Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-262/2008:

D Ó M U R

máli nr. S-262/2008:

Ákæruvaldið

(Dröfn Kærnested fulltrúi)

gegn

Hlyni Má Ólafssyni

Ár 2008,

fimmtudaginn 13. mars, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í

Dómhúsinu við Lækjartorg af Pétri Guðgeirssyni, héraðsdómara, kveðinn upp dómur

í sakamálinu nr. 262/2008:  Ákæruvaldið

(Dröfn Kærnested) gegn Hlyni Má Ólafssyni (Sveinn Andri Sveinsson hrl.), sem

tekið var til dóms í sama þinghaldi.

Málið er höfðað með

ákæru Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dagsettri A26. febrúar sl. á

hendur ákærða, Hlyni Má Ólafssyni, kt. [...], Laugateigi 30, Reykjavík, „fyrir

eftirtalin brot framin í Reykjavík á árinu 2007, nema annað sé tekið fram:

I.

Fíkniefnalagabrot:

(Sveinn Andri Sveinsson hrl)

Skilorð. Upptaka. Ávana- og fíkniefni. Ökuréttarsvipting.

Karlmaður dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir fíkniefna- og umferðarlagabrot og til sviptingar ökuréttinda og til upptöku fíkniefna og fjármuna.

Ár 2008, fimmtudaginn 13. mars, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Pétri Guðgeirssyni, héraðsdómara, kveðinn upp dómur í sakamálinu nr. 262/2008:  Ákæruvaldið (Dröfn Kærnested) gegn Hlyni Má Ólafssyni (Sveinn Andri Sveinsson hrl.), sem tekið var til dóms í sama þinghaldi.

Málið er höfðað með ákæru Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dagsettri A26. febrúar sl. á hendur ákærða, Hlyni Má Ólafssyni, kt. [...], Laugateigi 30, Reykjavík, „fyrir eftirtalin brot framin í Reykjavík á árinu 2007, nema annað sé tekið fram:

I.

Fíkniefnalagabrot:

  1. Miðvikudaginn 28. febrúar í bifreiðinni ZL-559 á Sæbraut við Holtagarða, haft í vörslum sínum í söluskyni 3,96 g af hassi, sem lögregla fann við leit.
  2. Miðvikudaginn 28. febrúar á ofangreindu heimili sínu, haft í vörslum sínum 22,34 g af amfetamíni, 2,32 g og 40 töflur með vímuefninu MDMA, 667,55 g af hassi og 20 kannabisplöntur og jafnframt að hafa um nokkurt skeið fram til umrædds dags ræktað í umræddu húsnæði téðar plöntur og einnig haft í vörslum sínum í söluskyni 198,69 g af hassi, en ákærði framvísaði efnunum að hluta og lögregla fann að hluta við leit.
  3. Að kvöldi þriðjudagsins 24. júlí að Sogavegi 123, haft í vörslum sínum 0,66 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, sem lögregla fann við leit.

    Teljast brot þessi varða við 2. gr., sbr. 5. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. og 6. gr. sömu laga, að því er varðar meðferð ákærða á hassi, vímuefninu MDMA, tóbaksblönduðu kannabisefni og kannabisplöntum, sbr. og 4. gr. sömu laga, varðandi framleiðslu á kannabis, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001 og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 858/2002.

II.

Umferðarlagabrot:

  1. Að kvöldi mánudagsins 20. ágúst ekið torfæruhjólinu DO-487 án lögboðinna skráningarmerkja, án ökuréttinda og án þess að nota viðurkenndan hlífðarhjálm, um Strandveg í suður og áfram uns akstri lauk við gatnamót Strandvegar og Hallsvegar.
  2. Aðfaranótt laugardagsins 8. september ekið bifreiðinni ZL-556 undir áhrifum áfengis (vínandamagn í blóði 0,70‰) og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna, um Fjarðarhraun til suðurs, þar til lögregla stöðvaði akstur bifreiðarinnar við Flatahraun í Hafnarfirði.

    Teljast brot þessi varða við 1. mgr., sbr. 2. mgr., 45. gr., 1. og 2. mgr. 45. gr. a., 1. mgr. 48. gr., 1. mgr. 63. gr., sbr. 64. gr. og 1. mgr. 72. gr., sbr. 1. mgr. 100. gr., umferðarlaga nr. 50/1987, sbr. 1. gr. laga nr. 48/1997, sbr. 5. gr. laga nr. 66/2006.

III.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til sviptingar ökuréttar og jafnframt að 22,34 g af amfetamíni, 870,2 g af hassi, 2,32 g og 40 töflur með vímuefninu MDMA, 0,66 g af tóbaksblönduðu kannabisefni og 20 kannabisplöntur sem lögregla lagði hald á, verði gerð upptæk samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001. Þá er þess krafist að ákærði sæti upptöku á kr. 32.500,- sem lögreglan lagði hald á, skv. heimild í 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.“

Málavextir

Ákærði hefur skýlaust játað það brot sem hann er saksóttur fyrir.  Hefur hann orðið sekur um athæfi það sem lýst er í ákærunni og réttilega er þar fært til refsiákvæða. Hann hefur að baki nokkurn sakaferil.  Ekkert af þeim málum varðar stórfellt brot og refsingar í þeim eru sektir nema að einu máli undanskildu þar sem ákærði var dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi.  Ákærði hefur látið af óreglu, stundar nú atvinnu og hefur tekið upp sambúð við stúlku.  Þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í 6 mánuði.  Rétt er að fresta því að framkvæma refsingu þessa og ákveða að hún falli niður að liðnum 3 árum frá dómsuppsögu að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

Dæma ber ákærða til þess að sæta sviptingu ökuréttar og upptöku eigna, eins og í dómsorði greinir.

Dæma ber ákærða til þess að greiða verjanda sínum, Sveini Andra Sveinssyni hrl. 50.000 krónur í málsvarnarlaun að meðtöldum virðisaukaskatti og 294.374 krónur í annan sakarkostnað.

DÓMSORÐ:

Ákærði, Hlynur Már Ólafsson sæti fangelsi í  6 mánuði.  Framkvæmd refsingarinnar er frestað og fellur hún niður að liðnum 3 árum haldi ákærði almennt skilorð.

Ákærði sæti upptöku á 22,34 g af amfetamíni, 870,86 g af kannabisefni og 20 þess konar plöntur, 2,32 g og 40 töflur af MDMA og 32.500 krónum.

Ákærði er sviptur ökurétti í 12 mánuði frá dómsbirtingu að telja.

Ákærði greiði verjanda sínum, Sveini Andra Sveinssyni hæstaréttarlögmanni, 50.000 krónur í málsvarnarlaun.

Ákærði greiði 294.374 krónur í annan sakarkostnað.

Pétur Guðgeirsson.