh Mohamed vegna málsins. Hún hafi hins vegar verið í sambandi við Simon Southall lögmann Sheikh Mohamed og Guðmund Oddsson lögmann, sem hafi verið skráður sem stjórnarformaður í Q Iceland Holding ehf. Telma kvaðst fyrst við rannsókn málsins hjá lögreglu hafa frétt af láni til Brooks Trading Ltd. frá Kaupþingi banka hf. sem veitt hafi verið í september 2008. Ekki hafi hún heldur vitað um lán veitt Gerland Assets Ltd. 29. september 2008. Hún hafi hins vegar heyrt af félögunum Serval Trading Group Corp og Choice Stay Ltd. á sínum tíma í tengslum við viðskipti Sheikh Mohamed með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. Hafi það komið fram í London er hún hafi verið að vinna fyrir ákærða, Ólaf. Hafi hugsunin verið sú að stofna fjárfestingarsjóð í eigu ákærða, Sheikh Mohamed og Sheikh Sultan. Hafi Kaupþing banki hf. átt að koma að sjóðnum. Sjóðurinn hafi átt að fjárfesta á Íslandi. Hafi hún hitt Eggert Hilmarsson, yfirmann lögfræðideildar Kaupthing Bank Luxembourg S.A., vegna þessa og Bjarnfreð Ólafsson lögmann. Þessi atriði hafi verið skoðuð, en ekki farið ,,á neitt flug“. Ekki hafi hún þekkt til félagastrúktúrsins í kringum kaupin á bréfum í Kaupþingi banka hf. Ákærði, Ólafur, hafi í huga Telmu komið að þessum kaupum sem vinur Sheikh Mohamed og milligöngumaður um kaupin. Hafi hún ekki talið hann þátttakanda í kaupunum. Varðandi fjármögnun kaupa hafi Telma skilið það svo að fjármögnun hafi átt að vera í öðru félagi en því sem keypt hafi bréfin. Hafi verið ætlunin að hafa kaupin og fjármögnunina aðskilin vegna áhættu við kaupin. Hafi Telma ætlað að kalla eftir svörum um þetta en ekki fengið nein skýr svör um þessi atriði fyrr en nokkru síðar. Hafi hún leitað eftir þeim frá Simon Southall og starfsmönnum Kaupþings banka hf. Að lokum hafi hún fengið svör um þessi atriði frá ákærða, Ólafi. Þá hafi hún fengið þau svör að Sheikh Mohamed legði fram sjálfskuldarábyrgð vegna helmings kaupanna. Hinn helmingurinn hafi átt að vera tryggður með veði í hlutabréfunum sjálfum. Ekki hafi Telma vitað að Kaupþing banki hf. hafi fjármagnað kaupin á hlutabréfunum. Hafi hún ekki komið að samningsgerðinni í viðskiptunum með hlutabréfin. Á spurningalista um peningaþvætti hafi hún skráð að uppruni fjármagns kaupa á hlutabréfunum væri í Qatar. Hafi henni skilist að Sheikh Mohamed fjármagnaði sjálfur kaup bréfanna.
Guðmundur Oddsson kvaðst hafa fengið símtal frá ákærða, Ólafi, að kvöldi sunnudagsins 21. september 2008, tengt viðskiptum Sheikh Mohamed með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. Hafi það verið fyrstu kynni Guðmundar af þeim viðskiptum. Ástæða þess að ákærði hafi haft samband við Guðmund hafi verið að Guðmundur hafi áður unnið fyrir Sheikh Mohamed í tengslum við önnur verkefni. Hafi Sheikh Mohamed verið að skoða fjárfestingar í Alfesca. Guðmundur kvaðst hafa verið stjórnarmaður í Q Iceland Holding ehf. en félagið hafi verið systurfélag Q Iceland Finance ehf. Q Iceland Holding ehf. hafi verið í eigu Sheikh Mohamed og Sheikh Sultan, en Q Iceland Finance ehf. sett upp af öðrum lögmönnum og verið með eignarhaldi Sheikh Mohamed. Guðmundur kvað ákærða hafa borið undir Guðmund tilkynningu til Kauphallar vegna viðskipta Sheikh Mohamed með hlutabréfin í Kaupþingi banka hf. Hafi Guðmundur sagt að hann hefði ekki umboð til að tjá sig um tilkynninguna. Guðmundur kvaðst ekki hafa vitað af félaginu Brooks Trading Ltd. í september 2008. Þá hafi Guðmundur ekki þekkt til félagsins Gerland Assets Ltd. eða lánveitinga til þess félags í september 2008. Ekki hafi Guðmundur heldur á þessum tíma þekkt strúktúr að baki kaupum Sheikh Mohamed á hlutabréfunum. Öll samskipti Guðmundar við Sheikh Mohamed tengd viðskiptum hafi farið fram í gegnum ráðgjafa Sheikh Mohamed. Hafi Guðmundur að mestu verið í tengslum við Simon Southall lögmann hans.
Halldór Kristinn Sveinsson kvaðst í september 2008 hafa starfað á millibankaborði í fjárstýringu Kaupþings banka hf. Í deildinni hafi hann starfað á árunum 2004 til 2008. Yfirmaður Halldórs hafi verið Ólafur Frímann Gunnarsson, forstöðumaður deildarinnar. Starf Halldórs hafi einkum verið fólgið í viðskiptum á milli banka en það hafi verið næstum 95% af starfinu. Öðru hvoru hafi starfsmenn þó fengið fyrirmæli um að setja viðskipti frá lánasviði bankans inn. Í þeim tilvikum hafi þurft að lána tilteknum félögum. Fjárstýring hafi verið með tölvukerfi sem haldið hafi utan um slíka hluti þar sem deildin hafi verið með lausafjárstýringu bankans. Af þeim ástæðum hafi þurft að vita um alla gjaldmiðla sem hafi farið inn eða út úr bankanum. Málefni Q Iceland Finance ehf. varðandi kaup á hlutabréfum í Kaupþingi banka hafi komið inn á borð fjárstýringar í september 2008. Málið hafi komið frá lána- eða fyrirtækjasviði bankans. Hafi starfsmönnum fjárstýringar verið tilkynnt að verið væri að veita lán. Ekki hafi verið í verkahring Halldórs að velta fyrir sér fjármögnun kaupa á hlutabréfunum í Kaupþingi banka hf. Hafi Halldór þurft að ganga úr skugga um að bankinn væri í gnóttstöðu í öllum myntum hverju sinni. Í því hafi ekki falist ábyrgð á því hvort einhver tiltekin eignarhaldsfélög eða fyrirtæki væru að fá lán. Almennt væri það þannig að fyrirtækjasvið eða lánasvið hefði samband við fjárstýringu á millibankaborði og tilkynnti að verið væri að veita lán til einhvers verkefnis eða einhverra aðila, í tiltekinn tíma og á tilteknum kjörum. Væru þessar upplýsingar settar inn í fjárstýringakerfi sem færu í framhaldi áfram til bakvinnslu þar sem lánið væri greitt út með skeytum. Að því er varðaði símtal frá Halldóri Bjarkari Lúðvígssyni 18. september 2008 hafi verið orðið þröngt um hluti á þessum tíma vegna ástands á alþjóðlegum fjármálmörkuðum. Búið hafi verið að setja innan bankans ákveðnar skorður við lánveitingum til að draga úr þeim. Það hafi þó ekki þýtt að ekki hafi verið til fjármunir innan bankans. Verið gæti að til hafi verið evrur en Bandaríkjadali hafi skort. Ef um væri að ræða svokallaða ,,nettun“ á milli banka færi hún þannig fram að í stað þess að tiltekin fjárhæð væri greidd út kæmi annað á móti. Ef samkomulag banka hafi staðið til þess hafi verið um að ræða uppgjörsatriði þeirra á milli. Peningamarkaðslán hafi verið skammtímalán, veitt frá einum degi til 12 mánaða. Ef bankinn hafi verið í gnóttstöðu á ákveðnum degi hafi hann reynt að ávaxta þá fjármuni á einhvern hátt, t.d. með því að lána öðrum banka yfir nótt eða í viku, svo dæmi væru tekin. Almennt hafi þessi lán verið á milli fjármálafyrirtækja, en einnig hafi verið unnt að lána félögum. Hafi það verið gert í einhverjum mæli. Ef um hafi verið að ræða lán milli banka hafi ekki verið tekin veð fyrir lánum, en slík tilvik hafi verið á millibankaborði í fjárstýringu. Ef um hafi verið að ræða lán frá lána- eða fyrirtækjasviði hafi verið á þeirra borði að ákveða með tryggingar. Ef lán hafi verið veitt milli banka hafi ekki verið nein skjalagerð tengd lánveitingum. Þar sem lán milli félaga hafi ekki verið á millibankaborði þekkti Halldór ekki til skjalagerðar í tengslum við þau.
Bjarki H. Diego kvaðst hafa verið framkvæmdastjóri útlána í september 2008. Yfirmenn hans hafi verið ákærði, Hreiðar Már, sem yfirmaður Kaupþings samstæðunnar, og Ingólfur Helgason, forstjóri starfseminnar á Íslandi. Að því er varðaði kaup Q Iceland Finance ehf. á hlutabréfum í Kaupþingi banka hf. í september 2008 hafi Bjarki kynnst málinu á þann veg að ákærði, Hreiðar Már, hafi komið að máli við Bjarka í september 2008. Hafi hann tjáð Bjarka að fjárfestar frá Qatar hefðu áhuga á að kaupa stóran hlut í bankanum og að það þyrfti að ganga frá fjármögnun vegna þessa. Hafi ákærði falið Bjarka að koma málinu í farveg innan bankans. Hafi Bjarki í kjölfarið haft samband við viðskiptastjórana Guðmund Þór Gunnarsson og Halldór Bjarkar Lúðvígsson og sett þá inn í málið. Þeir, ásamt ákærðu Hreiðari Má og Magnúsi, hafi átt símafund vegna málsins 18. september 2008. Hafi Bjarki setið þann fund lítillega, en hann hafi komið seint á fundinn þar sem hann hafi verið að sinna öðru erindi. Bjarki kvaðst ekki minnast þess að strúktúr að baki viðskiptunum hafi verið kynntur á fundinum 18. september. Hann hafi í það minnsta ekki verið kynntur á þeim tíma sem Bjarki hafi setið á fundinum. Hafi Bjarki ekkert vitað um hvort ákærði, Ólafur, hafi átt að tengjast viðskiptunum og ekkert komið fram um það á fundinum á meðan Bjarka hafi notið við. Guðmundur Þór og Halldór Bjarkar hafi gengið frá lánabeiðnum. Hafi það verið eðlilegt og í samræmi við ferla innan bankans. Ákærði, Hreiðar Már, hafi ekki á þeim tíma sem Bjarki hafi verið á fundinum, gefið fyrirmæli um að lán tengd Sheikh Mohamed skyldu afgreidd án þess að þau kæmu fyrir lánanefnd stjórnar. Málið hafi verið lagt fyrir lánanefnd stjórnar en skuldbindingin hafi gert það að verkum að lánið hafi heyrt undir lánanefndina. Hafi Bjarki kynnt málið fyrir lánanefndinni á fundi hennar í London 24. september 2008. Þann fund hafi setið ákærðu, Hreiðar Már og Sigurður, og stjórnarmennirnir Bjarnfreður Ólafsson og Gunnar Páll Pálsson. Einnig hafi setið fundinn Steingrímur P. Kárason, framkvæmdastjóri áhættustýringar bankans. Þar fyrir utan hafi setið fundinn Guðrún Harðardóttir, ritari lánanefndar. Bjarki kvaðst ekki muna nákvæmlega hvernig lán til kaupa á hlutabréfum hefðu verið kynnt fyrir lánanefnd. Eftir því sem Bjarki myndi hafi komið fram að Kaupþing banki hf. væri að fjármagna kaup á hlutabréfunum í bankanum. Bjarki staðfesti að lán til félagsins Gerland Assets Ltd., sem veitt hafi verið í tengslum við kaupin, hafi ekki farið fyrir lánanefndarfundinn. Kvaðst Bjarki telja að um mistök hefði verið að ræða. Hafi Halldóri Bjarkari verið falið að vinna undirbúningsvinnu varðandi kaupin, sem hafi falist í því að útbúa skjöl varðandi kaupin og fara með málið fyrir lánanefnd. Að öllu eðlilegu hafi það heyrt undir Guðmund Þór Gunnarsson, þar sem hann hafi fremur verið í verðbréfafjármögnun, en Halldór Bjarkar hafi meira sinnt lánastarfsemi á Norðurlöndum. Minna hafi verið að gera í lánastarfsemi á Norðurlöndum á þessum tíma en venjulega en mikið verið að gera hjá Guðmundi Þór. Af þeim ástæðum hafi Halldóri Bjarkari verið falið að sjá um skjalagerðina. Guðmundur Þór hafi verið viðskiptastjóri fyrirtækja ákærða, Ólafs. Málið hafi sennilega fallið niður á milli þeirra tveggja með því að hvor um sig hafi gert ráð fyrir að hinn gengi frá lánabeiðnum vegna Gerland Assets Ltd. Bjarki hafi ekki á þessum tíma vitað um aðkomu ákærða, Ólafs, að þessum viðskiptum og fyrst frétt það eftir 8. október 2008. Er málið hafi verið kynnt fyrir lánanefnd hafi Bjarki staðið í þeirri trú að einungis Gerland Assets Ltd. væri að kaupa bréf í bankanum. Ekki kvaðst Bjarki þekkja ástæðu þess að úr fyrstu drögum að fundargerð lánanefndar vegna láns til Brooks Trading Ltd. hafi verið tekið að lánið væri hluti hagnaðar af viðskiptum. Ritari lánanefndar hafi fært fundargerð. Hafi drög verið send út og þau leiðrétt eftir atvikum. Hafi Bjarki alltaf farið yfir drög að fundargerðum og leiðrétt þau eftir þörfum. Bjarki kvaðst ekki kannast við að Halldór Bjarkar hafi borið undir Bjarka hvort greiða ætti 50.000.000 Bandaríkjadala peningamarkaðslán til Brooks Trading Ltd. í kjölfar fundarins 18. september 2008. Ekki hafi verið lánabann á þessum tíma en minna verið um lánveitingar í erlendum myntum. Hafi vilji staðið til þess að halda þeim sem mest innan bankans. Orðfæri Bjarka í lögregluskýrslu á sínum tíma um þetta efni hafi verið ónákvæmt. Bjarki kvaðst kannast við CLN-viðskipti sem Kaupþing banki hf. hefði fjármagnað á árinu 2008. Tveir strúktúrar hafi verið settir upp í slíkum viðskiptum. Viðkomandi félög hafi ekki komið með eigið fé í viðskiptin og áhætta þeirra því ekki verið mikil. Viðskiptin hafi að miklu leyti verið gerð til hagsbóta fyrir bankann vegna síhækkandi skuldatryggingarálags. Mætti líkja þessu við að bankinn hafi verið að kaupa eigin skuldabréf með afslætti. Bankinn hafi borið áhættuna í þessum viðskiptum og notið ábatans. Þau viðskipti sem sett hefðu verið upp hefðu tengst góðum viðskiptavinum sem hefðu verið í viðskiptum um langt skeið.
Peningamarkaðslán, hafi í raun verið skammtímafyrirgreiðslur. Beðið hafi verið endanlegrar úrlausnar lánanefndar stjórnar. Ástæða þess að notast hafi verið við þessa aðferð hafi verið sú að mikið hafi legið við. Bankinn hafi ekki getað beðið eftir formlegri úrlausn lánanefndar, þ.e. staðfestum fundargerðum og þess háttar. Samþykki lánanefndar stjórnar hafi verið sótt eftir á. Þó hafi í flestum tilvikum, ef ekki öllum, verið búið að fara í gegnum þau mál með lánanefndarmönnum. Hafi það einnig tengst því að lánanefnd stjórnar hafi ekki komið reglulega saman. Þá hafi meðlimir hennar verið mjög uppteknir og ferðast víða um heiminn. Erfitt hafi verið að ná þeim saman. Fjárstýring hafi séð um afgreiðslu peningamarkaðslána. Starfsmenn fjárstýringar hefðu ekki greitt út slík lán nema þau væru innan þess ramma sem þeir væru með eða samkvæmt beinum fyrirmælum frá forstjóra Kaupþings banka hf. Bjarki kvaðst hafa litið svo á að í þessum lánum væri fólgin ákveðin rekstraráhætta fyrir bankann. Hafi Bjarki haft af því áhyggjur að starfsmenn fjárstýringar gætu greitt út háar fjárhæðir án þess að áður lægju fyrir formlegar úrlausnir. Hafi Bjarki orðað þessar áhyggjur við ákærða, Hreiðar Má. Á stjórnarfundi Kaupþings banka hf. í London dagana 25. og 26. september 2008 hafi meðal annars verið farið yfir lánabók bankans. Bjarki og allir viðskiptastjórar hafi komið að því að safna saman upplýsingum um lán áður en farið hafi verið yfir lánabókina. Að því er varðaði tryggingar hafi talsvert verið við það stuðst að lánað yrði til félaga, sem sett væru sérstaklega upp fyrir tiltekin viðskipti. Þá hafi fyrirkomulagið verið þannig að fulltrúi bankans hafi farið inn í stjórn viðkomandi félags. Það hafi leitt til þess að félögin hafi ekki átt að geta tekið ákvarðanir sem gengju gegn hagsmunum bankans. Þannig hafi bankinn fengið auknar tryggingar í tengslum við þessi viðskipti. Handbók Kaupþings banka hf. hafi haft að geyma ýmsar leiðbeiningar varðandi innri starfsemi bankans. Í bókinni hafi verið kafli ,,Collateral Value and Haircuts“ nr. 3.3.6.2. Í kaflanum hafi verið til meðferðar svonefnd tryggingarþekja. Þessi ákvæði handbókarinnar hafi tekið til afleiðuviðskipta, viðskipta sem unnin hafi verið af starfsmönnum bankans í markaðsviðskiptum og eftir atvikum fjárstýringu, sem ekki hafi farið fyrir lánanefnd. Þau lán sem fallið hafi undir kaflann hafi farið sjálfkrafa út úr bankanum, ef svo mætti orða það. Í þessum tilvikum hafi starfsmenn á viðskiptagólfi gert framvirka samninga við viðskiptavini og haft ákveðinn ramma að miða við til að þurfa ekki að bera viðskipti undir einhvern annan innan bankans. Fjárstýring hafi haft eins konar ,,mekanískt“ eftirlit með þessum viðskiptum, en lánveitingar og skuldbindingar samkvæmt þeim veittar af starfsmönnum á gólfi. Í þessum ákvæðum bókarinnar hafi falist að lánanefndir hafi getað tekið ákvarðanir um lánveitingar án þess að áskildar væru tryggingar á bak við. Ekki hafi verið neinar takmarkanir á heimildum lánanefnda til að lána án trygginga. Fjölmörg dæmi hafi verið um þetta í framkvæmd. Bankinn hafi einnig veitt víkjandi lán í þessu samhengi. Að því er varðaði ákvæði 3.3.1.5 hafi ekki verið unnt að heimfæra þessi ákvæði upp á skammtímalánveitingar eins og peningamarkaðslánin. Kaflinn hafi átt við um innlán og afleiðuskuldbindingar gagnvart fjármálafyrirtækjum. Þegar um peningamarkaðslán hafi veri að ræða hafi gilt aðrar takmarkanir samkvæmt almennum reglum. Hafi þar fyrst og fremst verið um ákvæði hlutafélagalaga að ræða. Ekki hafi verið óvenjulegt í stórum viðskiptum að gengið hafi verið frá skammtímafjármögnun viðskipta með skammtímalánafyrirgreiðslum, á meðan beðið væri eftir því að gengið yrði frá lánsskjölum til lengri tíma og þá oft með tilheyrandi veðum og öðrum tryggingum. Þrátt fyrir þetta fyrirkomulag hafi áhætta bankans verið takmörkuð, sérstaklega þegar um sjálfskuldarábyrgð hafi verið að ræða eins og í tilviki Sheikh Mohamed. Þá hafi þau félög sem lánað var, Serval Trading Group Corp, Gerland Assets Ltd. og Choice Stay Ltd., verið undir stjórn starfsmanna Kaupthing Bank Luxembourg S.A. Það hafi dregið verulega úr áhættu bankans. Þessi félög hafi verið stofnuð sérstaklega vegna þessara viðskipta. Félögin hafi því ekki verið með neinar aðrar skuldbindingar. Í venjulegum tilvikum, þegar gengið væri frá samningum um fjárfestingu hlutabréfaviðskipta, væri hefðin sú að eigið fé í viðskiptunum tæki fyrstu áhættu, með öðrum orðum að tryggingin dekkaði fyrsta tapið ef undirliggjandi eignir féllu í verði. Að því er varðaði fjármögnun hlutabréfaviðskipta hafi venjan verið sú að slík fjármögnun væri ekki tilkynnt til Kauphallar eða út á markað. Bjarki kvaðst hafa átt fund með verjendum ákærðu, Hreiðars Más og Ólafs, fyrir aðalmeðferð málsins. Þar hafi komið fram hverjar yrðu spurningar þeirra til vitnisins.
