Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-2021/2022:

Ákæruvaldið

(Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari)

gegn

Hilmari Erni Albertssyni

Dómur:

I

(Leifur Runólfsson lögmaður)

Ávana- og fíknilyf. Fangelsi. Skilorðsrof. Upptaka.

Ákærði sakfelldur fyrir vörslur ávana- og fíknilyfja.

Mál þetta, sem dómtekið var 6. febrúar 2023, að lokinni aðalmeðferð, er höfðað af lögreglustjóranum á Suðurnesjum með ákæru dags, 17. október 2022 á hendur ákærða Hilmari Erni Albertssyni, kt. 000000-0000, […].

Málið er höfðað á hendur ákærða fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, með því að hafa, laugardaginn 16. apríl 2022, á salerni í verslun […], Reykjanesbæ, haft í vörslum sínum samtals 228 töflur af ávana- og fíknilyfinu OxyContin (virkt efni: Oxycodonum) og 321 töflur af ávana- og fíknilyfinu Alprazolam Krka (virkt efni: Alprazolamum), sem lögregla fann við öryggisleit á ákærða og í ruslafötu á salerninu og lögregla lagði hald á.

Telst þessi háttsemi ákærða varða við 1. sbr. 4 . mgr. 3. gr., sbr. 5. gr. laga nr. 65/1974, sbr. lög nr. 60/1980, lög nr. 13/1985, lög nr. 10/1997 og lög nr. 68/2001 og 2., 3. og 6. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr. reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 105/2021.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þá er krafist upptöku á ofangreindum 228 OxyContin töflum og 321 Alprazolam Krka töflum, með vísan til 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974, sbr. 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.

Við aðalmeðferð málsins leiðrétti sækjandi að OxyContin töflurnar væru 224 en ekki 228 eins og segir í ákærunni. Verjandi ákærða gerir aðallega þá kröfu að ákærði verið sýknaður af öllum kröfum ákæruvaldsins en til vara, komi til sakfellingar, er þess krafist að ákærði verði dæmdur til þeirrar vægustu refsingar sem lög frekast heimila. Þá er þess krafist að allur sakarkostnaður verði greiddur úr ríkissjóði þ.m.t. málsvarnarlaun verjandans samkvæmt málskostnaðarreikningi.

II

Málavextir:

Samkvæmt frumskýrslu lögreglu var tilkynnt um par í annarlegu ástandi í verslun […] í Reykjanesbæ að kvöldi laugardagsins 16. apríl 2022. Þegar lögregla kom á vettvang var bifreiðin […] á bifreiðastæði fyrir framan verslunina og maður, ákærði í máli þessu, að aðhafast eitthvað í farangursgeymslu bifreiðarinnar. Hann gekk síðan með hvítan poka inn í verslunina og inn á snyrtingu með pokann. Lögreglumenn fóru inn í verslunina og ræddu þar við konu sem hafði verið við hlið ákærða áður en hann fór inn á snyrtinguna. Hún sagðist vera á ferð með honum, hann ætti bifreiðina […] og hann hafi farið inn á snyrtingu. Konan var sjáanlega undir áhrifum fíkniefna og/eða lyfja og kvaðst hún nota sterk verkjalyf vegna hjartveiki.

Er lögreglumenn bönkuðu á læstar dyr snyrtingarinnar þar sem ákærði var inni kvaðst hann vera að gera þarfir sínar. Lögreglumenn fóru fram á að ákærði myndi opna þar sem tilkynnt hafði verið að hann væri í annarlegu ástandi. Hann opnaði ekki og var þá gert viðvart um að lögreglumenn myndu opna hurðina en þrátt fyrir það opnaði ákærði ekki. Þá heyrðist hávaði frá snyrtingunni þar sem ákærði var og til að koma í veg fyrir að hann myndi koma sönnunargögnum undan opnuðu lögreglumennirnir hurðina en ákærði reyndi að koma í veg fyrir það. Ákærði var með pokann sem hann hafði tekið úr bifreiðinni og farið með inn á snyrtinguna.

Í viðræðum lögreglumanna við konuna, sem var með ákærða, kom fram hjá henni að hann væri með efni meðferðis. Lögreglumenn óskuðu eftir því við ákærða að hann myndi sýna þeim hvað hann væri með í vösum og þar voru 12 stykki af 40 mg OxyContin töflum í spjaldi. Ákærði kvaðst vera með þær vegna vinnuslyss sem hann hefði lent í. Opinn sælgætispoki með mörgum hvítum töflum fannst undir poka í ruslafötu inn á snyrtingunni þar sem ákærði var. Hann sagði það vera Xanax sem væri í eigu konunnar sem var með honum.

