Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 12. maí 2025.
Mál nr. S-1672/2024:
Ákæruvaldið
(Dagmar Ösp Vésteinsdóttir saksóknari)
gegn
Brynjar Joensen Creed
D Ó M U R
(Gísli M. Auðbergsson lögmaður)
Lykilorð
Börn. Kynferðisbrot. Miskabætur.
Útdráttur
Ákærði sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn 15 barnungum stúlkum og fyrir brot á lögum um nikótínvörur o.fl.
Mál þetta, sem dómtekið var að lokinni aðalmeðferð dagana 17. og 19. mars 2025, er höfðað með ákæru héraðssaksóknara 11. júlí 2024, á hendur Brynjari Joensen Creed, kt. 000000-0000, […], […], dvalarstaður fangelsið […]; „fyrir eftirtalin brot:
I.
Kynferðislega áreitni gegn barni, en til vara fyrir brot gegn blygðunarsemi og barnaverndarlagabrot, framin í gegnum einkaskilaboð á samfélagsmiðlinum Snapchat, nema annað sé tekið fram, og fyrir brot gegn lögum um nikótínvörur, rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur, eins og hér nánar greinir:
- Gegn A, kennitala 000000-0000, með því að hafa að minnsta kosti á tímabilinu 15.–29. mars 2021, ítrekað viðhaft kynferðislegt tal við A, sem þá var […] ára gömul, og sent henni ítrekað kynferðislegar myndir af berum kynfærum karlmanns og myndbönd sem sýna karlmann fróa sér, en með háttsemi sinni særði ákærði blygðunarsemi stúlkunnar og sýndi henni ósiðlegt athæfi.
- Gegn B, kennitala 000000-0000, með því að hafa að minnsta kosti á tímabilinu 27. desember 2020 til 10. febrúar 2021, viðhaft kynferðislegt tal við B, sem þá var […] ára gömul, og sent henni ítrekað kynferðislegar myndir af berum kynfærum karlmanns og myndbönd sem sýna karlmann fróa sér, en með háttsemi sinni særði ákærði blygðunarsemi stúlkunnar og sýndi henni ósiðlegt athæfi.
- Gegn C, kennitala 000000-0000, með því að hafa að minnsta kosti á tímabilinu 18. október 2020 til 6. nóvember 2020, ítrekað viðhaft kynferðislegt tal við C, sem þá var […] ára gömul, og sent henni kynferðislegar myndir af berum kynfærum karlmanns og beðið hana um að senda sér kynferðislegar myndir á móti, en með háttsemi sinni særði ákærði blygðunarsemi stúlkunnar og sýndi henni ósiðlegt athæfi.
- Gegn D, kennitala 000000-0000, með því að hafa að minnsta kosti á tímabilinu 1.–23. september 2020, ítrekað viðhaft kynferðislegt tal við D, sem þá var […] ára gömul, og sent henni ítrekað myndir og myndbönd af berum kynfærum karlmanns auk þess að senda henni kynferðislegar myndir og myndbönd af öðru fólki og beðið hana um að senda sér kynferðislegar myndir á móti, en með háttsemi sinni særði ákærði blygðunarsemi stúlkunnar og sýndi henni ósiðlegt athæfi.
- Gegn E, kennitala 000000-0000, með því að hafa á tímabilinu frá september eða október 2020 og fram yfir áramót árið 2021, ítrekað viðhaft kynferðislegt tal við E, sem þá var […] og […] ára gömul, og sent henni ítrekað myndir og myndbönd af berum kynfærum karlmanns auk þess að senda henni kynferðislegar myndir og myndbönd af öðru fólki, og fengið stúlkuna til að senda honum kynferðislegar myndir af sjálfri sér, en með háttsemi sinni særði ákærði blygðunarsemi stúlkunnar og sýndi henni ósiðlegt athæfi.
- Gegn F, kennitala 000000-0000, með því að hafa í apríl 2021, viðhaft kynferðislegt tal við F, sem þá var […] ára gömul, og sent henni mynd sem sýndi karlmann í blúndunærbuxum, en með háttsemi sinni særði ákærði blygðunarsemi stúlkunnar og sýndi henni ósiðlegt athæfi.
- Gegn G, kennitala 000000-0000, með því að hafa að minnsta kosti frá október 2020 til 1. janúar 2021, ítrekað viðhaft kynferðislegt tal við G, sem þá var […] og […] ára gömul, en með háttsemi sinni særði ákærði blygðunarsemi stúlkunnar og sýndi henni ósiðlegt athæfi.
- Gegn H, kennitala 000000-0000, með því að hafa frá október 2020 til mars 2021, ítrekað viðhaft kynferðislegt tal við H, sem þá var […] og […] ára gömul, og sent henni ítrekað myndir og myndbönd af berum kynfærum karlmanns auk þess að senda henni kynferðislegar myndir og myndbönd af öðru fólki, og fengið stúlkuna til að senda sér kynferðislegar myndir af sjálfri sér. Ákærði hitti H tvisvar sinnum á þessu tímabili við […] við […] í […] og afhenti henni annars vegar rafrettu og hins vegar kynlífshjálpartæki sem hann hvatti hana til að nota og senda sér myndefni af því. Með háttsemi sinni særði ákærði blygðunarsemi stúlkunnar og sýndi henni ósiðlegt athæfi.
Teljast brot ákærða varða við 2. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, en til vara við 209. [gr.] sömu laga og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 og þá telst brot ákærða samkvæmt 8. tl. einnig varða við 1. mgr. 7. gr., sbr. 20. gr., laga um nikótínvörur, rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur nr. 87/2018.
II.
Kynferðisbrot, með því að hafa um nokkurt skeið, fram til mánudagsins 8. nóvember 2021 haft í vörslum sínum á farsíma af gerðinni Samsung S10 (munur […]) 6 ljósmyndir sem sýna H, kennitala 000000-0000, á kynferðislegan hátt. Telst þetta varða við 1. mgr. 210. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Einkaréttarkröfur:
Af hálfu I, kennitala 000000-0000, f.h. ólögráða dóttur hennar, A, kennitala 000000- 0000, er þess krafist að ákærði verði dæmdur til að greiða henni kr. 1.500.000,- ásamt vöxtum skv. 8. gr., sbr. 4. gr., laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 1. júní 2021 til þess dags er liðinn verður mánuður frá því að krafan var kynnt honum en frá þeim degi með dráttarvöxtum skv. IV. kafla laga nr. 38/2001, sbr. 9. gr. laganna, allt til greiðsludags. Þá er krafist hæfilegrar þóknunar vegna starfa réttargæslumanns að viðbættum virðisaukaskatti, að mati dómara eða skv. síðar framlagðri tímaskýrslu.
Af hálfu J, kennitala 000000-0000, f.h. ólögráða dóttur hennar, B, kennitala 000000- 0000, er þess krafist að ákærði verði dæmdur til að greiða henni kr. 1.500.000,- ásamt vöxtum skv. 8. gr., sbr. 4. gr., laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 1. janúar 2021 til þess dags er liðinn verður mánuður frá því að krafan var kynnt honum en frá þeim degi með dráttarvöxtum skv. IV. kafla laga nr. 38/2001, sbr. 9. gr. laganna, allt til greiðsludags. Þá er krafist hæfilegrar þóknunar vegna starfa réttargæslumanns að viðbættum virðisaukaskatti, að mati dómara eða skv. síðar framlagðri tímaskýrslu.
Af hálfu K, kennitala 000000-0000, f.h. ólögráða dóttur hennar, C, kennitala 000000- 0000, er þess krafist að ákærði verði dæmdur til að greiða henni kr. 2.000.000,- ásamt vöxtum skv. 8. gr., sbr. 4. gr., laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 1. nóvember 2020 til þess dags er liðinn verður mánuður frá því að krafan var kynnt honum en frá þeim degi með dráttarvöxtum skv. IV. kafla laga nr. 38/2001, sbr. 9. gr. laganna, allt til greiðsludags. Þá er krafist hæfilegrar þóknunar vegna starfa réttargæslumanns að viðbættum virðisaukaskatti, að mati dómara eða skv. síðar framlagðri tímaskýrslu.
Af hálfu L, kennitala 000000-0000, f.h. ólögráða dóttur hans, D, kennitala 000000-0000, er þess krafist að ákærði verði dæmdur til að greiða henni kr. 2.000.000,- ásamt vöxtum skv. 8. gr., sbr. 4. gr., laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 1. október 2020 til þess dags er liðinn verður mánuður frá því að krafan var kynnt honum en frá þeim degi með dráttarvöxtum skv. IV. kafla laga nr. 38/2001, sbr. 9. gr. laganna, allt til greiðsludags. Þá er krafist hæfilegrar þóknunar vegna starfa réttargæslumanns að viðbættum virðisaukaskatti, að mati dómara eða skv. síðar framlagðri tímaskýrslu. Af hálfu M, kennitala 000000-0000, f.h. ólögráða dóttur hennar, E, kennitala 000000- 0000, er þess krafist að ákærði verði dæmdur til að greiða henni kr. 2.000.000,- ásamt vöxtum skv. 8. gr., sbr. 4., gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 1. maí 2021 til þess dags er liðinn verður mánuður frá því að krafan var kynnt honum en frá þeim degi með dráttarvöxtum skv. IV. kafla laga nr. 38/2001, sbr. 9. gr. laganna, allt til greiðsludags. Þá er krafist hæfilegrar þóknunar vegna starfa réttargæslumanns að viðbættum virðisaukaskatti, að mati dómara eða skv. síðar framlagðri tímaskýrslu. Af hálfu N, kennitala 000000-0000, f.h. ólögráða dóttur hennar, F, kennitala 000000- 0000, er þess krafist að ákærði verði dæmdur til að greiða henni kr. 1.000.000,- ásamt vöxtum skv. 8. gr., sbr. 4. gr., laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 21. apríl 2021 til þess dags er liðinn verður mánuður frá því að krafan var kynnt honum en frá þeim degi með dráttarvöxtum skv. IV. kafla laga nr. 38/2001, sbr. 9. gr. laganna, allt til greiðsludags. Þá er krafist hæfilegrar þóknunar vegna starfa réttargæslumanns að viðbættum virðisaukaskatti, að mati dómara eða skv. síðar framlagðri tímaskýrslu.
Af hálfu O, kennitala 000000-0000, f.h. ólögráða dóttur hans, G, kennitala 000000-0000, er þess krafist að ákærði verði dæmdur til að greiða henni kr. 1.500.000,- ásamt vöxtum skv. 8. gr., sbr. 4. gr., laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 1. júní 2020 til þess dags er liðinn verður mánuður frá því að krafan var kynnt honum en frá þeim degi með dráttarvöxtum skv. IV. kafla laga nr. 38/2001, sbr. 9. gr. laganna, allt til greiðsludags. Þá er krafist hæfilegrar þóknunar vegna starfa réttargæslumanns að viðbættum virðisaukaskatti, að mati dómara eða skv. síðar framlagðri tímaskýrslu.
Af hálfu P, kennitala 000000-0000, f.h. ólögráða dóttur hennar, H, kennitala 000000- 0000, er þess krafist að ákærði verði dæmdur til að greiða henni kr. 2.000.000,- ásamt vöxtum skv. 8. gr., sbr. 4. gr., laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 25. mars 2021 til þess dags er liðinn verður mánuður frá því að krafan var kynnt honum en frá þeim degi með dráttarvöxtum skv. IV. kafla laga nr. 38/2001, sbr. 9. gr. laganna, allt til greiðsludags. Þá er krafist hæfilegrar þóknunar vegna starfa réttargæslumanns að viðbættum virðisaukaskatti, að mati dómara eða skv. síðar framlagðri tímaskýrslu.“
Þann 12. desember 2024 gaf héraðssaksóknari út aðra ákæru á hendur ákærða Brynjari Joensen Creed, sem tekin var fyrir í þinghaldi 23. janúar 2025 og sameinuð máli þessu með heimild í 1. mgr. 169. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, en þar eru ákærða gefin að sök eftirtalin brot: „I. Kynferðislega áreitni gegn barni og barnaverndarlagabrot, en til vara fyrir brot gegn blygðunarsemi og barnaverndarlagabrot, framin í gegnum einkaskilaboð á samfélagsmiðlinum Snapchat, nema annað sé tekið fram, eins og hér nánar greinir:
- Gegn Q, kennitala 000000-0000, með því að hafa að minnsta kosti í október 2021, ítrekað viðhaft kynferðislegt tal við Q, sem þá var […] ára gömul, og sent henni ítrekað kynferðislegar myndir af berum kynfærum karlmanns og myndbönd sem sýna karlmann fróa sér og myndbönd sem sýndu stúlkur veita karlmanni munnmök, en með háttsemi sinni særði ákærði blygðunarsemi stúlkunnar og sýndi henni ósiðlegt athæfi.
- Gegn R, kennitala 000000-0000, með því að hafa að minnsta kosti á tímabilinu 16. febrúar 2021 til 2. nóvember 2021, viðhaft kynferðislegt tal við R, sem þá var […] ára gömul, og beðið hana um að senda sér kynferðislegar myndir af sjálfri sér, en með háttsemi sinni særði ákærði blygðunarsemi stúlkunnar og sýndi henni ósiðlegt athæfi.
- Gegn S, kennitala 000000-0000, með því að hafa að minnsta kosti á tímabilinu 19. júní 2020 til 25. febrúar 2021, ítrekað viðhaft kynferðislegt tal við S, sem þá var […] og […] ára gömul, og sent henni kynferðislegar myndir af berum kynfærum karlmanns og myndband sem sýnir karlmann fróa sér og beðið hana um að senda sér kynferðislegar myndir á móti, en með háttsemi sinni særði ákærði blygðunarsemi stúlkunnar og sýndi henni ósiðlegt athæfi.
- Gegn T, kennitala 000000-0000, með því að hafa að minnsta kosti á tímabilinu 31. júlí 2020 til 2. október 2020, verið í kynferðislegum samskiptum við T, sem þá var […] ára gömul, og fengið hana til að senda sér kynferðislegar myndir af sjálfri sér og boðið henni áfengi og rafrettur í skiptum fyrir myndir, en með háttsemi sinni særði ákærði blygðunarsemi stúlkunnar og sýndi henni ósiðlegt athæfi.
- Gegn U, kennitala 000000-0000, með því að hafa að minnsta kosti á á tímabilinu 28. október 2021 til 1. nóvember 2021, verið í kynferðislegum samskiptum við U, sem þá var […] ára gömul, og fengið hana til að senda honum kynferðislegar myndir af sjálfri sér, en með háttsemi sinni særði ákærði blygðunarsemi stúlkunnar og sýndi henni ósiðlegt athæfi.
- Gegn V, kennitala 000000-0000, með því að hafa að minnsta kosti á tímabilinu frá 3. ágúst fram til október 2021, verið í kynferðislegum samskiptum við V, sem þá var […] ára gömul, og sent henni ítrekað kynferðislegar myndir af berum kynfærum karlmanns og myndbönd sem sýna karlmann fróa sér, en með háttsemi sinni særði ákærði blygðunarsemi stúlkunnar og sýndi henni ósiðlegt athæfi.
- Gegn X, kennitala 000000-0000, með því að hafa að minnsta kosti frá 28. desember 2020 til 2. janúar 2021, ítrekað viðhaft kynferðislegt tal við X, sem þá var […] ára gömul, og reynt að fá stúlkuna til að senda sér kynferðislegar myndir af sjálfri sér, en með háttsemi sinni særði ákærði blygðunarsemi stúlkunnar og sýndi henni ósiðlegt athæfi.
Teljast brot þessi varða við 2. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og þá telst brot ákærða skv. 4. tl. auk þess varða við 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Til vara teljast brot þessi varða við 209. [gr.] sömu laga og 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002.
II.
- Kynferðisbrot, með því að hafa um nokkurt skeið, fram til mánudagsins 8. nóvember 2021 haft í vörslum sínum á farsíma af gerðinni Samsung S10 (munur 557200) 5 ljósmyndir sem sýna T, kennitala 000000-0000, á kynferðislegan hátt.
- Kynferðisbrot, með því að hafa um nokkurt skeið, fram til mánudagsins 8. nóvember 2021 haft í vörslum sínum á farsíma af gerðinni Samsung S10 (munur 557200) 13 ljósmyndir sem sýna U, kennitala 000000-0000, á kynferðislegan hátt. Teljast brot þessi varða við 1. mgr. 210. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Einkaréttarkröfur: Af hálfu Y, kennitala 000000-0000, f.h. ólögráða dóttur hennar, Q, kennitala 000000- 0000, er þess krafist að ákærði verði dæmdur til að greiða henni kr. 2.000.000,- ásamt vöxtum skv. 8. gr., sbr. 4. gr., laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 1. nóvember 2021 til þess dags er liðinn verður mánuður frá því að krafan var kynnt honum en frá þeim degi með dráttarvöxtum skv. IV. kafla laga nr. 38/2001, sbr. 9. gr. laganna, allt til greiðsludags. Þá er krafist hæfilegrar þóknunar vegna starfa réttargæslumanns að viðbættum virðisaukaskatti, að mati dómara eða skv. síðar framlagðri tímaskýrslu.
Af hálfu Z, kennitala 000000-0000, f.h. ólögráða dóttur hennar, R, kennitala 000000- 0000, er þess krafist að ákærði verði dæmdur til að greiða henni kr. 1.500.000,- ásamt vöxtum skv. 8. gr., sbr. 4. gr., laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 2. nóvember 2021 til þess dags er liðinn verður mánuður frá því að krafan var kynnt honum en frá þeim degi með dráttarvöxtum skv. IV. kafla laga nr. 38/2001, sbr. 9. gr. laganna, allt til greiðsludags. Þá er krafist hæfilegrar þóknunar vegna starfa réttargæslumanns að viðbættum virðisaukaskatti, að mati dómara eða skv. síðar framlagðri tímaskýrslu.
Af hálfu Þ, kennitala 000000-0000, f.h. ólögráða dóttur hennar, S, kennitala 090108- [4170], er þess krafist að ákærða verði gert að greiða henni miskabætur að fjárhæð kr. 1.000.000,- auk vaxta skv. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001, sbr. 16. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993, frá 1. febrúar 2020, en með dráttarvöxtum skv. 9. gr. vaxtalaga, sbr. 1. mgr. 6. gr., sömu laga frá þeim degi er mánuður er liðinn frá því að bótakrafan var birt til greiðsludags. Einnig er þess krafist að ákærða verði gert að greiða málskostnað að mati dómsins eða samkvæmt síðar framlögðum málskostnaðarreikningi, að viðbættum virðisaukaskatti á málflutningsþóknun.
Af hálfu Æ, kennitala 000000-0000, f.h. ólögráða dóttur hans, T, kennitala 000000-0000, er þess krafist að ákærði verði dæmdur til að greiða henni kr. 2.000.000,- ásamt vöxtum skv. 8. gr., sbr. 4. gr., laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 9. september 2020 til þess dags er liðinn verður mánuður frá því að krafan var kynnt honum en frá þeim degi með dráttarvöxtum skv. IV. kafla laga nr. 38/2001, sbr. 9. gr. laganna, allt til greiðsludags. Þá er krafist hæfilegrar þóknunar vegna starfa réttargæslumanns að viðbættum virðisaukaskatti, að mati dómara eða skv. síðar framlagðri tímaskýrslu. Af hálfu Ö, kennitala 000000-0000, f.h. ólögráða dóttur hennar, U, kennitala 000000- 0000, er þess krafist að ákærði verði dæmdur til að greiða henni kr. 1.000.000,- ásamt vöxtum skv. 8. gr., sbr. 4. gr., laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 1. nóvember 2021 til þess dags er liðinn verður mánuður frá því að krafan var kynnt honum en frá þeim degi með dráttarvöxtum skv. IV. kafla laga nr. 38/2001, sbr. 9. gr. laganna, allt til greiðsludags. Þá er krafist hæfilegrar þóknunar vegna starfa réttargæslumanns að viðbættum virðisaukaskatti, að mati dómara eða skv. síðar framlagðri tímaskýrslu.
Af hálfu AA, kennitala 000000-0000, f.h. ólögráða dóttur hennar, V, kennitala 000000- 0000, er þess krafist að ákærði verði dæmdur til að greiða henni kr. 2.000.000,- ásamt vöxtum skv. 8. gr., sbr. 4. gr., laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 1. nóvember 2021 til þess dags er liðinn verður mánuður frá því að krafan var kynnt honum en frá þeim degi með dráttarvöxtum skv. IV. kafla laga nr. 38/2001, sbr. 9. gr. laganna, allt til greiðsludags. Þá er krafist hæfilegrar þóknunar vegna starfa réttargæslumanns að viðbættum virðisaukaskatti, að mati dómara eða skv. síðar framlagðri tímaskýrslu. Af hálfu BB, kennitala 000000-0000, f.h. ólögráða dóttur hennar, X, kennitala 000000- 0000, er þess krafist að ákærði verði dæmdur til að greiða henni kr. 1.500.000,- ásamt vöxtum skv. 8. gr., sbr. 4. gr., laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 2. janúar 2021 til þess dags er liðinn verður mánuður frá því að krafan var kynnt honum en frá þeim degi með dráttarvöxtum skv. IV. kafla laga nr. 38/2001, sbr. 9. gr. laganna, allt til greiðsludags. Þá er krafist hæfilegrar þóknunar vegna starfa réttargæslumanns að viðbættum virðisaukaskatti, að mati dómara eða skv. síðar framlagðri tímaskýrslu.“
Í upphafi framhalds aðalmeðferðar málsins, 19. mars síðastliðinn, var 2. ákærulið II. kafla ákæru dagsettri 12. desember 2024 breytt að ósk sækjanda, athugasemdalaust og til hagsbóta fyrir ákærða, þannig að leiðréttur var sá fjöldi ljósmynda sem ákærða er gefið að sök að hafa haft í vörslum sínum á tilgreindu tímabili. Í stað „13 ljósmyndir“ komi nú „11 ljósmyndir“.
Röksemdir og kröfur ákærða
Skipaður verjandi ákærða skilaði greinargerð vegna beggja ákæruskjalanna. Af hálfu ákærða er aðallega krafist sýknu af refsikröfu og að einkaréttarkröfum verði vísað frá dómi. Til vara er þess krafist að ákærða verði dæmd vægasta refsing sem lög leyfa og að fjárhæð skaðabóta verði lækkuð að mati dómsins. Þá er þess krafist að allur sakarkostnaður verði lagður á ríkissjóð, þar með talin málsvarnarlaun skipaðs verjanda.
1.1 Ákæra útgefin 11. júlí 2024
Af hálfu ákærða er vísað til þess að í 1. tölulið I. kafla ákæru sé ákært fyrir samskipti sem sögð eru vera „að minnsta kosti á tímabilinu 15.–29. mars 2021,“. Sama orðalag, þ.e. „að minnsta kosti“, sé einnig notað í 2., 3., 4. og 7. tölulið ákærukaflans. Álítur verjandinn þetta vera í andstöðu við ákvæði c-liðar 1. mgr. 152. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Af hálfu ákærða sé þó ekki krafist frávísunar af þessum sökum en lagt í mat dómsins að meta hvort framsetningin kunni að valda frávísun ákæruliðanna án kröfu.
