Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. E-4394/2012:

Egill

Einarsson

(Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hrl)

gegn

Inga

Kristjáni Sigurmarssyni

Mál

þetta, sem var dómtekið 24. september sl., er höfðað fyrir Héraðsdómi

Reykjavíkur af Agli Einarssyni, Baugakór 9 í Kópavogi á hendur Inga Kristjáni Sigurmarssyni, Fjólugötu 7 í Reykjavík með

stefnu, birtri 17. desember 2012.

Stefnandi

gerir eftirfarandi kröfur:

stefndi verði dæmdur til refsingar fyrir ærumeiðandi aðdróttanir með því að

hafa breytt ljósmynd af stefnanda þannig að hann teiknaði kross á hvolfi á enni

stefnanda, skrifaði aumingi þvert yfir andlit stefnanda og Fuck you rapist

bastard sem myndatexta og birti ljósmyndina þannig breytta, gegn betri vitund,

á Instagram, 22. nóvember 2012, en þessi háttsemi stefnda varðar við 235. gr.,

sbr. 1. og 2. mgr. 236. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 3. tl. 1.

mgr. 242. gr. sömu laga.

eftirfarandi ærumeiðandi aðdróttanir, sem stefndi viðhafði og birti um

stefnanda á Instagram, 22. nóvember 2012, verði dæmdar dauðar og ómerkar, sbr.

235. gr., sbr. 1. mgr. 241. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940: „Fuck you

rapist bastard.“

stefndi verði dæmdur til að greiða stefnanda miskabætur að fjárhæð 1.000.000

króna, með vöxtum skv. 1. málsl. 4. gr. laga nr. 38/2001, frá 22. nóvember 2012

til 18. janúar 2013, en með dráttarvöxtum frá þeim degi til greiðsludags, sbr.

(Haukur Guðmundsson hdl)

Birting. Meiðyrðamál. Meiðyrði.

Stefndi sýknaður af öllum kröfum stefnanda sem byggðu á því að myndbirting stefnda á Instagram fæli í sér ærumeiðandi aðdróttun. Umdeild mynd var ljósmynd af stefnanda sem stefndi hafði teiknað inn á og bætt við myndatexta. Niðurstaða dómsins byggði á því að tjáning stefnanda fæli í sér gildisdóm sem rúmaðist innan heimillar tjáningar hans auk þess sem birting myndarinnar á Instagram var ekki talin opinber birting. Stefnandi dæmdur til greiðslu málskostnaðar.

Mál þetta, sem var dómtekið 24. september sl., er höfðað fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur af Agli Einarssyni, Baugakór 9 í Kópavogi á hendur Inga Kristjáni Sigurmarssyni, Fjólugötu 7 í Reykjavík með stefnu, birtri 17. desember 2012.

Stefnandi gerir eftirfarandi kröfur:

Að stefndi verði dæmdur til refsingar fyrir ærumeiðandi aðdróttanir með því að hafa breytt ljósmynd af stefnanda þannig að hann teiknaði kross á hvolfi á enni stefnanda, skrifaði aumingi þvert yfir andlit stefnanda og Fuck you rapist bastard sem myndatexta og birti ljósmyndina þannig breytta, gegn betri vitund, á Instagram, 22. nóvember 2012, en þessi háttsemi stefnda varðar við 235. gr., sbr. 1. og 2. mgr. 236. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 3. tl. 1. mgr. 242. gr. sömu laga.

Að eftirfarandi ærumeiðandi aðdróttanir, sem stefndi viðhafði og birti um stefnanda á Instagram, 22. nóvember 2012, verði dæmdar dauðar og ómerkar, sbr. 235. gr., sbr. 1. mgr. 241. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940: „Fuck you rapist bastard.“

Að stefndi verði dæmdur til að greiða stefnanda miskabætur að fjárhæð 1.000.000 króna, með vöxtum skv. 1. málsl. 4. gr. laga nr. 38/2001, frá 22. nóvember 2012 til 18. janúar 2013, en með dráttarvöxtum frá þeim degi til greiðsludags, sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga.

Að stefndi verði dæmdur til þess að greiða stefnanda 150.000 krónur til þess að kosta birtingu forsendna og niðurstöðu dóms í málinu í einu dagblaði, sbr. 2. mgr. 241. gr. laga nr. 19/1940.

Loks gerir stefnandi kröfu um að stefndi verði dæmdur til að greiða stefnanda málskostnað ásamt 25,5% virðisaukaskatti ofan á dæmdan málskostnað, en stefnandi er ekki virðisaukaskattskyldur.

Af hálfu stefnda er krafist sýknu af öllum kröfum stefnanda í málinu. Til vara krefst stefndi þess að eingöngu verði fallist á kröfu stefnanda um ómerkingu ummæla, en öðrum kröfum hans hafnað. Til þrautavara krefst stefndi verulegrar lækkunar krafna stefnanda. Í öllum tilfellum er þess krafist að stefnandi verði dæmdur til að greiða stefnda málskostnað að mati réttarins og að við ákvörðun um fjárhæð málskostnaðar verði tekið tillit til virðisaukaskatts á málskostnað.

Málsatvik

Fimmtudaginn 22. nóvember 2012 birtist viðtal við stefnanda í Monitor, fylgiriti Morgunblaðsins. Í viðtalinu ræddi stefnandi opinskátt um sakamál þar sem hann var með réttarstöðu sakbornings vegna meintra kynferðisbrota. Sakamálin voru felld niður með bréfum ríkissaksóknara, dags. 15. júní og 15. nóvember 2012. Í báðum tilvikum byggði ríkissaksóknari niðurstöðu sína um niðurfellingu á því að það sem fram hefði komið við rannsókn málanna væri ekki nægilegt eða líklegt til sakfellis, sbr. 145. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.

