Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. E-1683/2022:

Arctic Pet ehf.

(Gunnar Jónsson lögmaður)

gegn

Alessandro Era

Era Trading ehf.

D Ó M U R

I

(Árni Freyr Sigurðsson lögmaður)

Einkahlutafélag. Kyrrsetning. Prókúra. Skaðabótamál. Stjórnarmenn.

Stefndi, A, sem um tíma var stjórnarmaður og prókúruhafi í stefnanda, AP ehf., var dæmdur til greiðslu skaðabóta vegna útgjalda og kostnaðar sem hann réðst í á kostnað stefnanda, án heimildar og stefnanda til tjóns. Stefnda A var jafnframt gert að greiða stefnanda, óskipt með einkahlutafélagi sínu, AE ehf., bætur vegna millifærslna af reikningum stefnanda á grundvelli tilhæfulausra reikninga gefnum út af hinu stefnda einkahlutafélagi fyrir tilstuðlan og með fullri vitneskju stefnda A, aðaleiganda þess félags. Jafnframt voru staðfestar tvær kyrrsetningargerðir Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu í innstæðum á bankareikningum stefndu.

Mál þetta, sem dómtekið var 21. nóvember 2023, var höfðað með réttarstefnu útgefinni af Héraðsdómi Reykjaness 6. september 2022 en birt stefndu 9. sama mánaðar.

Stefnandi er Arctic Pet ehf., kt. […], Strandgötu, Sandgerði. Stefndu eru Alessandro Era, kt. […], Lundi 8–12, Kópavogi, og Era Trading ehf., kt. […], Fossahvarfi 2, Kópavogi.

II

Dómkröfur stefnanda eru eftirfarandi: „1.

Að staðfest verði með dómi endurupptekin kyrrsetningargerð nr. 2022-033071 sem fór fram hjá stefnda, Alessandro Era, hinn 31. ágúst 2022 í innstæðum á bankareikningunum nr. […], […], […], […] og […] (dskj. 2).

  1. Að staðfest verði með dómi kyrrsetningargerð nr. 2022-033078 sem fór fram hjá stefnda, Era Trading ehf., hinn 30. ágúst 2022 í innstæðum á bankareikningi nr. […] (dskj. 3).
  2. Að stefndi, Alessandro Era verði dæmdur til að greiða stefnanda 46.263.345 krónur ásamt dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 af sömu fjárhæð frá birtingardegi stefnu til greiðsludags.
  3. Að stefndi, Era Trading ehf., verði dæmdur til að greiða stefnanda, þar af óskipt með stefnda Alessandro Era, 19.807.698 krónur ásamt dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 af sömu fjárhæð frá birtingardegi stefnu til greiðsludags.“

    Loks krefst stefnandi málskostnaðar úr hendi stefndu.

    Dómkröfur stefndu eru eftirfarandi: „1.

    Stefndi, Alessandro Era, krefst þess að synjað verði um staðfestingu á endurupptekinni kyrrsetningargerð nr. […] sem framkvæmd var hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu miðvikudaginn 31. ágúst 2022 í innstæðum á bankareikningum nr. […], […], […], […] og […].

  4. Stefndi, Era Trading ehf., krefst þess að synjað verði um staðfestingu á kyrrsetningargerð nr. […] sem framkvæmd var hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu þriðjudaginn 30. ágúst 2022 í innstæðum á bankareikningi nr. […].
  5. Báðir stefndu krefjast aðallega frávísunar af fjárkröfum stefnanda. Til vara krefjast stefndu sýknu af fjárkröfum stefnanda, en til þrautavara að fjárkröfur stefnanda verði lækkaðar verulega.“

    Stefndu krefjast í öllum tilvikum málskostnaðar úr hendi stefnanda.

    Með úrskurði dómsins frá 31. mars síðastliðnum var krafa stefnda um frávísun málsins tekin til greina og var málinu vísað frá dómi og stefnendum gert að greiða stefndu málskostnað líkt og þar greinir. Með úrskurði Landsréttar 28. júní síðastliðinn í máli nr. 256/2023 var úrskurður héraðsdóms felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdóm að taka málið til efnismeðferðar. Fór aðalmeðferð málsins fram 21. nóvember síðastliðinn og var málið að því búnu dómtekið.

III

Helstu málsatvik

Nokkur ágreiningur er um málsatvik. Af gögnum máls verður þó ráðið að stefndi, Alessandro Era, sé stofnandi og fyrrum stjórnarmaður í félagi stefnanda, Arctic Pet ehf. Mun stefndi Alessandro ásamt félaginu Skinnfiski ehf. þann 12. júní 2013 hafa stofnað stefnanda, Arctic Pet ehf., og jafnframt verið skráður helmingseigandi þess við stofnun félagsins. Síðar sama ár hafi ítalska félagið SANYpet S.p.A. eignast 85% hlut í stefnanda, en félagið mun nú vera eini skráði hluthafi í stefnanda.

Stefndi Alessandro var stjórnarformaður stefnanda frá stofnun félagsins allt fram til 4. mars 2014 og frá þeim tíma sat hann í stjórn félagsins fram til 3. mars 2015. Stefndi mun jafnframt hafa verið starfsmaður stefnanda á sama tímabili, en hann lét af störfum fyrir félagið fyrrgreindan dag og seldi samhliða því 5% eignarhlut sinn í félaginu til félagsins SANYpet S.p.A.

Stefndi Alessandro var á ný ráðinn til starfa hjá stefnanda 1. apríl 2019 sem rekstrarstjóri félagsins í fullu starfi (e. director of operations). Samkvæmt vinnusamningstilboði (e. Offer of Employment), sem dagsett er 21. febrúar sama ár og undirritað af stefnda Alessandro, voru umsamin mánaðarlaun hans 1.000.000 króna auk 150.000 króna mánaðarlegrar endurgreiðslu vegna ferðakostnaðar, farsíma og fartölvu. Þá var þessi stefndi kjörinn í stjórn stefnanda 15. nóvember 2019 og með tilkynningu til fyrirtækjaskrár Skattsins 15. nóvember ári síðar var stefndi eini stjórnarmaður stefnanda. Þá var stefndi Alessandro jafnframt skráður prókúruhafi stefnanda frá 28. maí 2019 til 8. ágúst 2022.

Þann 1. febrúar 2021 undirritaði stefndi Alessandro sjálfur og fyrir hönd stefnanda nýjan ráðningarsamning sinn við félagið þar sem launakjör hans sættu hækkun frá því sem áður var. Með bréfi stefnanda, dagsettu 8. ágúst 2022, var ráðningarsamningi við stefnda Alessandro rift. Þá hefur stefnandi vísað til þess að eini hluthafi í stefnanda, SANYpet S.p.A., hafi í kjölfar riftunarinnar afturkallað skipun stefnda Alessandro sem eina stjórnarmanns í stefnanda og sett annan mann í hans stað, auk þess sem aðgengi stefnda að bankareikningum félagsins var afturkallað. Í kjölfarið voru innstæður á bankareikningum stefnda Alessandro kyrrsettar með endurupptekinni kyrrsetningargerð 31. ágúst 2022 og innstæður á bankareikningum stefnda Era Trading ehf. kyrrsettar með kyrrsetningargerð 30. ágúst sama ár.

IV

Helstu málsástæður og lagarök stefnanda

Stefnandi byggir málatilbúnað sinn í meginatriðum á því að stefndi Alessandro hafi annars vegar ekki haft heimild til gerðar ráðningarsamningsins frá 1. febrúar 2021 þar sem honum hafi verið óheimilt að skuldbinda félagið að þessu leyti og hafi slíkt farið í bága við 48. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög. Hafi stefndi þannig fengið greiddar um það bil 1.500.000 krónur mánaðarlega frá 1. apríl 2020 fram til 31. janúar 2021, 2.000.000 króna mánaðarlega frá 1. febrúar 2021 til 30. apríl sama ár og hafi launin numið 2.047.600 krónum í maí 2021. Frá 1. júní 2021 til 31. maí 2022 hafi mánaðarlaun stefnda Alessandro numið 3.352.080 krónum.

Þá vísar stefnandi til þess að stefndi Alessandro hafi jafnframt látið stefnanda greiða reikning vegna lögfræðikostnaðar í tengslum við hjónaskilnað stefnda Alessandro. Einnig hafi stefndi nýtt fjármuni stefnanda til kaupa á húsgögnum til eigin nota, auk þess að nýta þá til greiðslu húsaleigu, til greiðslu bensínkostnaðar og fjölda annarra greiðslna vegna ferðalaga erlendis sem séu störfum stefnda Alessandro fyrir stefnanda óviðkomandi. Enginn framkvæmdastjóri hafi verið starfandi hjá stefnanda á umræddu tímabili og hafi stefndi Alessandro, sem rekstrarstjóri og eini stjórnarmaður stefnanda, verið æðsti stjórnandi félagsins á umræddum tíma.

Þá hafi stefndi Alessandro jafnframt misnotað aðstöðu sína sem starfsmaður og eini prókúruhafi og stjórnarmaður stefnanda annars vegar og hins vegar sem fyrirsvarsmaður Era Trading ehf., með því að hafa á rúmlega tveggja ára tímabili millifært fjármuni af reikningum stefnanda inn á reikning stefnda Era Trading ehf. Kveður stefnandi stefnda Alessandro hafa í þessu skyni gefið út fjölmarga reikninga til stefnanda sem séu með öllu tilhæfulausir, en engir samningar, þjónusta eða starfsemi liggi þeim til grundvallar og skýringar með reikningunum virðist vera viljandi óljósar.

Stefnandi vísar til þess að Guðbjörg Björnsdóttir, starfsmaður stefnanda og þáverandi varamaður í stjórn, hafi að beiðni stefnda Alessandro undirritað bókun í gerðarbók stefnanda 15. september 2021 í tengslum við framangreindan ráðningarsamning sem stefndi undirritaði fyrir eigin hönd og fyrir hönd stefnanda 1. febrúar 2021. Stefnandi telur bókunina hafa verið tilraun til þess að bæta afturvirkt úr ólögmæti ráðningarsamningsins, en á bókuninni séu fjölmargir annmarkar. Í fyrsta lagi sé stefndi Alessandro þar titlaður framkvæmdastjóri stefnanda, en hann hafi aldrei gegnt þeirri stöðu. Í öðru lagi komi fram í bókuninni að um hafi verið að ræða „skriflega staðfestingu á þeim ráðningarkjörum framkvæmdastjóra félagsins sem í gildi voru en höfðu ekki verið færðar í skriflegt form“. Þetta sé að mati stefnanda beinlínis rangt enda hafi laun stefnda Alessandro verið tvöfölduð í nýja samningnum frá því sem upphaflega var umsamið og stefnda þar jafnframt veittur réttur til hlutdeildar í hagnaði stefnanda sem hann hafi ekki notið áður. Í þriðja lagi sé í bókuninni viðurkennt að vanhæfisreglur laga um einkahlutafélög komi í veg fyrir að stefndi Alessandro hafi getað undirritað ráðningarsamninginn fyrir hönd stefnanda. Vísar stefnandi til þess að ekki sé unnt að bæta úr slíkum ágalla með eftirfarandi gerningi, enda hafi verið um að ræða efnislegan ágalla en ekki formlegan og hafi gerningurinn því verið ólögmætur frá upphafi. Í fjórða lagi segir að fyrrgreindri Guðbjörgu sé falið að undirrita ráðningarsamninginn fyrir hönd félagsins og staðfesta þannig tilvist og efni hans. Það hafi hún hins vegar aldrei gert heldur einungis undirritað umrædda bókun. Í fimmta lagi hafi títtnefnd Guðbjörg tjáð fyrirsvarsmönnum stefnanda að hún hafi ekki útbúið umrædda bókun sjálf, heldur hafi stefndi Alessandro afhent henni hana til undirritunar og síðar meir þrýst á hana að undirrita eftir að hún hafi upphaflega neitað því, en Guðbjörg hafi þá verið undirmaður stefnda hjá stefnanda. Þá vísar stefnandi til þess að ljóst sé að hvorki Guðbjörg né stefndi Alessandro hafi látið félagið SANYpet vita af ráðningarsamningnum og heldur ekki aflað samþykkis fyrir honum á aðalfundi stefnanda, auk þess sem samningurinn hafi ekki verið til hagsbóta fyrir stefnanda af neinu sjáanlegu viti. Stefnandi kveðst byggja á því að athafnir stefnda Alessandro sem starfsmanns, prókúruhafa og stjórnarmanns stefnanda hafi brotið gegn upphaflegum ráðningarsamningi hans við stefnanda, auk þess sem þær hafi falið í sér skýlaust brot á 48. og 54. gr., sbr. 108. gr., laga nr. 138/1994, almennum trúnaðarskyldum stjórnarmanna einkahlutafélaga og eftir atvikum 247. og 249. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Eigi stefnandi því annars vegar tilkall til endurgreiðslu „launa“ sem stefndi Alessandro hafi úthlutað sér á grundvelli ráðningarsamnings frá 1. febrúar 2021, sem hafi að mati stefnanda brotið í bága við 48. og 54. gr. laga nr. 138/1994, og hins vegar eigi stefnandi tilkall til annarra fjármuna stefnanda sem stefndi Alessandro hafi nýtt í eigin þágu. Þá hafi hann brotið gegn trúnaðarskyldum sem á honum hvíla sem stjórnarmanni í einkahlutafélagi og dregið sér fjármuni frá stefnanda með ólögmætum hætti, með því að láta stefnanda greiða fyrrnefndan persónulegan kostnað vegna lögfræðiþjónustu, leigu á íbúð, eldsneyti og ýmsan kostnað vegna einkaneyslu. Stefnandi telur að trúnaðarskyldur stefnda Alessandro hafi verið sérstaklega ríkar í ljósi stöðu hans hjá stefnanda á umræddum tíma.

