Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 3. desember 2024.
Mál nr. S-229/2024:
Ákæruvaldið
(Karl Ingi Vilbergsson saksóknari)
gegn
Geir Elí Bjarnasyni,
(Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður)
Ólafi Péturssyni og
(Sveinn Andri Sveinsson lögmaður)
Pétri Birni Péturssyni
(Þorgils Þorgilsson lögmaður)
Lykilorð
Fíkniefnalagabrot. Hegningarauki. Samverknaður. Upptaka.
Útdráttur
Ákærðu sakfelld fyrir fíkniefnalagabrot í félagi og dæmd í skilorðsbundið fangelsi. Upptaka. Játning.
Dómur
Mál þetta, sem dómtekið var 9. október 2024, er höfðað með ákæru héraðssaksóknara, dags. 25. janúar 2024, á hendur Geir Elí Bjarnasyni, kennitala 000000-0000, […], Ólafi Péturssyni, kennitala 000000-0000, […], Pétri Birni Péturssyni, kennitala 000000-0000, […], Sigurbjörgu Sjöfn Rafnsdóttur, kennitala 000000-0000, […], Sveini Rafni Eiríkssyni, kennitala 000000-0000, […] og Þorgeiri Ólafssyni, kennitala 000000-0000, […], „fyrir eftirtalin brot framin miðvikudaginn 4. maí 2022 nema annað sé tilgreint:
- Gegn ákærðu Sveini, Geir Elí, Ólafi, Pétri og Sigurbjörgu, fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, með því að hafa í jarðhýsi við sumarhús á X í […], haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 3.445 g af kannabislaufum, 695 g af maríhúana, 91 kannabisplöntu og 708,48 g af maríhúana, og hafa um nokkurt skeið fram til þess dags ræktað greindar plöntur, en lögregla lagði hald á framangreind fíkniefni við leit og 9.660 g af maríhúana sem fannst við leit í sumarhúsi að Y og 780 g af maríhúana sem ákærði Geir afhenti ákærða Þorgeiri til dreifingar, sbr. ákæruliður
Mál nr. […] og […]
Telst brot þetta varða við 173. gr. a. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. lög nr. 64/1974 og 32/2001.
- Gegn ákærða Þorgeiri, fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa á sama tíma og greinir í ákærulið 1. haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 780 g af maríhúana, sem ákærði Geir Elí afhenti Þorgeiri á heimili sínu að […] í […], en lögreglan lagði hald á efnin á heimili nafngreinds þriðja aðila síðar þennan sama dag. Mál nr. […] Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 808/2018.
- Gegn ákærðu Sigurbjörgu, með því að hafa haft í vörslum sínum 86,52 g af maríhúana og 40 ml af kannabisblönduðum vökva sem lögregla fann og lagði hald á á heimili hennar í sumarhúsi að X í […].
Mál nr. […]
Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 808/2018.
Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Krafist er upptöku á 3.445 g af kannabislaufum, 11.930 g af maríhúana, 91 kannabisplöntu, 40 ml. af kannabisblönduðum vökva, 36 gróðurhúsalömpum, 16 þurrkgri[n]dum, 50 straumbreytum, 7 viftum, 2 kolasíum, vatnsbóli úr plasti, 2 hitablásurum, 22 vatnsdælum, skilvindu, sbr. munaskrá nr. 162510, rakatæki, 9 gróðurhúsalöm[p]um, hitablásara, 3 straumbreytum, sbr. munaskrá nr. 163602 með vísan til 6. og 7. mgr. 5. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002. Þá er krafist upptöku á kr. 1.500.000,-, 300 USD, 25 pundum og 15 evrum, sem fannst við leit á heimili ákærða Þorgeirs, með vísan til 1. tl. 1. mgr. 69. gr. b almennra hegningarlaga nr. 19/1940.“
Við upphaf aðalmeðferðar gerði ákæruvaldið grein fyrir því að leiðrétt væri augljós villa í ákæru þar sem brotin hefðu verið framin um nokkurt skeið fram til 20. maí 2022 þegar húsleitir voru framkvæmdar á X og Y en ekki 4. maí eins og tilgreint væri í ákæru. Brot það sem sneri að ákærða Þorgeiri hefði átt sér stað 4. maí 2022. Voru ekki gerðar athugasemdir við það af hálfu verjenda.
Verjandi ákærða Þorgeirs gerir þá kröfu að ákærði verði dæmdur til vægustu refsingar sem lög heimila og fellst á upptökukröfu á 100.000 krónum. Þess er krafist að hafnað verði upptökukröfu á 300 USD, 25 pundum, 15 evrum og 1.400.000 íslenskum krónum. Ekki er gerð krafa um málsvarnarlaun.
Verjandi ákærða Geirs Elís gerir þá kröfu að ákærða verði ekki gerð refsing en til vara vægustu refsingar sem lög frekast heimila sem verði skilorðsbundin. Þá krefst verjandi málsvarnarlauna samkvæmt tímaskýrslu sem greiðist úr ríkissjóði.
Verjandi ákærða Ólafs gerir þá kröfu að honum verði gerð vægasta refsing sem lög frekast heimila sem verði skilorðsbundin. Þá krefst hann málsvarnarlauna samkvæmt tímaskýrslu sem greiðist úr ríkissjóði.
Verjandi ákærða Péturs Björns gerir þá kröfu að ákærði verði sýknaður en til vara vægustu refsingar sem lög frekast heimila sem verði skilorðsbundin. Þá krefst hann hæfilegra málsvarnarlauna samkvæmt tímaskýrslu sem greiðist úr ríkissjóði.
Verjandi ákærðu Sigurbjargar gerir aðallega þá kröfu að ákærulið 1 verði vísað frá dómi. Til vara er þess krafist að ákærða verði sýknuð og til þrautavara að ákærðu verði ekki gerð refsing. Til þrautaþrautavara er krafist vægustu refsingar er lög frekast heimila sem verði skilorðsbundin. Þá krefst hann málsvarnarlauna að mati dómsins sem greiðist úr ríkissjóði.
Verjandi ákærða Sveins Rafns gerir aðallega þá kröfu að ákærulið 1 verði vísað frá dómi en til vara sýknu og til þrautavara að ákærða verði gerð vægasta refsing sem lög frekast heimila. Þá krefst hann málsvarnarlauna samkvæmt tímaskýrslu sem greiðist úr ríkissjóði.
I
Málavextir
Samkvæmt upplýsingaskýrslu lögreglu þann 3. maí 2022 hafði lögregla haft til rannsóknar framleiðslu á fíkniefnum við sveitabæinn Z og fylgst með ferðum nokkurra einstaklinga. Við það eftirlit vaknaði grunur um framleiðslu fíkniefna á eða við X, þar sem er að finna sumarhús og útihús auk gáma. Hafði lögregla séð ákærða Geir Elí fara þar í fjögur skipti í apríl auk 2. maí á leið að Z og stoppa í 30 mínútur upp í tvo tíma. Vaknaði grunur um að ákærði væri að líta eftir kannabisræktun. Skráður landeigandi er ákærða Sigurbjörg en sonur hennar er ákærði Sveinn Rafn, sem lögreglu var kunnugt um að þekkti ákærða Geir Elí. Þann 2. maí 2022 sáu lögreglumenn ákærða Geir Elí fara að Z en í kjölfarið fór hann að Y, hvar hann stoppaði í 30–40 mínútur en ók síðan að X og dvaldi þar í sama tíma og að Y. Var það í fyrsta sinn sem lögreglu var kunnugt um að ákærði færi að Y og vaknaði grunur um að þar væri verið að standsetja eða setja af stað kannabisræktun. Skráður eigandi Y reyndist vera ákærði Pétur.
Samkvæmt upplýsingaskýrslu, dags. 14. júní 2022, fylgdist lögregla með ferðum ákærða Geirs Elís þann 4. maí 2022. Fór hann frá heimili sínu í […], kom við í BYKO á […] til að kaupa tvo pappakassa, ók síðan að X þar sem hann setti fíkniefni í kassana og þaðan heim til sín. Skömmu síðar kom þangað ákærði Þorgeir, tók við öðrum pappakassanum, fór með hann að […] og afhenti þar fíkniefnin aðila að nafni A, sbr. ljósmyndskýrslu lögreglu sem liggur fyrir í málinu. Lögregla haldlagði efnin síðar sama dag hjá A en í kassanum reyndust vera 780 g af maríhúana, sbr. efnaskýrslu tæknideildar lögreglu.
Þann 20. maí 2022 fór fram húsleit að X. Á vettvangi var ákærða Sigurbjörg sem var handtekin. Í jarðhýsi skammt frá sumarbústaðnum fundust kannabisplöntur í tveimur aðskildum rýmum í húsi, 50 plöntur í hægra rými og 41 planta í vinstra rými. Í haldlagningargögnum og efnaskýrslum er fundarstaður tilgreindur: hús, fundarstaður 2 og 3, herbergi á gólfi. Í málinu liggur fyrir matsgerð Rannsóknastofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði, dags. 22. júní 2022. Þar kemur fram að fimm plöntur af 50, efnaskrárnúmer […], og fjórar plöntur af 41, efnaskrárnúmer […], hafi reynst vera kannabis. Magn tetrahýdrókannabínóls í þurru sýni með efnaskrárnúmer […] hafi reynst 49 mg/g en reiknað magn í sýni við komu hafi verið 15 mg/g. Magn tetrahýdrókannabínóls í þurru sýni með efnaskrárnúmer […] hafi reynst 29 mg/g en við komu 8,2 mg/g. Þá fundust einnig kannabisefni í sjö smelluláspokum, í fjórum plastpokum á gólfi og á gólfi í húsi. Í haldlagningargögnum og efnaskýrslum er fundarstaður tilgreindur: hús, fundarstaður 2 og 3, herbergi á gólfi. Samkvæmt efnaskýrslum tæknideildar lögreglu reyndust efnin vera: 708,48 g af maríhúana í sjö smelluláspokum, 3.445 g af kannabislaufum og 695 g af maríhúana. Fundarstaður 708,48 g af maríhúana var auk þess sagður hafa verið í kaffistofu. Samkvæmt efnaskýrslu tæknideildar lögreglu reyndust efni sem fundust í stofu vera 86,52 g af maríhúana og það sem fannst í hlöðu 40 ml af kannabisblönduðum vökva. Var ræktunarbúnaður sem krafist er upptöku á í ákæru haldlagður ásamt efnum.
