Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 16. júní 2011.
Mál nr. S-673/2011:
Ákæruvaldið
(Óli Ingi Ólason fulltrúi)
gegn
Kristmundi Sigurðssyni
(Stefán Karl Kristjánsson hdl)
Lykilorð
Frelsissvipting. Rán. Skilorðsrof.
Útdráttur
Ákærði, sem rauf skilorð, dæmdur til að sæta fangelsi í 2 ár og 6 mánuði og til greiðslu miskabóta, fyrir rán, frelsissviptingu og ýmis önnur brot. Sviptur ökurétti ævilangt.
Mál þetta, sem dómtekið var þriðjudaginn 14. júní 2011, er höfðað með tveimur ákærum útgefnum af ríkissaksóknara 15. apríl 2011 og lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 14. júní 2011, á hendur Kristmundi Sigurðssyni, kt. 000000- 0000, búsettum í Svíþjóð. Með ákæru ríkissaksóknara útgefinni 15. apríl 2011 var höfðað mál á hendur ákærðu Kristmundi Sigurðssyni, Guðmundi Jakob Jónssyni og Guðmundi Steini Magnússyni, fyrir eftirfarandi brot framin á árinu 2009:
I.
Gegn ákærðu öllum fyrir frelsissviptingu og rán með því að hafa, aðfaranótt sunnudagsins 20. desember, í sameiningu svipt Stefán Lárus Jónsson, kennitala 000000-0000, frelsi á heimili sínu að Hringbraut 107 í Reykjavík og beitt hann ofbeldi í því skyni að ná frá honum verðmætum, en ákærðu slógu Stefán í andlit, tóku hann hálstaki, fjötruðu hendur hans og tróðu tusku upp í munn hans og kefluðu hann. Ákærðu neyddu Stefán til að millifæra af reikningi sínum 110.000 krónur yfir á reikning ákærða Guðmundar Steins Magnússonar, auk þess sem þeir söfnuðu verðmætum í íbúð Stefáns, m.a. 80.000 krónum í peningaseðlum, og flutti Kristmundur hluta verðmætanna af vettvangi. Við atlöguna hlaut Stefán roða og mar á úlnliðum og framhandleggjum, roðarákir í munnvikum, mar undir og aftan við eyru, bólgu á vinstri kinn og áfallastreituröskun. Telst háttsemi ákærðu varða við 2. mgr. 226. gr. og 252. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
II.
[…]
III.
Gegn ákærða Kristmundi Sigurðssyni fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa mánudaginn 21. desember haft í vörslum sínum 5,74 g af amfetamíni og 4,82 g af marihúana sem lögregla fann við leit á ákærða á lögreglustöðinni við Hverfisgötu 113, Reykjavík. Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga nr. 65/1974 um ávana og fíkniefni, með áorðnum breytingum, og 2. gr. sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, með áorðnum breytingum. Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Jafnframt er þess krafist að gerð verði upptæk 5,74 g af amfetamíni og 4,82 g af marihúana sem hald var lagt á, sbr. 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001. Af hálfu Stefáns Lárusar Jónssonar er þess krafist að ákærðu verði in solidum dæmdir til að greiða miskabætur að fjárhæð 2.000.000 krónur ásamt vöxtum skv. 8. gr., sbr. 4. gr. vaxtalaga nr. 38/2001, frá 20. desember 2009, til þess dags þegar liðinn var mánuður frá því að ákærðu var birt skaðabótakrafan, en með dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001, frá þeim degi til greiðsludags. Þá er þess krafist að ákærðu verði dæmdir til að greiða málskostnað við að halda fram kröfu þessari samkvæmt síðar framlögðu málskostnaðaryfirliti.
Með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu útgefinni 14. júní 2011 er höfðað mál á hendur ákærða Kristmundi Sigurðssyni fyrir eftirgreind umferðar-, fíkniefna- og hegningarlagabrot
- Með því að hafa, aðfaranótt þriðjudagsins 28. apríl 2009, ekið bifreiðinni ZR-238, af stað við hús nr. 4 við Kolbeinsmýri á Seltjarnarnesi, sviptur ökurétti og óhæfur um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 1480 ng/ml), þar sem lögregla hafði afskipti af honum.