Tommy Stig Persson kvaðst í september 2008 hafa setið í stjórn Kaupþings banka hf. Hafi hann verið á stjórnarfundi í bankanum dagana 25. og 26. september 2008. Ekki hafi hann vitað um lán til Brooks Trading Ltd. sem veitt hafi verið í september 2008, né lán til Gerland Assets Ltd., 29. sama mánaðar. Einstakar lánveitingar hafi almennt ekki verið til umræðu og stjórn ekki átt aðkomu að þeim nema í gegnum lánanefnd stjórnar. Á nefndum stjórnarfundi hafi verið farið í gegnum eigna- og lánasafn bankans. Fram hafi komið á fundinum að Sheikh Mohamed hefði keypt 5,01% hlut í bankanum. Ekki hafi komið fram hvernig hluturinn hefði verið fjármagnaður, né að félag í eigu ákærða, Ólafs, hefði fengið lán vegna kaupanna. Ef fram hefði komið að Kaupþing banki hf. hefði fjármagnað kaupin hefði á þessum stjórnarfundi verið gripið til aðgerða vegna þess.
Gunnar Páll Pálsson kvaðst allt frá árinu 2001 hafa setið í stjórn Kaupþings banka hf. Í talsverðan tíma fyrir september 2008 hafi átt sér stað umræða innan stjórnar um að breikka hluthafahópinn með því að fá erlenda fjárfesta að bankanum. Gunnar Páll hafi átt sæti í lánanefnd stjórnar. Auk hans hafi setið í lánanefndinni Bjarnfreður Ólafsson og ákærðu, Hreiðar Már og Sigurður. Gunnar Páll kvaðst hafa heyrt í fjölmiðlum um kaup Sheikh Mohamed á 5,01% hlut í Kaupþingi banka hf. Lán til Brooks Trading Ltd. hafi verið tekið fyrir á fundinum. Það lán hafi verið kynnt þannig að um væri að ræða fjárfestingu í svonefndum CLN-viðskiptum. Fram hafi komið að þau viðskipti færu fram fyrir tilstuðlan Deutsche Bank. Viðskiptin hafi verið metin örugg þar sem talið hafi verið að bankinn væri ekki að fara á hliðina þó svo skuldatryggingarálag hans hefði farið hækkandi. Vonir hafi staðið til þess að það færi niður. Kynning á láni til Brooks Trading Ltd. hafi komið í gengum lánsumsóknina, sem útbúin hafi verið af Halldóri Bjarkari Lúðvígssyni. Ekki hafi komið fram á þessum fundi að búið hafi verið að greiða út lánið til Brooks Trading Ltd. Í tengslum við lánið hafi verið rætt um að þetta væri hagnaður af CLN-viðskiptum. Fyrirgreiðslan til Brooks Trading Ltd. hafi þó verið afgreidd sem lánveiting. Ekki hafi verið til umræðu á fundinum lán til Gerland Assets Ltd. Þá hafi ekki komið fram að félag í eigu ákærða, Ólafs, hafi fengið lán að fjárhæð 13.000.000.000 króna í september 2008. Ekki hafi verið minnst á aðkomu ákærða, Ólafs, í tengslum við kaup Sheikh Mohamed á hlutabréfum í Kaupþingi banka hf. Á þessum tíma hafi markaðir verið orðnir nokkuð erfiðir. Ákærði, Ólafur, hafi verið einn af stærstu viðskiptavinum bankans og bankinn fjármagnað stór viðskipti hjá honum. Á fundinum hafi verið fjallað um lánveitingar til Serval Trading Group Corp., félags í eigu Sheikh Mohamed. Hafi legið fyrir að um hafi verið að ræða kaup á hlutabréfum í Kaupþingi banka hf. Fram hafi komið að þessi viðskipti væru væntanlega upphafið að meiri viðskiptum af hans hálfu við bankann. Ekki hafi þó komið fram að bankinn fjármagnaði kaupin að fullu. Þá hafi verið upplýst um sjálfskuldarábyrgð Sheikh Mohamed vegna lánveitingarinnar til Serval Trading Group Corp.
Hjörleifur Jakobsson kvaðst hafa verið stjórnarmaður í Kaupþingi banka hf. og verið viðstaddur stjórnarfund í bankanum í London dagana 25. og 26. september 2008. Hjörleifi hafi hvorki verið kunnugt um lánveitingu til félagsins Brooks Trading Ltd. í september 2008, né til félagsins Gerland Assets Ltd. í sama mánuði. Þá hafi ekki legið fyrir upplýsingar um að Kaupþing banki hf. hafi fjármagnað að fullu kaup Sheikh Mohamed á 5,01% hlut í Kaupþingi banka hf. Kaupin hafi þó verið kynnt á fundi stjórnar af ákærða, Sigurði. Á þessum tíma hafi verið umræða innan stjórnar um að breikka hluthafahópinn og fá í hann erlenda fjárfesta. Kaup Sheikh Mohamed á hlut í bankanum hafi verið í samræmi við markmið stjórnenda Kaupþings banka hf. Almenn ánægja hafi verið með kaupin á stjórnarfundinum. Öll þau ár sem Hjörleifur hafi setið í stjórn bankans hafi einstök lánamál aldrei verið rædd. Einu sinni á ári hafi verið farið yfir svonefnda lánabók bankans þar sem gerð hafi verið grein fyrir stöðu einstaka skuldbindinga. Lánanefnd stjórnar hafi fengið það umboð að afgreiða einstök lánamál. Brynja Halldórsdóttir og Ásgeir Thoroddsen báru með sama hætti um atvik. Hafi þau í september 2008 bæði setið í stjórn Kaupþings banka hf. og verið á stjórnarfundinum í London dagana 25. og 26. september 2008. Einstök lánamál hafi ekki verið til afgreiðslu á stjórnarfundum og því ekki komið til tals lánveitingar til Brooks Trading Ltd. og Gerland Assets Ltd. Því hafi ekki komið fram að félag ákærða, Ólafs, hefði fengið lán til að kaupa hlutabréf í Kaupþingi banka hf. Ekki mundu þau sérstaklega eftir því að til umræðu hafi verið kaup Sheikh Mohamed á 5,01% hlut í bankanum. Lánanefnd stjórnar hafi haft umboð til að afgreiða einstaka lánveitingar.
Lýður Guðmundsson kvaðst í september 2008 hafa verið varaformaður stjórnar Kaupþings banka hf. Hafi Lýður verið viðstaddur fund stjórnar dagana 25. og 26. september 2008. Lán til einstakra viðskiptavina hafi ekki verið rædd á stjórnarfundum í bankanum. Af þeim ástæðum hafi ekki borið á góma lánveitingar til Brooks Trading Ltd. eða Gerland Assets Ltd., eða að félag í eigu ákærða, Ólafs, hefði komið að viðskiptunum. Viðskipti Q Iceland Finance ehf. hafi verið rædd á stjórnarfundinum og stjórn almennt verið ánægð með kaupin á hlutabréfunum í bankanum. Ekki hafi komið fram í þeirri kynningu hvernig kaupin hefðu verið fjármögnuð eða að kaupandinn legði fram sjálfskuldarábyrgð í tengslum við kaupin. Lýður kvaðst staðfesta að innan stjórnar hefði á þessum tíma verið rætt um að leggja áherslu á að breikka hluthafahóp bankans, einkum með því að leita eftir fjársterkum útlendum aðilum. Viðskipti Sheikh Mohamed hafi verið í samræmi við þessa stefnu stjórnar.
Guðrún Harðardóttir kvaðst hafa verið starfsmaður áhættustýringar Kaupþings banka hf. og verið ritari lánanefndar. Sem ritari hafi hún tekið við fundargögnum fyrir fundi og sent þau á nefndarmenn. Þá hafi hún ritað fundargerðir lánanefndarfunda. Á fundum nefndarinnar hafi verið lögð fram dagskrá og hún fyrir fram verið send á nefndarmenn. Bjarki H. Diego framkvæmdastjóri hafi yfirleitt kynnt einstök mál á fundum nefndarinnar. Í einhverjum tilvikum hafi viðskiptastjórar verið kallaðir til í þeim tilgangi. Í þeim tilvikum að mál hafi verið tekin fyrir milli funda hafi tölvupóstur verið sendur á nefndarmenn og þeir beðnir um að lýsa afstöðu sinni til málefna. Hafi Guðrún haldið utan um það og séð til þess að mál sem væru þannig afgreidd væru tekin fyrir á næsta fundi í nefndinni. Guðrún kvaðst hafa verið stödd á fundi lánanefndar 24. september 2008 og hafa ritað þar fundargerð. Ekki mundi hún sérstaklega eftir lánveitingu til Brooks Trading Ltd. sem tekin hafi verið fyrir á fundinum. Inntak í lánabeiðnum hafi jafnan endurspeglað fundargerðir lánanefndar. Bjarki hafi jafnan lesið yfir fundargerðir lánanefndar. Að því er varðaði breytingu á fundargerð vegna láns til Brooks Trading Ltd. kvaðst Guðrún ekki hafa tekið út úr fyrri drögum að fundargerð atriði varðandi fyrirframgreiðslu á hagnaði tengd lánveitingunni. Ekki vissi hún hver hefði gert þessa breytingu á fundargerðinni.
Ingólfur Helgason kvaðst hafa verið forstjóri yfir Kaupþingi á Íslandi í september 2008. Yfirmaður Ingólfs hafi verið ákærði, Hreiðar Már. Yfir Ingólfi hafi einnig verið svokölluð verkstjórn. Í henni hafi verið ákærðu, Hreiðar Már og Sigurður, og Steingrímur P. Kárason, yfirmaður fjárstýringar bankans. Ingólfur kvaðst ekkert hafa komið að lánveitingum til félaganna Brooks Trading Ltd. og Gerland Assets Ltd. í september 2008. Þá hafi Ingólfur ekki þekkt til þess að félag í eigu ákærða, Ólafs, hafi fengið lán til kaupa á hlutabréfum í Kaupþingi banka hf. Að því er varðaði viðskipti Q Iceland Finance ehf. með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. hafi ákærði, Hreiðar Már, hringt í Ingólf helgina 19. til 21. september 2008 og tilkynnt að komin væru á viðskipti með um 5% hlut í bankanum. Það hafi verið fyrstu fregnir sem Ingólfur hafi haft af málinu. Hafi ákærði falið Ingólfi að annast frágang viðskiptanna í samræmi við upplýsingar er ákærði hafi látið í té. Hafi Ingólfur átt að sjá um að upplýsingar yrðu sendar til Kauphallarinnar og á aðra nauðsynlega staði til að koma viðskiptum á réttan hátt á markað. Hafi Ingólfur sett sig í samband við eigin viðskipti og markaðsviðskipti bankans. Eitthvað hafi vantað upp á að bankinn ætti nægjanlega mörg hlutabréf í bankanum og hafi Ingólfi verið falið að útvega það sem á hafi vantað til að nægt magn hlutabréfa væri til á mánudeginum 22. september 2008. Ekki hafi Ingólfur haft upplýsingar um hvernig kaup Q Iceland Finance hf. á bréfunum yrðu fjármögnuð. Hafi Ingólfur á sínum tíma talið viðskiptin góð fyrir bankann.
Helgi Sigurðsson kvaðst í september 2008 hafa verið framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Kaupþings banka hf. Yfirmenn Helga á þessum tíma hafi verið ákærði, Hreiðar Már, og Ingólfur Helgason. Að því er varðaði viðskipti Q Iceland Finance ehf. með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. hafi Helgi fyrst frétt af þeim viðskiptum helgina 20. til 21. september 2008. Hafi Helgi verið beðinn um að tilkynna viðskiptin til Fjármálaeftirlitsins og sjá um að flagga viðskiptunum. Ekki hafi Helga á sínum tíma verið kunnugt um lán Kaupþings banka hf. til félagsins Brooks Trading Ltd. frá í september 2008 eða lán til félagsins Gerland Assets Ltd., sem veitt hafi verið 29. september 2008. Að því er varðaði kaup Sheikh Mohamed á hlutabréfum í Kaupþingi banka hf. hafi Helgi vitað til þess að Sheikh Mohamed fengi lán frá Kaupþingi banka hf. til kaupa á hlutabréfunum og að hann legði fram á móti sjálfskuldarábyrgð fyrir helmingi kaupverðsins. Þetta hafi sennilega komið upp á sínum tíma í viðræðum við ákærða, Hreiðar Má. Ekki hafi Helgi vitað um aðkomu ákærða, Ólafs, að viðskiptunum og að félagi í hans eigu yrði lánað fyrir kaupum á hlutabréfum í bankanum. Helgi kvaðst hafa verið viðstaddur fund í stjórn Kaupþings banka hf. dagana 25. og 26. september 2008. Í lok fundarins hafi komið fram um kaup Q Iceland Finance ehf. á hlutabréfum í bankanum. Hafi því verið fagnað því lengi hafi verið unnið að því að fá fjárfesta frá Mið-Austurlöndum til að fjárfesta í bankanum og koma þannig með hlutafé inn í bankann. Á stjórnarfundinum hafi ekki verið farið yfir fjármögnun kaupanna. Hafi almennt ekki verið rætt um einstök viðskipti á stjórnarfundum í bankanum. Að því er varðaði tölvupóst sem Helgi hafi sent ákærða, Magnúsi, og Ingólfi Helgasyni 22. september 2008, þar sem Helgi hafi sagt að félagið Q Iceland Finance ehf. gæti augljóslega ekki staðið undir miklum viðskiptum og að það þjónaði takmörkuðum tilgangi að gera mikla samninga við það, hafi Helgi gengið út frá þeirri forsendu að einhverjar ábyrgðaryfirlýsingar þyrftu að koma inn til að unnt yrði að ganga frá viðskiptum við félagið. Helgi kvaðst einungis hafa haft stóru mynd þessara kaupa er fréttatilkynning vegna kaupanna hafi verið gefin út. Hafi Helgi ekki vitað um aðkomu ákærða, Ólafs, að þeim. Hafi hann vitað að Sheikh Mohamed væri að kaupa umrædda hluti í bankanum, að hann ætlaði að leggja fram sjálfskuldarábyrgð fyrir helmingi kaupverðsins og að Kaupþing banki hf. hafi ætlað að fjármagna kaupin. Ekki hafi Helgi vitað nákvæmlega hve mikið yrði lánað til kaupanna, en það yrði að verulegu leyti. Á þessum tíma hafi verið töluverður lausafjárskortur í öllum heiminum. Um hafi verið að ræða mjög umfangsmikil viðskipti og Helgi því ekki gert ráð fyrir því að kaupandinn kæmi með stóra fjármuni inn í bankann. Hafi Helgi talið viðskiptin mikilvæg fyrir bankann. Á þessum tíma hafi 50% hlutfall trygginga eða eiginfjár í viðskiptum þótt mjög gott. Reglur um flöggun hafi verið hluti af upplýsingaskyldu á verðbréfamarkaði og sú meginregla gilt að upplýsingum yrði að koma á framfæri þegar í stað, eða eins fljótt og unnt væri. Þannig hafi átt að tilkynna um viðskipti jafnvel þó svo þau væru ekki endanlega frágengin. Hafi enginn vafi verið í huga Helga um að borið hafi að tilkynna um viðskiptin á þessum tíma. Ekkert hafi komið fram um fjármögnun kaupanna í tilkynningunni. Það hafi ekki verið venja að gera það hjá Kaupþingi banka hf. né öðrum aðilum sem sent hafi upplýsingar inn á markað. Í því efni hafi bankinn farið eftir lögum nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Reglur Kauphallar fyrir útgefendur fjármálagerninga, ákvæði nr. 2.18 um kaup og sölu fyrirtækja, hafi ekki átt við um kaup og sölu á hlutabréfum. Hafi reglurnar átt við um kaup og sölu félags og fyrirtækis í heild sinni þegar verið væri að selja fyrirtæki. Í tilviki Q Iceland Finance ehf. hafi verið um að ræða 5% hlut í bankanum og ekki verið venja að tilkynna fjármögnun kaupa í slíkum tilvikum. Þá hafi verið áhöld um hvort ákvæði um þagnarskyldu heimiluðu að slíkar upplýsingar yrðu veittar um fjármögnun kaupa. Helgi kvaðst telja að engu skipti um flöggun viðskiptanna þó svo félag í eigu ákærða, Ólafs, hafi komið að viðskiptunum. Flöggun snerist um atkvæðisrétt.
Í stærri viðskiptum innan bankans hafi oft verið beðið með frágang á skjölum. Í lánasamningum hafi verið algengast að gengið væri frá svokölluðu ,,head of turns“ áður en gengið yrði frá endanlegri skjalagerð. Hagsmunir Kaupþings banka hf. hafi verið nægjanlega tryggðir þó svo ekki yrði gengið frá endanlegum lánasamningum þegar í upphafi. Um hafi verið að ræða mjög fjársterkan aðila frá Mið-Austurlöndum og enginn vafi á að slíkur einstaklingur færi ekki af stað í viðlíka viðskipti án þess að ætla að standa við þau. Þá hafi aukið öryggi varðandi lánveitingar jafnframt falist í því að Kaupthing Bank Luxembourg S.A. hafi útvegað viðskiptavinum félög sem væru lántakendur. Þeim félögum hafi verið stýrt af starfsmönnum bankans, sem séð hafi um að hagsmunir bankans væru tryggðir. Þannig hafi þurft aðkomu starfsmanna bankans til að fjármunum yrði ráðstafað út úr þessum félögum. Helgi kvaðst hafa komið að gerð handbókar fyrir Kaupþing, svonefndrar reglubókar. Það hafi hann gert í samvinnu við Steingrím P. Kárason, framkvæmdastjóra fjárstýringar, en þeir tveir hafi nánast verið ritstjórar bókarinnar. Kafli 3.3.6.2 í bókinni hafi tekið til svonefndra afleiðuviðskipta og einungis átt við um þau viðskipti. Þessi ákvæði hafi ekki átt við um lánveitingar til félaga Sheikh Mohamed um kaup á hlutabréfum í Kaupþingi banka hf. Hefðbundnar lánveitingar innan bankans hafi ekki takmarkast við innstæður og verðbréf sem tryggingar. Bankinn hafi tekið sem tryggingar veð í vörubirgðum, vörureikningum, lausafé, bifreiðum o.s.frv. Umræddur kafli hafi einungis átt við um þessa tiltekna tegund viðskipta sem hafi verið afleiðuviðskipti eða ,,derivaties“. Þetta atriði hafi ekki vafist fyrir neinum innan bankans. Hefðbundnar eiginfjárkröfur í hlutabréfaviðskiptum á þessum tíma hafi verið um 20%. Engar reglur innan bankans hafi kveðið á um það. Lánanefndir hafi haft heimildir til að veita lán án veða. Ekki hafi verið neinar takmarkanir á því. Eins hafi verið veitt víkjandi lán með samþykki lánanefnda. Lán til stórra fjármálafyrirtækja hafi meira og minna verið án veðsetninga. Hafi það gilt um lán til ríkis, sveitarfélaga, ríkisfyrirtækja, skráðra félaga, fjármálafyrirtækja og stórfyrirtækja. Í lánssamningum til þessara lögaðila hafi verið ákvæði þess efnis að viðkomandi lögaðilum hafi verið óheimilt að veita tryggingar í einstökum lánaviðskiptum. Þá hafi verið ákvæði um að allir stæðu jafnir til eigna félagsins. Þá hafi verið tiltekið eiginfjárhlutfall sem hafi verið lagt til grundvallar. Þannig hafi öll stærri lán verið án trygginga. Hafi þetta ekki verið bundið við Kaupþing banka hf. og komið fram í alþjóðlegum lánasamningum. Ákvæði 3.3.3.1.5 í handbók Kaupþings banka hf. hafi tekið til afleiðuviðskipta, innstæðna og peningamarkaðslána sem fjárstýring hafi gert við aðrar fjármálastofnanir. Um hafi verið að ræða ávöxtun á skammtímafé. Hafi bankinn jafnan verið með skammtímafé sem hann hafi þurft að ávaxta til skamms tíma. Ákveðinn ramma hafi þurft í kringum slík lán. Þessi ákvæði yrðu hins vegar ekki yfirfærð á skammtímalánveitingar bankans í hlutafjárviðskiptum. Þegar reglubókin hafi verð samin á sínum tíma hafi hún ekki verið hugsuð fyrir æðstu stjórnendur bankans. Staða þeirra hafi verið ágætlega skilgreind í lögum um fjármálafyrirtæki, lögum um hlutafélög og ýmsum reglum sem Fjármálaeftirlitið hefði gefið út. Handbókin hafi litlu bætt við í þeim efnum. Bókin hafi verið ætluð öðrum innan bankans sem hafi tekið viðskiptalegar ákvarðanir. Þeir hafi ekki haft mikið annað til að styðjast við. Sala á hlutabréfum í bankanum hafi farið þannig fram að fjárhæðinni hafi verið ráðstafað inn á reikning viðkomandi í bankanum og samtímis út af honum aftur til greiðslu á kaupverði. Þannig hafi ekki verið um sambærilega áhættu að ræða og þegar verið væri að veita ný lán. Helgi kvað verjanda ákærða, Hreiðars Más, hafa verið í sambandi fyrir aðalmeðferð málsins. Hefði verjandinn spurst fyrir um hvort Helgi gæti upplýst í aðalmeðferðinni um tiltekin atriði sem verjandinn hygðist spyrja um.