Húsleit að Y fór einnig fram 20. maí 2022. Á vettvangi var ákærði Ólafur sem var handtekinn. Í kjallara fundust m.a. tveir bjórkútar fullir af ætluðum kannabisefnum auk smelluláspoka, plastpoka og gleríláta með ætluðum kannabisefnum sem öll voru haldlögð, sbr. ítarlega ljósmyndaskýrslu. Samkvæmt efnaskýrslu tæknideildar lögreglu reyndist efni sem fannst í tveimur álkútum, 48 plastpokum og tveimur glerkrukkum í kjallara vera samanlagt 9.660 g af maríhúana.
Þann 24. maí 2022 fór fram húsleit á heimili ákærða Þorgeirs en í skúffu í herbergi hans fannst reiðufé, 100.000 krónur, 300 dollarar, 25 bresk pund og 15 evrur. Í fataherbergi inn af hjónaherbergi fannst reiðufé, alls 1.400.000 krónur, vafið í álpappír og inni í sokkum.
Samkvæmt upplýsingaskýrslum lögreglu um rannsókn á farsíma ákærða Geirs Elís, dags. 20. og 21. júlí 2022, hafði hann rætt margsinnis við ákærðu Sigurbjörgu í gegnum Signal en í stillingum eyddust öll skilaboð eftir 30 mínútur. Á samskiptasögu þeirra sást m.a. að ákærða Sigurbjörg hafði reynt að hringja í ákærða Geir Elí þann 19. maí er hann var á leiðinni austur að X. Ákærði Geir Elí hafði einnig verið í samskiptum við ákærða Þorgeir í gegnum Signal, þar sem hann var skráður „Thor“ með símanúmerið […], en ákærði Þorgeir var skráður fyrir númerinu í kerfum lögreglu. Ákærði Þorgeir sendi m.a. ákærða Geir Elí skilaboð, eftir að Geir hafði verið handtekinn, um að hann væri tilbúinn með 100.000 krónur og spurði hvort Geir gæti útvegað 100–200 g. Í símanum fannst einnig upptaka úr dyrabjöllukerfi ákærða Geirs Elís þar sem hann sást afhenda ákærða Þorgeiri pappakassa með kannabisefnum þann 4. maí 2022, sbr. ljósmyndaskýrslu lögreglu. Í símanum fannst ljósmynd sem ákærði Geir Elí tók 19. maí 2022 af kannabisplöntum á X. Finna mátti samskipti við aðila sem var skráður „Svenni“ með símanúmer […] en í kerfum lögreglu var ákærði Sveinn skráður með það númer. Fundust samskipti við Svenna um að hann vantaði pening. Í samskiptunum kom fram að ákærði Geir Elí teldi kannabisefni í þurrkun ekki vera tilbúið til sölu og kvaðst hafa beðið „Pésa“ um að „þreifa á þessu“ en ákærði Pétur var skráður sem Pési í farsímanum og var ákærði Geir Elí í samskiptum við hann í gegnum Signal og Telegram. Einnig sáust samskipti við „Óla“ í gegnum Signal í símanúmerinu […] sem í kerfum lögreglu var skráð á ákærða Ólaf. Í farsímanum fundust samskipti Geirs Elís í gegnum Signal. Voru ákærðu Geir Elí og Þorgeir í samskiptum þann 17. ágúst 2020 þar sem Þorgeir spyr hvort hann eigi að kíkja á Geir sem segir að einhver hafi ekki komið aur til sín. Voru þeir einnig í samskiptum 18. október 2020 þar sem Þorgeir segir að hann hafi verið að tala við Svenna og spyr hvort hann eigi að koma til Geirs en þeir mæla sér síðan mót. Þann 8. nóvember 2020 kveðst Þorgeir eiga að hitta Geir að beiðni Svenna til að sækja. Geir svarar og segist ekki ná að hitta Þorgeir fyrr en daginn eftir og spyr hversu mikið hann vilji fá en Þorgeir segir 1 slett. Þá fundust samskipti ákærða Geirs í gegnum Signal við aðila skráðan „S“ með símanúmerið […] en í kerfum lögreglu var ákærða Sigurbjörg skráð fyrir því númeri.
Farsími ákærðu Sigurbjargar var einnig rannsakaður, sbr. skýrslu lögreglu, dags. 22. júlí 2022. Í símanum mátti sjá að hún átti í samskiptum við „Óla Svenna“ í númerinu […] en í kerfum lögreglu var ákærði Ólafur skráður fyrir því númeri. Hann sendi ákærðu m.a. skilaboð á WhatsApp í júlí 2020 þar sem hann leiðbeindi henni með að hlaða niður samskiptaforritinu Signal, sem er dulkóðað. Í símanum mátti einnig sjá að hún notaðist við Signal í samskiptum við aðra ákærðu, sem voru iðulega símtöl en einnig fundust skrifleg skilaboð þar sem málefni tengd kannabisræktun og fíkniefnum virtust rædd. Í október 2020 var ákærði Ólafur í samskiptum við ákærðu þar sem hann sagðist þurfa að renna við á eftir til að sækja meira fyrir g, sem ákærða svaraði: „Allt í lagi“. Taldi lögregla að „g“ stæði fyrir ákærða Geir Elí og voru þau ákærða í samskiptum í apríl og maí 2022. Í símanum fundust samskipti ákærðu Sigurbjargar á Signal við aðila skráður sem „Pétur Svenni“ með símanúmerið […] en í kerfum lögreglu var ákærði Pétur skráður fyrir því númeri. Samskipti þeirra voru iðulega símtöl og mátti sjá að þau voru í sambandi í mars 2022. Einnig mátti sjá samskipti ákærðu með símtölum á Signal í apríl og maí 2022 við aðila sem var skráður „geir“ með símanúmerið […] en ákærði Geir Elí var skráður fyrir því númeri í kerfum lögreglu. Þá var ákærða í samskiptum við son sinn, ákærða Svein, á Signal og WhatsApp með símanúmerið […] en í kerfum lögreglu var hann skráður fyrir því símanúmeri, sbr. framar. Í samskiptum þeirra 22. júní 2020 spurði hún: „Á ég að tala við Geir eða Óla“ og í samskiptum 6. febrúar 2021 spurði ákærði Sveinn: „En hérna hvað fékkst þú mikinn aur hjá g?“ Þann 10. desember 2021 sendi ákærði Sveinn til ákærðu Sigurbjargar: „Oli og Toggi aetla svo ad graeja restina sem er ad bida thannig ad thad fara ad detta in aurar.“ Þann 20. desember 2021 sendi hann: „Hae, taladi vid t Hann laetur o fa aur 110.000 thegar their hittast naest, handa ther, svo kemur meir bradleg, gaetir thu lagt inn a mig fyrir leigunni?“ Þann 28. janúar 2022 sendi ákærða Sigurbjörg til ákærða Sveins: „T kom ekki með neinn pen en fékk meira?? Hvað er í gangi???“
Í málinu liggur fyrir yfirlit vegna rafmagnsnotkunar á X frá 8. júlí 2011 til 24. maí 2022 og upplýsingaskýrsla lögreglu, dags. 25. ágúst 2022, þar sem kemur fram að við skoðun á rafmagnsnotkun á X sjáist að hún hafi hækkað áberandi frá og með vori 2018.
Í skýrslu hjá lögreglu þann 20. maí 2022 kvaðst ákærði Geir Elí hafa hugsað um framleiðsluna að X síðustu vikur og verið að snyrta lauf daginn sem ákærði Sveinn hefði beðið sig um að aðstoða við framleiðsluna á X. Í lögregluskýrslu 25. maí 2022 sagði ákærði Geir Elí að ákærði Sveinn hefði haft samband fyrir tveimur árum, viljað byggja rými og spurt hvort ákærði vildi koma og hjálpa honum með þetta, sem ákærði kvaðst hafa gert. Sagðist ákærði eiga rýmið hægra megin, hafa fengið tvær til þrjár uppskerur og hafa verið með um 48 plöntur en ákærða Sigurbjörg sæi um það með honum, aðstoðaði við að láta net yfir og léti vita ef vantaði næringu. Ákærðu Pétur og Ólafur ættu hitt rýmið, og kvaðst ákærði ekki aðstoða þá en kíkja þangað þegar hann kæmi að X en ákærða Sigurbjörg hefði aðstoðað þá við vökvun. Komið hefðu um 3 kg úr síðustu uppskeru og þeir Sveinn fengið 1,5 kg hvor. Þegar efnin væru tilbúin hefði ákærði samband við ákærða Þorgeir ef illa gengi og kvaðst hafa afhent honum 800 g fyrir utan heimili sitt í byrjun maí en fyrir það hefði Þorgeir átt að greiða 300.000 krónur. Ákærði kvaðst hafa útvegað ræktunarbúnaðinn og þeir sem áttu hitt rýmið hefðu lánað honum einn til tvo lampa. Aðspurður kvað ákærði þá hafa þurrkað efnin í sama rými og þeir síðan geymt efnin á sama stað þegar þau væru tilbúin. Ákærði Ólafur hefði aðstoðað sig við ræktunina því ákærði Sveinn hefði verið erlendis. Kvaðst ákærði hafa látið ákærðu Sigurbjörgu hafa 50.000 krónur. Ákærði Þorgeir fengi peninginn sem ákærði Sveinn ætti að fá fyrir ræktunina á X.
