Héraðsdómur Reykjavíkur
Dómur 19. mars 2008.
Mál nr. S-246/2008:
D Ó M U R
máli nr. S-246/2008:
Ákæruvaldið
(Karl Ingi Vilbergsson fulltrúi)
gegn
Jonas Kaminskas
Ár
2008, miðvikudaginn 19. mars, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er
í Dómhúsinu við Lækjartorg af Pétri Guðgeirssyni, héraðsdómara, kveðinn upp
Jónasi Kaminskas, sem tekið var til dóms í sama þinghaldi.
Málið
er höfðað með ákæru Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dagsettri 20.
febrúar sl. á hendur ákærða, Jonas Kaminkas, kt. [...], Kleppsvegi 32, 105
Reykjavík, „fyrir þjófnað, með því að hafa á tímabilinu maí til 20. september
2007, er ákærði starfaði hjá fyrirtækinu Hýsing-vöruhótel, stolið leikjatölvu
af gerðinni Sony PSP, vefmyndavél og 1 GB minniskorti fyrir Sony PSP
leikjatölvu, tölvuleik í PC tölvu, 11 tölvuleikjum fyrir Playstation II
leikjatölvu, tveimur tölvuleikjum fyrir Playstation III leikjatölvu, einum
tölvuleik fyrir X-box leikjatölvu, tveimur tölvuleikjum fyrir Sony PSP
leikjatölvu, 9 DVD mynddiskum og 33 tónlistargeisladiskum, úr vöruhúsnæði
fyrirtækisins að Skútuvogi 9 í Reykjavík.
Telst
þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Þess
er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.
Í
máli þessu gerir Steinþór Oddgeirsson, kt. [...], þá kröfu f.h. Hýsingar, kt. [...],
að ákærði verði dæmdur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð kr. 107.891, ásamt
vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38, 2001 frá 20.9.2007, en síðan
dráttarvexti samkvæmt 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. vaxtalaga til greiðsludags.“
Málavextir
Ákærði hefur
Lykilorð
Skaðabætur. Skilorð. Skilorðsrof. Þjófnaður.
Útdráttur
Karlmaður dæmdur í skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu skaðabóta fyrir þjófnað.
Ár 2008, miðvikudaginn 19. mars, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Pétri Guðgeirssyni, héraðsdómara, kveðinn upp dómur í sakamálinu nr. 246/2008: Ákæruvaldið (Karl Ingi Vilbergsson) gegn Jónasi Kaminskas, sem tekið var til dóms í sama þinghaldi.
Málið er höfðað með ákæru Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dagsettri 20. febrúar sl. á hendur ákærða, Jonas Kaminkas, kt. [...], Kleppsvegi 32, 105 Reykjavík, „fyrir þjófnað, með því að hafa á tímabilinu maí til 20. september 2007, er ákærði starfaði hjá fyrirtækinu Hýsing-vöruhótel, stolið leikjatölvu af gerðinni Sony PSP, vefmyndavél og 1 GB minniskorti fyrir Sony PSP leikjatölvu, tölvuleik í PC tölvu, 11 tölvuleikjum fyrir Playstation II leikjatölvu, tveimur tölvuleikjum fyrir Playstation III leikjatölvu, einum tölvuleik fyrir X-box leikjatölvu, tveimur tölvuleikjum fyrir Sony PSP leikjatölvu, 9 DVD mynddiskum og 33 tónlistargeisladiskum, úr vöruhúsnæði fyrirtækisins að Skútuvogi 9 í Reykjavík.
Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.
Í máli þessu gerir Steinþór Oddgeirsson, kt. [...], þá kröfu f.h. Hýsingar, kt. [...], að ákærði verði dæmdur til greiðslu skaðabóta að fjárhæð kr. 107.891, ásamt vöxtum samkvæmt 8. gr. vaxtalaga nr. 38, 2001 frá 20.9.2007, en síðan dráttarvexti samkvæmt 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. vaxtalaga til greiðsludags.“
Málavextir
Ákærði hefur skýlaust játað það brot sem hann er saksóttur fyrir. Hefur hann orðið sekur um athæfi það sem lýst er í ákærunni og réttilega er þar fært til refsiákvæðis. Ákærði var sakfelldur 20. desember 2006 fyrir þrjú þjófnaðarbrot en því jafnframt frestað að ákvarða honum refsingu. Ákærði hefur rofið skilorð þess dóms og ber að dæma upp þennan dóm og gera honum refsingu í einu lagi. Þykir hún hæfilega ákveðin fangelsi í 3 mánuði. Rétt er að fresta því að framkvæma refsingu þessa og ákveða að hún falli niður að liðnum 3 árum frá dómsuppsögu að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.
Dæma ber ákærða til þess að greiða skaðabætur eins og segir í dómsorði. Sakarkostnað hefur ekki leitt af málinu.
DÓMSORÐ:
Ákærði, Jonas Kaminskas, sæti fangelsi í þrjá mánuði. Framkvæmd refsingarinnar er frestað og fellur hún niður að liðnum 3 árum haldi ákærði almennt skilorð.
Ákærði greiði Hýsingu – vöruhóteli 107.891 krónu í skaðabætur ásamt almennum vöxtum samkvæmt 4. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38, 2001 frá 20. september 2007 að telja til dómsuppsögu, en síðan með dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla laganna til greiðsludags.
Pétur Guðgeirsson.