Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjavíkur

Mál nr. S-1744/2007:

D Ó M U R

máli nr. S-1744/2007:

Ákæruvaldið

(Karl Ingi Vilbergsson fulltrúi)

gegn

Birni Bender

Ár 2007,

miðvikudaginn 21. nóvember, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í

Dómhúsinu við Lækjartorg af Pétri Guðgeirssyni, héraðsdómara, kveðinn upp dómur

í sakamálinu nr. 1744/2007: Ákæruvaldið (Karl Vilbergsson) gegn Birni Bender

(Bjarni Hauksson hdl.), sem tekið var til dóms 15. sama mánaðar.

Málið er höfðað með

ákæru Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dagsettri  1. nóvember sl. á hendur ákærða, Birni Bender, kt. [...],

heimilislausum manni,  “fyrir eftirtalin

hegningarlaga- og fíkniefnalagabrot:

I.

Fyrir hylmingu, með því að hafa haft eftirtalda muni í vörslum sínum á

dvalarstað sínum að Írabakka 30 í Reykjavík, þar sem lögregla gerði leit, þrátt

fyrir að vita að um þjófstolna muni væri að ræða og þannig haldið þeim ólöglega

fyrir eigendum þeirra:

(Bjarni Hauksson hdl)

(Karl Vilbergsson lögmaður)

Ávana- og fíkniefni. Hegningarauki. Hótanir. Hylming. Játningarmál. Fangelsi. Þjófnaður.

Karlmaður dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir auðgunarbrot og margvísleg önnur brot.

Ár 2007, miðvikudaginn 21. nóvember, er á dómþingi Héraðsdóms Reykjavíkur, sem háð er í Dómhúsinu við Lækjartorg af Pétri Guðgeirssyni, héraðsdómara, kveðinn upp dómur í sakamálinu nr. 1744/2007: Ákæruvaldið (Karl Vilbergsson) gegn Birni Bender (Bjarni Hauksson hdl.), sem tekið var til dóms 15. sama mánaðar.

Málið er höfðað með ákæru Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, dagsettri  1. nóvember sl. á hendur ákærða, Birni Bender, kt. [...], heimilislausum manni,  “fyrir eftirtalin hegningarlaga- og fíkniefnalagabrot:

I.

Fyrir hylmingu, með því að hafa haft eftirtalda muni í vörslum sínum á dvalarstað sínum að Írabakka 30 í Reykjavík, þar sem lögregla gerði leit, þrátt fyrir að vita að um þjófstolna muni væri að ræða og þannig haldið þeim ólöglega fyrir eigendum þeirra:

1. skjávarpi af gerðinni Sony, að verðmæti 118.406 krónur, sem stolið var úr innbroti í Digranesskóla að Álfhólsvegi 100 í Kópavogi, aðfaranótt föstudagsins 21. september 2007 og lögregla fann við húsleit 27. september.  (007-2007-72420).

  1. GPS-staðsetningartæki af gerðinni Garmin, að verðmæti 49.000 krónur, sem stolið var úr bifreiðinni OU-589, aðfaranótt miðvikudagsins 26. september 2007, þar sem hún stóð fyrir utan Vesturberg 56 í Reykjavík og lögregla fann við húsleit 1. október 2007. (007-2007-73726).

    3. skjávarpi af gerðinni Epson, sem stolið var úr innbroti í Digranesskóla að Álfhólsvegi 100 í Kópavogi, aðfaranótt miðvikudagsins 26. september 2007 og lögregla fann við húsleit 27. september.  (007-2007-73744).

    4. fartölva af gerðinni IBM, sem stolið var úr bifreiðinni AN-741 fimmtudaginn 27. september 2007, þar sem hún stóð í bifreiðastæði við kringluna í Reykjavík og lögregla fann við húsleit 1. október. (007-2007-74141).

    5. tvær dagbækur, sem stolið var úr bifreiðinni AU-447 fimmtudaginn 27. september 2007, þar sem hún stóð í bifreiðastæði við Háskólann í Reykjavík og lögregla fann við húsleit 3. október. (007-2007-74146).

    6. bílútvarpstæki af gerðinni Lava og þjónustubók bifreiðarinnar RT-030, sem stolið var úr bifreiðinni RT-030, miðvikudaginn 26. september 2007, þar sem hún stóð við Jörfabakka í Reykjavík og lögregla fann við húsleit 1. október.  (007-2007-75768).

    7. farsíma af gerðinni Blackberry, að verðmæti um 40.000 krónur, sem stolið var úr bifreiðinni MV-030 aðfaranótt 17. september 2006, þar sem hún stóð við Álfaskeið 45 í Hafnarfirði og lögregla fann við húsleit 3. október 2007.  (036-2006-11246).

    8. útvarpstæki af gerðinni DeWalt, sem stolið var úr nýbyggingu að Kirkjuvöllum 9 í Hafnarfirði á tímabilinu 14. júlí til 16. júlí 2007 og lögregla fann við húsleit 1. október.   (007-2007-54267).