Í skýrslu hjá lögreglu 20. maí 2022 kvaðst ákærði Ólafur eiga efni sem fundust að Y og í vinstri helmingi kannabisræktunar að X, en sagðist ekki vita hver ætti hinn helminginn. Í lögregluskýrslu 24. maí 2022 kvaðst ákærði Ólafur hafa ætlað að búa til olíur úr fíkniefnunum og hafa geymt þau í smelluláspokum til að vita hversu mikið hann ætti. Ræktun hefði hafist í ársbyrjun 2021 en uppskeran hefði skemmst í þurrkun og verið í svörtum kassa í kjallara að Y. Aðili úr Reykjavík hefði séð um að útvega búnað og plöntur og leiðbeint um ræktunina, án greiðslu. Samskipti þeirra hefðu farið fram á Telegram og Signal. Hann hefði sinnt ræktuninni sjálfur og aðeins hafa farið í hægra rýmið til að kveikja á vatni og slá inn rafmagni. Ákærði kvaðst hafa búið að X með ákærða Sveini í kringum árið 2020 og stuttu síðar hefði bróðir hans, ákærði Pétur, flutt þangað. Kannaðist ákærði hvorki við að hafa komið að því að byggja ræktunarrýmið né að hafa keypt byggingarefni til þess. Ákærði gat ekki útskýrt að fundist hefði timbur merkt „Ólafur“ í lofti ræktunarrýmisins en sagðist hafa hjálpað við smíði gólfsins þar.
Í lögregluskýrslu 21. maí 2022 kvaðst ákærði Pétur hafa gist að X hjá sameiginlegum vini sínum og ákærða Ólafs er hann vann á […] árið 2018 en hafa keypt Y 2019. Kvaðst hann hafa lánað vininum 4–5 milljónir, m.a. fyrir nýju eldhúsi og klósetti að X. Í kjölfar Covid hefði hann þurft að fá peninginn til baka frá vininum, sem hefði boðið sér að aðstoða við ræktunina og þannig fengið greitt til baka. Ákærði kvaðst hafa talið að hann fengi mögulega endurgreiðslu ef hann hjálpaði honum við þetta, svona eins og starfsmaður á plani. Vinurinn hefði farið til útlanda og kvaðst ákærði hafa vökvað fyrir hann á meðan án greiðslu. Ákærði kvaðst hafa fallist á að geyma efnið að Y því vinurinn hefði ekki viljað geyma það á sama stað. Móðir vinarins hefði flutt að X en ákærði kvaðst hafa farið í aðgerð í október 2021 og febrúar 2022 og verið lengi frá vinnu. Ákærði greindi síðan frá því að sá sem hefði fengið lánaðan peninginn væri ákærði Sveinn, sonur ákærðu Sigurbjargar. Þá kvað hann ákærða Geir hafa komið reglulega að X. Ákærði kvaðst hafa verið á svæðinu haustið 2019 þegar ákærði Sveinn hefði sett upp ræktunarrýmið og hafa mögulega sett nagla í það. Ákærða Sigurbjörg hefði tekið yfir hans starf þegar hún hefði komið að X, við að vökva og kíkja eftir. Ákærði kvaðst hafa komið að X 17. maí sl. að beiðni Sigurbjargar vegna leka og allt verið á floti. Þau hefðu verið í samskiptum á Telegram og Signal í hópspjalli með ákærða Geir, sem hefði sagt hvað þyrfti að gera, og ákærði þá gert það. Ákærði kvaðst ekki vita hver ætti ræktunina og halda að síðasta uppskera hefði verið í desember en hún hefði verið geymd heima hjá honum, sem og uppskera í maí 2022, og náð í efnin þangað. Ákærði kvaðst hafa klippt niður uppskeru í fjögur skipti, ákærði Sveinn hefði verið með í eitt eða tvö skipti og ákærði Geir alltaf verið með. Efnið hefði verið þurrkað að X á grindum en ákærði kvaðst hafa hjálpað til við að setja efnin sem hefðu fundist heima hjá honum í umbúðir og flutt þau að Y, þ. á m. efnin sem fundust í bjórkútunum. Ákærði sagði að hefði hann tekið við peningum frá ákærða Geir hefðu þeir átt að fara til ákærðu Sigurbjargar. Ákærði kvaðst hafa fengið smáræði greitt vegna þessa inn á skuldina. Ákærði Geir hefði komið tvisvar að Y og síðast fyrir síðustu áramót. Ákærði kvaðst halda að plönturnar hefðu verið um 70 til 80 og eiga eftir fjórar til sex vikur.
Lögregla ræddi við ákærðu Sigurbjörgu á vettvangi þann 20. maí 2022, sem kvaðst hafa grunað að kannabisræktun væri að X en ræktunin hefði verið komin upp þegar hún kom þangað fyrir tveimur árum. Í skýrslu á lögreglustöð sama dag sagði ákærða að lítið hús og jarðhýsi sem tyrft hefði verið yfir og hulið hefði verið byggt án hennar vitundar. Sveinn hefði sagt að þetta væri allt í lagi því það væru svo fáar plöntur en ákærða kvaðst hafa sagt við hann að hún bæri ábyrgð sem eigandi og viljað að hann fjarlægði allt tengt kannabisræktuninni í útihúsinu. Ákærða kvaðst ekki geta sagt til um hversu oft hefði verið ræktað en einhver annar hefði stjórnað ljósum o.þ.h. Rýmið væri þannig að fyrst væri geymsla, þar væri hurð niður í miðrými en til hliðar við það væru rými, sem hefðu verið með plöntum þegar hún fór þangað síðast. Kvaðst hún halda að efnin hefðu verið þurrkuð þar. Hún hefði greitt rafmagnsreikninga en fengi af og til pening frá Sveini í umslagi, sem hefði verið sett á borðið í tvö eða þrjú skipti. Kvaðst hún halda að ákærðu Ólafur, Pétur og Geir hlytu að hafa gert það, að beiðni ákærða Sveins. Ákærða kvaðst bera ábyrgð á því að hafa látið þetta viðgangast en ekki hafa tekið þátt í að hirða plönturnar. Hún hefði verið í samskiptum á Signal við þrjá vini Sveins, ákærðu Pétur, Ólaf og Geir, og í töluverðum samskiptum við Geir. Hann stoppaði alltaf hjá henni þegar hann kæmi til að fara í útihúsið, þar sem hann væri í 10 til 30 mínútur, sem hann hefði m.a. gert daginn áður. Ákærðu Ólafur og Pétur kæmu einnig að X til að fara í útihúsin. Ákærða kvaðst hafa notað kannabis sem hún vísaði á í hesthúsi vegna fótameins hjá hrossi.
Í símaskýrslu hjá lögreglu 13. ágúst 2022 kannaðist ákærði Sveinn við að hafa sett upp og komið af stað kannabisræktun að X með aðstoð ákærðu Ólafs og Geirs Elís, en Geir Elí hefði haft frumkvæðið og komið með búnað og græðlinga. Ákærði Þorgeir hefði eitthvað verið að hjálpa strákunum. Ákærða Sigurbjörg hefði ekki haft hlutverk í ræktuninni en lokað augunum. Ræktun hefði hafist áður en hann hefði farið út í mars 2020 en hann hefði ekki neitt nema upp í rafmagnskostnað. Ákærði kvaðst ekki hafa átt neitt í ræktuninni en hafa vökvað og átt að fá greidda leigu. Ákærði kannaðist við að ákærði Þorgeir hefði tekið við peningum úr ræktuninni til að koma til hans eða ákærðu Sigurbjargar. Ákærði kvaðst hafa tekið þátt í að setja upp ræktun í hægra rýminu og hafa tekið þátt í einni eða tveimur ræktunum en kvaðst ekki vera viss um hvort ákærðu Ólafur og Pétur ættu annað rýmið. Ákærðu Geir og Ólafur hefðu sinnt ræktun í vinstra rýminu og ákærði Geir tekið ákvarðanir varðandi ræktunina. Þeir hefðu yfirleitt skilið eftir pening hjá ákærðu Sigurbjörgu upp í rafmagnskostnað og smá auka. Ákærði kannaðist ekki við að hafa fengið helming 3 kg uppskeru á móti ákærða Geir Elí en kvaðst hafa fengið einhvern aur.
II
Skýrslur ákærðu og vitna fyrir dómi
Ákærði Geir Elí játaði fyrir dómi að hafa átt 50 plöntur og efni í hægra rými að X en neitaði að hafa átt plöntur eða efni í vinstra rýminu. Hann hefði aðstoðað ákærða Svein við að setja upp kannabisræktun í hægra rými og komið með búnaðinn en þeir hefðu átt það saman. Sveinn hefði farið til útlanda og látið móður sína um að vökva plönturnar en ákærði kvaðst hafa átt að koma með næringu og þess háttar. Jarðhýsið væri með miðjurými og tvö aðskilin rými hægra og vinstra megin, ekki verið alveg niðurgrafið en hulið sandi auk skúrs við hliðina á því. Ræktun hefði byrjað fyrir Covid, að hann minnti árið 2018. Ákærðu Ólafur og Pétur hefðu komið stuttu síðar og væntanlega sett upp vinstra rýmið en ákærði neitaði að hafa útvegað þann ræktunarbúnað. Komið hefðu tvær til þrjár uppskerur sem hefðu verið lélegar og meirihluta verið hent en um 3 kíló hefðu komið úr einni. Aðspurður hvert þessi 3 kíló hefðu farið kvaðst ákærði hafa látið ákærða Þorgeir fá 780 g í maí 2022 af sínum hluta en hann kvaðst ekki vita hvað ákærði Sveinn hefði gert við sinn hluta. Ákærði kvaðst hafa klippt plönturnar niður þegar þær voru tilbúnar, einu sinni með ákærða Sveini, auk þess sem ákærði Ólafur hefði aðstoðað í eitt skipti meðan Sveinn var erlendis. Plönturnar hefðu verið þurrkaðar á þurrkgrind inni í hægra rýminu og afraksturinn geymdur þar. Ræktunin hefði verið alveg aðskilin og kvaðst ákærði ekkert hafa aðstoðað við ræktun í vinstra rýminu þótt hann hefði komið þar inn til að athuga hvort allt væri í góðu og hafa látið ákærða Ólaf vita ef eitthvað væri að. Ákærði kvaðst einn hafa sett efnin í sölupakkningar. Aðspurður um 3.445 g af kannabislaufum, 695 g af maríhúana og 708,48 g af maríhúana sem fundust að X kvaðst ákærði ekki gera sér grein fyrir í hvoru rýminu þau hefðu verið en hann hefði aðeins átt efni í hægra rýminu.
