Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-1333/2011:

D Ó M U R

máli nr. S-1333/2011:

Ákæruvaldið

(Einar Laxness aðstoðarsaksóknari)

gegn

Friðriki Þór Friðrikssyni

Ár 2012, þriðjudaginn

3. janúar, er á dómþingi héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við

Lækjartorg af Pétri Guðgeirssyni, héraðsdómara,

(Bjarni Hauksson hrl)

Líkamsárás. Fangelsi. Skaðabætur. Skilorð.

Ákærði dæmdur í 4 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu skaðabóta fyrir líkamsárás.

Ár 2012, þriðjudaginn 3. janúar, er á dómþingi héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Pétri Guðgeirssyni, héraðsdómara, kveðinn upp dómur í sakamálinu nr. 1333/2011:  Ákæruvaldið (Einar Laxness) gegn Friðriki Þór Friðrikssyni (Bjarni Hauksson hrl.) sem tekið var til dóms hinn 21. desember sl., að aflokinni aðalmeðferð.

Málið er höfðað með ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dagsettri   6. september sl. á hendur ákærða, Friðriki Þór Friðrikssyni, kt. 000000- 0000, Æsufelli 6, Reykjavík, „fyrir líkamsárás, með því að hafa aðfaranótt laugardagsins 2. janúar 2010, við innganginn að veitingastaðnum 80’s Club, Grensásvegi 5 í Reykjavík, skallað Árna Jóhannes Hallgrímsson, kt. 000000-0000 í andlitið með þeim afleiðingum að Árni Jóhannes nefbrotnaði,  hlaut mar á andliti og vör, blóðnasir og tannarbrot.

Telst þetta varða við 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 11. gr. laga nr. 20, 1981 og 111. gr. laga nr. 82, 1998.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.

Í málinu gerir Halldór Reynir Halldórsson, hdl. f.h. Árna Jóhannesar Hallgrímssonar, kröfu um skaðabætur á hendur Friðriki Þór Friðrikssyni, kt. 000000-0000, að fjárhæð kr. 1.300.000 og með vöxtum skv. 8. gr. vaxtalaga nr. 38, 2001 frá árásardegi þann 2. janúar  2010, þar til mánuður er liðinn frá því að bótakrafan er birt kærðu en með dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla vaxtalaga frá þeim degi til greiðsludags.  Þá er krafist lögmannsþóknunar að teknu tilliti til virðisaukaskatts, samkvæmt málskostnaðarreikningi sem lagður verður fram við aðalmeðferð málsins, komi til þess eða skv. mati dómsins.“

Málavextir

Samkvæmt framburði ákærða og vitna í málinu svo og staðfestu vottorði Theódórs Friðrikssonar læknis liggur það fyrir að aðfaranótt laugardagsins 2. janúar 2010, var ákærði staddur í skemmtistaðnum „80´s Club“ við Grensásveg.  Lenti honum þar saman við dyravörð, Árna Jóhannes Hallgrímsson, svo að ennið á ákærða skall í andlit Árna Jóhannesar.  Hlaut dyravörðurinn af þessu lítils háttar nefbrot, sem rétta þurfti með aðgerð, blóðnasir, mar í andliti og á vör og tannbrot.

Ákærði neitar sök og segist hann hafa skollið með ennið í andlit mannsins þegar hann beygði sig áfram til þess að víkja sér undan atlögu hans.  Hafi maðurinn nálgast með látum og gert sig líklegan að kýla sig.  Hjá lögreglu sagðist ákærði hafa álitið manninn ætla að stanga sig og er ákærða gerð grein fyrir því.  Ákærði segir mann þennan ekki hafa verið í einkennisfötum og kveðst hann því ekki hafa vitað að hann væri dyravörður.  Kveðst ákærði hafa verið búinn að drekka þrjá bjóra þegar þetta gerðist.

Árni Jóhannes Hallgrímsson hefur skýrt frá því að hann hafi staðið innan við dyrnar á skemmtistaðnum þegar inn kom maður og kallað eitthvað til fólks sem var þar inni fyrir.  Hafi honum verið svarað og þá komið til lítilsháttar stympinga milli mannsins og eins af fólkinu.  Kveðst hann þá hafa gengið á milli þeirra og sagt að hann vildi ekki hafa neitt „vesen“.  Hafi hann ekki verið ógnandi við mann þennan en hafa haldið handleggnum út frá sér.  Sá, sem inn hafði komið, hafi þá „skallað“ vitnið beint í andlitið með enninu.  Hann kveður manninn greinilega hafa verið undir áhrifum áfengis.  Þá segist hann hafa verið með merki í barminum sem á stóð öryggis- eða dyravörður.  Hann kveðst hafa nefbrotnað við þetta högg og þurft hafi að rétta brotið.  Þá hafi kvarnast úr tveimur framtönnum.  Loks segir hann að hafi sprungið hafi fyrir á vör.