Töluvert hörð viðbrögð urðu við þessu viðtali í samfélaginu. Sama dag og það birtist var stofnuð Facebook-síða með yfirskriftinni „Gillz af forsíðunni – krefjum Monitor um afsökunarbeiðni“ ásamt því sem birt var mynd af stefnanda. Á síðunni var birtingu viðtalsins við stefnanda mótmælt og skorað á ritstjóra Monitors að biðjast afsökunar á birtingu þess. Í kjölfarið spunnust umræður á vefsíðunni um birtingu viðtalsins. Af sama tilefni og sama dag ákvað stefndi að setja myndina sem deilt er um á samfélagsmiðilinn Instagram. Myndin er forsíðumyndin af stefnanda á Monitor sem stefndi hafði breytt með þeim hætti að teiknað var á hana kross á enni stefnanda, „aumingi“ handskrifað yfir andlit hans og eftirfarandi texti settur undir myndina „Fuck you rapist bastard“. Þann 23. nóvember birtist frétt á Visir.is um myndbirtingu stefnda og var rætt við stefnanda af því tilefni. Myndin var birt með fréttinni.

Lögmaður stefnanda sendi stefnda bréf sem dagsett er 26. nóvember sl., þar sem hann gerir, fyrir hönd skjólstæðings síns, kröfu um afsökunarbeiðni og miskabætur. Í bréfinu er myndinni lýst ásamt því að stefndi er upplýstur um að stefnandi telji athæfi hans fela í sér ærumeiðandi aðdróttanir sem varði við 235. gr. almennra hegningarlaga. Er þess krafist að stefndi dragi ummæli sín til baka, viðurkenni að þau hafi verið tilhæfulaus og biðji stefnanda afsökunar með yfirlýsingu til fjölmiðla. Jafnframt er krafist greiðslu 500.000 kr. miskabóta sem sagt er að muni verða látin renna til góðgerðarmála. Með bréfinu er stefnda veittur frestur til kl. 14.00 sama dag og bréfið er dagsett til að verða við kröfum stefnanda. Að öðrum kosti verði hafist handa við málssókn gegn honum.

Sigurmar Kristján Albertsson hrl. svarar bréfinu fyrir hönd stefnda með tölvupósti sem sendur var kl. 13.39 sama dag. Segir þar að stefndi hafi ekki dreift umræddri mynd á netinu. Myndin hafi farið til lokaðs vinahóps á Instagram og einhver annar en stefndi hafi komið henni í víðtækari dreifingu á netinu. Jafnframt kemur fram að stefnda þyki þetta miður og það hafi hvorki gerst með hans vilja né vitund. Loks er óskað eftir því að litið verði á bréfið sem afsökunarbeiðni af hálfu stefnda.

Stefnandi kveðst engin viðbrögð hafa fengið við bréfi lögmanns síns og sá sig af þeim sökum knúinn til málaferla þessara.

Við aðalmeðferð málsins gáfu aðilar þess skýrslu.

Málsástæður og lagarök stefnanda Um málsaðild og málsgrundvöll kveður stefnandi að stefndi hafi viðhaft umdeild ummæli á Instagram en sá miðill sé ekki fjölmiðill í skilningi laga nr. 38/2011, sbr. 13. tölul. 1. mgr. 2. gr. þeirra laga. Um sakarefnið gildi því almennar reglur refsi- og skaðabótaréttarins, þ.e. ákvæði XXV. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og almennar skaðabótareglur, s.s. sakarreglan og 26. gr. laga nr. 50/1993.

Stefnandi höfðar einkarefsimál þetta á hendur stefnda á grundvelli lagheimildar í 3. tölul. 1. mgr. 242. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ummæli stefnda séu viðhöfð undir nafninu Ingi Kristján, og auðkennd með mynd af viðkomandi, en samhliða komi fullt nafn stefnda fram. Það verður því að teljast óumdeilt að stefndi sé höfundur hinnar breyttu myndar og myndatextans og beri því ábyrgð á hinum ærumeiðandi aðdróttunum að lögum. Málssókn þessari sé því réttilega beint að stefnda.

Hvað varðar málsaðild sóknarmegin þá séu ummælin myndatexti við breytta mynd af stefnanda og því sé hafið yfir vafa að þeim er beint að stefnanda. Myndin sem stefndi breytti sé forsíðumynd Monitors frá 22. nóvember 2012, en í blaðinu hafi verið viðtal við stefnanda. Virðist ummælin og hin breytta mynd vera innlegg stefnda í umræðu um það hvort rétt væri að stefnandi prýddi forsíðu Monitors. Stefnandi er því réttur aðili að málssókn þessari sóknarmegin.

Refsikrafa stefnandi byggi á því að stefndi hafi vegið með alvarlegum hætti að æru stefnanda með hinni breyttu ljósmynd og myndatextanum „Fuck you rapist bastard“ á Instagram. Við mat á alvarleika aðdróttana stefnda beri að horfa á ljósmyndina og myndatextann í samhengi, en myndatextinn og hin breytta ljósmynd stefnda innihaldi hvor um sig sjálfstæðar refsiverðar ærumeiðandi aðdróttanir. Þegar ljósmyndin og myndatextinn séu metin heildstætt sé ljóst að í þeim felast aðdróttanir þess efnis að stefnandi sé sjálfur antikristur og aumingi sem nauðgar konum.

