Héraðsdómur Reykjaness
Dómur 30. nóvember 2022.
Mál nr. E-583/2022:
Björn Ólafur Ingvarsson
(Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður)
gegn
Arnari Björnssyni
Stefáni Björnssyni
Stafrænum markaðstorgum ehf.
(Heiðar Ásberg Atlason lögmaður)
Lykilorð
Dagsektir. Samningsgerð. Samningur. Sönnun.
Útdráttur
Stefndu gert að afhenda stefnanda 10% af útgefnu hlutafé í stefnda Stafrænum markaðstorgum ehf., á grundvelli samnings aðila.
Dómur
Mál þetta var höfðað 18. mars 2022 og dómtekið 2. nóvember 2022.
Stefnandi er Björn Ólafur Ingvarsson, kt,. [...], [...].
Stefndu eru Arnar Björnsson, kt. [...], [...], Stefán Björnsson, kt. [...], [...], og Stafræn markaðstorg ehf., kt.[...],[...].
Dómkröfu stefnanda eru þær aðallega að stefndu, Stafræn markaðstorg ehf., Arnar Björnsson og Stefán Björnsson, verði sameiginlega dæmdir til að afhenda stefnanda hluti í einkahlutafélaginu Stafrænum markaðstorgum ehf., kt. [...], sem samsvara 10% af útgefnu hlutafé félagsins eins og það er skráð á afhendingardegi, eða lægra hlutfalli, að viðlögðum dagsektum, 50.000 krónum á dag frá dómsuppsögu fyrir hvern dag sem hlutirnir eru ekki afhentir stefnanda.
Til vara að stefndi Stafræn markaðstorg ehf. verði dæmdur og stefndu Arnar og Stefán þoli dóm um að stefndi verði dæmdur til að gefa út og afhenda stefnanda hluti í einkahlutafélaginu Stafrænum markaðstorgum ehf., kt. [...], sem samsvara 10% af útgefnu hlutafé félagsins eins og það er skráð á afhendingardegi, eða lægra hlutfalli, að viðlögðum dagsektum, 50.000 krónum á dag frá dómsuppsögu fyrir hvern dag sem hlutirnir eru ekki afhentir stefnanda.
Til þrautavara að stefndu Stefán Björnsson og Arnar Björnsson verði sameiginlega dæmdir til að afhenda stefnanda hluti í einkahlutafélaginu Stafrænum markaðstorgum ehf., kt. [..], sem samsvara 10% af útgefnu hlutafé félagsins eins og það er skráð á afhendingardegi, eða lægra hlutfall, að viðlögðum dagsektum, 50.000 krónum á dag frá dómsuppsögu fyrir hvern dag sem hlutirnir eru ekki afhentir stefnanda.
Þá er gerð krafa um að stefndu greiði stefnanda sameiginlega málskostnað að skaðlausu vegna reksturs máls þessa að mati dómsins.
Dómkröfur stefndu eru þær aðallega að þeir verði sýknaðir af öllum kröfum stefnanda og tildæmdur málskostnaður úr hendi stefnanda að mati réttarins, og að auki að viðbættum virðisaukaskatti hvað varðar stefndu Arnar og Stefán. Til vara er þess krafist að dómkrafa stefnanda verði lækkuð verulega hvað varðar afhendingu hluta í einkahlutafélaginu ásamt því að málskostnaður verði látinn niður falla.
Málavextir og sönnunarfærsla:
Stefnandi og stefndu Arnar og Stefán Björnssynir kynntust á árinu 2020 í tengslum við hugmyndir þeirra síðarnefndu um sölu á íslenskum vörum og hönnun, á vefsíðunni www.buyicelandic.com, sem rekin yrði undir merkjum Stafrænna markaðstorga ehf. Hafi vefsíðan fyrst og fremst verið hugsuð til sölu á vörum til erlendra aðila en einnig til Íslendinga búsettra erlendis. Aðkoma stefnanda að því verkefni kom til vegna þekkingar hans á sviði upplýsingatækni og hugbúnaðargerðar.
Þann 23. október 2020 var þessu samfara ritað undir þjónustusamning, sem er á milli félags stefnanda, Exigo ehf., og Stafrænna markaðstorga ehf. Sama dag var ritað undir samning sem ber heitið: „Founder Agreement & Manifesto“. Ágreiningur er um báða samningana, en ágreiningur þessa máls er um síðargreinda samninginn, sem liggur eingöngu fyrir á ensku í málinu. Samningurinn er undirritaður af stefnanda og stefnda Stefáni fyrir hönd Stafrænna markaðstorga ehf., skammstafað SMT í málinu. Samningurinn er með þeim hætti ekki undirritaður persónulega af hálfu stefndu Arnars og Stefáns.
Í upphafi samningsins kemur fram að hann sé á milli „The founding members of the SMT team“, og séu stefndu Stefán og Arnar „founders of the company.“ Nánar er síðan í samningnum að finna hverjir mynda „The Team“ eða teymið, hlutverk og ábyrgð þeirra. Virðist þar vera gert ráð fyrir því að Stefán sé „Founder“ en þeir Arnar og stefnandi „Co-founders“.