Sýknukrafa ákærða byggir aðallega á því að ákærði neiti sakargiftum og að ákæruvaldinu hafi ekki tekist að axla sönnunarbyrði sína, einkum hvað varðar ætlaða vitneskju hans um aldur stúlknanna. Þá sé ósannað að ákærði hafi viðhaft kynferðislegt tal við brotaþolana og beri að meta allan vafa um það ákærða í hag. Þá sé ósannað að myndir af brotaþolum hafi borist ákærða og að þær myndir sem honum kunna að hafa borist séu af brotaþolum, auk þess sem ekki sé sannað að ákærði hafi vitað af myndunum í síma sínum og haft ásetning til að móttaka þær, skoða og varðveita.
Ákærði kveðst hafna því sérstaklega að hafa hitt brotaþolann H og afhent henni annars vegar rafrettu og hins vegar kynlífshjálpartæki líkt og lýst sé í 8. tölulið I. kafla ákærunnar, enda komi útlitslýsing hennar ekki heim og saman við útlit ákærða. Þá lúti háttsemislýsing 7. gr. laga nr. 87/2018 um nikótínvörur, rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur einvörðungu að seljendum slíkrar vöru sem í ákvæðinu greinir.
1.2 Ákæra útgefin 12. desember 2024
Af hálfu ákærða er til grundvallar sýknu einkum vísað til þess að hann hafi ekki gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og liggi ekki fyrir sönnun þess að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi. Bent er á að ákærði hafi átt í samskiptum við talsverðan fjölda einstaklinga á Snapchat og muni ekki sérstaklega eftir brotaþolum eða samskiptum við þær. Hafi fjöldinn verið slíkur að ákærði hafi ekki haft yfirsýn yfir viðmælendur eða hvað farið hafi fram þeirra á milli. Það sé því einnig hugsanlegt að skilaboð sem borist hafa brotaþolum hafi verið ætluð öðrum.
Sakarefni
2.1
Málsatvik almennt
Barnaverndarnefnd kærði til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu 12. október 2021 kynferðisbrot karlmanns gegn brotaþolanum CC til heimilis í […]. Lögreglustjóri vísaði málinu til lögreglustjórans á Suðurnesjum til þóknanlegrar meðferðar þar sem brotavettvangur var talinn vera í […]. Greinir í frumskýrslu lögreglu að þegar við upphaf rannsóknar hafi legið fyrir að rannsókn yrði mjög umfangsmikil og margir brotaþolar kæmu við sögu. Ákærði, Brynjar Joensen Creed, var handtekinn 8. nóvember 2021 og var þann dag úrskurðaður í gæsluvarðhald. Var ákæra gefin út í málinu 31. janúar 2022 og með dómi Héraðsdóms Reykjaness 19. maí 2022 í máli nr. S-2701/2022 var ákærði sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn fimm ungum stúlkum og gert að sæta sex ára fangelsi. Landsréttur staðfesti sakfellingu ákærða 31. mars 2023 í máli nr. 427/2022 og var refsing ákærða þar þyngd í sjö ára fangelsi. Með dómi Hæstaréttar Íslands frá 31. janúar 2024 í máli nr. 31/2023 var niðurstaða Landsréttar um ákvörðun refsingar staðfest. Í frumskýrslu greinir að strax við upphaf rannsóknar málsins hafi samskipti ákærða við mikinn fjölda stúlkna verið skoðuð og hlutu þær stöðu brotaþola á meðan á þeirri rannsókn stóð, þ.e. þær stúlkur, auk annarra, sem greinir í ákærum máls þessa.
Skýrslur voru teknar af ákærða vegna rannsóknar málsins 8. og 15. nóvember 2021 og lutu þær að þeirri háttsemi ákærða sem var til umfjöllunar í fyrrgreindu dómsmáli.
2.2
Framburður ákærða almennt hjá lögreglu
Í skýrslutöku 13. desember 2021 var ákærði spurður almennt út í málið, þar á meðal félagslega stöðu sína. Sagði hann þar að á samfélagsmiðlum væri hann í samskiptum við fjölskyldu sína eingöngu á Facebook en ekki á Snapchat, sem hann nýtti til samskipta við „annað kvenfólk“ og hafi þáverandi eiginkona hans ekki haft vitneskju um að ákærði nýtti þann miðil. Hann kvaðst hafa átt tvo síma, hafi eiginkona hans einungis vitað af öðrum þeirra en hinum hafi hann haldið leyndum fyrir henni og þann síma hafi hann meðal annars notað í samskiptum sínum við brotaþola og þá undir notendaheitunum sxy.mf, sem sé skammstöfun fyrir ensku orðin „sexy motherfucker“ og xsxy.mf, auk þess sem hann notaðist við „MR XL“. Kvaðst hann byrja samskipti sín við stúlkurnar á kynferðislegum nótum, til dæmis með því að senda dónalegan texta eða nektarmyndir eða myndbönd af sjálfum sér, þá undir heitinu sxy.mf. Svari stúlkurnar kvaðst hann fá þær til að „tala við vin sinn“ undir notandaheitinu xsxy.mf og kalli sig þá „Sig Sig“.
Kvaðst hann finna kvenmannsnöfn á svokölluðu „Quick Add“ á Snapchat. Hann hafi „addað“ þeim og „ekkert spáð í það meira“. Kvaðst hann ekki vita tölu þeirra skilaboða sem hann hafi sent daglega en þau séu mörg og hafi hann sent skilaboð nánast á hverjum degi. Ákærði kvaðst stundum hafa kallað sig „Sugar Daddy“, en það hafi haft þá merkingu að ef þær „væru góðar“ við hann yrði hann „góður“ við þær. Kvaðst hann hafa á 20 árum hitt „slatta“ stúlkna í kynferðislegum tilgangi. Hann kvaðst ekki vita um aldur þeirra annað en það sem honum hafði verið tjáð í yfirheyrslum, að þær væru á aldrinum 14–65 ára. Ákærði kvaðst hafa búið til „stigaleik“ sem gengið hafi út á það að stúlkurnar söfnuðu stigum fyrir athafnir, svo sem að senda honum nektarmyndir eða myndbönd af sér, og fengu í staðinn stig, til dæmis fimm stig fyrir að brosa, 500 stig fyrir að strjúka ber brjóst, 1000 stig fyrir að „leika með dót“ eða 10.000 stig fyrir fullnægingu. Sagðist hann með þessu hafa hvatt stúlkurnar til að senda sér meira og grófara kynlífstengt efni. Ákærði kvaðst ekki vera haldinn barnagirnd.
Ákærði kvaðst ekki muna hversu mörgum stúlkum hann hefði sent nektarljósmyndir, en hann sagðist hafa stundað slíkar sendingar í um 20 ár. Því gæti hann ekki svarað til um fjölda mynda sem hann hefði sent frá sér. Sagði hann ljósmyndirnar sýna kynfæri hans, almennt „typpamyndir“ af honum sjálfum, en stundum hafi hann sent frá sér myndir sem hann hafi fundið á netinu. Þá kvaðst hann ekki heldur muna hversu mörg myndbönd hann hefði sent til stúlkna, en myndböndin hefðu flest verið „sjálfsfróunarmyndbönd“ sem hann hefði tekið upp á síma sinn. Hann hafi átt tvö símtæki og tekið myndböndin upp á þá báða.
Ákærði kvaðst ekki muna hversu margar stúlkur hefðu sent honum myndir eða myndbönd, en stundum hefði hann fengið myndir „að fyrra bragði“ en stundum hefði hann beðið þær um mynd. Hafi myndirnar og myndböndin yfirleitt sýnt kynfæri þeirra eða verið af kynferðislegum toga. Ákærði sagðist almennt ekki greiða fyrir þær myndir sem hann fengi sendar frá stúlkunum eða lofa þeim greiðslu, en stundum hafi þær þó beðið um eitthvað, svo sem veip, áfengi, kynlífsdót, föt og hnífa.
2.3
Rannsókn málsins og meðferð
Við húsleit á heimili ákærða var meðal annars lagt hald á fartölvu, flakkara, farsíma, tölvudrif, minnislykla og geisladiska. Þá var gerð leit í vinnubifreið ákærða með skráningarnúmerið […], sem er sendibifreið, skráð á […]. Ákærði starfaði þar og hafði bifreiðina til umráða vegna starfs síns. Ákærði var viðstaddur leitina en við hana voru haldlagðir fimm minnislyklar, Samsung-farsími og kynlífstæki í kassa. Ákærði kvaðst eiga farsímann en minnislyklarnir væru fyrir kaffivélar sem tengdust vinnu hans en þó gætu verið á einum lyklinum gögn úr einkatölvu hans.
Gerð var rannsókn á tveimur farsímum ákærða og var þá sérstaklega horft til Snapchatsmáforritsins, ljósmynda og myndskeiða. Mikið var af sama efni í báðum símunum og á þeim báðum voru tveir Snapchat-aðgangar sxy.mf (MR XL) og xsxy.mf (Sig Sig). Í báðum símunum var talsvert af nektarmyndum og öðru klámfengnu efni, þar á meðal myndefni af brotaþolum máls þessa. Samtals voru 1.802 ljósmyndir og 128 myndskeið tekin úr símunum til nánari skoðunar en margar ljósmyndirnar eru smámyndir (e. thumbnails) og endurtekningar af sama efni.
Í símunum fundust einnig meðal annars ljósmyndir og myndskeið í samræmi við „stigaleik“ ákærða þar sem stig voru aðallega gefin fyrir kynferðislegar athafnir. Reglur leiksins voru einnig í símanum en stigin voru fleiri eftir því sem athafnirnar urðu grófari. Þannig voru fimm stig gefin fyrir að veifa, brosa, hoppa, klappa eða sleikja varir en 1.000 stig gefin fyrir að sýna píku, „rass í doggy“, strjúka píku, putta eða leika með dót. Fyrir fullnægingu eða ,,orgasm“ voru gefin 10.000 stig en ekkert fannst sem sýndi einstakling fá fullnægingu. Ljósmyndir tengdar leiknum voru 318 og myndskeið 11.
Á símunum voru níu myndskeið og 27 ljósmyndir af konum og stúlkum að veita karlmanni munnmök en hluti ljósmyndanna var úr myndskeiðunum. Typpamyndir af ákærða voru 205 og flestar þeirra sýna hann með holdris og 17 myndskeið sýna hann vera að fróa sér. Þá fannst talsvert af myndefni sem tengist vændi og klámfengnu efni til sölu, svo sem Onlyfans. Snapchat-aðgangar ákærða voru skoðaðir og í öðrum símanum var ákærði með 6.867 tengingar á báðum Snapchat-reikningunum. Þar af voru 1.699 skilgreindir sem „vinir“, á 91 var ákærði búinn að loka, 590 voru óskilgreindir og 4.487 voru ósvaraðar vinabeiðnir frá ákærða. Á hinum símanum var ákærði með 6.866 tengingar á báðum Snapchat-reikningunum. Þar af voru 1.715 skilgreindir sem vinir, á 95 var ákærði búinn að loka, 591 var óskilgreindur og 4.465 voru ósvaraðar vinabeiðnir frá ákærða.
Eins og fram er komið voru samskipti ákærða við aðra á forritinu Snapchat mjög um- fangsmikil en forritið vistar ekki samskiptin nema notandinn velji það sérstaklega. Einu samskipti ákærða við aðra á Snapchat sem fundust voru því aðeins þau sem ákærði eða viðmælandi hans höfðu vistað í spjalli þeirra. Lögregla fann samskipti við 228 aðila á síðustu 12 mánuðum og hún fann kennitölur 81 þeirra. Viðmælendur voru á aldrinum 11–51 árs, en langflestir voru stúlkur á aldrinum 12–15 ára. Þar af var 21 stúlka í fyrrgreindum stigaleik ákærða, 16 stúlkum vildi ákærði gefa áfengi, rafrettur eða kynlífstæki og hann sendi eða móttók nektarmyndir frá 28 stúlkum. Ákærði dreifði myndskeiði af stúlku veita sér munnmök til tveggja stúlkna og sendi 12 stúlkum myndskeið af sér að stunda sjálfsfróun.
Í umfjöllun um hvern og einn ákærulið verður gerð grein fyrir samskiptum ákærða við brotaþola máls þessa á Snapchat hafi verið um þau að ræða.
Í öðrum síma ákærða var stefnumótaforritið Tinder uppsett með 59 virkar tengingar og 64 símtöl voru vistuð í símanum þannig að tengingarnar höfðu að minnsta kosti verið sá fjöldi. Samtals voru 2.097 skilaboðasendingar á milli ákærða og þessara 64 aðila. Þar af voru samtöl við 16 einstaklinga þar sem skilaboðin voru á milli 10 og 99 og sjö einstaklingar með 100 og upp í 264 skilaboð. Við lauslega yfirferð mátti sjá að ákærði sagði í samtali við aðila með notandanafnið ,,Mrs. S“ að hann hefði hitt fjórar konur og tvö pör.
Rannsókn á farsímum ákærða sýndi umtalsverð samskipti hans á hinum ýmsu miðlum við konur og stúlkur. Samskiptin voru mest á Snapchat eins og fram er komið en einnig á einkamal.is og Tinder. Ákærði talaði við konurnar á kynferðislegum nótum og lýsti áhuga á því að hitta þær til að stunda kynlíf með þeim, gefa þeim kynlífstæki, senda þeim myndir og taka á móti nektarmyndum og nektarmyndskeiðum af þeim. Sumar af þessum konum hefur ákærði fundið í gegnum einkamal.is þar sem þær segjast vera að selja nektarmyndir af sér eða stunda kynlíf gegn greiðslu. Hefur ákærði lýst yfir áhuga á að hitta sumar þeirra og greiða fyrir kynlíf en út frá samskiptunum hefur ekki fundist sönnun fyrir því að af því hafi orðið. Þá hefur ákærði einnig verið í samskiptum við að minnsta kosti þrjá aðganga á Snapchat þar sem pör vilja hitta aðra til að stunda kynlíf með og ákærði lýsti yfir áhuga á því að hitta pörin í þeim tilgangi. Á öðrum síma ákærða var smáforritið Tinder uppsett. Þar mátti sjá að ákærði hefur talað við konur á öllum aldri, þær vita að hann er kvæntur og hann segist ekki stunda nóg kynlíf með eiginkonu sinni og þess vegna sé hann á Tinder. Í einu spjallinu segist ákærði hafa hitt þrjár konur og tvö pör í gegnum Tinder og stundað kynlíf með þeim. Samskipti voru við samtals 43 konur á Tinder-aðgangi ákærða.
Á fartölvu, sem var haldlögð hjá ákærða, fannst klámfengið efni en þá aðallega sömu myndir og voru í farsímum hans, líklega aðallega af stúlkum á aldrinum 11–15 ára þar sem sjást brjóst, kynfæri, sjálfsfróun, munnmök og samfarir. Á hörðum diski fannst mikið af klámfengnu efni, íslensku sem erlendu, af einstaklingum 18 ára og eldri. Á sjö myndum var grunur um barnaklám en þar eru brotaþolar taldar vera 10–17 ára og myndirnar sýndu kynfæri, brjóst og samfarir. Á öðrum hörðum diski fannst mikið af íslensku sem erlendu klámfengnu efni af einstaklingum 18 ára og eldri. Barnaklám var talið vera á 45 myndum þar sem brotaþolar gætu verið á aldrinum 7–16 ára og myndirnar sýna kynfæri, brjóst, munnmök, sjálfsfróun og samfarir. Á þriðja harða diskinum fannst mikið af klámfengnu efni en ekki af einstaklingum undir 18 ára aldri.
ÞÞ geðlæknir var dómkvaddur 30. nóvember 2021 til að framkvæma geðrannsókn á ákærða í því skyni að leiða í ljós hvort hann sé sakhæfur eða hvort refsing geti borið árangur vegna andlegs ástands hans, og skilaði hann matsgerð sem dagsett er 18. janúar 2022 og liggur frammi í málinu.
Í samantekt og áliti matsgerðarinnar segir meðal annars að ætla verði að greind ákærða sé innan eðlilegra marka og það sé grundvallað á viðtölum og sögu hans. Ákærði lýsi kynlífsfíkn og markaleysi varðandi kynhegðun til áratuga með skoðun á klámi í blöðum og síðar á netinu, framhjáhaldi frá 2014 og netsamskiptum við konur og þá fyrst og fremst við ungar konur. Ákærði hafi keypt kynlífstengda hluti og gefið og spilað kynlífsleiki við stúlkur. Samhliða því hafi verið mikið um myndsendingar og móttöku á myndefni. Ákærði virðist vita að mjög margar stúlknanna séu ungar og jafnvel kornungar en hann hugsi ekki út í það og sé ekki upptekinn af útliti eða líkamlegum kynþroska þeirra. Ekki komi fram hjá ákærða merki um eiginlega barnagirnd með tilvísan til kynferðislegra langana gagnvart ókynþroska barni. Miðað við umfang samskipta hafi net- og kynlífsfíkn verið hömlulítil en þó þannig að hann hafi sinnt skyldum í vinnu og heima að mestu. Ákærði hafi ekki sýnt beina eftirsjá gagnvart öðrum en mögulega fjölskyldu sinni. Þessi hegðun samhliða lýsingum á tilhneigingu til að segja ósatt og hnupli í æsku bendi til persónuleikaröskunar af andfélagslegum toga með siðblindu en ákærði uppfylli þó ekki skilmerki þess samkvæmt gögnum. Þunglyndiseinkennum ákærða til lengri tíma þurfi að sinna með viðeigandi meðferð samhliða því sem unnið sé með net- og kynlífsfíkn hans.
Ákærði sýndi í viðtölum engin merki um geðrofssjúkdóm eða merki um skerta greind eða að hann sé andlega takmarkaður þannig að hann viti ekki hvað hann gerir. Hann hafi á öllum stundum vitað mun á réttu og röngu og veit að kynlífs- og netsamskipti við börn eins og hann er sagður hafa stundað eru röng. Þá veit ákærði að verði hann sekur fundinn verði honum refsað með fangelsisvist.
Miðað við framlögð gögn verði að ætla að ákærði hafi verið fær um að stjórna gjörðum sínum í öllum þeim tilvikum sem hafi verið til skoðunar. Því verði að gera ráð fyrir að hann hafi verið fær um að stjórna gjörðum sínum og því eigi 15. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ekki við.
Þá sé ljóst að ákærði hafi verið fær um að stjórna gjörðum sínum á verknaðarstundu og heilsufar hans var og er ekki með þeim hætti að ætla megi að refsing geti ekki borið árangur.
Þá segir matsmaður að í ljósi skóla- og vinnusögu ákærða og þriggja viðtala við hann megi fullyrða að greind sé ekki hamlandi þáttur í daglegu lífi hans og eigi ekki þátt í að skýra hegðun hans í máli þessu. Þá telur matsmaður ljóst að heilsa ákærða hafi litast af kynlífsspennu án hugsunar um afleiðingar fyrir hann eða þær stúlkur og konur sem hann var í samskiptum við. Engin merki hafi komið fram í gögnum eða viðtölum um að ákærði sé haldinn barnagirnd í merkingunni að hafa kynlanganir til ókynþroska barns.
Með bréfum héraðssaksóknara frá 9. júlí 2024 var ákærða og forráðamönnum brotaþola tilkynnt um niðurfellingu þess hluta máls er greinir í ákæruskjali, dagsettu 12. desember 2024, er varðar brotaþolana Q, R, S, T, U, V og X, auk mál annarra stúlkna sem til rannsóknar voru. Ríkissaksóknari felldi úr gildi framangreindar ákvarðanir héraðssaksóknara og lagði fyrir embættið að ákæra í málinu vegna framangreindra sjö stúlkna. Í rökstuðningi ríkissaksóknara segir meðal annars: „Ákvörðun héraðssaksóknara er rökstudd með vísan til þess að kærði verði að njóta vafa um ásetning, þ.e. um að hafa vitað réttan aldur brotaþola og um að hann hafi haft kynferðislegar myndir í óþökk brotaþola […] Kærða, fullorðnum manni, bar að ganga úr skugga um að hann væri ekki í samskiptum af kynferðislegum toga við barn. Háttsemi sú sem [brotaþolar lýsa] er háttsemi sem þekkt er að kærði beitti ungar stúlkur til að brjóta gegn þeim kynferðislega, sbr. Landsréttarmál nr. 427/2022. Var kærði með nefndum dómi talinn ótrúverðugur þegar kom að vitneskju hans um aldur stúlkna sem hann braut gegn. Með vísan til [rannsóknargagna] er það mat ríkissaksóknara að kærði hafi gert sér eða mátt gera sér grein fyrir ungum aldri [þeirra].“
Framburður ákærða almennt fyrir dómi
Ákærði kvaðst hafa notast við samskiptaforritið Snapchat í þeim tilgangi að komast í samband við kvenfólk. Sagðist hann hafa notast við svokallaðan „Quick Add“ hnapp sem væri í forritinu. Sæi hann kvenmannsnafn þar hafi hann einfaldlega bætt því við, eða „addað“. Sagðist hann illa muna eftir því hvernig hann hefði byrjað samskipti sín við þær stúlkur sem hann væri í samskiptum við þar. Sagði hann ástæðu þess að hann hefði notast við Snapchat í samskiptum sínum við stúlkur hafa verið „einfaldleiki“ forritsins og hvernig það hafi „virkað“.
Ákærði kvaðst aðspurður ekki sérstaklega hafa kannað með aldur viðmælenda sinna. Hann hafi einfaldlega verið að leitast eftir samskiptum við kvenfólk sem hann taldi „vera kynþroska eða hafa áhuga á tali um kynlíf eða eitthvað“. Sagði hann væntanlega hafa verið haldinn spennu-, kynlífs- og/eða klámfíkn. Sagði hann þetta hafa aukist með tímanum. Ákærði kvaðst „rosa lítið“ hafa skoðað notendanöfn viðmælenda sinna með það að markmiði að meta aldur þeirra, en hann kvaðst „alls ekki“ hafa beint sjónum sínum að stúlkum undir lögaldri, enda hafi hann jafnframt verið í samskiptum við konur sem væru á hans aldri eða eldri. Aðspurður kvaðst hann „oftast“ hafa hætt samskiptum hafi hann orðið þess áskynja að viðmælandinn væri ung að árum, þ.e. ef það væri „þannig augljóst“.
Ákærði sagði ýmis emoji-tákn hafa sérstaka merkingu í samskiptum hans við stúlkurnar, svo sem „einhverjar gerðir af broskörlum“ auk ýmissa ávaxtamynda. Aðspurður kvað hann emoji-táknið ferskja væntanlega hafa merkt rass „eða eitthvað“, kirsuber hafi merkt brjóst eða geirvörtur. Þá sagði hann emoji-táknið „djöfull“ hafa merkt „greddukarl“ eða „púka“.
Ákærði kvaðst hafa sent „alls konar“ efni til stúlknanna, allt frá „myndum af sólinni“ yfir í „einhverjar dónamyndir“. Sagði hann slíkar dónamyndir einkum hafa sýnt kynfæri og sjálfsfróun, en þær myndir hafi bæði verið af honum sjálfum og myndir af öðru fólki sem hann hafi fundið á netinu.