Ákærði neitaði að eiga eitthvað af 9.660 g af maríhúana sem fundust á Y og kvaðst hafa afhent ákærða Þorgeiri efnið frá X. Ákærði Sveinn hefði væntanlega fengið þann hagnað sem honum hefði borið og þeir verið í samskiptum vegna ræktunarinnar á árinu 2022. Ákærða Sigurbjörg hefði tekið við vökvun af Sveini þegar hann fór erlendis en ákærði kvaðst hafa séð um næringuna. Ákærði kvað Svein hafa ráðið ferðinni varðandi ræktunina en hann eða móðir hans hefðu átt húsið og svæðið. Hefði Sveinn viljað taka ræktunina niður hefði það verið gert og það verið rætt, því móðir hans hefði viljað það. Ákærðu Ólafur og Pétur hefðu verið með fullkomnari búnað, þ. á m. vökvunarkerfi með flotholti, og því væntanlega þurft að koma sjaldnar til að vökva, auk þess sem þeir hefðu verið með ný ledljós og rakaskilju.
Aðspurður um að ákærði hefði sagt í skýrslu hjá lögreglu þann 25. maí 2022 að efnin hefðu verið þurrkuð í sama rými á X kvaðst ákærði hafa meint að þurrkunin hefði verið á sama stað og ræktunin. Uppskera þeirra Sveins hefði ekki verið á sama tíma og uppskera ákærðu Ólafs og Péturs, sem hefði verið seinna, en þá kvaðst ákærði væntanlega hafa verið búinn að taka sitt efni í burtu. Ákærði kvaðst aðspurður hafa farið í sturtu á Y 2. maí 2022, auk þess sem hann hefði farið í annað skipti til að segja þeim Ólafi og Pétri að Sigurbjörg vildi að ræktunin yrði tekin niður. Spurður um að hafa sagt hjá lögreglu að ákærði Þorgeir hefði fengið pening sem ákærði Sveinn hefði átt að fá vegna ræktunarinnar kvaðst ákærði ekki vita hvernig samskiptum Þorgeirs og Sveins hefði verið háttað. Sigurbjörg hefði fengið 50.000 krónur í greiðslu en ákærði kannaðist ekki við að hún hefði fengið peninga í umslagi. Ákærði neitaði að hafa aðstoðað við að koma upp ræktunarbúnaði í rými Péturs og Ólafs.
Ákærði Ólafur kvaðst hafa átt öll efnin sem fundust á Y en þau hefðu verið til að framleiða olíu til eigin nota vegna veikinda. Ákærði Sveinn hefði boðið honum endurgjaldslaust rýmið vinstra megin á X, sem hefði verið tómt en einhver búnaður á staðnum. Þá hefði hann fengið ókeypis búnað, græðlinga og ráðgjöf hjá sérfræðingi, sem ákærði vildi ekki nafngreina, en mögulega hefði staðið til að greiða honum síðar. Náðst hefðu tvær uppskerur fyrir maí 2022 og afrakstur þeirra geymdur á Y en ákærði sagðist ekki muna hvenær ræktunin hefði hafist. Græðlingarnir hefðu verið vökvaðir í rétta stærð, uppskeran verið þurrkuð og sett í smelluláspoka. Aðspurður hvers vegna kvaðst ákærði hafa gert það svo hann vissi hvað hann ætti mikið af efni en neitaði að það hefði verið í sölutilgangi. Ákærði Pétur hefði vökvað í fjarveru ákærða en ekkert komið nálægt ræktuninni eða flutningi yfir að Y. Ákærði kvaðst ekki vita hvert hlutverk ákærðu Sigurbjargar hefði verið en hún hefði ekkert aðstoðað sig.
Ákærði kvaðst hafa einn átt plönturnar í vinstra rýminu að X en hann hefði ekki átt plöntur í hægra rými. Ákærði kannaðist hvorki við tæp 3,5 kg af kannabislaufum né um 1,4 kg af maríhúana sem einnig fundust á X. Ræktunin hefði verið alveg aðskilin, afraksturinn hefði ekki runnið saman og hans hluti verið geymdur að Y. Ákærði kannaðist við að hafa komið inn í hægra rýmið því rafmagnstaflan hefði verið þar og hann þurft að fara í hana ef slegið hefði út, auk þess sem þar væri vatnsinntak fyrir vökvun. Hann hefði því vitað af ræktuninni þar en ekkert komið að henni og ekki vitað hver ætti hana. Beðinn um að lýsa rýminu sagði ákærði bygginguna hafa verið niðurgrafna með tveimur rýmum og gangi á milli þeirra. Aðspurður hvernig ákærði hefði ætlað að nota 10 kg til að búa til olíu kvaðst hann hafa skoðað YouTube-myndbönd en aldrei náð því að búa hana til. Aðspurður um að hann hefði engu að síður ræktað í tvö ár kvaðst ákærði hafa viljað eiga efni til framtíðar því hann hefði vitað að landeigandi vildi ekki umferð um jörðina, auk þess sem stór hluti hefði verið ónýtur eða myglaður. Ákærði neitaði að hafa aðstoðað ákærða Geir Elí við að klippa niður í hægra rými, eins og ákærði Geir Elí bar fyrir dómi. Varðandi frásögn ákærða Péturs hjá lögreglu um að hann hefði klippt plönturnar niður, pakkað í sölupakkningar og í bjórkúta og flutt efnin frá X að Y sagði ákærði að Pétur hefði verið í áfalli og búið til sögur. Efnið hefði verið þurrkað í ræktunarrýminu, sett þar í poka og flutt að Y. Ákærði kannaðist ekki við efni nema í ræktunarrýminu, þar hefðu aðeins verið kannabisplöntur en ekki maríhúana. Ákærði kvaðst halda að vökvunarbúnaður og lýsing hefði verið mismunandi í rýmunum en að öðru leyti svipað fyrir utan rakatæki sem hann hefði verið með. Ákærði kannaðist ekki við að hafa lánað lampa yfir í hægra rýmið.
Ákærði Pétur kvaðst hafa leyft bróður sínum Ólafi að geyma efnin í dunkum í kjallaranum heima hjá sér, að hann minnti haustið 2021. Ákærði kvaðst hafa farið einu sinni eða tvisvar til að vökva en ekkert komið að þessu að öðru leyti. Aðspurður um að Ólafur hefði greint frá því fyrir dómi að hann hefði byrjað að rækta að X árið 2020 sagði ákærði að það gæti verið að Ólafur hefði komið með efnin fyrr án þess að ákærði hefði vitað af því. Ákærði kvaðst hafa vitað af ræktuninni og Ólafur hefði beðið sig um að fara einu sinni, mögulega tvisvar, að setja vatn í kar áður en hann hefði farið í aðgerð í október 2021. Ákærði kannaðist hvorki við að hafa klippt niður uppskeru, þurrkað hana, pakkað í sölupakkningar og flutt að Y né að hafa sett efnin í bjórkúta. Ákærði kvaðst hafa verið í töluverðu sjokki er hann gaf skýrslu hjá lögreglu og hafa haldið að hann væri á leiðinni í einangrun á Hólmsheiði. Sagðist hann aldrei hafa játað að hafa tekið þátt í fíkniefnasölu. Hann hefði aðeins sagt að hann vissi af þessum efnum heima hjá sér. Ákærði kvaðst þekkja ákærðu Geir Elí og Svein en hann hefði ekki vitað að þeir væru að rækta fíkniefni.
Ákærði kannaðist við að hafa lánað ákærða Sveini pening til að gera upp hús þar sem ákærði hefði fengið að gista. Ákærði kvaðst ekki muna um hvern hann hefði verið að tala í lögregluskýrslu, þar sem hann hefði sagt að hann gæti fengið skuldina borgaða ef hann aðstoðaði hann við ræktunina. Nánar spurður kvaðst ákærði hafa verið að tala um Óla, bróður sinn. Ákærði var þá spurður um að hann hefði sagt hjá lögreglu að mamma hans hefði flutt á svæðið og hvort það hefði þá verið móðir ákærða en ákærði kvaðst þar hafa verið að tala um móður Sveins. Borið var undir ákærða að hann hlyti þá að hafa verið að tala um Svein en ákærði kvaðst bara ekki muna það. Ákærði var spurður hvað hefði falist í því að hann hefði sagt hjá lögreglu að ákærða Sigurbjörg hefði tekið við hans starfi. Ákærði kvað hana hafa tekið við því að sjá um sveitabæinn og þegar borið var undir hann að hann hefði greint frá þessu í beinu framhaldi af því að lýsa ræktuninni kvaðst ákærði ekki vita það. Ákærði kvaðst hvorki muna eftir að hafa sagt í lögregluskýrslu að Sigurbjörg hefði haft samband vegna leka né að hafa verið í hópspjalli á Signal. Það gæti verið að hann hefði játað í lögregluskýrslu að ákærði Geir hefði verið í hópspjalli. Ákærði kannaðist hvorki við að hafa sagt hjá lögreglu að hann hefði klippt niður í fjögur skipti að X né að ákærði Sveinn hefði verið þar einu sinni eða tvisvar og ákærði Geir Elí í öll skiptin. Þeir hefðu verið á staðnum en ekki til að klippa og nánar spurður sagði hann að Geir hefði einu sinni komið með efni frá BYKO þegar þeir hefðu verið að gera upp húsið.