Í samningnum er hlutverk stefnanda sagt vera „Technology“ (CTO) og jafnframt er innan sviga skráð (FSO-plan). Undir kafla sem ber heitið „Co-Founder Equity & Contribution“ segir síðan að equity eða eigin hlutur verði afhentur hverjum Co-Founder sem heyri undir FSO-plan í þremur þrepum. Í fyrsta þrepi segir að hverjum Co-Founder verði afhentur 2% eigin hlutur við undirritun samningsins. Í því felist skuldbinding um fulla þátttöku verði fjármögnun félagsins lokið fyrir árið 2021 eða starfsemi þess orðin fjárhagslega sjálfstæð. Mistakist að heiðra anda samkomulagsins, svo sem með því að leggja enga vinnu af hendi eða að fara frá verkefninu, þá sé það dæmi um slík mistök, og leiði til afturköllunar á þeim eignarhluta. Í öðru þrepi, nefnt „Work/effort based equity“, segir að með hliðsjón af vinnuframlagi næstu þriggja mánaða eða lengur, eða þar til Tækniþróunarsjóður eða aðrir veiti félaginu styrk, eða þar til félagið sé orðið fjárhagslega sjálfstætt, sé hægt að ávinna sér „Up to 8% according to a simple work-for-equity schema for 320 hours of high-performance work based on best effort.“ High-performance vinnustundir eru tilgreindar sem HPH. Nánar kemur síðan fram í samningnum að „8% equity will be awarded for 320 high-performance hours of work“ sem viðkomandi skili á næstu þremur mánuðum eða lengur. Þá segir að vinnustundum þessum geti tekið lengri tíma að ná fram, alveg eins og eigi við um aðra vinnu. Vinnuskýrslur verði aðgengilegar öllum í teyminu, sem verði yfirfarnar og samþykktar af „The founder team.“
Þá er í samningnum að finna ákvæði þess efnis, að ef meðlimur teymisins óskar eftir því að fara úr teyminu/verkefninu, áður en fjármögnun er lokið eða félagið orðið fjárhagslega sjálfstætt, skuli áunninn hluti af 8% hlutnum greiddur til baka á 6.500 íslenskar krónur, miðað við tilkynntar vinnustundir í high-performance hour. Sé þess hins vegar óskað af öðrum í teyminu að „founder“ yfirgefi hópinn, þá eigi hinir rétt á því að kaupa hlutina á 21.000 íslenskar krónur fyrir hverja tilkynnta og samþykkta highperformance hour sem falli undir „work-for-equity“, en sá sem fari út haldi þó 2% hlutnum sem hann fékk við undirritun samningsins. Þetta geti þó ekki gerst eftir „any investor funding milestone has been reached.“
Erfiðleikar komu upp í samstarfi aðila er líða tók á árið 2021. Í tölvupósti stefnanda til stefndu 16. október 2021 kemur fram að hann sé enn að bíða eftir tillögum, en honum þyki furðulegt að búið sé að loka á aðgang hans að kerfinu, sem og þjónustuvef. Í svari stefndu 18. október 2021 kemur fram að í ljósi þess að stefnandi hafi sagst ekki vilja vera lengur í verkefninu, hafi þeir talið sjálfgefið að breyta aðgöngum, en vinna að tillögum sé enn í vinnslu, og sé stefnanda vissulega frjálst að leggja fram eigin tillögu hafi hann slíka tillögu tilbúna.
Í svarpósti stefnanda sama dag kemur fram að erfitt sé að sjá hvernig halda megi þessu samstarfi áfram þar sem forsendur fyrir því séu brostnar og sýn þeirra og nálgun á verkefnið gjörólík. „Undanfarna mánuði hafi þið haldið mér fyrir utan verkefnið og rekið það sem ykkar einkamál. Það er engin leið að vera virkur í litlu teymi við slíkar aðstæður.“ Í lok svarpóstsins leggur stefnandi fram tillögur, þar á meðal að selja félagið.
Stefnandi sendi stefndu vinnuskýrslu, líklega 12. október 2021, vegna þeirrar vinnu sem hann kvaðst hafa unnið fyrir SMT-verkefnið á tímabilinu 5. október 2020 til 14. október 2021, þar sem sundurliðaðar vinnustundir eru sagðar 587,15. Í yfirferð stefndu, Arnars og Stefáns meta þeir vinnuframlag stefnanda samkvæmt skýrslunni, sem falli undir high-performance hour, samtals 104,5 klst. Sú yfirferð var lögð fram eftir höfðun málsins, eða 1. júní 2022.
Með bréfi lögmanns stefnanda 17. nóvember 2021 var bent á að ákvæði framangreinds samnings hefði virkjast og kveði það á um að keyptur sé til baka 10% hlutur stefnanda. Miðað við 585,25 vinnustundir og 21.000 krónur á hvern hlut, stæði krafa stefnanda í 12.290.250 krónum. Í svarbréfi lögmanns stefndu 7. mars 2022, kemur fram að kröfum stefnanda sé hafnað og að ekki verði við þeim orðið, vegna verulegra vanefnda og samningsbrota af hálfu stefnanda. Engir tímar hafi verið samþykktir sem réttlætt geti kröfurnar og tölvupóstsamskipti sýni að stefnandi hafi yfirgefið verkefnið sjálfur, og eigi því engar kröfur.
Fyrirliggjandi í málinu er umþrættur samningur, bréf lögmanna, tölvupóstur, vinnuskýrslur stefnanda og yfirferð stefndu, ásamt ársreikningum SMT. Aðilaskýrslur gáfu stefnandi og stefndu persónulega og fyrir hönd stefnda Stafrænna markaðstorga ehf.
Málsástæður og lagarök stefnanda:
Krafa stefnanda um afhendingu hluta í stefnda SMT byggist á undirrituðum samningi þar sem kveðið sé á um afhendingu þeirra til stefnanda persónulega. Óumdeilt sé að stefnandi hafi enga hluti fengið afhenta í félaginu þrátt fyrir mikið vinnuframlag og þrátt fyrir kröfu þar um. Í samkomulaginu sjálfu sé ekki kveðið á um það hver skuli afhenda hlutina eða með hvaða hætti það skuli gert, til dæmis hvort stefndu Stefán og Arnar, einu hluthafarnir í félaginu skuli afhenda stefnanda hluti af sínu hlutafé, hvort félagið hafi ætlað að afhenda hlutina, eftir atvikum með útgáfu nýrra hluta, eða allir saman. Gildir það einu fyrir stefnanda, þar sem kveðið sé á um það í samningnum að eignarhlutur stefnanda skuli samsvara tiltekinni prósentu hlutafjár. Samningurinn sé aðeins undirritaður af Stefáni f.h. félagsins STM en fjallað sé um réttindi og skyldur stefnanda persónulega í samningnum. Stefnandi sé því réttur aðili að málinu sóknarmegin.
Stefnandi telur ljóst að samningurinn fjalli einnig um réttindi og skyldur stefndu Arnars og Stefáns persónulega auk hagsmuna félagsins. Stefnandi byggir aðallega á því að þeir tveir, Arnar og Stefán, séu aðilar að samningnum ásamt félaginu þótt þeir hafi ekki skrifað persónulega undir samninginn. Það geti varla verið umdeilt og skipti undirritun þeirra á samninginn engu, þar sem þeir hafi gert samninginn, haft réttindi og skyldur samkvæmt honum og hafi ætlað sér að efna hann. Aðalkrafa stefnanda sé þess vegna sú að stefndu, sem eiga hlutafélagið saman, verði ásamt félaginu dæmdir sameiginlega til að afhenda stefnanda hluti í félaginu, samtals 10%, og félagið þoli þannig einnig dóm um afhendingu. Hvernig það sé gert, þ.e.a.s. milli stefndu, gildi einu fyrir stefnanda. Kröfunni sé beint að þeim sameiginlega um afhendingu á samtals 10% hlut, enda jafni þeir það sín á milli hafi þeir ekki átt að afhenda hlutina að jöfnu. Sú skipting milli þeirra sé stefnanda óviðkomandi.