Myndatextann „Fuck you rapist bastard“, megi þýða sem „farðu til fjandans nauðgara svín/óþokki‟, eða eitthvað á þá lund. Með ummælum þessum fullyrði stefndi að stefnandi sé nauðgari sem feli í sér alvarlega ásökun þess efnis að stefnandi hafi gerst sekur um refsiverða háttsemi og brotið gegn 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en allt að 16 ára fangelsi liggi við brotinu.

Stefndi geri engan fyrirvara við aðdróttanir sínar þrátt fyrir vitneskju um niðurfellingu áðurgreindra sakamála. Aðalatriðið hjá stefnda sé því að úthrópa stefnanda opinberlega sem aumingja og nauðgara. Sannleikurinn sé aukaatriði. Stefnandi sé einfaldlega aumingi, djöfull í mannsmynd sem nauðgi konum. Hér birtist dómstóll götunnar í sinni verstu mynd. Stefndi telji sig þess umkominn að sakfella stefnanda fyrir nauðgun og kalla stefnanda aumingja og antikrist. Aftakan fer fram á Instagram án dóms og laga.

Það sé óumdeild opinber birting að birta ærumeiðandi aðdróttanir á Instagram. Jafnframt sé hafið yfir skynsamlegan vafa að stefndi hafi vitað að ríkissaksóknari hafi verið búinn að fella niður áðurnefnd sakamál á hendur stefnanda. Stefndi hafi hins vegar látið sér það í léttu rúmi liggja og viðhafði aðdróttanirnar engu að síður. Brotið hafi þannig verið framið af ásetningi og með einbeittum brotavilja. Það beri að virða stefnda til refsiþyngingar.

Með vísan til framangreinds sé þess krafist að stefndi verði dæmdur til refsingar fyrir ærumeiðandi aðdróttanir í garð stefnanda með því að hafa breytt ljósmynd af stefnanda með því að teikna kross á hvolfi á enni hans, skrifa aumingi þvert yfir andlit stefnanda og Fuck you rapist bastard sem myndatexta og birta ljósmyndina þannig breytta gegn betri vitund á Instagram, 22. nóvember 2012, en háttsemi stefnda varði við 235. gr., sbr. 1. og 2. mgr. 236. gr., almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 3. tölul. 1. mgr. 242. gr. sömu laga.

Um rökstuðning fyrir ómerkingarkröfu vísar stefnandi til þess sem segir að framan um refsikröfuna. Því til viðbótar byggir hann á því að ummælin „Fuck you rapist bastard“ feli í sér refsiverðar ærumeiðandi aðdróttanir í garð stefnanda og brjóti gegn 235. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Því beri að ómerkja ummælin með vísan til 1. mgr. 241. gr. sömu laga.

Með ummælunum fullyrði stefndi að stefnandi sé nauðgari, en nauðgun sé glæpur sem við liggi margra ára fangelsisrefsing, auk þess að vera svívirðilegt brot í huga alls almennings. Hin umstefndu ummæli séu ósönn, óviðurkvæmileg, tilhæfulaus og smekklaus og til þess fallin að sverta stefnanda enda sé stefnanda með ummælunum gefin að sök refsiverð háttsemi sem ekki eigi við rök að styðjast. Hagsmunir stefnanda af því að fá ummælin dæmd dauð og ómerk séu því miklir.

Stefnandi byggi miskabótakröfuna á að stefndi hafi vegið með alvarlegum hætti að æru hans og með því framið ólögmæta meingerð gagnvart stefnanda sem hann beri skaðabótaábyrgð á. Einnig sé ljóst að virðing stefnanda hafi beðið hnekki, sem og æra hans og persóna. Réttur stefnanda til æruverndar njóti verndar 71. gr. stjórnarskrár, 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og XXV. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Um sé að ræða ærumeiðandi aðdróttanir sem séu rangar, birtar og bornar út opinberlega og gegn betri vitund stefnda. Fjárhæð miskabótakröfu stefnanda taki mið af alvarleika aðdróttana stefnda sem og því að aðdróttanirnar séu bornar út gegn betri vitund. Stefndi meiddi æru stefnanda af ásetningi. Miskabótakrafa stefnanda sé því hófleg. Miskabótakrafan byggi á 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Um sé að ræða skýr og ótvíræð brot á réttarreglum, sem ætlað er að vernda æru stefnanda, svo sem 235. gr., sbr. 1. og 2. mgr. 236. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Öll skilyrði séu uppfyllt til þess að dæma stefnanda háar miskabætur úr hendi stefnda.

Þá gerir stefnandi kröfu um að stefndi verði dæmdur til þess að greiða stefnanda 150.000 krónur til þess að kosta birtingu forsendna og niðurstöðu dóms í málinu í einu dagblaði, sbr. 2. mgr. 241. gr. laga nr. 19/1940. Fyrir liggi að aðdróttanir stefndu í garð stefnanda séu alvarlegar og nauðsynlegt sé fyrir stefnanda að rétta hlut sinn með því að tryggja víðtæka birtingu dóms í málinu með auglýsingu í fjölmiðli. Öll lagaskilyrði til þess að dæma stefnanda birtingarkostnað séu fyrir hendi.