Ákærða Sigurbjörg kvaðst hafa flutt að X í febrúar eða mars 2020 og þá hefði jarðhýsið, sem hefði verið grafið inn í hól, verið komið. Sveinn hefði búið þar til áramóta 2019/2020 ásamt bræðrunum, ákærðu Ólafi og Pétri. Ákærða kannaðist við að hafa farið inn í rýmin í jarðhýsinu og að þar hefði verið kannabisræktun og hún séð ummerki ræktunar það sumarið en nánar spurð kvaðst ákærða hafa séð ræktun í lokin, rétt áður en lögreglan hefði komið. Þeir hefðu stundum verið í vandræðum með ljósin og þá hefðu þeir hringt og hún verið beðin um að athuga hvort ljósin væru kveikt eða ekki og hversu mikið væri eftir af vatni. Aðspurð kvaðst ákærða hafa gert þetta að beiðni ákærðu Ólafs og Geirs Elís. Ákærða sagðist aðeins hafa verið í sambandi við Pétur, Óla og Geir, spurð hvort einhverjir fleiri hefðu beðið um slíkt. Þeir hefðu m.a. spurt hvort ákærða ætti batterí og beðið hana að fara niður til að láta þá vita hvað væri mikið eftir af næringu. Hún hefði ekki vitað hverjir hefðu staðið að ræktuninni og sagði að það hefði ekkert þýtt að spyrja son sinn sem hefði sagt: „Mamma, bara því minna sem þú veist, því betra.“ Aðspurð hvort hún hefði séð Pétur huga að ræktuninni sagði ákærða að þeir hefðu verið með fatnað og húsgögn í hennar rými, verkfæri og dót í hesthúsinu og hún hefði veifað þegar hún sá þá, en hún gæti ekki séð frá húsinu hvort þeir væru að fara í kjallarann. Aðeins Óli og Geir Elí hefðu beðið hana um að líta eftir ræktuninni en það hefði verið vandræðagangur á þeim varðandi rafmagn, ljós og vatn. Ákærða kvaðst ekki muna hvort hún hefði farið að vökva plöntur í rýmunum og gæti ekki sagt til um hvort hún hefði farið niður til að skrúfa frá vatni, en hún hefði ekki þekkt þessa menn og ekki þorað annað en að vera almennileg og þvo fyrir þá vinnugalla ef þeir báðu um það. Þetta hefði farið óskaplega illa með hana og hún hefði ekki nærst, heldur legið fyrir í nokkra mánuði. Þeir hefðu þurft að koma einu sinni í viku og fylla á körin en annars hefði þetta verið sjálfvirkt. Nánar spurð hverjir „þeir“ væru kvaðst ákærða eiga við Óla og Geir. Hún hefði reynt að tala um þetta við son sinn og hafa verið búin að biðja þá um að taka þetta en það hefði dregist. Ákærða kvaðst hafa vitað um tvær ræktanir þegar allt myglaði og þegar lögreglan kom. Hún hefði greitt rafmagnsreikninginn og endurgreiðsla reynst erfið, en einu sinni hefðu 50.000 krónur legið á gólfinu, sem hefði verið eina greiðslan. Hún hefði sagt við Svein að þeir yrðu að borga rafmagnið en hann hefði átt að greiða það því hún hefði ekki ætlað að ræða það við hina. Ákærða kvaðst bera ábyrgð af því hún hefði vitað hvað væri í gangi og ekki sagt frá en hún hefði ekki þorað því. Ákærða kvaðst hvorki hafa vitað af kannabisplöntum eða efnum sem fundust í jarðhýsinu né af maríhúana að Y. Ákærða neitaði að hafa átt 86 g af maríhúana og kannabisvökva, sbr. ákærulið 3, en sagði olíuna hafa verið í hesthúsinu því þeir hefðu skilið hana eftir og hún notað fyrir veikan hest. Ákærða kannaðist við að hafa verið í samskiptum við Óla, Pétur og Geir á Signal og kvaðst minna að Óli hefði hjálpað henni að setja það upp í símanum. Það hefði sjaldan verið hringt og þá aðallega til að biðja hana að athuga hvort það væri kveikt eða slökkt, auk þess sem rafmagnið hefði slegið út.
Ákærði Sveinn kvaðst hafa verið erlendis frá mars 2020 til ársins 2023 en hafa búið að X fram að því. Kvaðst hann hafa smíðað jarðhýsið sem geymslur. Ákærði vildi ekki tjá sig um það hvort ákærði Geir Elí hefði komið með búnað til kannabisræktunar né hvort ákærði hefði vitað af slíkri ræktun. Ákærði kannaðist við að hafa verið í samskiptum af og til við ákærðu Ólaf, Geir Elí og Pétur fyrir maí 2022. Hann kannaðist ekki við að móðir hans hefði rætt við hann um að vilja ekki kannabisræktun í sínum húsum. Ákærði kannaðist ekki við að hafa falið móður sinni að sjá um vökvun á plöntum eins og ákærði Geir Elí hefði borið um fyrir dómi. Ákærði kannaðist við að hafa greint frá í lögregluskýrslu í ágúst 2022 að ákærðu Ólafur og Geir væru með ræktun í jarðhýsinu að X. Ákærði sagði móður sína hafa borgað rafmagnsreikninga en hann hefði ekki vitað hvort til hefði staðið að endurgreiða henni. Hann staðfesti að hafa sagt hjá lögreglu að móðir hans hefði fengið greitt til baka og jafnframt að hann hefði átt að fá leigugreiðslur. Ákærði kvaðst hins vegar ekkert hafa fengið greitt svo hann vissi til né muna hvernig þetta hefði verið því það væri svo langt síðan. Kvaðst hann ekki muna eftir að hafa fengið greitt fyrir ágóða af fíkniefnaræktuninni eða þekkja til þess að ákærði Þorgeir hefði tekið við greiðslum vegna hans hluta í ræktun.
Ákærði Þorgeir kvaðst fyrir dómi játa sök varðandi þá háttsemi sem honum væri gefin að sök í ákærulið 2, en það hefði verið vinargreiði. Nánar spurður kvaðst ákærði hafa verið spurður hvort hann vissi um einhvern sem gæti reddað efni. Aðspurður hvernig ákærði hefði komist í samskipti við Geir Elí kvaðst ákærði hafa þekkt hann lengi og vitað að hann ætti gras vegna orðsins á götunni. Ákærði kannaðist við að þekkja ákærða Svein en kvað hann ekki hafa tengst fyrrgreindri afhendingu á maríhúana. Ákærði kvaðst ekkert hafa fengið greitt fyrir og spurður hvort hann hefði greitt fyrir efnið kvaðst ákærði hafa ætlað að láta hann fá þessar 100.000 krónur seinna. Kvaðst hann hafna upptöku á 1,4 milljónum króna, sem hefðu fundist í herbergi eiginkonu hans, en hann hefði hvorki vitað af þeim né hvernig hún hefði eignast þá. Evrur, pund og dollarar hefðu verið þjórfé vegna starfs sem einkaleiðsögumaður. Aðspurður um að ákærði Sveinn hefði sagt í skýrslu hjá lögreglu að ákærði hefði haft það hlutverk að tengja ákærðu Ólaf og Geir Elí við kaupendur fíkniefna kvað ákærði það ekki vera rétt, það hefði bara verið þetta eina tilvik. Aðspurður um að Geir Elí hefði greint frá því hjá lögreglu að peningar sem hefðu verið hlutur Sveins í ræktuninni hefðu átt að greiðast til ákærða sagði hann að Sveinn hefði lánað sér pening í kringum árið 2000 til að fara til Tenerife, en ekkert hefði átt að renna til sín.
Lögreglumaður nr. B greindi frá því að málið hefði hafist í tengslum við annað mál í sömu sveit og varðað að hluta til sömu aðila, sem hefðu verið til rannsóknar og undir eftirliti. Lögregla hefði orðið vör við að ákærði Geir hefði farið á annan bæ skammt frá og þá hefði hafist skoðun á því hvað væri þar í gangi. Það hefði leitt til þess að upp hefði komist um kannabisræktun að X og á sama tíma að Y en vitnið kvaðst ekki hafa tekið þátt í húsleitum. Fylgst hefði verið með ferðum ákærða Geirs í byrjun maí þegar hann hefði farið austur fyrir fjall, ákærði hefði keypt kassa í BYKO og farið í sveitina og honum verið fylgt eftir vegna gruns um að hann hefði verið að sækja efni. Í kjölfarið hefði ákærði Geir sést afhenda ákærða Þorgeiri kassann, sem hefði síðan afhent hann erlendum karlmanni. Aðspurt kvaðst vitnið ekki hafa tekið ákvörðun um það hvaða efni hefðu verið send í greiningu og ekki muna hver hefði gert það.