Verði ekki fallist á að stefndu Arnar og Stefán eigi að afhenda hlutina persónulega sé þeirri varakröfu beint að stefnda SMT, að félagið eitt verði dæmt til að gefa út og afhenda stefnanda hluti í félaginu, sem samsvari allt að 10% hlut í félaginu, eins og það er skráð á afhendingardegi og afhent hlutafé samsvari þá 10% af skráðu hlutafé í félaginu á afhendingardegi. Félag geti gefið út hluti, átt eigin hluti og ráðstafað hlutum. Yrði talið að einungis félagið hafi bakað sér skuldbindingu til að afhenda hluti í félaginu þyrfti félagið að gefa út nýja hluti til að afhenda stefnanda, eða útvega sér hluti með öðrum leiðum, til að afhenda stefnanda, sem þyrftu að samsvara allt að 10% hlutafjár í félaginu, eða lægra hlutfalli. Sé því sú krafa gerð að félagið verði dæmt til að gefa út hluti og afhenda stefnanda. Aðild stefndu sem hluthafa að félaginu sé líklega óhjákvæmileg í því sambandi og því sé krafist að þeir þoli dóm í málinu, sem hluthafar í stefnda SMT um þessa kröfu.
Þrautavarakrafan lúti að því að hluthafar félagsins, stefndu Arnar og Stefán, afhendi stefnanda hlutina í félaginu, enda hafi þeir verið aðilar að samkomulaginu. Að öðru leyti sé vísað til framangreinds. Í öllum tilvikum sé krafist dagsekta að fjárhæð 50.000 krónur fyrir hvern dag sem stefndu skirrast við að afhenda stefnanda hlutina.
Krafa stefnanda sé um afhendingu þeirra hluta sem kveðið er á um í samkomulaginu að beri að afhenda honum. Krafan sé tvíþætt:
Í fyrsta lagi sé gerð krafa um afhendingu hluta sem samsvari 2% hlutafjár í félaginu. Skráðir séu í dag 500.000 hlutir að nafnverði í félaginu en krafan miðar við hlutfall á afhendingardegi hlutanna, þ.e.a.s. eins og hlutaféð sé skráð þegar þeir eru afhentir stefnanda. Krafan byggist á því ákvæði samnings aðila, að stefnandi hafi átt að fá afhenta þessa hluti í félaginu persónulega fyrir að skrifa undir samninginn, sem hann óumdeilanlega gerði. Í samningnum komi fram: „Equity is awarded to every co-founder in three steps…“ Svo kemur „2% through initial commitment …“. Er hugtakið „initial commitment“ skýrt svo í samningnum að það sé „2% for each co-founder awarded at signing of this agreement“. Stefnandi er samkvæmt því sem rakið hefur verið annar hinna svonefndu co-founders eða meðstofnenda. Samkvæmt framangreindu byggir stefnandi á því að hann hafi átt að fá 2% hlutafjár í félaginu samkvæmt gildandi skráningu hlutafjár félagsins við afhendingu, við undirskrift samningsins, sem var í október 2020. Óumdeilt sé að stefnandi hafi ekki fengið þessa hluti afhenta þrátt fyrir skriflega áskorun og eftirgangsmuni.
Í öðru lagi sé gerð krafa um að stefnandi fái afhenta hluti í félaginu sem samsvari 8% hlutafjár í félaginu, samkvæmt gildandi skráningu hlutafjár í félaginu á afhendingardegi. Krafan byggist einnig á fyrrgreindum samningi en í honum segir: „Up to 8% of the stock is awarded to co-founders through work-effort“, þ.e.a.s. í þýðingu stefnanda allt að 8% af hlutafé félagsins er afhent meðstofnendum á móti vinnuframlagi. Þá segir enn fremur í samningum: „Up to 8% according to a simple work-for-equity schema for 320 hours of high performance work based on best efforts“ eða 8% í samræmi við áætlun um vinnuframlag gegn 320 stundum af gæðavinnustundum byggt á góðri frammistöðu. Samkvæmt þessu átti stefnandi að fá allt að 8% af hlutafé félagsins afhent gegn 320 vinnustundum. Óumdeilt er að stefnandi hefur skilað þeim af sér og gott betur, en stefnandi notaði tímaskráningarkerfi félags síns, Exigo ehf., til að halda utan um vinnu sína. Sömuleiðis sé óumdeilt að stefnandi hafi ekkert hlutafé fengið afhent á grundvelli þessa ákvæðis. Þar sem talað sé um allt að 320 stundir sé ljóst að um var að ræða hlutfall, þ.e.a.s. fyrir 320 stundir skyldi afhenda 8% af hlutafé félagsins en lægra hlutfall ef vinnustundir væru lægri. Stefnandi byggir á því að hann hafi innt af hendi meira en 320 stundir og beri því að fá afhent 8% hlutafjár í félaginu, en yrði talið að vinnustundir hans í skilningi samkomulagsins hafi verið færri, og teljist slíkt sannað af stefndu, skuli miða við lægra hlutfall, en ljóst sé samkvæmt framangreindu að 40 vinnustundir standi að baki hverju einu prósentustigi.
Þá segi í samningnum að framangreint ákvæði samningsins um hlutafé gegn vinnuframlagi skuli byggt á vinnuframlagi næstu þrjá mánuði eða lengur (3+ months) frá undirritun samnings eða þar til Tækniþróunarsjóður veitir styrk til félagsins, eða þar til félagið er orðið fjárhagslega sjálfstætt. Frá því að samkomulagið var undirritað séu liðnir miklu meira en þrír mánuðir en tímaskýrslur sýni að stefnandi starfaði fyrir félagið í um eitt ár. Tækniþróunarsjóður hafi hafnað styrkumsókn félagsins, en afhending hlutanna hafi ekki verið háð því eingöngu. Sé greiðslan, þ.e.a.s. afhending hlutafjárins, þannig löngu komin á gjalddaga og beri að afhenda hlutina.