Ákærði var spurður út í svokallaðan stigaleik sem hann fékk stúlkurnar til að taka þátt í. Kvaðst hann hafa fengið þennan leik sendan frá „einhverjum“ sem hefði viljað spila leikinn. Sagði hann leikinn hafa snúist um það að gefa viðmælandanum stig fyrir ýmsar athafnir, allt frá því að brosa „upp í það að senda klámfengnar myndir“. Sagði hann fullorðnar konur einnig hafa tekið þátt í þessum leik. Sagði hann stúlkurnar ekkert hafa fengið fyrir þau stig sem þær hafi safnað með þátttöku í leik hans.
Ákærði sagðist almennt ekki hafa greitt stúlkum fyrir myndsendingar, en það hafi þó gerst. Sagðist hann til að mynda einhverju sinni hafa afhent kynlífstæki, veip eða sælgæti. Aðspurður kvaðst hann ekki hafa sérstaklega kannað með aldur þeirra stúlkna sem beðið hafi hann um veip eða áfengi.
Ákærði kvað langstærstan hluta viðmælenda sinna ekki hafa vitað nein deili á sér, en það hafi verið meðvituð ákvörðun af hans hálfu að gefa ekki upp hver hann væri. Það hafi einkum helgast af því að hann væri giftur fjölskyldumaður. Borin var undir ákærða sú háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæruköflum II í báðum ákæruskjölunum, þ.e. að hafa í nánar tilgreind skipti haft í vörslum sínum myndir af tilgreindum stúlkum. Ákærði kvaðst ekki rengja það að hafa haft þessar myndir í vörslum sínum en muni þó ekki sérstaklega eftir þessum myndum. Ákærði staðhæfði aðspurður að hann hafi aldrei ætlað sér að vera í samskiptum við stúlkur sem væru „undir lögaldri“, enda hafi hann ekki mátt ráða af samskiptunum að svo væri.
Hann sagði notendanöfn þau sem hann notaðist við á Snapchat á umræddu tímabili hafa verið; „sxy.mf“ og „xsxy.mf“. Þá kvaðst hann kannast við að hafa notast við notandanöfnin „MR XL“ og „Sig Sig“.
Ákærði sagðist hafa verið í nær daglegri áfengisneyslu í um tvö ár fram að handtöku. Sú neysla hafi byrjað „mjög snögglega“. Sagðist hann hafa verið undir miklu álagi, bæði heima fyrir og í vinnu.
Aðspurður kvaðst ákærði ekki hafa „spáð þannig séð mikið“ í aldur viðmælenda sinna. Kvaðst hann hafa metið það svo að ef hann skynjaði áhuga viðmælanda á „kynlífi eða eitthvað“ eða viðmælandi hefði áhuga á að „tala um kynlíf“ þá hafi hann talið að um „fullþroska“ og „kynþroska“ konur væri að ræða. Sagðist hann ekki hafa leitað sérstaklega í ungar stelpur í þessum tilgangi. Greindi ákærði svo frá að „rosalega oft“ hefði hann sent skilaboð, myndir og annað til margra viðtakenda í senn.
Ákærði kvaðst aðspurður ekki muna eftir því að hafa mælt sér mót eða hitt þær stúlkur sem ákæran varðar.
Ákærði kvað málið hafa haft mikil áhrif á sig. Hann hafi til að mynda glatað öllum tengslum við fjölskyldu sína, en sé þó í nokkrum samskiptum við eldri stjúpdóttur sína. Þá sé hann „eignalaus og allslaus“. Kvaðst hann hafa sótt samtalsmeðferðir hjá sálfræðingi í þeim tilgangi að vinna bug á fíkn sinni.
Almennur framburður lögreglumanna og annarra fyrir dómi
Vitnið, lögreglumaður nr. 1, kvaðst staðfesta skýrslu sínar í málinu. Staðfesti vitnið meðal annars uppritun á myndskeiði sem fannst á farsíma ákærða sem sýnir karlmann stunda sjálfsfróun og að myndskeiðið hafi bæði verið sent til brotaþolans D (4. töluliður fyrra ákæruskjals) og brotaþolans V (6. töluliður síðara ákæruskjals), sitt hvorn daginn.
Vitnið kvaðst sjálft ekki hafa skoðað öll samskipti, enda hafi lögregla á að skipa aðilum sem sérhæfa sig í slíkum símarannsóknum. Vitnið hafi þó veitt aðstoð við vinnslu samskipta og notið aðstoðar sérfræðinga við það. Sagði vitnið augljóst að mikið vantaði inn í samskipti milli ákærða og brotaþola, enda sé það innbyggt í forritið Snapchat að sendingar milli fólks eyðast almennt úr forritinu. Vitnið kvaðst hafa greint að ákærði hafi sent fjölmargar myndir á fjölda stúlkna, enda hafi sömu myndina oft verið að finna hjá fleiri en einum viðtakanda. Það sama eigi við um umræddan stigaleik.
Vitnið, lögreglumaður nr. 2, kvaðst hafa stjórnað rannsókn málsins. Málið hafi hafist á því að barnavernd Hafnarfjarðar hafi óskað eftir lögreglurannsókn. Rannsókn málsins hafi leitt til þess að grunur féll á ákærða og hafi hann verið handtekinn í kjölfar tálbeituaðgerðar. Framkvæmd hafi verið leit á heimili ákærða og í vinnubifreið. Við skoðun hafi komið í ljós að ákærði hafi átt í samskiptum við stóran hóp ungra stúlkna. Við handtöku hafi komið í ljós að ákærði hafði þann dag verið búinn að senda skilaboð á Snapchat á 94 einstaklinga, en mikið af því hafi verið kynferðislegt efni af ákærða sjálfum.
Sagði vitnið að ákærði hefði vistað „óhemju mikið“ af myndum, skilaboðum og myndskeiðum á Snapchat-reikningi sínum og síma. Ákærði hafi verið með tvo síma, en í þeim báðum hafi fundist mjög mikið af myndefni og samskiptum við stúlkur, sem lögregla taldi vera mjög ungar að aldri enda hafi þær almennt skeytt ártali, þ.e. fæðingarári sínu, aftan við nafn sitt á Snapchat-reikningi sínum, en þetta sé algengt hjá ungum notendum forritsins.
Sökum umfangs málsins hafi verið sett á laggirnar sérstakt rannsóknarteymi sem hafði það að markmiði að rannsaka síma og símasamskipti. Hafi starf hópsins meðal annars lotið að því að afla upplýsinga um stúlkurnar. Hafi lögregla með þessu náð að afla upplýsinga um alls 72 stúlkur sem allar voru yngri en 15 ára gamlar. Sökum þess hversu umfangsmikið málið var hafi verið afráðið að kljúfa þátt fimm stúlkna út úr málinu og ljúka rannsókn þess þáttar til að unnt væri að ákæra í því máli þegar í stað.
Vitnið kvaðst hafa útbúið sérstaka skýrslu, eða tímalínu, sem sýni hvenær ákærði hafi verið í samskiptum við 21 stúlku. Þá hafi vitnið tekið skýrslu af ákærða. Kvaðst vitnið staðfesta skýrslur sínar.
Vitnið, lögreglumaður nr. 3, kvaðst einkum hafa afritað farsíma og annast öflun annarra stafrænna sönnunargagna, svo sem afritun Snapchat-reikninga. Vitnið kvaðst staðfesta skýrslur sínar.
Vitnið, lögreglumaður nr. 4, kvaðst hafa komið að skoðun á stafrænum gögnum í farsímum ákærða og brotaþola, þar á meðal samskiptum á Snapchat. Sagði vitnið að við handtöku hefði komið í ljós að ákærði hafði þá sent skilaboð á um 95 aðila þennan morgun. Sagði vitnið að notendanöfn stúlknanna hefðu í mörgum tilvikum gefið augljóslega til kynna hver væri aldur þeirra með því að tilgreina með tölustöfum fæðingarár sitt eða í sumum tilvikum aldur barns við stofnun aðgangs.
Matsmaðurinn ÞÞ geðlæknir kvaðst staðfesta matsgerð sína um sakhæfi ákærða. Sagði hann ákærða hafa verið færan um að stjórna gerðum sínum þegar atvik áttu sér stað. Hann skilji fullkomlega orsök og mögulegar afleiðingar af meintum gerðum sínum og því eigi 15. gr. almennra hegningarlaga ekki við um ákærða og sé ekkert því til fyrirstöðu að refsing gæti borið árangur.
Matsmaður sagði að sér hefði verið falið að leggja mat á greind ákærða. Ákveðið hafi verið að ráðast ekki í sérstök greindarpróf, enda gæfi forsaga hans og staða ekki annað til kynna en að greind hans væri innan hefðbundinna marka. Sagði matsmaðurinn að á umræddu tímabili sé ljóst að hugsun ákærða hafi verið lituð af gríðarlegri kynlífsspennu og fíkn, sem hafi stjórnað gjörðum hans að mjög miklu leyti. Þá hafi það verið álit matsmanns að ákærði hafi ekki verið haldinn barnagirnd, í merkingunni að hafa kynferðislegar langanir til ókynþroska barns.
Ákæra útgefin 11. júlí 2024
5.1
Ákæruliður I.1 – Brotaþolinn A
5.1.1 Almennt – málavextir o.fl. Í skýrslu lögreglu greinir að við skoðun á afriti af farsíma ákærða megi sjá að hann hafi átt í samskiptum við brotaþolann A á Snapchat. Við skoðun á farsíma ákærða mátti sjá ótal skilaboð af kynferðislegum toga. Hafi ákærði notast við tvo aðganga á Snapchat, annan með notandanafnið sxy.mf með uppgefnu nafni MR XL en hinn með notandanafnið xsxy.mf með uppgefnu nafni Sig Sig. Sást að samskipti ákærða við brotaþola var að finna undir aðganginum sxy.mf, en brotaþoli hafi sjálf notast við aðganginn […] með uppgefnu nafni […].
Við skoðun kom í ljós að fyrstu vistuðu skilaboðin hafi verið frá brotaþola 15. mars 2021 þar sem hún segist ekki hafa viljað sjá þetta. Þann 16. mars sama ár sendir ákærði til hennar að hann sé með „extra large“. Því svarar brotaþoli: „Ef ég þarf ekki að senda neitt“, „Sjáðu þú þurftir mig ekki“ og „Ekki tala um þetta samt“. Í gögnum var ekki unnt að greina þau skilaboð sem send voru þar á milli þar sem þau höfðu ekki verið vistuð. Ákærði sendir á brotaþola að hún sé með sætar lappir í kjölfar þess að brotaþoli sendir ákærða myndskeið af sér í sokkum. Þann 17. mars sama ár sendir brotaþoli ljósmynd af sér haldandi á smokk fylltum með vökva. Þann 19. mars sama ár sendir brotaþoli: „Ha?“ og „Og stofan mun lykta eins og fiskur“ og „jaok hjarta“. Því svarar ákærði með emojitákni af rauðum vörum. Brotaþoli sendir til ákærða hvort hún eigi að senda eitthvað sem hann svarar með „Mmmm“ og langri runu af broskörlum sem brotaþoli svarar með tveimur táknum af rauðum hjörtum og „Elska þigggg 2hjörtu“ og „Elska þig hjarta“. Því svarar ákærði með táknmynd af brosandi púka og brotaþoli svarar í kjölfarið: „Þetta moan þegar þú byrjaðir að cumma shiiiii dammnnn“ sem ákærði svarar með táknmynd af brosandi púka. Brotaþoli sendir í framhaldinu: „Elska þegar þú andar svona hátt broskall“, „Holy shittttt broskall“ og „Elska hljóðið broskall“. Því svarar ákærði með mörgum broskörlum. Þann 23. mars sama ár sendir brotaþoli: „Damnnn“ og „Þær eru ógeðslega sætar“, sem ákærði svarar með broskörlum og brotaþoli svarar með hjörtum.
5.1.2 Framburður brotaþola fyrir dómi Brotaþoli, A gaf skýrslu fyrir dómi í Barnahúsi 3. desember 2021. Greindi hún þar frá því að vinkona hennar, U, hefði gefið manninum notandanafn sitt og að hann hefði í framhaldinu „addað“ henni nokkrum sinnum. Sagði hún notandanafn sitt á Snapchat hafa verið […]. Sagði hún manninn hafa sent henni „einhvern link á einhverju klámógeði“ og spurt hana hvort hún vildi „gera það með honum“, en hún neitað. Sagði hún manninn hafa spurt sig hvað hún væri gömul og hún þá sagst vera […] ára og jafnframt beðið manninn um að láta sig vera og í framhaldinu hafi hún „blokkað“ manninn. Kvaðst hún ekki vita um aldur mannsins en henni hafi sýnst hann vera gamall, eða um 70 ára. Minnti hana að maðurinn hefði verið ljóshærður.
A sagðist hafa rætt við manninn á Snapchat ásamt vinkonum sínum, DD og EE sem væri jafn gömul sér. Sagði hún nánar að í upphafi samskiptanna, sem hana minnti að hefðu hafist í mars eða apríl 2021, hefði maðurinn spurt stúlkurnar um aldur og spurt þær hvort þær vildu senda honum myndir. Þegar þær hafi neitað hafi maðurinn þrábeðið þær en þær ávallt neitað. Maðurinn hafi hins vegar sent þeim fjölda mynda „af einkastöðum“ sínum, þ.e. „typpamyndir“ myndbanda af honum að fróa sér. Hann hafi hins vegar ekki sent þeim myndir af andliti sínu. Sagði hún manninn ítrekað hafa óskað eftir nektarmyndum af henni og hafi það orðið til þess að hún hætti að svara honum. Sagði hún manninn hafa sent sér mikinn fjölda af „typpamyndum“ og fjölda myndbanda af honum að runka sér. Sagðist hún ekki hafa séð öll myndböndin sjálf, þar sem hún hafi engan áhuga haft á þeim. Vinkona hennar, EE, hafi hins vegar séð ýmislegt í síma hennar.
Sagðist A einungis hafa sent honum einhverjar ómerkilegar myndir, til dæmis af fótum sínum. Þá hafi hún og EE, vinkona hennar, nokkrum sinnum sent manninum hljóðskilaboð.
A kvaðst ekki hafa hitt manninn og hann ekki beðið hana um að hitta sig. Hann hafi þó einu sinni verið í (…), þar sem A bjó, og sagt við hana og vinkonu hennar, EE, að hann ætlaði að koma til þeirra. Sagði hún þær þá hafa orðið „ógeðslega hræddar“. Hann hafi hins vegar ekki komið til þeirra.
Greindi stúlkan frá því að maðurinn, sem hafi verið með notandanafnið „sxy.mf“ og „MR XL“, hafi ekki gefið upp nafn sitt. A sagði að sér hefði fundist þetta óþægilegt á þeim tíma en sé alveg sama um þetta núna og „pæli ekki lengur út í þetta“.
5.1.3 Framburður ákærða hjá lögreglu Ákærði kvaðst í skýrslutöku 13. desember 2021 ekki kannast við samskipti eða myndir af brotaþolanum A. Framburður brotaþola um Snapchat-samskipti þeirra var borinn undir ákærða, sem kvaðst ekki muna eftir þeim.
5.1.4 Framburður ákærða og vitna fyrir dómi Ákærði gaf skýrslu við aðalmeðferð málsins 17. mars 2025. Borin voru undir ákærða skjáskot sem tekin voru úr símtæki hans. Kemur þar fram að notandanafn brotaþola hafi verið […] og hafi hún gengið undir heitinu […]. Ákærði kvaðst ekki hafa velt fyrir sér merkingu tölustafa í notandanafni hennar og heiti. Borin voru undir ákærða samskipti brotaþola við notandann sxy.mf, sem ákærði hefur áður staðfest að hafi verið hans notandanafn á Snapchat.
Ákærði kvaðst ekki muna eftir samskiptum sínum við brotaþola. Hann gæti til að mynda ekki svarað því hvort hann hefði greint brotaþola frá aldri sínum eða spurt hana um aldur. Ákærði kvaðst þó ekki rengja að fyrirliggjandi samskipti væru komin frá honum. Ákærði kvaðst ekki muna sérstaklega eftir að hafa verið í samskiptum við stúlku í Hveragerði, en þar hafi brotaþoli búið á þessum tíma.
I, móðir brotaþolans A, sagðist fyrst hafa heyrt af málinu hjá lögfræðingi. Sagði hún dóttur sína hafa rætt við hana um málið, þótt hún hafi ekki farið ítarlega í saumana á því. Sagði hún brotaþola hafa liðið mjög illa þegar hún hafi greint móður sinni frá þessu. Sagðist hún hafa merkt breytingar í hátterni og atferli brotaþola í kjölfar málsins. Sagði hún brotaþola á tímabili hafa gengið til sálfræðings á Selfossi. Ýmislegt annað hafi „komið upp“ hjá brotaþola á þessum tíma og hún hafi jafnframt verið að glíma við önnur mál, þar á meðal afleiðingar grófs kynferðisbrots af hálfu samnemanda sem upp hafi komist við upphaf skólaárs 2021. Hafi brotaþoli af þessum sökum misst um eitt og hálft ár úr í skóla. Að sögn sé brotaþoli dómhörð á eigin hegðun og henni finnist jafnframt aðrir sífellt dæma sig. 5.2
Ákæruliður I.2 – Brotaþolinn B
5.2.1 Almennt – málavextir o.fl. Í skýrslu lögreglu greinir að á tímabilinu 27. desember 2020 fram til 10. febrúar 2021 séu vistuð samskipti ákærða við brotaþolann B á Snapchat við notandann sxy.mf sem gengur undir nafninu MR XL. Hafi tenging fundist á Snapchat-reikningi ákærða við notandanafnið […] með uppgefnu nafni […].
Við rannsókn á farsímum ákærða fundust á Snapchat-reikningi hans skilaboð milli hans og brotaþola. Spyr hún ákærða um módel og hann sendir til baka mynd af strák. Þá sendir ákærði henni myndir af stigaleik og að hún eigi að gera það sem þar segir. Hann segist vera dómari og stigavörður leiksins. Brotaþoli biður ákærða um mynd af honum, sem ákærði vill ekki senda. Kveðst ákærði þar heita Björn og sendir henni mynd sem hún telur vera af typpi hans í nærbuxum, mynd af strák, mynd af súrsuðum „lambatittlingum“ og mynd af smokki.
Í gögnum máls er að finna alls 12 skjáskot af Snapchat-reikningi ákærða sem sýna samskipti hans við brotaþola og eitt myndband. Þá fundust 14 myndir á Snapchat-reikningi brotaþola.
5.2.2 Framburður brotaþola fyrir dómi Brotaþoli, B, gaf skýrslu fyrir dómi í Barnahúsi 15. mars 2022. Staðfesti hún þar samskipti sín við manninn sem hún sagði hafa „addað“ sér á Snapchat og hún samþykkt vinabeiðni hans. Sagði hún manninn hafa beðið sig um að taka þátt í stigakeppni, sem hún hafi hins vegar ekki gert. Sagði hún manninn í framhaldinu hafa sent henni typpamyndir, sem henni hafi fundist óþægilegt og ógeðslegt. B kvaðst ekki muna nákvæmlega hvernig stigaleikurinn hafi verið en hann hafi þó gengið út á að safna stigum með því að senda myndir, til dæmis myndir af brjóstum og kynfærum. B kvaðst halda að hún hefði ekki sent slíkar myndir eða tekið þátt í leiknum. B sagði manninn hafa sent um það bil þrjár typpamyndir á dag, auk þess sem hann hafi sent henni myndbönd af sér að runka sér. B sagðist smátt og smátt hafa hætt að opna sendingar mannsins og hafi um tveimur vikum síðar eytt honum af reikningi sínum. B sagði að sér liði enn illa yfir þessum samskiptum, sem hún hafi þó reynt að gleyma. B kvaðst í upphafi samskiptanna hafa spurt manninn að aldri, en hún muni ekki hverju hann hafi svarað. Hún sagðist jafnframt halda að hann hafi ekki spurt hana um aldur.
B sagðist telja að notandanafn mannsins á Snapchat hafi verið í líkindum við „extra large“. Borið var undir hana nafnið „MR XL“, sem hún kvað þá hafa verið nafnið sem maðurinn notaðist við í samskiptunum en hún kvaðst þó ekki muna notandanafnið hans. B staðfesti að vera með aðgangsheitið […] á Snapchat.
5.2.3 Framburður ákærða hjá lögreglu Ákærði sagðist í skýrslutöku hjá lögreglu 16. júní 2022 ekki kannast við brotaþolann B eða muna eftir samskiptum við hana. Hann kvaðst kannast við ljósmyndir af Snapchatreikningi sínum undir nafninu sxy.mf, sem bornar voru undir hann í skýrslutökunni.
5.2.4 Framburður ákærða og vitna fyrir dómi Ákærði gaf skýrslu við aðalmeðferð málsins. Voru þar borin undir hann skjáskot og samskipti milli hans á notandanafni hans sxy.mf og notandanafns brotaþola, […]með uppgefnu nafni […]. Sagðist ákærði ekki hafa velt fyrir sér merkingu tölustafa í notandanafni brotaþola. Ákærði kvaðst ekki muna sérstaklega eftir samskiptum sínum við brotaþola en rengi ekki að þau hafi átt sér stað.
J, móðir brotaþolans B, sagðist fyrst hafa frétt af málinu frá lögreglu. Sagðist hún í framhaldinu hafa rætt málið við dóttur sína, sem hafi þá greint henni að nokkru frá samskiptunum. Kvaðst hún þar skammast sín fyrir að hafa átt í samskiptunum og sér liði mjög illa af þeim sökum. Sagðist hún hafa merkt ýmsar breytingar hjá brotaþola vegna málsins. Hár brotaþola hafi til að mynda þynnst mikið, hún hafi svitnað mun meira en vanalega og hafi hún merkt kvíðaeinkenni hjá brotaþola. Sagði hún brotaþola eiga mjög erfitt með að ræða atvikin og „brotni niður“ beri þau á góma. Brotaþoli eigi erfitt með að treysta drengjum. Sagði hún brotaþola fram til þessa ekki hafa treyst sér til að ganga til sálfræðings. Aðspurð taldi hún fullvíst að ekkert annað atvik gæti útskýrt breytta líðan brotaþola og hátterni.