Hvað varðar tjáningarfrelsi stefnda vísar stefnandi til 2. og 3. mgr. 73. gr. stjórnarskrárinnar, en það falli utan marka stjórnarskrárvarins tjáningarfrelsis að brjóta gegn réttindum eða mannorði annarra manna. Stefnanda sé ljóst að hann sé þekktur einstaklingur og einkum þá vegna persónunnar Gillz. Stefnanda sé einnig ljóst að vegna þessa þurfi hann að þola meiri og hvassari umfjöllun en aðrir. Hann eigi hins vegar stjórnarskrárvarinn rétt til æruverndar. Mörkin sem liggi milli tjáningarfrelsis þeirra sem tjá sig opinberlega um stefnanda og æruverndar hans séu skýr. Ljóst sé að þær refsiverðu aðdróttanir sem hér sé stefnt vegna gangi langt út fyrir nokkuð sem stefnanda verði gert að þola vegna tjáningarfrelsis annarra. Stefnandi fjallar að auki í stefnu um opinberan málflutning stefnanda í hlutverki Gillz. Sú persóna sé ólíkindatól og eigi það til að misbjóða fólki og valda hneykslan og farið út fyrir velsæmismörk. Það hafi gerst í nóvember 2007 þegar stefnandi, undir merkjum svonefndrar „fréttastofu Gillz“, birti umfjöllun á netinu undir yfirskriftinni „Þorir meðan aðrir þegja“. Með ummælum sem stefnandi setti fram umrætt sinn hafi hann í hlutverki Gillz farið yfir strikið varðandi ummæli um nafngreinda aðila. Honum hafi strax orðið ljós mistök sín, beðist afsökunar á ummælunum og birtingu þeirra og fjarlægt þau af netinu. Þessi ummæli hafi hins vegar oft og iðulega verið rifjuð upp og haldið á lofti, þrátt fyrir þá afsökunarbeiðni og yfirbót stefnanda, og þess látið ógetið að stefnandi hafi ítrekað beðist afsökunar á ummælunum, dregið þau tilbaka og fjarlægt þau af netinu. Nú síðast hafi hann ítrekað afsökunarbeiðni og eftirsjá sína í umræddu viðtali í Monitor, 22. nóvember 2012.

Af öllu framansögðu sé ljóst að réttur stefnanda til æruverndar gangi framar tjáningarfrelsi stefnda eins og hér háttar til og því beri að taka dómkröfur stefnanda til greina og ómerkja ummælin og dæma stefndu til refsingar og greiðslu miskabóta.

Krafa um vexti og dráttarvexti á dómkröfur er byggð á IV. kafla laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. Krafan um vexti byggist á 1. málsl. 4. gr. laganna, sbr. 8. gr. sömu laga, þar sem segi að skaðabótakröfur beri vexti frá þeim degi sem hið bótaskylda atvik átti sér stað, í því tilviki sem hér um ræðir frá birtingu ummæla stefnda og hinnar afbökuðu myndar á Instagram, 22. nóvember 2012. Krafan um dráttarvexti sé reist á 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001, sbr. 9. gr. sömu laga, þar sem segi að skaðabótakröfur beri dráttarvexti þegar liðinn er mánuður frá þeim degi sem kröfuhafi lagði fram upplýsingar til að meta tjón og fjárhæð bóta. Í því tilviki sem hér um ræðir sé miðað við þingfestingardag stefnu, 18. desember 2012.

Loks sé krafist greiðslu málskostnaðar og sé sú krafa byggð á 130. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Þess sé krafist að dæmdur málskostnaður beri 25,5% virðisaukaskatt.

Um lagarök vísar stefnandi til 235. gr., 1. og 2. mgr. 236. gr., 1. og 2. mgr. 241. gr. og 242. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Einnig vísar hann til 71. gr. stjórnarskrár og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þá vísar stefnandi til 1. mgr. b-liðar 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 og almennra skaðabótareglna, s.s. sakarreglunnar. Krafa stefnanda um vexti og dráttarvexti á miskabótakröfu er byggð á lögum nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. Þá er krafa um málskostnað byggð á 130. gr. laga nr. 91/1991. Einnig er vísað til laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, s.s. hvað varðar varnarþing, málsaðild og málskostnað.

Málsástæður og lagrök stefnda

Stefndi byggir sýknukröfu sína í fyrsta lagi á því að umdeild mynd sé alls ekki af stefnanda sjálfum persónulega. Hún sé af skáldaðri persónu, Gillzenegger, sem stefnandi hafi skapað. Í kynningu sem fylgdi umræddu viðtali komi skýrlega fram að viðtalið sé við þessa skálduðu persónu, þótt raunar sé texti viðtalsins að nokkru leyti á skjön við þessa framsetningu. Stefnandi geti sett fram ögrandi skoðanir í nafni þessa aukasjálfs, þótt ekki firri það hann ábyrgð á slíkum ummælum. Ummæli sem sett eru fram um skáldaðar persónur á borð við Gillzenegger varði hins vegar ekki við lagaákvæði um ærumeiðingar. Hljóti stefnandi að bera hallann af því sem óljóst kunni að vera í þessum efnum í ljósi þess hvernig málflutningur hans í gervi persónunnar Gillzenegger hafi verið og hvernig hann hafi sjálfur kosið að hafa óljós mörk á milli sín og þessa aukasjálfs.

Þá byggi stefndi sýknukröfur sínar á því að stefnandi hafi sjálfur ákveðið að taka þátt í opinberri umræðu með alveg sérstaklega óvægnum hætti. Sé þar um að ræða feril sem einkennist af svo glórulausum ærumeiðingum, móðgunum og smekkleysu að það sé beinlínis ósvífið af stefnanda að ætla sjálfum sér annars konar viðbrögð en þau sem hér sé stefnt fyrir. Niðrandi umfjöllun stefnanda um þá einstaklinga og hópa sem honum þykja liggja vel við höggi sé annars vegar sett fram í því skyni að upphefja stefnanda og auglýsa hann, en hins vegar í hreinu fjáröflunarskyni, svo sem í útgefnum sjónvarpsþáttum stefnanda. Sé útilokað að beita miskabótaákvæðum og refsiákvæðum með þeim hætti að stefnandi hagnist enn frekar á framgöngu sinni og þeim viðbrögðum sem hann hefur viljandi vakið upp með henni. Vísað sé til sjónarmiða um málfrelsi, sbr. 73. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og nauðsyn þess að takmarkanir á því séu túlkaðar þröngt.