Lögreglumaður nr. C, sem staðfesti skýrslu sína, greindi frá því að framkvæmd hefði verið húsleit að X og Y í tengslum við annað stærra mál. Ákærða Sigurbjörg, húsráðandi og ábúandi, hefði verið sofandi í stofunni að X er lögreglumenn bar að garði. Fundist hefði kannabisræktun í jarðhýsi og ákærða Sigurbjörg hefði framvísað einhverju lítilræði af efnum sem hún hefði ekki viljað meina að væri til eigin nota. Hún hefði einnig framvísað einhverjum lélegum kannabisefnum í hesthúsi. Þetta væri allt tilgreint í efnaskrá málsins, magn og hvar efnið hefði fundist. Hvað varðaði 708,48 g af maríhúana sem tilgreint væri í rannsóknarbeiðni til tæknideildar að hefði fundist í sjö smelluláspokum í „kaffistofu“, en í efnaskýrslu tæknideildar væri fundarstaður tilgreindur „Herbergi – Á gólfi“, greindi vitnið frá því að „kaffistofan“ væri skúr vinstra megin við inngang inn í ræktunarrýmið. Þar hefði verið fatnaður og fleira, en skúr hægra megin við innganginn í ræktunarrýmið sem ákærða hefði kallað gróðurhúsið sitt. Þegar gengið væri inn í ræktunarrýmið væri komið inn í forsal, þar sem hefði verið mikið af áhöldum og öðru til ræktunar, þar inn af hefðu verið ræktunarrými til hægri og vinstri. Aðspurt um hvar 695 g af maríhúana hefðu fundist kvað vitnið efni hafa fundist í bústað Sigurbjargar sem hún hefði framvísað að mestu leyti og hún hefði einnig framvísað einhverjum efnum í hesthúsi, en vitnið kvaðst halda að það væri efnið sem spurt væri um. Ákærða hefði sagst hafa tekið efnið úr ræktuninni og verið að lækna fótamein hrossa, að því er vitnið minnti. Kannabislaufblöð hefðu fundist á gólfinu í kaffistofunni, bæði í pokum og á víð og dreif í lausu og kannabisplönturnar hefðu fundist í ræktunarrýmunum, en vitnið kvaðst ekki muna hvort einhver efni hefðu fundist þar, sem sæist betur í LÖKE. Við rannsókn hefðu bræðurnir, ákærðu Ólafur og Pétur, sagst hafa átt það sem hefði verið í vinstra rýminu. Annar sakborningur hefði sagst eiga það sem hefði verið í hægra rýminu, auk þess að hafa komið með ræktunarbúnaðinn í ræktunina í heild sinni og græðlingana þegar ræktunin hófst, en samkvæmt rafmagnsreikningum hefði notkunin aukist mikið vorið 2018. Kvað vitnið aðspurt ræktunina hafa verið mjög áþekka í báðum rýmum og netin verið eins en ekki hefði verið mikill munur á frágangi í rýmunum. Vitnið kvaðst minna að vökvunarkerfi hefði verið betra í hægra rýminu og ræktunin þar betri en kvaðst ekki muna eftir lömpunum. Vitnið kvaðst aðspurt ekki hafa tekið eftir mismunandi handverki í rýmunum tveimur heldur hefði það litið út eins og ein ræktun í tveimur rýmum. Teknar hefðu verið ljósmyndir fyrir leit og væri unnt að sjá aðstæður á búkmyndavél, auk þess sem ljósmyndaskýrsla ætti að vera til. Kvaðst vitnið aðspurt um hvers vegna mismunandi aðilar hefðu verið tilgreindir sem sakborningar á efnaskýrslum telja að skráningu hefði verið ábótavant. Skráningin hefði væntanlega verið færð inn við upphaf máls og gleymst að bakfæra og heimfæra efnin rétt. Hvorki hefði verið unnt að sjá úr hvorri ræktuninni efnin í „kaffistofunni“ hefðu verið né heldur efnin sem ákærða Sigurbjörg hefði framvísað. Varðandi húsleit á heimili ákærða Þorgeirs sagði vitnið að samkvæmt samtali við ákærða hefðu þau hjónin búið saman en átt hvort sitt herbergið. Fundist hefðu peningar inni hjá ákærða sem hann hefði talað um að hafa fengið fyrir að vera leiðsögumaður. Einnig hefðu fundist 1,4 milljónir króna í svefnherbergi eiginkonu ákærða, sem hann hefði sagt að hún ætti.
Lögreglumaður nr. D staðfesti húsleitarskýrslu og ljósmyndaskýrslu að Y.
Lögreglumaður nr. E staðfesti efni skýrslu um rannsókn á farsíma ákærða Geirs Elís, dags. 20. júlí 2022.
Lögreglumaður nr. F staðfesti efni skýrslu um rannsókn á síma ákærða Geirs Elís, dags. 21. júlí 2022, og efni skýrslu um rannsókn á síma ákærðu Sigurbjargar, dags. 22. júlí 2022.
III
Niðurstaða
Ákæruliður 1
Af hálfu ákærðu Sigurbjargar og Sveins er þess aðallega krafist að þessum ákærulið verði vísað frá dómi þar sem hann sé svo óskýr að ekki verði lagður dómur á málið. Ekki sé unnt að átta sig á því hverju hver ákærðu beri ábyrgð á eða um hvað þau hafi gerst sek. Af hálfu ákærðu Geirs Elís og Ólafs er ekki krafist frávísunar en bent á að vísa eigi ákæruliðnum frá dómi ex officio því auk framangreinds sé ómögulegt að ráða af gögnum málsins hvar önnur efni en kannabisplöntur hafi fundist, sem hafi gert ákærðu ómögulegt að verjast. Ákærðu hafi af þeim sökum aðeins getað játað sök varðandi það rými sem hvor um sig hafði til ræktunar.
Í samræmi við 1. mgr. 53. gr., 2. mgr. 57. gr. og 145. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála er það ákæruvaldið sem metur hvort rannsóknargögn máls eru nægjanleg til útgáfu ákæru. Ákæruvaldið ber hallann af því ef sönnunargögn eru ekki nægjanleg en sé talið að gögnum máls sé áfátt leiðir það til sýknu. Frávísunarkröfum er því hafnað. Þá verður heldur ekki séð að framsetning í ákæruliðnum hafi komið niður á málsvörn ákærðu Geirs Elís og Ólafs þannig að það leiði til frávísunar ex officio.
Ákærðu Geir Elí, Ólafur, Pétur, Sigurbjörg og Sveinn eru ákærð fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa í jarðhýsi við sumarhús á X […] haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni 3.445 g af kannabislaufum, 695 g af maríhúana, 91 kannabisplöntu og 708,48 g af maríhúana, og hafa um nokkurt skeið fram til þess dags ræktað greindar plöntur, en lögregla lagði hald á framangreind fíkniefni við leit, og 9.660 g af maríhúana sem fannst við leit í sumarhúsi að Y og 780 g af maríhúana sem ákærði Geir afhenti ákærða Þorgeiri til dreifingar, sbr. ákærulið 2.
Ákærði Geir játar að hafa staðið að ræktun á 50 kannabisplöntum sem hann segist hafa átt með ákærða Sveini í hægra rými og að hafa afhent ákærða Þorgeiri 780 g af maríhúana til dreifingar en neitar sök að öðru leyti.
Ákærði Ólafur játar að hafa staðið að ræktun á 41 kannabisplöntu í vinstra rými og að eiga 9.660 g af maríhúana sem fannst í sumarhúsi að Y en neitar sök að öðru leyti.
Ákærðu Pétur, Sigurbjörg og Sveinn neita alfarið sök og krefjast sýknu.
Eins og rakið er að framan hófst málið með því að lögregla hafði haft til rannsóknar framleiðslu á fíkniefnum við sveitabæinn Z og fylgst með ferðum nokkurra einstaklinga. Við það eftirlit vaknaði grunur um framleiðslu fíkniefna á eða við Sanda, en ákærði Geir Elí sást fara þangað í fjögur skipti í apríl 2022 á leið að Z og stoppa í 30 mínútur upp í tvo tíma. Þann 2. maí 2022 sáu lögreglumenn ákærða Geir Elí fara að Z en í kjölfarið fór hann að Y, hvar hann stoppaði í 30–40 mínútur en ók síðan að X og dvaldi þar í sama tíma og að Y. Lögregla fylgdist með ferðum ákærða Geirs Elís þann 4. maí 2022, er hann fór frá heimili sínu í […], keypti pappakassa á […], ók þaðan að X, stoppaði þar og ók til baka að heimili sínu. Þar sást hann í kjölfarið afhenda ákærða Þorgeiri einn pappakassa, sem Þorgeir fór með og afhenti öðrum aðila sem var handtekinn í kjölfarið. Í kassanum reyndust vera 780 g af maríhúana. Ákærðu Geir Elí og Þorgeir hafa játað sök varðandi þann þátt málsins.
Ákærði Geir Elí hefur einnig játað fyrir dómi að hafa útvegað ræktunarbúnað sem fannst í hægra ræktunarrými 20. maí 2022 auk græðlinga við upphaf ræktunar, sem ákærði sagði hafa byrjað árið 2018, auk þess sem ákærða Sigurbjörg kvaðst fyrir dómi hafa séð ummerki um kannabisræktun fljótlega eftir að hún flutti að X sem var snemma árs 2020. Ákærði Ólafur kvaðst fyrir dómi ekki muna hvenær ræktunin hefði hafist en sagði ákærða Svein hafa boðið sér aðstöðuna áður en hann fór af landi brott árið 2020. Verður miðað við þetta lagt til grundvallar að kannabisræktunin hafi átt sér stað að X um nokkurt skeið fram til 20. maí 2022.
Framburðir ákærðu fyrir dómi um annað en að framan er rakið hafa verið misvísandi um þátttöku og meint eignarhald hvers og eins í kannabisræktuninni.
Ákærða Sigurbjörg kvaðst fyrir dómi hafa vitað af ræktuninni a.m.k. frá sumri 2020 og reynt að fá henni hætt án árangurs. Kvaðst hún hafa rætt um það við son sinn, ákærða Svein, enda hefði hann átt að endurgreiða rafmagnsreikninga vegna ræktunarinnar, sem ákærða kvaðst hafa greitt. Ákærða viðurkenndi ekki að hafa aðstoðað við ræktunina. Hins vegar kom fram hjá ákærða Geir Elí fyrir dómi að ákærða hefði tekið við vökvun eftir að ákærði Sveinn fór af landi brott sem er í samræmi við það sem ákærði Pétur greindi frá hjá lögreglu. Að mati dómsins liggur því fyrir að ákærða lét brotastarfsemi viðgangast í langan tíma, auk þess að veita atbeina sinn til hennar og borga rafmagnsreikninga, þó að hún hafi hvorki skipulagt né sett upp ræktunina.