Jóhannes Rúnar Jóhannsson staðfesti að endurskoðunarskrifstofan Grant Thornton hefði sent skilanefnd Kaupþings banka hf. bréf vegna skipta á þrotabúi Brooks Trading Ltd. Þar hafi skiptastjórinn verið þeirrar skoðunar að ráðstöfun á fjármunum félagsins til að greiða niður lán Serval Trading Group Corp hafi verið óheimil samkvæmt félagarétti í Lúxemborg og ógild eða ógildanleg. Hafi slitastjórn Kaupþings banka hf. krafist gjaldþrotaskipta á félaginu. Hafi slitastjórnin unnið að því að endurheimta þessa fjármuni vegna ráðstöfunar þeirra út af reikningi Brooks Trading Ltd. 8. október 2008. Slitastjórn hafi fengið upplýsingar um ráðstöfunina fljótlega eftir að Fjármálaeftirlitið hafi tekið yfir Kaupþing banka hf. Í upphafi dags 8. október 2008 hafi Kaupþing banki hf. átt kröfu á félagið Brooks Trading Ltd. sem hafi átt 50.000.000 Bandaríkjadala inni á reikningi félagsins. Kaupþing banki hf. hafi sömuleiðis átt kröfu á hendur félaginu Serval Trading Group Corp, sem hafi verið í eigu Sheikh Mohamed, upp á tæplega 12.900.000.000 króna. Krafan á hendur Serval Trading Group Corp hafi verið tryggð með sjálfskuldarábyrgð Sheikh Mohamed. Í þriðja lagi hafi Kaupþing banki hf. átt kröfu á félagið Gerland Assets Ltd. upp á sömu fjárhæð. Það félag hafi verið í eigu ákærða, Ólafs. Endurheimtumöguleikar Kaupþings banka hf. hafi því verið góðir að morgni þessa dags. Eftir að fjármunir Brooks Trading Ltd. hafi verið notaðir til að greiða inn á lánið til Serval Trading Group Corp. hafi endurheimtur Kaupþings banka hf. breyst á svipstundu. Eftir það, eða 9. október 2008, hafi Kaupþing banki hf. einungis átt litla kröfu á Serval Trading Group Corp, eða sem numið hafi um 400.000.000 króna, einungis kröfu á hendur Brooks Trading Ltd., sem þá hafi litlar sem engar eignir átt. Loks hafi bankinn átt kröfu á hendur Gerland Assets Ltd. Kröfur bankans á hendur Serval Trading Group Corp. hafi verið greiddar upp af ákærða, Ólafi, fyrir hönd Sheikh Mohamed. Hafi slitastjórnin skoðað þessi mál og PriceWaterHouseCoopers komið að því. Þá hafi lögmenn í Bretlandi verið ráðnir til þess að skoða þessi mál og mögulegar endurheimtur. Hafi niðurstaðan verið sú að einhverjar endurheimtur væru mögulegar. Slitastjórnin hafi haft samband við lögmenn Sheikh Mohamed Al Thani varðandi þessi atriði til að leita sátta um mögulegar greiðslur frá Sheikh Mohamed til slitastjórnarinnar. Þær umleitanir hafi ekki gengið eftir og stefna á hendur Sheikh Mohamed verið gefin út í kjölfarið. Áður en hún hafi verið þingfest hafi náðst sátt við Sheikh Mohamed. Samkvæmt samningi við Sheikh Mohamed hafi hann greitt skiptastjóra Brooks Trading Ltd., 26.500.000 Bandaríkjadali til að ljúka málinu. Slitastjórn Kaupþings banka hf. hafi fengið stóran hluta af þeirri fjárhæð við skipti á búinu. Það hafi verið mat þeirra er að málinu hafi komið að farsælt væri að ljúka því með þessum hætti. Hafi lögmenn Sheikh Mohamed haft uppi varnir gagnvart kröfunni og meðal annars borið því við að Sheikh Mohamed hafi talið sig blekktan við kaup á hlutabréfum í Kaupþingi banka hf. Ekki hafi komið til greina af hálfu slitastjórnar að rifta kaupum Sheikh Mohamed á hlutabréfum í bankanum. Þau hafi verið verðlaus eftir 8. október 2008.
Steingrímur P. Kárason kvaðst í september 2008 hafa verið framkvæmdastjóri áhættustýringar Kaupþings samstæðunnar. Ákærði, Hreiðar Már, hafi verið yfirmaður Steingríms. Í Kaupþingi banka hf. hafi verið tvær lánanefndir. Lánanefnd samstæðu annars vegar og lánanefnd stjórnar hins vegar. Hafi Steingrímur setið fundi lánanefndar samstæðu og lánanefndar stjórnar og haft eftirlit með störfum nefndanna án þess að taka þátt í ákvörðunum þeirra. Eftirlit Steingríms hafi falist í því að sjá til þess að áhættureglum yrði fylgt og að lánanefndir hefðu allar þær upplýsingar sem þær þyrftu við ákvarðanatöku. Hafi lánanefndir átt að fara eftir áhættureglum. Alla jafnan hafi viðskiptastjórar eða Bjarki H. Diego, framkvæmdastjóri lánasviðs, kynnt mál á fundum. Steingrímur kvaðst hafa vitað til þess um viku fyrir viðskipti Q Iceland Finance ehf. með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. að þessi viðskipti stæðu til. Hafi hann haft vitneskju um að ákærði, Magnús, hafi farið til Katar vegna kaupanna. Skömmu áður hafi Steingrímur tekið þátt í kynningu á starfsemi bankans fyrir fjárfestingarsjóði í Katar. Steingrímur hafi setið fund lánanefndar stjórnar 24. september 2008 þar sem lánveitingar tengdar þessum kaupum hafi komið upp. Þar hafi komið upp lán til félagsins Brooks Trading Ltd. Í lánsbeiðni hafi komið fram hver væri eigandi félagsins. Ekki hafi lánanefnd vitað til þess að lán til þessa félags hefði hugsanlega verið greitt út 19. september 2008. Ekki myndi Steingrímur eftir umræðu í lánanefnd um að lánið tengdist fyrir fram greiddum hagnaði af CLN- viðskiptum, þó svo það hafi greinilega tengst CLN-strúktúr. Fram hafi komið að CLN-strúktúrar væru veðsettir til tryggingar láninu. Fyrir hafi legið að Kaupþing banki hf. væri að fjármagna kaup Q Iceland Finance ehf. á hlutum í bankanum. Einnig hafi verið gerð grein fyrir sjálfskuldarábyrgð Sheikh Mohamed fyrir helmingi kaupverðs bréfanna. Steingrímur kvað lánanefndum hafa verið heimilt að veita lán án trygginga. Áhætta hafi vissulega verið í því fólgin, en starfsemi banka gengi út á að lána fé og í sumum tilvikum án trygginga. Lán til Brooks Trading Ltd. hafi verið til félags sem hafi verið í umsjá Kaupthing Bank Luxembourg S.A. Að auki hafi fjármunir til félagsins verið í bankanum í Lúxemborg. Það hafi átt að minnka áhættu tengda láninu. Hafi Steingrímur skilið þetta svo að þessir fjármunir hafi átt að fara í fjárfestingar undir stjórn Kaupthing Bank Luxembourg S.A. Eigandi Brooks Trading Ltd. hafi í sjálfu sér ekki tekið áhættu með þessum viðskiptum. Ekki kvaðst Steingrímur muna eftir lánveitingu til félagsins Gerland Assets Ltd. í september 2008. Þá hafi hann ekki vitað að ákærði, Ólafur, hafi hafi átt aðkomu að viðskiptum Q Iceland Finance með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. Hafi Steingrímur ekkert komið að eða þekkt strúktúr að baki viðskiptum Q Iceland Finance ehf. með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. Hefðbundnar eiginfjárkröfur í viðskiptum af þessum toga hafi verið allt frá 0% upp í 50%, allt eftir mótaðila í viðskiptum. Algeng tala hafi verið á bilinu 20 til 25%. Því hafi verið um hátt veðhlutfall að ræða í viðskiptum við Sheikh Mohamed. Ekki hafi neinar reglur innan bankans kveðið á um lágmarkshlutfall trygginga í hlutabréfaviðskiptum. Hafi lánanefnd haft heimild til að samþykkja það hlutfall sem hún teldi nægjanlegt. Steingrímur kvaðst hafa verið nokkurs konar ritstjóri regluhandbókar Kaupþings banka hf. Hafi hún verið kynnt fyrir stjórn bankans einu sinni á ári. Bankinn hafi breyst hratt og erfitt reynst að láta handbókina, samþykkta af stjórn, fylgja breytingum. Af þeim ástæðum hafi verið sett inn ákvæði um að forstjóri bankans hefði heimild til þess að breyta reglunum. Hafi forstjórinn ekki getað farið yfir þá heimild, en getað breytt reglunum að öðru leyti. Ákvæði 3.3.6.2 í regluhandbók Kaupþings hafi einungis átt við um afleiðuviðskipti bankans. Sérákvæði um veðhlutföll og heimildir til afleiðuviðskipta hafi verið inni þar sem þessi mál hafi ekki farið fyrir lánanefndir. Þessi viðskipti hafi farið fram í deild innan bankans sem ekki hafi haft heimildir til að taka lánaáhættu. Að því er varðaði ákvæði 3.3.3.1.5 í reglubókinni hafi sú heimild tekið til lána milli fjármálastofnana, svonefnd millibankalán, þar sem fjármálastofnanir hafi verið að ávaxta laust fé til skemmri tíma. Um hafi verið að ræða ramma fyrir fjárstýringu til að fara eftir. Viðkomandi ákvæðum handbókarinnar hafi ekki átt að beita þegar um skammtímalán til félaga eins og Brooks Trading Ltd. eða Gerland Assets Ltd. hafi verið að ræða. Form lánsins hafi ekki skipt máli í því sambandi. Almennar reglur hafi gilt um slíkar lánveitingar. Steingrímur kvaðst hafa setið í ALCO-nefnd innan bankans sem hafi haft það hlutverk að fylgjast með lausafjárstöðu bankans. Staða bankans hafi verið ,,batnandi“ í september 2008 og verið orðin nokkuð góð. Innlán í evrum hafi aukist mikið. Hafi stjórnendur bankans séð fram á að með sama áframhaldi myndu innlán duga til að greiða upp langtímaskuldir. Bjartsýni hafi því ríkt. Staðan hafi gjörbreyst við fall Glitnis banka hf. Með því hafi erlendir bankar hætt að treysta íslenskum mótaðila. Hafi lánshæfismat íslenska ríkisins verið fært niður sem myndað hafi þak fyrir lánshæfismat bankanna. Þetta hafi leitt til þess að lánshæfismat Kaupþings banka hf. hafi lækkað og lánalínur farið í uppnám vegna þess.
Ólafur Frímann Gunnarsson kvaðst í september 2008 hafa verið forstöðumaður á millibankaborði í fjárstýringu Kaupþings banka hf. Yfirmaður Ólafs hafi verið Guðmundur Þór Gunnarsson viðskiptastjóri. Dagleg störf hafi falist í lausafjárstýringu bankans og gjaldeyrisstýringu á millibankaborði. Peningamarkaðslán hafi verið lán sem veitt hafi verið milli banka. Að auki hafi peningamarkaðslán verið lán þar sem fyrirtækjasvið hafi lánað út fjármuni. Hafi nægjanlega hátt settur framkvæmdastjóri komið með slík lán, og haft til þess heimild, hafi þessi lán verið afgreidd inn í kerfi fjárstýringar. Viðskiptastjórar á fyrirtækjasviði hafi haft slíka heimild, sem og yfirmenn þeirra. Því til samræmis hafi t.a.m. ákærði, Hreiðar Már, og Halldór Bjarkar Lúðvígsson viðskiptastjóri haft slíka heimild. Fyrirmæli hafi komið af fyrirtækjasviði um að tekin hafi verið ákvörðun um að lána tilteknu fyrirtæki. Hafi þess verið farið á leit að fjárstýring setti þetta inn í kerfi sitt. Viðskiptin hafi í kjölfarið verið afgreidd í bakvinnslunni. Ef fyrirtækjalán hafi komið til fjárstýringar hafi það ekki verið hlutverk starfsmanna þar að athuga hvort gilt samþykki lánveitanda lægi fyrir. Lausafjárstaða bankans hafi verið erfið í september 2008. Helsta hlutverk Ólafs á þessum dögum hafi verið að láta bankann ,,rúlla“ á hverjum degi og gæta að því að nægjanlegir fjármunir væru til inni á öllum reikningum til að greiða það sem þyrfti að greiða. Ólafur kvaðst hafa komið að því 8. október 2008 er fjármunir af reikningi Brooks Trading Ltd. í Lúxemborg hafi verið notaðir til að greiða lán til félagsins Serval Trading Group Corp. Á þessum tíma hafi Ólafur verið að reyna að ná í allan þann gjaldeyri sem hann hafi getað þar sem mikill skortur hafi verið á honum. Boð hafi komið frá bankanum í Lúxemborg um að þeir ættu 50.000.000 Bandaríkjadala sem þeir þyrftu að skipta yfir í krónur og Kaupþing banki hf. gæti keypt. Hafi Kaupþing banki hf. því fengið bandaríkjadali í hendur. Í framhaldi hafi krónurnar verið notaðar til að greiða upp tiltekið lán og krónur því komið til baka með þeim hætti inn í bankann. Hafi Eggert Hilmarsson, yfirlögfræðingur í Kaupthing Bank Luxembourg A.S., upprunalega haft samband við Ólaf vegna þessa. Starfsmenn Kaupthing Bank Luxembourg S.A. hafi þekkt gengi krónunnar á þessum tíma á alþjóðlegum mörkuðum og frekar viljað eiga viðskipti við Kaupþing banka hf. Hafi starfsmenn Kaupthing Bank Luxembourg S.A. stungið upp á verðinu og Ólafur samþykkt það verð þar sem verð á erlendum mörkuðum hafi verið enn hærra. Hafi Ólafur talið sig geta losað krónurnar út, hefði hann fengið tíma til þess, þar sem verð á erlendum mörkuðum hafi þá verið enn hærra. Hafi Ólafur á þessum tíma sennilega borið þetta undir yfirmann sinn, Steingrím P. Kárason framkvæmdastjóra, og fengið samþykki hans. Legið hafi á að klára þessi viðskipti sama dag og sú pressa komið m.a. frá Eggerti Hilmarssyni. Ólafur hafi talið að með þessu fengi hann 50.000.000 Bandaríkjadala inn í bankann. Síðar hafi komið í ljós að hann hafi ekki fengið dalina til sín heldur hafi þeir verið notaðir til að ,,netta“ á móti bankanum í Lúxemborg. Það hafi bókhald bankans séð um eftir að fjármunir hafi verið komnir inn í bakvinnsluna.
Guðný Arna Sveinsdóttir kvaðst í september 2008 hafa verið fjármálastjóri Kaupþings samstæðunnar. Hafi hún sem fjármálastjóri borið ábyrgð á reikningshaldi og uppgjöri bankans. Hafi hún fyrst frétt af viðskiptum Q Iceland Finance ehf. með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. er kaupin hafi verið tilkynnt 22. september 2008. Hún hafi þess vegna ekkert þekkt til lána til félaganna Brooks Trading Ltd. og Gerland Assets Ltd. í september 2008. Hún hafi þó vitað af því að einhverju fyrr hafi áreiðanleikakönnun verið í gangi á bankanum vegna hugsanlegra viðskipta með hlutabréf í bankanum. Ekki hafi Guðný Arna komið að því að fjármunir á reikningi Brooks Trading Ltd. hafi verið notaðir til að greiða upp lán til félagsins Serval Trading Group Corp. Hún myndi þó eftir því að Ólafur Frímann Gunnarsson, forstöðumaður á millibankaborði í fjárstýringu, hefði rætt um að gera gjaldeyrisviðskipti á milli Kaupþings banka hf. og Kaupthing Bank Luxembourg S.A. Guðný kvaðst hafa setið í svonefndri ALCO nefnd innan bankans. Lausafjárstaða bankans hafi verið til meðferðar í nefndinni. Í kringum 22. september 2008 hafi almennt verið talið að lausafjárstaða bankans færi ,,batnandi“. Jákvæð teikn hefðu verið á lofti varðandi innlánssöfnun bankans þannig að fréttir varðandi lausafjárstöðuna hafi fremur verið jákvæðar en neikvæðar á þessum tíma. Við útreikning á eiginfjárhlutfalli bankans hafi eigin bréf bankans komið til frádráttar. Við viðskipti bankans við Q Iceland Finance ehf. hafi bankinn afhent eigin hlutabréf í bankanum. Það hafi leitt til þess að eiginfjárstaða bankans hafi batnað. Að því er varðaði skjal sem bæri yfirskriftina beiðni um millifærslu, sem dagsett væri 29. september 2008, þar sem tilgreind væru félögin Serval Trading Group Corp og Gerland Assets Ltd., hafi verið um að ræða útibú Kaupþings banka hf. Annað hafi tilheyrt fjárstýringu bankans en hitt hafi tilheyrt útlánasviði eða fyrirtækjasviði. Báðir reikningarnir hafi því verið innan Kaupþings banka hf. Fjárhæðir hafi verið færðar í mörgum færslum sem hver hafi verið nærri 990.000.000 króna af þeirri ástæðu að ekki hafi verið unnt að millifæra í kerfinu hærri fjárhæð en 999.000.000 krónur þar sem kerfi Reiknistofu bankanna hafi ekki ráðið við stærri tölur. Í skjalinu komi fram millifærsla á ríflega 12.800.000.000 króna frá Serval Trading Group Ltd., annars vegar, og Gerland Assets Ltd. hins vegar, til félagsins Choice Stay Ltd. Þá væri kaupnóta vegna kaupa á Q Iceland Finance ehf. á 37.100.000 hlutum í Kaupþingi banka hf. sem tekið hafi verið út af tilgreindum reikningi. Þar með hafi hringnum verið lokað. Kaupþing banki hf. hafi þar með fengið fjármunina aftur inn á eigin reikning. Fjármunirnir hafi því alla tíð verið innan bankans. Lausafjárstaða bankans hafi því ekkert breyst við færslurnar.
Ólöf Embla Einarsdóttir kvaðst hafa verið regluvörður Kaupþings banka hf. í september 2008. Yfirmaður hennar hafi verið Helgi Sigurðsson, framkvæmdastjóri lögfræðisviðs bankans. Sem regluvörður bankans hafi hún almennt ekki haft með fjármögnun hlutabréfaviðskipta að gera. Ólöf kvaðst hafa frétt af viðskiptum Q Iceland Finance ehf. með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. í september 2008 er Helgi hafi hringt í hana og látið hana vita af viðskiptunum. Það hafi sennilega verið sunnudaginn 21. september 2008. Flagga hafi þurft viðskiptunum og hafi regluvörður bankans haft það hlutverk með höndum að sjá um hina formlegu hlið þess þáttar. Mikil pappírsvinna hafi verið í kringum það sem hafi þurft að annast. Hafi Ólöf verið kölluð niður í bankann þennan sunnudag til að ganga frá þessum hlutum. Mikið af hlutum í bankanum sjálfum hafi verið búið að safnast saman inn á bók bankans. Hlutafélag hafi að hámarki mátt eiga 10% í sjálfu sér og enginn akkur verið í því fyrir félagið að eiga of mikið. Í samtölum við Helga hafi komið fram að bankinn hafi ekki viljað fara yfir 5% markið í viðskiptunum. Hafi Ólöf skilið þetta þannig að söluþungi hafi verið á bréfunum. Mikið hafi verið búið að hlaðast upp og hafi það verið talið vandamál. Eigin viðskipti hafi á undan verið búin að kaupa mikið af bréfum í sjálfum bankanum. Hafi Ólöf upplifað stöðuna þannig að á árinu 2008 hafi orðið sífellt erfiðara að selja bréf í bankanum og því hafi stórum viðskiptum eins og þeim við Q Iceland Finance ehf. verið fagnað. Ekki hafi Ólöf á þessum tíma fengið upplýsingar um hvernig að fjármögnun kaupa Q Iceland Finance ehf. hafi verið staðið. Á sínum tíma hafi Ólöf ekki séð fyrir sér að Kaupþing banki hf. væri að fjármagna kaupin sjálfur. Hafi hún talið að viðlíka eignamaður og Sheikh Mohamed Al Thani myndi kaupa þessa hluti eins og hverja aðra fjárfestingu. Þar sem hlutabréfaviðskipti væru áhættufjárfesting hefði hún ekki hugsað þau sem lánsviðskipti. Máli hafi skipt hvernig kaupandinn hafi verið kynntur. Hafi hún hugsað kaupin þannig að kaupandinn myndi einfaldleg sækja kaupverðið í sína sjóði. Ólöf hafi þó ekki haft yfirsýn yfir það innan bankans hversu algengt hafi verið að bankinn fjármagnaði sjálfur kaup á hlutabréfum í bankanum. Að því er varðaði flöggun kaupanna væri til staðar staðlað form fyrir flöggun og peningaþvættisspurningalista sem væru á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins. Þar sem Ólöf hafi verið hagvön í þessum málaflokki hafi hún verið beðin um að sjá til þess að þessi atriði væru í lagi varðandi þau félög sem komið hafi að viðskiptunum. Hún hafi þó ekki fyllt út formin varðandi hin félögin þar sem það hafi ekki verið eðlilegt. Ekki kvaðst Ólöf hafa komið að því að semja fréttatilkynningu vegna kaupanna, en verið geti að hún hafi þó lesið hana yfir þegar hún hafi verið tilbúin.