Í samkomulaginu sé fjallað nánar um hið svokallaða work-for-equity, sem er grundvöllur afhendingar hlutafjárins. Segir þar að teymið, þ.e.a.s. stefnandi og aðrir aðilar samkomulagsins, skuli leggja af mörkum eins mikla vinnu og þeir geti í skiptum fyrir hlutafé í STM. Meginmarkmið þeirrar vinnu sé að koma vefsíðunni í loftið, gera styrkbeiðni til Tækniþróunarsjóðs „skothelda“ og leggja hana inn, ganga frá öllu til að geta skapað tekjur og vinna vel saman. Óumdeilt sé að vefsíðan er komin í loftið og skapi STM tekjur. Þá hafi styrkbeiðni til Tækniþróunarsjóðs verið skilað en beiðni um styrk hafnað, sem skipti þó ekki máli fyrir kröfu stefnanda í þessu máli. Stefnandi hafi lagt verulega af mörkum í þágu verkefnisins, vefsíðan farið í loftið og styrkumsókn verið send Tækniþróunarsjóði. Markmiðin hafi því náðst að flestu leyti, þótt ekki hafi verið skilyrði fyrir kröfu stefnanda að þau næðust öll. Þá sé sömuleiðis fjallað um vinnustundirnar (high-performance hours). Í því ákvæði sé tekinn af vafi um að það hafi verið hver aðili samkomulagsins sem skyldi fá 8% hlutafjárins gegn vinnuframlagi, þ.e.a.s. 320 stundir næstu 3+ mánuði (8% equity will be awarded for 320 high-performance hours or work to every founder which they deliver over the next 3+ months.). Segir í ákvæðinu að vinnuskýrslur skuli vera aðgengilegar öllum í teyminu og rýndar og samþykktar af því. Ekkert liggi annað fyrir en að vinnuskýrslur stefnanda hafi verið samþykktar, a.m.k. ekki mótmælt með rökum. Síðbúin yfirferð stefndu sjálfra, þar sem þeir telji að ein af hverjum sex vinnustundum stefnanda teljist HPH vinnustund, sé með engum hætti sönnun á vinnuframlagi stefnanda. Stefndu sjálfir viti ekki hvernig túlka beri hugtakið high-performans vinnustund.
Stefnandi telur að ekki geti verið umdeilt að stefnandi lagði gríðarlega mikla vinnu af mörkum í þágu félagsins og þar með stefndu allra og liggi tímaskýrslur að baki þeirri vinnu. Vefsíðan, sem unnið hafi verið, hafi verið komin í loftið og farin að skila tekjum til félagsins. Ekki þurfi sérfræðing til að sjá að mikið þrekvirki hafi verið að koma henni í loftið á þeim tíma sem það tók. Beri þar fyrst og fremst að þakka mikilli og góðri vinnu stefnanda. Þrátt fyrir það hafi stefnandi ekkert endurgjald fengið fyrir vinnu sína, og stefndu gengið á bak orða sinna og af ásettu ráði ákveðið að standa ekki við samning aðila. Vefsíðan sé sem fyrr segi farin að skapa STM tekjur, en stefnandi hafi engar nánari upplýsingar fengið um það, enda hafi stefndu lokað á aðgang hans að öllum kerfum STM. Gæti verið um miklar tekjur að ræða, sem stefndu virðast hafa ákveðið að halda eingöngu fyrir sig og afhenda stefnanda ekki umsaminn eignarhlut hans í félaginu, sem sé umsamið, sanngjarnt og rétt endurgjald fyrir hans vinnu.
Verði talið af einhverjum ástæðum að vinnuframlag stefnanda hafi ekki numið 320 vinnustundum eins og þær séu skilgreindar í samkomulaginu sé þess krafist að honum verði afhent lægra hlutfall af því 8% hlutafé sem hann átti rétt á samkvæmt samkomulaginu, þ.e.a.s. hlutfall í samræmi við þær vinnustundir sem talið verði að falli undir vinnustundir samkvæmt samkomulaginu. Sem fyrr segi hafi í samkomulaginu verið miðað við 40 vinnustundir fyrir hvert eitt prósent (320/8). Telur stefnandi að stefndu beri að sanna annað og lægra hlutfall og teljist það sannað sé gerð krafa um afhendingu á samsvarandi hlutafé. Hvað sem því líður sé ávallt gerð krafa um afhendingu á 2% af hlutafé félagsins vegna undirskriftar stefnanda á samkomulagið.
Vísað er til almennra meginreglna samningaréttarins og kröfuréttarins um skuldbindingargildi samninga. Um varnarþing vísast til 1. mgr. 33. laga nr. 91/1991. Um málskostnað er vísað til 129. gr., sbr. 130. gr., laga nr. 91/1991.
Málsástæður og lagarök stefndu.
Stefndu byggja sýknukröfur sínar á því að stefnandi hafi ekki efnt samkomulag þeirra á milli, þ.e. „Founders Agreement“, og hafi þannig ekki staðið undir væntingum sem byggðust á yfirlýsingum stefnanda þess efnis að hann væri hæfur til þess að sinna hlutverki sem Co-Founder félagsins, um að mögulegt væri að koma verkefninu í loftið fyrir jólavertíð árið 2020. Hvorug forsendan stóðst.
Á bls. 6 í samkomulaginu sé skýr tímaáætlun um verkefni stefnanda og sé nú ljóst að stefnandi hafi alfarið misfarið með skyldur sínar samkvæmt þeirri áætlun og verulegur seinagangur á störfum hans valdið stefndu töluverðu tjóni í formi tapaðra sölutekna og aukins kostnaðar. Auk þessa hafi stefnandi ítrekað tekið hagsmuni annars fyrirtækis, þ.e. Exigo ehf., fram fyrir hagsmuni SMT, og þannig unnið beint gegn hagsmunum stefndu og SMT. Að öllu framangreindu virtu sé ljóst að stefnandi hafi ekki unnið sér inn réttindi til eignarhlutdeildar í SMT samkvæmt skýrum ákvæðum samkomulags málsaðila.
Stefndu hafi samþykkt 104,5 vinnustundir sem svonefndar High-Performance stundir. Stefndu mótmæli því ekki að stefnandi hafi lagt fram vinnu í þágu SMT og eigi því rétt á sanngjörnum greiðslum fyrir sína vinnu en sú greiðsla verði ekki með hlutum í SMT, þar sem skilyrði samningsins um slíka afhendingu hluta séu ekki uppfyllt. Vinnan hafi ekki náð nema broti af því lágmarki sem til þurfti, sbr. ákvæði samningsins um „work/effort based equity“.