- Með því að hafa, aðfaranótt mánudagsins 22. júní 2009, ekið bifreiðinni ZU- 791, vestur Sæbraut í Reykjavík, sviptur ökurétti og óhæfur um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 330 ng/ml), uns lögregla stöðvaði akstur hans við Seðlabanka Íslands
- Með því að hafa, þriðjudaginn 10. nóvember 2009, ekið bifreiðinni VS-909, um Ásakór í Kópavogi, sviptur ökurétti og óhæfur um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 550 ng/ml), uns lögregla stöðvaði akstur hans við Kórsali 4.
- Með því að hafa, mánudaginn 9. nóvember 2009, í bensínafgreiðslu Olís, Norðlingaholti í Reykjavík, stolið 80,26 lítrum af eldsneyti, að verðmæti 15.145 krónur, með því að dæla eldsneytinu á bifreiðina VS-909 og yfirgefið afgreiðsluna án þess að greiða fyrir.
- Með því að hafa, fimmtudaginn 13. nóvember 2008, haft í vörslum sínum, móts við Laugaveg 120 í Reykjavík, 30,62 g af amfetamíni, er lögregla hafði afskipti af honum.
- Með því að hafa, fimmtudaginn 24. júlí 2008, ekið bifreiðinni NM-Z38, án nægjanlegrar aðgæslu og tillitssemi, of hratt miðað við aðstæður og almenn hraðatakmörk, 60 km á klst. austur Breiðholtsbraut í Reykjavík, sviptur ökurétti og óhæfur um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (í blóði mældist amfetamín 2000 ng/ml, kókaín 75 ng/ml og MDMA 140 ng/ml), gegn rauðu ljósi við gatnamót Seljaskóga, með þeim afleiðingum að árekstur varð við bifreiðina MH-516, sem ekið var inn á gatnamótin og ökumaður hennar, Birna H. Gunnlaugsdóttir, hlaut beinbrot á fyrsta rifi, miðju viðbeini, tveimur stöðum á vinstra herðablaði, vinstri upphandlegg, á utanverðum hægri sköflungi og á hægri fibula. Telst ofangreind háttsemi samkvæmt ákæruliðum 1-3 varða við 1. og 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006, samkvæmt ákærulið 4 við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, ákæruliður 5 varðar við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002 og ákæruliður 6 við 219. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. mgr. 4. gr., 1. mgr. 5. gr., 1. mgr. 25. gr., 1. mgr. og a- og c-liði 2. mgr. 36. gr. og 1. mgr. 37. gr., 1. og 2. mgr. 45. gr. a. og 1. mgr. 48. gr., allt sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til sviptingar ökuréttar skv. 101. og 102. gr. nefndra umferðarlaga, sbr. 25. gr. laga nr. 44/1993 og 18. gr. laga nr. 66/2006. Þá er þess krafist að 30,62 grömm af amfetamíni, verði gerð upptæk, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 Verjandi ákærða krefst vægustur refsingar er lög leyfa og hæfilegrar þóknunar sér til handa. Mál meðákærðu Guðmundar Jakobs Jónssonar og Guðmundar Steins Magnússonar voru skilin frá máli ákærða og kveðnir upp dómar í málum þeirra hinn 27. maí og 10. júní sl. Ákærði játar sök. Farið var með málið samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 og var það tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu er sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði og ákvörðun viðurlaga. Ákærði hefur skýlaust játað brot sín. Sannað er með játningu ákærða og öðrum gögnum málsins að ákærði er sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök og eru brot hans rétt heimfærð til refsiákvæða í ákæru. Ákærði er fæddur árið 1958 og nær sakaferill hans allt aftur til ársins 1976. Hann hefur verið dæmdur fyrir þjófnaðarbrot, brennu, hylmingu, umferðarlagabrot, nytjastuld, skjalafals og ávana- og fíkniefnalagabrot. Hann hlaut 12 ára fangelsisdóm með dómi Hæstaréttar í mars 1978 fyrir manndráp. Með dómi frá 23. maí 1990 hlaut hann 10 mánaða fangelsi fyrir brot gegn 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga. Með dómi frá 20. febrúar 2006 hlaut hann 45 daga fangelsi, skilorðsbundið í 2 ár, fyrir brot gegn 