Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-18/2008:

D Ó M U R

(Erna Sigríður Sigurðardóttir fulltrúi)

gegn

Lindu Rut Hreggviðsdóttur

Ár

2008, föstudaginn 25. janúar, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er

(Sigmundur Hannesson hrl)

Gripdeild. Skaðabætur. Skilorð. Þjófnaður.

Kona dæmd í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir gripdeild og þjófnað.

Ár 2008, föstudaginn 25. janúar, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Pétri Guðgeirssyni, héraðsdómara, kveðinn upp dómur í sakamálinu nr. 18/2008:  Ákæruvaldið (Erna Sigríður Sigurðardóttir) gegn Lindu Rut Hreggviðsdóttur (Sigmundur Hannesson hrl.) sem tekið var til dóms hinn 21. janúar sl. að lokinni aðalmeðferð.

Málið er höfðað með ákæru Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dagsettri  18. desember sl. á hendur ákærðu, Lindu Rut Hreggviðsdóttur, kt. [...], Jörfagrund 34, Kjalarnesi, „fyrir eftirtalin auðgunarbrot framin í Reykjavík 2006:

I.

Fyrir gripdeild, með því að hafa laugardaginn 10. júní, á bensínafgreiðslustöð Essó á Vesturlandsvegi, dælt eldsneyti að fjárhæð kr. 4.584 á bifreiðina TD-581 og ekið á brott án þess að greiða fyrir það.

Telst þetta varða við 245. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

II.

Fyrir þjófnað, með því að hafa þriðjudaginn 28. nóvember, í húsnæði Klassíska listadansskólans, Grensásvegi 14, stolið Motorola V3i RAZR GSM síma að andvirði kr. 25.900 og kveikiláslyklum úr búningsklefa starfsmanna skólans.

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

Í máli þessu gerir Hrafnhildur Benediktsdóttir, kt. [...], þá kröfu að ákærða verði dæmd til greiðslu skaðabóta að fjárhæð kr. 25.900.

Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar.“

Málavextir

I.

Ákærða hefur skýlaust játað það brot sem hún er saksótt fyrir.  Hefur hún orðið sek um athæfi það sem lýst er í ákærunni og réttilega er þar fært til refsiákvæðis. Dæma ber ákærðu til að greiða Essó skaðabætur að fjárhæð kr. 4.584.

II.

Fyrir liggur að ákærða kom akandi að húsnæði Klassíska listdansskólans ásamt vini sínum, Guðmundi Sigurðssyni þriðjudagskvöldið 28. nóvember 2006. Fór ákærða þar inn og sést af upptöku í öryggismyndavél að klukkan var þá 19.13.19.  Á annarri upptöku sést hvar hún kemur inn í afgreiðslu skólans sem er mannlaus og sest þar í hægindi.  Eftir stutta stund sést hún standa á fætur og á upptöku úr þriðju myndavélinni sést hvar hún gengur inn eftir gangi í húsnæðinu sem liggur að meðfram æfingasal og hverfa þar inn um dyr.  Eftir um eina og hálfa mínútu sést hún koma út aftur og ganga aftur út ganginn þar sem hún mætir Guðmundi þessum.  Sést að hún er með einhvern smáhlut í hendi.  Ákærða er frá upphafi með hettu dregna yfir höfuð  og þar til þau Guðmundur hverfa úr myndinni.  Þá sést að nemendur sem voru að dansa í salnum við hliðina á ganginum hafa orðið varir við mannaferð og koma fram úr salnum.  Sést einn þeirra hraða sér fram ganginn á eftir ákærðu og Guðmundi.  Fram er komið að einn nemandinn saknaði bíllykla og farsíma úr veski sem var inni í herberginu sem ákærða fór inn í.  Eftirgrennslan lögreglu leiddi til þess að grunur beindist að ákærðu og fóru lögreglumenn heim til hennar og hittu hana þar ásamt nefndum Guðmundi.  Vísaði Guðmundur á bíllykla inni á baðherbergi, sem reyndust vera lyklar að bíl nemandans.

Ákærða hefur frá upphafi neitað sök.  Í skýrslu sem hún gaf hjá lögreglu í janúar 2007 kvaðst hún hafa komið í skólann til þess að spyrjast fyrir um balletkennslu fyrir dóttur sína.  Hafi hún beðið heillengi í anddyri skólans, í um hálftíma, en þá þurft á salerni og farið þangað.  Eftir það hafi hún farið út því hún nennti ekki að bíða lengur eftir afgreiðslu.  Kvaðst hún hvorki hafa stolið síma né bíllyklum en gat þess að þau Guðmundur hefðu lánað konu að nafni “Hófí” bílinn en neitaði að tjá sig frekar um þá konu.  Fyrir dómi hefur ákærða einnig neitað sök. Hefur hún kannast við að dóttir hennar hafi ekki búið hjá henni þegar þetta gerðist og sé stúlkan nú í varanlegu fóstri úti á landi.  Að vísu hafi staðið til að hún kæmi á þessum tíma til dvalar hjá ákærðu. ´ Fyrir dóminn hefur komið Hrafnhildur Benediktsdóttir og staðfest það að úr veski hennar sem var í herberginu inn af ganginum hafi horfið bæði bíllyklar og farsími.  Hafi síminn verið nýlegur og bótakrafa hennar sé byggð á verði nýs síma af sömu gerð.

Niðurstaða

Frásögn ákærðu er öll hin ótrúlegasta.  Þá er á það að líta að heima hjá henni fundust lyklarnir að bíl Hrafnhildar og eins hitt að hún sést halda á smáhlut þegar hún kemur út úr herberginu.  Þykir óhætt að telja sannað að hún hafi stolið þessum verðmætum úr veski Hrafnhildar og gerst brotleg við 244. gr. almennra hegningarlaga.

Refsing, skaðabætur og sakarkostnaður Ákærða hefur nokkrum sinnum áður gerst sek um auðgunarbrot, að vísu smáfelld.  Refsingu hennar ber að ákveða sem hegningarauka við þriggja mánaða fangelsisdóm sem hún hlaut í október í haust.  Ber að dæma upp þann dóm og gera ákærðu refsingu í einu lagi.  Þykir hún hæfilega ákveðin fangelsi í 6 mánuði.  Rétt þykir að láta skilorðið haldast og ákveða að fresta framkvæmd refsingarinnar og ákveða að hún falli niður að liðnum 3 árum frá dómsbirtingu, haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga.

Dæma ber ákærðu til þess að greiða Hrafnhildi Benediktsdóttur skaðabætur, sem ákveðast að álitum 20.000 krónur.

Dæma ber ákærðu til þess að greiða verjanda sínum, Sigmundi Hannessyni hrl., 100.000 krónur í málsvarnarlaun, sem dæmast með virðisaukaskatti.

DÓMSORÐ:

Ákærða, Linda Rut Hreggviðsdóttir, sæti fangelsi í 6 mánuði.  Frestað er því að framfylgja refsingunni og fellur hún niður að liðnum 3 árum frá dómsbirtingu, haldi ákærða almennt skilorð.

Ákærða greiði Essó 4.584 krónur í skaðabætur.

Ákærða greiði Hrafnhildi Benediktsdóttur 20.000 krónur í skaðabætur.

Ákærða greiði verjanda sínum, Sigmundi Hannessyni hrl., 100.000 krónur í málsvarnarlaun.

Pétur Guðgeirsson