Stefndu hafna kröfu stefnanda um að honum skuli afhentur 2% hlutur í SMT fyrir undirritun samkomulags málsaðila. Á bls. 3 í samkomulagi málsaðila, undir kaflaheitinu „Co-Founder Equity & Contribution“, segir m.a. eftirfarandi: „Equity is awarded to every co-founder in the FSO plan in three steps. 2% through initial/commitment equity, up to 8% of the stock is awarded to co-founders through work/effort, and up to 10% through stock options:“ Ljóst er að hér sé gert ráð fyrir því nauðsynlega skilyrði að meðstofnandi skuldbindi sig félaginu, svo að mögulegt sé að afhenda honum 2% hlut í félaginu. Stefndu telja að stefnandi hafi eingöngu verið skuldbundinn SMT að forminu til, með undirritun sinni, en hann hafi aldrei efnt né sýnt þá skuldbindingu í verki. Þetta endurspeglist svo síðar í því að stefnandi segi sig endanlega frá verkefninu, áður en SMT fór í loftið og varð starfandi. Stefndu telja því að um verulegan forsendubrest sé að ræða, sem hafi þær afleiðingar að skuldbindingar um útgáfu hlutafjár falli niður.
Nánar segir síðan: „Failure to honor the spirit of this commitment results in revocation of this equity – Failing to do any work or abandoning the project, is an example of such failure […] This is to prevent any „missing in action“ founder to have „idle“ stock in the company.“ Verði ekki annað séð af lestri ofangreinds samningsákvæðis en að stefnandi hafi fyrirgert rétti sínum til 2% hlutar í SMT, en hann hafi sjálfviljugur sagt sig frá verkefninu áður en það varð starfandi og fjárhagslega sjálfbært. Stefnandi hafi lýst því yfir að hann hefði hvorki áhuga né tíma til þess að sinna sínum hluta verkefnisins á þeim forsendum sem ákvarðaðar hefðu verið í samningnum, en hann hafði áður gert tilraunir til þess að breyta viðskiptamódeli félagsins án undirtekta frá stefndu Arnari og Stefáni. Stefnandi hafi sömuleiðis virst hafa litla trú á verkefninu og ekki séð sömu framtíðarmöguleika í SMT og stefndu Arnar og Stefán.
Samningsákvæði samkomulagsins um afhendingu 2% hlutar í SMT séu skýr. Samkomulagið feli jafnframt í sér skýra stefnu varðandi það hvaða afleiðingar það kunni að hafa ef meðstofnandi segir sig frá verkefninu, rétt eins og stefnandi gerði. Þannig beri samkomulagið með sér það markmið að mikilvægt sé að koma í veg fyrir þær aðstæður að meðstofnandi „hangi“ inni í stofnenda hópnum, sem eigandi hluta í félaginu, þrátt fyrir að starfa ekki í þágu þess lengur, sökum þess að hann hefur sagt sig frá því. Í ljósi þessa verði stefndu ekki gert að afhenda stefnanda umrædda hluti í félaginu, þar sem stefnandi hafi enga ætlun um að taka þátt í verkefninu né vinna að hagsmunum þess til framtíðar. Stefnandi hafi undirritað samkomulagið og mátt vera ljóst um framangreint fyrirkomulag og stefnu.
Kröfu stefnanda um að stefndu beri að afhenda honum 8% hlut í félaginu, samkvæmt gildandi skráningu hlutafjár á afhendingardegi, er jafnframt hafnað. Samkvæmt samkomulagi málsaðila hafi verið samið um að allir meðstofnendur ættu kost á að vinna sér inn rétt til 8% eignarhluta í SMT, gegn fyrirframákveðnu vinnuframlagi, þ.e. 320 High-Performance vinnustundum. Í samkomulaginu segi þannig að allt að 8% hlutafé félagsins skuli afhent meðstofnanda gegn 320 stundum af gæðavinnustundum byggt á góðri frammistöðu, eða „high performance work based on best efforts.“ Á bls. 5 í samkomulaginu segi jafnframt að þær vinnustundir sem telja í þessu samhengi verði að vera HPH vinnustundir, og að það gæti ef til vill tekið lengri tíma að ná fram slíkum vinnustundum en hefðbundinni vinnu. Þannig segir eftirfarandi í samkomulaginu: „This work represents high-performance hours and it may – just as in any other work setting – take longer to produce it.“
Ljóst sé að gert hafi verið ráð fyrir því að hver meðstofnandi gæti þurft að leggja fram meira vinnuframlag en fjöldi gæðastunda gefi til kynna. Í þessu samhengi sé því rétt að vekja sérstaka athygli á því að vinnustundir er fela í sér spjall, fundi með öðrum stofnendum eða einhvers konar undirbúning fela ekki í sér HPH vinnustund í merkingu samkomulagsins og verða ekki taldar með í þeirri talningu sem hér um ræðir.
Á blaðsíðu fimm í samkomulaginu segir svo jafnframt að tímaskýrslur skuli gerðar aðgengilegar öllum meðstofnendum til yfirferðar og samþykktar. Eins og áður sé rakið sinnti stefnandi ekki þeirri skyldu sinni að halda utan um tímaskráningu með viðunandi hætti þrátt fyrir endurteknar beiðnir stefndu um að fá skýrslurnar afhentar. Staðreyndin sé sú að stefndu fengu ekki aðgang að tímaskýrslum stefnanda fyrr en í október 2021 eða tæpu ári eftir að meint vinna hófst, þegar ljóst var að stefnandi hugðist slíta samstarfi málsaðila og segja sig endanlega frá verkefninu. Í öllum tilvikum var um eftirágerðar skýrslur að ræða, sem sannaðist þegar þær voru efnislegar skoðaðar. Það gefi auga leið að erfitt sé fyrir stefndu að staðfesta HPH vinnustundir stefnanda svo langt aftur í tímann og af þeim sökum hafi það verið mikið hagsmunamál fyrir stefndu að fá þessar skýrslur strax afhentar svo að mögulegt væri að yfirfara og staðfesta vinnustundir stefnanda og sömuleiðis að gera athugasemdir við skráða tíma ef svo bar undir.