5.3 Ákæruliður I.3 – Brotaþolinn C 5.3.1 Almennt – málavextir o.fl. Í skýrslu lögreglu greinir að á tímabilinu 18. október fram til 6. nóvember 2020 séu til vistuð samskipti ákærða við brotaþolann, C, á samskiptamiðlinum Snapchat við notandann sxy.mf sem gengur þar undir nafninu MR XL. Fann lögregla við rannsókn tengingu á Snapchat-reikningi ákærða við notandanafnið […] með uppgefnu nafni […]. Við skoðun á Snapchat-reikningi ákærða fundust kynferðisleg skilaboð milli hans og brotaþola, C.. Greinir í skýrslunni að þar óski brotaþoli eftir að fá að sjá typpið hans í píkunni á vinkonu hans og hann sleiki píkuna á vinkonu hans. Ákærði skrifar: „mmmmm næs meira“. Brotaþoli segir ákærða að „stunda sex núna“ og svarar ákærði því til að hann geti það ekki en biður um fleiri myndir af brotaþola sem hún segist geta sent. Brotaþoli biður ákærða í framhaldinu um að hann sendi henni „þegar þau eru að ríða“. Ákærði segir: „ok“. Ákærði segist vinna á lager og sendast. Brotaþoli spyr hann hvort hann sé með standpínu, hann segir „jamm“ og hún biður um að fá að sjá. Ákærði segist ekki geta það þar sem hann sé í bíl. Brotaþoli biður ákærða aftur um að fá að „sjá typpið hans“ en ákærði segist enn vera í bílnum. Hún biður hann samt um að sýna sér, sem ákærði segist ekki geta gert þar sem hann geti ekki verið nakinn í bílnum í bænum. Síðar biður ákærði um meira „plzzz“ og brotaþoli spyr: „hvað núna“. Brotaþoli spyr hvort ákærði eigi „vídeó“ og segist ákærði segist hafa verið „að því áðan“. Í skýrslunni greinir að brotaþoli spyrji ákærða hvort hann „nenni að ríða“ og hann svarar: „alltaf“. Brotaþoli segir þá: „Ok eftir vinnu“. Í hljóðskilaboðum frá brotaþola heyrist: „nennirðu að setja smokk á typpið þitt og taka það upp og senda mér það?“
Í gögnum máls er að finna alls 11 skjáskot af Snapchat-reikningi ákærða sem sýna samskipti hans við brotaþola og eitt myndband með þrennum hljóðskilaboðum sem brotaþoli sendir til ákærða á sxy.mf.
5.3.2 Framburður brotaþola fyrir dómi Brotaþoli, C gaf skýrslu fyrir dómi í Barnahúsi 11. mars 2022. Staðfesti hún þar samskipti sín við manninn og staðfesti jafnframt að hafa verið með aðganginn […] á árinu 2020. Sagði hún manninn hafa spurt hana um aldur í upphafi samskiptanna og hún hafi sagt honum það. Brotaþoli kvaðst ekki muna nákvæmlega eftir samskiptum þeirra en kvaðst „örugglega“ hafa sent honum nektarmyndir, en kvaðst þó ekki muna hvað þær hafi sýnt. Hún sagðist ekki hafa sent ákærða myndskeið af sér en haldi að ákærði hafi sent henni myndskeið af sér með öðrum.
5.3.3 Framburður ákærða hjá lögreglu Í skýrslutöku ákærða 17. mars 2022 kvaðst hann ekki muna eftir samskiptum sínum við brotaþolann C. Ákærði staðfesti að „MR XL“ væri notandanafn hans á Snapchat. Framburður brotaþola var borinn undir ákærða sem kvaðst ekki muna eftir þeim samskiptum sem þar er lýst.
5.3.4 Framburður ákærða og vitna fyrir dómi Ákærði tjáði sig ekki sérstaklega um sakarefni ákæruliðarins við skýrslutöku fyrir dómi.
K, móðir brotaþolans C, sagði dóttur sína lítið hafa viljað ræða atvik og fundist það mjög óþægilegt. Sagðist hún hafa merkt miklar breytingar í hegðun, atferli og líðan brotaþola vegna málsins, hún hafi til að mynda verið uppstökk, átt erfitt með skapstjórn, hún hafi pirrast auðveldlega og illa þolað mótlæti. Þá hafi brotaþoli byrjað „að […]“. Sagðist hún ekki vita til þess að brotaþoli hefði lent í öðrum áföllum sem skýrt gætu breytingarnar. Brotaþoli eigi nú til að mynda mjög erfitt með að umgangast karlmenn, en hún geti einungis umgengist föður sinn og afa, og hún sé mjög óörugg. Sagði vitnið að ráðgert væri að brotaþoli sækti síðar á árinu […], sem sé […].
5.4
Ákæruliður I.4 – Brotaþolinn D
5.4.1 Almennt – málavextir o.fl. Í skýrslu lögreglu greinir að á tímabilinu 1.–23. september 2020 séu vistuð samskipti ákærða við brotaþolann D á Snapchat við notandann sxy.mf sem gengur undir nafninu MR XL. Kemur fram að tengingin hafi fundist á Snapchat-reikningi ákærða við notandanafnið […] með uppgefnu nafni […]. Við skoðun kom í ljós að á „vinalista“ á Snapchat-reikningi ákærða hafi tenging verið á milli notendanna sxy.mf og xsxy.mf við notandann […]. Þá hafi við rannsókn fundist kynferðisleg skilaboð milli ákærða og brotaþola. Kemur fram að brotaþoli spyrji ákærða um „módel“ en hann sendi henni mynd af strák. Brotaþoli segist vera „virgin“. Ákærði spyr brotaþola hvort hún sé gröð og hún svarar, „já smá“. Brotaþoli spyr hvort „hann [hafi verið] í sex store“ og ákærði svarar: „Jmm“ og sendir broskarla. Brotaþoli spyr hann hvar það hafi verið og ákærði sendir til baka: www.sex.is. Brotaþoli segir að það sé „sex store“ við hliðina á húsi hennar og spyr ákærða hvar hann eigi heima. Hann segir það vera „rétt hjá Spöng“. Ákærði segir brotaþola í framhaldinu að setja hönd sína ofan í buxur sínar. Hann segir: „Mmmmmmm æaði“ og sendir táknmyndir af slefkörlum og segist langa í og biður um að fá að sjá nærbuxur hennar og segir: „Mmmm ok“. Ákærði sendir í framhaldinu þrjár „typpamyndir“, meðal annars af sáðfalli. Brotaþoli segist vera í skólanum. Ákærði segist vilja sleikja píku hennar og sendir henni „runkmyndband“ og myndband af karlmanni að hafa munnmök við konu og brotaþoli skrifar: „Holy shit“. Ákærði sendir brotaþola mynd af titrara og spyr hana hvort hana langi í eitthvað úr versluninni Adam og Evu. Hún segist ekki vita það „en öruggleg“. Ákærði spyr hvort brotaþola langi í „dildó eða víbrator“ og segir henni að kaupa sér eitthvað og sýna honum þegar hún noti það. Ákærði spyr brotaþola hvort hún „fíli anal“ og sendir henni táknmyndir af púkum. Brotaþoli segist aldrei hafa prófað það. Þá sendir ákærði henni myndband af karlmanni í samförum við konu. Ákærði spyr hvort brotaþoli sé búin „að putta sig í dag“, en hún svarar neitandi. Ákærði spyr aftur sömu spurningar og brotaþoli svarar nú játandi. Ákærði spyr þá „oft?“ og hún segir já. Ákærði biður brotaþola næst að senda sér eitthvað „sexy“, en brotaþoli svarar: „Whyyy“ og táknmyndir af grátkörlum. Brotaþoli segir þá: „Sorry, mamma vildi sjá hverjum ég var að chatta við“. Ákærði sendir henni í framhaldinu tíu typpamyndir og 38 myndbönd af sjálfum sér að stunda sjálfsfróun og samfaramyndbönd. Eitt þeirra myndbanda er tæplega fjögurra mínútna langt myndskeið af honum sjálfum að stunda sjálfsfróun og talar ákærði inn á myndbandið og lýsir því þar hvað hann hafi í huga að gera við brotaþola, vilji hún stunda með honum kynlíf.
Í gögnum máls er að finna alls 42 skjáskot af Snapchat-reikningi ákærða sem sýna samskipti hans við brotaþola og eitt myndband.
5.4.2 Framburður brotaþola fyrir dómi Brotaþoli, D, gaf skýrslu fyrir dómi í Barnahúsi 22. febrúar 2022. Kvaðst hún þar staðfesta samskipti sín við manninn og að hún væri með aðgangsheitið […]. Sagðist hún hafa sagt manninum í upphafi samskipta þeirra að hún væri fædd árið […], en hún hafi haldið að ákærði væri 18 eða 19 ára gamall. Sagði hún notandanafn mannsins hafa verið sxy.mf og uppgefið nafn hans MR XL. Sagði hún manninn hafa beðið hana um að senda sér nektarmyndir, en hún hafi neitað því. Hún hafi sagst vera „virgin“, sem þýddi að hún hefði aldrei verið með strák og hann hefði þá „viljað í hana“ og beðið hana um að senda sér nektarmyndir. Sagði hún manninn hafa sagst vera graður og að hann hafi sent henni myndir innan úr kynlífstækjaverslun. Hann hafi sagt brotaþola að fara með hendur ofan í buxur sínar og vildi sjá nærbuxur hennar, en hún hafi neitað því. Þá hafi maðurinn sent henni kynlífsmyndbönd af manni og konu og „runkmyndbönd“ og „typpamyndir“ af sjálfum sér. Brotaþoli sagðist hafa fundið myndir af boltum á netinu („typpaboltum“) og mynd af barni að hafa munnmök við dúkku (Dóru landkönnuð) og sent til mannsins. Sagðist hún hafa sent þetta í gríni og verið að „djóka í“ manninum með vinum sínum. Sagði hún manninn hafa sent sér myndir af kynlífstækjum og getnaðarlim sínum. Þá hafi hann spurt hana hvort hún væri búin að „putta sig“ í dag. Sagðist hún hafa svarað því játandi, en það hafi verið í gríni. Sagðist hún hafa viljað hætta samskiptum við manninn og því sagt við hann að mamma sín hafi viljað sjá við hvern hún væri að spjalla á netinu. Sagði hún manninn ítrekað hafa spurt sig hvort hún væri búin að putta sig og í hvernig fötum hún væri og jafnframt sagt henni að strjúka á sér „blauta píkuna“ og sýna honum bleytuna á puttunum. Þá hafi maðurinn boðist til að fá samstarfsmann sinn til að færa henni titrara. Að sögn brotaþola hafi henni fundist hún knúin til að senda manninum kynferðislegt efni þar sem hann hefði sent henni mikið af slíku efni. Hún kvaðst hafa á endanum sent myndir af sér í nærbuxum, sem hafi þó ekki verið nektarmynd. Sagði hún manninn ítrekað hafa sagt við hana: „komdu yfir til mín“ og slíkt sem hún hafi metið þannig að hann hafi viljað stunda með henni kynlíf. Brotaþoli kvaðst aldrei hafa hitt manninn.
5.4.3 Framburður ákærða hjá lögreglu Ákærði kvaðst í skýrslutöku 17. mars 2022 ekki muna eftir samskiptum sínum við brotaþolann D. Borin voru undir ákærða samskipti þar sem brotaþoli segir við hann að hún sé „hrein mey“. Kvaðst ákærði túlka það svo að hún hefði ekki stundað kynlíf áður. Í samskiptum þeirra kemur fram að ákærði hafi boðist til þess að kaupa fyrir brotaþola víbrator og fá vinnufélaga sinn til þess að færa henni tækið. Ákærði kvað þetta ekki hafa átt sér stað. Hann kvaðst ekki muna eftir því að hafa beðið brotaþola ítrekað um að hitta sig. Ákærða var sýnt fjögurra mínútna langt myndband sem hann sendi brotaþola D. Kvaðst ákærði ekki muna eftir því að hafa sent henni myndbandið en kvað það vera af sér. 5.4.4 Framburður ákærða og vitna fyrir dómi Ákærði tjáði sig ekki sérstaklega um sakarefni ákæruliðarins við skýrslutöku fyrir dómi.
FF, móðir brotaþolans D, sagði dóttur sína ekkert hafa rætt við sig um málið. Kvaðst hún fyrst hafa frétt af málinu þegar lögmaður hafi haft samband við sig. Sagðist hún hafa skynjað breytingar á líðan dóttur sinnar. Hún hafi mikið lokað sig af í herbergi sínu. Sagði hún líðan dóttur sinnar hafa batnað og vera ágæta í dag. Brotaþoli hafi verið hjá sálfræðingi, en það hafi ekki einungis verið vegna þessa máls.
5.5
Ákæruliður I.5 – Brotaþolinn E
5.5.1 Almennt – málavextir o.fl. Í skýrslu lögreglu greinir að á tímabilinu 12.–13. nóvember 2020 séu til vistuð samskipti ákærða við brotaþolann E á samskiptamiðlinum Snapchat og að tenging hafi fundist á reikningi ákærða sxy.mf við […]. Þá kemur fram að Snapchat-reikningur í síma brotaþola hafi verið með notandanafninu […] með uppgefið nafn […].
Þá greinir að á svokölluðum vinalista ákærða á Snapchat (sxy.mf) hafi verið notandanafnið […] og að þau hafi „tengst“ 11. maí 2021. Einnig hafi tenging verið á milli xsxy.mf og […] og að tenging hafi þar komist á 27. febrúar 2021. Við skoðun á Snapchatreikningi ákærða (sxy.mf) fundust kynferðisleg skilaboð milli hans og brotaþola, þar sem hann kemur fram sem 16 ára stúlka. Þá sést að ákærði sendir brotaþola andlitsmynd af stúlku því til staðfestingar. Kemur þar fram að ákærði segir aðila að nafni Bjössi hafa gefið þessari stúlku upp Snapchat-aðgang brotaþola. Þá sést að ákærði spyr brotaþola hvort hún eigi ekki að mæta í skólann og spyr hvort hún sé á föstu og jafnframt hvort hún sé fyrir stráka eða stelpur. Brotaþoli sendir ákærða ljósmynd, sem ekki sást við rannsókn málsins, og segist ákærði þá vilja sjá meira af henni, en hún segir að hann fái ekki meira. Ákærði sendir brotaþola andlitsmynd af stúlkunni og spyr brotaþola hvort hún sé meira fyrir stráka eða stelpur. Brotaþoli segist vera meira fyrir stelpur. Ákærði spyr hvort brotaþola líki við myndina og hvort hún vilji sjá stúlkuna „leika“ og spyr brotaþola hvort hún „fíli“ stúlkuna. Brotaþoli segist í raun ekki gera það. Ákærði sendir brotaþola táknmyndir af grátkörlum og segir það ekki skipta máli þar sem allir hati stúlkuna hvort sem er þar sem hún sé of „opin og agressive og kynlífsfíkill“. Brotaþoli segir mikinn mun á því að hata og „ekki fíla“. Í gögnum máls er að finna alls tíu skjáskot af Snapchat-reikningi ákærða sem sýna samskipti hans við brotaþola. Þá fundust þrjú myndbönd í farsíma ákærða þessu tengd.
5.5.2 Framburður brotaþola fyrir dómi Brotaþoli, E, gaf skýrslu fyrir dómi í Barnahúsi 1. mars 2022. Greindi hún þar frá því að hafa verið í samskiptum við eldri mann á Snapchat eftir að maðurinn hefði „addað“ henni á forritinu. Sagði hún manninn hafa sagst vera 17 ára gamall en hann hafi eitt skipti sent henni andlitsmynd af sér, sem hún taldi víst að hann hefði óvart gert, enda hefði ákærði strax eftir þetta „blokkað“ brotaþola. Hafi brotaþola sýnst af myndinni að maðurinn væri um 40–60 ára gamall og rámi hana í að hann hafi sagst heita Bjössi. Brotaþoli sagði þau hafa verið í samskiptum í um 3–4 mánuði frá því í september eða október 2020, þegar brotaþoli var í 9. bekk, og vörðu samskiptin fram yfir næstu áramót. Sagði hún manninn í upphafi samskiptanna hafa spurt brotaþola hvað hún væri gömul og hún hafi sagt honum að hún væri […] ára. Þá kvaðst brotaþoli hafa sent manninum myndir af sér í skólanum og jafnframt sagt honum að hún væri í „skólanum akkúrat núna“. Sagði hún manninn hafa „100%“ vitað að hún væri í skóla. Þá hafi „[…]“ verið í notandanafni hennar á Snapchat, sem hafi vísað til fæðingarárs hennar.
Sagði hún manninn strax í upphafi hafa sent henni myndir af klofsvæði sínu, en verið í buxum. Þá hafi maðurinn beðið hana um að senda sér brjóstamyndir og myndir af nærbuxum hennar. Sagði hún manninn hafa sent henni marga tengla (linka) á klám og hafi fjöldi þeirra verið meiri en tíu. Þá sagði hún manninn hafa sent henni nokkurn fjölda typpamynda og að minnsta kosti eitt myndband af honum að fróa sér. Brotaþoli sagðist hafa sent honum mjög margar brjóstamyndir af sér fullklæddri og hafi fjöldi þeirra án efa verið meiri en 30, auk mynda af sér í nærbuxum. Kvaðst brotaþoli hafa sent myndirnar til mannsins þar sem hann hafi hrósað henni fyrir þær og henni hafi líkað vel hrósið. Sagði hún manninn hafa beðið sig um að senda honum myndbönd af henni að stunda sjálfsfróun, sem hún hafi gert. Hún hafi sent eitt eða tvö myndbönd af sér að fróa sér með einhverju dóti, en myndböndin „sýndu aldrei neitt, það var bara hljóð“. Sagði hún manninn sífellt hafa beðið hana um að senda sér meira efni og kvaðst hún hafa átt erfitt með að neita því. Sagði hún manninn hafa reynt að fá sig til að spila stigaleik þar sem hún átti að safna stigum fyrir ýmsar kynferðislegar athafnir. Kvaðst hún hafa tekið þátt í „leiknum“ en hætt þegar komið hafi að nekt. Að sögn brotaþola hafi maðurinn sagst eiga vinkonu og komið þeim saman á Snapchat. Brotaþoli kvaðst hins vegar hafa hætt samskiptum við „vinkonuna“ þegar hún hafi áttað sig á því að hún væri í raun að spjalla við manninn sem hafi þóst vera umrædd vinkona.
Sagði hún manninn aldrei hafa gefið sér neitt og hún hefði aldrei hitt hann.
5.5.3 Framburður ákærða hjá lögreglu Í skýrslutöku ákærða 17. mars 2022 kvaðst hann ekki muna eftir samskiptum sínum við brotaþolann E. Ákærði kvaðst aðspurður ekki muna hvers vegna hann hefði þóst vera stelpa í samskiptum sínum við brotaþolann E. Hann hafi sent henni mynd af stelpu sem hann hafi fundið á internetinu og þóst vera sú.
5.5.4 Framburður ákærða og vitna fyrir dómi Ákærði tjáði sig ekki sérstaklega um sakarefni ákæruliðarins við skýrslutöku fyrir dómi.
GG, faðir brotaþolans E, gaf skýrslu við aðalmeðferð málsins. Sagðist hann hafa rætt málið við dóttur sína. Sagði hann brotaþola hafa skammast sín fyrir samskiptin og sjá eftir þeim. Kvaðst hann ekki geta svarað til um það hvort hátterni brotaþola hefði tekið breytingum vegna eða í kjölfar atburðanna. Hún hafi haldið sig til hlés og átt fáa vini. Sagði hann að reynt hefði verið að leita til fagaðila vegna málsins, en sveitarfélagið […] hafi af einhverjum ástæðum hafnað erindi barnaverndar um faglega aðstoð. Brotaþoli hafi fengið sálfræðiaðstoð eftir að hún flutti til höfuðborgarinnar.
5.6 Ákæruliður I.6 – Brotaþolinn F 5.6.1 Almennt – málavextir o.fl. Í skýrslu lögreglu greinir að á tímabilinu 9.–21. apríl 2021 séu vistuð samskipti milli ákærða og brotaþolans F á samskiptamiðlinum Snapchat. Hafi tenging fundist á Snapchat-reikningi ákærða, xsxy.mf við notandanafn brotaþola: […], en uppgefið nafn hennar á Snapchat var […]. Á vinalista ákærða undir notandanafni hans sxy.mf hafi fundist notandanafnið […] og að tenging hafi komist á 8. júlí 2021. Þá kemur fram að á vinalista ákærða undir notandanafninu sxy.mf hafi einnig fundist tenging við notandanafnið […] og að tenging hafi þar komist á 24. mars 2021.
Kemur fram að við rannsókn á Snapchat-reikningi ákærða undir notandanafninu xsxy.mf hafi fundist kynferðisleg skilaboð milli hans og brotaþola. Kemur fram að hún segir ákærða þann 9. apríl 2021 að hún sé 13 ára. Þann 16. apríl 2021 sendir ákærði henni mynd af kynfærum karlmanns í svokölluðum „typpanærbuxum“ og spyr hvort hann ætti að fá sér svona.
Í gögnum máls er að finna fjögur skjáskot af Snapchat-reikningi ákærða sem sýna samskipti hans við brotaþola og fjögur skjáskot af reikningi hennar sem sýna samskipti við ákærða á notandanafni hans, xsxy.mf.
5.6.2 Framburður brotaþola fyrir dómi Brotaþoli, F, gaf skýrslu fyrir dómi í Barnahúsi 23. febrúar 2022. Greindi hún svo frá að hún hefði verið í samskiptum við „barnperra“ á Snapchat í apríl 2021. Sagði hún manninn hafa „addað“ henni á forritinu og að hann hefði verið með notandanafnið xsxy.mf og kallað sig Sig Sig. Sagðist hún strax hafa sagt manninum að hún væri […] ára gömul. Sagði brotaþoli vinkonur sínar hafa verið að „fíflast“ í henni og skrifað „status“ á „vegginn“ hennar á Snapchat: „heita heita komdu að leika“ og að maðurinn hafi sent til baka táknmynd af skratta. Sagði hún manninn í framhaldinu hafa sent henni typpamynd sem sýndi mann í g-strengsnærbuxum. Sagðist hún hafa skrifað til baka að hann væri með lítið typpi en það hafi hún gert til að fá manninn til að hætta þessum sendingum. Sagðist brotaþoli ekki vita hver þetta hefði verið en maðurinn hefði einnig sent henni myndir af hnjám sínum og öxl. 5.6.3 Framburður ákærða hjá lögreglu Í skýrslutöku ákærða 17. mars 2022 kvaðst hann ekki muna eftir samskiptum sínum við brotaþolann F.
5.6.4 Framburður ákærða og vitna fyrir dómi Ákærði tjáði sig ekki sérstaklega um sakarefni ákæruliðarins við skýrslutöku fyrir dómi. N, móðir brotaþolans F, sagði hana aldrei hafa rætt mál þetta við sig. Sagðist hún fyrst hafa fengið veður af því þegar rannsóknarlögreglumenn hefðu mætt á vinnustað hennar og óskað þar eftir samþykki hennar til að nálgast gögn úr símtæki brotaþola. Sagði hún dóttur sína ekki hafa viljað ræða við hana sérstaklega um málið. Aðspurð kvaðst hún ekki geta svarað því hvort rekja mætti breytingar á hátterni eða líðan brotaþola til þessa máls. Greindi hún frá því að hún hefði ekki hlutast til um að brotaþoli sætti sérstakri sálfræðiaðstoð í kjölfar málsins og þyki henni það miður. Sagði hún brotaþola þó sjálfa hafa í eitt skipti leitað til sálfræðings, en vitnið viti ekki hvað þar hafi farið fram.
5.7
Ákæruliður I.7 – Brotaþolinn G
5.7.1 Almennt – málavextir o.fl. Í skýrslu lögreglu segir að á tímabilinu 27. október 2020 fram til 1. janúar 2021 séu vistuð samskipti ákærða við brotaþolann G á samskiptamiðlinum Snapchat. Hafi tenging fundist á Snapchat-reikningum ákærða sxy.mf og xsxy.mf við reikning brotaþola, […], en uppgefið nafn brotaþola á Snapchat var […]. Þá greinir að á „vinalista“ ákærða á Snapchat hafi fundist tenging á milli sxy.mf og […]. Þá hafi einnig fundist tenging á milli xsxy.mf og […].