Stefnandi vísar um málsgrundvöll til almennra meginreglna um skaðabótaábyrgð ásamt 108. gr. laga nr. 138/1994 og telur ljóst að stefndi Alessandro hafi, bæði sem rekstrarstjóri og eini stjórnarmaður stefnanda og sem fyrirsvarsmaður og eigandi stefnda Era Trading ehf., sýnt af sér ásetning, eða eftir atvikum stórkostlegt gáleysi, eins og rakið hefur verið að framan, ásamt því að hafa gerst brotlegur við lög, samþykktir stefnanda, trúnaðarskyldur sínar og ráðningarsamning stefnanda og stefnda Alessandro frá 21. febrúar 2019. Þá kveður stefnandi einsýnt að orsakatengsl séu á milli saknæmra og ólögmætra athafna, og eftir atvikum athafnaleysis, stefnda Alessandro og stefnda Era Trading ehf. og þess tjóns sem stefnandi hefur orðið fyrir. Verði af einhverjum ástæðum ekki fallist á að grundvöllur fyrir skaðabótaskyldu sé til staðar kveðst stefnandi byggja á því að til endurgreiðslukröfu hafi stofnast vegna sömu fjárkrafna sem raktar hafa verið og sundurliðaðar séu í stefnu. Sömu málsástæður búi að baki kröfum stefnanda, óháð því á hvaða grundvelli málið er reist, enda sé í báðum tilvikum á því byggt að stefndu hafi viðhaft saknæma og ólögmæta háttsemi sem stefndu beri ábyrgð á. Stefnandi vísar til þess að félagið SANYpet hafi samþykkt málshöfðun þessa.

Stefnandi kveður tjón sitt og þar með upphæð skaðabótakröfu hans á hendur stefnda Alessandro nema mismuninum á launagreiðslum samkvæmt skriflegu starfstilboði stefnanda frá 21. febrúar 2019 og greiðslum sem stefndi Alessandro tók, meðal annars samkvæmt ráðningarsamningi sem stefndi gerði við sjálfan sig og dagsettur er 1. febrúar 2021. Krafa stefnanda að öðru leyti nemi upphæð þeirra greiðslna sem inntar hafi verið af hendi af hálfu stefnanda til stefnda Alessandro og annarra greiðslna sem stefnandi hefur innt af hendi fyrir stefnda Alessandro, svo sem með óheimilli notkun kreditkorts af hálfu stefnda Alessandro. Stefnandi kveður dómkröfur sínar gegn stefnda Alessandro eiga rætur að rekja til sama atviks, aðstöðu eða löggernings þar sem þær séu allar tilkomnar vegna aðstöðu stefnda Alessandro sem fyrrum starfsmanns, stjórnarmanns og prókúruhafa stefnanda. Því sé stefnanda rétt og heimilt að sækja allar kröfur á hendur stefnda Alessandro í sama máli. Að auki sé krafist dráttarvaxta á umræddum fjárhæðum frá 9. september 2022 til greiðsludags samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001, sbr. 3. mgr. 5. gr. sömu laga. Stefnandi kveðst sundurliða þessa kröfu sína þannig: „Höfuðstóll 26.455.647 kr. sem sundurliðast svo:

---- Reikningar á visakorti v. ferðalaga (dskj. 22 & 29) 8.614.333 kr.

Eldsneytiskostnaður (dskj. 21) 767.151 kr.

Janúar 2021 32.002 kr.

Febrúar 2021 47.177 kr.

Mars 2021 37.626 kr.

Apríl 2021 21.277 kr.

Maí 2021 55.201 kr.

Júní 2021 24.497 kr.

Júlí 2021 12.674 kr.

Ágúst 2021 36.689 kr.

September 2021 48.766 kr.

Október 2021 26.328 kr.

Nóvember 2021 43.349 kr.

Desember 2021 36.841 kr.

Janúar 2022 55.116 kr.

Febrúar 2022 26.569 kr.

Mars 2022 45.362 kr.

Apríl 2022 32.781 kr.

Maí 2022 64.525 kr.

Júní 2022 66.684 kr.

Júlí 2022 53.687 kr.

Fartölva, sími og heyrnartól ekki skilað 440.651 kr. (dskj. 22 & 29) Heyrnartól 50.230 kr.

Macbook Air tölva 228.777 kr.

Sími 161.644 kr.

Húsaleiga (dskj. 22 & 29) 3.270.000 kr.

Leiga janúar 2020 245.000 kr.

Leiga febrúar 2020 245.000 kr.

Leiga mars 2020 245.000 kr.

Leiga apríl 2020 245.000kr.

Leiga maí 2020 245.000 kr.

Leiga júní 2020 275.000 kr.

Leiga júlí 2020 250.000 kr.

Leiga ágúst 2020 250.000 kr.

Leiga september 2020 250.000 kr.

Leiga nóvember 2020 255.000 kr.

Leiga janúar 2021 255.000 kr.

Leiga febrúar 2021 255.000 kr.

Leiga apríl 2021 255.000 kr.

Launagreiðslur 11.159.734 kr. (dskj. 18 & 32) Greiðslur fyrir húsgögn (dskj. 20) 910.081 kr.

21. apríl 2020 – húsgögn hjá Rúmfatalager 12.602 kr.

3. júlí 2020 – rúm hjá Dorma 148.832 kr.

17. júlí 2020 – Ikea 31.210 kr.

7. júlí 2020 – Sófi í Ilva 83.940 kr.

3. sept. 2020 – Matfugl (kjúklingur) 14.592 kr.

15. sept. 2020 – Tölvuleikjastóll og ábreiða 30.350 kr.

26. sept 2020 – Linnmon 5.540 kr.

8. okt. 2020 – Samsonite 26.828 kr.

8. des. 2020 – Byko 4.740 kr.

13. des. 2020 – handþeytari í Elko 5.990 kr.

16. jan. 2021 – Air fryer o.fl. 34.480 kr.

26. maí 2021 – Casa.is 37.800 kr.

15. ágúst 2021 – Ikea 9.246 kr.

17. febrúar 2022 – 66N 6.048 kr.

6. mars 2022 – Sófi 154.072 kr.

3. júní 20022 – Elko 118.991 kr.

7. júní 2022 – Rúm – Dorma 161.920 kr.

19. júní 2022 – Sodastream – Elko 22.990 kr.

Aðrar greiðslur (dskj. 22 og 29) 816.717kr.

Endurgreiddur kostnaður, sjá skjal 515 í dskj. 29. 47.983 kr.

Endurgreiddur kostnaður, sjá skjal 619 í dskj. 29. 66.327 kr.

Endurgreiddur kostnaður, sjá skjal 732 í dskj. 29. 76.615 kr.

Endurgreiddur kostnaður, sjá skjal 765 í dskj. 29. 88.076 kr.

Endurgreiddur kostnaður, sjá skjal 996 í dskj. 29. 89.239 kr.

Greiðsla af bankareikningi Arctic Pet, 26.1.22 3.950 kr.

Endurgreiddur kostnaður, sjá skjal 180 í dskj. 29. 43.090 kr.

Greiðsla af bankareikningi Arctic Pet, 16.5.22 100.000 kr.

Endurgreiddur kostnaður, sjá skjal 290 í dskj. 29. 18.146 kr.

Flutningskostnaður – ísskápur fluttur að íbúð stefnda 8.000 kr.

Endurgreiddur kostnaður, sjá skjal 423 í dskj. 29 18.838 kr.

Línugjald með 20% afslætti 72.773 kr.

Netið 500 GB 41.300 kr.

Leigugjald beinis 20.580 kr.

Endalaust internet 121.799 kr.

Lögfræðikostnaður vegna skilnaðar (dskj. 19) 451.980 kr.

---- Kyrrsetningargjald í ríkissjóð 25.000 kr.

------------- Samtals 26.455.647 kr.“

Um síðari hluta ætlaðs tjóns stefnanda og þar með upphæð eftirfarandi skaðabótakröfu á hendur stefndu kveðst stefnandi byggja á tilhæfulausum reikningum sem gefnir hafa verið út til stefnanda af hálfu stefnda Era Trading ehf. og millifærslum fjármuna af reikningum stefnanda til stefnda Era Trading ehf. Millifærslurnar hafi átt sér stað fyrir tilstuðlan og með fullri vitneskju stefnda Alessandro enda hafi hann, að mati stefnanda, haldið á öllum þráðum innan beggja félaga og hagnast á þeim persónulega sem eini hluthafi stefnda Era Trading ehf. Ábyrgð beggja stefndu á tjóni stefnanda sé því sameiginleg og eigi stefnandi því skaðabótakröfu in solidum gegn stefndu báðum vegna reikninga stefnda Era Trading ehf. sem stefndi Alessandro lét stefnanda greiða á rúmlega tveggja ára tímabili og stefnandi telur tilhæfulausa og ólögmæta. Krafa stefnanda nemi heildarupphæð umræddra reikninga. Að auki sé krafist dráttarvaxta á umræddum fjárhæðum frá birtingardegi stefnu til greiðsludags samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001, sbr. 3. mgr. 5. gr. sömu laga. Stefnandi kveðst sundurliða kröfu þessa þannig: „Höfuðstóll (dskj. 17 og 28) 19.782.698 kr. sem skiptist svo:

Skýring reiknings
Board salaries 01.12.2020 987.784 kr.
Renting equipment Jan-Dec 2020 14.01.2021 2.976.000 kr.
Service agreement 15.03.2021 3.024.266 kr.
Renting of equipment Jan-April 10.05.2021 992.000 kr.
Renting of equipment May-August 02.08.2021 992.000 kr.
Service 09.08.2021 1.860.000 kr.
Renting agreement 01.09.2021 248.000 kr.
Renting agreement 01.10.2021 248.000 kr.
Renting equipment 08.11.2021 248.000 kr.
Renting equipment 08.12.2021 248.000 kr.
Renting equipment 03.01.2022 248.000 kr.
Service agreement without VAT 12.01.2022 737.450 kr.
Renting equipment 01.02.2022 248.000 kr.
Renting agreement 04.03.2022 248.000 kr.
Board salaries 31.03.2022 1.068.525 kr.
Renting agreement Arctic pet ehf. 01.04.2022 248.000 kr.
06.04.2022 4.664.673 kr.
Renting equipment 02.05.2022 248.000 kr.
Renting equipment 01.06.2022 248.000 kr. -------------
Samtals kr. 19.807.698 kr.“

Bonus of 5% on profit year 2021 of

Kyrrsetningargjald í ríkissjóð 25.000 kr.