Ákærði var handtekinn og við öryggisleit á honum hrundu 80 mg OxyContin töflur úr buxnaskálmum hans. Þá voru einnig margar töflur í nærbuxum ákærða þ.e. í poka undir kynfærum hans og eftir að hann var færður í fangaklefa voru töflur á gólfi klefans og hann var með töflur í endaþarmi. Alls var um að ræða 224 stykki af OxyContin, bæði 40 og 80 mg, og 321 stykki af Alprazolam Krka (Xanax).

Ákærði gaf skýrslu hjá lögreglu daginn eftir að hann var handtekinn. Hann kvaðst taka OxyContin samkvæmt læknisráði og vera með lyfseðil fyrir því. Hann fái tvo pakka í mánuði og hann hafi verið með tvo pakka. Hann kvaðst stundum fela lyfin og þess vegna hafi hann verið með þau á sér þegar lögregla hafi haft af honum afskipti en það hafi komið fyrir að lyfjum hafi verið stolið af honum. Ákærði neitaði því að vera að selja OxyContin. Hann sagði að töflurnar sem lögregla hafi fundið í sælgætispoka í ruslafötunni á snyrtingunni væri Xanax en hann hafi ekki átt þær og það vissu allir hvernig Xanax liti út. Ákærði hélt að ,,stelpan“ hafi átt þær. Að öðru leyti vildi ákærði lítið tjá sig.

Framburður ákærða og vitna fyrir dómi:

Ákærði kvaðst hafa átt þær OxyContin töflur sem hann hafi verið með í umrætt sinn en ekki Alprazolam Krka töflurnar. Hann sagði að OxyContin töflurnar hafi hann fengið í apóteki samkvæmt lyfseðli en hann sé bakveikur eftir slys. Hann hafi verið nýlega kominn úr meðferð og það skýri magnið af töflunum. Með honum hafi verið þjófótt stúlka og því hafi hann falið töflurnar m.a. í endaþarmi en hann hafi ekki viljað láta stela þeim af sér. Ákærði sagði að töflurnar hafi ekki verið í upprunalegum umbúðum því þær hafi safnast upp meðan hann hafi verið í meðferð. Hann kvaðst ekki hafa viljað hleypa lögreglumönnunum inn á snyrtinguna þar sem hann hafi verið vegna þess að hann hafi verið að gera þarfir sínar.

Vitnið, […], kvaðst hafa hitt ákærða á hóteli í Reykjavík nóttina áður en ákærði hafi verið handtekinn og þau verið þar saman. Vitnið hafi síðan farið með ákærða á bifreið til Keflavíkur þar sem vitnið hafi ætlað að sækja lyf á heimili sitt. Þau hafi farið inn á veitingastaðinn […] en lögregla komið þangað og þá hafi ákærði læst sig inn á snyrtingu. Áður en þau hafi farið inn á veitingastaðinn hafi ákærði verið lengur í bifreiðinni en vitnið. Vitnið kvaðst ekkert vita um þær töflur sem ákærði hafi verið með og lögregla hafi lagt hald á. Vitnið hafi ekki átt töflurnar, það hafi ekki verið undir áhrifum og því muni það atvik vel. Vitnið sagði að seinna hafi ákærði haft samband við vitnið og viljað að það myndi greiða fyrir töflurnar sem lögreglan hafi tekið hjá honum.

Vitnið, lögreglumaður nr. […], sagði að tilkynnt hafi verið um par undir áhrifum í bifreið. Þegar lögreglumenn hafi komið að bifreiðinni hafi vitnið séð ákærða verið að grúska í farangursgeymslu bifreiðarinnar, hann tekið þar poka og síðan farið inn í sjoppuna. Ákærði hafi verið flóttalegur þegar hann hafi farið inn á snyrtingu og lögreglumenn hafi farið inn í sjoppuna en þar hafi verið aðili sem hafi verið talinn vera með ákærða. Þegar lögreglumenn hafi bankað á hurð snyrtingarinnar þar sem ákærði hafi verið hafi hann sagst vera að gera þarfir sínar. Þeir hafi síðan ákveðið að fara inn þar sem ákærði hafi verið og hann þá reynt að koma í veg fyrir það. Ákærði hafi virst flóttalegur og lögreglumennirnir gert leit og fundið sælgætispoka með töflum í undir poka í ruslatunnu á snyrtingunni þar sem ákærði hafi verið. Ákærði hafi verið handtekinn og við öryggisleit á honum hafi mikið magn af töflum hrunið úr buxnaskálmum hans. Poki með töflum hafi einnig fundist undir kynfærum ákærða. Eftir að ákærði hafi verið færður í fangaklefa hafi fundist töflur á gólfi klefans og þá hafi aftur verið gerð öryggisleit á honum. Ákærði hafi þá gripið um afturendann og fundist hafi poki með töflum í endaþarmi hans og einnig hafi hrunið töflur úr endaþarmi hans þegar hann hafi beygt sig fram. Vitnið staðfesti frumskýrslu lögreglu.