Við rannsókn á Snapchat-reikningi ákærða, xsxy.mf, fundust kynferðisleg skilaboð milli hans og brotaþola. Sést að brotaþoli sendir ákærða hljóðskilaboð auk: „hvað meira“. Segir í skýrslunni að ákærði látist augljóslega vera stúlka í samskiptunum þar sem brotaþoli segist vilja „sleikja píkuna hennar rosalega mikið“. Þá er að finna hljóðskilaboð þar sem hún segir: „plís, ekki gleyma að ég er bara […] ára, plís“. Ákærði spyr þá hvort „hún“ megi sjá brotaþola en brotaþoli segir nei. Ákærði sendir henni margar táknmyndir af grátkörlum og segir: „sæta plzzz“ en brotaþoli segist ekki vilja „gera mynd“. Ákærði spyr brotaþola hvort hana langi í kærustu og brotaþoli svarar því til að hún vilji það ekki núna en kannski þegar hún verði […], […] eða […] ára og bætir við að hún sé […] ára. Ákærði sendir til baka táknmynd af fýlu- og grátkörlum. Síðar í samskiptunum segist ákærði vera í rúminu og segist vilja sjá brotaþola. Brotaþoli spyr hvers vegna og ákærði svarar að hún sé sæt. Brotaþoli segist vilja sjá viðmælandann, stúlkuna, þar sem hún hafi sýnt sig og spyr síðan: „þetta ert þú?“ og ákærði segir já og spyr brotaþola: „finnst þér ég sæt?“ Brotaþoli svarar: „jaja“. Ákærði spyr hvort brotaþoli vilji sjá meira. Brotaþoli segir í fyrstu „nei takk“ en síðan „ok já“. Ákærði spyr: „viltu“ og brotaþoli skrifar: „ok“ og síðan aftur „ok“ og sendir táknmynd af karli með tunguna úti. Þá sendir brotaþoli einnig hljóðskilaboð þar sem heyrist: „nei, ég er ekki horny, ég var alltaf að djóka að ég væri að gera alltaf þessi emoji, ég var bara að djóka, ég er ekki horny“ og skrifar jafnframt: „ertu að grínast í mér?“. Ákærði skrifar: „nei“ og brotaþoli svarar: „ok“.
Við skoðun fundust 12 skjáskot af Snapchat-reikningi ákærða sem sýna samskipti hans við brotaþola á notandanafni hans xsxy.mf.
5.7.2 Framburður brotaþola fyrir dómi Brotaþoli, G, gaf skýrslu fyrir dómi í Barnahúsi 10. mars 2022. Staðfesti hún þar að hafa átt í samskiptum við manninn sem hún kvaðst ekki kunna deili á. Þá sagðist hún ekki muna hvers vegna hún hefði tekið þátt í samskiptunum enda hefði hún verið ung að árum, þ.e. í […]. bekk og alveg að verða […] ára. Sagði hún manninn hafa „addað“ henni og beðið hana um að senda sér nektarmyndir af sér. Sagði hún manninn hafa verið mjög ágengan og að hann hefði sagst vera mjög „graður“. Hún hafi því látið undan honum og sent honum myndir af sér „þarna niðri“. Maðurinn hafi hins vegar sent henni „dick pic“. Sagðist brotaþoli hafa ítrekað „blokkað“ en ákærði sífellt sent meira. Kvaðst hún að endingu hafa neyðst til að loka Snapchat-reikningi sínum og stofna nýjan. Sagði hún manninn hafa mátt vita um aldur hennar þar sem „[…]“ hafi verið skeytt við notandanafn hennar. Kvaðst hún hafa haldið að maðurinn væri 15 eða 18 ára gamall, en hún hafi aldrei hitt hann. Þá sagðist hún hafa talið sig vera í samskiptum við stúlku. Brotaþoli sagðist hafa sent manninum hljóðskilaboð þar sem hún hafi beðið hann um að gleyma því ekki að hún væri einungis […] ára gömul. 5.7.3 Framburður ákærða hjá lögreglu Í skýrslutöku ákærða 16. júní 2022 kvaðst hann ekki muna eftir samskiptum við brotaþolann G og kvaðst jafnframt ekki hafa hlustað á hljóðskilaboð frá henni.
5.7.4 Framburður ákærða og vitna fyrir dómi Ákærði tjáði sig ekki sérstaklega um sakarefni ákæruliðarins við skýrslutöku fyrir dómi.
O, faðir brotaþolans G, gaf skýrslu við aðalmeðferð málsins. Sagði hann brotaþola hafa greint honum að einhverju leyti frá atvikum. Sagði hann erfitt að segja nákvæmlega til um líðan brotaþola. Hafi kennarar hennar þó sagt honum að brotaþoli glímdi líklegast við þunglyndi og væri hrædd við „að aðrir taki illa á móti henni“. Sagði hann brotaþola ekki hafa sætt sérstakri sálfræðimeðferð vegna málsins.
5.8
Ákæruliður I.8 og II – Brotaþolinn H
5.8.1 Almennt – málavextir o.fl. Í lögregluskýrslu greinir að þann 1. mars 2021 séu vistuð samskipti ákærða við brotaþolann H á samskiptamiðlinum Snapchat, en notandanafn hennar þar var […] og fannst tenging á vinalista hennar á forritinu við notandanafnið sxy.mf, en þeirri tengingu hafði verið eytt. Þá mátti sjá að reikningurinn […] hafði verið með „virka tengingu“ við xsxy.mf sem og við sxy.mf. Sjá má að samskipti ákærða við notandanafn brotaþola, […], hafa átt sér stað frá 23. febrúar til 5. mars 2021 og samskipti ákærða við brotaþola sem hoewagonsara 1.–16. mars sama ár.
Kemur fram að á Snapchat-reikningum ákærða megi sjá tengingu milli sxy.mf og xsxy.mf við notandanöfn brotaþola: hoewagonsara og lilyhimikotoga. Þá megi sjá að textaskilaboð milli þeirra hafi verið af kynferðislegum toga og að brotaþoli hafi sent ákærða „brjóstamyndir“.
Við skoðun fundust fimm skjáskot af Snapchat-reikningi ákærða, sxy.mf, sem sýna samskipti hans við brotaþola og fjögur sams konar skjáskot af reikningi hans, xsxy.mf. Þá fundust í síma ákærða sex ljósmyndir af brotaþola nakinni sem hún hafði áður sent honum og fimm nektarljósmyndir af brotaþola í síma hennar sem hún hafði sent til ákærða. Þá fundust í síma brotaþola þrjár nektarljósmyndir, tekna af internetinu af óþekktri konu, sem brotaþoli hafði sent til ákærða.
5.8.2 Framburður brotaþola fyrir dómi Brotaþoli, H, gaf skýrslu fyrir dómi í Barnahúsi 3. júní 2022. Sagði hún þar að maður, sem hafi sagst vera 17 ára gamall, hafi „addað“ henni á „Quick Add“ á Snapchat, en hún hafi fljótlega áttað sig á því að það væri ekki réttur aldur mannsins. Brotaþoli kvaðst hafa greint manninum frá því við upphaf samskiptanna að hún væri […] ára gömul. Sagðist brotaþoli hafa sent manninum myndir af brjóstum sínum og andlitsmyndir. Þá hafi hún sent manninum myndband af sér með fjólubláan gervilim, dildó, sem hún hafi stolið frá móður sinni. Sagði hún manninn hafa sagt við hana að hún fengi veip og „butt plug“ ef hún myndi senda honum nektarmyndir og myndbönd. Þá hafi maðurinn sagt brotaþola að hún ætti að nota svokallaðan „butt plug“ og senda sér myndband af því. Þá greindi brotaþoli frá því að maðurinn hafi, sennilega í janúar eða febrúar 2021, afhent henni slíkan „butt plug“, veip og nammi. Sagði hún manninn tvívegis hafa komið að skóla hennar og afhent henni þar vörurnar. Hann hafi rétt henni hlutina og ekið rakleiðis á brott, en þau hafi ekkert rætt saman. Að sögn brotaþola hafi maðurinn sagt henni að vinur hans, sem gengi undir nafninu Sig Sig og ynni í „sex shop“, myndi sjá um að afhenda henni þessar vörur, en hana hafi þó grunað að það hafi verið maðurinn sjálfur sem hafi það gert. Sagðist hún hafa gefið móðursystur sinni veipið en vinkonu sinni „butt plugið“. Sagði hún manninn um 40–50 ára gamlan, með grátt eða dökkgrátt hár. Hafi maðurinn ekki verið sterkbyggður og minnti hana að maðurinn hefði verið með gleraugu, en var ekki viss. Hafi maðurinn ekið á hvítum sendiferðabíl og kvaðst brotaþola minna að á bílnum hefðu verið bókstafir.
Greindi brotaþoli frá því að maðurinn hefði sent henni nokkrar typpamyndir og einnig myndbönd af manni, sem hún taldi vera umræddan mann, „að ríða konum“. Sagði hún ákærða hafa sent sér um þrjú til fimm slík myndbönd.
Brotaþoli sagði samskiptin hafa byrjað þegar hún hefði verið nýbyrjuð í […]. bekk og að þeim hefði lokið í lok […]. bekkjar. Sagði hún notandanafn mannsins hafa verið sxy.mf. Brotaþoli kvaðst aðspurð kannast við nafnið Sig Sig, en maðurinn hafi sagt henni að það væri vinur sinn sem starfaði í kynlífsverslun. Sagðist hún einungis hafa átt samskipti við þennan Sig Sig vegna „gjafanna“.
Brotaþoli kvaðst hafa búið til „fake account“ á Snapchat með vinkonu sinni, HH, og þær „addað“ manninum á þeim aðgangi. Hafi notandanafn hennar á þeim aðgangi verið hoewagonsara. Greindi hún frá því að undir þeim aðgangi hafi þær sagst vera eldri en 15 ára, en maðurinn hafi þá „unfriendað“ þær.
Bornar voru undir brotaþola ljósmyndir sem fundust við rannsókn á símtæki ákærða. Kvaðst brotaþoli endurþekkja sig á sex þeirra en aðrar hefði hún tekið „af netinu“. 5.8.3 Framburður ákærða hjá lögreglu Í skýrslutöku ákærða 16. júní 2022 kvaðst hann ekki muna eftir samskiptum við brotaþolann H. Þá kvaðst hann ekki muna eftir að hafa gefið brotaþola veip, „butt plug“ og nammi.
5.8.4 Framburður ákærða og vitna fyrir dómi Undir ákærða voru meðal annars borin skjáskot og samskipti hans við notandann […], sem hafi tilheyrt brotaþola, sem ákærði kvaðst ekki muna eftir sérstaklega. Þá kvaðst hann ekki muna eftir að hafa mælt sér mót við eða hitt brotaþola líkt og greinir í ákærukaflanum, en geti ekki rengt það sérstaklega.
II sálfræðingur sagðist hafa annast brotaþolann H, sem nú gangi undir nafninu JJ. Sagði sálfræðingurinn að ekki hefði verið ráðist í mikla vinnu varðandi það mál sem hér sé til meðferðar, þótt meðferðin hafi að hluta til lotið að úrvinnslu vegna þeirra brota. Sagði hún brotaþola hafa greint sér frá því að hún hefði verið í samskiptum við eldri mann og sent myndir af sér fáklæddri og fengið sendar gjafir í skiptum fyrir þær sendingar. Annað hafi ekki verið rætt þeirra á milli. Sagði hún áfallasögu brotaþola mikla, sem hafi orðið fyrir öðru broti í kjölfar þess atviks sem hér um ræðir. Sagði hún fyrri áföll vissulega hafa áhrif á það hvernig fólk upplifir síðari áföll. Því sé mikilvægt að vinna lúti að úrvinnslu áfalla heildstætt. Að sögn sálfræðingsins væri brotaþoli ekki lengur í meðferð hjá henni.
P, móðir brotaþolans H, sagði að áður hefði borið á hegðunarvandamálum hjá brotaþola og „skrýtinni“ hegðun. Sagðist hún ekki hafa rætt málið sérstaklega við brotaþola, en falið sálfræðingum og barnaverndarnefnd að annast það. Sagði hún brotaþola hafa lent í öðrum áföllum í kjölfar máls þessa, en hún hefði þó getað greint breytingar á hátterni brotaþola í kjölfar atvikanna. Sagðist hún ekki geta sagt til um hvort brotaþoli hefði náð að vinna úr því áfalli því sem brotaþoli hafi orðið fyrir vegna málsins.
Ö, móðir U, sagðist fyrst hafa frétt af málinu þegar lögregla hafði samband við hana. Sagði hún brotaþola hafa rætt málið lauslega við hana, en brotaþoli skammist sín mikið vegna málsins. Sagðist hún hafa greint miklar og skyndilegar breytingar hjá brotaþola. Til að mynda hafi námsárangur hennar „hrapað“ og „allur metnaður“ horfið sem lýsti sér meðal annars í því að hún sinnti ekki hreinlæti sem skyldi, hún hafi […] og hætt í […] sem hún hafi áður stundað af miklum metnaði. Þá hafi brotaþoli byrjað að umgangast „skrýtið fólk“. Þá hafi brotaþoli unnið sjálfri sér skaða með því að skera sig í hendur og sýnt af sér ýmsa áhættuhegðun. Þá hafi hún lýst því yfir að hún sé hætt að hafa áhuga á strákum. Ö sagði brotaþola hafa sótt meðferð hjá sálfræðingi.
5.9
Niðurstaða varðandi ákærukafla I, töluliðir 1–8
5.9.1 Ákærði hefur neitað sök og hefur vísað til þess að hann reki ekki minni til þess að hafa átt í samskiptum við þær stúlkur sem í ákærukaflanum greinir. Af framburði hans verður þó ekki annað ráðið en að hann rengi ekki þau samskipti sem liggja fyrir í málinu og almennt greinir í ákærukaflanum. Þá kvaðst ákærði ekki hafa leitt hugann sérstaklega að aldri viðmælenda sinna og kvaðst hann einfaldlega hafa leitast eftir samskiptum við kvenfólk sem hann taldi vera kynþroska „eða hafa áhuga á kynlífi“. Þá hefur ákærði greint frá því að hafa „rosa lítið“ skoðað notendanöfn stúlknanna í því augnamiði að staðreyna aldur þeirra áður en kynferðisleg samskipti hófust af hans hálfu og hefur málsvörn hans einkum miðað að því að hafa ekki vitað um aldur brotaþola.
5.9.2 Brotaþolinn A Í málinu liggur fyrir að notandanafn brotaþolans A var […] og var uppgefið nafn hennar á Snapchat […]. A er fædd árið […] og má því ætla að tölustafir sem skeytt var við uppgefið nafn hennar á forritinu hafi verið skýr tilvísun til fæðingarárs hennar, líkt og alkunna er að algengt sé hjá yngri notendum samskiptaforritsins, og ákærða mátti vera fullkunnugt um. Fyrir liggur að A segir snemma í samskiptunum að hún vilji ekki sjá þær kynferðislegu myndir sem ákærði hafði þá sent til hennar og spyr ákærða jafnframt sérstaklega um það hvaða „módel“ hann sé. Af málsgögnum verður ekki ráðið að ákærði hafi svarað því. A lýsti því í skýrslutöku fyrir dómi að í upphafi samskiptanna hafi ákærði spurt hana og vinkonur hennar, sem einnig voru í samskiptum við ákærða, um aldur þeirra, og kvaðst brotaþoli þá hafa sagt honum að hún væri […] ára gömul. 5.9.3 Brotaþolinn B Notandanafn brotaþolans B á Snapchat var […] og uppgefið nafn hennar […]. B er fædd árið […] og má því ætla að […] í notandanafni hafi staðið fyrir fæðingarár hennar. Fram hefur komið að við skoðun á farsíma ákærða hafi fundist skilaboð milli hans og B. Spyr hún þar meðal annars ákærða um fæðingarár (módel) sem svarar með því einu að senda henni ljósmynd af ungum dreng, en af því verður það eitt ráðið að ákærði hafi vitað, eða í það minnsta grunað, að viðmælandi hans væri ung að árum. B staðhæfði í skýrslutöku fyrir dómi að hafa þegar í upphafi samskiptanna spurt ákærða að aldri, en muni þó ekki hverju hann hafi svarað. Á fyrirliggjandi stafrænum gögnum má sjá fjölmargar myndir af kynfærum karlmanns sem ákærði sendir B auk myndbanda af karlmanni stunda sjálfsfróun. Þá fundust í síma B myndir af henni, sem þó liggur ekki fyrir að hún hafi sent til ákærða. Lýsti hún því að ákærði, sem í samskiptunum kom fram undir heitinu Björn, hefði hvatt hana til þátttöku í svokölluðum stigaleik sem gengið hafi út á það að sendu stúlkurnar honum kynferðislegar myndir eða myndskeið þá gæfi hann þeim stig, líkt og sjá má af fyrirliggjandi samskiptum. Eftir því sem myndirnar urðu grófari hafi verið gefin fleiri stig.
5.9.4 Brotaþolinn C Óumdeilt er að notandanafn C á Snapchat var […] og var uppgefið nafn hennar […]. Brotaþoli er fædd árið […] og má ætla að tölustafirnir […] í notandanafni hennar hafi falið í sér beina tilvísun til fæðingarárs hennar. C hefur staðhæft í skýrslutöku fyrir dómi að ákærði hafi í upphafi samskiptanna spurt hana um aldur og hafi hún sagt honum hann. Kvaðst hún jafnframt hafa spurt ákærða um fæðingarár hans („mdl“), en því hafi ákærði ekki svarað. Í málinu liggja fyrir hljóðskilaboð, líkt og áður greinir. Við hlustun þeirra er fullljóst, að mati dómsins, að ætla má að sú sem þar talar sé barnung að aldri auk þess sem orðfæri brotaþola var með slíkum hætti. Af fyrirliggjandi gögnum verður ráðið að ákærði hafi viðhaft kynferðislegt tal við C á tilgreindu tímabili og sent henni kynferðislegar myndir af berum kynfærum karlmanns, líkt og greinir í ákærukaflanum.
5.9.5 Brotaþolinn D Notandanafn D á Snapchat var […] og var uppgefið nafn hennar þar […]. Verður ráðið að tölustafirnir […] í notandanafni hafi verið bein tilvísun til fæðingarárs hennar. Í fyrirliggjandi skilaboðum greinir að D spyr ákærða um fæðingarár, en hann svarar með því að senda henni ljósmynd af ungum dreng og verður af því það eitt ráðið að ákærði hafi vitað, eða í það minnsta rennt í grun, að viðmælandi hans væri ung að árum. Fyrir dómi sagði D að hún hefði þegar í upphafi samskiptanna greint ákærða frá fæðingarári sínu en hún hafi jafnframt talið að ákærði væri 18 eða 19 ára gamall. Þá kemur fram í gögnum að brotaþoli greinir ákærða frá því að hún sé „virgin“. Af fyrirliggjandi gögnum verður ráðið að ákærði hafi viðhaft kynferðislegt tal við D á tilgreindu tímabili, þegar hún var einungis […] ára gömul, og jafnframt sent henni fjölmargar og mjög kynferðislega grófar myndir og myndskeið af kynfærum karlmanns, líkt og greinir í ákærukaflanum.
5.9.6 Brotaþolinn E Notandanafn E á Snapchat var […] og var uppgefið nafn hennar […]. Líkt og áður verður ráðið að tölustafir í notendanöfnum hennar á samskiptaforritinu hafi verið bein tilvísun til fæðingarárs hennar. Af gögnum verður ráðið að ákærði hafi villt á sér heimildir í samskiptum þeirra og meðal annars komið þar fram sem ung stúlka og sent andlitsmynd af stúlku því til staðfestingar. Þá hafi hann að sögn brotaþola einnig komið fram sem unglingsdrengur sem hana minnir að hafi gengið undir nafninu Bjössi. Verður af því það eitt ráðið að ákærði hafi vitað, eða í það minnsta rennt í grun, að viðmælandi hans væri ung að aldri. Fyrir dómi sagði E ákærða í upphafi samskiptanna hafa spurt hana um aldur og hafi hún sagt honum að hún væri […] ára gömul og meðal annars sent honum myndir af sér í skólanum því til staðfestingar. Sagði hún ákærða hafa sent sér fjölda mynda af kynfærum karlmanns og að minnsta kosti eitt myndband af sér að stunda sjálfsfróun. Þá hafi ákærði sent henni fjölda tengla á klámsíður á netinu. Enn fremur greindi hún frá því að ákærði hafi fengið hana til að senda sér fjölmargar kynferðislegar myndir og myndbönd af sjálfri sér.
5.9.7 Brotaþolinn F Notandanafn F á Snapchat var […] og uppgefið nafn hennar var þar […]. Við rannsókn á Snapchat-reikningi ákærða undir notendanöfnum þeim sem hann notaði í samskiptum við brotaþola fundust kynferðisleg skilaboð sem ákærði sendir til F, meðal annars mynd sem sýnir karlmann í blúndunærbuxum. Þá sést í gögnum að F segir við ákærða beinum hætti að hún sé […] ára, en ekki verður séð að ákærði hafi brugðist við því eða gefið henni upp aldur sinn.
5.9.8 Brotaþolinn G Í gögnum greinir að notandanafn G á Snapchat hafi verið […] og var uppgefið nafn hennar þar […]. Í fyrirliggjandi stafrænum gögnum sést að ákærði á í samskiptum við brotaþola af kynferðislegum toga, en af samskiptunum má ráða að ákærði komi þar fram sem stúlka. Þá liggja frammi í málinu hljóðskilaboð þar sem G heyrist segja: „plís, ekki gleyma að ég er bara […] ára, plís“, en af því má ráða að brotaþoli sé þar að ítreka fyrri samskipti. Þá kvaðst brotaþoli hafa talið að ákærði væri hugsanlega „15 eða 18 ára“.
5.9.9 Brotaþolinn H Fram kemur í gögnum máls að H hafi á Snapchat notast við notendanöfnin […], […] og […]. Kvaðst hún í skýrslutöku fyrir dómi hafa upplýst ákærða þegar í upphafi samskipta þeirra að hún væri einungis […] ára gömul. Þá greindi hún skýrlega frá því að ákærði hafi notast við heitið sxy.mf í samskiptum sínum við hana. Kvaðst H hafa spurt ákærða um aldur en hann hafi svarað með því að senda henni mynd af ungum dreng. Þá hefur brotaþoli greint frá því að ákærði hafi í tvígang hitt hana við skólalóð hennar þar sem hann afhenti henni meðal annars svokallað „butt plug“, veip og sælgæti. Þá greinir í stafrænum samskiptum þar sem brotaþoli skrifar til ákærða: „You do know I‘m a minor right?“ og „Mom came in“. Enn fremur fundust við skoðun á símtæki ákærða myndir af brotaþola á kynferðislegan hátt.
5.9.10 Niðurstaða ákæruliðar I Í ákæruliðnum er ákærða gefið að sök að hafa á tilgreindu tímabili verið í kynferðislegum samskiptum við framangreinda brotaþola. Voru þau allt frá því að viðhafa kynferðislegt tal upp í sendingar á afar grófum myndum og myndskeiðum sem hann sendi brotaþolum sem þá voru barnungar að aldri, en sumar þeirra voru einungis […] ára gamlar á þessum tíma. Þá er ákærða jafnframt gefið að sök að hafa hvatt sumar stúlknanna til að senda sér myndir og myndskeið þar sem þeim var gert að framkvæma kynferðislegar athafnir.