Stefnandi byggir á því til vara að til sameiginlegrar, in solidum, endurgreiðslukröfu hafi stofnast vegna framangreindra reikninga. Vísar stefnandi um það til sömu málsástæðna og áður enda sé í báðum tilvikum á því byggt að stefndu hafi viðhaft saknæma og ólögmæta háttsemi sem stefndu beri ábyrgð á.

Stefnandi kveður þessar dómkröfur sínar gegna stefnda Alessandro annars vegar og stefnda Era Trading ehf. hins vegar eiga rætur að rekja til sama atviks, aðstöðu eða löggernings þar sem þær séu allar tilkomnar vegna aðstöðu stefnda Alessandro og sé stefnanda því rétt og heimilt að sækja allar kröfur á hendur stefndu í sama máli. Stefnandi kvaðst áskilja sér rétt til að leggja fram frekari gögn um kröfur sínar á hendur stefndu undir rekstri málsins.

Dagana 30. og 31. ágúst 2022 hafi Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu að beiðni stefnanda kyrrsett innstæður stefnda Alessandro á eftirfarandi bankareikningum: […], […], […], […] og […], ásamt innstæðu stefnda Era Trading ehf. á bankareikningi […] fyrir kröfum stefnanda. Hafi stefnandi lagt fram, að beiðni Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, tryggingu að fjárhæð 3.000.000 króna. Sé nú krafist staðfestingar á þeim kyrrsetningargerðum.

Stefnandi kveðst höfða mál um kröfu sína á hendur stefndu í samræmi við og innan þess frests sem lög nr. 31/1990 um kyrrsetningu, lögbann o.fl. kveða á um.

Stefnandi vísar til þess að kröfur um staðfestingu framangreindra kyrrsetningargerða byggi á sama grunni. Stefndi Alessandro sé eini eigandi, stjórnarmaður og prókúruhafi stefnda Era Trading ehf. Stefnandi upplýsir að við framkvæmd kyrrsetningargerðanna hafi enginn hist fyrir á lögheimili stefnda Alessandro og sömuleiðis hjá stefnda Era Trading ehf., auk þess sem félagið hafi ekki verið merkt á póstkassa eða dyrabjöllu á skráðu lögheimili. Stefnandi vísar til þess að fyrir liggi að ráðningarsamningi stefnda Alessandro hafi verið rift og að hann gegni engum trúnaðarstörfum fyrir stefnanda lengur. Stefndi Alessandro sé ítalskur ríkisborgari sem hafi búið hér á landi vegna starfa sinna fyrir stefnanda og vegna hjúskapar með íslenskri konu. Hvoru tveggja sé nú lokið, og veruleg hætta sé á því að stefndi Alessandro komi eignum sínum og eignum stefnda Era Trading ehf. úr landi, þá helst með því að hann færi fjármuni yfir á erlenda bankareikninga sína, sem myndi gera fullnustu kröfu stefnanda talsvert erfiðari. Stefnandi kveðst telja af þessu öllu ljóst að ef kyrrsetningin er ekki staðfest muni draga úr líkum þess að fullnusta kröfu hans takist eða hún verði verulega örðugri, sbr. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 31/1990. Stefnandi kveðst telja að skilyrði kyrrsetningar séu að öðru leyti uppfyllt, það er að um lögvarða kröfu sé að ræða sem ekki hafi þegar mátt fullnægja með aðför.

V

Helstu málsástæður og lagarök stefndu

Stefndu krefjast sýknu af fjárkröfum stefnanda en til vara niðurfellingar eða verulegrar lækkunar krafnanna.

Að sögn stefndu er forsaga málsins sú að 12. júní 2013 hafi stefndi Alessandro stofnað stefnanda ásamt Skinnfiski ehf. og hafi verið skráður helmingseigandi. Hið sama ár hafi ítalska félagið SANYpet S.p.A. keypt 425.000 hluti í stefnanda og farið með 85% eignarhlut í stefnanda á móti 10% hlut Skinnfisks ehf. og 5% hlut stefnda Alessandro sem starfaði einnig sem framkvæmdastjóri og sat í stjórn stefnanda. Samkvæmt samkomulagi við stefnanda lét stefndi Alessandro af störfum 3. mars 2015 og seldi hlut sinn í stefnanda til SANYpet.

Í upphafi árs 2019 hafi Enrico Vittadello, þáverandi framkvæmdastjóri SANYpet S.p.A., haft samband við stefnda, Alessandro, að undirlagi þáverandi stjórnarformanns SANYpet, Dr. Sergio Canello. Rekstur stefnanda hafði þá gengið mjög erfiðlega en samkvæmt ársreikningi stefnanda vegna rekstrarársins 2018 var félagið rekið með um 200 milljóna króna tapi. Að sögn stefndu var svo komið að yrði ekki gripið fast í taumana myndi gjaldþrot blasa við stefnanda og hafi verið til skoðunar hjá SANYpet að hætta allri starfsemi á Íslandi. Hafi stefndi Alessandro af þeirri ástæðu verið ráðinn til starfa sem rekstrarstjóri stefnanda (e. director of operations) hinn 21. febrúar 2019, líkt og áður greinir, og honum falið það ábyrgðarhlutverk að koma rekstri stefnanda í betra horf og forða honum frá gjaldþroti. Stefndi, Alessandro, hafi samþykkt starfstilboð félagsins (e. Offer of Employment) fyrrgreindan dag og ritaði nokkru síðar undir ráðningarsamning, líkt og gert hafi verið ráð fyrir í fyrrgreindu atvinnutilboði: „This offer letter will be superseded by an Employment Agreement, subject to your agreement and acceptance […].“

Stjórnarformaður stefnanda, Benedetto Valur Nardini lögmaður, hafi sent stefnda, Alessandro, af þessu tilefni ráðningarsamning til undirritunar 29. mars 2019 sem stefndi hafi undirritað en undirritað frumrit samningsins liggur á skrifstofu stefnanda. Að sögn stefnda hefur hann ekki fengið eintak undirritaðs samnings þrátt fyrir áskorun í þá veru. Kveðst hann ítreka þá áskorun.

Sökum bágrar fjárhagsstöðu stefnanda þegar stefndi Alessandro var ráðinn til starfa hjá honum notaði stefndi eigin bifreið í þágu rekstrar stefnanda. Hafi slíkt verið nauðsynlegt þar sem verksmiðja stefnanda sé staðsett í sveitarfélaginu Garði en varahluti, hráefni, umbúðir og fleira þurfti að sækja í verslanir á höfuðborgarsvæðinu. Þegar hagur stefnanda vænkaðist árið 2020 hafi staðið til að stefnandi tæki á leigu bifreið sem stefndi Alessandro skyldi hafa afnot af. Úr því hafi þó ekki orðið heldur hafi verið um það samið, eftir tillögu skoðunarmanns stefnanda, að stefndi, Alessandro, leigði stefnanda bifreið sína gegn mánaðarlegri greiðslu að fjárhæð 200.000 krónur auk virðisaukaskatts. Til samanburðar vísa stefndu til heimasíðu flex.is þar sem fram komi að mánaðarleiga á sambærilegri bifreið nemi 232.190 krónum. Innheimti stefndi, Alessandro, mánaðarlegar greiðslur vegna leigu á bifreiðinni með reikningum útgefnum af stefnda, Era Trading ehf., yfirleitt með lýsingunni „renting equipment“ eða „renting agreement“.

Þann 14. júní 2019 hafi verið gerðar breytingar á framkvæmdastjórn og prókúruumboðum stefnanda. Hafi skráning Massimo Parise sem framkvæmdastjóra félagsins verið felld á brott sem og einnig prókúruumboð Gunnars Más Borg Sigurðssonar. Þess í stað hafi stefnda, Alessandro, einum verið veitt prókúruumboð fyrir hönd félagsins. Hinn 15. nóvember 2019 hafi stefndi, Alessandro, verið kjörinn í stjórn stefnanda, en á þeim tíma voru hluthafar stefnanda tveir, það er SANYpet og Skinnfiskur ehf. Ári síðar, samhliða því er SANYpet varð eini hluthafi stefnanda, hafi stefndi Alessandro verið skipaður eini stjórnarmaður stefnanda en Guðbjörg Björnsdóttir skipuð í varastjórn.

Í ljósi þess að ekki hafi verið ráðinn sérstakur framkvæmdastjóri til starfa hjá stefnanda var dagleg stjórn á rekstri félagsins í höndum félagsstjórnar, sem var á umræddum tíma eingöngu skipuð stefnda Alessandro, auk þess sem hann var jafnframt eini prókúruhafi stefnanda.

Stefndu vísa til þess að megintilgangur stefnanda sé að framleiða gæludýrafóður úr fisk- og kjötafurðum. Starfræki stefnandi í því samhengi verksmiðju í Garði og selji í dag afurðir sínar um allan heim enda séu framleiðsluvörur félagsins nær eingöngu til útflutnings. Sú sala hefur þó ekki ætíð gengið jafn vel og í dag. Meginorsök þess að rekstur stefnanda gekk erfiðlega á þeim tíma er stefndi Alessandro var ráðinn á ný til starfa hjá félaginu hafi verið sú að sala á afurðum stefnanda var mjög dræm og rekstrarkostnaður langt úr hófi. Það hafi því fallið í hlut stefnda Alessandro að hagræða í rekstri stefnanda, endurnýja vélakost, markaðssetja vörur félagsins um allan heim og auka þannig sölu þeirra og veltu stefnanda. Hafði SANYpet, eini hluthafi stefnanda, miklar væntingar til stefnda Alessandro og naut stefndi að sögn fulls trausts stjórnenda SANYpet til að grípa til þeirra ráðstafana sem þurfti svo snúa mætti rekstri stefnanda við. Með þrotlausri vinnu tókst stefnda Alessandro að snúa við rekstri stefnanda frá 199.414.424 króna tapi vegna reikningsársins 2018 yfir í 3.326.012 króna hagnað vegna rekstrarársins 2019 og 48.778.482 króna hagnað vegna rekstrarársins 2020. Þessi sveifla á afkomu stefnanda á umræddum árum, sem fyrst og fremst hafi verið tilkomin vegna starfa stefnda Alessandro, nemi tæplega 250 milljónum króna. Þetta hafi stefndi Alessandro í fyrsta lagi gert með umfangsmiklum hagræðingaraðgerðum sem leiddu til þess að rekstrarkostnaður félagsins lækkaði úr 492.220.264 krónum vegna reikningsársins 2018 í 313.401.514 krónur vegna reikningsársins 2019. Í öðru lagi hafi stefnda Alessandro tekist að auka veltu stefnanda um 28% á framangreindu tímabili, nánar tiltekið frá því að vera 338.989.288 krónur á reikningsárinu 2018 í 435.406.460 krónur á reikningsárinu 2020. Þessa aukningu í veltu má rekja beint til aukinnar sölu á framleiðsluvörum stefnanda sem til var komin vegna þrotlausrar vinnu stefnda Alessandro í tengslum við markaðssetningu á vörum stefnanda á erlendri grundu þar sem hann nýtti viðskiptatengsl sín og stofnaði til nýrra viðskiptasambanda í tengslum við sölu á framleiðsluvörum stefnanda.