Niðurstaða:

Samkvæmt frumskýrslu lögreglu var ákærði við farangursgeymslu bifreiðar þegar lögregla koma á vettvang en gekk þaðan inn í húsnæði […] með hvítan búðarpoka. Þegar lögregla var að leggja bifreið fyrir utan staðinn sáu þeir ákærða ganga flóttalega inn á snyrtingu staðarins með pokann. Þegar lögregla reyndi að fara inn á snyrtinguna þar sem ákærði fór inn var hurðin læst og hann vildi ekki opna. Kvaðst hann vera að gera þarfir sínar. Varð ákærði ekki við tilmælum lögreglu um að opna hurðina og þegar lögreglumenn voru að opna hana reyndi ákærði að koma í veg fyrir það og loka hurðinni aftur þegar lögreglumenn höfðu opnað hana. Þegar lögreglumenn voru búnir að opna hurðina var ákærði æstur en hann var þá með buxur upp um sig og belti spennt fast. Þessi framkoma ákærða bendir ekki til þess að hann hafi aðeins verið með á sér lyf ávísuð af lækni og keypt í lyfjaverslun. Þvert á móti bendir þessi framkoma ákærða til þess að hann hafi haft eitthvað að fela.

Ákærði sýndi lögreglumönnum 12 stykki af OxyContin töflum í spjaldi sem hann var með í vasa. Inni á snyrtingunni þar sem ákærði hafði verið fannst sælgætispoki með miklu magni af hvítum töflum undir poka í ruslatunnu. Í kjölfar þess var gerð öryggisleit á ákærða og þá hrundu margar 80 mg OxyContin töflur úr buxnaskálmum hans. Ákærði var færður úr buxum og þá hrundu enn fleiri töflur af honum. Undir kynfærum ákærða fannst plastpoki með mörgum 80 mg OxyContin töflum. Ákærði var handtekinn og færður í fangaklefa og eftir að hann kom þangað fundust töflur á gólfi klefans. Við frekari leit á ákærða kom í ljós að hann var með poka með 80 mg OxyContin töflum og þá var hann með nokkrar töflur í endaþarmi. Það að ákærði skyldi bæði fela OxyContin töflur undir kynfærum og í endaþarmi bendir ekki til þess að um lyf ávísuð af lækni væri að ræða. Skýring ákærða á þessu var sú að hann hafi falið lyfin svo þeim yrði ekki stolið af honum. Það þykir fráleit skýring að við slíkar kringumstæður myndi maður fela lyf undir kynfærum og í endaþarmi. Er framburður ákærða hvað þetta varðar að engu hafandi og verður ekki byggt á honum.

Mikill meirihluti þeirra OxyContin taflna sem fundust á ákærða voru ekki í upprunalegum umbúðum heldur í lausu og um töluvert magn var að ræða. Bendir það ekki til þess að um lyf hafi verið að ræða ávísuð af lækni. Hvað það varðar getur engu breytt útprentun sem ákærði lagði fram og sögð er frá apóteki enda tekur hún til tímabils eftir að atvik urðu.

Ákærði hefur viðurkennt að hafa átt þær OxyContin töflur sem lögregla lagði hald á hjá honum en um hafi verið að ræða lyf sem hann hafi fengið ávísað hjá læknum. Með vísan til ofanritaðs er því hafnað að um hafi verið að ræða lyf ávísuð af lækni enda er ekkert fram komið í málinu sem bendir til þess. Var því um ólöglegt ávana- og fíknilyf að ræða sem ákærði var með í sínum vörslum. Ákærði hefur neitað því að hafa átt Alprazolam Krka sem fannst í ruslafötu á snyrtingunni þar sem hann var þegar lögregla hafði af honum afskipti. Hann taldi að stúlkan sem var með honum hafi getað átt töflurnar en hún hefur neitað því og kvaðst ekkert vita um þær töflur sem lögreglan lagði hald á hjá ákærða. Ekkert bendir til þess að stúlkan hafi verið með umræddar töflur og þær fundust inn á snyrtingu þar sem ákærði var þegar lögregla kom á vettvang. Þá er ekkert fram komið um það að annar en ákærði hafi komið pokanum með töflunum fyrir í ruslafötunni og þegar lögreglan spurði hann á vettvangi hvað þetta væri vissi hann það. Þykir ósennilegt að hann hefði vitað það nema vegna þess að hann hafi verið með töflurnar. Með vísan til þessa þykir mega fullyrða að ákærði hafi haft Alprazolam Krka töflurnar í sínum vörslum eins og honum er gefin að sök í ákæru.