Stefndi byggi á því að það hafi ekki verið fyrir ásetning hans sem umrædd mynd komst í dreifingu og varð aðgengileg almenningi og stefnanda. Vistun á lokuðu vefsvæði, þar sem takmarkaður fjöldi einstaklinga hafi aðgang, feli ekki í sér opinbera birtingu fremur en ummæli sem látin eru falla í lokuðum hópi fólks. Jafnvel þótt talið yrði að stefndi beri ábyrgð á birtingu myndanna byggi hann á því að það hafi mjög veruleg áhrif á mat á sök, jafnt í refsiþætti málsins sem og bótaþætti, að það hafi verið óviljaverk að myndirnar birtust opinberlega.

Stefndi byggir á því að stefnandi beri fulla ábyrgð á eigin orðum, hvort sem hann setji þau fram undir eigin nafni eða öðrum, s.s. Gillzenegger, Gillz eða Þykki. Verði ekki fallist á aðalkröfu stefnda, er sérstaklega byggt á því, að stefnandi geti ekki skákað í því skjóli að bera fyrir sig skáldaðar persónur af þessu tagi umfram stefnda.

Stefndi telur ekki tilefni til að gera honum refsingu í málinu þegar öll málsatvik séu metin af sanngirni. Þótt sakamál á hendur stefnanda hafi verið fellt niður vegna þess að það þótti ekki líklegt til sakfellis, feli það ekki í sér „betri vitund“ hans um að meintur brotaþoli í því máli hafi orðið ber að ósannindum, sbr. 1. mgr. 236. gr. alm hgl. Þetta sé vafalaust nú þegar kærumál stefnanda gegn umræddum brotaþola hafi einmitt verið fellt niður þar sem ekkert slíkt hafi þótt sannað. Framburður umrædds brotaþola á opinberum vettvangi sé sennilegur í skilningi 2. mgr. 236. gr. alm. hgl. þótt hann sé ef til vill ekki nægilegur til sakfellis í refsimáli. Stefndi hafði því haft sennilega ástæðu til að trúa stúlkunni.

Þá byggi stefndi á því að stefnandi hafi ekki orðið fyrir neinum miska af birtingu myndarinnar og æra hans, virðing og persóna sé söm og áður. Eins og fram komi í stefnu og málsatvikalýsingu hér að ofan hafi ummælin ekki verið sett fram í tómarúmi. Er í stefnu beinlínis byggt á því að menn hafi þekkt til málsatvika, þ. á m. um niðurfellingu umræddra sakamála. Mikil umfjöllun hefur verið um stefnanda árum saman, ekki síst á hans eigin vegum og persóna hans verið sérlega umdeild. Sömuleiðis var mikið fjallað um þau sakamál sem áður eru rakin og ljóst að án nokkurs atbeina stefnda töldu sumir að stefnanda væri sæmst að hugsa sinn gang vegna þeirra atvika sem urðu tilefni þeirra. Aðrir töldu hins vegar að um uppspuna eða jafnvel samsæri gegn stefnanda væri að ræða. Upphrópanir einstakra manna um afstöðu sína að þessu leyti hafa við þessar aðstæður tæpast haft nein raunveruleg áhrif á æru stefnanda til eða frá. Það væri mjög ósanngjarnt að verðlauna stefnanda, sem hefur hagnast verulega á þeim ferli sem að ofan er lýst, með fjárbótum úr hendi snauðs háskólanema vegna viðbragða sem ekki voru ætluð til birtingar. Sé hér um að ræða mjög óvenjulegar aðstæður í skilningi 24. gr. skaðabótalaga.

Stefndi telur dómsmál þetta með öllu óþarft. Ennþá þarflausara hljóti þó að vera að efna til einhverra sérstakra útgjalda til að rifja umrædd ummæli upp eða halda umræddri mynd á lofti. Ummælin hafi verið sett fram á lokuðu svæði en verið afrituð þaðan og dreift á netið. Vefmiðlar hafi svo greint frá þeim eins og fram komi í stefnu. Sé engin ástæða sé til að efast um að þessir sömu vefmiðlar verði jafn fúsir að greina frá niðurstöðum þessa dómsmáls, aðilum að kostnaðarlausu.

Stefndi mótmælir kröfu stefnanda um greiðslu málskostnaðar og vísar til atvika og samhengis málsins sem að framan er lýst og þess að stefndi hafi þegar beðið stefnanda afsökunar. Málaferlin séu því bersýnilega þarflaust. Þá beri mörg málaferli með miskabóta- og málskostnaðarkröfum með sér að stefnandi freisti þess að auðgast enn frekar á þeim deilum um eigin persónu sem hann hafi stofnað til með yfirlýsingum sínum og framgöngu. Sé að öllu samanlögðu rétt að leggja þann kostnað á stefnanda sem af þessu hljótist.

Um lagarök vísar stefndi til 73. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og 10. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Einnig vísar stefndi til XXV. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940, 24. og 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Krafa um málskostnað er byggð á 21. kafla laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, sérstaklega 130. og 131. gr.

Niðurstaða

Í máli þessu gerir stefnandi kröfu um refsingu, ómerkingu ummæla, greiðslu skaðabóta og opinbera birtingu dómsniðurstöðu á kostnað stefnda ásamt greiðslu málskostnaðar. Telur hann myndbirtinguna og textagerðina fela í sér tvö sjálfstæð refsiverð brot og séu þau virt í heild feli þau áreiðanlega í sér refsiverða ærumeiðandi aðdróttun í garð stefnanda.