Í ljósi árangurs stefnda Alessandro í tengslum við rekstur stefnanda óskaði stefndi Alessandro eftir því með tölvupósti, dags. 20. ágúst 2020, til þáverandi framkvæmdastjóra SANYpet, Luca Milanesi, að fá árlega 5% hlutdeild í hagnaði stefnanda í formi hvatagreiðslna. Þá óskaði stefndi Alessandro eftir því að eignast 5% hlut í stefnanda, líkt og hann hefði farið með á árum áður. Með tölvupósti, dags. 1. september 2020, lagði Luca Milanesi til að stefndi Alessandro fengi 5% hlutdeild í hagnaði stefnanda ásamt 10.000 evrum fyrir stjórnarsetu en féllst ekki á beiðni um 5% hlut í stefnanda. Daginn eftir staðfesti Luca Milanesi með tölvupósti að stefndi Alessandro skyldi fá 5% hlutdeild í hagnaði stefnanda auk 10.000 evra fyrir stjórnarsetu. Þáði stefndi í kjölfarið greiðslur frá stefnanda til samræmis við umrætt samkomulag og voru þær innheimtar með reikningum, útgefnum af stefnda Era Trading.

Stefnda Alessandro kveðst framan af hafa vegnað mjög vel í starfi sínu hjá stefnanda enda hafi reksturinn gengið framar öllum vonum yfirmanna SANYpet. Vinnuumhverfi stefnda hafi þó gjörbreyst í kjölfar kaupa franska stórfyrirtækisins Codico Nutrition Animale á SANYpet í ágúst 2021 og segir stefndi Alessandro að honum hafi verið útskúfað og hann lagður í einelti af fulltrúum nýs eiganda hjá SANYpet. Í fyrsta lagi hafi stefnda Alessandro alfarið verið útskúfað af fulltrúum nýs eiganda og honum ekki einu sinni verið tilkynnt um eigendaskiptin, þrátt fyrir stöðu hans sem eini stjórnarmaður og prókúruhafi stefnanda, sem hann hafi frétt af á förnum vegi. Í kjölfarið hafi stefndi Alessandro ítrekað reynt að setja sig í samband við nýja stjórnendur SANYpet án árangurs. Í öðru lagi hafi viðbrögð nýs eiganda SANYpet við því verið að senda mann að nafni Eric Durgueil til Íslands í þeim tilgangi að taka út rekstur stefnanda án þess að samráð væri haft við stefnda Alessandro. Að mati stefndu hafi framkoma fyrrgreinds Eric verið dónaleg og hafi hann meðal annars stundað að gefa starfsfólki stefnanda bein fyrirmæli þvert á skipanir stefnda Alessandro. Þá hafi Eric ítrekað misst stjórn á skapi sínu og öskraði hann meðal annars á stefnda Alessandro, niðurlægði og gerði lítið úr honum með ófögrum orðum í viðurvist Daníels Bergmann, framleiðslustjóra stefnanda. Í þriðja lagi vísa stefndu til þess að á Interzoo-ráðstefnunni, sem haldin var í Nürnberg dagana 24.–27. maí 2022, hafi átt sér stað atvik er Jean-Marque Bedueol, nýr framkvæmdastjóri SANYpet, vildi ekkert við stefnda Alessandro ræða, þrátt fyrir að stefndi Alessandro, sem stjórnandi dótturfélags SANYpet, hefði sérstaklega óskað eftir fundi um framtíð stefnanda undir stjórn nýs eiganda. Bendi umrædd viðbrögð á ráðstefnunni til þess að nýr eigandi hafi þá þegar tekið ákvörðun um að „bola“ stefnda Alessandro út með öllum ráðum og unnið væri að því að finna ástæður til þess að losna við hann. Framangreind eigendaskipti á SANYpet, móðurfélagi stefnanda, skipti lykilmáli í þessu sambandi að mati stefnda Alessandro. Engar athugasemdir höfðu verið gerðar við framkvæmd starfa hans í tíð fyrri eiganda og verði því ekki hjá því komist að álykta sem svo að málsókn þessi sé tilkomin að undirlagi nýrra stjórnenda SANYpet.

Hinn 8. ágúst 2022 var ráðningarsamningi stefnda Alessandro rift án nokkurs fyrirvara. Í kjölfar þess voru innstæður á bankareikningum hans kyrrsettar með endurupptekinni kyrrsetningargerð, dagsettri 31. ágúst 2022 nr. […], og innstæður á bankareikningum stefnda Era Trading kyrrsettar með kyrrsetningargerð, dagsettri 30. ágúst 2022 nr. […]. Stefnandi hafi höfðað mál þetta til staðfestingar á kyrrsetningargerðunum og til heimtu skaðabóta úr hendi stefndu án nokkurrar tilraunar til samskipta við stefndu í þeim tilgangi að fá frekari útskýringar á einstökum liðum eða til að leysa málið. Vísa stefndu til þess að laun stefnda Alessandro hafi verið hækkuð í febrúar 2021 en að þau hafi fram til þess tíma verið óbreytt, að kjarasamningsbundnum hækkunum undanskildum. Á þessum tíma hafði félagið tekið upp vaktafyrirkomulag þar sem rekstur stefnanda var keyrður á tveimur vöktum og afköst þar af leiðandi stóraukin. Vinnuframlag stefnda Alessandro jókst því til muna og var ekki í samræmi við það sem upphaflega var um samið.

Stefndu kveðast mótmæla þeirri staðhæfingu stefnanda að forráðamenn SANYpet hafi fyrst fengið upplýsingar um launahækkanir stefnda undir lok júlí 2022. Stefndi Alessandro bendir á að SANYpet, sem stærsti hluthafi stefnanda, hafi alla tíð haft fullan aðgang að Reglu, launa- og bókhaldskerfi stefnanda, þar sem útbúnar séu mánaðarlega skýrslur vegna launakostnaðar fyrirtækisins. Þá hafi SANYpet jafnframt um árabil móttekið og samþykkt ársreikninga stefnanda án athugasemda. Þá verður ekki fram hjá því horft að franska stórfyrirtækið Codico hafi keypt SANYpet í ágúst 2021 að undangenginni ítarlegri áreiðanleikakönnun á samstæðu SANYpet. Það sé því einsýnt að SANYpet hafi alla tíð verið upplýst um stöðu mála hjá stefnanda eða að minnsta kosti haft allar forsendur til þess að kynna sér stöðu mála hjá stefnanda. Þá sé ljóst að hvorki SANYpet né Codico hefði getað dulist launahækkanir stefnda Alessandro eftir umfangsmikla skoðun Codico á samstæðu SANYpet, þar með talið á rekstri stefnanda.

Að sögn stefndu liggi fyrir að stefndi Alessandro hafi gert mistök við skjalagerð ráðningarsamnings síns frá 1. febrúar 2021 þar sem hann skrifaði undir bæði fyrir hönd félagsins og persónulega. Þegar stefndi Alessandro hafi áttað sig á mistökunum hafi hann vísað málinu til formlegrar samþykktar Guðbjargar Björnsdóttur, varamanns í stjórn stefnanda, sem hafi í kjölfarið tekið formlega ákvörðun um launakjör stefnda Alessandro með bókun í gerðarbók, dagsettri 15. september 2021. Í bókuninni komi fram að 1. febrúar 2021 hafi verið undirritaður ráðningarsamningur við stefnda Alessandro en að formgallar hafi verið samningnum sem hafi farið í bága við 48. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög. Í bókun Guðbjargar segir nánar tiltekið: „Hér með staðfestist, fyrir hönd stjórnar Arctic Pet ehf., kt. 480713-0280, Strandgötu, 245 Sandgerði að stjórn félagsins hefur, farið yfir þann ráðningarsamning sem ritað var undir þann 1. febrúar 2021 og staðfest efni hans.“ Af framangreindri bókun í gerðarbók stefnanda, sem undirrituð er af Guðbjörgu Bjarnadóttur, sé ljóst að stór hluti þeirra launahækkana sem stefnandi telur ólögmætar var þvert á móti lögmætur enda uppfærður ráðningarsamningur samþykktur af þar til bærri stjórnareiningu innan félagsins, sbr. 2. mgr. 54. gr. laga nr. 138/1994. Samkvæmt ráðningarsamningnum, sem hafi verið réttilega staðfestur af varamanni í stjórn stefnanda, sé kveðið á um að 2.000.000 króna skyldu greiddar til stefnda Alessandro auk dagpeninga utan staðgreiðslu að fjárhæð 200.000 króna og 5% hlutdeildar í hagnaði stefnanda, til samræmis við samkomulag stefnda Alessandro við Luca Milanesi, þáverandi framkvæmdastjóra SANYpet. Loks komi fram í umræddum samningi að ef félagið myndi ekki skila hagnaði ætti stefndi Alessandro eftir sem áður rétt á árlegri greiðslu að fjárhæð 10.000 evrur.