Bersýnilegt er er að fyrirliggjandi samskipti sem náðist að afrita við rannsókn málsins sýna ekki nema lítinn hluta þeirra samskipta og sendinga sem áttu sér stað á milli ákærða og brotaþola og má vel af samhengi þeirra ráða að ákærði hafi sent brotaþolum fjölmörg önnur skilaboð af kynferðislegum toga og að sumar brotaþola hafi sent til hans annað efni að hans undirlagi.
Þá liggur fyrir að notendanöfn flestra stúlknanna voru með þeim hætti að ákærða átti ekki að geta dulist að hann stæði þar í samskiptum við börn. Þá blasir að mati dómsins við að orðfæri stúlknanna hafi verið með þeim hætti að ákærði hafi mátt gera sér fulla grein fyrir að viðmælandi hans væri barn að aldri. Þá liggja fyrir hljóðskilaboð sem brotaþolarnir C og G sendu ákærða en við hlustun má vel greina að viðmælendur hans væru langt frá því að vera fullþroska einstaklingar. Ákærði kaus hins vegar að líta fram hjá framangreindu og átti í kynferðislegum samskiptum við brotaþola, líkt og í ákæru greinir, þrátt fyrir að hafa verið eða mátt hafa verið fullkunnugt um aldur þeirra og lét hann sér þannig í léttu rúmi liggja hve ungar þær voru.
Framburður stúlknanna þykir afar trúverðugur og fær auk þess stoð í gögnum máls og verður framburður þeirra lagður til grundvallar við úrlausn málsins.
Með vísan til framangreinds telur dómurinn hafið yfir skynsamlegan vafa að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem lýst er í ákærulið I í fyrri ákæru málsins og telst háttsemi ákærða varða við 2. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ákærða er í 8. tölulið I. kafla ákærunnar jafnframt gefið að sök að hafa afhent brotaþola H rafrettu. Ákærði hefur í skýrslu ekki andmælt því sérstaklega en kvaðst ekki reka minni til þess. Framburður brotaþolans H hefur verið metinn trúverðugur og með vísan til þess þykir sannað að ákærði hafi afhent henni rafrettu og er sú háttsemi réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæru.
5.10
Niðurstaða varðandi ákærukafla II
Ákærða er jafnframt gefið að sök kynferðisbrot, með því að hafa á tilgreindu tímabili haft í vörslum sínum á farsíma sex ljósmyndir sem sýna brotaþolann H á kynferðislegan hátt. Ákærði kvaðst í skýrslutöku hjá lögreglu ekki muna eftir þessu og kannist ekki við myndirnar. Í greinargerð ákærða er hvað þennan ákærulið varðar vísað til þess að óljóst sé hvort myndirnar séu af brotaþola eða öðrum. Þá sé óvíst að ákærði hafi vitað af myndunum í síma sínum og því liggi ekki fyrir að hann hafi haft ásetning til að móttaka þær, skoða og varðveita. Ákærði tjáði sig ekki sérstaklega um ákæruliðinn fyrir dómi en hjá lögreglu sagðist hann ekki kannast við myndirnar.
Óumdeilt er að umræddar ljósmyndir voru vistaðar á símtæki ákærða. Voru myndirnar bornar undir brotaþola við skýrslutöku fyrir dómi og kvaðst hún þar endurþekkja sjálfa sig á myndunum og kvaðst jafnframt hafa sent þær til ákærða. Framburður brotaþola hefur áður verið metinn trúverðugur gagnstætt framangreindum sjónarmiðum sem teflt hefur verið fram af hálfu ákærða. Verður því talið hafið yfir skynsamlegan vafa að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákærulið II og er hún þar réttilega heimfærð til refsiákvæða.
Ákæra útgefin 12. desember 2024
6.1
Ákæruliður I.1 – Brotaþolinn Q
6.1.1 Almennt – málavextir o.fl. Í skýrslu lögreglu kemur fram að 5. október 2021 séu til vistuð samskipti ákærða við brotaþolann Q á samskiptamiðlinum Snapchat. Hafi tenging fundist á Snapchat-reikningi ákærða sxy.mf við […], sem var notandanafn brotaþola á forritinu. Þá hafi fundist tenging á Snapchat-reikningi hennar við sxy.mf. Á „vinalista“ ákærða á notandanafninu sxy.mf var að finna notandanafn brotaþola, […], og að þau hafi tengst 4. október 2021. Greinir að á Snapchat-reikningi ákærða, sxy.mf, hafi fundist kynferðisleg skilaboð milli hans og brotaþola. Sést þar að brotaþoli sendir ákærða þann 5. október 2021 mynd af kynferðislegum kjól og spyr hann á svipuðum tíma hvort hann „nenni“ að kaupa „strap on“ fyrir hana.
6.1.2 Framburður brotaþola fyrir dómi Brotaþoli, Q, gaf skýrslu fyrir dómi í Barnahúsi 15. mars 2022. Greindi hún þar frá því að maðurinn hefði „addað“ henni á Snapchat í október 2021 og að hún hefði þá sagt honum að hún væri fædd árið 2008 og jafnframt spurt manninn um fæðingarár hans („módel“), en hann svarað „04“. Sagði hún manninn hafa kallað sig sxy.mf og að notandanafn hennar væri […]. Sagði hún ákærða hafa beðið sig um nektarmyndir og að í staðinn sagðist hann ætla að senda henni gjafir, svo sem pils, veip og hníf. Hún hafi ekki sent slíkar myndir en í staðinn sent honum fjórar myndir af sér í brjóstahaldara. Hún kvaðst hafa beðið ákærða um „strap on“ en ekki fengið þar sem ákærði hafi í millitíðinni verið handtekinn vegna málsins. Sagði hún manninn hafa sent sér fjölmargar typpamyndir og mjög mörg myndbönd af sér að stunda sjálfsfróun, en hann hafi sagst „runka sér“ yfir myndunum. Þá hafi ákærði einnig sent henni tvö myndbönd af óþekktum, mjög ungum stúlkum veita honum munnmök í bifreið. 6.1.3 Framburður ákærða hjá lögreglu Í skýrslutöku ákærða 16. júní 2022 kvaðst hann ekki muna eftir samskiptum við brotaþolann Q. Þá sagði ákærði það vera algjöra fjarstæðu að hann hafi látið „lítið barn totta sig“.
6.1.4 Framburður ákærða og vitna fyrir dómi Ákærði tjáði sig ekki sérstaklega um sakarefni ákæruliðarins við skýrslutöku fyrir dómi.
Íris Birgis Stefánsdóttir sálfræðingur sagði brotaþolann Q hafa sætt sálfræðimeðferð hjá henni í október 2021. Sagði hún móður brotaþola hafa sett sig í samband við sig og beðið sálfræðinginn um að hitta brotaþola í kjölfar sviplegs fráfalls afa hennar. Þá hafi einnig verið fyrir hendi „aðlögunarvandi“ í skóla. Sagði hún brotaþola hafa mætt alls í fimm skipti til hennar, auk þess sem foreldrar hennar hafi mætt í svokallað stöðuviðtal. Sagði sálfræðingurinn að þessar heimsóknir hefðu einkum lotið að því að ná tengslum og skapa traust þeirra á milli, þ.e. „meðferðarsamband“. Því hafi í raun engin eiginleg meðferð átt sér stað á þessum tíma. Í október 2022, en ekki árið 2021 líkt og ranglega sé tilgreint í vottorði sálfræðingsins frá 16. janúar 2025, hafi faðir brotaþola haft samband við sálfræðinginn og greint henni frá því atviki sem hér er til meðferðar. Kvaðst sálfræðingurinn hafa boðist til að halda áfram meðferð en ekkert hafi orðið af því. Sagði hún brotaþola hafa verið með greinileg einkenni áfallastreitu, hún hafi verið reið og átt erfitt með að skapa traust. Sagði sálfræðingurinn að hún gæti þó ekki nákvæmlega sagt til um orsakir streitueinkenna brotaþola.
LL sálfræðingur sagði brotaþola hafa rætt atvik máls við hann í viðtölum auk annarra áfalla sem þörfnuðust úrvinnslu. Sagði hann brotaþola hafa liðið mjög illa vegna málsins, en þó væri erfitt að taka það mál sérstaklega út fyrir sviga og meta afleiðingar þess sértækt. Sagði hann brotaþola hafa greint mjög lauslega frá atvikum. Sagði sálfræðingurinn brotaþola hafa náð góðum árangri í meðferð, en hluti meðferðarinnar hafi meðal annars lotið að atvikum þessum. Sagði hann brotaþola nú sækja svokölluð stuðningsviðtöl. Y, móðir brotaþolans Q, sagði dóttur sína hafa greint foreldrum sínum frá málinu í kjölfar þess að lögregla hafði samband við þau vegna rannsóknarinnar. Sagði hún líðan brotaþola hafa tekið miklum breytingum í kjölfar þessa. Hafi brotaþoli til að mynda […], auk þess sem hún hafi byrjað að […]. Staða hennar hafi hins vegar batnað og vel hafi gengið hjá henni undanfarin tvö ár, þótt nýlega hafi komið bakslag sem vitnið taldi að rekja mætti til málsins.
6.2
Ákæruliður I.2 – Brotaþolinn R
6.2.1 Almennt – málavextir o.fl. Í rannsóknargögnum greinir að á tímabilinu 16. febrúar fram til 2. nóvember 2021 séu til vistuð samskipti ákærða við brotaþolann R á Snapchat við notandann sxy.mf, sem gangi undir heitinu MR XL. Þá hafi fundist tenging á Snapchat-reikningi ákærða við notandanafnið […], með uppgefnu nafni […]. Við rannsókn fundust engin samskipti í farsíma brotaþola en tenging fannst milli Snapchat-reiknings hennar og sxy.mf. Þá fannst á vinalista ákærða tenging á milli sxy.mf og […] og að þau hafi „tengst“ 12. desember 2020. Þá var að finna tengingu milli xsxy.mf og […] og að tenging hafi komist á 18. ágúst sama ár.
Við skoðun á Snapchat-reikningi ákærða fundust kynferðisleg skilaboð milli hans og brotaþola. Sýna fyrirliggjandi samskipti að þau hafi verið í einhverjum samskiptum og bað ákærði meðal annars brotaþola að taka þátt í stigaleik, þ.e. bað hana um að senda sér tilteknar myndir gegn því að hún safnaði stigum. Þá kemur fram að ákærði sendi brotaþola meðal annars mynd úr verslun sem sýnir kynlífshjálpartæki. Í gögnum er að finna 23 skjáskot af Snapchat-reikningi ákærða sem sýna samskipti hans á notandanafninu sxy.mf við brotaþola.
6.2.2 Framburður brotaþola fyrir dómi Skýrsla var tekin af brotaþola, R, fyrir dómi í Barnahúsi 14. mars 2022. Staðfesti brotaþoli þar að hafa verið með aðganginn […], en tölustafirnir stæðu fyrir fæðingardag hennar og fæðingarár, en hún hafi sleppt fæðingarmánuði, þ.e. 12 eða desember. Sagðist brotaþoli hafa verið í samskiptum við manninn, sem hún sagði hafa sent sér ljósmynd af strák sem hún hafi haldið að væri „fake“, þ.e. væri ekki mynd af manninum sjálfum. Brotaþoli sagði manninn hafa spurt hana hvort hún vildi taka þátt í „stigaleik“, en hún kveðst ekki hafa svarað því. Sagðist hún ekki hafa viljað spila slíkan leik þar sem hún hafi ekki þekkt manninn, auk þess sem hana langaði ekki að taka þátt í leiknum. Þá greindi brotaþoli frá því að maðurinn hefði oftsinnis „svarað“ myndum sem hún hafi sett inn á „my story“, en um hafi verið að ræða myndir sem allir vinir hennar hafi getað séð. Þá sagði brotaþoli manninn hafa sent sér fullt af myndum sem hún hafi ekki „opnað“ þar sem hún hafi ekki viljað sjá þær. Brotaþoli sagðist hafa sent manninum myndir af „loftinu“ eða öðru álíka, til að halda „streak-i“ á Snapchat.
6.2.3 Framburður ákærða hjá lögreglu Í skýrslutöku ákærða 16. júní 2022 kvaðst hann ekki muna eftir samskiptum við brotaþolann R.
6.2.4 Framburður ákærða og vitna fyrir dómi Ákærði tjáði sig ekki sérstaklega um sakarefni ákæruliðarins við skýrslutöku fyrir dómi.
Z, móðir brotaþolans R, sagði brotaþola hafa rætt málið lítillega við sig. Sagði hún brotaþola hafa verið hjá sálfræðingi þar sem hún hafi verið greind með áfallastreituröskun. Þá taki hún lyf vegna kvíða. Sagði hún brotaþola hafa þurft að taka frí úr skóla í eina önn, þar sem hún hafi verið „algjörlega lengst niðri“. Þá hafi brotaþoli reynt að fremja sjálfsmorð.
MM sálfræðingur kvaðst hafa aðstoðað brotaþolann R, sem hafi mætt til hennar í alls sex viðtöl, fjögur árið 2023 og tvö árið 2024. Sagði hún brotaþola upphaflega hafa komið til hennar fyrir milligöngu móður sinnar sem hafi haft áhyggjur af líðan hennar, en hún hafi glímt við „tilfinningavanda“. Sagði hún brotaþola hafa greint sér frá því að „þetta hafi gerst“ og að málið hefði verið til rannsóknar hjá lögreglu og jafnframt að hún hefði gefið skýrslu í Barnahúsi. Brotaþoli hafi hins vegar haft á orði að það væri ekki það sem væri fyrst og fremst að trufla sig og það væri ekki aðalástæða þess að hún hefði leitað til sálfræðingsins. Sagði hún brotaþola á þessum tíma „almennt“ ekki hafa liðið vel og hafi greint frá alvarlegum kvíðaeinkennum. Sagði hún brotaþola hafa glímt við einkenni áfallastreitu, sem sálfræðingurinn tengdi þó öðru atviki. Þar sem ekki hafi farið fram sérstök „mismunargreining“ geti sálfræðingurinn ekki fullyrt um það hvort áfallastreitueinkenni þau sem brotaþoli hafi sýnt stafi frá umræddu atviki. Sálfræðingurinn kvaðst staðfesta vottorð sitt frá 18. mars 2025.
6.3
Ákæruliður I.3 – Brotaþolinn S
6.3.1 Almennt – málavextir o.fl. Í skýrslu lögreglu greinir að henni hafi, 25. febrúar 2021, borist tilkynning um fullorðinn mann sem hafi sent […] ára gamalli stúlku myndband af sér að stunda sjálfsfróun. Lögregla fór að heimili brotaþolans, S, sem var þar fyrir ásamt móður sinni, Þ. Greinir í skýrslunni að brotaþoli hafi virst í sjáanlegu uppnámi. Hún hafi rétt móður sinni farsíma sinn og sagt að lögregla hefði fulla heimild til að skoða hann. Í framhaldinu hafi hún lokað sig af inni í herbergi sínu. Segir í skýrslu lögreglu að móðir brotaþola hafi sýnt lögreglu samskipti á Snapchat-reikningi brotaþola við notandanafnið sxy.mf og við skoðun hafi mátt sjá myndskeið af karlmanni stunda sjálfsfróun. Þ kvaðst ekki kunna deili á þessum manni og sagði hún að það sama ætti við um dóttur sína. Greinir í skýrslu lögreglu að við skoðun á Snapchat-aðgangi mannsins og samskiptum hans við brotaþola hafi mátt sjá að þau hafi verið „vinir“ á Snapchat frá því í maí 2020.
Í lögregluskýrslu segir að sjá mætti að brotaþoli hafi vistað nokkur skilaboð sem fóru á milli hennar og ákærða, þar á meðal myndskeið sem ákærði sendi henni 6. september 2020 af sér að stunda sjálfsfróun. Þá hafi brotaþoli vistað sams konar myndskeið frá ákærða sem hann sendi henni 10. nóvember sama ár. Þá greinir í skýrslu lögreglu að á meðan Snapchat-aðgangur brotaþola var skoðaður hafi ákærði sent henni myndir af klofi sínu með yfirskriftinni: „show me“.
Af rannsókn lögreglu verður ráðið að til séu samskipti milli brotaþola og ákærða á tímabilinu 26. maí 2020 til 25. febrúar 2021. Kemur fram að ákærði hafi notast við notandanafnið sxy.mf og nefnt sig MR XL. Þá hafi brotaþoli nefnt sig […] eða […]. Af gögnum sést að ákærði sendir henni myndbönd af sjálfsfróun. Þá kemur fram að brotaþoli hafi fallist á að hitta hann hjá Hallgrímskirkju. Við skoðun á síma brotaþola fundust alls þrjú myndbönd af karlmanni stunda sjálfsfróun og ein mynd af klofsvæði karlmanns. Þá sendi ákærði skilaboðin „Dtf?“, sem lögregla segir vera slangur og standi fyrir ensku setninguna: „Down to fuck“. 6.3.2 Framburður brotaþola fyrir dómi Brotaþoli, S, gaf skýrslu fyrir dómi í Barnahúsi 16. október 2021. Greindi hún þar frá því að maðurinn hafi „addað“ henni á Snapchat og notað til þess svokallað „Quick Add“. Kvaðst hún ekki muna hvort þeirra hefði hafið samskiptin, sem hún taldi hafa byrjað í febrúar 2020. Sagði hún manninn hafa sent sér alls kyns „drasl“, þ.e. myndir af typpi sínu. Þá hafi maðurinn verið „eitthvað að reyna“ við hana og meðal annars spurt hana hvort hún vildi hitta hann. Sagðist hún hafa „fengið hann“ til að hitta sig við Hallgrímskirkju og hafa jafnframt ætlað að hringja í lögreglu. Hún hafi hins vegar hvorki farið þangað né haft samband við lögreglu.
Sagði hún manninn oftsinnis og fyrirvaralaust hafa sent sér myndir af typpi sínu. Þá sagði hún manninn hafa sent sér myndbönd af honum „að runka sér og eitthvað þannig“. Taldi hún að maðurinn hefði um þrisvar sent henni slík myndbönd.
Aðspurð sagði brotaþoli manninn hafa vitað hvað hún væri gömul enda hafi fæðingarár hennar, […], verið í notandanafni hennar á Snapchat. Þá kvaðst hún einnig hafa upplýst manninn um aldur sinn. Sagði brotaþoli manninn hafa beðið sig um að senda sér nektarmyndir, sem hún hafi þó ekki gert.
Sagði hún manninn hafa verið með ljóst hár og hann virst frekar gamall, enda hafi hann verið með hrukkur. Hún hafi hins vegar ekki séð hann vel þar sem hann hafi verið með grímu vegna Covid. Þá hafi maðurinn stundum sagst vera þrítugur og stundum fertugur. Sagði hún manninn hafa gengið undir heitinu „Mister XL eða eitthvað þannig“.
Brotaþoli gaf jafnframt skýrslu við aðalmeðferð málsins 17. mars 2025. Sagðist hún hafa verið […] eða […] ára gömul þegar ákærði hefði „addað“ henni á Snapchat, í „Quick Add“. Brotaþoli sagði nafn sitt á Snapchat, þ.e. það nafn sem viðmælandi hafi séð við upphaf samskipta, hafa verið […] eða […]. Brotaþoli sagði aldur hennar hafa strax borið á góma þegar ákærði hafi „addað“ henni og sagðist hún hafa sagt ákærða það „from the beginning“. Sagði hún jafnframt ákærða hafa spurt sig um aldur með því að segja: „hæ, módel eða hæ aldur“ og hún hafi svarað […]. Hafi ákærði þá svarað: „ókei næs eða næs“. Ákærði hafi hins vegar ekki svarað fyrirspurn hennar um aldur sinn, en hafi í stað þess sent henni „fullt af snöppum“. Kvaðst hún hafa talið ákærða hafa verið 30–40 ára gamall, en það hafi hún frekar augljóslega talið sig geta greint af andliti hans „og líkamsmyndunum“ sem hann hafi sent. Ákærði hafi þó aldrei sent henni „fulla andlitsmynd“, en sýnt hluta af andliti sínu.
Um viku síðar hafi ákærði byrjað að senda henni fyrirvaralaust „miklu grófari vídeó“, til dæmis af honum að „runka sér“. Þá hafi ákærði einnig sent henni ljósmyndir, en „mest vídeó“.
Sagði hún ákærða hafa beðið sig um að senda sér myndir. Hann hafi aldrei boðið henni greiðslu fyrir myndirnar en hafi þó í eitt skipti boðist til að kaupa handa henni veip, sem brotaþoli hafi ekki viljað.
Aðspurð um samtal þeirra um að hittast hjá Hallgrímskirkju sagði hún ákærða hafa viljað hitta hana þar og fá hana til að „totta“ sig í bíl sínum. Sagði hún ákærða hafa komið þangað en brotaþoli hafi hins vegar verið „allt of stressuð til að fara“ og því hætt við og hafi jafnframt hætt að svara ákærða. Hafi ákærði þá sent henni skilaboð til dæmis: „hvar ertu ??“. Sagðist hún ekki hafa svarað því fyrr en daginn eftir.
Brotaþoli kvaðst ekki hafa strax áttað sig á því hversu slæm áhrif þessi samskipti höfðu á sálarlíf hennar. Kvað hún þetta hafa haft slæm áhrif á sig og kvaðst hún hafa verið í miklu uppnámi. Henni hafi liðið mjög illa vegna þessa og verið stressuð. Þá hafi ýmislegt í daglegu lífi orðið til þess að hún endurupplifði samskiptin. Sagðist hún hafa sótt meðferð hjá sálfræðingi í um eitt og hálft ár í kjölfar þessa. Taldi brotaþoli ólíklegt að hún myndi nokkru sinni ná sér að fullu vegna samskiptanna. Þá kvaðst hún hafa verið hrædd um að ákærði myndi ásækja hana að lokinni fangavist vegna þess að hún hafi upplýst um samskiptin.
Brotaþoli kvaðst hafa sagt móður sinni frá þessum samskiptum og hafi þær tilkynnt þau til lögreglu, en þá höfðu samskiptin staðið í um eitt og hálft ár, og í framhaldinu hafi ákærði „blokkað“ brotaþola. Greindi brotaþoli frá því að þegar lögregla hafi komið til hennar til að taka afrit af samskiptum hennar og ákærða hafi ákærði enn verið að senda henni efni, þar á meðal myndskeið af sér að stunda sjálfsfróun. Brotaþoli kvaðst aldrei hafa hitt ákærða. Þá hafi ákærði aldrei boðið henni að taka þátt í stigaleik, en hún hafi þó heyrt af honum, meðal annars við lestur frétta á mbl.is.
Aðspurð sagði brotaþoli marga karlmenn hafa sent henni sambærilegt efni á Snapchat. Sagði hún að í kjölfar samskiptanna við ákærða hefði hún gætt sín betur og „blokkað þá“. Sendingar ákærða hafi hins vegar verið „versta keisið“ og hafi ákærði jafnframt sent henni „mest“.