Andri Vilhjálmur Sigurðsson kvaðst hafa verið starfsmaður í lögfræðideild Kaupthing Bank Luxembourg S.A. í september 2008. Yfirmaður Andra hafi verið Eggert Hilmarsson, framkvæmdastjóri lögfræðisviðs. Andri kvaðst fyrst og fremst hafa komið að viðskiptum Q Iceland Finance ehf. með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. í gegnum stjórnarsetu í félögum sem aftur hafi verið í stjórn félaganna Gerland Assets Ltd. og Serval Trading Group Corp. Kaupthing Bank Luxembourg S.A. hafi haft umsjón með þessum félögum. Um hafi verið að ræða félögin Allied Directors Corp., Global Managers Inc. og International Officers Limited. Seta í þessum félögum hafi verið liður í þjónustu Kaupthing Bank Luxembourg S.A. sem veitt hafi verið viðskiptavinum bankans. Í þeirri vinnu hafi verið fólgið að hafa umsjón með rekstri eignarhaldsfélaga. Með því hafi viðskiptavinir ekki þurft að sækja þá þjónustu á annan stað. Ekki hafi verið hlutverk bankans að taka sjálfstæðar ákvarðanir í félögunum heldur hafi allt byggst á samningssambandi við viðskiptavini. Uppbyggingin hafi í raun verið þannig að ekki hafi verið heimilt að taka ákvarðanir nema í samræmi við ósk viðskiptavinar. Ef hins vegar hafi komið upp atriði eins og að félagið mætti ekki eiga fasteign, hafi verið hlutverk fulltrúa bankans í stjórn að leiðbeina eiganda félagsins með það atriði. Almennt hafi verið farið eftir fyrirmælum eigenda, svo fremi sem þau brytu ekki í bága við samþykktir, samninga eða slík atriði. Það hafi verið verklagsregla að þessi félög væru með sína reikninga og skuldbindingar eingöngu innan Kaupthing Bank Luxembourg S.A. Hafi það verið gert til að tryggja yfirsýn yfir heildarrekstur þessara félaga. Hafi það að sumu leyti verið gert til að tryggja hagsmuni bankans sjálfs, en þó aðallega hagsmuni þess félags sem í hlut ætti til að það færi ekki í einhverjar skuldbindingar eða ráðstafanir sem það fyrirkomulag sem sett hefði verið upp réði ekki við. Með aðkomu starfsmanna bankans í stjórnum þessara félaga hafi verið stefnt að því að bankinn gæti í raun og veru sinnt því hlutverki sínu að taka sér á hendur samninga við viðskiptavini um rekstur félaganna. Með því hafi rekstaráhætta bankans sjálfs vissulega verið takmörkuð. Hluti af þjónustu bankans við viðskiptavini hafi verið að annast gerð skjala fyrir félögin. Hafi stjórnsýsla þessara félaga og skjalagerð verið í höndum lögfræðideildar en hjá öðrum deildum að annast hluti eins og gerð lánasamninga. Andri kvaðst hafa ritað undir hluthafasamþykkt fyrir félagið Brooks Trading Ltd. sem stjórnarmaður hluthafa félagsins, sem hafi verið félagið Mink Trading Corp. Ekki hafi Andri komið að því er fjármunir af reikningi Brooks Trading Ltd. hafi 8. október 2008 verið notaðir til að greiða niður lán til félagsins Serval Trading Group Corp. Ekki myndi hann eftir því að þessi ráðstöfun hefði verið borin undir hluthafa félagsins. Ekki myndi hann heldur eftir því að hinn raunverulegi eigandi félags, eða ,,beneficial owner“ hefði haft prókúru á reikning félags. Aðkomu starfsmanna bankans hafi þurft til að fjármunir yrðu færðir út af reikningi félagsins.
Björn Knútsson kvaðst í september 2008 hafa starfað sem viðskiptastjóri hjá Kaupthing Bank Luxembourg A.S. Í starfi Björns hafi falist að sinna viðskiptavinum og reikningum þeirra hjá bankanum. Yfirmaður Björns hafi verið Björn Jónsson. Hafi Sheikh Mohamed opnað reikninga í Lúxemborg sem Björn hafi verið viðskiptastjóri eða sjóðsstjóri fyrir. Björn hafi farið með opnunarskjöl vegna þessara reikninga til London og hitt þar ákærða, Ólaf, og Sheikh Mohamed, á skrifstofu ákærða. Hafi ákærði, Magnús, farið þess á leit við Björn að hann færi í þessa ferð. Um hafi verið að ræða venjubundna samninga sem gerðir hafi verið við viðskiptavini þegar þeir opnuðu reikninga við bankann. Á fundinum hafi verið lögmaður Sheikh Mohamed og annar til sem Björn hafi ekki þekkt. Markmiðið með fundinum hafi einungis verið að afhenda opnunarskjöl tengd viðskiptunum. Ekki hafi Björn á þessum tíma vitað um kaup Q Iceland Finance á 5,01% hlut í Kaupþingi banka hf., eða verið búið að kynna honum áform um þau viðskipti. Í tengslum við starf sitt í Lúxemborg hafi Björn verið í talsverðum samskiptum við ákærða, Ólaf. Hafi Björn fjárfest fyrir ákærða, auk þess að sinna millifærslum eftir beiðni frá starfsmönnum ákærða. Um hafi verið að ræða hefðbundin verkefni. Fyrirmæli vegna starfa hafi Björn fengið úr ýmsum áttum. Hafi þau getað komið frá ákærða, Magnúsi, Birni Jónssyni, sem hafi verið yfir einkabankaþjónustu bankans, eða eftir atvikum Eggerti Hilmarssyni, framkvæmdastjóra lögfræðisviðs. Ekki kvaðst Björn hafa þekkt til aðkomu ákærða, Ólafs, að viðskiptum Q Iceland Finance ehf. með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. Hafi Björn ekki þekkt til lánveitingar til Brooks Trading Ltd. í september 2008. Myndi hann eftir umræðu um hvort þessir fjármunir hefðu verið lausir til ráðstöfunar 8. október 2008, en hann hefði verið spurður af samstarfskonu sinni, Löru Schweiger, um það. Hafi Björn komist að þeirri niðurstöðu að fjármunirnir væru lausir til ráðstöfunar. Þá niðurstöðu hafi hann byggt á kerfi bankans. Þar hafi komið fram hvort fjármunir væru veðsettir. Svo hafi ekki verið í þessu tilviki og því unnt að millifæra fjármunina. Eggert Hilmarsson hafi gefið Birni fyrirmæli um að skipta þessum fjármunum á reikningi Brooks Trading Ltd. yfir í krónur. Hafi Björn í kjölfarið haft samband við gjaldeyrismiðlun bankans en búið hafi verið að ganga frá viðskiptunum í raun og veru. Hafi Björn verið látinn bóka það inn í kerfið. Björn hafi fengið fyrirmæli um hvert gengið ætti að vera. Myndi Björn eftir því að uppruni fjármuna inni á reikningi Brooks Trading Ltd. hafi verið skráð lán frá Kaupþingi banka hf. Þannig hafi fjármunirnir verið skráðir í kerfi bankans. Að því er varðaði fjármunina inni á reikningi Brooks Trading Ltd. hafi eigandi félagsins ekki getað millifært fjármunina inni á reikningi félagsins án aðkomu starfsmanna Kaupthing Bank Luxembourg S.A. Ekki hafi verið við að styðjast netbanka, eins og þeir þekktust í dag. Fjármunir á reikningnum kæmu fram í kerfi bankans, sem bæri nafnið Absis. Á yfirliti reikningsins kæmi fram 22. september 2008 ,,creation timed deposit“ og 29. september ,,repaiment timed deposit“. Með því hafi verið átt við bundið innlán sem hafi þýtt að fjármunir hafi verið settir á bundið innlán í skilgreindan tíma. Fjármunirnir hafi verið leystir undan bindingunni 29. september og endurgreiddir. Yrðu þeir ekki aðgengilegir eiganda nema með samþykki bankans. Miðað við yfirlit reiknings hafi fjármunir á honum verið í formi bundins innláns 8. október 2008. Björn kvaðst ekki hafa komið að vinnu við svonefndan strúktúr að baki kaupum á 5,01% hlut í Kaupþingi banka hf. í september 2008.
Einar Pálmi Sigmundsson kvaðst í september 2008 hafa verið forstöðumaður eigin viðskipta Kaupþings banka hf. Yfirmaður hans hafi verið Guðmundur Þór Gunnarsson viðskiptastjóri og fyrir ofan hann Ingólfur Helgason forstjóri og ákærði, Hreiðar Már. Ekki kvaðst Einari Pálmi muna eftir því að hafa í störfum sínum fengið fyrirmæli frá ákærða, Hreiðari Má. Einar Pálmi kvaðst ekki hafa átt aðkomu að kaupum Q Iceland Finance ehf. á kaupum á hlutabréfum í Kaupþingi banka hf. Kvöldið áður en viðskiptin hafi átt sér stað hafi Ingólfur Helgason forstjóri hringt og sagt að þessi viðskipti myndu fara fram. Hafi komið fram að um væri að ræða 5,01% hlut í Kaupþingi banka hf. Viðskiptin yrðu að ganga í gegn snemma næsta morgun. Því hafi þurft að ganga frá sölu bréfanna úr eigin viðskiptum yfir í miðlunarbók, þar sem séð yrði í um að ganga frá viðskiptunum. Hafi Einar því einungis þekkt þann hluta sem snúið hafi að því að bréfin færu út úr eigin viðskiptum í Kaupþingi banka hf. Af þessu tilefni hafi Einar Pálmi hringt í yfirmann sinn, Guðmund Þór, og annan til og látið boð út ganga um að menn myndu mæta snemma að morgni næsta dags til að ganga frá viðskiptunum. Bankinn hafi að mestu átt þessi hlutabréf sjálfur, en þurft að kaupa eitthvert lítilræði til að ná 5,01% hlut í bankanum. Verið geti að bankinn hafi átt sem numið hafi 4,75% hlut og vantað afganginn. Á þessum tíma hafi Einar Pálmi ekki þekkt hvernig kaupandinn myndi fjármagna kaup hlutabréfanna. Á sínum tíma hafi Einar Pálmi sennilega talið að kaupandinn myndi staðgreiða bréfin. Kvaðst Einar Pálmi staðfesta að hafa sagt við lögreglurannsókn málsins að þegar þessi viðskipti hefðu komið hefði verið mikil ánægja með það, eins og ,,þeir hefðu unnið HM í fótbolta eða eitthvað“. Hafi starfsmenn bankans talið að kaupandinn væri að koma með fjármagn inn í bankann. Eins og málinu hafi verið stillt upp í framhaldinu af þeim sem rannsakað hafi málið og eftir umræðu í fjölmiðlum hafi starfsmenn nánast litið á þetta eins og um eins konar svindl hefði verið að ræða að ekki kæmu fjármunir inn í bankann við viðskiptin. Ekki myndi Einar Pálmi eftir því hvort hann hafi á þessum tíma vitað um sjálfskuldarábyrgð kaupanda vegna kaupanna.
Guðmundur Þ. Guðmundsson kvaðst í september 2008 hafa verið framkvæmdastjóri fjárstýringar Kaupþings banka hf. Næsti yfirmaður Guðmundar hafi verið Ingólfur Helgason forstjóri. Guðmundur kvaðst ekki hafa komið að viðskiptum Q Iceland Finance ehf. með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. í september 2008. Kvaðst Guðmundur staðfesta að hafa átt samskipti við Ólaf Frímann Gunnarsson forstöðumann á millibankaborði fjárstýringar þar sem Guðmundur hafi lýst yfir vonbrigðum með að ekki kæmi gjaldeyrir inn í bankann við viðskiptin. Ekki hafi hann þekkt til sjálfskuldarábyrgðar kaupandans á þeim tíma. Peningamarkaðslán hafi verið notuð á milli fjármálastofnana þegar þær hafi verið að ávaxta fé sitt til skamms tíma. Bankar hafi í slíkum tilfellum einfaldlega millifært fjármuni sín á milli og einfaldar staðfestingar verið sendar á milli vegna þessara lánveitinga. Ekki þekkti Guðmundur til er slík peningamarkaðslán hefðu verið veitt eignarhaldsfélögum, en Guðmundur hefði aldrei haft slík lán undir höndum. Fjárstýring hafi heldur ekki séð um að útbúa slík lán, heldur einungis að greiða þau út samkvæmt fyrirmælum annars staðar frá úr bankanum. Þau fyrirmæli hafi yfirleitt komið frá Bjarka H. Diego, framkvæmdastjóra útlána, eða viðskiptastjóra á fyrirtækjasviði.
Birnir Snær Björnsson og Pétur Kristinn Guðmarsson kváðust báðir hafa starfað í eigin viðskiptum Kaupþings banka hf. í september 2008. Yfirmaður þeirra hafi verið Einar Pálmi Sigmundsson, forstöðumaður eigin viðskipta. Báðir kváðust þeir vera undir ákæru fyrir markaðsmisnotkun í starfsemi Kaupþings banka hf. Pétur Kristinn kvaðst hafa fengið um það boð frá yfirmönnum sínum að mæta snemma að morgni dags í bankann 22. september 2008 til að ganga frá sölu hlutabréfa úr eigin viðskiptum bankans vegna kaupa Q Iceland Finance ehf. á hlutabréfum úr bankanum. Hafi eigin viðskipti átt fyrir bréf fyrir um 4% hlut í bankanum og þurft að kaupa eitthvað til viðbótar til að eiga næg bréf. Kvaðst Pétur staðfesta að hafa átt símtal við Halldóru Guðmarsdóttur á þessum tíma vegna viðskiptanna og að hafa lýst því yfir að einhverjir milljarðar króna væru á leiðinni og að þeir peningar hefðu aldrei komið þar sem kaupin hefðu verið fjármögnuð af bankanum. Kvaðst Pétur hafa staðið í þeirri trú á þessu tíma að peningar hefðu verið að koma inn í bankann vegna viðskiptanna. Hafi það verið tengt kaupandanum sem hafi verið olíufursti frá arabalöndum. Ekki kvaðst Pétur á sínum tíma hafa vitað um sjálfskuldarábyrgð kaupanda tengda kaupunum.
Davíð Gunnarsson kvaðst í september 2008 hafa starfað við fjárfestatengsl á samskiptasviði Kaupþings banka hf. Næsti yfirmaður Davíðs hafi verið Jónas Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri samskiptasviðs. Kvaðst Davíð hafa samið fyrstu drög að fréttatilkynningu bankans vegna kaupa Q Iceland Finance ehf. á hlutabréfum í Kaupþingi banka hf. Fyrsta aðkoma Davíðs að málinu hafi verið er yfirmaður hans, Jónas Sigurgeirsson, hafi hringt í Davíð og beðið hann um að semja drög að tilkynningunni. Í því símtali hafi væntanlega ekki komið fram fjöldi hluta eða verð í kaupum. Hafi Jónas útskýrt í stuttu máli hvernig í málinu lægi, en Jónas hafi þá verið staddur í útlöndum. Uppkast að tilkynningunni hafi Davíð síðan sent á Jónas. Tilvitnanir í fréttatilkynningunni hafi komið frá Jónasi. Ekki vissi Davíð hvaðan Jónas hefði fengið tilvitnanirnar. Ekki hafi Davíð heldur vitað af hverju drög að tilkynningunni hefðu verið send á ákærða, Magnúsi. Þá hafi hann ekki vitað um þátt ákærða, Ólafs, í tilkynningunni eða aðkomu ákærða, Hreiðars Más, að henni.
Jónas Björn Sigurgeirsson kvaðst í september 2008 hafa verið framkvæmdastjóri samskiptasviðs Kaupþings banka hf. Yfirmaður Jónasar hafi verið ákærði, Hreiðar Már. Í starfi framkvæmdastjóra samskiptasviðs hafi falist að halda utan um fréttatilkynningar bankans og samskipti bankans við fjölmiðla og markaðinn. Ákærði, Hreiðar Már, hafi hringt í Jónas föstudagskvöldið 19. september 2008 og beðið hann um að semja fréttatilkynningu vegna kaupa Q Iceland Finance á hlut í Kaupþingi banka hf. Fréttatilkynningin þyrfti að birtast í fjölmiðlum mánudaginn 22. september 2008. Jónas hafi þá verið í útlöndum. Í kjölfarið hafi Jónas hringt í Davíð Gunnarsson á samskiptasviði og beðið hann um að koma að málinu og vinna að því með sér. Í tilkynningunni hafi komið fram um fjölda hluta og slík atriði. Þau atriði hafi einhver látið Davíð fá. Ákveðið hafi verið að setja inn í tilkynninguna lýsingu á kaupandanum þar sem Íslendingar hafi ekki þekkt kaupandann. Þær upplýsingar er vantað hafi um Sheikh Mohamed Al Thani hafi Jónas fengið frá ákærða, Magnúsi, eftir ábendingu um það frá ákærða, Hreiðari Má. Tilvitnun í fréttatilkynningunni frá Sheikh Mohamed, hafi því komið í gegnum ákærða, Magnús. Ákærði, Magnús, hafi því verið nokkurs konar milliliður við kaupandann. Ekki hafi Jónas verið persónulega í sambandi við Sheikh Mohamed vegna tilkynningarinnar. Kvaðst Jónas fljótlega hafa heyrt að kaupandinn legði fram sjálfskuldarábyrgð vegna helmings kaupanna. Jónas hafi að öðru leyti lítið verið inni í strúktúr kaupanna og því ekki vitað um aðkomu félags í eigu ákærða, Ólafs, að kaupunum. Fréttatilkynningin hafi gengið manna á milli áður en hún hafi verið send út. Margir hafi því komið að gerð hennar. Mikilvægt hafi þótt að koma því á framfæri að einn ríkasti maður heims væri að kaupa stóran hlut í bankanum. Ekki hafi Jónas orðið var við aðkomu ákærða, Ólafs, að tilkynningunni. Jónas hafi þó sent hana á ákærða, í ljósi þess að ákærði hafi fundið þennan kaupanda. Guðni Aðalsteinsson, yfirmaður fjárstýringar, hafi verið í sambandi við Moody´s. Áður hafi komið fyrir að gleymst hafi að hringja í þá vegna viðskipta með hlutabréf í bankanum. Oftast hafi verið hringt í Moody´s nokkrum mínútum áður en upplýsingar um kaup hafi birst á netinu. Með birtingu á netinu hafi upplýsingar dreifst hratt um heiminn. Moody´s hafi ekki viljað frétta af þessum atriðum í fjölmiðlum og þeir viljað fá frekari upplýsingar um viðskiptin, eins og hvernig greitt hafi verið fyrir hluti. Þannig hafi lánshæfismatsfyrirtækið fengið mun nákvæmari upplýsingar en almennt hafi verið veittar.
Ólafur Arinbjörn Sigurðsson kvaðst hafa starfað á lögmannsstofunni Logos í september 2008. Bjarnfreður Ólafsson lögmaður á sömu stofu, hafi komið að máli við Ólaf og rætt hugsanlega tilkynningaskyldu í tengslum við viðskipti sem hafi staðið fyrir dyrum. Fram hafi komið að Q Iceland Finance ehf. væri að kaupa hlut sem væri stærri en 5% í Kaupþingi banka hf. Væri spurningin hvort viðskiptin væru flöggunarskyld. Inni í þeirri umræðu hafi verið vangaveltur í tengslum við fjármögnun kaupanna og hvort hún hefði áhrif á flöggunarskylduna. Niðurstaða hafi verið sú að fjármögnunin hefði ekki áhrif þar sem flöggunarskyldan snerist um atkvæðisrétt í félagi, en ekki fjármögnun kaupa. Í þessari umræðu hafi verið rætt um einhvern strúktúr kaupanna. Við mat á flöggunarskyldu kæmi til skoðunar hvað einhver aðili ætti og að ef einhver aðili væri í samstarfi við annan aðila og þeir færu sameiginlega yfir flöggunarmörk, þá kynni að reyna á flöggunarskyldu. Ekki kæmi inn í mat á flöggunarreglum hugsanlegur hagnaður af viðskiptum eða fjármögnun þeirra.