Stefndi Alessandro kveðst mótmæla því sem röngu og ósönnuðu sem haldið er fram í stefnu að fjármunir til greiðslu á bensínkostnaði hafi verið störfum stefnanda óviðkomandi. Í fyrsta lagi sé verksmiðja stefnanda staðsett í Garði en varahluti, hráefni, umbúðir og fleira hafi þurft að sækja í verslanir á höfuðborgarsvæðinu. Til dæmis hafi leið stefnda Alessandro margsinnis legið upp á Krókháls í Reykjavík í verslun Plasts, miða og tækja (PMT) og á starfsstöð Samhentra – kassagerðar, sem er til húsa í Suðurhrauni 4a í Garðabæ. Sú bifreið sem stefnandi leigði af Era Trading hafi verið notuð til þess að flytja það sem þurfti hverju sinni frá höfuðborgarsvæðinu og í verksmiðju stefnanda í Garði. Af þeim sökum hafi stefndi Alessandro oftsinnis þurft að keyra þar á milli, stundum nokkrar ferðir á dag. Stefndu vísa í þessu samhengi til þess að stefnandi hefur fengið útgefna tvo eldsneytislykla frá Olíuverzlun Íslands hf. og notaði Daníel Bergmann, framleiðslustjóri stefnanda, annan þeirra. Þá hafi stefndi Alessandro oftsinnis lánað lykil sinn öðrum starfsmönnum stefnanda sem stóðu í snúningum fyrir hönd félagsins hverju sinni, einkum Adrian Liviu Ciuchi. Stefndi Alessandro kveðst harðlega mótmæla því að hann sé krafinn um endurgreiðslu eldsneytiskostnaðar sem telst til eðlilegs rekstrarkostnaðar fyrirtækis með starfsemi í Garði. Fullyrðingar um misnotkun eldsneytis séu einfaldlega rangar og algjörlega ósannaðar. Þá kveðst stefndi Alessandro mótmæla því sem ósönnuðu að stefnandi hafi verið látinn greiða reikning vegna lögfræðikostnaðar í tengslum við hjónaskilnað sinn. Að því er varðar kröfu um kostnað vegna síma, heyrnartóla og Macbook Air tölvu kveðst stefndi Alessandro lýsa því yfir að hann muni skila þessum munum þegar máli þessu sé lokið. Stefndi kveðst einnig mótmæla því sem röngu og ósönnuðu að fjármunir til greiðslu vegna ferðalaga erlendis hafi verið óviðkomandi rekstri stefnanda. Líkt og fyrr hefur verið rakið hafi vinnuferðir erlendis, til þess að koma fram fyrir hönd stefnanda og markaðssetja framleiðsluvörur félagsins, verið eðlilegur þáttur í störfum stefnda Alessandro. Þá sé ljóst að stefndi Alessandro hafði sem prókúruhafi og síðar eini stjórnarmaður stefnanda víðtækar heimildir til að stofna til fjárútláta vegna ferðalaga erlendis sem farnar voru í þágu hagsmuna stefnanda. Í fyrsta lagi hafi stefndi Alessandro ferðast í fjölda skipta til Monselice á Ítalíu á skrifstofu SANYpet til þess að funda með fulltrúum SANYpet þar sem stefnandi var einn af helstu birgjum móðurfélags síns. Í þeim tilgangi hafi stefndi Alessandro flogið til Bologna á Ítalíu og gist á hótelum þar í borg, en Bologna er í ríflega klukkustundar fjarlægð frá Monselice. Á umræddum tíma var ekki flogið beint til Bologna frá Íslandi og þurfti stefndi Alessandro því að millilenda á leið sinni til Bologna, einkum í Amsterdam, og gista þar. Vinnuferðir sínar til Monselice nýtti stefndi Alessandro einnig til að hitta mismunandi birgja, þjónustuaðila tækjabúnaðar stefnanda og viðskiptavini félagsins sem voru margir hverjir í norðurhluta Ítalíu. Sem dæmi um aðila sem stefndi Alessandro þurfti að hitta á ferðalögum sínum um Ítalíu voru SANYpet í Monselice, Agrifarma í Piacenza, Zanasi í Sassuolo, Panini og Burani í Modena, Salco í Padova, Smurfit í Vicenzia, MCF í Cesena, Rimac og SAIR í Rieti og Gaetano Attaniasio í Napólí. Byggir stefndi Alessandro á því að þessar ferðir hafi verið farnar í þágu hagsmuna stefnanda. Þá hafi stefnda Alessandro jafnframt verið nauðsynlegt að leigja ökutæki og taka eldsneyti vegna ferða sinna, funda og eftir atvikum greiða fyrir kvöldverði með viðskiptavinum. Í öðru lagi hafi stefndi Alessandro í tvö skipti farið til München í Þýskalandi og í eitt skipti til Kína í tengslum við tvær umfangsmiklar fjárfestingar í vélbúnaði fyrir hönd stefnanda, þar með talið í verksmiðju Waldner í München í Þýskalandi ásamt framleiðslustjóra stefnanda, Daníel Bergmann, og Enrico Fabiani, verktaka sem starfaði á vegum stefnanda. Stefndi Alessandro kveðst svo hafa ekið frá München til Ítalíu og þar með í gegnum Sviss og Austurríki. Nýjum eiganda SANYpet geti ekki hafa dulist það að stefndi Alessandro hafi ferðast í þessum erindagjörðum enda samþykkti nýr eigandi fjárfestinguna á Waldner-vélinni og hefur sú fjárfesting reynst stefnanda afar heillavæn. Í þriðja lagi hafi stefndi Alessandro farið á viðskiptasýningu Interzoo sem haldin var í Nürnberg en með honum í för voru áðurnefndir Daníel Bergmann og Enrico Fabiani. Í fjórða lagi ferðaðist stefndi Alessandro til Möltu á vegum stefnanda, með millilendingu í Zürich þar sem hann þurfti einnig að gista, í þeim tilgangi að hitta nýjan birgja sem seldi stefnanda frosinn túnfisk. Í fimmta lagi hafi stefndi Alessandro ferðast til Miami í Bandaríkjunum í þágu stefnanda til þess að hitta fulltrúa FORZA 10 USA, stærsta viðskiptavin stefnanda í Bandaríkjunum þar sem stefndi Alessandro snæddi meðal annars kvöldverð með fulltrúum viðskiptavinarins. Í sjötta lagi hafi stefndi Alessandro gert sér ferð til Istanbúl í Tyrklandi til þess að hitta birgja á vegum stefnanda og einnig nýjan birgja, sem til skoðunar var að stofna til viðskipta við. Í sjöunda lagi hafi stefndi Alessandro ferðast til Taílands til að hitta hugsanlega viðskiptavini stefnanda frá Malasíu, auk þess að heimsækja framleiðslufyrirtæki í Bangkok. Í áttunda lagi hafi stefnda Alessandro verið gert að ferðast til Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum til að hitta hugsanlega viðskiptavini stefnanda. Í níunda lagi hafi stefndi Alessandro oft og tíðum greitt fé úr eigin vasa í umræddum vinnuferðum en hafi að jafnaði fengið þá endurgreidda frá félaginu enda var sá kostnaður í þágu félagsins. Allt þetta hafi stefndi að miklu leyti gert á tímum heimsfaraldurs kórónuveiru, með tilheyrandi eigin áhættu, en til hagsbóta fyrir starfsemi stefnanda. Sé því ljóst að mati stefnda að sá kostnaður sem greiddur var með kreditkorti frá stefnanda hafi verið vegna vinnuferða erlendis, svo sem vegna flugmiða, hótelgistinga og kvöldverða með viðskiptavinum sem hafi alfarið verið í þágu stefnanda. Stefndi byggir á því að til framangreinds kostnaðar hafi verið stofnað í tengslum við rekstur stefnanda og að um eðlilegan rekstrarkostnað hafi verið að ræða. Þá sé málatilbúnaður stefnanda um hið gagnstæða rangur, tilhæfulaus og með öllu ósannaður. Að mati stefnda Alessandro sé það með ólíkindum að hann sé nú krafinn um endurgreiðslu rekstrartengds ferðakostnaðar, einkum í ljósi þess hversu vel honum tókst að snúa við rekstri stefnanda, en sá árangur sé að hluta til einmitt tilkominn vegna þessara ferða stefnda Alessandro á vegum stefnanda.

Enn fremur kveðst stefndi Alessandro mótmæla því sem röngu og ósönnuðu að greiðsla húsaleigu hafi verið óviðkomandi rekstri stefnanda. Stefndi Alessandro byggir á því að umrædd húsaleiga, sem var fyrir íbúð að Kórsölum 3, hafi verið greidd fyrir verktakann Enrico Fabiani sem hafi unnið í auknum mæli fyrir stefnanda við viðgerðir á tækjabúnaði félagsins og við blöndun á mixtúru fóðursins. Ferðir Enrico hingað til lands hafi því verið orðnar mjög tíðar og dvaldi hann oft um nokkurra vikna skeið hér á landi í hvert skipti. Það var því ljóst að Enrico var mjög mikilvægur fyrir starfsemi stefnanda þrátt fyrir að vera verktaki. Stefnda Alessandro hafði verið tjáð að sambærilegt fyrirkomulag hafi verið við lýði hjá stefnanda í tengslum við annan verktaka áður en Alessandro hóf störf hjá stefnanda. Vildi stefndi Alessandro, sem prókúruhafi og eini stjórnarmaður stefnanda, því útvega Enrico húsnæði á Íslandi. Taldi stefndi Alessandro þetta fyrirkomulag hagfelldara, bæði fyrir félagið og fyrir umræddan Enrico, í stað þess að leigja húsnæði til skamms tíma í hvert skipti sem Enrico kæmi til starfa fyrir félagið. Stefndi Alessandro bendir jafnframt á að þrátt fyrir að umrætt leiguhúsnæði hafi verið leigt í hans nafni hafi hann aldrei búið þar. Stefndi Alessandro byggir á því að framangreindur kostnaður eigi sér því eðlilegar skýringar og að stofnað hafi verið til kostnaðarins í þágu rekstrar stefnanda. Þetta hefði stefnandi auðveldlega getað aflað sér upplýsinga um með því einfaldlega að spyrjast fyrir eða með gögnum úr bókhaldi félagsins í stað þess að ráðast á eftir stefnda með þeim hætti sem gert er í stefnu.

Stefndi mótmælir því sem röngu og ósönnuðu að kaup á þeim vörum sem vísað sé til af hálfu stefnanda hafi verið óviðkomandi rekstri félagsins. Vísar stefndi Alessandro í fyrsta lagi til þess að hluti af umræddum kostnaði hafi verið tilkominn vegna uppsetningar á skrifstofu á heimili stefnda Alessandro þegar heimsfaraldur Covid-19 gekk yfir, svo sem skrifborðsstóll og ábreiða, skrifstofuhirsla frá Casa ásamt lyklaborði, mús og útvarpi frá Elko. Í öðru lagi hafi ýmsar þær vörur sem stefndi Alessandro sé krafinn um verið keyptar fyrir skrifstofu stefnanda í Garði, til dæmis eldhúsáhöld og sófar frá IKEA, ilmolíulampar, klósettseta og fleira. Í þriðja lagi sé vert að nefna að ástæða þess að stefnandi greiddi fyrir ísskáp og sendingu hans heim til stefnda Alessandro hafi verið sú að stefndi hafði látið af hendi sinn eigin ísskáp, sem þó var nýlegur, til rúmenskra starfsmanna stefnanda í Garði. Í fjórða lagi hafi verið ákveðið að stefnandi myndi útvega Enrico Fabiani rúm, þvottavél og þurrkara í leiguíbúð hans er stefnandi greiddi og voru þessar vörur keyptar frá Dorma og Elko. Líkt og áður hefur verið rakið hafi verið talið nauðsynlegt að útvega Enrico húsnæði hér á landi enda mikilvægur hlekkur í starfsemi stefnanda. Var honum í því samhengi einnig útvegað rúm til að sofa í og vélar til að þvo og þurrka föt sín. Í fimmta lagi kveðst stefndi Alessandro benda á að Air fryer tæki, sem hann sé nú krafinn um greiðslu á, hafi verið skilað og hafi stefnandi fengið endurgreiðslu frá Elko. Telur stefndi Alessandro þetta vera til marks um slælega kröfugerð stefnanda í máli þessu, þar sem stefnandi hafi í raun tekið allan mögulegan kostnað og krafið stefnda um greiðslu þess án þess að kalla eftir nokkrum útskýringum frá stefnda Alessandro. Stefndu kveðast með framangreindu hafa brugðist við helstu atriðum í kröfugerð stefnanda. Sökum umfangs þeirra gagna sem lögð eru fram af hálfu stefnanda, fálegra útskýringa og þess að allt bókhald stefnanda er í hans vörslum sé ljóst að framangreind umfjöllun er ekki tæmandi en leitast hafi verið við að gera eins ítarlega grein fyrir einstökum liðum og frekast sé unnt í ljósi aðstæðna.

Stefndu kveðast mótmæla því harðlega að gefnir hafi verið út tilhæfulausir reikningar til stefnanda frá stefnda Era Trading, félagi í eigu stefnda Alessandro. Þeir reikningar sem gefnir voru út af stefnda Era Trading voru einkum þrenns konar og eiga sér allir eðlilegar skýringar. Í fyrsta lagi voru gefnir út mánaðarlegir reikningar að fjárhæð 200.000 krónur auk virðisaukaskatts vegna leigu á bifreið sem stefndi Alessandro hafði afnot af. Komst stefnandi með þessu fyrirkomulagi hjá því að leigja aðrar og dýrari bifreiðir, líkt og áður hefur verið rakið. Innihalda umræddir reikningar ýmist skýringuna „renting equipment“ eða „renting agreement“. Í öðru lagi innheimti stefndi Era Trading þóknun stefnda Alessandro fyrir stjórnarsetu hjá stefnanda til samræmis við samkomulag hans við Luca Milanesi, líkt og áður hafi verið rakið. Um sé að ræða (i) reikning að fjárhæð 1.500.000 krónur auk virðisaukaskatts, dagsettan 9. ágúst 2021, með textaskýringunni „service“, (ii) reikning að fjárhæð 737.450 krónur, dagsettan 12. janúar 2022, með textaskýringunni „service agreement without VAT“, og (iii) reikning að fjárhæð 1.068.525 krónur, dagsettan 31. mars 2022, með textaskýringunni „board salaries“. Í þriðja lagi hafi stefndi Era Trading gefið út reikninga vegna 5% hlutdeildar í hagnaði stefnanda til samræmis við fyrrnefnt samkomulag við Luca Milanesi. Um sé að ræða tvo reikninga, annars vegar fyrir rekstrarárið 2020 að fjárhæð 2.438.924 krónur auk virðisaukaskatts, dagsettan 15. mars 2021, með textaskýringunni „Service agreement“ og hins vegar fyrir rekstrarárið 2021 að fjárhæð 3.761.833 krónur, dagsettan 6. apríl 2022, með textaskýringunni „bonus of 5% on profit year 2021 of Arctic pet ehf.“ Telja stefndu því fullljóst að allir umræddir reikningar eigi sér eðlilegar skýringar, í samræmi við gerða samninga, og teljist til eðlilegs rekstrarkostnaðar stefnanda.

