Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 20. desember 2013.
Mál nr. E-3987/2012:
Logos slf.
(Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl)
gegn
Flugþjónustan ehf.
Mál
þetta, sem var dómtekið 19. desember sl. er höfðað með stefnu birtri 13.
nóvember 2012. Stefnandi er Logos slf. Efstaleiti 5 í Reykjavík. Stefndi er
Flugþjónustan ehf. Reykjavíkurflugvelli.
Dómkröfur
stefnanda eru þær að stefnda
verði gert
að greiða honum skuld að fjárhæð 8.803.557 kr. ásamt
dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 af 2.267.854 kr. frá
31.03.2012 til 30.04.2012, af 3.492.207 kr. frá 30.04.2012 til 09.05.2012, af
4.170.723 kr. frá 09.05.2012 til 31.05.2012, af 5.095.125 kr. frá 31.05.2012
til 30.06.2012, af 6.138.598 kr. frá 30.06.2012 til 31.07.2012 og af 8.803.557
kr. frá 31.07.2012 til greiðsludags, allt að frá dreginni innborgun að fjárhæð
300.000 kr. þann 22.05. 2012 sem dragist frá skuldinni miðað við stöðu hennar á
innborgunardegi. Þá krefst stefnandi málskostnaðar að mati dómsins.
Stefndi
viðurkennir kröfu að fjárhæð 365.213 kr. en krefst sýknu að öðru leyti auk
greiðslu málskostnaðar.
Atvik
máls
Stefnandi
kveður stefnda hafa keypt af sér lögfræðiþjónustu. Krafa hans byggir á ógreiddum
reikningum vegna þeirrar þjónustu. Dagsetningar og fjárhæð reikninganna er
eftirfarandi:
Reikningur nr.
Dags.
Gjalddagi
Upphæð
12538
12534
12539
12540
12555
12536
12537
12535
12915
12916
12917
12918
12919
12920
12921
12931
13458
13459
13460
13557
13971
13972
13973
14197
14198
14199
14200
31.03.2012
31.03.2012
(Valgeir Kristinsson hrl)
Lykilorð
Útdráttur
Skuldamál. Stefndi talinn hafa tekið á sig skyldur verkkaupa með framkomu sinni gagnvart stefnanda og dæmdur til greiðslu umdeildra reikninga.
Mál þetta, sem var dómtekið 19. desember sl. er höfðað með stefnu birtri 13. nóvember 2012. Stefnandi er Logos slf. Efstaleiti 5 í Reykjavík. Stefndi er Flugþjónustan ehf. Reykjavíkurflugvelli.
Dómkröfur stefnanda eru þær að stefnda verði gert að greiða honum skuld að fjárhæð 8.803.557 kr. ásamt dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 af 2.267.854 kr. frá 31.03.2012 til 30.04.2012, af 3.492.207 kr. frá 30.04.2012 til 09.05.2012, af 4.170.723 kr. frá 09.05.2012 til 31.05.2012, af 5.095.125 kr. frá 31.05.2012 til 30.06.2012, af 6.138.598 kr. frá 30.06.2012 til 31.07.2012 og af 8.803.557 kr. frá 31.07.2012 til greiðsludags, allt að frá dreginni innborgun að fjárhæð 300.000 kr. þann 22.05. 2012 sem dragist frá skuldinni miðað við stöðu hennar á innborgunardegi. Þá krefst stefnandi málskostnaðar að mati dómsins.
Stefndi viðurkennir kröfu að fjárhæð 365.213 kr. en krefst sýknu að öðru leyti auk greiðslu málskostnaðar.