Ákærði Geir Elí greindi frá því fyrir dómi að hann hefði átt ræktun í hægra rými ásamt ákærða Sveini. Ákærði Sveinn kannaðist ekki við það fyrir dómi og kvaðst hafa smíðað jarðhýsið fyrir geymslur. Ákærði Sveinn kannaðist hvorki við að hafa komið að kannabisræktun að X né að hafa rætt við móður sína um að hún vildi að kannabisræktuninni yrði hætt, auk þess sem hann vildi ekki tjá sig um þátt ákærða Geirs Elís. Ákærði Sveinn kannaðist hins vegar í skýrslu hjá lögreglu í ágúst 2022 við að hafa útbúið ræktunarrýmið til kannabisræktunar og að Geir Elí hefði komið með ræktunarbúnað og græðlinga. Hann kvaðst hafa komið að fleiri en einni ræktun í hægra rými, auk þess sem ákærðu Ólafur og Geir Elí hefðu sinnt ræktun í vinstra rými og ákærði Geir Elí tekið ákvarðanir varðandi ræktunina. Þá greindi ákærði Sveinn frá því að móðir hans hefði lokað augunum fyrir ræktuninni. Er framburður ákærða Sveins fyrir dómi metinn ótrúverðugur.
Ákærði Geir Elí bar einnig fyrir dómi að ákærði Ólafur hefði aðstoðað við ræktunina hægra megin meðan Sveinn var erlendis, auk þess sem hann hefði fengið lánaða lampa frá Ólafi og Pétri sem ákærði Ólafur kannaðist ekki við fyrir dómi. Ákærðu Geir Elí og Sveinn báru fyrir dómi að ákærðu Ólafur og Pétur hefðu átt ræktunina í vinstra rýminu en Ólafur og Pétur sögðu Ólaf einan hafa átt þá ræktun og kváðust ekki vita hver hefði átt ræktunina hægra megin.
Ákærði Pétur kvaðst fyrir dómi hafa vökvað einu sinni eða tvisvar fyrir Ólaf og leyft honum að geyma uppskeruna sína að Y. Er þessi framburður hans í fullkomnu ósamræmi við framburð hans hjá lögreglu. Þar lýsti ákærði aðkomu sinni að ræktuninni sem einu leiðinni til að fá endurgreidda nokkurra milljóna króna skuld frá vini vegna endurbóta að X, vinurinn hefði flutt til útlanda, ákærði hefði séð um ræktunina á meðan og síðan hefði vinurinn beðið ákærða um að geyma efnin að Y því hann hefði ekki viljað hafa þau á sama stað og ræktunina. Móðir vinarins hefði svo flutt að X. Ákærði viðurkenndi síðan í skýrslunni að þessi vinur væri ákærði Sveinn, sonur ákærðu Sigurbjargar, og að hún hefði tekið yfir starf ákærða við að vökva og kíkja eftir þegar hún flutti að X. Þá greindi hann frá því að hafa klippt niður uppskeru í fjögur skipti, þar af hefði ákærði Sveinn verið með í eitt skipti og ákærði Geir Elí í öll skiptin. Ákærði Geir Elí hefði í hópspjalli á Signal látið vita hvað ákærði ætti að gera hverju sinni varðandi ræktunina. Ákærði kvaðst hafa tekið þátt í að þurrka uppskeruna, setja í umbúðir og að flytja efnin til Y en efnin hefðu síðan verið sótt þangað. Að lokum greindi ákærði frá því að það hefðu verið um 70 til 80 plöntur í ræktun sem ættu eftir fjórar til sex vikur. Gat ákærði Pétur ekki útskýrt hvað hann hefði verið að meina þegar hann reyndi að halda því fram fyrir dómi að hann hefði hjá lögreglu verið að tala um Ólaf, bróður sinn, sem vininn sem hefði lánað honum pening og sama máli gegnir um framburð hans varðandi aðkomu ákærðu Sigurbjargar að málinu. Þá er ljóst að mati dómsins að ákærði Pétur leit ekki á ræktunarrýmin sem aðskilin, enda greindi hann ekki frá því hjá lögreglu að svo hefði verið, auk þess sem sá fjöldi plantna sem hann gaf upp, eða 70 til 80 plöntur, var mun nær samanlögðum fjölda plantna í báðum rýmunum, þ.e. 91 planta en þeim 50 plöntum sem voru í vinstra rými. Er framburður ákærða Péturs fyrir dómi metinn ótrúverðugur.
Er framburður ákærða Péturs hjá lögreglu í samræmi við framburð ákærðu Sigurbjargar fyrir dómi en hún kvaðst hafa athugað að beiðni ákærðu Ólafs og Geirs Elís hvort ljósin væru kveikt eða ekki í jarðhýsinu, hversu mikið væri eftir af vatni og næringu og hvort hún ætti batterí en það hefði verið vandræðagangur með rafmagn, ljós og vatn. Hvorki í framburði ákærðu Sigurbjargar fyrir dómi né hjá lögreglu kom fram að hún hefði verið beðin um að athuga og aðstoða í hægra rými fyrir ákærða Geir Elí og í vinstra rými fyrir ákærða Ólaf. Þá kvaðst ákærða hafa verið í sambandi við ákærðu Pétur, Óla og Geir Elí, aðspurð hvort fleiri en Ólafur og Geir hefðu beðið hana um viðvik. Af framburði hennar verður aðeins ráðið, eins og af framburði ákærða Péturs, að um eina ræktun í tveimur rýmum hafi verið að ræða og að ákærðu hafi jöfnum höndum tekið þátt í ræktun í báðum rýmum. Er það einnig stutt framburði lögreglumanns nr. C, sem stjórnaði aðgerðum á X, fyrir dómi sem sagði að ekki hefði verið annað að sjá en að um hefði verið að ræða eina ræktun í tveimur rýmum.
Að framangreindu virtu og að teknu tilliti til gagna sem aflað var úr símum ákærðu Geirs Elís og Sigurbjargar, sem að mati dómsins sýndu samskipti milli allra ákærðu á Signal og augljóslega báru með sér að vera vegna ræktunarinnar, er lagt til til grundvallar að um samverknað allra ákærðu hafi verið að ræða við ræktunina í báðum rýmum jarðhýsis að X og að efnin hafi verið flutt að Y frá X þegar búið var að þurrka þau. Bera ákærðu öll fulla refsiábyrgð þótt hlutverk og þátttaka hvers og eins hafi verið með mismunandi hætti.
Ekkert hefur komið fram í málinu sem bendir til þess að 3.445 g af kannabislaufum og 1.403,48 g af maríhúana hafi ekki tilheyrt ræktuninni á X og verður því við það miðað að svo hafi verið. Þar sem lagt hefur verið til grundvallar að ákærðu hafi staðið saman að ræktun í báðum rýmunum og vörslum efnanna hefur enga þýðingu frá hvoru rýminu efnin stöfuðu eins og ákærðu Geir Elí og Ólafur hafa haldið fram.
Þegar allt framangreint er virt heildstætt, sem og öll gögn málsins verður talið hafið yfir skynsamlegan vafa að ákærðu hafi gerst sek um þá háttsemi sem þeim er gefin að sök í ákæru og er þar réttilega heimfærð til refsiákvæða.
Ákæruliður 2
Fyrir dómi játaði ákærði Þorgeir afdráttarlaust sök. Var því farið með þennan ákærulið að hætti 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála og málið dómtekið án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjandi og verjandi höfðu tjáð sig stuttlega um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga.
Verjandi ákærða krefst vægustu refsingar sem lög leyfa og að upptökukröfu á 1,4 milljónum króna og gjaldeyri verði hafnað en verjandi gerir ekki kröfu um þóknun. Með skýlausri játningu ákærða Þorgeirs fyrir dómi, sem samrýmist rannsóknargögnum málsins, er sannað að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar þykir réttilega heimfærð til refsiákvæða.
Ákæruliður 3
Ákærðu Sigurbjörgu er gefið að sök að hafa haft í vörslum sínum 86,52 g af maríhúana og 40 ml af kannabisblönduðum vökva sem lögregla fann og lagði hald á á heimili hennar í sumarhúsi að X í […].
Ákærða neitar sök. Eins og ákærða greindi sjálf frá fyrir dómi er hún eigandi jarðar og fasteigna að X, auk þess sem hún játaði að hafa notað kannabisblandaðan vökva til að reyna að lækna fótamein hjá hrossi. Samkvæmt gögnum málsins og framburði lögreglumanns nr. C fyrir dómi fannst vökvinn í hesthúsi ákærðu og maríhúana í sumarbústað þeim sem ákærða bjó í við húsleit og handtöku. Því blasir við að ákærða hafði vörslur efnanna eins og henni er gefið að sök. Verður ákærða því sakfelld samkvæmt þessum ákærulið og er háttsemin réttilega heimfærð til refsiákvæða.
IV
Refsing, upptökukröfur og sakarkostnaður
Við ákvörðun refsingar ákærðu verður litið til þess að í ákærulið 1 var um að ræða talsvert magn fíkniefna sem ræktuð voru í samverknaði ákærðu en ræktunin var nokkuð umfangsmikil og efnin úr henni töluvert sterk. Þá verður að líta til þess við refsiákvörðun, hversu málsmeðferð hefur dregist en í því sambandi má benda á að í hinu tengda máli sem lögregla var að rannsaka í upphafi, og ákærði Geir Elí átti aðild að og var sakfelldur fyrir, var gefin út ákæra 11. ágúst 2022. Þykja af þeim sökum vera skilyrði til að skilorðsbinda refsingar allra ákærðu.