Þessu til viðbótar, og í samræmi við samkomulag stefnda Alessandro og Luca Milanesi, sem hafi verið í fullu gildi á meðan hann vann hjá stefnanda, kveðst stefndi Alessandro áskilja sér fullan rétt til að krefjast 5% hlutdeildar í hagnaði stefnanda vegna rekstrarársins 2022, í réttu hlutfalli við þá mánuði sem hann vann fyrir félagið. Í þessu sambandi sé skorað á stefnanda að leggja fram milliuppgjör vegna rekstrar stefnanda á tímabilinu 1. janúar til 31. ágúst 2022, auk annarra reikningshaldslegra upplýsinga um rekstur og afkomu stefnanda.

Stefndu krefjast sýknu af fjárkröfum stefnanda en til vara niðurfellingar eða verulegrar lækkunar. Kveðst stefndi Alessandro byggja á því að athafnir hans hafi ætíð verið í þágu félagsins. Hann hafi haft umsjón með daglegum rekstri stefnanda sem eini stjórnarmaður félagsins, sbr. 44. gr. laga nr. 138/1994, og hafi því haft heimildir til að taka ákvarðanir um fjárútlát tengd daglegum rekstri stefnanda. Háttsemi hans hafi því hvorki verið saknæm né ólögmæt, hvorki í skilningi sakarreglunnar né 108. gr. laga nr. 138/1994. Í stefnu sé stefndi Alessandro hins vegar krafinn um greiðslu alls mögulegs og ómögulegs kostnaðar sem hann á að hafa stofnað til í störfum sínum fyrir stefnanda. Kveðst stefndi Alessandro byggja á því að slíkt standist ekki skoðun, líkt og rakið hafi verið. Stærsti hluti þess kostnaðar sem stefndi Alessandro sé krafinn um eigi sér eðlilegar skýringar. Því sé ótæk sú niðurstaða að slíkur kostnaður, sem hafi verið stofnað til í þágu rekstrar stefnanda, verði greiddur úr vasa stefnda Alessandro.

Stefndu kveðast byggja á því að skilyrði sakarreglunnar séu ekki uppfyllt. Samkvæmt sakarreglunni beri stefnanda að sýna fram á ætlað tjón og umfang þess með skýrum hætti, ólögmæta háttsemi stefndu og hver orsakatengsl séu milli ætlaðs tjóns og háttsemi stefndu. Því til viðbótar þurfi tjónið að vera sennileg afleiðing hinnar saknæmu háttsemi. Stefnandi hafi í stefnu haldið því fram að hafa orðið fyrir tjóni vegna kostnaðar sem stofnað hafi verið til í nafni stefnanda og sé honum óviðkomandi. Stefndu byggja á því að um sé að ræða kostnað sem stofnað hafi verið til í þágu hagsmuna rekstrar stefnanda og að stefnandi beri sönnunarbyrðina fyrir því að sýna fram á að ekki sé um rekstrartengdan kostnað að ræða. Það sé óumdeilt að stefndi Alessandro hafði, sem eini stjórnarmaður og prókúruhafi stefnanda, víðtækar heimildir til að stofna til kostnaðar í nafni stefnanda og í þágu rekstrarins. Þá sé ítrekað að engar athugasemdir hafi verið gerðar af hálfu stefnanda, hluthafa stefnanda, bókara eða skoðunarmanns stefnanda í tengslum við hina umþrættu kostnaðarliði. Það hafi ekki verið fyrr en við birtingu stefnu sem stefndu hafi fengið veður af kröfugerð stefnanda í þessu sambandi. Það að safna saman fjölda skjala, gera þau tortryggileg og vefengja lögmæti þeirra breyti að mati stefndu í engu þeirri grundvallarreglu að stefnandi beri sönnunarbyrði fyrir fullyrðingum sínum. Eigi það ekki síst við í ljósi framkominna skýringa stefndu á tilurð hinna umþrættu kostnaðarliða og með hvaða hætti þeir tengdust rekstri stefnanda, líkt og rakið hafi verið. Með sömu rökum og að framan sé rakið sé ljóst að skilyrði skaðabóta samkvæmt 108. gr. laga nr. 138/1994 séu ekki uppfyllt.

Stefndu vísa til þess að stefnandi hafi hvorki heimfært kröfuliði í stefnu undir sakarregluna né 108. gr. laga nr. 138/1994. Því sé ljóst að verulega vanti upp á að sýnt sé fram á umfang tjóns. Stefndi Alessandro hafi haft víðtækar heimildir til að skuldbinda stefnanda og hafi rökstutt að um eðlilegan rekstrarkostnað hafi verið að ræða. Verði því ekki séð að um ólögmæta og saknæma háttsemi af hans hálfu hafi verið að ræða. Þá verði ekki séð að skilyrði um orsakatengsl og sennilega afleiðingu sé uppfyllt enda um eðlilegan rekstrarkostnað að ræða sem megi í einhverjum tilfellum segja að hafi stuðlað að aukinni veltu og bættri afkomu stefnanda.

Að því er varðar stefnda Era Trading er á því byggt að útgáfa reikninga hafi verið til samræmis við samkomulag á milli stefnda Alessandro og Luca Milanesi, þáverandi framkvæmdastjóra SANYpet, um hvatagreiðslur til stefnda Alessandro og greiðslur fyrir stjórnarsetu. Byggja stefndu á því að það sé engum vafa undirorpið að áðurnefndur Luca Milanesi hafði sem framkvæmdastjóri SANYpet, eina hluthafa stefnanda, heimild til umræddrar samningsgerðar. Að framangreindu virtu sé ljóst að skilyrði sakarreglunnar eru ekki uppfyllt hvað þessar greiðslur til stefna Era Trading varðar enda byggja þær á framangreindum samningi.

Hvað varðar reikninga, útgefna af stefnda Era Trading, um leigu á bifreið til stefnanda vísa stefndu til þess að til hafi staðið að útvega stefnda Alessandro bifreið til afnota og hefði kostnaður vegna leigu sambærilegrar bifreiðar verið að minnsta kosti jafn hár og greitt var til stefnda Era Trading. Þá var framangreint fyrirkomulag ekki tilkomið fyrir tilstuðlan stefndu heldur að tillögu skoðunarmanns stefnanda, sem skipaður var af SANYpet. Með vísan til framangreinds byggja stefndu á því að stefnandi hafi ekki orðið fyrir tjóni vegna framangreindrar leigu bifreiðar af stefnda Era Trading heldur megi þvert á móti halda því fram að ráðstöfunin hafi verið til hagsbóta fyrir stefnanda. Enn fremur byggja stefndu á því að hvorki hafi verið um að ræða ólögmæta og saknæma háttsemi af hálfu stefndu hvað þetta varðar né heldur séu skilyrði um orsakatengsl og sennilega afleiðingu uppfyllt.

Að framangreindu virtu sé með engu móti tækt að mati stefndu að halda því fram að umræddir reikningar séu tilhæfulausir og því beri að sýkna stefndu af kröfum stefnanda.

Þá kveðst stefndi Alessandro mótmæla því sérstaklega sem fram kemur í stefnu um að hann skuli bera óskipta ábyrgð (in solidum) á fjárkröfum stefnanda á hendur stefnda Era Trading. Byggir stefndi Alessandro á því að stefndi Era Trading sé sjálfstæður lögaðili í formi einkahlutafélags og ábyrgð hans sem hluthafa því takmörkuð. Ljóst sé að mikið þurfi að koma til svo að meginreglum hlutafélagaréttar verði kastað fyrir róða með þeim hætti sem látið er að liggja í stefnu. Verulega skorti á að fullnægjandi grein sé gerð fyrir slíkri niðurstöðu í stefnu eða með hvaða hætti stefnandi axli þá sönnunarbyrði sem af honum sé krafist í þeim efnum.

Komi til þess að dómurinn telji stefnda Alessandro skaðabótaskyldan að einhverju leyti og að ráðningarsamningurinn frá 29. mars 2019 hafi verið sá eini sem komist hafi á með lögformlega réttum hætti byggir stefndi Alessandro á því að hann eigi gagnkröfu til skuldajafnaðar á hendur stefnanda vegna vangreiddra launa. Í grein 3.1 í ráðningarsamningi aðila var kveðið á um að kr. 1.000.000 skyldu „greiddar til“ stefnda Alessandro mánaðarlega: „As compensation for the full and faithful performance of such services to be rendered by the Employee to the Company prescribed pursuant to Article 2, during the term hereof, Arctic Pet shall pay to the Employee a salary of ISK 1.000.000 (one million) per month, payable on the first day of each succeeding month for work rendered the previous month [...]“

Að sögn stefndu vísi ráðningarsamningur aðila þannig til útborgaðra launa sem stefndi Alessandro hafi átt að fá greidd í sinn vasa. Stefndi Alessandro, sem er ítalskur ríkisborgari, byggir á því að félaginu hafi verið í lófa lagið að hafa orðalag samningsins skýrara ef ætlunin hefði verið að útborguð laun næmu lægri fjárhæð heldur en greinir í samningnum. Vísar stefndi Alessandro til andskýringarreglu íslensks samningaréttar máli sínu til stuðnings, en reglan felur það í sér að óskýr samningsákvæði skuli að jafnaði túlkuð þeim í óhag er samdi þau einhliða. Eigi það ekki síst við þegar um aðstöðumun sé að ræða, líkt og hér um ræði. Í þessu sambandi bendir stefndi Alessandro á að samningsgerðin hafi verið í höndum þáverandi stjórnarformanns stefnanda, lögmannsins Benedetto Vals Nardini, en stefndi Alessandro hafi ekki notið lögmannsaðstoðar.

Stefndi telur því ljóst að stefnandi hefði með réttu átt að greiða 1.000.000 króna mánaðarlega inn á reikning sinn auk dagpeninga utan staðgreiðslu að fjárhæð 150.000 krónur. Fyrir liggi hins vegar að stefnandi greiddi stefnda Alessandro ekki laun til samræmis við orðalag samningsins heldur miðaði við það að 1.000.000 króna væri heildarfjárhæð launa sem væri undirorpin frádrætti skatts í staðgreiðslu. Byggir stefndi Alessandro þannig á því að stefnandi hafi vangreitt honum laun á tímabilinu frá 1. apríl 2019 til 31. janúar 2021 og krefst þess að stefnandi greiði honum hin ógreiddu laun. Hefur stefndi Alessandro uppi gagnkröfu til skuldajafnaðar af því tilefni úr hendi stefnanda og byggir á því að hann hefði mánaðarlega átt að fá greidda 1.000.000 króna í útborguð laun auk 150.000 króna í dagpeninga utan staðgreiðslu. Af launaseðlum stefnda Alessandro á umræddu tímabili má greina að vangreidd laun nema samtals 7.142.350 krónum, sem sundurliðast með eftirfarandi hætti:

Mánuður: Laun skv. ráðningar- samningi (ISK): Útborguð laun (ISK): Ógreidd laun (ISK):
apr.19 1.150.000 779.175 370.825
maí.19 1.150.000 779.175 370.825
jún.19 1.150.000 779.175 370.825
júl.19 1.150.000 779.175 370.825
ágú.19 1.150.000 779.175 370.825
sep.19 1.150.000 779.175 370.825
okt.19 1.150.000 779.175 370.825
nóv.19 1.150.000 819.785 330.215
des.19 1.150.000 779.175 370.825
jan.20 1.150.000 683.428 466.572
feb.20 1.150.000 783.428 366.572
mar.20 1.150.000 583.428 566.572
apr.20 1.150.000 869.168 280.832
maí.20 1.150.000 842.482 307.518
jún.20 1.150.000 836.516 313.484
júl.20 1.150.000 838.560 311.440
ágú.20 1.150.000 850.537 299.463
sep.20 1.150.000 950.537 199.463
okt.20 1.150.000 950.537 199.463
nóv.20 1.150.000 1.000.335 149.665
des.20 1.150.000 950.537 199.463
jan.21 1.150.000 964.972 185.028
Samtals ógreidd laun: 7.142.350

Ef talið verður að einhverjir hinna umþrættu kostnaðarliða geti ekki talist eðlilegur frádráttarbær kostnaður stefnanda vísa stefndu til þess að stefndi Alessandro hafi notið aðstoðar fagaðila sem valinn var af hluthafa félagsins í tengslum við færslu bókhalds og reikningsskil þess. Hvað sem líði frádráttarbærni slíks kostnaðar í skattskilum verði engu að síður að telja að um sé að ræða kostnað félagsins sem ótækt sé að stefndi Alessandro verði látinn greiða úr eigin vasa.