Þorbjörn Þórðarson kvaðst hafa ritað frétt í Morgunblaðið 23. september 2008 sem hafi borið yfirskriftina ,,Sheikinn veðjar á Kaupþing“. Aðdragandi fréttarinnar hafi verið fréttatilkynning sem Kaupþing banki hf. hafi sent frá sér 22. september 2008. Í kjölfarið hafi Þorbjörn rætt við ákærða, Hreiðar Má, eftir að Jónas Sigurgeirsson á samskiptasviði hafi komið viðtali í kring. Haft hafi verið eftir ákærða í beinni ræðu. Í samtali við ákærða hafi ekki verið upplýst um fjármögnun þessara kaupa. Í fréttatilkynningunni hafi verið talað um mikla traustsyfirlýsingu fyrir bankann. Fréttatilkynningin hafi því ekki gefið tilefni til að spyrja um fjármögnun kaupanna og Þorbjörn skilið hana þannig að eigið fé Sheikh Mohamed kæmi inn við kaupin. Hafi Þorbjörn ekki órað fyrir því að fjármögnun hefði að hluta komið frá Kaupþingi banka hf. Ef Þorbjörn hefði vitað um fjármögnun kaupa Q Iceland Finance ehf. hefði frétt hans umrætt sinn orðið með allt öðrum hætti. Ekki hafi verið haft samband af stjórnendum Kaupþings banka hf. eftir að fréttin hafi birst þar sem komið hafi verið á framfæri leiðréttingu við fréttina.
Arna Schram kvaðst hafa skrifað frétt sem birst hefði í Viðskiptablaðinu 23. september 2008 vegna kaupa Sheikh Mohamed á hlutabréfum í Kaupþingi banka hf. Aðdragandi fréttarinnar hafi verið fréttatilkynning sem bankinn hafi sent frá sér 22. september 2008 vegna kaupanna. Hafi Arna rætt við ákærðu, Hreiðar Má og Sigurð, vegna fréttarinnar. Ekki hafi komið fram í samtölum við ákærðu hvernig fjármögnun kaupa á hlutabréfum hefði verið háttað, þar sem það hefði verið tekið fram í fréttinni að öðrum kosti. Þá hafi ekki verið getið um aðkomu ákærða, Ólafs, að kaupunum. Hafi hún reynt að ná sambandi við Sheikh Mohamed vegna kaupanna, en þær tilraunir ekki borið árangur. Ekki hafi ákærðu, Hreiðar Már eða Sigurður, haft samband við sig eftir birtingu fréttarinnar til að koma leiðréttingu við hana á framfæri.
Heiðar Þór Guðnason kvaðst starfa hjá Embætti sérstaks saksóknara og vera sérfræðingur um rekstur tölvukerfis og rannsóknarkerfis embættisins. Þekkti hann svonefnd Clearwell leitarkerfi, en það kerfi hafi Heiðar Þór séð um innan embættisins. Svo sem fram kæmi í skýrslu rannsakenda sem fylgdi ákæru í málinu hafi tölvupóstur á heimasvæði tiltekinna einstaklinga verið gerður leitarhæfur í Clearwell. Mál hafi fengið heitið S Kaup Q Iceland og undir því verið 8956 skjöl sem fundist hafi við leit. Málið sem slíkt hafi verið hægt að taka út úr kerfinu og setja í geymslu, en setja það aftur inn síðar. Margir möguleikar á flokkun gagna séu í þessu kerfi. Þannig væri hægt að flokka gögn eftir nöfnum sendenda, viðtakenda, dagsetningu og slíku. Hægt væri að taka gögn út úr kerfinu og færa yfir í excel.
Niðurstaða:
Ákærða, Hreiðari Má, er í I. kafla ákæru gefin að sök umboðssvik og ákærða, Magnúsi, hlutdeild í umboðssvikum meðákærða, við lánveitingu til félagsins Brooks Trading Ltd. Í II. kafla ákæru er ákærðu, Hreiðari Má og Sigurði, gefin að sök umboðssvik við lánveitingu til félagsins Gerland Assets Ltd. Í þeim kafla er ákærða Ólafi, aðallega gefin að sök hlutdeild í umboðssvikum meðákærðu, en til vara hylming og peningaþvætti. Í III. kafla ákæru er ákærðu, Hreiðari Má og Sigurði, gefin að sök markaðsmisnotkun, en ákærðu, Magnúsi og Ólafi, hlutdeild í markaðsmisnotkun meðákærðu, með því að hafa stofnað til viðskiptafléttu sem sett hafi verið upp við kaup Sheikh Mohamed Al Thani á hlutabréfum í Kaupþingi banka hf., en í viðskiptafléttunni hafi verið fólgin blekking og sýndarviðskipti. Í IV. kafla ákæru er ákærðu öllum gefin að sök markaðsmisnotkun í tengslum við kaup á hlutabréfunum í bankanum, með því að dreifa fréttum og upplýsingum sem hafi eða hafi verið líklegar til að gefa misvísandi upplýsingar og vísbendingar um hlutabréfaviðskiptin. Ákærðu neita allir sök.
I. kafli ákæru
Ákærða, Hreiðari Má, er í þessum kafla ákæru gefin að sök umboðssvik, með því að hafa í september 2008 misnotað stöðu sína sem forstjóri Kaupþings banka hf. þegar hann hafi farið út fyrir heimildir sínar til lánveitinga með því að láta bankann veita félaginu Brooks Trading Ltd., eignalausu félagi með takmarkaðri ábyrgð, skráðu á Tortola á Bresku Jómfrúaeyjum, í eigu Mink Trading Corp., félags í eigu Sheikh Mohamed Al Thani, 50.000.000 Bandaríkjadala lán, í formi óundirritaðs peningamarkaðsláns, án þess að fyrir lægi samþykki lánanefnda bankans og án þess að endurgreiðsla lánsins væri tryggð með nokkrum hætti og að hafa þannig valdið bankanum verulegri fjártjónshættu. Hafi lánið verið veitt 19. september 2008 og lánsfjárhæðin sama dag verið lögð inn á reikning lántaka í Kaupthing Bank Luxembourg S.A. með milligöngu þess banka, félaginu til frjálsrar ráðstöfunar.
Að því er lánveitingu til félagsins Brooks Trading Ltd. varðar liggur fyrir í gögnum málsins óundirritað lánsskjal sem stafar frá Kaupþingi banka hf. Er skjalið auðkennt sem peningamarkaðsútlán nr. 398424/449463. Samkvæmt þessu skjali, sem dagsett er 19. september 2008, gera Brooks Trading Ltd. og Kaupþing banki hf. með sér samkomulag um að Kaupþing banki hf. láni til félagsins Brooks Trading Ltd. 50.000.000 Bandaríkjadala miðað við 19. september 2008 sem fyrsta vaxtadag. Er gjalddagi lánsins 30. september 2008.
Rannsókn málsins á sínum tíma beindist meðal annars að því að sannreyna með hvaða hætti hafi stofnast til þessarar lánveitingar. Staðhæfði ákærði, Hreiðar Már, að hann hefði í byrjun september 2008, er fyrir hafi legið að Sheikh Mohamed Al Thani myndi fjárfesta í hlutabréfum í Kaupþingi banka hf., boðað tvo viðskiptastjóra útlána innan bankans á sinn fund til að koma þessum viðskiptum í farveg, eins og það var orðað. Hafi hann gefið viðskiptastjórunum, Halldóri Bjarkari Lúðvígssyni og Guðmundi Þór Gunnarssyni, grófar útlínur á því hvernig viðskiptin skyldu líta út og hvaða lánveitingar væru nauðsynlegar í því sambandi. Með rannsóknargögnum málsins, framburðum ákærðu, Hreiðars Más og Magnúsar, og vætti viðskiptastjóranna, Halldórs Bjarkars og Guðmundar, er í ljós leitt að fundur um þetta efni var haldinn 18. september 2008. Þá liggur jafnframt fyrir, með vísan til framburðar ákærðu og ofangreindra vitna, að fundurinn var símafundur að því leyti að ákærðu, Hreiðar Már og Magnús, voru hvorugur í höfuðstöðvum Kaupþings banka hf. í Borgartúni. Bjarki H. Diego, framkvæmdastjóri útlána og yfirmaður viðskiptastjóranna beggja, hefur staðfest að fundurinn hafi verið haldinn, en bar að hann hefði ekki komist á fundinn nema rétt í lokin. Í málinu er deilt um hvaða fyrirmæli ákærði, Hreiðar Már, hafi gefið á þessum fundi tengd þessum viðskiptum. Ákærði, Hreiðar Már, hefur lýst því að meðal annars hafi komið fram að veita skyldi, félaginu Brooks Trading Ltd. lán að fjárhæð 50.000.000 Bandaríkjadala. Hafi ákærði gengið út frá því að með málið yrði farið eftir réttum boðleiðum innan bankans. Vissulega hafi skipt máli að lánveitingunni yrði hraðað svo sem kostur væri þar sem um hafi verið að ræða stór viðskipti með hlutabréf í bankanum og miklu skipt að gengið yrði frá þeim sem fyrst. Halldór Bjarkar hefur staðhæft að á þessum fundi hafi ákærði, Hreiðar Már, gefið þau fyrirmæli að lána skyldi félaginu Brooks Trading Ltd. þessa fjárhæð í formi peningamarkaðsláns, auk þess sem strúktúr viðskiptanna hafi verið lýst. Hafi Halldór undirbúið málið og miðað við að senda það í venjubundinn farveg. Þau fyrirmæli hafi hins vegar komið síðar frá ákærða, Hreiðari Má, í tveggja manna tali þeirra á milli, að lánið skyldi afgreitt þegar í stað og skyldi Halldór Bjarkar ekki hafa áhyggjur af nauðsynlegu samþykki til lánveitingarinnar. Í kjölfarið hafi Halldór hlutast til um að lánið yrði afgreitt þegar í stað og haft samband við starfsmenn innan bankans til að það yrði greitt út.
Að því er þessi atriði varðar er til þess að líta að samkvæmt gögnum málsins hefur Guðmundur Þór Gunnarsson viðskiptastjóri samþykkt fundarboð frá Halldóri Bjarkari, á fund sem haldinn yrði 18. september 2008 milli kl. 16.00 og 17.00. Fundurinn yrði með ákærðu, Hreiðari Má og Magnúsi, og gert væri ráð fyrir nærveru viðskiptastjóranna beggja. Er hér án nokkurs vafa um að ræða fund ákærðu, Hreiðars Más og Magnúsar, með viðskiptastjórunum báðum, sem ákærði, Hreiðar Már, hefur vísað til. Í símtali þeirra Halldórs Bjarkars Lúðvígssonar og Halldórs Sveins Kristinssonar, en sá síðarnefndi starfaði á millibankaborði í fjárstýringu bankans, sem átti sér stað þennan dag kl. 17.34, tjáði Halldór Bjarkar Halldóri Sveini að þrjú félög þyrftu á þessum peningum að halda. Þetta væru tvisvar sinnum 100.000.000 evra og einu sinni 50.000.000 Bandaríkjadala. Svaraði Halldór Sveinn því til að bankinn ætti ekki fyrir þessu. Í samtalinu var í framhaldi um það rætt að ef félögin ættu reikninga í Kaupþingi banka hf. myndi það breyta miklu þar sem fjármunirnir myndu í því tilviki ekki fara út úr bankanum. Halldór Bjarkar og Halldór Sveinn ræddust aftur við í síma stuttu síðar, eða kl. 17.54, og kom þá fram hjá Halldóri Bjarkari að ,,... vildu fá þetta til Lúx ...“. Hafði Halldór Bjarkar þá uppi þau ummæli að ,,þetta kemur frá Hreiðari sko þannig að þess vegna er verið að reyna að redda þessu svona á síðustu stundu ...“.
Meðfylgjandi fundargerð lánanefndar stjórnar Kaupþings banka hf., frá fundinum sem haldinn var 24. september 2008, var lánsumsókn frá Sheikh Mohamed Al Thani til lánanefndar stjórnar Kaupþings banka hf. tengd þrem félögum í eigu Sheikh Mohamed. Fram kemur að lánsumsóknin sé útbúin af Halldóri Bjarkari Lúðvígssyni viðskiptastjóra og er hún dagsett 19. september 2008. Í lánsumsókninni kemur meðal annars fram að til viðbótar láni að fjárhæð 125.000.000 evra til Brooks Trading Ltd. komi lán að fjárhæð 50.000.000 Bandaríkjadala sem sé hagnaður vegna viðskipta. Til tryggingar því láni taki bankinn veð í CLN-bréfum.
Halldór Bjarkar Lúðvígsson var í september 2008 viðskiptastjóri útlána innan Kaupþings banka hf. Var hans næsti yfirmaður Bjarki H. Diego, framkvæmdastjóri útlána, en ákærði, Hreiðar Már, var yfirmaður Bjarka. Lánveitingar til félaga í eigu Sheikh Mohamed Al Thani námu verulegum fjárhæðum á þessum tíma. Ósennilegt verður að telja að viðskiptastjóri á útlánasviði bankans hafi tekið um það ákvörðun að veita lán til félagsins Brooks Trading Ltd. án þess að hafa til þess skýr fyrirmæli yfirboðara sinna. Framburður viðskiptastjórans fyrir dómi þótti að mati dómsins trúverðugur um þátt hans í lánveitingu til félagsins Brooks Trading Ltd. Verður því lagt til grundvallar að ákærði, Hreiðar Már, hafi á fundinum 18. september 2008 eða í tengslum við hann gefið viðskiptastjóranum Halldóri Bjarkari fyrirmæli um að lán til félagsins Brooks Trading Ltd. skyldi vera í formi peningamarkaðsláns og að lánið skyldi greitt út þegar í stað þó svo ekki lægi fyrir samþykki lánanefndar stjórnar bankans.
Samkvæmt gögnum málsins var 19. september 2008, í tengslum við þessa lánveitingu, útbúið sérstakt millifærsluskjal á milli Kaupþings banka hf. og Kaupthing Bank Luxembourg S.A. Samkvæmt texta í skjalinu eru 50.000.000 Bandaríkjadala fjárhæð sem Kaupþing banki hf. á að greiða viðskiptavini Kaupthing Bank Luxembourg S.A. þennan sama dag. Fram kemur að Kaupthing Bank Luxembourg S.A. muni lána Kaupþingi banka hf. fjárhæðina frá 19. september 2008 til 29. september sama ár. Sé um að ræða ,,netting against lending“. Þá kemur fram í símtali á milli Halldórs Bjarkars Lúðvígssonar viðskiptastjóra og Halldórs Sveins Kristinssonar, starfsmanns á millibankaborði fjárstýringar, 19. september 2008 kl. 10.29, að þessum fjármunum verði jafnað út á milli bankanna í framhaldi. Einnig liggur fyrir í staðfestum framburði Eggerts Hilmarssonar, framkvæmdastjóra lögfræðisviðs Kaupthing Bank Luxembourg A.S., að sá banki hafi ekki veitt lán til félagsins Brooks Trading Ltd. í september 2008. Loks liggur fyrir tölvubréf frá Halldóri Bjarkari 19. september 2008 til Halldórs Sveins og Ólafs Frímanns Gunnarssonar, forstöðumanns á millibankaborði í fjárstýringu, um að Halldór Bjarkar hafi daginn áður rætt við Francois Xavier Cabay í Kaupthing Bank Luxembourg A.S. um að þeir hafi verið sammála um að ,,netta“ fjárhæðina. Ekki ætti að eiga sér stað nein raunveruleg millifærsla. Með hliðsjón af þessu og því að stefnt var að því að veita félaginu Brooks Trading Ltd. lán frá Kaupþingi banka hf. verður við það miðað að lán til félagsins Brooks Trading Ltd. hafi verið veitt 19. september 2008 af Kaupþingi banka hf. Í ljósi fjárhæðar skuldbindingarinnar og með vísan til ákvæða 3.3.3.1.2 í handbók Kaupþings banka hf. um innra eftirlit og verkferla, eða ,,Internal Control and Procedural Handbook“, þurfti lán til félagsins Brooks Trading Ltd. að fara fyrir lánanefnd stjórnar Kaupþings banka hf. Lánsumsókn þessi var tekin fyrir á fundi í lánanefnd stjórnar 24. september 2008. Samkvæmt óundirrituðum fundargerðum lánanefndar stjórnar 24. september 2008 var lán til Brooks Trading Ltd. samþykkt gegn því að veð yrði tekið í svokölluðum CLN-bréfum. Fyrir liggur að til þeirra viðskipta var aldrei stofnað. Slíkar tryggingar lágu því ekki að baki lánveitingunni er lánið var greitt út 19. september 2008.
Lögð hafa verið fyrir dóminn gögn sem leiða í ljós að lán hafa í einhverjum tilvikum verið samþykkt utan reglulegra funda lánanefndar stjórnar. Samkvæmt handbók bankans um innra eftirlit var heimilt að samþykkja lán utan reglulegra funda ef mikið lá við. Vitni báru um að í slíkum tilvikum hefði samþykki lánanefndarmanna legið fyrir í tölvupósti. Í slíkum tilvikum hafi þær lánveitingar verið bornar upp á næsta fundi lánanefndar til staðfestingar. Er það í samræmi við nefnda handbók Kaupþings banka hf. um innra eftirlit. Engra slíkra heimilda hafði verið aflað er lán til Brooks Trading Ltd. var greitt út 19. september 2008.
Lán til félagsins Brooks Trading Ltd. átti að veita gegn tryggingu í CLN- skuldabréfum tengt skuldatryggingarálagi á Kaupþing banka hf. Til þeirra viðskipta hafði ekki verið stofnað 19. september 2008. Lá því ljóst fyrir er ákvörðun um lánveitinguna var tekin að lánið yrði ekki veitt gegn þeirri tryggingu. Með þeirri háttsemi sinni að taka ákvörðun um að veita félaginu Brooks Trading Ltd. ofangreint peningamarkaðslán, án þess að fyrir lægi samþykki lánanefndar stjórnar Kaupþings banka hf. og án þess að trygging hafi verið sett fyrir láninu, braut ákærði, Hreiðar Már, gegn reglum bankans um lánveitingar og skapaði með því bankanum fjártjónshættu.
Í ákæru er miðað við að lán til Brooks Trading Ltd. hafi verið félaginu til frjálsrar ráðstöfunar og að það sé að fullu glatað. Fyrirsvarsmenn og prókúruhafar Brooks Trading Ltd. gátu ekki ráðstafað þessum fjármunum að vild þar sem taka þurfti almennt tillit til hagsmuna félagsins og samningsskuldbindinga tengt lánveitingunni. Fjármunirnir voru því ekki félaginu frjálsir til ráðstöfunar í þeim skilningi. Það breytir því hins vegar ekki að fyrirsvarsmenn og prókúruhafar félags hafa venjubundna ráðstöfunarheimild yfir fjármunum félags og öðrum eignum þess. Var lánsféð félaginu því frjálst til ráðstöfunar í þeim skilningi. Þá er staðhæft í ákæru að lánsféð sé slitastjórn Kaupþings banka hf. að fullu glatað. Fyrir dómi kom fram í vætti Jóhannesar R. Jóhannssonar, lögmanns slitastjórnar Kaupþings banka hf., að slitastjórn bankans hefði náð samkomulagi við Sheikh Mohamed, raunverulegan eiganda Brooks Trading Ltd., um greiðslu fjárhæðar í tilefni af skaðabótamáli slitastjórnar gegn Sheikh Mohamed. Hafi það skaðabótamál meðal annars varðað ólögmæta ráðstöfun fjármuna Brooks Trading Ltd. við greiðslu þeirra fjármuna inn á lán til félagsins Serval Trading Group Corp. 8. október 2008. Gerð hafi verið sátt við Sheikh Mohammed sem leitt hafi til þess að hann hafi greitt fjármuni til skiptastjóra þb. Brooks Trading Ltd. Hafi slitastjórn fengið hluta þeirra fjármuna til sín. Það mun þó ekki hafa dugað til að gera bankann skaðlausan af lánveitingunni til Brooks Trading Ltd.
Brot samkvæmt 249. gr. laga nr. 19/1940 er fullframið við misnotkun á aðstöðu. Var brot ákærða því fullframið 19. september 2008. Ekki er áskilið að tjón hljótist af háttseminni, heldur er fjártjónshætta nægjanleg. Að þessu gættu verður ákærði, Hreiðar Már, sakfelldur samkvæmt I. kafla ákæru og er háttsemi hans þar rétt heimfærð til refsiákvæða.
Ákærða, Magnúsi, er gefin að sök hlutdeild í umboðssvikum meðákærða, Hreiðars Más, með því að hafa tekið þátt í undirbúningi og framkvæmd lánveitingarinnar. Er hlutdeildin að því er undirbúning varðar, talin hafa falist í því að vera milligöngumaður um samningaviðræður við hinn raunverulega eiganda Brooks Trading Ltd., Sheikh Mohamed og með því að hafa útvegað honum félag sem notað hafi verið af hálfu Sheikh Mohamed í viðskiptunum. Hafi hlutdeildin að því er framkvæmd varðar, falist í því að taka þátt í því með meðákærða, að fyrirskipa starfsmönnum bankans að greiða lánið út. Hafi honum hlotið að vera ljóst að meðákærða brysti heimild til lánveitingarinnar og að lánið hafi verið veitt án nokkurra ábyrgða eða trygginga.