6.3.3 Framburður ákærða hjá lögreglu Ákærði staðfesti í skýrslutöku hjá lögreglu 2. febrúar 2022 að „sxy.mf“ og „MR XL“ væru notendanöfn hans. Hann kvaðst ekki muna eftir samskiptum sínum við brotaþolann Fjólu. Aðspurður sagði hann að þegar „[…]“ stæði við nafn stúlku á Snapchat væri það „væntanlega“ tilvísun í fæðingarár hennar.
Framburður brotaþolans S var borinn undir ákærða sem sagðist ekkert muna eftir þeim samskiptum og sagðist jafnframt aldrei hafa mælt sér mót við stúlku hjá Hallgrímskirkju. Sagði hann að „runk“myndbönd sem honum voru sýnd í síma brotaþola væru af honum. Sagði hann skammstöfunina „Dtf“ við eitt myndbandið merkja: „Down to fuck“ og með textanum „Show me“ á „typpamynd“ hafi hann verið að biðja brotaþola um að sýna sér eitthvað sexy.
6.3.4 Framburður ákærða og vitna fyrir dómi Ákærði tjáði sig ekki sérstaklega um sakarefni ákæruliðarins við skýrslutöku fyrir dómi.
NN faðir brotaþolans S, sagði hana hafa sagt sér frá samskiptunum í kjölfar rannsóknar lögreglu. Sagði hann brotaþola hafa átt erfitt með svefn og hafa liðið illa í nokkurn tíma eftir þetta. Sagði hann málið hafa verið „mjög ömurlegt fyrir alla“. Þau hafi hins vegar reynt að vinna sig út úr þessu og rætt mikið saman. Brotaþoli hafi verið mjög ung þegar atvik áttu sér stað og því hugsanlega ekki skilið alvarleikann eins vel þá og hún geri núna eða muni gera þegar fram líða stundir. Sagði vitnið að brotaþoli hefði þurft á sálfræðiaðstoð að halda vegna málsins, auk annarra mála sem hún hafi verið „að díla við“. Sagði hann brotaþola ganga betur núna, hún standi sig vel í skóla og hafi undanfarið ár verið „þokkalega gott“. Þau hafi hins vegar ekki rætt málið í nokkurn tíma en hafi þó þurft að rifja það upp nýlega vegna dómsmeðferðarinnar og fyrirhugaðrar skýrslugjafar brotaþola fyrir dómi.
Vitnið, lögreglumaður nr. 1, var spurt út í aðkomu sína að máli brotaþolans S. Sagðist vitnið ráma í atvik en muni þau þó ekki vel. Vitnið kvaðst á þessum tíma hafa starfað sem almennur lögreglumaður í Reykjavík og verið kölluð að heimili brotaþola. Hafi brotaþoli þar sýnt lögreglu síma sinn sem hafði að geyma „fullt af alls konar“ myndböndum af manni að stunda sjálfsfróun, auk kyrrmynda. Þá hafi lögregla séð samskipti þeirra á milli um að hittast, sem ekkert hafi þó orðið úr.
Vitnið sagði brotaþola hafa verið lokaða og að erfitt hafi verið að ræða við hana. Hún hafi þó viljað greina lögreglu frá málinu. Vitnið kvaðst aðspurt ekki geta sagt til um líðan brotaþola við upphaf rannsóknar málsins, enda hafi brotaþoli ekki verið spurð sérstaklega að því af lögreglu. Vitnið kvaðst ekki geta rifjað upp notandanafn brotaþola sem það hafi séð við skoðun á símtæki hennar. Lögreglumaðurinn kvaðst staðfesta skýrslur sínar í málinu.
6.4
Ákæruliður I.4 og II.1 – Brotaþolinn T
6.4.1 Almennt – málavextir o.fl. Í rannsóknargögnum kemur fram að á tímabilinu 31. júlí til 9. september 2020 séu vistuð samskipti ákærða við brotaþolann T á Snapchat, þar sem ákærði gengur undir notandanafninu xsxy.mf. Kemur fram að ákærði hafi verið með tvo reikninga á forritinu, þ.e. fyrrgreindan xsxy.mf með notandanafnið Sig Sig og sxy.mf með notandanafnið MR XL. Þá kemur fram að Snapchat-reikningur brotaþola hafi verið með notandanafninu […] og með uppgefnu nafni […]. Við skoðun á „vinalista“ á Snapchat-reikningi brotaþola fannst engin tenging við fyrrgreind notendanöfn ákærða, en á reikningi hans var hins vegar að finna tengingu beggja notendanafna hans við notandanafn brotaþola. Kemur fram að við skoðun á síma brotaþola hafi hvorki fundist myndir né myndbönd frá ákærða en brotaþoli hafði áður eytt Snapchat-forritinu úr síma sínum. Við rannsókn á Snapchat-reikningi ákærða fundust nektar- og nærfatamyndir af brotaþola sem og textaskilaboð þeirra í milli, en þau voru af kynferðislegum toga. Kemur fram að brotaþoli sendir á ákærða hvort hann nenni á „rúntinn“ ef hún megi og skömmu síðar sendir hún til ákærða að „hún megi“ fara á rúntinn og spyr hvort ákærði geti sótt hana klukkan 9:00. Kemur fram að ákærði bjóðist til að kaupa kynlífstæki fyrir brotaþola og að þau hafi ráðgert að hittast við verslunina Adam og Evu. Þá er að finna samræður á milli þeirra þess efnis að ákærði hyggist kaupa rafsígarettu og veipvökva fyrir brotaþola og að hann muni koma með það til hennar á Selfoss. Síðar segir ákærði að vinnufélagi hans muni koma með þetta og notar í þeim samskiptum notandann xsxy.mf og lætur þar sem hann sé umræddur vinnufélagi. Brotaþoli spyr hvort ákærði geti útvegað henni bensínvespu og fært henni. Þá kemur fram að ákærði bjóðist til að kaupa áfengi fyrir brotaþola og sendir henni mynd af Opal-vínpela.
Í gögnum er að finna 22 skjáskot af Snapchat-reikningi ákærða sem sýna samskipti hans við brotaþola undir notandanafninu sxy.mf. Á þeim notandareikningi er að finna eina nektarmynd af brotaþola og fjórar nærfatamyndir af henni.
Á notandareikningi ákærða xsxy.mf er að finna alls 15 skjáskot sem sýna samskipti hans við brotaþola. Á þeim notandareikningi er að finna tvenn hljóðskilaboð, tvær myndir af rafrettuvökva og eina mynd af áfengisflösku.
6.4.2 Framburður brotaþola fyrir dómi Brotaþoli, T, gaf skýrslu fyrir dómi í Barnahúsi 29. desember 2021. Sagðist hún ekki muna eftir framangreindum samskiptum sem borin voru undir hana, en hún kvaðst þó kannast við notendanöfnin Sig Sig og MR XL. Sagði hún manninn að baki notandanum MR XL „endalaust“ hafa beðið hana um að senda sér myndir og hafi hún þá hætt að tala við hann. Sagði hún manninn hafa „addað“ sér á Snapchat, en það hefði verið fyrir um einu ári síðan. Bornar voru undir hana myndir af samskiptum hennar á Snapchat við notandann sxy.mf (MR XL) sem brotaþoli kvaðst ekki muna eftir. Hún staðfesti hins vegar myndir af sér sem bornar voru undir hana en sagðist ekki muna hverjum hún hefði sent þær myndir. Þá voru borin undir hana samskipti hennar við xsxy.mf. Sagðist hún smá muna eftir nafninu en mundi þó ekki eftir samskiptunum sjálfum. 6.4.3 Framburður ákærða hjá lögreglu Í skýrslutöku ákærða 2. febrúar 2022 kvaðst hann ekki muna sérstaklega eftir samskiptum við brotaþolann T. Sagði hann vel geta verið að hann hefði séð brotaþola einhvern tímann en muni þó ekki eftir því. Ákærði kvaðst aðspurður hafa notast við hjáheitið Böddi í þeim tilgangi að komast í samband við stúlkur á Snapchat.
6.4.4 Framburður ákærða og vitna fyrir dómi Ákærði tjáði sig ekki sérstaklega um sakarefni ákæruliðarins við skýrslutöku fyrir dómi.
Æ, faðir brotaþolans T, sagði brotaþola lítið hafa rætt við hann um málið. Sagði hann brotaþola hafa lokað sig mikið af í kjölfar málsins og að hann hafi greint hjá henni mikið vantraust gagnvart karlmönnum. Sagði hann brotaþola hafa sýnt af sér miklar skapsveiflur og hegðunarvandamál. Til að mynda hafi brotaþoli byrjað að strjúka að heiman og „lokað sig algerlega af inni á heimilinu“. Æ sagði brotaþola ekki hafa sótt sérstaka aðstoð fagaðila vegna máls þessa, en hún hafi hitt sálfræðing vegna úrlausnar forsjárdeilu foreldra hennar, en þar hafi mál þetta borið á góma.
6.5
Ákæruliður I.5 og II.2 – Brotaþolinn U
6.5.1 Almennt – málavextir o.fl. Í lögregluskýrslu greinir að á tímabilinu 28. október til 1. nóvember 2021 séu vistuð samskipti ákærða við brotaþolann U á Snapchat og að tengingin hafi verið á milli notandans sxy.mf og saras.uu, en það mun hafa verið notandanafn brotaþola en uppgefið nafn hennar á Snapchat hafi verið […]. Kemur fram að tengingin hafi stofnast 27. október 2021.
Greinir að á Snapchat-reikningi ákærða hafi fundist kynferðisleg skilaboð milli hans og brotaþola. Kemur fram að brotaþoli hafi sent ákærða hljóðskrá þar sem hún spyr hversu margar myndir hann vilji fyrir eitt veip. Þá sendir brotaþoli myndir af brjóstasvæði sínu, bæði í og án brjóstahaldara. Þá sendir hún myndir af rassi og klofsvæði, en er þá íklædd nærbuxum. Þá sést að brotaþoli sendir ákærða aðra hljóðskrá þar sem hún biðst afsökunar á því að hafa ekki sent honum myndir en ætli að senda honum aftur myndir og þá muni hún „án djóks“ senda „20 fleiri“ myndir. Í gögnum er að finna fimm skjáskot af Snapchat-reikningi ákærða sem sýna samskipti hans með notandanafninu sxy.mf við brotaþola. Þá fundust níu ljósmyndir í farsíma brotaþola.
6.5.2 Framburður brotaþola fyrir dómi Tekin var skýrsla af brotaþola, U, í Barnahúsi 23. febrúar 2022. Greindi hún frá því að vinkonur hennar, PP, OO og RR, hefðu bent henni á mann á Snapchat sem gæti útvegað henni ýmsa hluti sem hún vildi nálgast, svo sem rafrettur, gegn því að stúlkurnar „gerðu eitthvað sem hann segir eða eitthvað þannig“, til dæmis senda honum myndir af sér að „flexa“. Hún hafi því ákveðið að „adda“ honum. Brotaþoli sagðist hafa verið með notandanafnið […] á Snapchat. Sagðist brotaþoli hafa sent manninum tvær til þrjár myndir og þá „speglamyndir“, þ.e. myndir sem sýndu líkama hennar. Hún kvaðst vera viss um að hafa ekki sýnt andlit sitt. Þá hafi hún sent myndir sem hún hafi fengið frá skólafélaga sínum, SS. Brotaþoli kvaðst þekkja rödd sína á hljóðskilaboðum sem fundust í samskiptum þeirra, en þar spyr hún: „ókei, hversu þú veist margar myndir viltu fyrir þú veist eitt veip, þú veist?“. Þá kannaðist hún einnig við rödd sína á hljóðskilaboðum sem hún sendir manninum og segir: „… án djóks þá sendi ég þér 20 myndir“.
Brotaþoli kvaðst aðspurð ekki hafa sagt manninum hvað hún væri gömul, auk þess sem hann hafi ekki spurt hana að aldri. Þá hafi þau ekki talað um skóla hennar. Sagði hún manninn ekki hafa sagt sér hvað hann væri gamall, en hún hafi vitað að hann væri eldri en 17 ára, þar sem hann væri á bíl. Þá sagði hún að maðurinn hefði ekki sent sér myndir. Brotaþoli kvaðst ekki hafa fengið veip eða annað frá manninum.
6.5.3 Framburður ákærða hjá lögreglu Í skýrslutöku 17. mars 2022 kvaðst ákærði ekki muna eftir samskiptum sínum við brotaþolann Söru.
6.5.4 Framburður ákærða og vitna fyrir dómi Ákærði tjáði sig ekki sérstaklega um sakarefni ákæruliðarins við skýrslutöku fyrir dómi.
6.6
Ákæruliður I.6 – Brotaþolinn V
6.6.1 Almennt – málavextir o.fl. Af rannsóknargögnum verður ráðið að á tímabilinu 3. ágúst til 26. september 2021 séu vistuð samskipti ákærða við brotaþolann V og að tenging hafi fundist á milli sxy.mf og notandanafns brotaþola, […], en uppgefið nafn hennar á Snapchat var […].
Við skoðun á Snapchat-reikningi ákærða fundust kynferðisleg myndbönd sem hann hafði sent til brotaþola, auk mikils fjölda myndskeiða af karlmanni að stunda sjálfsfróun. Þá hafi hann sent henni myndbönd af karli og konu að stunda kynmök, bæði í leggöng og endaþarm, eða samtals 75 talsins, þar af þrjú myndbönd af karlmanni að hafa sáðfall. Í gögnum er að finna 19 skjáskot af Snapchat-reikningi ákærða sem sýna samskipti hans við brotaþola.
6.6.2 Framburður brotaþola fyrir dómi Brotaþoli, V, gaf skýrslu fyrir dómi í Barnahúsi 28. febrúar 2022. Staðfesti hún þar að hafa notast við Snapchat-aðganginn […]. Sagðist hún hafa verið í samskiptum við einhvern „barnaperra“ sem hafi sent henni „typpamyndir og typpavídeó“, en myndböndin voru af manninum „að runka sér“. Brotaþoli kvaðst ekki vita um fjölda þeirra. Sagðist hún sjálf hafa sent manninum „flex myndir“ og stutt myndbönd, þar sem sést hafi í brjóst hennar og rass. Staðfesti brotaþoli að fyrirliggjandi myndir og myndbönd væru af sér og staðfesti jafnframt að aðrar myndir og myndbönd stöfuðu frá manninum.
Brotaþoli kvaðst ekki muna hvenær hún hefði „addað“ manninum, en haldi að það hafi verið sumarið 2021 og að samskiptin hafi staðið yfir í um mánuð. Brotaþoli kvaðst ráma í að hafa sagt manninum að hún væri að verða […] ára gömul „og hann var þá kannski […] tveim árum eldri eða eitthvað“. Þá sagði brotaþoli að „þú veist stundum bara já maður addar einhverjum og þá spyr maður bara strax fattarðu hvað hann er gamall og síðan fattarðu já“. Sagðist hún halda að þannig hafi það einnig verið í samskiptum þeirra. Hún sagðist þó „pottþétt“ hafa sagt honum hvað hún væri gömul áður en þau hófu að skiptast á myndum.
Sagði brotaþoli að maðurinn hefði ekki greitt henni fyrir myndirnar og að hún hefði hvorki hitt hann né séð andlit hans. Þá sagðist hún ekki hafa beðið manninn um myndir, en hann hafi engu að síður sent myndir og myndbönd til hennar. Sagði hún manninn hafa talað inn á sum myndböndin sem henni hafi fundist vera „ógeðslegt“. Þá hafi maðurinn sent henni myndband af sér stunda samfarir við einhverja „gellu“.
Brotaþola hafi fundist þessi samskipti vera óþægileg og því hafi hún „un-addað“ manninum. Henni hafi fundist óþægileg hversu mikið efni hann hafi sent til hennar, auk þess sem henni hafi liðið illa yfir því sem hún hafði sent til hans, hún hafi sent honum margar myndir, en hafi ekki tölu á þeim. Þær hafi þó verið fleiri en tíu. Sagðist brotaþoli skammast sín mikið vegna samskiptanna.
6.6.3 Framburður ákærða hjá lögreglu Í skýrslutöku 17. mars 2022 kvaðst ákærði ekki muna eftir samskiptum við brotaþolann V. Ákærði staðfesti að öll myndböndin sem hann hafi sent til brotaþolans V væru af honum utan eins þeirra sem var myndband af karli og konu að stunda samfarir, en það hafi hann fundið á netinu. Ákærði staðfesti að annað myndband sem hann hafði sent henni væri af honum að stunda kynlíf með konu sem hann kvaðst hafa hitt einu sinni. Hann kvaðst ekki vita nafn konunnar, en hún hefði gefið honum leyfi til að dreifa myndbandinu, svo lengi sem það sæist ekki í andlit hennar.
6.6.4 Framburður ákærða og vitna fyrir dómi Ákærði tjáði sig ekki sérstaklega um sakarefni ákæruliðarins við skýrslutöku fyrir dómi.
TT sálfræðingur sagði brotaþolann V hafa notið sálfræðiaðstoðar hennar allt frá því málið hafi komist upp. Sagði hún brotaþola hafa greint sér frá atvikum. Hafi brotaþoli greint frá „erfiðum tilfinningum“ og vanlíðan, „pirringi og reiði, kvíði, skömm, sektarkennd“. Þá hafi brotaþoli glímt við erfiðar hugsanir og sjálfsásakanir. Upp hafi komið „endurteknar, truflandi og óvelkomnar minningar“ um meint brot. Sagði hún brotaþola komast í uppnám þegar eitthvað í umhverfinu minni hana á atvik og sýni brotaþoli mikla „forðun“. Hún forðist minningar, hugsanir og tilfinningar tengdar atvikum. Þá eigi brotaþoli nú erfitt með að umgangast og ræða við ókunnungt fólk. Málið hafi haft félagsleg áhrif á brotaþola.
AA, móðir brotaþolans V, sagði hana hafa rætt við foreldra sína um málið þegar það hafi komið upp, en þau hafi fyrst frétt af málinu frá lögreglu. Sagði hún brotaþola hafa „brotnað alveg niður“ í kjölfar skýrslutöku í Barnahúsi, enda hafi hún þá fyrst gert sér grein fyrir alvarleika málsins. Sagði hún brotaþola þegar hafa verið hjá sálfræðingi áður en mál þetta kom upp, en brotaþoli hafi glímt við „einhver samskiptavandamál“, sem hafi „ágerst svakalega“ um vor og sumar 2021. Sagðist vitnið hafa haldið dagbók um þetta. Brotaþoli hafi sýnt af sér ofbeldishegðun og sjálfsskaða auk áráttueinkenna sem ekki hafði borið á áður. Sagðist hún telja sig geta tengt þessar atferlisbreytingar brotaþola við málið, enda hafi ekkert annað komið upp sem gæti skýrt þetta. Sagði hún brotaþola reyna að gleyma málinu. Henni gangi vel í skóla og ekki beri eins mikið á áráttuhegðun. Vitnið hafi komið að máli við brotaþola vegna dómsmeðferðarinnar. Brotaþoli hafi þá neitað að ræða málið og „farið í fósturstellingu“ sem hún hafi verið í um klukkustund.
6.7
Ákæruliður I.7 – Brotaþolinn X
6.7.1 Almennt – málavextir o.fl. Í rannsóknargögnum greinir að 28. desember 2020 séu til vistuð samskipti ákærða með notandanafninu sxy.mf við brotaþolann X með notandanafnið […] og notandaheitið […] […] á Snapchat og að þau hafi átt í töluverðum samskiptum tímabilið 28. desember 2020 til 2. janúar 2021. Við skoðun á farsíma ákærða og rafrænum gögnum sem tengjast Snapchat-reikningi hans sést að á milli þeirra fóru textaskilaboð af kynferðislegum toga og að ákærði hafi boðið brotaþola að taka þátt í fyrrgreindum stigaleik gegn því að brotaþoli sendi honum myndefni.
Í málinu liggja frammi alls 17 skjáskot af Snapchat-reikningi ákærða, sxy.mf, sem sýna samskipti hans og brotaþola.
6.7.2 Framburður brotaþola fyrir dómi Skýrsla var tekin af brotaþola, X, fyrir dómi í Barnahúsi 3. júní 2022. Staðfesti hún þar að hafa áður verið með notandanafnið […] á Snapchat, en hún kvaðst hafa skipt um aðgangsheiti í desember 2021. Aðspurð kvaðst brotaþoli kannast við nafnið Sig Sig, en hún sagði þann aðila hafa „addað“ sér og vinkonum sínum sem hafi verið saman í „grúppu“ á Snapchat. Sagði hún manninn hafa sent sér „dick pic“, sem þeim hafi fundist mjög óþægilegt. Sagði hún að maðurinn hefði sagst vera 18 eða 19 ára gamall og sent þeim ljósmynd af ungum dreng því til sönnunar. Að sögn brotaþola hafi vinkona hennar síðar beðið manninn um að senda sér andlitsmynd („fullface pic“), sem hann hafi gert, og hafi það verið „oj, þú veist andlitið hans, það er bara svona gamall kall andlitið“.
Brotaþoli sagði manninn hafa beðið hana um að senda sér nektarmyndir, sem hún hafi ekki gert. Maðurinn hafi hins vegar fengið brotaþola og vinkonur hennar, þær UU, VV, XX og YY, til að taka þátt í stigaleik og hafi þær sent honum myndir og myndbönd af sér, til dæmis að veifa, brosa, hoppa, klappa og sleikja varir, en maðurinn hafi í staðinn veitt þeim stig. Sagði hún manninn hafa ætlað að gefa þeim pening í staðinn. Brotaþoli sagði að myndböndin hefðu verið mjög „barnaleg út af við vorum bara […] eða […]“. Sagði hún myndirnar og myndskeiðin hafa sýnt andlit þeirra. Sagði hún manninn hafa veitt þeim stig í stað athafna, mynda og myndskeiða sem þær sendu til hans, en hún hafi ekki alveg vitað hvað þessi stig þýddu. Maðurinn hafi þó sagst ætla að kaupa handa henni „dildó“ og „plug“ til að setja á rass. Þá hafi maðurinn beðið hana um að strjúka á sér brjóstin, sem hún hafi ekki gert, meðal annars vegna þess að hún hafi ekki verið komin með brjóst á þessum tíma.
Brotaþoli sagði manninn hafa sent sér yfir 20 typpamyndir og myndir af honum að aka stórum vinnubíl. Þá hafi hann sent henni mörg myndbönd af honum að „runka sér“.
Brotaþoli sagðist halda að hún og vinkonur hennar hefðu sagt manninum hvað þær væru gamlar, enda geri þær það oftast. Hún haldi þó að maðurinn hafi ekki spurt þær um aldur en þær hafi sagt við hann „bara oj, vissir þú að við séum bara barn, þú veist að við séum […] eða […]?“ Brotaþoli gat þó ekki staðfest hvort þetta hafi verið í upphafi samskipta þeirra eða síðar.
6.7.3 Framburður ákærða hjá lögreglu Í skýrslutöku 16. júní 2022 kvaðst ákærði ekki muna eftir samskiptum við brotaþolann
X.