Verði talið að stefndu hafi að einhverju leyti gerst skaðabótaskyldir byggja stefndu á því að stefnandi hafi sýnt af sér mikið tómlæti við innheimtu krafna sinna. Vísa stefndu til þess að tómlæti sé mjög ríkt í vinnurétti og þurfi í þeim efnum að grípa tafarlaust til aðgerða ætli vinnuveitendur að innheimta ofgreidd laun og annan kostnað frá starfsmönnum sínum. Í þessu samhengi skuli ítrekað að eini hluthafi stefnanda, SANYpet, hafði fullan aðgang að Reglu, launakerfi stefnanda, og þar með mánaðarlegum skýrslum af launakostnaði fyrirtækisins. Þá móttók SANYpet ársreikninga stefnanda án nokkurra athugasemda. Enn fremur réðist nýi eigandi SANYpet, franska stórfyrirtækið Codico, í ítarlega áreiðanleikakönnun á samstæðu SANYpet árið 2021, þar með talið stefnanda. Það sé því algjörlega ótækt að nýr eigandi SANYpet ætli sér nú, um það bil ári eftir kaup á stefnanda, að skrapa saman einhverja reikninga hér og þar í þeirri von að endurheimta hluta af kaupverðinu á SANYpet úr vasa starfsmanns á Íslandi.

Stefndu krefjast þess til vara að kröfur stefnanda um skaðabætur verði felldar niður eða lækkaðar verulega. Varakröfu sína um niðurfellingu eða verulega lækkun byggja stefndu á sömu málsástæðum og fyrir aðalkröfu fjárkrafna, eftir því sem við getur átt, en miða við að fella beri niður eða lækka fjárkröfur stefnanda, meðal annars þar sem stefnanda hafi ekki tekist að sanna tjón sitt og í ljósi þess að stefnandi hefur gerst sekur um umtalsvert tómlæti við að hafa uppi kröfur sínar. Í þessu sambandi vísar stefndi Alessandro einnig til 24. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993, sem innihaldi almenna reglu þess efnis að lækka megi eða fella niður skaðabótaábyrgð ef ábyrgðin yrði hinum bótaskylda svo þungbær að ósanngjarnt megi telja eða álíta verði að öðru leyti skerðingu eða niðurfellingu sanngjarna vegna mjög óvenjulegra aðstæðna. Þegar metið sé hvort ástæða sé til að beita heimildinni skuli líta til þess hve mikið tjónið er, eðlis bótaábyrgðar, aðstæðna tjónvalds, hagsmuna tjónþola, vátrygginga aðila og annarra atvika. Áréttað sé í þessu sambandi að stefndi Alessandro starfaði ætíð með hagsmuni stefnanda að leiðarljósi. Fari svo að fallist verði á kröfur stefnanda, gegn mótmælum stefnda Alessandro, sé ljóst að slík niðurstaða yrði verulega ósanngjörn eins og atvikum er háttað og stefndi Alessandro hefur ekki fjárhagslega burði til þess að mæta kröfum stefnanda. Þá telur stefndi Alessandro allar forsendur vera til að fella niður ætlaða ábyrgð hans á grundvelli 3. mgr. 108. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög.

Stefndu krefjast synjunar á staðfestingu á kyrrsetningargerðum nr. […] og nr. […], sem framkvæmdar voru hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu 30. og 31. ágúst 2022. Byggja stefndu kröfur sínar á sömu málsástæðum og aðalkröfu fjárkrafna, eftir því sem við getur átt. Stefndu benda á að stefnandi byggi kröfur sínar eingöngu á því að stefndi Alessandro sé ítalskur ríkisborgari og því séu líkur á að hann komi eignum sínum og eigum stefnda Era Trading úr landi. Mótmæla stefndu þessu harðlega og byggja á því að engar sönnur hafi verið færðar fyrir því að stefndi sé líklegur til nokkurs slíks. Stefndi Alessandro hafi búið hér á landi í um 20 ár og eigi hér tvö börn með fyrrverandi eiginkonu sinni, sem eru íslenskir ríkisborgarar.

Um lagarök vísa stefndu til almennra reglna skaðabótaréttar og meginreglna kröfu- og samningaréttar. Þá vísast til laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög, einkum 44. gr. og 54. gr., laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála, einkum 80. gr., og laga nr. 31/1990 um kyrrsetningu, lögbann o.fl.

VI

Forsendur og niðurstaða

Við aðalmeðferð málsins gaf símaskýrslu sem vitni Sergio Canello, fyrrverandi stjórnarformaður SANYpet S.p.A. Hann átti áður rúmlega helmingseignarhlut í félaginu, en kveðst nú eiga 5% eignarhlut í því. Þá gáfu skýrslu sem vitni Daníel Bergmann Róbertsson, fyrrverandi framleiðslustjóri hjá stefnanda, og Guðbjörg Björnsdóttir, fyrrverandi skrifstofustjóri hjá stefnanda.

Tveir fyrstu kröfuliðir stefnanda lúta að því að staðfestar verði með dómi kyrrsetningargerðir Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu sem fóru fram dagana 30. og 31. ágúst 2022, sbr. 1. mgr. 36. gr. laga nr. 31/1990, annars vegar hjá stefnda Alessandro Era og hins vegar hjá stefnda Era Trading ehf. Í síðari tveimur kröfuliðum stefnu er þess krafist annars vegar að stefnda Alessandro verði gert að greiða stefnanda 46.263.345 krónur með tilgreindum dráttarvöxtum og hins vegar að „stefndi Era Trading ehf. verði dæmdur til að greiða stefnanda, þar af óskipt með stefnda Alessandro, 19.807.698 krónur“ með tilgreindum dráttarvöxtum. Af útlistun fjárkrafna í stefnu verður ráðið að stefnukrafan nemi að samtölu 46.263.345 krónum en af henni skuli stefndi Era Trading ehf. greiða óskipt með stefnda Alessandro 19.807.698 krónur, í báðum tilvikum með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 frá 9. september 2022 til greiðsludags.

Rétt þykir að fyrst verði fjallað um fjárkröfur stefnanda samkvæmt síðari tveimur kröfuliðum í stefnu.

Samkvæmt samþykktum stefnanda frá 15. desember 2019 er megintilgangur félagsins framleiðsla á gæludýrafóðri úr fiski og kjöti, auk annarrar starfsemi, og starfrækir félagið verksmiðju í Garði. Af gögnum máls, einkum framlögðum ársreikningum félagsins, verður ekki ráðið að umsvif félagsins hafi verið veruleg. Að framan greinir að stefndi, Alessandro Era, var annar stofnandi stefnanda ásamt félaginu Skinnfiski ehf. og var jafnframt skráður helmingseigandi félagsins við stofnun þess 12. júní 2013, en síðar það ár eignaðist ítalska félagið SANYpet S.p.A. 85% eignarhlut í stefnanda á móti 10% eignarhluta Skinnfisks ehf. og 5% eignarhluta stefnda, Alessandro. Sinnti stefndi starfi stjórnarformanns stefnanda frá stofnun félagsins allt fram til 4. mars 2014 en sat frá þeim tíma í stjórn félagsins fram til 3. mars 2015, þegar hann lét af störfum hjá félaginu. Stefndi hóf á ný störf hjá stefnanda 1. apríl 2019 í samræmi við ráðningarsamning sem undirritaður var 21. febrúar sama ár. Stefndi var kjörinn í stjórn félagsins 15. nóvember það ár og réttu ári síðar var hann eini stjórnarmaður félagsins. Þá liggur fyrir að stefndi fór einn með prókúru vegna félagsins frá 28. maí 2019 til 8. ágúst 2022, en á þeim tíma starfaði enginn framkvæmdastjóri hjá stefnanda. Af framburði vitnisins Sergio Canello, þáverandi stjórnarmanns SANYpet S.p.A., má ráða að stefndi, Alessandro, hafi í raun stjórnað félagi stefnanda.

Líkt og rakið hefur verið gerir stefnandi annars vegar kröfu á hendur stefndu, hvorum um sig og saman, um greiðslu skaðabóta vegna útgjalda sem stefndi, Alessandro, hafi ráðist í á kostnað stefnanda, án heimildar, og með því bakað sér og einkahlutafélagi sínu, Era Trading ehf., skaðabótaskyldu eða eftir atvikum að stofnast hafi á hendur þeim skylda til endurgreiðslu.

Stefnandi er einkahlutafélag sem starfar sem slíkt samkvæmt lögum nr. 138/1994. Slík félög eru sjálfstæðar persónur að lögum og verða slík félög hvorki samsömuð eigendum sínum né stjórnendum þeirra. Þótt lögin hafi ekki að geyma fyrirmæli sem banna stjórnarmönnum eða forsvarsmönnum einkahlutafélags að eiga viðskipti við félagið leiðir af ákvæði 51. gr. laganna að félagsstjórn, framkvæmdastjóri og aðrir þeir er hafa heimild til að koma fram fyrir hönd félagsins mega ekki gera nokkrar þær ráðstafanir sem eru fallnar til þess að afla ákveðnum hluthöfum eða öðrum ótilhlýðilegra hagsmuna á kostnað annarra hluthafa eða félagsins. Þá greinir í 48. gr. laganna að stjórnarmaður eða framkvæmdastjóri megi ekki taka þátt í meðferð máls um samningsgerð milli félagsins og hans, um málshöfðun gegn honum eða um samningsgerð milli félagsins og þriðja manns eða málshöfðun gegn þriðja manni ef hann hefur þar verulegra hagsmuna að gæta sem kunna að fara í bága við hagsmuni félagsins. Stjórnarmanni og framkvæmdastjóra er skylt að upplýsa um slík atvik. Hefur ákvæðið verið skýrt svo að vanhæfisreglur þess gildi um stjórnarmann eða framkvæmdastjóra sjálfan, maka hans og börn, auk félaga í eigu stjórnanda eða hann situr í stjórn í, enda sé hlutur hans í félagi svo stór að telja verði að hann eigi þar hagsmuna að gæta. Þá hefur ákvæðið verið talið taka til hvers kyns ákvarðana sem leiða eða geta leitt til samnings. Ákvæði 48. gr. laganna er efnislega samhljóða 72. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995, sbr. ákvæði 53. gr. eldri laga um hlutafélög nr. 32/1978. Í athugasemdum með ákvæðinu segir meðal annars að ákvæði greinarinnar um bann við þátttöku í meðferð mála um samningsgerð og málshöfðun gildi skilorðslaust þegar um er að ræða samningsgerð milli félagsins og stjórnarmanns eða framkvæmdastjóra eða málshöfðun félagsins gegn þeim. Sé hins vegar um að ræða meðferð mála um samningsgerð milli félagsins og þriðja manns eða málshöfðun gegn þriðja manni er stjórnarmanni eða framkvæmdastjóra því aðeins heimilt að taka þátt í meðferð máls að þeir hafi þar verulegra hagsmuna að gæta er kynnu að fara í bága við hagsmuni félagsins. Í þeim tilvikum ræðst það af atvikum hvort um slíka hagsmunaárekstra sé að ræða að þátttaka í málsmeðferð skuli óheimil. Samkvæmt 1. mgr. 108. gr. laganna er stofnendum, stjórnarmönnum og framkvæmdastjórum skylt að bæta einkahlutafélagi það tjón sem þeir hafa valdið því í störfum sínum hvort sem er af ásetningi eða gáleysi.