Atvik máls Stefnandi kveður stefnda hafa keypt af sér lögfræðiþjónustu. Krafa hans byggir á ógreiddum reikningum vegna þeirrar þjónustu. Dagsetningar og fjárhæð reikninganna er eftirfarandi:
| Reikningur nr. | Dags. | Gjalddagi | Upphæð |
|---|---|---|---|
| 12538 | 31.03.2012 | 31.03.2012 | 88.164 |
12534 12539 12540 12555 12536 12537 12535 12915 12916 12917 12918 12919 12920 12921 12931 13458 13459 13460 13557 13971 13972 13973 14197 14198 14199 31.03.2012 31.03.2012 31.03.2012 31.03.2012 31.03.2012 31.03.2012 31.03.2012 30.04.2012 30.04.2012 30.04.2012 30.04.2012 30.04.2012 30.04.2012 30.04.2012 09.05.2012 31.05.2012 31.05.2012 31.05.2012 31.05.2012 30.06.2012 30.06.2012 30.06.2012 31.07.2012 31.07.2012 31.07.2012 31.03.2012 31.03.2012 31.03.2012 31.03.2012 31.03.2012 31.03.2012 31.03.2012 30.04.2012 30.04.2012 30.04.2012 30.04.2012 30.04.2012 30.04.2012 30.04.2012 09.05.2012 31.05.2012 31.05.2012 31.05.2012 31.05.2012 30.06.2012 30.06.2012 30.06.2012 31.07.2012 31.07.2012 31.07.2012 24.943 33.916 101.875 298.251 364.584 911.092 445.029 29.963 185.025 504.353 377.535 29.963 25.602 71.912 678.516 47.565 207.859 3.765 665.213 167.543 868.400 7.530 100.526 2.231.230 329.438 14200 31.07.2012 31.07.2012 3.765 Samtals er fjárhæð ofangreindra reikninga 8.803.557 krónur sem er stefnufjárhæð þessa máls. Frá kröfu sinni dregur stefnandi greiðslu, sem stefndi innti af hendi þann 22. maí 2012, að fjárhæð 300.000 krónur.
Stefnandi kveðst ekki hafa fengið framangreinda kröfu greidda og af þeim sökum sé mál þetta höfðað.
Fyrir dómi gaf aðilaskýrslu Alma Gunnlaugsdóttir, framkvæmdastjóri stefnda. Þá komu fyrir dóminn vitnin Hjalti Þór Guðmundsson lögfræðingur og núverandi starfsmaður stefnda í hlutastarfi og Atli Georg Lárusson fyrrum framkvæmdastjóri Keflavik Flight Services, dótturfélags stefnda.
Málsástæður og lagarök stefnanda
Stefnandi rekur mál þetta til innheimtu ógreiddra reikninga fyrir þjónustu sem hann kveðst hafa látið stefnda í té. Skuld þessa kveður hann stefnda ekki hafa greitt þrátt fyrir innheimtutilraunir. Stefnandi byggir á því að stefnda sé skylt að greiða fyrir þá þjónustu sem stefnandi sannanlega lét honum í té, að beiðni stefnda. Um framsetningu dómkröfu sinnar vísar stefnandi til dóms Hæstaréttar frá 17. október 2002 í málinu nr. 230/2002.
Um lagarök vísar stefnandi til meginreglu kröfuréttar um efndir fjárskuldbindinga og skuldbindingargildi loforða. Ennfremur til ákvæða laga um lausafjárkaup nr. 50/2000, einkum 45. gr. og laga nr. 42/2000 um þjónustukaup, einkum 28. gr. Krafa um dráttarvexti styður stefnandi við lög um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001. Krafa um málskostnað styðst við 1. mgr. 130. gr. laga 91/1991 um meðferð einkamála. Um varnarþing vísar stefnandi til 33. gr. laga nr. 91/1991.
Málsástæður og lagarök stefnda
Stefndi hafnar því að honum beri skylda til að greiða nokkurn þeirra reikninga sem lagðir eru fram í málinu ef frá er talinn reikningur nr. 13557 að fjárhæð 665.213 kr. Innborgun stefnda að fjárhæð 300.000 kr., sem innt var af hendi 22. maí 2012 hafi verið innborgun inn á skuld samkvæmt þeim reikningi. Stefndi viðurkennir að skulda stefnanda eftirstöðvar þessa reiknings.