6.7.4 Framburður ákærða og vitna fyrir dómi Ákærði tjáði sig ekki sérstaklega um sakarefni ákæruliðarins við skýrslutöku fyrir dómi. ZZ, faðir brotaþolans X, sagðist hafa rætt málið í kjölfar þess að það kom upp. Hafi brotaþola þá liðið illa, en borið sig vel, en hún hafi í kjölfar þess sýnt af sér breytta hegðun. Hún hafi sofið illa og hafi átt til að […]. Þá hafi hún […] og byrjað að […]. Þá hafi samskipti hennar og móður hennar versnað um tíma. Sagðist hann hafa merkt skerta sjálfsmynd hjá brotaþola. Kvaðst hann ekki vita til þess að önnur atvik gætu skýrt breytta hegðun og líðan brotaþola enda hafi hann merkt breytingar í kjölfar þessa máls. Sagði hann foreldrana hafa rætt við ráðgjafa hjá barnavernd, auk þess sem hann kvaðst sjálfur hafa reynt að veita brotaþola aðstoð.
6.8
Niðurstaða varðandi ákærukafla I, töluliðir 1–7
6.8.1 Ákærði hefur neitað sök og hefur líkt og áður borið fyrir sig minnisleysi. Af framburði hans verður þó ekki annað ráðið en að hann rengi ekki þau samskipti sem liggja fyrir í málinu og almennt greinir í ákærukaflanum. Þá kvaðst ákærði almennt ekki hafa leitt hugann sérstaklega að aldri viðmælenda sinna og kvaðst hann einfaldlega hafa leitast eftir samskiptum við kvenfólk sem hann taldi vera kynþroska „eða hafa áhuga á kynlífi“. Þá hefur ákærði greint frá því að hafa „rosa lítið“ skoðað notendanöfn stúlknanna í því augnamiði að staðreyna aldur þeirra áður en kynferðisleg samskipti hófust af hans hálfu og hefur málsvörn hans einkum miðað að því að hafa ekki vitað um aldur brotaþola.
6.8.2 Brotaþolinn Q Í málinu liggur fyrir að notandanafn brotaþolans Q, sem er fædd í […] […], var […], sem ætla má að sé tilvísun í þekktar teiknimyndir sem fyrst komu út upp úr aldamótum. Q kvaðst í skýrslu sinni fyrir dómi hafa sagt ákærða í upphafi samskipta þeirra hvert væri fæðingarár hennar og kvaðst hún hafa spurt ákærða um aldur en hann svarað því til að hann væri fæddur árið 2004 („04“). Við rannsókn á símagögnum fundust fá samskipti þeirra á milli, en rannsókn málsins sýnir að þau hafi sent myndir og/eða myndskeið sín á milli. Q hefur lýst því að ákærði hafi sent henni fjölda mynda af kynfærum sínum og fjölda myndbanda þar sem hann sést stunda sjálfsfróun. Þá lýsti hún því að ákærði hefði sent henni tvö myndbönd af ungum stúlkum að veita honum munnmök.
6.8.3 Brotaþolinn R Notandanafn R á Snapchat var […] og fyrir aftan nafn hennar er lyndistákn af risaeðlu. Greindi hún frá því að […] stæði fyrir fæðingardag hennar og ár, en hún kvaðst hafa sleppt tölunni […] sem stæði fyrir fæðingarmánuð hennar, […]. Sýna fyrirliggjandi rafræn gögn að ákærði átti í kynferðislegum skeytasendingum og að hann hafi meðal annars beðið hana um að taka þátt í áðurgreindum stigaleik. Hvorki kemur þó fram í gögnum máls né greindi R frá því að aldur hennar hefði borist í tal í samskiptum þeirra ákærða. Þó greindi hún frá því að hafa beðið ákærða um að senda sér andlitsmynd, þ.e. „FFP“ sem hefur ensku merkinguna „Full Face Picture“ og að ákærði hafi þá sent henni mynd af ungum dreng, en af því verður það eitt ráðið að ákærði hafi vitað eða rennt í grun að brotaþoli væri ung að aldri.
6.8.4 Brotaþolinn S Rakið hefur verið að lögregla var kölluð að heimili S vegna tilkynningar um kynferðislegar skeytasendingar. Greinir í lögregluskýrslu að við skoðun lögreglu á símtæki S hafi mátt sjá myndband af fullorðnum karlmanni stunda sjálfsfróun. Þá greinir að á meðan lögregla var við skoðun á símtæki S á heimili hennar hafi borist nokkur skilaboð frá ákærða, þar á meðal kynferðisleg myndskeið, en við skoðun á síma brotaþola hafi lögregla fundið alls þrjú myndbönd af karlmanni við fyrrgreindar athafnir, auk ljósmyndar af klofsvæði karlmanns. Ekki liggja fyrir stafræn gögn um notandanafn S á samfélagsmiðlinum en hún greindi svo frá að í eða við notandanafn hennar hafi staðið ártalið […], sem sé skýr tilvísun til fæðingarárs hennar.
6.8.5 Brotaþolinn T Notandanafn T á Snapchat var […] og var uppgefið nafn hennar […]. Á fyrirliggjandi stafrænum gögnum má sjá nektar- og nærfatamyndir af T, auk kynferðislegra textaskilaboða. Þá kemur fram í gögnum að T spyr ákærða 1. ágúst 2020 hvort hann vilji gera eitthvað með henni, þ.e.: „Nn að hittast???“, „Nn að gera eitth“ og „Nn á runtinn í kvöld er ég ma“ og sendir hún síðar: „Hæ ég má fara á runtinn í kvöld ef þú vilt (meðfylgjandi lyndistákn af vatnsskvettu og hjarta)“ og síðar: „Nn að sækja mig kl 9???“. Þann 4. ágúst sama ár sendir brotaþoli til ákærða: „Geturðu sótt mig hjá adam og evu kl 15:36? Og skutla mér til ír […] Því ég þarf að sækja systur mína og ég nn ekki að taka strætó“. Þá liggja fyrir fleiri skilaboð milli þeirra af sama toga. Þykir dóminum blasa við að ákærði hafi mátt gera sér grein fyrir að skilaboðin kæmu frá barni. Þá kvaðst T ekki muna hvort aldur hennar hafi komið til tals en hún sagðist þó jafnan segja ókunnugum frá aldri sínum: „Ég sagði, spurt bara módel þú veist, þá sagði ég bara […] út af því að ég er […] og þá hef ég bara spurt: en þú? …“
6.8.6 Brotaþolinn U Fyrirliggjandi gögn greina að á Snapchat-reikningi ákærða hafi fundist kynferðisleg skilaboð milli hans og brotaþolans U, auk þess sem í málinu liggja fyrir kynferðislegar myndir sem hún tók og sendi til ákærða, en myndirnar sýna meðal annars brjóst hennar, rass og klofsvæði. Þá liggur í málinu fyrir hljóðskrá, líkt og að framan greinir, þar sem greina má barnunga rödd U biðjast afsökunar á því að hafa ekki sent ákærða fleiri myndir og segist munu „án djóks“ senda „20 fleiri“ myndir. U sagði fyrir dómi að hún hefði ekki greint ákærða frá aldri sínum, auk þess sem hann hefði ekki greint henni frá sínum aldri.
6.8.7 Brotaþolinn V Notandanafn brotaþolans V á Snapchat var […] og uppgefið nafn hennar V. Af fyrirliggjandi gögnum verður ráðið að ákærði sendi brotaþola mikinn fjölda af grófu kynferðislegu myndefni, meðal annars af karlmanni að stunda sjálfsfróun og kynmökum, en alls fundust 75 gróf kynferðisleg myndbönd á Snapchat-reikningi ákærða. Brotaþoli greindi frá því að hún hefði talið að ákærði væri í menntaskóla, þ.e. „tveim árum eldri“ en hún, sem var þá á […]. aldursári, en af því verður það eitt ráðið að ákærði hafi vitað eða grunað að brotaþoli væri ung að aldri. Þá taldi brotaþoli ekki víst að ákærði hefði vitað um aldur hennar: „Nei, eða þú veist, já, ég held það eða þú veist, ég held ég hafi alveg sagt honum að ég væri skilurðu þú veist bara ég meina hvað […] eða þú veist að verða […] og hann var þá kannski að þú veist þá bara tveim árum eldri eða eitthvað“.
6.8.8 Brotaþolinn X Notandanafn X á Snapchat var […] og uppgefið nafn hennar […]. Fram hefur komið að við skoðun á rafrænum gögnum hafi sést að á milli þeirra hafi farið skilaboð af kynferðislegum toga, auk þess sem ákærði bauð brotaþola að taka þátt í áðurnefndum stigaleik gegn því að hún sendi honum kynferðislegt myndefni. Þá hafi ákærði sent henni fjölda mynda af getnaðarlim sínum auk myndbanda. Brotaþoli kvaðst reka minni til þess að ákærði hefði sagst vera 18 eða 19 ára gamall og hefði sent henni ljósmynd af ungum dreng því til sönnunar, en af því verður, líkt og áður, það eitt ráðið að ákærði hafi vitað eða grunað að brotaþoli væri ung að árum. X kvaðst minna að hún hefði greint ákærða frá aldri sínum, enda geri hún það oftast nær.
6.8.9 Niðurstaða ákæruliðar I Ákærða er hér gefið að sök að hafa á tilgreindu tímabili staðið í kynferðislegum samskiptum við framangreinda brotaþola. Voru samskiptin allt frá því að viðhafa kynferðislegt tal upp í sendingar á afar grófum kynferðislegum myndum og myndskeiðum sem ákærði sendi brotaþolum sem voru þá börn að aldri, en sumar þeirra voru einungis […] ára gamlar á þessum tíma. Þá er ákærða jafnframt gefið að sök að hafa hvatt sumar stúlknanna til að senda honum myndir og myndskeið þar sem þeim var gert að framkvæma ýmsar kynferðislegar athafnir.
Líkt og áður þykir sýnt að fyrirliggjandi samskipti sem lögregla náði að afrita við rannsókn málsins sýni ekki nema brot af þeim samskiptum og sendingum sem áttu sér stað á milli ákærða og brotaþola. Má af samhengi samskiptanna vel ráða að ákærði hafi sent brotaþolum fjölmörg önnur skilaboð af kynferðislegum toga og að sumir brotaþolanna hafi sent honum annað efni að hans undirlagi, sem ekki hafi fundist við skoðun.
Þá er það mat dómsins að framburður stúlknanna allra sé mjög trúverðugur og fær hann auk þess stoð í gögnum málsins og verður hann lagður til grundvallar við úrlausn málsins. Ákærði hefur á hinn bóginn engar skýringar gefið á samskiptunum eða rennt stoðum undir það sjónarmið sitt að hann hafi talið sig hafa verið í samskiptum við fullþroska einstaklinga. Þvert á móti þykir sýnt að hann hafi engu skeytt um það, auk þess sem beinlínis verður ráðið að hann hafi beint spjótum sínum að barnungum stúlkum í þeim tilgangi að eiga við þær kynferðisleg samskipti. Ákærða bar enda að ganga sérstaklega úr skugga um að sendingum hans og samskiptum, sem öll voru af kynferðislegum toga, og höfðu mörg hver að geyma einkar gróf kynferðisleg skilaboð, myndir og myndbönd, væri ekki beint til barna, líkt og raun varð á. Líkt og sjá má í gögnum notast brotaþolar iðulega við styttingar orða í skriflegum samskiptum sínum, líkt og algengt er hjá ungu fólki, svo sem „mdl“ sem stendur fyrir módel eða fæðingarár, „eikhv“ í stað eitthvað, „mrg“ fyrir morgun og „ig“ í stað Instagram, svo eitthvað sé nefnt, auk þess sem orðfæri ritaðra skilaboða ber þess almennt skýr merki að stafa ekki frá fullorðinni manneskju. Þá notaðist ákærði sjálfur við lyndistákn, sem almennt er viðurkennt að hafa sérstaka merkingu meðal ungs fólks og ákærði virðist hafa tileinkað sér í þeim tilgangi að eiga við stúlkurnar kynferðisleg samskipti. Með þessu og öðru villti ákærði á sér heimildir og þóttist vera á táningsaldri, en ætla má að það hafi verið í þeim tilgangi einum að ná sambandi við stúlkur sem hann vissi að væru börn að aldri. Enn fremur bera myndir og myndskeið sem sumar brotaþolanna sendu ákærða berlega með sér að um sé að ræða mjög unga einstaklinga.
Með vísan til alls framangreinds telur dómurinn að hafið sé yfir skynsamlegan vafa að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem lýst er í ákærulið I í síðara ákæruskjali og telst háttsemi hans varða við 2. mgr. 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, auk 3. mgr. 99. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 hvað varðar 4. töluliði í ákærukafla I, líkt og krafist er í ákæru.
6.9
Niðurstaða varðandi ákærukafla II, ákæruliðir 1 og 2
Ákærða er enn fremur gefið að sök kynferðisbrot með því að hafa á tilgreindu tímabili haft í vörslum sínum á farsíma alls 18 ljósmyndir sem sýna brotaþolana T og U á kynferðislegan hátt, líkt og þar nánar greinir. Ákærði kvaðst í skýrslutöku hjá lögreglu ekki muna eftir þessu og kannaðist ekki við myndirnar, en tjáði sig ekki sérstaklega um þær fyrir dómi.
Í greinargerð ákærða er hvað þennan ákærulið varðar vísað til þess að ekki liggi fyrir að myndirnar hafi borist honum, auk þess sem ósannað sé að þær séu af brotaþolum eða öðrum.
Óumdeilt er að umræddar ljósmyndir voru vistaðar á símtæki ákærða. Voru myndirnar bornar undir brotaþola við skýrslutöku fyrir dómi sem sögðust endurþekkja sig á myndunum. Framburðir brotaþola hafa áður verið metnir trúverðugir gagnstætt framangreindum sjónarmiðum sem teflt hefur verið fram af hálfu ákærða. Verður því talið hafið yfir skynsamlegan vafa að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákærulið II og er hún þar réttilega heimfærð til refsiákvæða.
Um ákvörðun refsingar o.fl.
Ákærði er samkvæmt framansögðu sakfelldur fyrir fjölmörg og gróf kynferðisbrot gegn alls 15 stúlkubörnum á tilgreindu tímabili.
Ákærði var með dómi Hæstaréttar frá 31. janúar 2024 í máli nr. 31/2023 dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir fjölmörg kynferðisbrot gegn ungum stúlkum, þar á meðal var hann þar fundinn sekur um að hafa í þrígang gerst brotlegur við 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga, en refsirammi þess ákvæðis er 16 ára fangelsi. Í málinu var ákærði jafnframt sakfelldur fyrir brot gegn þeim ákvæðum almennra hegningarlaga sem hann hefur hér gerst brotlegur við, auk sérlaga.
Líkt og greinir í nefndum dómi Hæstaréttar hefur netnotkun barna og ungmenna aukist til muna á undanförnum árum og nýta þau sér samfélagsmiðla í miklum mæli til samskipta. Auðvelt er að nálgast þá sem nýta sér þá miðla og samskiptaforrit, villa þar á sér heimildir, misnota traust sem verður til í slíkum samskiptum og beita blekkingum til þess að viðhafa refsiverða kynferðislega háttsemi. Þá hefur sú þróun sem orðið hefur með aukinni netnotkun barna og breyttu samskiptamynstri þeirra í milli og við aðra með notkun samskiptaforrita og samfélagsmiðla gert þau berskjölduð gagnvart kynferðislegri háttsemi sem unnt er að drýgja á þessum vettvangi.
Refsing í því máli sem hér er til meðferðar verður ákveðin samkvæmt framangreindu og einnig 77. gr., sbr. 78. gr., almennra hegningarlaga og verður ákærði því dæmdur til refsingar sem samsvarar þeirri þyngingu hegningarinnar, sem kynni að hafa orðið, ef dæmt hefði verið um öll brotin í fyrra málinu.
Samkvæmt öllu þessu verður viðbótarrefsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í þrjú ár. Er þá ekki síst litið til þess að brot þau sem nú eru til meðferðar eru fjölmörg og svívirðileg, eins og rækilega hefur þurft að rekja í dómi þessum. Brot ákærða beindust þannig gegn mjög ungum stúlkum sem voru á afar viðkvæmum aldri, en sumar þeirra voru einungis 11 ára þegar brotin voru framin. Voru brot ákærða ófyrirleitin og beinlínis til þess fallin að hafa afar neikvæð áhrif á sálarlíf stúlknanna. Eru brot ákærða til þess fallin að marka þolendur þeirra til lífstíðar. Ákærði er á sextugsaldri og hafði algera yfirburðastöðu í aldri og þroska í samskiptum sínum við stúlkurnar, sem hann nýtti sér við framningu brotanna. Ákærði skeytti engu um mikilvæga hagsmuni stúlknanna og lét sér í léttu rúmi liggja hvaða afleiðingar brot hans kynnu að hafa á sálarlíf þeirra. Ásetningur ákærða til brotanna var einkar styrkur og einbeittur. Ákærði á sér engar málsbætur.
Einkaréttarkröfur
Með brotum þeim sem ákærði er sakfelldur fyrir hefur hann bakað sér bótaábyrgð gagnvart brotaþolum samkvæmt b-lið 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Við ákvörðun miskabóta verður horft til þess að brot ákærða voru fjölmörg og gróf og var háttsemi hans til þess fallin að valda brotaþolum verulegum andlegum miska sem ætla má að marki þær til framtíðar, líkt og meðal annars má ráða af framburði og skýrslum sérfræðinga sem og framburði forsjármanna brotaþola. Að öllu framangreindu virtu þykja miskabætur til handa brotaþolum hæfilega ákvarðaðar líkt og hér greinir, auk vaxta og dráttarvaxta líkt og nánar í dómsorði greinir. Rétt þykir eins og hér á stendur að dæmdar bætur beri dráttarvexti annars vegar frá þingfestingu fyrri ákæru málsins, 26. ágúst 2024, og hins vegar frá þingfestingu hinnar síðari, 23. janúar 2025, sbr. 9. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu:
Ákærði greiði brotaþolanum A miskabætur að fjárhæð 1.500.000 krónur, brotaþolanum B miskabætur að fjárhæð 1.500.000 krónur, brotaþolanum C miskabætur að fjárhæð 1.200.000 krónur, brotaþolanum D miskabætur að fjárhæð 1.000.000 króna, brotaþolanum E miskabætur að fjárhæð 1.500.000 krónur, brotaþolanum F miskabætur að fjárhæð 750.000 krónur, brotaþolanum G miskabætur að fjárhæð 750.000 krónur, brotaþolanum H miskabætur að fjárhæð 1.500.000 krónur, brotaþolanum Q miskabætur að fjárhæð 1.500.000 krónur, brotaþolanum R miskabætur að fjárhæð 750.000 krónur, brotaþolanum S miskabætur að fjárhæð 1.000.000 króna, brotaþolanum T miskabætur að fjárhæð 1.200.000 krónur, brotaþolanum U miskabætur að fjárhæð 1.200.000 krónur, brotaþolanum V miskabætur að fjárhæð 1.500.000 krónur og brotaþolanum X miskabætur að fjárhæð 750.000 krónur.
Sakarkostnaður
Að framangreindu virtu og í samræmi við 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála verður ákærði dæmdur til að greiða málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Gísla M. Auðbergssonar lögmanns, sem þykir hæfilega ákveðinn að teknu tilliti til tímaskýrslu verjandans og umfangs málsins svo sem í dómsorði greinir, auk útlagðs kostnaðar verjandans. Ákærða verður jafnframt gert að greiða þóknun réttargæslumanna brotaþola, lögmannanna Ólafar Heiðu Guðmundsdóttur og Ástu Bjarkar Eiríksdóttur, auk aksturskostnaðar. Við ákvörðun málskostnaðar verjanda og þóknunar réttargæslumanna hefur verið tekið tillit til greiðslu virðisaukaskatts. Ákærði greiði jafnframt annan sakarkostnað málsins, sem samkvæmt sakarkostnaðaryfirliti nemur 198.000 krónum.
Af hálfu ákæruvalds sótti málið Dagmar Ösp Vésteinsdóttir saksóknari. Þórhallur Haukur Þorvaldsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan. Fyrir dómsuppsögu var gætt ákvæðis 1. mgr. 184. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála.
Dómsorð:
Ákærði, Brynjar Joensen Creed, sæti fangelsi í þrjú ár.
Ákærði greiði A miskabætur að fjárhæð 1.500.000 krónur með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 1. júní 2021 til 26. ágúst 2024 en með dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.
Ákærði greiði B miskabætur að fjárhæð 1.500.000 krónur með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 10. febrúar 2021 til 26. ágúst 2024 en með dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.
Ákærði greiði C miskabætur að fjárhæð 1.200.000 króna með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 6. nóvember 2020 til 26. ágúst 2024 en með dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.
Ákærði greiði D miskabætur að fjárhæð 1.000.000 króna með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 1. október 2020 til 26. ágúst 2024 en með dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Ákærði greiði E miskabætur að fjárhæð 1.500.000 krónur með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 1. maí 2021 til 26. ágúst 2024 en með dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.
Ákærði greiði F miskabætur að fjárhæð 750.000 krónur með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 21. apríl 2021 til 26. ágúst 2024 en með dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.
Ákærði greiði G miskabætur að fjárhæð 750.000 krónur með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 1. janúar 2021 til 26. ágúst 2024 en með dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.
Ákærði greiði H miskabætur að fjárhæð 1.500.000 krónur með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 25. mars 2021 til 26. ágúst 2024 en með dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.
Ákærði greiði Q miskabætur að fjárhæð 1.500.000 krónur með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 1. nóvember 2021 til 23. janúar 2025 en með dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.
Ákærði greiði R miskabætur að fjárhæð 750.000 krónur með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 2. nóvember 2021 til 23. janúar 2025 en með dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.
Ákærði greiði S miskabætur að fjárhæð 1.000.000 króna með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 25. febrúar 2021 til 23. janúar 2025 en með dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.
Ákærði greiði T miskabætur að fjárhæð 1.200.000 krónur með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 2. október 2020 til 23. janúar 2025 en með dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags. Ákærði greiði U miskabætur að fjárhæð 1.200.000 krónur með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 1. nóvember 2021 til 23. janúar 2025 en með dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.
Ákærði greiði V miskabætur að fjárhæð 1.500.000 krónur með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 1. nóvember 2021 til 23. janúar 2025 en með dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.
Ákærði greiði X miskabætur að fjárhæð 750.000 krónur með vöxtum samkvæmt 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 2. janúar 2021 til 23. janúar 2025 en með dráttarvöxtum samkvæmt 9. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags.
Ákærði greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Gísla M. Auðbergssonar lögmanns, 6.690.000 krónur og ferðakostnað og annan útlagðan kostnað verjandans, 585.823 krónur.
Ákærði greiði þóknun skipaðs réttargæslumanns brotaþolans S, Ólafar Heiðu Guðmundsdóttur lögmanns, 1.088.100 krónur.
Ákærði greiði þóknun skipaðs réttargæslumanns brotaþolanna A, B, C, D, E, F, G, H, Q, R, T, U, V og X, Ástu Bjarkar Eiríksdóttur lögmanns, 6.200.400 krónur, auk aksturskostnaðar að fjárhæð 120.142 krónur.
Ákærði greiði annan sakarkostnað, 198.000 krónur.
Þórhallur Haukur Þorvaldsson