Ákærði, Magnús, ber því við að brot hans hafi verið framin utan íslenskrar refsilögsögu, sbr. 1. ml. 1. tl. 4. gr. laga nr. 19/1940, sbr. og 2. tl. 1. mgr. 5. gr. laganna. Ákærða er gefin að sök hlutdeild í broti gegn lögum nr. 19/1940 og fullframið brot gegn lögum nr. 117. gr. laga nr. 108/2007. Eru brotin bundin við starfsemi Kaupþings banka hf. Nær refsilögsaga íslenska ríkisins því til þeirra brota er ákærða eru gefin að sök.
Ákærði, Magnús, hefur lýst aðkomu sinni að kaupum Sheikh Mohamed á hlutabréfum í Kaupþingi hf. á þann hátt að ákærði hafi fengið símtal frá meðákærða, Hreiðari Má, í september 2008 þar sem meðákærði hafi upplýst ákærða um að Sheikh Mohamed hygðist kaupa hlutabréf í Kaupþingi banka hf., eftir að meðákærði, Ólafur, hafi komið á tengslum við Sheikh Mohamed. Hafi ákærði fengið upplýsingar um grófa mynd viðskiptanna frá meðákærða, Hreiðari Má. Ekki hafi hann komið að samningaviðræðum um kaupin, heldur einungis borið skjöl til undirritunar á milli aðila. Í þeim tilgangi hafi ákærði farið til Doha í Katar þar sem hann hafi stuttlega hitt Sheikh Mohamed. Viðskiptin hafi ekki verið rædd og ákærði litið svo á að þau hefðu þegar verið ákveðin. Er þessi framburður ákærða í samræmi við framburð meðákærðu, Hreiðars Más og Ólafs.
För ákærða, Magnúsar, til Katar 16. september 2008 hefur átt sér nokkurn aðdraganda. Samkvæmt tölvubréfi sem ákærði sendi meðákærða, Hreiðari Má, 11. september 2008, er ferðin til Katar þá þegar í undirbúningi. Sendi ákærði meðákærða, Hreiðari Má, aftur tölvubréf vegna fundarins 14. september 2008 þar sem rætt er um mikilvægi þess að ákærði fari vel undirbúinn á fundinn. Eggert Hilmarsson, framkvæmdastjóri lögfræðisviðs Kaupthing Bank Luxembourg S.A., hefur lýst því að ákærði, Magnús, hafi lýst fyrir honum hvernig umrædd viðskipti skyldu úr garði gerð og hvaða félög þyrfti að stofna í tengslum við þau. Hafi Eggert sett viðskiptin upp í kynningarformi til að auðvelda vinnu í tengslum við undirbúning þeirra. Forsendur í þeirri kynningu hafi upphaflega komið frá ákærða, Magnúsi, auk þess sem frekari vinna við undirbúninginn, sem Bjarnfreður Ólafsson lögmaður hafi meðal annars tekið þátt í , hafi leitt af sér einstaka forsendur. Eggert sendi ákærða, Magnúsi, tölvubréf 15. september 2008 með fyrstu drögum að kynningu sem ákærði hefði í fórum sínum á fundinn í Katar. Er kynningin auðkennd með dagsetningu fundarins í Katar. Þá liggur fyrir að ákærði var á fundinum 18. september 2008 þegar meðákærði, Hreiðar Már, gaf undirmönnum sínum fyrirmæli um lánveitingar tengdar kaupum Sheikh Mohamed á hlutabréfum í Kaupþingi banka hf. og hvernig þau viðskipti skyldu ganga fyrir sig.
Í ljósi þess sem að framan greinir hefur ákærði, Magnús, því án nokkurs vafa þekkt svonefndan strúktúr viðskiptanna vel og nauðsynlegar lánveitingar tengdar honum. Í lánsumsókn sem Halldór Bjarkar Lúðvígsson útbjó vegna lánveitingarinnar til Brooks Trading Ltd. kom fram um lánveitingu til félagsins Brooks Trading Ltd. og að til tryggingar því láni kæmu veð í svonefndum CLN- bréfum, tengdum skuldatryggingarálagi á Kaupþing banka hf., sem ráðast ætti í. Í fundargerð lánanefndar stjórnar Kaupþings banka hf. 24. september 2008 er lán til félagsins Brooks Trading Ltd. samþykkt gegn áðurnefndri tryggingu. Á sama fundi er samþykkt lánveiting til Mink Trading Corp. til kaupa á umræddu CLN- skuldabréfi. Fyrir liggur að ekki hafði verið ráðist í viðskipti með svonefnd CLN- bréf er lán til félagsins Brooks Trading Ltd. var greitt út 19. september 2008. Hafa Sölvi Sölvason og Lara Schweiger, starfsmenn í lögfræðideild Kaupthing Bank Luxembourg A.S., staðfest það og lýst því að furðu hafi sætt að lán skyldu veitt vegna hagnaðar af þessum viðskiptum, þegar ekki hafi verið búið að stofna til þeirra. Kvaðst Sölvi hafa tjáð ákærða, Magnúsi, að hann teldi að um málamyndagerning væri að ræða. Ákærða, Magnúsi, gat því ekki dulist að er meðákærði, Hreiðar Már, gaf fyrirmæli um lánveitingar til félagsins Brooks Trading Ltd. 18. september 2008, að lán til félagsins gæti aldrei verið tryggt með veði í nefndum CLN-skuldabréfum þar sem til þeirra hafði ekki verið stofnað. Ákærði, Magnús, þekkti vel til innviða Kaupþings banka hf. Kom hann til starfa hjá Kaupþingi banka hf. á árinu 1994 og starfaði þar allt til ársins 1998, er hann tók við starfi framkvæmdastjóra Kaupthing Bank Luxembourg A.S. Þá er til þess að líta að fyrirmæli tengd útlánum og mörk útlánaheimilda voru þau sömu í Kaupþingi banka hf. og Kaupthing Bank Luxembourg A.S. þar sem handbók Kaupþings banka hf., um lánaheimildir og lánamörk, gilti samkvæmt ákvæði í handbókinni einnig fyrir Kaupthing Bank Luxembourg A.S. Ákærða, Magnúsi, gat því ekki dulist að er meðákærði, Hreiðar Már, gaf fyrirmæli um lánveitinguna, að hún gæti ekki farið fram innan þeirra heimilda er meðákærði hefði. Ákærði kom með ýmsum hætti að lánveitingunni. Fyrir hans tilstuðlan höfðu starfsmenn Kaupthing Bank Luxembourg A.S. það hlutverk með höndum að útvega félög sem taka myndu lán hjá Kaupþingi banka hf. vegna viðskipta Sheikh Mohamed. Þá fór ákærði með opnunarskjöl vegna þessara lánaviðskipta til Doha þar sem þau voru látin í hendur Sheikh Mohamed. Er kom að útgreiðslu lánsins gaf hann greiðslufyrirmæli, þótt hann hafi reyndar mælt fyrir um greiðslu þess inn á reikning Mink Trading Corp. Með þessari háttsemi hefur ákærði, Magnús, gerst sekur um hlutdeild í broti meðákærða, Hreiðars Más. Verður hann sakfelldur samkvæmt I. kafla ákæru og er háttsemi hans þar rétt heimfærð til refsiákvæða.
II. kafli ákæru
Í II. kafla ákæru eru ákærðu, Hreiðari Má og Sigurði, gefin að sök umboðssvik með því að fara út fyrir heimildir sínar til lánveitinga í september 2008 með því að láta í sameiningu bankann veita Gerland Assets Ltd., eignalausu félagi með takmarkaða ábyrgð, skráð á Bresku Jómfrúaeyjum, í eigi meðákærða, Ólafs, 12.863.497.675 króna lán, í formi óundirritaðs peningamarkaðsláns, án þess að fyrir lægi samþykki lánanefnda bankans og án þess að endurgreiðsla lánsins væri tryggð með nokkrum hætti og að hafa þannig valdið bankanum verulegri fjártjónshættu. Í ákæru er miðað við að lánið hafi verið greitt út 29. september 2008 og lánsfjárhæðinni varið til kaupa á hlutafé í Kaupþingi banka hf. í gegnum félög í eigu Sheikh Mohamed Al Thani.
Að því er lán til félagsins Gerland Assets Ltd. varðar, að fjárhæð 12.863.497.675 krónur, liggur fyrir í gögnum málsins óundirritað lánsskjali dagsett 29. september 2008 þar sem Kaupþing banki hf. veitir félaginu Gerland Assets Ltd. þann dag peningamarkaðsútlán nr. 398625/449668 að fjárhæð 12.863.497.675 krónur. Er gjalddagi lánsins 31. október 2008. Þá er á meðal rannsóknargagna málsins bréf félagsins Gerland Assets Ltd., dagsett 26. september 2008, þar sem Kaupþingi banka hf. eru gefin greiðslufyrirmæli um að færa 100.000.000 evra af reikningi félagsins í Kaupþingi banka hf. inn á reikning félagsins Choice Stay Ltd. í bankanum. Ákærði, Hreiðar Már, hefur staðfest að lán til félagsins Gerland Assets Ltd. hafi ekki farið fyrir lánanefnd stjórnar Kaupþings banka hf. Hafi verið um mistök að ræða af hálfu viðskiptastjóra á útlánasviði bankans, sem hafi átt að sjá um að lán til félagsins færi í hefðbundið ferli innan bankans með tilheyrandi samþykki. Ákærði, Sigurður, hefur fyrir dómi kannast við að hafa þekkt til uppsetningar viðskipta við Sheikh Mohamed vegna kaupa hans á hlutabréfum í Kaupþingi banka hf. Hafi ákærði verið þeim samþykkur. Hafi meðákærði, Hreiðar Már, kynnt kaupin fyrir ákærða. Þá kvaðst ákærði á fundi lánanefndar stjórnar 24. september 2008 hafa samþykkt lán til félagsins Serval Trading Group Corp. Ákærði hafi hins vegar ekki samþykkt lán til félagins Gerland Assets Ltd. Lánareglur bankans hafi verið brotnar með því að það lán hafi ekki farið fyrir lánanefnd stjórnar.
Síðasti fundur í lánanefnd stjórnar Kaupþings banka hf. var haldinn 24. september 2008. Svo sem áður er rakið var á þeim fundi samþykkt lán til félagsins Brooks Trading Ltd. að fjárhæð 50.000.000 Bandaríkjadala. Einnig var þann dag samþykkt lán til félagsins Serval Trading Group Corp. að fjárhæð 12.863.497.675 krónur. Lán til félagsins Gerland Assets Ltd. var hins vegar ekki á dagskrá fundarins. Fund þennan sátu með atkvæðisrétt ákærðu, Hreiðar Már og Sigurður, og stjórnarmennirnir Bjarnfreður Ólafsson og Gunnar Páll Pálsson. Á fundinum voru einnig Bjarki H. Diego, framkvæmdastjóri útlána, og Guðrún Harðardóttir er ritaði fundargerð. Í annarri útgáfu af sömu fundargerð hefur Steingrími P. Kárasyni framkvæmdastjóra áhættustýringar verið bætt við fundarmenn. Bjarnfreður Ólafsson og Gunnar Páll Pálsson hafa staðfest að lán til Gerland Assets Ltd. hafi ekki verið til afgreiðslu á fundinum.
Að því er greiðslu á láni til Gerland Assets Ltd. varðar eru á meðal gagna málsins tölvupóstsamskipti á milli Halldórs Bjarkars Lúðvígssonar viðskiptastjóra og þeirra Sölva Sölvasonar og Löru Schweiger, starfsmanna Kaupthing Bank Luxembourg A.S. Halldór Bjarkar sendi Sölva og Löru tölvupóst 26. september 2008, með afriti á ákærða, Magnús, og Eggert Hilmarsson, framkvæmdastjóra lögfræðisviðs Kaupthing Bank Luxembourg A.S., þar sem Halldór Bjarkar óskar eftir greiðsluleiðbeiningum vegna lánveitinga til félaganna Gerland Assets Ltd. og Serval Trading Group Corp. Lara svaraði Halldóri sama dag með greiðslufyrirmælum frá félögunum Gerland Assets Ltd. og Serval Trading Group Corp. inn í félagið Choice Stay Ltd. Halldór Bjarkar sendi tölvupóst sama dag og bað um greiðsluleiðbeiningar vegna greiðslna inn á reikning félaganna Gerland Assets Ltd. og Serval Trading Group Corp. frá Kaupþingi banka hf. Afrit af þessum pósti er sent á ákærða, Magnús, og Eggert Hilmarsson. Ákærði, Magnús, svaraði Halldóri Bjarkari og spurði hvort viðskiptin hefðu gengið í gegn. Ef svo væri ekki vildi hann ræða þau á ný við viðskiptavininn, ellegar léti Halldór ákærða vita. Halldór Bjarkar sendi ákærða tölvupóst mánudaginn 29. september 2008 og spurði ákærða að því hvaða fjárhæð ætti að ,,draga“ í íslenskum krónum. Spurði hann í framhaldi að því hvort ,,draga“ ætti tilgreinda fjárhæð í íslenskum krónum. Ákærði svaraði því játandi. Fyrir dómi kvaðst Halldór Bjarkar hafa litið svo á að í þessum fyrirmælum ákærða, Magnúsar, hafi falist fyrirmæli um útgreiðslu láns til Gerland Assets Ltd. Sama dag hafi Halldór sent tölvupóst til Halldórs Sveins Kristinssonar í fjárstýringu um greiðslur lána til félaganna Gerland Assets Ltd. og Serval Trading Group Corp. og þaðan áfram til félagsins Choice Stay Ltd. og síðan áfram inn á vörslureikning Q Iceland Finance ehf. Ákærði, Hreiðar Már, var í september 2008 forstjóri Kaupþings banka hf. og sat að auki í lánanefnd stjórnar bankans. Ákærði, Sigurður, var á þessum tíma stjórnarformaður Kaupþings banka hf. og var að auki formaður stjórnar lánanefndarinnar. Ákærði, Hreiðar Már, átti veg og vanda að því að Sheikh Mohamed keypti hlutabréf í Kaupþingi banka hf. í gegnum félag sitt Q Iceland Finance ehf. Ákærði, Sigurður, kvaðst hafa verið upplýstur um kaupin og þeim samþykkur. Kaup Sheikh Mohamed á hlutabréfum í Kaupþingi banka hf. höfðu átt sér nokkurn aðdraganda. Samkvæmt framburði ákærða, Ólafs, átti ákærði, Sigurður, fund með Sheikh Sultan í London á árinu 2007 tengdan fjárfestingum í Kaupþingi banka hf. Þá höfðu stjórnendur bankans sumarið 2008 átt í viðræðum við fjárfesta frá Katar um kaup á hlutabréfum í bankanum. Ákærði, Sigurður, hafði átt þátt í þessum fundum. Samkvæmt framburði ákærða, Ólafs, hitti ákærði, Sigurður, Sheikh Mohamed í Skotlandi í lok ágúst 2008. Kaup á 5% hlut í Kaupþingi banka hf. voru mjög stór viðskipti fyrir bankann. Ekki fær annað staðist en að ákærðu, Hreiðar Már og Sigurður, hafi í sameiningu unnið að þessum viðskiptum og ákærði, Sigurður, verið þeim í alla staði kunnugur.
Á fundi lánanefndar stjórnar 24. september 2008 var fjallað um lánveitingar tengdar Sheikh Mohamed, en um var að ræða lán til félagsins Mink Trading Corp. vegna viðskipta í svonefndum CLN-skuldabréfum og hins vegar lán til félagsins Brooks Trading Ltd. tengt sömu skuldabréfum. Mátti ákærðu báðum vera ljóst að lán til félaganna Mink Trading Corp. og Brooks Trading Ltd. væru ekki veitt til að fjármagna kaup á hlutabréfum í Kaupþingi banka hf. Á sama fundi var tekið fyrir lán til félagsins Serval Trading Group Corp. að fjárhæð 12.863.497.675 krónur, sem reyndar var kynnt sem fjárfesting í verðbréfum. Þrátt fyrir það mátti ákærðu vera ljóst, í ljósi viðskipta við Sheikh Mohamed um kaup á hlutabréfum í bankanum, að um væri að ræða lán til félags í eigu Sheikh Mohamed sem ætlað væri til kaupa á hlut í bankanum. Þó svo ekki sé fyllilega upplýst með hvaða hætti ferill lánsins var innan bankans má þó ljóst vera að ákærði, Hreiðar Már, gaf um það fyrirmæli á fundinum 18. september 2008 að lánað skyldi til tveggja félaga sem saman myndu kaupa 5,01% hlut í Kaupþingi banka hf. Ákærðu báðum gat því ekki dulist, eftir fundinn 24. september 2008, að lán yrði veitt af hálfu bankans sem veita þyrfti samþykki fyrir í lánanefnd stjórnar bankans.
Kaupþing banki var hlutafélag. Samkvæmt 68. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995, fer félagsstjórn með málefni félags og skal hún annast um að skipulag og starfsemi sé jafnan í réttu og góðu horfi. Fara félagsstjórn og framkvæmdastjóri með stjórn félags. Fer framkvæmdastjóri með daglegan rekstur félags og skal í þeim efnum fara eftir þeirri stefnu og fyrirmælum sem félagsstjórn hefur gefið. Skal félagsstjórn annast um að nægilegt eftirlit sé haft með bókhaldi og meðferð fjármuna félags. Skal framkvæmdastjóri sjá um að bókhald félags sé fært í samræmi við lög og meðferð eigna félags sé með tryggilegum hætti. Í dómaframkvæmd liðinna ára hafa dómstólar margsinnis slegið því föstu að á framkvæmdastjóra og stjórnarformanni hlutafélags hvílir eftirlitsskylda með fjárhagslegri starfsemi félags og bera þeir, í ljósi hennar, ríka ábyrgð á ólögmætum athöfnum undirmanna sinna er tengist meðferð fjármuna félagsins. Stöðu sinni samkvæmt, bæði sem æðstu stjórnendum bankans og vegna starfa í lánanefnd stjórnar, bar ákærðu báðum að hafa stjórn á lánveitingum bankans vegna kaupa Sheikh Mohamed á hlutabréfum í bankanum. Gat þeim, í ljósi ákvarðana sem teknar höfðu verið á fundi í lánanefnd stjórnar 24. september 2008, ekki dulist að er bankinn veitti lán til félagsins Gerlands Assets Ltd. 29. september 2008 hafi það verið utan heimilda ákærðu til lánveitinga, án aðkomu lánanefndar stjórnar. Með því að lánið var greitt út þann dag af hálfu bankans, án þess að fyrir lægi samþykki lánanefndar stjórnar, fóru ákærðu út fyrir heimildir sínar til lánveitinga. Fram hefur komið að lán þetta sé ógreitt, enda engar tryggingar að baki lánveitingunni. Með hliðsjón af þessu verða ákærðu báðir sakfelldir fyrir umboðssvik samkvæmt II. kafla ákæru og er háttsemi þeirra rétt heimfærð til refsiákvæða í ákærunni.