Stefndu höfðu strax frá upphafi verulegar áhyggjur af vinnuframlagi stefnanda, og ef vinnuskýrslur hefðu verið afhentar á réttum tíma samkvæmt ítarlegum og endurteknum beiðnum, þá hefðu stefndu átt kost á því að bregðast við þessum seinagangi stefnanda með athugasemdum þar um. Ljóst sé að stefnandi eigi ekki að hagnast á því að afhenda ekki skýrslur á réttum tíma og vangæsla skuli túlkast honum í óhag. Þegar stefndu hafi loks fengið afhentar tímaskýrslur stefnanda hafi þeim orðið ljóst að skýrslurnar voru tilbúningur einn og borið þess skýr einkenni að hafa verið færðar eftir á. Ógerningur sé að sannreyna þessa tíma, en ljóst að verulegir annmarkar séu á umræddum tímaskýrslum og verði stefnandi að bera hallann af því að hafa ekki sinnt þeirri nauðsynlegu skyldu sinni að halda utan um tímaskráningu sína með viðunandi hætti.
Af einhverjum ástæðum telji stefnandi að komi til þess að 320 vinnustundir verði ekki samþykktar, geri samkomulag málsaðila ráð fyrir því að hlutfalla eigi afhenta hluti í SMT í samræmi við þær vinnustundir sem samþykktar eru. Sé þetta að mati stefndu sett fram á þeirri augljósu forsendu að stefnandi gerir sér grein fyrir því hversu lítið vinnuframlag hans hafi verið og langt umfram lágmarkið sem heimili honum að fá útgefna hluti í stefnda SMT. Stefndu hafna þessari túlkun stefnanda, en hvergi í samkomulaginu megi gera ráð fyrir slíkri túlkun og niðurstöðu. Þvert á móti kveði samkomulagið á með skýrum hætti að skilyrði fyrir afhendingu hlutanna sé að unnið sé að lágmarki 320 HPH vinnustundir, en að öðrum kosti standi þessi valkostur yfir höfuð ekki til boða. Ekki sé mögulegt að túlka skýrt orðalag samkomulagsins á annan hátt. Þetta endurspeglist einnig í því að eitt af markmiðum samkomulagsins sé að eingöngu meðstofnendur, sem ætli sér að taka þátt í verkefninu til framtíðar, eignist hluti í félaginu og komið sé í veg fyrir að stofnendur, sem ætli sér ekki að taka þátt í verkefninu til framtíðar, eignist hluti.
Þá byggja stefndu á því sérstaklega að samkomulag málsaðila kveði skýrlega á um þær aðstæður að meðstofnandi kunni að óska þess að yfirgefa verkefnið áður en fullnægjandi fjármögnun fæst eða áður en verkefnið er fjárhagslega sjálfbært, en þá geri samkomulagið ráð fyrir því að meðstofnanda beri að selja hluti sína í félaginu á fyrirframákveðnu gengi, þ.e. 6.500 íslenskar krónur fyrir hverja unna HPH vinnustund. Á bls. 5 í samkomulaginu undir kaflaheitinu „A Founder Wishes to Leave“ segi svo eftirfarandi: „If a member of the founder team wishes to leave the team/project – at any time before seed funding or business revenue sustainability – the accrued portion of the 8% share can and should be purchased back from him at a baseline rate of 6.500 ISK per reported high-performance hour.“ Í liðum fyrir neðan ákvæðið segir svo einnig að fjárhæðin skuli greidd þegar fjármögnun hafi fengist eða félagið orðið fjárhagslega sjálfbært. Jafnframt skuli meðstofnandi veita 10 daga frest áður en hann lætur af störfum og skuli hann sömuleiðis ljúka við útistandandi verk, sbr: „ a. The total amount is payable as soon as the subsequent funding round is completed or the business revenue are sustainable. b. A leaving founder gives a 10-day notice and finishes essential tasks before leaving.“ Að þessu sögðu, sé kröfu stefnanda um að fá afhenta hluti í SMT hafnað. Ljóst sé að fyrirsvarsmaður stefnanda fylgdi ekki ofangreindu ákvæði þegar hann ákvað að segja skilið við verkefnið, en hann veitti stefndu engan frest heldur sagði sig frá verkefninu án nokkurs fyrirvara og kláraði ekki nauðsynleg útistandandi verkefni né kom þeim í réttan farveg.
Stefndu byggja kröfur sínar á almennum meginreglum samningaréttarins og kröfuréttarins um skuldbindingargildi samninga. Krafa um málskostnað er byggð á XXI. kafla laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Krafa um að virðisaukaskattur leggist ofan á málskostnað í tilfellum stefndu, Arnars og Stefáns byggist á lögum nr. 50/1988 um virðisaukaskatt.
Forsendur og niðurstaða:
Ekki voru gerðar athugasemdir við að umþrættur samningur þessa máls, „Founder Agreement & Manifesto“, væri eingöngu lagður fram á ensku.
Ekki er byggt á því til sýknu að aðild málsins til varnar sé röng. Verður því við það að miða að allir málsaðilar þessa máls séu samningsaðilar framangreinds samnings, þótt hann sé eingöngu undirritaður af hálfu stefnanda og stefnda Stafrænum markaðstorgum ehf. Fram kom í skýrslum stefndu Arnars og Stefáns fyrir dómi, að allt hlutafé í stefnda Stafrænum markaðstorgum ehf. væri skráð í þeirra eigu. Stefndi Stefán væri skráður eigandi að [...]% en Arnar [...]%, og að afhending á hlutafé samkvæmt samningnum hefði átt að koma hlutfallslega frá þeim til stefnanda, og annarra ef fleiri hefðu komið að verkefninu. Þá kom fram að Arnar og Stefán væru stofnendur Stafrænna markaðstorga ehf. Rangt væri að Arnar væri Co-Founder eins og einnig mætti ráða af samningnum. Með hliðsjón af þessu getur aðeins þrautavarakrafa stefnanda komið til úrlausnar í málinu, um að Arnar og Stefán afhendi stefnanda allt að 10% af útgefnu hlutafé í Stafrænum markaðstorgum ehf., og hafi það verið sameiginlegur skilningur aðila.
Samkvæmt samningnum átti stefnandi, sem Co-Founder og í samræmi við svonefnt FSO-plan, að fá 2% hlut í Stafrænum markaðstorgum ehf. við undirritun samningsins. Ekki er ágreiningur um að samningurinn var undirritaður 23. október 2020 af samningsaðilum. Samkvæmt orðanna hljóðan eignaðist stefnandi 2% hlut í Stafrænum markaðstorgum ehf. þegar þann 23. október 2020, og hefur því verið hluthafi félagsins frá þeim tíma, enda er ekki að sjá í gögnum málsins að sá hlutur hafi verið formlega afturkallaður af hálfu stefndu, eins og ráð er fyrir gert í samningnum að geti komið til greina.