Atvik máls eru að mestu óumdeild. Fyrir liggur að stefndi birti þá mynd sem um er deilt á Instagram í þeim búningi sem lýst er í kröfugerð stefnanda og atvikalýsingu.

Sýknukrafa stefnda er í fyrsta lagi reist á því að myndin sé ekki af stefnanda, Agli Einarssyni, heldur af Gillzenegger sem sé skálduð persóna sem stefnandi hafi skapað. Ummæli sem sett séu fram um skáldaðar persónur varði ekki við ákvæði hegningarlaga um ærumeiðingar. Á þetta fellst dómurinn ekki. Stefnandi er þjóðþekktur maður sem alkunna er að kalli sig Gillz eða Gillzenegger og ýmsum öðrum nöfnum á opinberum vettvangi. Stefnandi hefur árum saman birt greinar, bloggað og gefið út bækur undir þessu nafni og komið fram í kvikmyndum, sjónvarpi, og víðar. Þá fer ekki á milli mála að umrætt viðtal í Monitor, sem myndin fylgdi með, er mynd af stefnanda, sem nefndur er skírnarnafni sínu og einnig Gillz. Stefnandi nýtur því þeirrar persónuverndar sem lög standa til, hvort sem hann er kallaður Egill, Gillz, eða einhverju öðru nafni sem hann sjálfur gengst við. Að sama skapi verður stefnandi að axla ábyrgð á því efni sem hann lætur frá sér fara óháð því hvaða nafni hann kýs að kalla sjálfan sig.

Þá heldur stefndi því fram að birting myndarinnar á Instagram hafi ekki falið í sér opinbera birtingu þar eð hún hafi verið vistuð á lokuðu vefsvæði þar sem aðeins takmarkaður fjöldi einstaklinga hafi aðgang. Af gögnum málsins má ráða að stefndi hafði rúmlega 100 fylgjendur á Instagram þegar myndin var birt. Ekki liggur fyrir hver dreifði henni út fyrir þann hóp en stefndi neitar því að hafa haft nokkra vitneskju eða vilja til að myndin færi annað en til þeirra sem fylgjast með honum á Instagram. Fyrir liggur að hún fór víðar og birtist meðal annars með frétt á Visir.is þar sem rætt var við stefnanda. Stefnandi bar fyrir dómi að hann myndi ekki hvort hann sjálfur hefði sent blaðamanni myndina. Leggja verður til grundvallar í málinu að það sé ósannað að stefndi hafi átt þátt í annarri birtingu en á Instagram. Fyrir dóminum liggja engin gögn um það hvernig háttað er aðgangi að því efni sem þar er birt. Verður því að ganga út frá frásögn stefnda, um að einungis þeir sem hann hafi fallist á að væru fylgjendur hans á síðunni hafi haft aðgang að myndinni. Instagram sé þannig vettvangur til að deila myndum á milli lokaðs hóps fólks. Því er ekki fallist á að birting myndarinnar á þeim vettvangi sé opinber birting. Á hinn bóginn ber að hafa í huga að aðdróttun kann að vera brot á 235. gr. almennra hegningarlaga þótt hún sé ekki borin út opinberlega, sbr. hins vegar ákvæði 2. mgr. 236. gr. Dómurinn fellst á það með stefnanda að líta verði á myndina, í því formi sem stefndi breytti henni, ásamt textanum, sem hann skrifaði undir hana, sem eina heild. Í henni felst tjáning stefnda um persónu stefnanda sem felur í sér sterka andúð á honum, hann er kallaður aumingi og send skilaboðin „Fuck you rapist bastard“. Stefnandi telur þetta vera brot á 235. sbr. 1. og 2. mgr. 236. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Í 235. gr. segir að það varði sektum eða fangelsi allt að einu ári ef maður dróttar að öðrum manni einhverju því, sem verða myndi virðingu hans til hnekkis, eða ber slíka aðdróttun út. Sé hin ærumeiðandi aðdróttun höfð í frammi eða borin út gegn betri vitund varðar það enn þyngri refsingu, sbr. 1. mgr. 236. gr. og sé aðdróttunin birt eða borin út opinberlega, enda þótt sakaráberi hafi ekki haft sennilega ástæðu til að halda hana rétta, þá varði það sektum eða fangelsi allt að 2 árum. Svo sem áður hefur komið fram fellst dómurinn ekki á að um opinbera birtingu sé að ræða.

Stefndi nýtur tjáningarfrelsis á grundvelli 1. málsl. 2. mgr. 73. gr. stjórnarskrárinnar nr. 33/1944 og 10. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Í 3. mgr. 73. gr. kemur fram að tjáningarfrelsi megi aðeins setja skorður með lögum í þágu allsherjarreglu eða öryggis ríkisins, til verndar heilsu eða siðgæði manna eða vegna réttinda eða mannorðs annarra, enda teljist þær nauðsynlegar og samrýmist lýðræðishefðum. Í því felst að refsing eða bætur verða því aðeins dæmdar ef slík úrræði teljast nauðsynleg og samrýmanleg lýðræðishefðum. Við mat á því hvort þessi skilyrði séu fyrir hendi kemur m.a. til skoðunar í hvaða samhengi tjáning stefnanda var sett fram, hvort líta megi á hana sem lið í almennri þjóðfélagsumræðu og hvort í henni felist staðhæfing um staðreynd eða hvort líta megi á hana sem gildisdóm, en stefndi hélt hinu síðastnefnda fram við aðalmeðferð málsins. Auk þessa verður að meta alvarleika ummæla stefnda, bæði út frá efni myndarinnar og textans og útbreiðslu hennar í þeirri mynd sem stefndi útbjó hana.