Ákærði Geir Elí er fæddur árið […] og var þann 23. júní 2023 dæmdur í Landsrétti í 18 mánaða fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár, fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Brot ákærða sem fjallað er um í þessu máli voru framin fyrir uppkvaðningu dóms Landsréttar og ber með vísan til 60. gr. og 78. gr. almennra hegningarlaga að taka bæði málin til meðferðar og dæma í einu lagi þá refsingu sem kynni að hafa orðið ef dæmt hefði verið um öll brotin í fyrra málinu. Verður litið til þess að ákærði kom að skipulagningu ræktunarinnar og útvegaði búnað og plöntur, þess magns fíkniefna sem til stóð að dreifa og einbeitts ásetnings hans en hann hafði yfirumsjón með ræktuninni. Þá verður litið til þess að ákærði hefur játað brot sitt að hluta. Með hliðsjón af öllu framangreindu verður ákærði dæmdur skv. 77. gr. almennra hegningarlaga í 27 mánaða fangelsi sem skal skilorðsbundið, eins og greinir í dómsorði.
Ákærði Ólafur er fæddur […] og hefur ekki áður gerst sekur um refsivert brot. Hann hefur verið sakfelldur fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Við ákvörðun refsingar hans verður litið til einbeitts ásetnings hans, skipulagningar og fjármögnun ræktunarinnar auk þess magns fíkniefna sem til stóð að dreifa. Þá verður litið til þess að hann hefur játað brot sitt að hluta. Með vísan til framangreinds þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 12 mánuði, sem verði skilorðsbundin eins og nánar greinir í dómsorði.
Ákærði Pétur er fæddur […] og hefur ekki áður gerst sekur um refsivert brot. Hann hefur verið sakfelldur fyrir brot í ákærulið 1. Við ákvörðun refsingar hans verður litið til þess að hann kom ekki að skipulagningu eða fjármögnun ræktunarinnar. Hins vegar aðstoðaði hann meðákærðu við ræktunina auk þess sem meirihluti efnanna var geymdur á heimili hans. Með vísan til framangreinds þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í níu mánuði, sem verði skilorðsbundin eins og nánar greinir í dómsorði.
Ákærða Sigurbjörg er fædd […] og hefur ekki áður gerst sek um refsivert brot. Hún hefur verið sakfelld fyrir brot samkvæmt ákæruliðum 1 og 3. Við ákvörðun refsingar hennar verður litið til þess að ákærða kom ekki að skipulagningu ræktunarinnar en lét hana viðgangast í langan tíma í sínum húsum, auk þess að aðstoða meðákærðu og fjármagna ræktunina óbeint með greiðslu rafmagnsreikninga. Með vísan til framangreinds þykir refsing hennar hæfilega ákveðin fangelsi í níu mánuði, sem verði skilorðsbundin eins og nánar greinir í dómsorði.
Ákærði Sveinn er fæddur […] og hefur ekki áður gerst sekur um refsivert brot. Hann hefur verið sakfelldur fyrir brot í ákærulið 1. Við ákvörðun refsingar hans verður litið til einbeitts ásetnings hans, skipulagningar, fjármögnun og framkvæmdar sem m.a. fólst í því að byggja jarðhýsi á X til ræktunarinnar og fá liðsinni annarra ákærðu til að sjá um ræktunina, auk þess magns fíkniefna sem til stóð að dreifa. Með vísan til framangreinds þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 12 mánuði, sem verði skilorðsbundin eins og nánar greinir í dómsorði.
Ákærði Þorgeir er fæddur […] og hefur ekki áður gerst sekur um refsivert brot. Hann hefur verið sakfelldur fyrir brot í ákærulið 2. Við ákvörðun refsingar hans verður litið til einbeitts ásetnings hans og þess magns fíkniefna sem til stóð að dreifa. Með vísan til framangreinds, sem og greiðrar játningar ákærða, þykir refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í tvo mánuði, sem verði skilorðsbundin eins og nánar greinir í dómsorði.
Í ákæru er krafist upptöku á fíkniefnum og ýmsum ræktunarbúnaði, sem ekki hefur verið mótmælt af ákærðu, og er fallist á upptöku þeirra með vísan til lagaákvæða í ákæru eins og nánar greinir í dómsorði.
Þá er krafist upptöku á 1,5 milljónum króna, 300 USD, 25 pundum og 15 evrum sem fundust á heimili ákærða Þorgeirs, sem hefur andmælt upptökukröfu á 1,4 milljónum króna og erlendum gjaldeyri. Krafa um upptöku peninga byggist á 1. tl. 1. mgr. 69. gr. b almennra hegningarlaga, sem kveður á um að gera megi upptæk verðmæti, að hluta eða í heild, sem tilheyra einstaklingi sem gerst hefur sekur um brot þegar brotið er til þess fallið að hafa í för með sér verulegan ávinning.
Fyrir liggur í málinu að ákærði hafði afhent 780 g af maríhúana þann 4. maí 2022 en mjög varlega áætlað er unnt að miða við að söluverðmæti þess magns sé ekki undir 1,5 milljónum króna. Peningarnir fundust við húsleit á sameiginlegu heimili ákærða og eiginkonu hans, í svefnherbergi eiginkonu. Ákærði kveðst hvorki hafa vitað um þessa peninga né eiga þá. Þá heldur ákærði því fram að 300 dollarar, 25 pund og 15 evrur hafi hann fengið sem þjórfé frá erlendum ferðamönnum en ákærði kveðst starfa sem leiðsögumaður. Ákærði mótmælir ekki upptöku á 100.000 krónum sem fundust við sömu húsleit í svefnherbergi hans. Samkvæmt 2. mgr. 69. gr. b almennra hegningarlaga má, með sömu skilyrðum og greinir í 1. mgr., gera upptæk verðmæti, að hluta eða í heild, sem núverandi eða fyrrverandi maki eða sambúðarmaki þess sem framið hefur brot hefur aflað nema: 1. verðmætanna hafi verið aflað meira en fimm árum áður en brotið var framið eða 2. viðkomandi hafi ekki verið í hjúskap eða sambúð á þeim tíma sem verðmætanna var aflað. Samkvæmt 4. mgr. sama ákvæðis skal ekki gera verðmæti upptæk ef viðkomandi sýnir fram á að þeirra hafi verið aflað með lögmætum hætti. Ekki hefur verið gerð minnsta tilraun af hálfu ákærða eða eiginkonu hans til að sýna fram á að eitthvert framangreindra atriða eigi við um þau verðmæti sem haldlögð voru. Ákærði Þorgeir skal því sæta upptöku á 1,5 milljónum króna og erlendum gjaldeyri með vísan til lagaákvæða í ákæru eins og nánar greinir í dómsorði.
Á grundvelli sakfellingar ákærðu, sbr. 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, verður þeim gert að greiða allan sakarkostnað málsins, þ.m.t. málsvarnarlaun skipaðra verjenda sinna, sem eru ákveðin að meðtöldum virðisaukaskatti, að teknu tilliti til umfangs og eðlis máls og með hliðsjón af tímaskýrslum, eins og nánar greinir í dómsorði.
Ákærði Geir Elí greiði einnig annan sakarkostnað samkvæmt sakarkostnaðaryfirliti vegna þóknunar tilnefnds verjanda hans á rannsóknarstigi, 167.400 krónur.
Ákærðu Geir Elí, Ólafur, Pétur, Sigurbjörg og Sveinn greiði sameiginlega annan sakarkostnað samkvæmt framlögðu sakarkostnaðaryfirliti og þeim reikningum sem því fylgja, samtals 234.046 krónur.
Af hálfu ákæruvaldsins fór Karl Ingi Vilbergsson saksóknari með málið.
María Thejll héraðsdómari kveður upp dóm þennan. Gætt var að ákvæðum 1. mgr. 184. gr. laga nr. 88/2008 fyrir uppkvaðningu dóms.
Dómsorð:
Ákærði, Geir Elí Bjarnason, sæti fangelsi í 27 mánuði, en fresta skal fullnustu refsingar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærði, Ólafur Pétursson, sæti fangelsi í 12 mánuði, en fresta skal fullnustu refsingar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Komi til fullnustu refsingar skal draga frá gæsluvarðhald sem hann sætti 20.–24. maí 2022.
Ákærði, Pétur Björn Pétursson, sæti fangelsi í níu mánuði, en fresta skal fullnustu refsingar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærða, Sigurbjörg Sjöfn Rafnsdóttir, sæti fangelsi í níu mánuði, en fresta skal fullnustu refsingar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja haldi ákærða almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærði, Sveinn Rafn Eiríksson, sæti fangelsi í 12 mánuði, en fresta skal fullnustu refsingar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærði, Þorgeir Ólafsson, sæti fangelsi í tvo mánuði, en fresta skal fullnustu refsingar og falli hún niður að liðnum tveimur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Ákærðu sæti upptöku á 3.445 g af kannabislaufum, 11.930 g af maríhúana, 91 kannabisplöntu, 40 ml af kannabisblönduðum vökva, 36 gróðurhúsalömpum, 16 þurrkgrindum, 50 straumbreytum, sjö viftum, tveimur kolasíum, vatnsbóli úr plasti, tveimur hitablásurum, 22 vatnsdælum, skilvindu, sbr. munaskrá nr. […], rakatæki, níu gróðurhúsalömpum, hitablásara og þremur straumbreytum, sbr. munaskrá nr. […].
Ákærði Þorgeir sæti upptöku á 1.500.000 krónum, 300 USD, 25 pundum og 15 evrum.
Ákærði Geir Elí greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Ómars Arnar Bjarnþórssonar lögmanns, 1.289.600 krónur, og 167.400 krónur í annan sakarkostnað.
Ákærði Ólafur greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Sveins Andra Sveinssonar lögmanns, 1.289.600 krónur.
Ákærði Pétur greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Ingólfs Vignis Guðmundssonar lögmanns, 1.031.680 krónur.
Ákærða Sigurbjörg greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Vilhjálms H. Vilhjálmssonar lögmanns, 1.031.680 krónur.
Ákærði Sveinn greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Jónasar Arnar Jónassonar lögmanns, 967.200 krónur.
Ákærðu Geir Elí, Ólafur, Pétur, Sigurbjörg og Sveinn greiði að jöfnu annan útlagðan sakarkostnað, 234.046 krónur.
María Thejll