Í samningnum er að finna ákvæði þess efnis að mistakist að halda í heiðri anda samkomulagsins, þá leiði það til afturköllunar 2% hlutarins. Vísað er nánar til þess að sé engin vinna unnin í þágu verkefnisins, eða að hlaupið sé frá því, þá sé það dæmi um slíkt. Ljóst þykir að við túlkun ákvæðisins verður að byggja á hlutlægum forsendum, og að stefndu beri sönnunarbyrði fyrir því að framangreind skilyrði séu til staðar.
Af því sem upplýstist er í málinu, þá afhenti stefnandi stefndu „vinnuskýrslu fyrir SMT verkefnið“ um miðjan október 2021, sem nær yfir tímabilið 5. október 2020 til 14. október 2021, samtals 587,15 klst. Þann 17. nóvember 2021 gerir lögmaður stefnanda kröfu um að hlutir í félaginu verði með vísan til samningsins skráðir á stefnanda. Þeirri kröfu var hafnað af hálfu stefndu með bréfi lögmanns þeirra 7. mars 2022 með vísan til vanefnda og samningsbrota stefnanda, og að engir tímar hans hafi verið samþykktir og stefnandi sjálfur yfirgefið verkefnið.
Yfirferð stefndu Arnars og Stefáns á þeim vinnustundum sem stefnandi afhenti þeim í október 2021 virðist hafa lokið vorið 2022 með framlagningu dómskjals þar um þann 1. júní 2022. Stefnandi hafði því ekki tækifæri til þess að gera athugasemdir við þá yfirferð fyrr en við flutning málsins. Yfirferð stefndu miðar að því að meta svonefnt highperformance-hour eða HPH framlag stefnanda, sem síðar getur nánar um. Þótt stefndu geri í skjalinu athugasemdir við lýsingar í tímaskráningu stefnanda, einkum að þær séu óljósar, er þeim vinnustundum ekki hafnað, heldur er komist að þeirri niðurstöðu að af 585,25 vinnustundum stefnanda teljist aðeins 104,5 vinnustundir sem HPH að þeirra mati, þær síðustu unnar í september og október 2021. Óháð öðru þá leiðir framangreint til þess að ósannað er af hálfu stefndu að stefnandi hafi ekkert unnið í þágu verkefnisins á því ári sem samstarf aðila tók yfir.
Af hálfu stefndu Arnars og Stefáns var vísað til þess að stefnandi hefði lýst því yfir að hann ætlaði ekki að starfa með þeim lengur, þar sem hann hefði haft aðrar hugmyndir um framtíð félagsins en þeir. Bentu stefndu á ákvæði samningsins sem ber heitið „Debate & Unite“, um að þegar niðurstaða liggi fyrir beri öllum að virða hana, en stefnandi hafi hins vegar ekki sætt sig við niðurstöðu sem stefndu hefðu komist að.
Ljóst er að ágreiningur var til staðar með málsaðilum um framtíð félagsins í október 2021, og á sama tíma hafði stefnandi fyrir hönd félags í hans eigu gefið út reikninga á hendur Stafrænum markaðstorgum ehf., á grundvelli þjónustusamnings þeirra í milli. Í framhaldi þessa urðu tölvupóstsamskipti milli aðila. Þann 16. október 2021 sendir stefnandi tölvupóst til stefndu: „Í framhaldi af samtali okkar fyrr í vikunni bíð ég enn eftir að heyra ykkar tillögur. Mér þykir furðulegt að búið sé að loka á aðgang minn að kerfinu okkar sem og að þjónustuvef.“ Í svarpósti stefndu 18. október 2021 kemur fram: „Varðandi aðganga og í ljósi þess að þú sagðist ekki vilja lengur vera í verkefninu, töldum við það sjálfgefið að breyta aðgöngunum.“ Í lok þess pósts segir: „Vinna að tillögu er enn í vinnslu, en þér er vissulega frjálst að leggja fram þína eigin tillögu hafi þú slíka tilbúna.“ Í tölvupósti sama dag, 18. október 2021, kom fram hjá stefnanda að erfitt væri að sjá hvernig halda mætti þessu samstarfi áfram. Í lok þess pósts setti stefnandi síðan fram þær tillögur sem hann taldi að líta bæri til um framtíð verkefnisins.
Af framangreindu röktu er að mati dómsins ósannað að stefnandi hafi yfirgefið verkefnið eða hvenær það hafi þá verið. Virðast málsaðilar þann 18. október 2021 enn líta svo á að þeir eigi í einhverju samstarfi, þótt stirt sé. Engin gögn liggja fyrir í málinu um samskipti aðila eftir þetta tímamark, önnur en fyrrgreind bréf lögmanna, en í bréfi lögmanns stefnanda frá 17. nóvember 2021 kemur fram að stefnandi hafi ekki tekið neina ákvörðun um að yfirgefa félagið, en telji að með framkomu stefndu hafi þeir óskað eftir því að hann yfirgæfi samstarfið.
Af öllu framangreindu virtu telst ósannað af hálfu stefndu að 2% eignarhlutur stefnanda í félaginu hafi verið afturkallaður þar sem stefnandi hafi enga vinnu lagt fram til verkefnisins eða hann yfirgefið verkefnið í skilningi samningsins. Verður því fallist á að stefnandi sé enn eigandi að þeim 2% hluta í félaginu sem í hans hlut komu við undirritun samningsins, þótt hann hafi ekki enn fengið þann hlut skráðan á sig.
Málsaðila greinir á um túlkun samningsins að því er varðar það hvort stefnandi hafi átt möguleika á því að ávinna sér 6% eða 8% til viðbótar framangreindum 2%. Um þetta segir í kafla undir heitinu „Work/effort based equity“; „Up to 8% according to a simple work-for-equity schema for 320 hours of high-performance work based on best effort.“ Í kafla samningsins sem ber heitið „High-Performance Hours only“ segir í upphafi hans: „8% equity will be awarded for 320 high-performance hours of work.“ Telst því ljóst að mati dómsins að mögulegt hafi verið að eignast allt að 8% í félaginu með vinnuframlagi, til viðbótar við framangreind 2%.