Ákærða, Ólafi, er í II. kafla ákæru aðallega gefin að sök hlutdeild í umboðssvikum meðákærðu, en til vara hylming og peningaþvætti, með því að hafa, ásamt meðákærðu, lagt á ráðin um að umrætt lán yrði greitt úr sjóðum bankans, þrátt fyrir verulega fjártjónshættu fyrir bankann og að láta félag sitt, Gerland Assets Ltd. taka við lánsfjárhæðinni án nokkurra ábyrgða eða trygginga, til að henni yrði ráðstafað áfram til félagsins Q Iceland Finance ehf. til viðskipta Sheikh Mohamed með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. Í framburði ákærða fyrir dómi kom fram að hann hefði komið á fundi á milli meðákærða, Sigurðar, og Sheikh Sultan í London 2007 vegna áforma Kaupþings banka hf. um að hasla sér völl í Mið-Austurlöndum. Á tímabilinu mars til júlí 2008 hafi ákærði átt tvo einkafundi með forsætisráðherra Katar og forstjóra Qatar Investments Authorities og ráðgjafa hans vegna hugsanlegra kaupa þeirra á hlutabréfum í Kaupþingi banka hf. Samhliða samningaviðræðum Sheikh Mohamed um kaup á hlutum í Alfesca hafi verið rætt um stofnun sameiginlegs fjárfestingarsjóðs af þeirra hálfu. Fyrsti fundur um það efni hafi verið í London 1. júní 2008, en á þeim fundi hafi ákærði og Sheikh Sultan hist. Frekari umræður um sjóðinn hafi átt sér stað í júlí 2008 og ákvörðun verið tekin um að Sheikh Sultan kæmi einnig að þeim sjóði. Þar hafi ýmis fjárfestingarverkefni verið rædd. Meðákærði, Hreiðar Már, hafi lýst yfir vilja til að Kaupþing banki hf. myndi fjármagna sjóðinn. Um mánaðamótin júlí ágúst 2008 hafi Sheikh Sultan, ásamt forstjóra Alfesca, komið til Íslands. Ákærðu, Ólafur og Sigurður, hafi dagana 26. og 27. ágúst 2008 verið við veiðar í Englandi ásamt Sheikh Mohamed og Sheikh Sultan. Í lok ágúst 2008 hafi meðákærði, Hreiðar Már, borið upp þá spurningu við ákærða hvort hann teldi að Sheikh Mohamed væri áhugasamur um að kaupa hlutabréf í Kaupþingi banka hf. Hafi ákærði borið þá hugmynd áfram til Sheikh Sultan. Sheikh Sultan hafi spurst fyrir um verð og kjör. Í byrjun september 2008 hafi Sheikh Sultan staðfest áhuga Sheikh Mohamed á að kaupa hlutabréf í bankanum. Meðákærði, Hreiðar Már, hafi leitað eftir samþykki ákærða fyrir því að fyrirhugaður fjárfestingarsjóður ákærða og Sheikh Mohamed yrði notaður við kaup Sheikh Mohamed á hlutabréfum í Kaupþingi banka hf. Hafi ákærði fallist á það. Þar hafi komið fram að félag í eigu ákærða myndi fjármagna helming kaupanna til skamms tíma. Ákærði hafi, ásamt meðákærða, Magnúsi, farið til Doha í Katar 16. september 2008 til fundar við Sheikh Sultan og Sheikh Mohamed. Hafi ákærði, án meðákærða, hitt þá tvo á fundi. Þar hafi verið rædd sameiginleg fjárfestingarverkefni þeirra þriggja. Vegna fyrirhugaðrar þátttöku ákærða í fjárfestingarsjóðnum hafi Kaupthing Bank Luxembourg A.S. lagt til að félagið Gerland Assets Ltd., sem bankinn hafi sjálfur stofnað 18. júlí 2008, yrði notað í þessu sambandi. Hafi ákærði tekið félagið yfir 20. september 2008 og skrifað þá undir hluthafasamþykkt fyrir það. Ákærði hafi átt fund á skrifstofu sinni í London 20. september 2008 með Simon Southall lögmanni Sheikh Mohamed. Á þeim fundi hafi meðákærði, Magnús, afhent lögmanninum gögn sem tengst hafi viðskiptum Sheikh Mohamed og Sheikh Sultan við bankann. Á þeim fundi hafi Simon Southall óskað eftir því að Kaupthing Bank Luxembourg A.S. myndi opna sjálfstætt félag á Kýpur til að vera eignarhaldsfélag utan um hlut í Alfesca. Næsta dag hafi ákærði fengið send drög að fréttatilkynningu Kaupþings banka hf. frá starfsmönnum bankans vegna kaupa Sheikh Mohamed á hlutabréfum í Kaupþingi. Ákærði hafi ekki náð sambandi við Simon Southall því Simon hafi verið í flugi á leið til Katar með skjöl fyrir Sheikh Mohamed til undirritunar. Hafi ákærði hringt í Guðmund Oddsson, íslenskan lögmann Sheikh Mohamed, og borið undir hann innihald fréttatilkynningar bankans. Ekki hafi Guðmundur gert athugasemd við tilkynninguna og ákærði svarað starfsmanni Kaupþings banka hf. að fréttatilkynningin væri í lagi. Í eitt skipti hafi ákærði framsent skjöl varðandi viðskipti Sheikh Mohamed með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. en að öðru leyti hafi ákærði ekki átt aðkomu að skjalagerð í málinu. Ákærði hafi aldrei óskað eftir láni fyrir félagið Gerland Assets Ltd. eða ritað undir lánsbeiðni fyrir félagið. Ákærði hafi aldrei séð svonefnda glærukynningu af strúktúr viðskipta Sheikh Mohamed, sem útbúin hafi verið af starfsmönnum Kaupthing Bank Luxembourg A.S.
Af því sem að framan er rakið um aðkomu ákærða að viðskiptum með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. í gegnum félagið Q Iceland Finance ehf. má ljóst vera að ákærði kom að málinu á ýmsan hátt. Bæði með því að leiða saman aðila viðskiptanna, vera viðstaddur á ýmsum fundum með aðilum og vera í beinu sambandi við ákærðu, Hreiðar Má og Sigurð, vegna þeirra. Ákærði var á þessum tíma stór hluthafi í Kaupþingi banka hf. í gegnum eignarhald sitt á félögum og átti hann í september 2008 á þann hátt 9,88% hlut í félaginu. Fullyrðing ákærða um að hann hafi ekki þekkt náið til viðskipta Q Iceland Finance ehf. með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. fær að mati dómsins ekki staðist. Ákærði átti á þessum tíma langa sögu viðskipta og var þaulreyndar á þeim vettvangi. Er hann viðskiptafræðingur að mennt. Höfðu félög á hans vegum, þegar þar var komið, átt mikil viðskipti bæði við Kaupþing banka hf. og Kaupthing Bank Luxembourg A.S. Ákærði var skráður eigandi að félaginu Gerland Assets Ltd. og hafði einungis fáeinum dögum fyrir lánveitinguna til félagsins ritað undir hluthafasamþykktir fyrir það. Ákærði átti mikilla hagsmuna að gæta af því að viðskipti Sheikh Mohamed með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. yrðu að veruleika. Er að mati dómsins hafið yfir skynsamlegan vafa að ákærði hafi, í félagi við meðákærðu, Hreiðar Má og Sigurð, lagt á ráðin um lánveitingu til félagsins Gerland Assets Ltd. Það félag var nýstofnað og átti ekki aðrar eignir til að veðsetja en eigin hlutabréf. Lán til félagsins að fjárhæð 12.863.497.675 krónur, sem ekki voru veittar sérstakar tryggingar fyrir, fól því í sér verulega fjártjónshættu fyrir Kaupþing banka hf. og liggur fyrir að lán þetta er ógreitt. Með þátttöku sinni í hinni ólögmætu lánveitingu, sem ákærða gat ekki dulist að var umfram heimildir meðákærðu, varð ákærði hlutdeildarmaður í broti meðákærðu, Hreiðars Más og Sigurðar. Verður ákærði því sakfelldur samkvæmt II. kafla ákæru og varðar háttsemi hans þar við 249. gr., sbr. 1. mgr. 22. gr. laga nr. 19/1940.
III. kafli ákæru
Í III. kafla er ákærðu, Hreiðari Má og Sigurði, gefið að sök að hafa stofnað til blekkingar- og sýndarviðskipta með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. í tengslum við kaup Sheikh Mohamed á hlutabréfum í bankanum. Ákæra miðar við að um markaðsmisnotkun hafi verið að ræða af hálfu ákærðu í viðskiptum með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. í september 2008 með því að láta ranglega líta svo út að þekktur fjárfestir frá Katar, Sheikh Mohamed Al Thani, hefði lagt fé til kaupa á 5,01% hlutafjár í Kaupþingi banka hf. og borið af þeim fulla markaðsáhættu þegar Q Iceland Finance ehf., dótturfélag í eigu eignarhaldsfélags hans Q Iceland Holding ehf. hafi keypt umræddan hlut af bankanum. Hafi fullri fjármögnun bankans á hlutabréfakaupunum verið leynt og aðkomu meðákærða, Ólafs, að þeim, en hann hafi á þeim tíma átt 9,88% hlutafjár í bankanum í gegnum félög sín. Í þessum tilgangi hafi verið sett upp viðskiptaflétta sem hafi verið fólgin í því að Kaupþing banki hf. hafi lánað helming kaupverðsins til félagsins Serval Trading Group Corp, í eigu Sheikh Mohamed, sem gengist hafi í persónulega ábyrgð fyrir því láni. Kaupþing banki hf. hafi lánað hinn helming kaupverðsins félaginu Gerland Assets Ltd., í eigu meðákærða, Ólafs, án þess að endurgreiðsla lánsins væri trygg með nokkrum hætti og án samþykkis lánanefndar Kaupþings banka hf. Ákærðu, Hreiðar Már og Sigurður, hafi tekið sameiginlega ákvörðun um hlutabréfaviðskiptin og fjármögnun þeirra og ákærði, Hreiðar Már, gefið starfsmönnum bankans fyrirmæli um framkvæmd þeirra. Um hafi verið að ræða viðskipti með stóran hlut í Kaupþingi banka hf., sem falið hafi í sér blekkingu og sýndarmennsku og verið líkleg til að gefa eftirspurn og verð hlutabréfa í bankanum misvísandi til kynna þar sem dulin hafi verið að fullu fjármögnun bankans sjálfs í viðskiptunum og að auki aðkoma stórs hluthafa bankans, meðákærða, Ólafs, að þeim og dulið að helmingur markaðsáhættu vegna hlutabréfanna hvíldi á bankanum sjálfum eftir viðskiptin.
Umrædd viðskipti með hlutabréf í Kaupþingi hf. áttu sér talsverðan aðdraganda, svo sem áður hefur komið fram. Í september 2008 hafði þrengt talsvert að á alþjóðlegum fjármálamörkuðum, en um það báru vitni fyrir dómi, auk þess sem ákærðu gerðu grein fyrir því. Af hálfu stjórnenda Kaupþings banka hf. voru miklar vonir bundnar við gott streymi innlána í bankann, sérstaklega tengt svonefndum Edge innlánsreikningum. Lausafjárstaða bankans var til umræðu á stjórnarfundi í bankanum dagana 25. og 26. september 2008. Fram kom í framburði stjórnarmanna að almenn ánægja hafi ríkt með stöðu bankans að því leyti, þrátt fyrir kreppu á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Ákærði, Sigurður, ritaði bréf 26. janúar 2009, þar sem hann lét frá sér athugasemdir í tilefni af því að Kaupþing banki hf. var tekinn yfir af Fjármálaeftirlitinu 8. október 2008. Í bréfinu gerir ákærði meðal annars grein fyrir ,,fjármálakreppu“ sem farið hafi af stað í júlí 2007 þegar skuldabréfaálög hafi tekið að hækka. Hafi þau náð hámarki í mars 2008, en þá tekið að lækka aftur. Þrátt fyrir ýmsar aðgerðir æðstu stjórnenda Kaupþings banka hf. hafi álag á skuldatryggingar bankans tekið að hækka á ný sumarið 2008. Eftir að Lehman Brothers hafi orðið gjaldþrota 15. september 2008 hafi ástandið versnað verulega á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Skuldatryggingarálag á Kaupþing banka hf. hafi hækkað eins og á aðra banka. Ástandinu á haustdögum hafi ekki verið unnt að lýsa öðruvísi en sem bankaáhlaupi, ekki aðeins á íslensku bankana, heldur fjármálakerfi heimsins alls.
Um mitt ár 2008 áttu æðstu stjórnendur Kaupþings banka hf. viðræður við fyrirsvarsmenn fjárfestingarsjóðsins Qatar Investments Authorities um fjárfestingar í Kaupþingi banka hf. Í framburði ákærða, Hreiðars Más, kom fram að í tengslum við þær viðræður hafi KPMG í London verið falið að ljúka áreiðanleikakönnun á bankanum. Í kjölfar vinnu með KPMG hafi verið boðið til fundar í Doha í Katar. Ekki hafi verið gengið til samninga við Qatar Investments Authorities þar sem fjárfestingarsjóðurinn hafi farið fram á háan afslátt frá gengi hlutabréfa í Kaupþingi banka hf. Er borið var undir ákærða hvort boð sjóðsins hafi hljóðað upp á 399 krónur á hlut kvað ákærði það getað staðist. Samkvæmt tölvupósti sem Henrik Gustafsson sendi ákærða, Heiðari Má, og Steingrími P. Kárasyni, framkvæmdastjóra áhættustýringar Kaupþings banka hf., 20. ágúst 2008, var boð QIA um 399 krónur á hlut.
Samkvæmt 78. gr. laga nr. 108/2007, er snýr að flöggun viðskipta, skal eigandi, sem aflar eða ráðstafar hlutum í útgefanda hlutabréfa sem tekin hafa verið til viðskipta á skipulegum verðbréfamarkaði, senda tilkynningu með sannanlegum hætti til viðkomandi útgefanda og Fjármálaeftirlitsins, ef öflun eða ráðstöfun leiðir af sér að atkvæðisréttur hans nái, hækki eða lækki niður fyrir tilgreind mörk, þ. á m. 5%. Í samræmi við ákvæðið sendi Kaupþing banki hf. tilkynningu til Kauphallar Íslands 22. september 2008 um eigin viðskipti bankans við sölu á 37.100.000 hlutum í bankanum. Fram kemur að kaupverð hafi verið 690 krónur á hlut. Jafnframt var Fjármálaeftirlitinu tilkynnt um kaupin og þar tekið fram að kaupandi væri Q Iceland Finance ehf. Kaup Q Iceland Finance ehf. á 5,01% hlut í Kaupþingi banka hf. voru fjármögnuð með þeim hætti að bankinn sjálfur veitti félögunum Gerland Assets Ltd. og Serval Trading Group Corp., báðum til heimilis á Bresku Jómfrúaeyjum, lán vegna þessara kaupa. Lánum þessum var í beinu framhaldi beint inn á reikning félagsins Choice Stay Ltd. í bankanum, en það félag var skrásett á Kýpur. Sama dag var þessum fjármunum ráðstafað inn á reikning félagsins Q Iceland Finance ehf. í Kaupþingi banka hf. Ákærðu, Hreiðar Már og Magnús, létu starfsmönnum sínum í té upplýsingar um þessi viðskipti, hvernig þau skyldu ganga fyrir sig og með hvaða hætti þau yrðu fjármögnuð. Svo sem slegið var föstu í I. og II. kafla ákæru gaf ákærði, Hreiðar Már, 18. september 2008 starfsmönnum sínum fyrirmæli um lánveitingar tengdar þessum kaupum á fundi með meðákærða, Magnúsi, og viðskiptastjórum á útlánasviði.
Samkvæmt framburði Eggerts Hilmarssonar, framkvæmdastjóra lögfræðisviðs Kaupthing Bank Luxembourg A.S., fyrir dóminum, gaf ákærði, Magnús, honum í byrjun september 2008 fyrirmæli og forsendur til að vinna eftir við uppsetningu kaupa Sheikh Mohamed á 5,01% hlut í Kaupþingi banka hf. Eggert kvaðst í kjölfarið, svo sem jafnan, hafa sett forsendur kaupanna í myndrænt kynningarform til að auðvelda vinnu við viðskiptin og til að þeir er að vinnunni kæmu gætu áttað sig vel á þeim félögum er ættu í hlut og flæði fjármuna. Samkvæmt gögnum málsins sendi Eggert fyrstu drög að þessari kynningu til ákærða, Magnúsar, með tölvupósti 15. september 2008. Samkvæmt þessari kynningu var gert ráð fyrir því að lán að fjárhæð 200.000.000 evra yrði veitt frá Kaupþingi banka hf. til sérstaks fjárfestingarfélags að jöfnu í eigu ákærða, Ólafs, og Sheikh Mohamed. Lánið yrði veitt frá þessu fjárfestingarfélagi til félagsins Q Iceland Holding ehf., sem aftur keypti 5,01% hlutafjár í Kaupþingi banka hf. Félagið Q Iceland Holding ehf. væri í eigu Sheikh Mohamed. Í skýringum við hina myndrænu uppsetningu var tekið fram að kjör lánsins frá fjárfestingarfélaginu til Q Iceland Holding ehf. væru háð gengi hlutabréfa í Kaupþingi hf. Eggert Hilmarsson sendi Sölva Sölvasyni og Löru Schweiger, báðum starfsmönnum Kaupthing Bank Luxembourg A.S., tölvubréf 18. september 2008 með þeim skilaboðum að um væri að ræða lítils háttar uppfærða útgáfu. Þeim tölvupósti var jafnframt beint til Bjarnfreðs Ólafssonar lögmanns. Í þeim pósti var hinni myndrænu uppsetningu viðskiptanna breytt þannig að sérstök félög voru komin í stað ákærða, Ólafs, og Sheikh Mohamed, sem eigendur hins sameiginlega fjárfestingarfélags. Fram kom að þessi félög væru að fullu í eigu ákærða, annars vegar og Sheikh Mohamed, hins vegar. Áfram var gert ráð fyrir flæði fjármuna í gegnum fjárfestingarfélagið til Q Iceland Holding ehf., sem væri að fullu í eigu Sheikh Mohamed. Þá var áfram gert ráð fyrir að kjör láns til Q Iceland Holding ehf. réðist af gengi hlutabréfa í Kaupþingi banka hf. Eggert Hilmarsson hefur staðhæft að forsendur um hagnaðartengt lán hafi komið frá Bjarnfreði Ólafssyni lögmanni, sem komið hafi að vinnu við uppsetningu viðskiptanna. Hafi Eggert litið á Bjarnfreð sem lögmann ákærða, Ólafs, í uppsetningu þeirra, þar sem ákærði hafi tengst þessum viðskiptum. Eggert hafi engar forsendur haft til að ákveða þetta sjálfur. Innan bankans hafi verið unnið með hið hagnaðartengda lán, þar sem það hafi varðað hið sérstaka eignarhaldsfélag sem staðsett skyldi á Kýpur. Hafi sérfræðingar á Kýpur verið fengnir til að skoða þann þátt en þeirri vinnu ekki verið lokið 8. október 2008. Á meðal gagna málsins er símtal frá 17. september 2008 á milli Eggerts Hilmarssonar og Bjarnfreðs Ólafssonar lögmanns þar sem rætt var um þetta lán. Verður símtal þetta ekki skilið á annan hátt en að lán á milli fjárfestingarfélaganna og Q Iceland Holding ehf. skyldi vera hagnaðartengt og taka mið af fjárfestingunni í Kaupþingi banka hf. Þá kom fram síðar í þessu símtali að Eggerti skildist að ákærði, Ólafur, vildi fá sinn part af ,,kökunni“. Undir það tekur Bjarnfreður. Eggert Hilmarsson staðfesti þessi atriði fyrir dóminum. Var framburður Eggerts afdráttarlaus og skýr um öll atriði málsins, að því marki sem Eggert gat af eigin raun borið um atvik, og í samræmi við skýrslur hans á rannsóknarstigi málsins. Var Eggert trúverðugur að mati dómsins um þessi atriði. Með því og með hliðsjón af því sem hér að framan var rakið, telur dómurinn unnt að slá því föstu að ætlunin hafi verið að félög í eigu ákærða, Ólafs, og Sheikh Mohamed skyldu njóta ávinnings af gengi hlutabréfa í Kaupþingi banka hf. Ákærði, Ólafur, var á þessum tíma stór hluthafi í Kaupþingi banka hf., en félög á hans vegum áttu 9,88% hlut í Kaupþingi banka. Í símtali milli Eggerts Hilmarssonar og Bjarnfreðs Ólafssonar frá 17. september 2008 greindi Eggert frá því að ,,uppleggið frá Magga var ... ... hann má ekki flagga, við viljum bara að Qatar-inn flaggi og enginn annar, hann er bara einn í þessu sko.“ Þá hafi Eggert sagt varðandi ákærða, Ólaf, að það þyrfti að ,,lengja í lúpunni“ varðandi eignarhald ákærða. Eggert staðfesti fyrir dómi að hafa viðhaft þessi ummæli í símtali.
Viðskipti Sheikh Mohamed með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. í september 2008 höfðu jákvæð áhrif á gengi hlutabréfa í bankanum. Á yfirliti um verðþróun hlutabréfa í bankanum frá Kauphöll Íslands hafði dagslokaverð hlutabréfa í bankanum verið nærri 690 krónum á hlut í nokkurn tíma fram undir 20. september 2008. Þann 22. september 2008 hækkaði verð á hlut í 737 krónur á hlut og fór hæst í 755 krónur á hlut 25. sama mánaðar. Eftir það tóku bréfin að lækka á ný.
Í ákæru er háttsemi ákærðu, Hreiðars Más og Sigurðar, í III. kafla ákæru talin varða við a-lið 1. tl. og 2. tl. 1. mgr. 117. gr., sbr. 146. gr. laga nr. 108/2007. Samkvæmt a-lið 1. tl. 1. mgr. 117. gr. er markaðsmisnotkun óheimil. Í ákvæðinu er tekið fram að með markaðsmisnotkun sé átt við að eiga viðskipti eða gera tilboð sem gefi eða séu líkleg til að gefa framboð, eftirspurn eða verð fjármálagerninga ranglega eða misvísandi til kynna. Samkvæmt 2. tl. 1. mgr. 117. gr. laganna sé með markaðsmisnotkun átt við að eiga viðskipti eða gera tilboð sem byggð séu á tilbúningi eða þar sem notuð séu einhver form blekkingar eða sýndarmennsku. Samkvæmt 118. gr. laga nr. 108/2007 skal ráðherra setja reglugerð um nánari skilgreiningu á markaðsmisnotkun. Það hefur ráðherra gert með reglugerð nr. 630/2005, um innherjaupplýsingar og markaðssvik. Samkvæmt a-lið 8. gr. reglugerðarinnar skal við mat á því hvort um markaðsmisnotkun sé að ræða meðal annars líta til þess hversu stórt hlutfall umrædd tilboð eða viðskipti séu af daglegri meðalveltu viðkomandi fjármálagernings á viðkomandi skipulegum verðbréfamarkaði, einkum þegar þau leiði til marktækra breytinga á verði viðkomandi fjármálagerninga. Samkvæmt b-lið 8. gr. skal einnig líta til þess að hve miklu leyti tilboð eða viðskipti aðila sem eigi viðskipti vegna stöðutöku í fjármálagerningi hafi í för með sér marktækar breytingar á verði viðkomandi fjármálagernings eða undirliggjandi verðbréfa sem tekin hafi verið til skráningar á skipulegum verðbréfamarkaði.