Um það hvort tjáning stefnda sé hluti af almennri þjóðfélagsumræðu er fyrst til þess að líta að stefnandi er þjóðþekkt persóna og verður sem slíkur almennt að þola það að um hann sé fjallað opinberlega. Stefnandi er þekktastur vegna framgöngu sinnar á opinberum vettvangi undir nafninu Gillz eða Gillzenegger, sem hann kveður vera listamannsnafn sitt. Undir því heiti hefur hann haldið úti skrifum á netinu, gefið út bækur og myndir og komið fram í sjónvarpi og víðar. Efnið sem hann gefur út er afþreyingarefni sem hefur náð mikilli útbreiðslu hér á landi og ljóst að hann naut, a.m.k til skamms tíma, velgengni og vinsælda. Á sama tíma misbauð framganga hans mörgum og vakti sterk reiðiviðbrögð. Stefndi hefur lagt fyrir dóminn nokkurt magn efnis sem stefnandi hefur gefið út auk gagnrýni á efnið sem birst hefur opinberlega. Umfjöllunarefni stefnanda hefur í miklum mæli snúist um karlmennsku, kynferði og samskipti kynjanna. Gagnrýni á verk hans hefur m.a. beinst að því að orðræða hans sé uppfull af óbeinu ofbeldi þar sem niðurlægjandi mynd er ítrekað dregin upp af konum og ýmsum öðrum hópum fólks, s.s. blökkumönnum, hommum og þeim karlmönnum sem stefnandi telur ekki vera „alvöru menn“. Stefnandi hefur tekið virkan þátt í umræðum og deilum um eigin skrif og verið ófeiminn við að gagnrýna þá sem hafa lýst vanþóknun sinni á honum. Hefur hann skákað í því skjólinu að umfjöllun hans sé grín og gagnrýni á hann komi frá fólki sem skorti kímnigáfu. Má því segja að stór hluti af opinberri ímynd stefnanda og atvinnustarfsemi hans hafi tengst umdeildri afstöðu hans til samskipta kynjanna og kynfrelsis kvenna og er þá ótalin umdeilanleg ummæli hans um aðra hópa fólks. Stefnandi sjálfur hefur viðurkennt að hafa farið yfir strikið í einni grein sem hann birti árið 2007. Fyrirsögn greinarinnar var „Þorir meðan aðrir þegja“. Þar lýsir stefnandi því að hann telji þörf á að þagga niður í nafngreindum gagnrýnendum sínum með því að tilgreindur maður hafi við þær kynmök, sem er síðan nánar lýst í greininni hvernig eigi að framkvæma. Stefnandi lætur að því liggja í stefnu að umrædd grein sé einangrað tilvik, sem hann hafi margfaldlega beðist afsökunar á. Að mati dómsins eru framangreind skrif stefnanda fjarri því að vera einangrað fyrirbæri þótt þau gangi lengra en flest annað, ekki síst vegna þess að þar er fjallað um nafngreinda einstaklinga. Af öðru efni frá stefnanda, sem stefndi hefur lagt fram í málinu, er ljóst að stefnandi hefur bæði fyrir og eftir birtingu umræddrar greinar birt efni sem líklegt er að hafi átt þátt í þeirri gagnrýni sem stefnandi hefur sætt vegna viðhorfa sem birtast í því sem hann setur fram opinberlega, ekki síst þegar kemur að kynfrelsi kvenna.

Telja verður að það orðspor sem stefnandi sjálfur hefur skapað sér með framgöngu sinni og nýtt í atvinnuskyni hafi átt stærstan þátt í því að nauðgunarkærur á hendur honum vöktu miklu meiri athygli en almennt er um kærur af þessu tagi. Umræðan sem fram fór í kjölfar þeirra og atburðarásin sem af þeim spratt verður að horfa á í því samhengi að þar er ekki einvörðungu um að ræða málefni sem varðar persónu stefnanda heldur hugmyndafræðileg átök um það hvaða staðalímyndum sé hampað í samfélaginu og hvernig orðræðu sé hægt að umbera og hverja beri að fordæma. Stefnandi sjálfur tók virkan þátt í þeirri umræðu, m.a. með umræddu viðtali í Monitor og opinberum yfirlýsingum í kjölfar þess að rannsókn var hætt. Auk þess að lýsa í viðtalinu því persónulega áfalli sem lögreglurannsóknin var honum lætur hann að því liggja að annar eða báðir kærendur hafi verið undir þrýstingi frá áhrifafólki um að leggja fram kæru og þær hafi mögulega verið hluti af pólitískum hráskinnaleik. Kvað hann gögn málsins hrópa á meinsæri og upplýsti að hann hefði lagt fram kæru þessa efnis. Með þessu viðtali má því segja að stefnandi sjálfur hafi efnt til opinberrar umræðu um sakargiftir á hendur sér og skotið fast til baka, bæði gangvart kærendum og almennt að þeim ótilgreinda hópi manna sem hann telur standa að herferð gegn sér.

Með hliðsjón af því sem að framan er rakið er það mat dómsins að umræðan um málefni stefnanda, þ. á m. um afdrif kæru á hendur honum, sé innlegg í almenna þjóðfélagsumræðu og tjáningarfrelsi stefnda sé af þeim sökum rýmra í þessu tilviki en ella.