Líkt og er fram er komið lagði stefnandi fram vinnuskýrslu um vinnuframlag sitt upp á 587,15 klst. um SMT verkefnið. Samkvæmt samningnum skyldu vinnuskýrslur vera öllum til taks, þær skyldu rýndar og samþykktar af teyminu. Ekki er það skilyrði sett í samningnum að vinnuskýrslur hafi legið fyrir eftir hvern mánuð.
Upplýst var í málinu að form samningsins hefðu stefndu fundið á netinu, og samningurinn verið hugsaður sem hvati að framgangi verkefnisins. Í samningnum sjálfum er tilgreint að aðilar geti breytt vinnu í hluti með því að vinna 320 klst. í HPH á þremur mánuðum eða lengur. Hins vegar er þar ekki að finna skilgreiningu á hugtakinu HPH að öðru leyti en með eftirfarandi: „This work represents high-performance hours and it may - just as in any other work setting – take longer to produce it.“
Í skýrslu stefnanda fyrir dómi bar hann að með HPH væri átt við vinnustundir sem stuðluðu að framgangi verkefnisins, þ.e. virkar vinnustundir. Tími á kaffistofunni sem dæmi myndi ekki falla þar undir. Í skýrslum stefndu Arnars og Stefáns fyrir dómi kom fram að þeir hefðu ekki búið til hugtakið HPH, en það hafi átt að byggjast á vinnuframlagi eða „Milestones“ eins og greinir í samningnum. Ekki komu fram frekari skýringar fyrir dómi frá stefndu um skilgreiningu hugtaksins HPH. Í skjali því sem stefndu Arnar og Stefán unnu og lagt var fram í málinu, er komist er að þeirri niðurstöðu að u.þ.b. ein af hverjum sex vinnustundum stefnanda teljist HPH, eða alls 104,5 klst.
Í yfirferð stefndu eru gerðar athugasemdir við hvern mánuð vinnuskýrslunnar. Í öllum tilfellum að lýsing tímaskráningar sé óljós, og að sömu verkþættir komi oft upp. Þá séu í einhverjum tilfellum settir inn fundir sem framlag til verkefnisins í highperformance. „Við yfirferð á tímum kom ýmislegt í ljós sem var einfaldlega ekki sannleikanum samkvæmt, fjarri því að vera HPH.“
Ekki verður fram hjá því horft að yfirferð stefndu byggist á mati þeirra sjálfra mörgum mánuðum eftir að stefnandi lagði vinnuskýrsluna fram, og eftir að ágreiningur aðila var upp kominn og mál þetta höfðað. Sú yfirferð byggist á einhliða yfirferð stefndu Arnars og Stefáns á faglegu framlagi stefnanda til verkefnisins, þótt þeir hafi ekki menntun á hans sviði, og hlutverk þeirra innan teymisins sé samkvæmt samningnum sjálfum ekki skilgreint á sviði tæknimála. Einkum virðist þó á því byggt að lýsingar í vinnuskýrslu stefnanda séu óljósar, og vinnustundum því verið hafnað sem HPH án þess að leitað hafi verið eftir skýringum stefnanda á því.
Ósannað er í málinu að þau markmið sem stefnt var að með samningnum, eða „MVP Roadmap for SMT“, hafi ekki náðst vegna skorts á vinnuframlagi stefnanda, fremur en framlagi stefndu sjálfra, en samningurinn byggist eins og fram er komið á teymisvinnu aðila. Engin gögn málsins benda til þess að stefndu hafi á einhverjum tíma gert athugasemdir við störf stefnanda á því ári sem samstarfið stóð, fyrr en haustið 2021 þegar stefnandi krafði stefndu um greiðslu reikninga vegna annars samnings, „og þá hafi „allt farið í skrúfuna“ eins og stefndi Arnar bar fyrir dómi.
Með vísan til framangreinds er það niðurstaða dómsins að stefndu hafi ekki axlað sönnunarbyrði þess, svo sem með matsgerð, að sú vinnuskýrsla sem stefnandi lagði fram sé röng, og enn síður að þær vinnustundir teljist ekki vera high-performance vinnustundir í skilningi samnings aðila. Samkvæmt samningnum á stefnandi rétt á því fá, eftir að lágmarki þriggja mánaða vinnu og 320 vinnustundir, 8% af útgefnu hlutafé í Stafrænum markaðstorgum ehf. Þótt dregnir væru frá þeir tímar í október 2020 sem unnir voru áður en samningurinn var undirritaður, þá eru vinnustundir stefnanda vel yfir því marki sem til þurfti í þessu sambandi. Þá verður ítrekað það sem að framan gat um að ósannað er að stefnandi hafi ákveðið að yfirgefa félagið, og kemur því ekki til álita að líta til ákvæðis samningsins í kaflanum: „A Founder Wishes to Leave.“ Þá er þess ekki krafist í þessu máli að ógreidd húsaleiga koma til frádráttar.
Með vísan til alls framangreinds verður fallist á þrautavarakröfu stefnanda, um að stefndu Stefán Björnsson og Arnar Björnsson verði sameiginlega dæmdir til að afhenda stefnanda hluti í einkahlutafélaginu Stafrænum markaðstorgum ehf., [...], sem samsvari alls 10% af útgefnu hlutafé félagsins eins og það er skráð á afhendingardegi að viðlögðum dagsektum sem hæfilegar þykja 25.000 krónur á dag fyrir hvern dag sem hlutirnir eru ekki afhentir stefnanda, einum mánuði frá dómsuppsögu að telja.
Með hliðsjón af niðurstöðu málsins og 1. og 3. mgr. 130. gr. laga nr. 91/1991 verður stefndu sameiginlega, þar með talinn stefndi Stafræn markaðstorg ehf., gert að greiða stefnanda málskostnað eins og í dómsorði greinir, sem er að mati dómsins.
Bogi Hjálmtýsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan.
Dómsorð:
Stefndu Stefán Björnsson og Arnar Björnsson sameiginlega, afhendi stefnanda Birni Ólafi Ingvarssyni, 10% af útgefnu hlutafé félagsins Stafrænna markaðstorga ehf., kt. [...], eins og það er skráð á afhendingardegi að viðlögðum dagsektum sem hæfilegar þykja 25.000 krónur á dag fyrir hvern dag sem hlutirnir eru ekki afhentir stefnanda, einum mánuði frá dómsuppsögu að telja.
Stefndu greiði stefnanda sameiginlega 750.000 krónur í málskostnað.
Bogi Hjálmtýsson