Við mat á niðurstöðu er til þess að líta að viðskipti Q Iceland Finance ehf. með 5,01% hlut í Kaupþingi banka hf. voru mjög stór, sé miðað við venjulega veltu hlutabréfanna í bankanum. Þá höfðu viðskiptin marktækar breytingar í för með sér á virði hlutabréfa í bankanum. Í tilkynningu til kauphallar var þess ekki getið að Kaupþing banki hf. hefði fjármagnað kaupin að fullu. Þá var þess ekki getið að ákærði, Ólafur, hefði komið að fjármögnun kaupanna með því að lánsféð frá Kaupþingi banka hf. rann að helmingi í gegnum félag ákærða. Ákærði, Ólafur, átti að njóta hagnaðar af þróun gengis hlutabréfa í bankanum. Telur dómurinn engum vafa undirorpið að upplýsingar um þessi atriði hefðu haft áhrif á virði hlutabréfa í bankanum. Ákærðu, Hreiðar Már og Sigurður, tóku ákvörðun um hlutabréfaviðskipti Kaupþings banka hf. við Sheikh Mohamed og ákvörðun um að veita lán til félaganna Gerland Assets Ltd. og Serval Trading Group Cor. sem veittu þeim lánum áfram til félagsins Q Iceland Finance ehf. Þá liggur fyrir að lánveitingar ákærðu, Hreiðars Más og Sigurðar, voru ólögmætar að því marki sem ákærðu fóru út fyrir heimildir sínar til lánveitinga fyrir Kaupþing banka hf. Kaupandi lagði fram sjálfskuldarábyrgð fyrir helmingi kaupverðsins. Er sjálfskuldarábyrgð einungis ábyrgð þar sem kröfuhafi getur gengið að ábyrgðarmanni að skuld þegar skuldari efnir ekki samningsskyldur sínar á réttum tíma. Af þessu leiðir að fjármunir komu ekki inn í Kaupþing banka hf. við kaupin, sem bættu því ekki lausafjárstöðu bankans eða gjaldeyrisforða á erfiðum tímum á fjármálamörkuðum. Á sama tíma þurfti bankinn að gæta mikils aðhalds við útstreymi gjaldeyris úr bankanum og hafði dregið segl mikið saman að því leyti til. Í ljósi þess að ekki lá nein trygging að baki láni til Gerland Assets Ltd. bar bankinn af viðskiptunum hálfa markaðsáhættu. Loks liggur fyrir að fjárfestingarsjóðurinn Qatar Investments Authorities hafði boðið Kaupþingi banka hf. 399 krónur á hvern hlut hlutabréfa, en í viðskiptum bankans við Q Iceland Finance ehf. fáeinum dögum síðar var verð á hlut 690 krónur, eða hartnær helmingi hærra en fyrra tilboð. Var það á tíma sem ,,bankaáhlaup“ var í gangi. Með hliðsjón af öllu þessu telur dómurinn hafið yfir skynsamlegan vafa að kaupin hafi verið blekking að stofni til. Áttu ákærðu viðskipti sem gáfu verð fjármálagerninga ranglega til kynna. Sömuleiðis áttu þeir viðskipti þar sem notaðir voru bæði blekkingar og sýndarmennska. Með því hafa ákærðu gerst brotlegir við a-lið, 1. tl. og 2. tl., 1. mgr. 117. gr. laga nr. 108/2007. Verða þeir samkvæmt því sakfelldir samkvæmt ákæru og er háttsemi þeirra í III. kafla ákæru rétt heimfærð til refsiákvæða.
Ákærðu, Magnúsi og Ólafi, er gefin að sök hlutdeild í framangreindri markaðsmisnotkun meðákærðu, með því að hafa haft milligöngu um að koma viðskiptunum á og að hafa átt samskipti við Sheikh Mohamed um þau. Sömuleiðis hafi ákærði, Magnús, tekið þátt í undirbúningi og útfærslu viðskiptafléttunnar. Ákærði, Ólafur, hafi tekið þátt í undirbúningi viðskiptafléttunnar og í því að gera hlutabréfaviðskiptin að veruleika með aðkomu að fjármögnun þeirra.
Aðkomu ákærðu að þessum viðskiptum hefur áður verið lýst. Þar var slegið föstu að ákærði, Magnús, þekkti vel til viðskiptanna. Lét hann starfsmenn sína undirbúa viðskiptin, þess meðvitaður að Kaupþing banki hf. hefði fjármagnað þau að fullu. Þá vissi hann um aðkomu meðákærða, Ólafs, að viðskiptunum og gat honum ekki dulist hagnaðartenging láns til meðákærða, Ólafs, þar sem þær upplýsingar komu fram í kynningu er hann hafði í höndum tengt þessum viðskiptum. Gerði ákærði engar tilraunir til að leiðrétta þá mynd sem þar var sett upp. Ákærða, Ólafi, var einnig fullkunnugt um viðskiptafléttuna og tilgang með henni. Undirritaði hann nauðsynleg skjöl varðandi félagið Gerland Assets Ltd. til að unnt væri að hrinda viðskiptunum í framkvæmd. Með þessari háttsemi gerðust ákærðu báðir sekir um hlutdeild í brotum meðákærðu, Hreiðars Más og Sigurðar.
Verða þeir því einnig sakfelldir samkvæmt III. kafla ákæru og er háttsemi þeirra þar rétt heimfærð til refsiákvæða.
IV. kafli ákæru
Í IV. kafla ákæru er ákærðu öllum gefin að sök markaðsmisnotkun með því að hafa í september 2008, í fréttatilkynningu sem birt var á vef Kauphallar Íslands og í viðtölum í fjölmiðlum í kjölfarið, dreift fréttum og upplýsingum sem gáfu eða voru líklegar til að gefa misvísandi upplýsingar og vísbendingar um hlutabréfaviðskipti Q Iceland Finance ehf. með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. Í fréttatilkynningu frá Kaupþingi banka hf., sem birt var 22. september 2008 á vef Kauphallar Íslands, sagði svo: „Q Iceland Finance ehf., dótturfélag í eigu Q Iceland Holding ehf., sem er eignarhaldsfélag hans hátignar Sheikh Mohamed bin Khalifa Al-Thani, hefur keypt 5,01% hlut í Kaupþingi banka hf. Q Iceland Finance keypti alls 37,1 milljón hluta á genginu 690 krónur á hlut og verður þar með þriðji stærsti hluthafi bankans. Hans hátign Sheikh Mohamed er í konungsfjölskyldunni sem verið hefur við völd í Qatar frá því á nítjándu öld. Hans hátign Sheikh Mohamed: „Við höfum fylgst náið með Kaupþingi í nokkurn tíma og teljum þetta góða fjárfestingu. Staða Kaupþings er sterk og við höfum trú á stefnu og stjórnendum bankans, enda hefur Kaupþing náð góðum árangri við þær erfiðu aðstæður sem nú eru á markaðnum og sýnt fram á getu til þess að breytast og laga sig að nýjum veruleika í bankastarfsemi. Við lítum á hlut okkar í Kaupþingi sem langtímafjárfestingu og hlökkum til að eiga góð samskipti við stjórnendur bankans.“ Sigurður Einarsson, stjórnarformaður: „Okkur er mikil ánægja að bjóða hans hátign Sheikh Mohamed bin Khalifa Al-Thani velkominn í hluthafahóp Kaupþings. Það hefur lengi verið stefna okkar að laða nýja fjárfesta að bankanum og því er ánægjulegt að sjá að við höfum nú náð að breikka hluthafahópinn enn frekar. Við hlökkum til að vinna með hans hátign Sheikh Mohamed í framtíðinni““.
Samkvæmt gögnum málsins sendi Davíð Gunnarsson, þá starfsmaður á samskiptasviði Kaupþings banka hf., tölvupóst laugardaginn 20. september 2008, kl. 13.17, til yfirmanns síns, Jónasar Sigurgeirssonar, framkvæmdastjóra samskiptasviðs. Í tölvupóstinum voru drög að fréttatilkynningu Kaupþings banka hf. vegna kaupa Sheikh Mohamed á 5,01% hlut í bankanum. Í tilkynningunni var gerð grein fyrir kaupum Sheikh Mohamed á ,,5,1%“ hlut í bankanum eða 37.763.103 hlutum. Jafnframt var um beinar tilvitnanir í ákærða, Sigurð, að ræða, sem og Sheikh Mohamed, vegna kaupanna, þar sem þeir lýstu báðir ánægju með kaupin. Jónas Sigurgeirsson svaraði tölvupóstinum samstundis og tjáði Davíð að hann biði eftir því að ákærði, Magnús, hringdi í sig vegna málsins. Klukkan 13.45 sama dag sendi Davíð aftur tölvupóst til Jónasar, sem auðkenndur var ,,draft 2“, þar sem enn var verið að senda á milli drög að fréttatilkynningunni. Var nánari grein gerð fyrir því félagi sem keypt hefði bréfin, hluturinn sagður vera 5,01% og væru hlutirnir 37.100.000. Tilvitnun í ummæli Sheikh Mohamed voru óbreytt, en lítils háttar breyting var gerð á tilvitnun í ákærða, Sigurð. Jónas svaraði Davíð samstundis með þeim skilaboðum að hann myndi hringja stuttu síðar.
Davíð Gunnarsson sendi ákærða, Magnúsi, tölvupóst með fréttatilkynningunni sunnudaginn 21. september 2008, kl. 14.08. Var tölvupósturinn auðkenndur sem ,,Drög að tilkynningu-final“. Afrit af þeim pósti var sent á Jónas Sigurgeirsson. Ákærði, Magnús, sendi tölvupóst á Davíð Gunnarsson kl. 15.01 þennan sama dag, með afriti á Jónas, með breytingum eftir fund ákærðu, Magnúsar og Ólafs. Ákærði sendi á ný tölvupóst á sömu aðila kl. 18.35 þennan dag með þeim skilaboðum að einhverjar breytingar yrðu til viðbótar. Klukkan 19.05 þennan dag sendi ákærði, Magnús, enn á ný tölvupóst til sömu aðila og áður með lítils háttar breytingu á tilkynningunni. Að síðustu sendi ákærði, Magnús, tölvupóst á sömu aðila, þar sem gerðar voru aðrar lítils háttar breytingar á tilkynningunni, með fyrirmælum um að senda hreina útgáfu yfirlýsingarinnar á ákærðu, Magnús, Hreiðar Má og Ólaf. Var póstfang ákærða, Ólafs, sagt vera ,,olafur.olafsson@kaupthing.com“.
Ákærði, Ólafur, hefur fyrir dómi greint frá því að hann hafi borið tilvitnun í Sheikh Mohamed undir Guðmund Oddsson, lögmann Sheikh Mohamed. Hefur Guðmundur fyrir dóminum staðfest það, en jafnframt borið að hann hafi lýst yfir að hann hafi ekki verið í þeirri aðstöðu að taka ákvarðanir fyrir hönd umbjóðanda síns, Sheikh Mohamed. Má ljóst vera að umrædd fréttatilkynning var aldrei borin undir Sheikh Mohamed sjálfan. Í gögnum málsins liggja frammi viðtöl ákærðu, Hreiðars Más, Sigurðar og Ólafs, í fjölmiðlum í kjölfar kaupa Sheikh Mohamed á hlutum í Kaupþingi banka hf. Hafa ákærðu staðfest fyrir dómi að hafa viðhaft þau ummæli um kaupin sem til er vitnað í IV. kafla ákæru.
Brot samkvæmt IV. kafla ákæru eru talin varða við 3. tl. 1.mgr. 117. gr., sbr. 146. gr. laga nr. 108/2007. Samkvæmt tilvitnuðu ákvæði er markaðsmisnotkun óheimil, en með markaðsmisnotkun sé átt við dreifingu upplýsinga, frétta eða orðróms sem gefi eða sé líkleg til að gefa rangar eða misvísandi upplýsingar eða vísbendingar um fjármálagerninga, enda hafi sá sem dreift hafi upplýsingunum vitað eða mátt vita að upplýsingarnar voru rangar eða misvísandi.
Af því sem að framan er rakið um vinnu við gerð fréttatilkynningar sem birt var á vef Kauphallar Íslands liggur fyrir að ákærðu komu allir með einhverju móti að gerð tilkynningarinnar. Í niðurstöðu um III. kafla ákæru var talið sannað að ákærðu hefðu gerst sekir um markaðsmisnotkun í tengslum við viðskipti með hlutabréf í Kaupþingi banka hf. Þar var slegið föstu að í viðskiptunum hafi verið fólgin blekking og sýndarmennska af hálfu ákærðu, og látið líta út fyrir að Sheikh Mohamed hefði greitt fyrir hlutabréfin. Hafi sjálfskuldarábyrgð Sheikh Mohamed vegna kaupa á helmingi hlutabréfa engu breytt um það efni. Ákærðu, Hreiðar Már, Sigurður og Ólafur, létu frá sér ummæli í kjölfar fréttatilkynningarinnar sem fólu í sér misvísandi upplýsingar um hlutabréfakaupin. Leituðust þeir á engan hátt við að koma þeim upplýsingum á framfæri að kaup bréfanna hefðu að fullu verið fjármögnuð af bankanum og að ákærði, Ólafur, hefði átt þátt í viðskiptunum, þrátt fyrir að þeim hafi mátt vera ljóst að upplýsingar um þessi atriði hefðu verðmótandi áhrif á fjármálamarkaði. Verð hluta í bankanum hækkaði í kjölfar viðskiptanna og umfjöllun fjölmiðla um þau. Með framangreindri háttsemi hafa ákærðu allir gerst sekir um markaðsmisnotkun. Verða þeir sakfelldir samkvæmt IV. kafla ákæru og er háttsemi þeirra rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
Ákærði, Hreiðar Már, er fæddur í nóvember 1970, ákærði, Sigurður, í september 1960, ákærði, Ólafur, í janúar 1957 og ákærði, Magnús, í apríl 1970. Enginn ákærðu hefur áður sætt refsingu svo kunnugt sé.
Við ákvörðun refsingar er til þess að líta að ákærðu, Hreiðar Már og Sigurður, voru á þeim tíma er brotin voru framin æðstu stjórnendur stærsta viðskiptabanka á Íslandi. Ákærði, Magnús, var framkvæmdastjóri viðskiptabanka í samstæðu Kaupþings banka hf. og ákærði, Ólafur, einn stærsti einstaki hluthafi í bankanum í gegnum félög sín. Hin refsiverðu viðskipti ákærðu vörðuðu verulegum fjárhæðum. Eiga brotin sér ekki hliðstæðu í íslenskri réttarframkvæmd. Þá er við ákvörðun refsingar litið til þess að verulegt fjárhagslegt tjón hlaust af brotum ákærðu, sem fullframin voru á tímabilinu 18. til 23. september 2008. Eiga ákærðu sér engar málsbætur. Með hliðsjón af þessu sæti ákærði, Hreiðar Már, fangelsi í 5 ár og sex mánuði. Til frádráttar refsingu kemur gæsluvarðhaldsvist ákærða frá 7. til 17. maí 2010. Ákærði, Sigurður, sæti fangelsi í 5 ár og ákærði, Ólafur, fangelsi í 3 ár og sex mánuði. Ákærði, Magnús, sæti fangelsi í 3 ár. Til frádráttar refsingu kemur gæsluvarðhaldsvist ákærða frá 7. til 14. maí 2010.
Ekki hefur annan sakarkostnað leitt af máli þessu en kostnað við vörn ákærðu. Ákærðu greiði málsvarnarlaun skipaðra verjenda sinna, með þeim hætti er í dómsorði er mælt fyrir um. Við ákvörðun málsvarnarlauna hefur verið tekið tillit til virðisaukaskatts.
Ákveðið var að hafa aðalmeðferð í máli þessu 11. apríl 2013, eftir samráð dómara við sækjanda og verjendur og samþykki þeirra í tölvuskeytum 17. desember 2012. Boðaði dómari formlega til aðalmeðferðarinnar með tölvuskeyti 19. sama mánaðar. Skipaðir verjendur ákærðu, Hreiðars Más, Ólafs og Magnúsar, óskuðu eftir því í þinghaldi 7. mars 2013 að aðalmeðferð málsins yrði frestað og kröfðust úrskurðar dómsins þar um. Með úrskurði dómsins þann sama dag var kröfu verjendanna hafnað. Með bókun í þinghaldi 25. mars 2013 lögðu allir verjendur ákærðu fram kröfu um að aðalmeðferð málsins yrði frestað og var málið á ný tekið til úrskurðar um þá kröfu. Var kröfu um frestun aðalmeðferðar á ný hafnað með úrskurði dómsins næsta dag. Verjandi ákærða, Sigurðar, Gestur Jónsson hæstaréttarlögmaður og verjandi ákærða, Ólafs, Ragnar H. Hall hæstaréttarlögmaður, óskuðu eftir því með bréfi til dómsins 8. apríl 2013 að þeir yrðu leystir undan verjendastörfum. Hafnaði dómari því samdægurs. Tilkynntu verjendurnir sama dag að þeir myndu ekki mæta til aðalmeðferðar málsins 11. apríl. Á dómþingi þann dag mættu verjendurnir ekki og voru þeir við svo búið leystir undan verjendastörfum. Á dómþinginu voru ákærðu skipaðir nýir verjendur.
Samkvæmt a-lið 1. mgr. 223. gr. laga nr. 88/2008 má ákveða sekt á hendur verjanda fyrir að valda af ásetningi óþörfum drætti á máli. Samkvæmt d-lið sama ákvæðis má ákveða verjanda sekt fyrir að misbjóða virðingu dómsins með framferði í þinghaldi. Ákæra í máli þessu var gefin út 16. febrúar 2012. Hafði verjendum gefist ríkulegt ráðrúm til að undirbúa vörn ákærðu með fullnægjandi hætti þegar að aðalmeðferð málsins kom 11. apríl 2013, þrátt fyrir að í millitíðinni væru lögð fram frekari gögn í málinu. Ákvörðun þeirra um að segja sig frá vörn ákærðu olli óþörfum drætti á málinu og gekk þannig gegn hagsmunum ákærðu. Þá var sú háttsemi verjendanna að mæta ekki á dómþing við aðalmeðferð máls, þegar dómari hafði synjað þeim um að vera leystir undan verjendastörfum, til þess fallin að misbjóða virðingu dómsins. Er óhjákvæmilegt annað en að verjendunum verði af þessum ástæðum ákveðin sekt í ríkissjóð að fjárhæð 1.000.000 króna.
Við aðalmeðferð málsins kom fram að fjögur vitni hefðu átt fund með verjendum ákærðu, Hreiðars Más og Ólafs, fyrir aðalmeðferð málsins og þau kynnt sér gögn málsins á skrifstofu verjendanna. Samkvæmt 3. mgr. 122. gr. laga nr. 88/2008 kynnir dómari ekki fyrir vitni skýrslur þess hjá lögreglu eða önnur sýnileg sönnunargögn fyrr en dómara þykir þess þörf til skýringar eða leiðréttingar skýrslu þess. Með því að ræða við vitnin fyrir aðalmeðferð máls og sýna þeim sýnileg sönnunargögn var farið á svig við greind lagafyrirmæli, auk þess sem sú háttsemi var til þess fallin að rýra trúverðugleika vitnanna, sbr. 7. tl. 122. gr. laga nr. 88/2008. Er þetta aðfinnsluvert.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Hreiðar Már Sigurðsson, sæti fangelsi í 5 ár og sex mánuði. Til frádráttar refsingu kemur gæsluvarðhaldsvist ákærða frá 7. til 17. maí 2010.
Ákærði, Sigurður Einarsson, sæti fangelsi í 5 ár.
Ákærði, Ólafur Ólafsson, sæti fangelsi í 3 ár og sex mánuði.
Ákærði, Magnús Guðmundsson, sæti fangelsi í 3 ár. Til frádráttar refsingu kemur gæsluvarðhaldsvist ákærða frá 7. til 14. maí 2010.
Ákærði, Hreiðar Már, greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Harðar Felix Harðarsonar hæstaréttarlögmanns, 33.495.950 krónur.
Ákærði, Sigurður, greiði málsvarnarlaun skipaðra verjenda sinna, Ólafs Eiríkssonar hæstaréttarlögmanns, 3.526.550 krónur og Gests Jónssonar hæstaréttarlögmanns, 10.855.750 krónur. Að auki greiði ákærði útlagðan kostnað verjanda að fjárhæð 90.202 krónur.
Ákærði, Ólafur, greiði málsvarnarlaun skipaðra verjenda sinna, Þórólfs Jónssonar héraðsdómslögmanna, 14.708.600 krónur og Ragnars Halldórs Hall hæstaréttarlögmanns, 5.898.500 krónur.
Ákærði, Magnús, greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Karls Axelssonar hæstaréttarlögmanns, 20.255.700 krónur.
Hæstaréttarlögmennirnir Gestur Jónsson og Ragnar H. Hall greiði hvor um sig 1.000.000 króna sekt í ríkissjóð.
Símon Sigvaldason Ingimundur Einarsson Magnús Benediktsson