Stefndi gerir ekki athugasemdir við fjárhæð og sundurliðun reikninganna en hafnar greiðsluskyldu samkvæmt þeim vegna aðildarskorts. Stefnandi eigi engar kröfur á hendur stefnda samkvæmt öðrum reikningum en þeim sem hann hafi fallist á að greiða. Öll vinna sem komi fram á öðrum reikningum sé unnin í þágu annars lögaðila, Keflavik Flight Services ehf., kt. 520411-0540. Það félag sé sjálfstæður lögaðili, með eigin stjórn, framkvæmdastjóra og prókúruhafa. Skuldbindingar þess félags séu ekki á ábyrgð stefnda. Þá eru félögin með sitt hvora starfsstöðina, annað í Reykjavík og hitt í Keflavík. Stefndi starfi eingöngu í Reykjavík en Keflavik Flight Services aðeins í Keflavík.
Í greinargerð rökstyður stefndi ítarlega, með tilvísun í texta einstakra reikninga að verkin að baki þeim varði ýmis verk sem tengjast nefndu félagi, Keflavik Flight Services, og séu því stefnda óviðkomandi. Helstu heiti umdeildra reikninga séu eftirfarandi: „KFS - Dómsmál á hendur Iceland Express”, „Skaðabótakrafa frá Iceland Express ehf. (á hendur KFS)“, „KFS – almenn lögfræðiþjónusta”, „KFS - innsetningarmál”, „KFS – vinnudeila”, „KFS – lögbann”, „KFS – útburður”, „KFS – almenn lögfræðiþjónusta 2012” og „KFS – innheimtumál N1”. Af framangreindri sé ljóst að stefnukrafan sé í aðalatriðum stefnda óviðkomandi. Eina undantekningin er vegna reiknings nr. 13557. Því sé réttur skuldari gagnvart stefnanda Keflavik Flight Services ehf., kt. 150411-0540. Það félag geti ekki skuldbundið aðra aðila, svo sem stefnda, nema fyrir liggi skýr heimild og samþykki fyrir því. Svo líti því út sem annað hvort sé um að ræða misskilning stefnanda eða óprúttna ósvífni. Hvorugt bindi stefnda að lögum. Beri af þessum sökum að sýkna stefnda vegna aðildarskorts.
Þá byggir stefndi einnig á því að stefnandi hafi ekki sent stefnda innheimtuviðvörun samkvæmt innheimtulögum nr. 95/2008. Því eigi stefnandi hvorki rétt á innheimtuné málskostnaði. Til stuðnings þessari málsástæðu vísar stefndi til 11. gr. sbr. 7. gr. nefndra laga. Varðandi lagarök vísar stefndi að öðru leyti til meginreglna kröfuréttar og samningaréttar og meginreglna um einkahlutafélög. Stefndi sé ekki virðisaukaskattskyldur og krefst virðisaukaskatts á málflutningsþóknun með vísan til skaðleysissjónarmiða.
Niðurstaða
Mál þetta snýst um greiðslu ógreiddra reikninga. Stefnandi mótmælir ekki staðhæfingu stefnda um að þjónustan, sem krafist er greiðslu fyrir, sé að mestu unnin í þágu Keflavik Flight Services og ekki er ágreiningur um það hvaða þjónusta liggur að baki reikningunum. Þá liggur fyrir yfirlýsing í greinargerð, sem áréttuð var af lögmanni stefnda við aðalmeðferð málsins, þess efnis að ekki sé ágreiningur um fjárhæð reikninganna. Er sú yfirlýsing hans bindandi um sakarefnið. Þá féll stefnandi frá þeirri málsástæðu að ákvæði innheimtulaga nr. 95/2008 hefðu þýðingu í málinu. Jafnframt áréttaði hann að krafa hans um sýknu á grundvelli aðildarskorts byggði á 2. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991.
Ágreiningur máls þessa lýtur því einvörðungu að því hvort stefndi sé réttur aðili að skuldamáli þessu. Stefnandi heldur því fram að hann hafi samið við stefnda um að láta í té umrædda þjónustu. Stefndi heldur því á hinn bóginn fram að ekkert samningssamband sé milli aðila þessa máls á grundvelli framlagðra reikninga heldur beri stefnanda að beina kröfu sinni að Keflavik Flight Services ehf. sem sé fyrirtæki óviðkomandi stefnda.