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga. Hann var dæmdur 24. mars 2009 í 7 mánaða fangelsi, skilorðsbundið í 2 ár, fyrir akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni. Jafnframt var hann sviptur ökurétti í 2 ár og 6 mánuði. Þá hlaut ákærði á ný dóm 8. apríl 2009 fyrir akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna og brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, en var ekki gerð sérstök refsing þar sem um hegningarauka var að ræða. Með brotum þeim sem ákærði er sakfelldur fyrir samkvæmt ákæru ríkissaksóknara og samkvæmt 1.-4. liðum ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, hefur hann rofið skilorð refsidómsins frá 24. mars 2009. Verður skilorðsdómurinn tekinn upp samkvæmt 60. gr. almennra hegningarlaga og ákærða gerð refsing í einu lagi fyrir öll brotin. Brot ákærða sem hann hefur verið sakfelldur fyrir samkvæmt ákæru ríkissaksóknara var ófyrirleitið og unnið í félagi við aðra og verður það virt ákærða til refsiþyngingar, sbr. 1. tölul. 1. mgr. og 2. mgr. 70. gr. Jafnframt hefur dómur sem ákærði hlaut fyrir líkamsárás 20. febrúar 2006 ítrekunaráhrif í málinu, sbr. 71. gr. og 1. mgr. 218. gr. b. almennra hegningarlaga. Refsing ákærða verður tiltekin eftir reglum 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga. Það horfir ákærða til málsbóta að hann hefur gengist greiðlega við brotum sínum. Að öllu þessu virtu þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 2 ár og 6 mánuði. Við flutning málsins kom fram hjá verjanda að ákærði hefði fyrir rúmu ári síðan gengist undir áfengis- og fíknimeðferð erlendis og hefði honum vegnað vel síðan. Ekki hafa verið lögð fram sérfræðivottorð vegna þeirrar meðferðar. Með hliðsjón af sakaferli ákærða og alvarleika þeirra brota sem hann er sakfelldur fyrir í málinu þykir ekki unnt að binda fangelsisrefsingu hans skilorði. Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt. Upptæk eru gerð 36,36 g af amfetamíni og 4,82 g af marihúana samkvæmt lagaákvæðum sem í ákærum greinir. Réttargæslumaður Stefáns Lárusar Jónssonar hefur krafist greiðslu miskabóta in solidum, úr hendi ákærðu Guðmundar Jakobs Jónssonar, Guðmundar Steins Magnússonar og Kristmundar Sigurðssonar, að fjárhæð 2.000.000 króna auk vaxta. Um lagarök vísar réttargæslumaður til b-liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Með broti því sem ákærði hefur verið sakfelldur fyrir hefur hann bakað sér miskabótaábyrgð gagnvart brotaþola. Þykja miskabætur hæfilega ákveðnar 450.000 krónur, auk vaxta sem í dómsorði greinir, sem ákærði greiði óskipt með ákærðu Guðmundi Jakob og Guðmundi Steini. Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar hdl., 87.850 krónur og þóknun réttargæslumanns brotaþola, Vilhjálms Hans Vilhjálmssonar hrl., 50.200 krónur. Við ákvörðun þóknunar lögmanna hefur verið tekið tillit til virðisaukaskatts. Ákærði greiði 827.230 krónur í annan sakarkostnað. Af hálfu ákæruvaldsins flutti málið Karl Ingi Vilbergsson aðstoðarsaksóknari. Ragnheiður Harðardóttir héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
D ó m s o r ð :
Ákærði, Kristmundur Sigurðsson, sæti fangelsi í tvö ár og sex mánuði. Ákærði greiði Stefáni Lárusi Jónssyni 450.000 krónur auk vaxta samkvæmt 8. gr., sbr. 4. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá 20. desember 2009 til 14. júlí 2011, en með dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt. Upptæk eru gerð 36,36 g af amfetamíni og 4,82 g af marihúana. Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Stefáns Karls Kristjánssonar hdl., 87.850 krónur og þóknun réttargæslumanns brotaþola, Vilhjálms Hans Vilhjálmssonar hrl., 50.200 krónur. Ákærði greiði 827.230 krónur í annan sakarkostnað.
Ragnheiður Harðardóttir