    Telst þetta varða við 254. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

II.

Fyrir þjófnað, með því að hafa miðvikudaginn 26. september 2007, farið í heimildarleysi inn í bifreiðina IÞ-632, þar sem hún stóð við Skipholt 1 í Reykjavík, og stolið þaðan bakpoka, sem hafði að geyma minnislykil, fartölvu af gerðinni ASUS, myndavél af gerðinni Canon EOS, myndbandsupptökuvél af gerðinni Sony og 500 gígabæta færanlega gagnageymslu, og Ipod-spilara, samtals að verðmæti um 300.000 krónur.  (007-2007-73900) Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

III.

Fyrir þjófnað, með því að hafa fimmtudaginn 27. september 2007, farið í heimildarleysi inn í bifreiðina VN-480, þar sem hún stóð við verslun BT í Skeifunni í Reykjavík, og stolið þaðan fartölvu af gerðinni Acer og 80 geisladiskum.  (007-2007-74098).

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

IV.

Fyrir þjófnað, með því að hafa að kvöldi fimmtudagsins 27. september 2007, í verslun Lyfju við Smáratorg í Kópavogi, stolið þvagsýnaglasi, eyrnapinnum og plokkara, samtals að verðmæti 1.703 krónur, með því að stinga vörunum inn á sig og ganga með þær út úr versluninni án þess að greiða fyrir.  (007-2007-74179).

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

V.

Fyrir hótanir með því að hafa að kvöldi fimmtudagsins 27. september 2007, fyrir utan verslun Lyfju við Smáratorg í Kópavogi, þar sem öryggisvörður verslunarinnar, Guðmundur Grétar Guðmundsson, kt. 130974-5629, hafði afskipti af honum vegna ákæruliðar IV, dregið fram úr pússi sínu þrjár insúlínsprautur og hótað honum lífláti með því stinga hann, en háttsemi þessi var til þess fallin að vekja hjá Guðmundi Grétari ótta um líf sitt og velferð.  (007-2007-74179).

Telst þetta varða við 233. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

VI.

Fyrir þjófnað með því að hafa sunnudaginn 18. mars í verslun Hagkaupa í Smáralind í Kópavogi, stolið glasi af Haydroxycut brennslutöflum að verðmæti 7.461 krónur. (007-2007-19241).

Telst þetta varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

VII.

Fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa laugardaginn 26. maí, haft í vörslum sínum 0,91 gramm af amfetamíni, sem lögregla fann við leit er hún hafði afskipti af ákærða við bensínafgreiðslu Select við Smáralind í Kópavogi. (007-2007-38395) Telst þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 13, 1985 og lög nr. 68, 2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233, 2001, sbr. reglugerð nr. 848, 2002.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og að gerð verði upptæk fíkniefni sem hald var lagt á, sbr. ákæruliði VII,  samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001.”

Málavextir

Ákærði hefur skýlaust játað þau brot sem hann er saksóttur fyrir.  Hefur hann orðið sekur um verknaði þá sem lýst er í ákærunni og réttilega eru þar færðir til refsiákvæðis.  Ákærði á að baki talsverðan sakaferil.  Hann hefur fram til þessa verið dæmdur tíu sinnum, bæði fyrir brot gegn almennum hegningarlögum, umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni.  Síðast var hann dæmdur í 60 daga fangelsi 24. október sl. fyrir umferðarlagabrot en þar áður hafði hann verið dæmdur í tveggja ára fangelsi, 16. maí í vor, fyrir þjófnaði og hylmingarbrot.  Brot þau sem ákærði er nú sakfelldur fyrir eru öll, að einu undanskildu, framin eftir uppsögu þess dóms en jafnframt fyrir uppsögu síðasta dómsins.  Ákærði, sem neitað hafði öllum sökum við lögreglurannsóknina, hefur nú greiðlega játað á sig öll brotin og ber að virða honum það til refsilækkunar.  Þykir refsingin, sem er hegningarauki við síðasta dóminn, hæfilega ákveðin fangelsi í 6 mánuði.  Frá refsingunni ber að draga gæsluvarðhaldsvist sem ákærði hefur sætt frá  28. september sl., samtals 54 daga.

Dæma ber ákærða til þess að sæta upptöku á 0,91 g af amfetamíni samkvæmt tilfærðri lagaheimild.

Dæma ber ákærða til þess að greiða Bjarna Haukssyni hdl. 300.000 krónur í málsvarnarlaun til að meðtöldum virðisaukaskatti og 17.160 krónur í ferðakostnað.

DÓMSORÐ:

Ákærði, Björn Bender, sæti fangelsi í 6 mánuði.  Frá refsingunni dregst 54 daga gæsluvarðhaldsvist.

Ákærði sæti upptöku á 0,91 g af amfetamíni.

Ákærði greiði 300.000 krónur í málsvarnarlaun til Bjarna Haukssonar hdl. og 17.160 krónur í ferðakostnað.

Pétur Guðgeirsson