Stefnandi heldur því fram að í myndatextanum sem stefndi skrifaði undir myndina af honum „fuck you rapist bastard“ felist ærumeiðandi aðdróttanir í garð stefnanda þar sem í þeim felist fullyrðing um að stefnandi sé nauðgari. Ummælin séu ósönn, óviðurkvæmileg, tilhæfulaus og smekklaus og til þess fallin að sverta stefnanda. Stefnandi telur það auka á alvarleika brots stefnanda að enginn fyrirvari sé settur við framangreinda aðdróttun þótt stefnda hafi verið fullkunnugt um að rannsókn mála á hendur stefnanda vegna kæru um nauðgun hafði verið felld niður með vísan til 145. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

Framsetning þessara orða stefnda bera að mati dómsins með sér að vera fúkyrði fremur en staðhæfing um staðreynd. Um orðalag af þessu tagi gildir að líta verður á það sem gildisdóm fremur en staðhæfingu um staðreynd. Gildisdómar lýsa huglægri afstöðu þess sem setur fullyrðingu fram og verða hvorki sannaðir né afsannaðir. Telja verður að tjáning sem felur í sér gildisdóm njóti víðtækari verndar heldur en önnur tjáning auk þess sem ráða má af dómaframkvæmd að skilgreina megi gildisdóma rúmt þannig að í vafatilvikum verði ummæli fremur flokkuð sem gildisdómur en staðhæfing um staðreynd. Líta verður svo á að hvorki einstök orð né hvatningin í heild, „fuck you rapist bastard“ beri að skilja bókstaflega. Það að textinn er settur fram á ensku gerir hann einnig líkari skömmum eða formælingum en staðhæfingu um staðreynd. Textinn er augljóslega settur fram til að lýsa vanþóknun á stefnanda eins og aðrar breytingar á myndinni. Svo sem áður er rakið verður jafnframt að skoða myndina í hinum breytta búningi, í ljósi þeirra opinberu deilna sem stefnandi sjálfur tók fullan þátt í. Þær deilur sneru bæði að þeim lögreglurannsóknum sem stefnandi sætti og almennt að framlagi hans til afþreyingariðnaðarins. Verður, með hliðsjón af þessum aðdraganda og tilefni tjáningar stefnda, ekki talið að í henni felist staðhæfing um að stefnandi hafi gerst sekur um nauðgun, heldur fúkyrði sem ekki beri að taka bókstaflega fremur en annan texta eða tákn á myndinni. Ummælin fela að mati dómsins í sér gildismat stefnda á stefnanda. Þau eru ósæmileg og ósmekkleg en verða, líkt og aðrir gildisdómar, hvorki sönnuð né ósönnuð. Ummælin, sem látin voru falla í lokuðum hópi og ósannað er að stefndi hafi dreift opinberlega, dæma sig því sjálf. Almennt hefur mönnum verið játað víðtækari réttur til að láta í ljósi gildisdóma sína en staðhæfingar um staðreyndir, einkum ef telja verður að sá sem telur sér misboðið hefur átt nokkurn þátt í því að ýta undir eða hvetja til umræðunnar. Að mati dómsins eiga slík sjónarmið við í þessu máli. Þá verður að virða það við stefnda að hann bað stefnanda afsökunar á umræddri myndbirtingu. Ekki er fallist á það með stefnanda að afsökunin sé ómarktæk af því að hún barst í gegnum lögmann stefnda. Stefnandi sjálfur krafði stefnda um afsökun með atbeina lögmanns sem í sama bréfi gerði kröfu um greiðslu miskabóta og tilkynnti um mögulega málssókn. Eðlileg viðbrögð við kröfu, sem þannig er komið á framfæri, er að fela lögmanni að svara henni. Loks hefur það áhrif á framangreinda niðurstöðu að myndin var ekki gerð til opinberrar birtingar og ekki liggja fyrir neinar upplýsingar um það í hve mikla dreifingu myndin fór ef frá er talin birting hennar með áðurnefndu viðtali við stefnanda á Visir.is.

Með hliðsjón af öllu framanröktu er það mat dómsins að tjáning stefnda hafi verið innan þess frelsis sem 73. gr. stjórnarskrárinnar tryggir honum og að hún hafi ekki falið í sér ærumeiðandi aðdróttun í garð stefnanda. Með þessum röksemdum er kröfum stefnanda hafnað.

Á grundvelli úrslita máls, og með vísan til 1. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991, verður stefnandi dæmdur til að greiða stefnda málskostnað sem telst hæfilega ákveðinn 400.000 krónur og hefur þá verið tekið tillit til virðisaukaskatts.

D Ó M S O R Ð

Stefndi, Ingi Kristján Sigurmarsson, er sýkn af kröfum stefnanda, Egils Einarssonar. Stefnandi greiði stefnda 400.000 krónur í málskostnað.

Ingibjörg Þorsteinsdóttir héraðsdómari

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 1. mgr. 194. gr.235. gr.1. mgr. 236. gr.2. mgr. 236. gr.1. mgr. 241. gr.2. mgr. 241. gr.242. gr.1. mgr. 242. gr.XXV. kafli
Lög nr. 33/1944 Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands 71. gr.73. gr.2. mgr. 73. gr.3. mgr. 73. gr.
Lög nr. 91/1991 Lög um meðferð einkamála 130. gr.1. mgr. 130. gr.131. gr.
Lög nr. 50/1993 Skaðabótalög 24. gr.26. gr.
Lög nr. 62/1994 Lög um mannréttindasáttmála Evrópu 8. gr.10. gr.
Lög nr. 38/2001 Lög um vexti og verðtryggingu 4. gr.1. mgr. 6. gr.8. gr.9. gr.IV. kafli
Lög nr. 88/2008 Lög um meðferð sakamála 145. gr.
Lög nr. 38/2011 Lög um fjölmiðla 1. mgr. 2. gr.