Af gögnum málsins má ráða að stefndi hefur verið í viðskiptum við stefnanda um árabil. Ekki liggja fyrir verksamningar vegna neinna viðskipta. Umdeildir reikningar eru fyrir margvíslega lögfræðiþjónustu að mestu vegna mála sem tengjast Keflavik Flight Services. Reikningarnir eru 27 talsins, fjárhæð þeirra er samtals 8.803.577 krónur. Þeir eru gefnir út á tímabilinu 31. mars til 31. júlí 2012, með gjalddaga við útgáfu og eindaga mánuði síðar.
Keflavik Flight Services ehf. var tekið til gjaldþrotaskipta á 18. júlí 2012. Um tengsl stefnda og Keflavik Flight Services liggur fyrir að Keflavik Flight Services ehf. var dótturfélag stefnda að fullu í eigu hans. Samkvæmt tilkynningu um stofnun einkahlutafélags, sem barst Ríkisskattstjóra 7. apríl 2011 var lögheimili fyrirtækisins hjá stefnda, formaður stjórnar var Hilmar Hilmarsson, sem einnig er stjórnarformaður stefnda. Aðrir í stjórn Keflavik Flight Services voru Ævar Rafn Björnsson, sem jafnframt er framkvæmdastjóri. Stjórnarmenn báðir voru prókúruhafar samkvæmt tilkynningunni. Breytingar á þessu fyrirkomulagi var gerð með tilkynningu til Ríkisskattstjóra, dagsettri 13. júní 2012. Þá tekur Atli Georg Árnason við sem framkvæmdastjóri og fór hann ásamt Hilmari Hilmarssyni og Ölmu Gunnlaugsdóttur, framkvæmdastjóra stefnda, með prókúru fyrirtækisins.
Stjórn stefnda er samkvæmt hlutafélagaskrá, uppfærðri 23. ágúst 2012, skipuð áðurnefndum Hilmari, sem er stjórnarformaður og Guðfinnu Magney Sævarsdóttur. Framkvæmdastjóri félagsins er Alma Gunnlaugsdóttir og prókúruumboð hafa þau þrjú.
Við úrlausn ágreinings um hvort komist hafi á samningur á milli aðila verður að leggja mat á fyrirliggjandi gögn og vitnisburð aðila. Í því efni er fyrst til þess að líta að umdeildir reikningar eru allir gefnir út á stefnda, Flugþjónustuna ehf. og sendir á starfsstöð þess á Reykjavíkurflugvelli. Af hálfu stefnda voru ekki gerðar athugasemdir við reikningana þegar þeir bárust. Hins vegar bar framkvæmdastjóri stefnda, Alma Gunnlaugsdóttir, fyrir dómi að líklega hefðu verið gerðar athugasemdir við þá munnlega á fundum með forsvarsmönnum stefnanda eftir að innheimtuviðvörun barst, en slík viðvörun var send 17. ágúst 2012. Þá bar Alma að hún hafi verið gjaldkeri Keflavik Flight Services og því hafi hún fengið reikningana senda til sín en aldrei borgað neitt nema eftir fyrirmælum frá framkvæmdastjóra félagsins. Þessi framburður fær hvorki stoð í gögnum málsins né framburði Atla Georgs Árnasonar fyrrum framkvæmdastjóra Keflavik Flight Services fyrir dómi. Hann kannaðist ekki við að stefndi hafi séð um greiðslu reikninga fyrir félagið og kvaðst hafa greitt sjálfur eða látið greiða fyrir þá vinnu hann stofnaði til sem stjórnandi fyrirtækisins.
Þá greiddi stefndi inn á skuldina 22. maí 2012. Stefndi staðhæfir að sú greiðsla hafi átt að fara inn á þann eina reikning sem hann hefur fallist á að greiða. Engin gögn styðja þá staðhæfingu. Auk þess var sá reikningur ekki gefin út fyrr en eftir að innborgun þessi var innt af hendi en fyrir lá að stefnandi hafði þá þegar gert stefnda marga af þeim reikningum sem um er deilt. Gögn málsins benda því fremur til hins gagnstæða. Hafi það verið skilningur stefnda á þeim tíma sem hann innti greiðsluna af hendi að honum bæri ekki að greiða útgefna reikninga bar honum að gera stefnanda grein fyrir því með skýrum hætti.