Kristján Georg Jósteinsson sem var að störfum á skemmtistaðnum sem dyravörður í umrætt sinn hefur sagt frá því að hann hafi séð mann „skalla“ Árna Jóhannes þarna í umrætt sinn.  Hann kveðst ekki lengur muna vel eftir atvikum en hann sé þó viss um að hafa séð þetta gerast.  Hafi ekki verið um slys að ræða. Hann segir mann þennan hafa komið inn á staðinn, öran í fasi og hafi Árni Jóhannes ekki sýnt honum ógnandi framkomu áður en maðurinn stangaði hann.

Hermann Páll Traustason lögreglumaður hefur komið fyrir dóm en hann gerði frumskýrsluna í málinu.  Í skýrslu hans er haft eftir ákærða þegar hann var handtekinn við skemmtistaðinn að hann hefði „skallað“ mann sem hefði ráðist á hann og gert það til þess að verjast manninum.  Hann kveðst ekki muna vel eftir atvikum en hann kveðst hafa skrifað niður hjá sér í blokk það sem haft er eftir mönnum þarna á staðnum og byggt á því í skýrslunni.

Trausti Jósteinsson hefur skýrt frá því að hann hafi verið að vinna á barnum í húsinu í umrætt sinn.  Tveir menn hafi verið í inngöngudyrunum og rifist. Dyravörður hafi gengið þá á milli mannanna og sagt háum rómi: „Slakið á!“ eða eitthvað í þá veru, en þá hafi annar þessara manna „skallað“ dyravörðinn í andlitið. Hafi dyravörðurinn ekki á neinn hátt hafa gert sig líklegan til þess að ráðast á manninn eða verið ógnandi í fasi.  Hann segir dyrnar vera nálægt barnum, á að giska fimm metra frá.  Hann kveður sig minna að tennur hafi losnað í munni dyravarðarins.  Starfsmenn hússins hafi tekið manninn sem hafði „skallað“ og haldið honum þar til lögreglan kom á vettvang.

Niðurstaða

Ákærði neitar sök.  Skýring hans á því hvernig höfuð hans skall framan í Árna Jóhannes er í sjálfu sér ótrúverðug.  Árni Jóhannes og tveir starfsmenn veitingastaðarins bera það að ákærði hafi „skallað“ Árna Jóhannes í andlitið. Verður framburður þeirra ekki skilinn öðru vísi en svo að þetta hafi verið viljaverk hjá ákærða.  Telst ákærði vera sannur að því að hafa ráðist á Árna Jóhannes með því að stanga hann í andlitið og valda honum þeim áverkum sem greinir í ákærunni.  Ber einnig að hafna þeirri viðbáru ákærða að Árni Jóhannes hafi gert atlögu að honum.  Hefur ákærði með athæfi sínu orðið brotlegur við 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga.

Refsing, skaðabætur og sakarkostnaður Ákærði hlaut skilorðsbundinn varðhaldsdóm fyrir líkamsárás árið 1993 og skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir þjófnað árið 1994.  Loks var hann í september 2010 dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir ávana- og fíkniefnalagabrot. Refsing ákærða verður hegningarauki við þann dóm.  Ber að dæma upp þann dóm og gera ákærða refsingu í einu lagi.  Þykir refsingin hæfilega ákveðin fangelsi í 4 mánuði.  Rétt þykir að fresta framkvæmd refsingarinnar og ákveða að hún falli niður að liðnu einu ári frá dómsuppsögu, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.

Að kröfu Árna Jóhannesar Hallgrímssonar ber að dæma ákærða til þess að greiða honum miskabætur, sem ákveðast 150.000 krónur, og bætur fyrir kostnað við að halda fram kröfunni, sem ákveðast 30.000 krónur eða samtals 180.000 krónur. Þá ber að dæma ákærða til þess að greiða almenna vexti af bótafjárhæðinni samkvæmt 4. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001, frá 2. janúar 2010 til 12. október 2011 en þaðan í frá með dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla laganna til greiðsludags.

Dæma ber ákærða til þess að greiða verjanda sínum, Bjarna Haukssyni hrl. 300.000 krónur í málsvarnarlaun, sem dæmast með virðisaukaskatti og Halldóri Reyni Halldórssyni hdl. 150.000 krónur í réttargæsluþóknun, einnig að meðtöldum virðisaukaskatti.

Annan sakarkostnað, 31.050 krónur, ber að dæma ákærða til þess að greiða.

DÓMSORÐ:

Ákærði, Friðrik Þór Friðriksson, sæti fangelsi í 4 mánuði. Frestað er framkvæmd refsingarinnar og fellur hún niður að liðnu einu ári frá dómsuppsögu, haldi ákærði almennt skilorð.

Ákærði greiði Árna Jóhannesi Hallgrímssyni 180.000 krónur í skaðabætur ásamt almennum vöxtum frá 2. janúar 2010 til 12. október 2011 en þaðan í frá með dráttarvöxtum til greiðsludags.

Ákærði greiði verjanda sínum, Bjarna Haukssyni hrl. 300.000 krónur í málsvarnarlaun og Halldóri Reyni Halldórssyni hdl. 150.000 krónur í réttargæsluþóknun.

Ákærði greiði 31.050 krónur í annan sakarkostnað.

Pétur Guðgeirsson