Með vísan til alls ofanritaðs þykir hafið yfir skynsamlegan vafa og þar með sannað að ákærði hafi gerst sekur um þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru eins og hún er eftir þá breytingu sem ákæruvaldið gerði á henni, sbr. framanritað. Háttsemi ákærða varðar við 1. sbr. 4. mgr. 3. gr. laga nr. 65/1974 og 2., 3. og 6. gr. reglugerðar nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni. Hefur ákærði unnið sér til refsingar samkvæmt því, sbr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 1. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.

Samkvæmt sakavottorði ákærði nær sakarferill hans aftur til ársins 2013 en í mars það ár var hann dæmdur til sektargreiðslu og sviptur ökurétti fyrir gripdeild, fíkniefnaakstur og akstur án ökuréttar. Í ágúst sama ár gekkst ákærði undir sektargreiðslu fyrir fíkniefnabrot. Í janúar 2014 var ákærði dæmdur í 45 daga fangelsi og sviptur ökurétti ævilangt fyrir þjófnað, fíkniefnaakstur og akstur án ökuréttar. Í mars 2015 var ákærði dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir fíkniefnabrot. Í nóvember 2018 gekkst ákærði tvívegis undir sektargreiðslu fyrir akstur sviptur ökurétti. Í júlí 2020 var ákærði dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi, til sektargreiðslu og sviptur ökurétti fyrir brot í nánu sambandi, umferðarlaga- og fíkniefnabrot o.fl. Loks var ákærði 8. nóvember 2021 dæmdur í fimm mánaða fangelsi skilorðsbundið í eitt ár og sviptur ökurétti ævilangt fyrir umferðarlagabrot. Skilorðsdómurinn frá júlí 2020 var þá dæmdur með og um hegningarauka var að ræða. Brot það sem ákærði hefur nú verið sakfelldur fyrir er framið eftir að hann hlaut skilorðsdóminn í nóvember 2021 og er því um skilorðsrof að ræða. Ber því að taka þann dóm upp og dæma nú í einu lagi refsingu fyrir brot samkvæmt skilorðsdómnum og það brot sem ákærði hefur verið sakfelldur fyrir í þessu máli, sbr. 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Refsing ákærða verður ákveðin með hliðsjón af 77. hegningarlaganna. Ákærði hefur í þessu máli verið sakfelldur fyrir vörslur á hættulegum ávana- og fíknilyfjum. Um hættueiginleika OxyContins má vísa til dóms Landsréttar í málinu nr. 187/2022. En þar kemur fram að aðeins tvær til þrjár töflur af 80 mg OxyContin geti verið banvænar. Hjá óreyndum neytendum sem mylji töflurnar eða hjá einstaklingum, sem eru undir áhrifum annarra slævandi efna, geti jafnvel ein tafla verið lífshættuleg. Þá kemur fram að OxyContin sé ásamt heróíni og fentanyli hættulegast fíkniefnið. Með vísan til framanritaðs þykir refsing ákærða hæfilega ákveðin fangelsi í tíu mánuði. Með hliðsjón af sakarferli ákærða og skilorðsrofi hans eru ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna að neinu leyti.

Þá skal ákærði sæta upptöku til ríkissjóðs á 224 OxyContin töflum og 321 töflu af Alprazolam Krka, sbr. 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001 um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni. Ákærði skal greiða málsvarnarlauna skipaðs verjanda síns, Leifs Runólfssonar lögmanns, sem þykja hæfilega ákveðin með hliðsjón af málskostnaðarreikningi og umfangi málsins samtals 773.760 krónur að meðtöldum virðisaukaskatti. Málsvarnarlaunin taka einnig til starfa verjandans á rannsóknarstigi málsins. Annan sakarkostnað leiddi ekki af málinu.

Af hálfu ákæruvalds flutti málið Daníel Reynisson aðstoðarsaksóknari.

Ingi Tryggvason héraðsdómari kveður upp dóm þennan.

D ó m s o r ð:

Ákærði, Hilmar Örn Albertsson, sæti fangelsi í tíu mánuði.

Ákærði sæti upptöku til ríkissjóðs á 224 töflum af OxyContin og 321 töflu af Alprazolam Krka.

Ákærði greiði málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, Leifs Runólfssonar lögmanns, 773.760 krónur.

Ingi Tryggvason

Heimildaskrá