Af ítarlegum tölvupóstsamskiptum aðila sem liggja fyrir í málinu virðist sem hvorugur þeirra geri mikinn greinarmun á hagsmunum stefnda og Keflavik Flight Services. Þá nota allir sem fram koma fyrir hönd stefnda og dótturfélags þess netföng frá léninu birk.is sem er í eigu stefnda. Þannig verður ekki gerður greinarmunur á sendendum skeyta eftir því hvaða netföng eru notuð. Hjalti Þór Guðmundsson sá um mikið af samskiptum við stefnanda vegna umdeildrar þjónustu. Verður ekki annað ráðið en hann tjái sig í nafni stefnda þótt viðfangsefnin sem unnið er að séu flest í þágu Keflavik Flight Services. Þetta á ekki hvað síst við samskiptin eftir að umdeildir reikningar höfðu verið gefnir út og rætt er um greiðslu þeirra. Þá gerir hann m.a. athugsemd um fjárhæð eins reikningsins og óskar eftir viðræðum um greiðslufrest og greiðsluskilmála. Í engu tilviki er vikið að því að stefndi telji sig ekki eiga að greiða reikninga vegna vinnu fyrir dótturfélagið. Hafa ber í huga að hluti af þjónustu stefnanda var innt af hendi eftir að orðið var verulega tvísýnt um greiðslugetu Keflavik Flight Services. Þegar þannig var komið gat stefndi með engu móti gert ráð fyrir að þjónusta yrði veitt Keflavik Flight Services án nokkurra trygginga og án ábyrgðar móðurfélagsins. Framkoma og samskipti beggja aðila, sem liggja fyrir í framangreindum tölvupóstsamskiptum, benda eindregið til þess að báðir aðilar hafi gengið út frá því að stefndi væri greiðandi umdeildra reikninga. Það er ekki fyrr en gjaldþrot Keflavik Flight Services liggur fyrir sem núverandi afstaða stefnda kemur í ljós.
Allt framangreint gaf stefnanda réttmæta ástæðu til að ætla að stefndi væri viðsemjandi sinn. Hafi stefndi ekki ætlað sér að taka á sig neinar skyldur í þessum samningssambandi bar honum að gera stefnanda viðvart um það með skýrum hætti, í síðasta lagi við móttöku fyrstu reikninga. Að mati dómsins verður að líta svo á að stefndi hafi með framkomu sinni, bæði athöfnum og athafnaleysi, tekið á sig skyldur verkkaupa. Því hvílir á honum skylda til að greiða umdeilda reikninga og er honum því réttilega stefnt í máli þessu.
Með vísan til framangreinds og þar sem ekki er deilt um annað en aðild stefnda eru kröfur stefnanda teknar til greina eins og nánar greinar í dómsorði. Með hliðsjón af þessum úrslitum máls og vísan til 1. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 verður stefndi dæmdur til að greiða stefnanda málskostnað sem telst hæfilega ákveðinn 450.000 krónur.
D ó m s o r ð
Stefndi, Flugþjónustan ehf., skal greiða stefnanda, Logos slf. 8.803.557 kr. með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 af 2.267.854 kr. frá 31.03.2012 til 30.04.2012, af 3.492.207 kr. frá 30.04.2012 til 09.05.2012, af 4.170.723 kr. frá 09.05.2012 til 31.05.2012, af 5.095.125 kr. frá 31.05.2012 til 30.06.2012, af 6.138.598 kr. frá 30.06.2012 til 31.07.2012 og af 8.803.557 kr. frá 31.07.2012 til greiðsludags, allt að frá dreginni 300.000 kr. innborgun þann 22.05. 2012.
Stefndi greiði stefnanda málskostnað að fjárhæð 450.000 kr.
Ingibjörg Þorsteinsdóttir