Óumdeilt er að stefndi, Alessandro, stofnaði til þeirra útgjalda og kostnaðar sem stefnandi gerir nú bótakröfu vegna og hefur fjárhæð þess kostnaðar og þeirra útgjalda ekki sætt andmælum af hálfu stefndu. Lúta fjárkröfur stefnanda annars vegar að því að stefndi Alessandro hafi nýtt sér aðstöðu sína hjá stefnanda til að áskilja sér hærri launagreiðslur en upphaflegur ráðningarsamningur eða starfstilboð gerði ráð fyrir og hafa í heimildarleysi gert nýjan ráðningarsamning við sjálfan sig fyrir hönd félagsins. Með því hafi stefndi Alessandro úthlutað sér fjármunum stefnanda í formi launagreiðslna í andstöðu við umsamin ráðningarkjör. Nemur fjárhæð krafna stefnanda hvað þennan þátt varðar mismun á launagreiðslum samkvæmt upphaflegum ráðningarkjörum og þeim greiðslum sem stefndi tók sér umfram þá fjárhæð. Jafnframt eru kröfur stefnanda byggðar á því að stefndi Alessandro hafi látið stefnanda greiða kostnað sem verið hafi félaginu óviðkomandi, svo sem lögfræðikostnað í tengslum við hjónaskilnað hans, kostnað vegna kaupa á húsgögnum til hans eigin nota, kostnað vegna húsaleigu fyrir íbúð sem hann hafi sjálfur búið í, bensínkostnað stefnda, auk óheimillar notkunar hans á greiðslukorti stefnanda vegna ferðalaga. Þá gerir stefnandi kröfu vegna fartölvu, síma og heyrnartóla sem stefndi hafi fengið til afnota hjá stefnanda en ekki skilað.

Kröfur stefnanda á hendur stefndu Alessandro og Era Trading ehf. eru grundvallaðar á þeim millifærslum sem áttu sér stað frá stefnanda til stefnda Era Trading ehf. á grundvelli ætlaðra tilhæfulausra reikninga sem hið stefnda félag gaf út til stefnanda.

Ágreiningur málsins lýtur því í grunninn að því annars vegar hvort stefnda Alessandro hafi verið heimilt að áskilja sér laun umfram þau laun sem ákvörðuð voru í starfstilboði frá 21. febrúar 2019 og hins vegar hvort umræddar úttektir, útgjöld og reikningar geti talist eðlilegur rekstrarkostnaður stefnanda.

Verður nú fjallað um einstaka kröfuliði í stefnu og þá fyrst þá sem varða stefnda Alessandro eingöngu.

-

Launagreiðslur. Liður 3 í dómkröfum stefnanda

Áður hefur verið rakið að í málinu liggi fyrir skriflegt boð stefnanda til stefnda, Alessandro (e. Offer of Employment) sem dagsett er 21. febrúar 2019. Í skjalinu greinir að stefnda sé boðið að taka við stöðu rekstrarstjóra (e. director of operations) hjá stefnanda frá og með 1. apríl sama ár. Um sér að ræða fullt starf. Í samningstilboðinu segir orðrétt í íslenskri þýðingu: „Brúttó grunnlaun: 1.000.000 krónur í laun á mánuði sem greiðast fyrsta dag hvers mánaðar. Engin umbun verður greidd fyrir yfirvinnu eða vinnutengd verkefni af neinu tagi.

Hlunnindi: Auk brúttó grunnlauna færðu 150.000 krónur sem fasta endurgreiðslu

ferðakostnaðar.

- Farsíma og tengd útgjöld - fartölvu Orlof: Þú átt rétt á 28 virkra daga [e. working days] / 4 vikna launuðu orlofi á ári hverju.

Aðrir skilmálar verða tilgreindir í endanlegum ráðningarsamningi.“

Í málinu liggur jafnframt fyrir óundirritað eintak ráðningarsamnings stefnanda við stefnda Alessandro, ritað á ensku (e. Employment Agreement) en skjalið hefur ekki verið lagt fram í íslenskri þýðingu. Er þar að finna ákvæði sem er að mestu samhljóða því sem fram kemur í fyrrgreindu samningstilboði.

Kröfugerð stefnanda hvað þetta varðar er að hans sögn grundvölluð á mismun þeirra launagreiðslna sem stefnda Alessandro voru ákvörðuð samkvæmt skriflegu samningstilboði stefnanda frá 21. febrúar 2019 og þeim launagreiðslum sem stefndi tók sér um- fram þær launagreiðslur sem þar voru ákveðnar, líkt og nánar er vikið að í stefnu og útlistað er á sérstöku yfirliti stefnanda.

Í samræmi við fortakslaust ákvæði 48. gr. laga nr. 138/1994 var stefnda Alessandro óheimilt að gera ráðningarsamning við sjálfan sig heldur hefði þurft aðkomu hluthafa stefnanda til slíkrar samningsgerðar, enda fól samningurinn í sér umtalsverða hækkun áður umsaminna launakjara stefnda. Það sama á við um aðrar launagreiðslur sem greiddar voru stefnda umfram umsamin starfskjör. Að mati dómsins breytir bókun eða yfirlýsing vitnisins Guðbjargar Björnsdóttur, þáverandi varamanns í stjórn stefnanda, engu enda verður að líta svo á að ráðningarsamningurinn hafi verið ólögmætur frá öndverðu, enda ljóst að ekki var gætt fyrrgreinds ákvæðis laganna við meðferð málsins.

Fjárhæðum hvað þennan lið í kröfugerð stefnanda varðar hefur ekki verið andmælt af hálfu stefndu og verða þær því lagður til grundvallar við úrlausn málsins.

- Aðrir kröfuliðir þriðju dómkröfu stefnanda Eins og málið liggur fyrir dóminum er það stefndu að sýna fram á einhverjar skýringar sem taka má hliðsjón af við mat á úrlausn málsins. Stefndi Alessandro gaf ekki skýrslu fyrir dóminum og hefur auk þess lagt fram afar fábrotin gögn til stuðnings þeim útgjöldum sem stefndu eru krafðir endurgreiðslu á.

Að þessu gættu verður við mat á sönnun vegna einstakra kröfuliða að horfa til þess hversu mikil líkindi eru framkomin um rekstrarlega nauðsyn þess kostnaðar sem ráðist var í af hálfu stefnda Alessandro og þeirra greiðslna sem inntar voru af hendi til beggja stefndu. Verður þá jafnframt að horfa til þess hvort stefndi hafi með einhverjum hætti gefið skýringar sem taldar verði að dugi til upplýsinga um einstaka kröfuliði, en að mati dómsins var stefnda Alessandro, sem eina stjórnarmanni og prókúruhafa stefnanda, í lófa lagið að leggja fyrir dóminn skýringar þeirra útgjalda sem málið varðar.

Með vísan til þeirra sjónarmiða sem að framan eru rakin verður að fallast á með stefnanda að stefndi Alessandro hafi með saknæmum og ólögmætum misnotað aðstöðu sína hjá stefnanda með því að láta félagið greiða og inna af hendi greiðslur vegna ýmissa útgjalda og taldar eru upp í stefnu.

Er það því mat dómsins að fallast beri að fullu á kröfur stefnanda er lúta að úttektum og greiðslum vegna ferðalaga stefnda Alessandro erlendis. Hefur stefnandi til stuðnings kröfugerð sinni lagt fram yfirlit greiðslukortafærslna og umtalsvert magn færslukvittana vegna kaupa á ýmsu smálegu, bæði hér á landi og erlendis, sem flestar eru því marki brenndar að vera án skýringa og í ósamræmi við áskilnað laga um færslu bókhaldsgagna, en leggja verður til grundvallar að slík skylda hafi hvílt á stefnda Alessandro í ljósi stöðu hans hjá stefnanda. Þá liggja fyrir reikningar vegna flugfargjalda. Af hálfu stefnda hefur því verið borið við að um sé að ræða kostnað vegna starfa hans í þágu stefnanda og í tengslum við rekstur félagsins. Stefndi hefur hins vegar engin gögn lagt fram því til stuðnings, svo sem ætla má að honum hafi verið í lófa lagið að leggja fram gögn sem rennt gætu stoðum undir staðhæfingar hans. Þá ber til þess að horfa að stefndi hefur ekki gefið skýrslu fyrir dóminum eða önnur vitni leidd sem leitt gætu líkum að því að stofnað hafi verið til umræddra útgjalda í rekstrarlegum tilgangi.

Þá er það mat dómsins að fallast beri á kröfur stefnanda er lúta að greiðslum vegna húsaleigu að fjárhæð 3.270.000 krónur. Í málinu liggur ekki fyrir skriflegt samkomulag um greiðslu vegna leigu á húsnæði stefnda Alessandro, líkt og ætla má að honum hefði verið í lófa lagið að leggja fram væri slíkum samningi til að dreifa. Þá verður ekki séð af öðrum þeim gögnum sem liggja frammi í málinu að slíkur húsaleigusamningur hafi komist á milli stefnanda og stefnda Alessandro, en í samræmi við fortakslaust ákvæði 48. gr. laga nr. 138/1994 hefði þurft aðkomu annarra en stefnda til slíkrar samningsgerðar. Þá verður í þessu efni ekki horft fram hjá vitnisburði Guðbjargar Björnsdóttur og Daníels Bergmann Róbertssonar, fyrrum starfsmanna stefnanda, en þau hafa bæði staðhæft að stefndi Alessandro hafi sjálfur búið í umræddri íbúð að Kórsölum 3 í Kópavogi, sem stefndi hefur sagt hafa verið leigða út fyrir þriðja aðila sem sinnt hafi tilfallandi verkum fyrir félagið.

Að sama skapi verður fallist á kröfur stefnanda um greiðslu vegna kröfuliðar sem vísað er til í stefnu sem „aðrar greiðslur“. Er þar um að ræða endurgreiddan kostnað vegna ferðalaga stefnda Alessandro erlendis, greiðslur af bankareikningum stefnanda og greiðslu kostnaðar vegna netnotkunar á heimili stefnda. Stefndi hefur hvorki andmælt því í greinargerð sinni að hann hafi stofnað til þess kostnaðar sem hér er um að ræða né þeim fjárhæðum sem greinir í stefnu. Stefndi hefur hins vegar vísað til þess að um hafi verið að ræða kostnað sem stofnað hafi verið til vegna og í þágu stefnanda, en hefur að öðru leyti engin gögn lagt fram því til stuðnings. Er því óhjákvæmilegt annað en að fallast á kröfugerð stefnanda hvað þennan þátt varðar eins og hún er fram sett í stefnu með vísan til þeirra sjónarmiða sem rakin hafa verið að framan. Hvað kostnað vegna nettengingar varðar sérstaklega er til þess að líta að hvorki er vikið að því í starfstilboði né í hinum óundirritaða ráðningarsamningi að greiðsla slíks kostnaðar væri hluti starfskjara.

Þá er það mat dómsins að stefndi hafi ekki lagt fram nokkur gögn því til stuðnings að greiðsla lögfræðikostnaðar samkvæmt reikningi Lögfræðistofu Reykjavíkur hafi verið vegna starfsemi stefnanda. Þvert á móti má af tölvupósti lögfræðistofunnar sem liggur frammi í málinu beinlínis ráða að um hafi verið að ræða kostnað vegna þjónustu sem unnin hafi verið fyrir stefnda Alessandro en ekki stefnanda. Hefur vitnið Guðbjörg Björnsdóttir jafnframt borið að félag stefnanda hafi ekki óskað eftir lögfræðiþjónustu á þessum tíma. Verður því fallist á kröfu stefnanda hvað umræddan kostnað varðar.

Í samræmi við 1. mgr. 108. gr. laga nr. 138/1994 er stofnendum, stjórnarmönnum og framkvæmdastjórum skylt að bæta einkahlutafélagi það tjón sem þeir hafa valdið því í störfum sínum hvort sem er af ásetningi eða gáleysi. Með hliðsjón af því sem að framan er rakið, og í ljósi stöðu stefnda Alessandro hjá stefnanda, þykir sannað að stefndi hafi, með saknæmum og ólögmætum hætti, nýtt sér aðstöðu sína hjá stefnanda, í eigin þágu, með því að gera félaginu að greiða kröfur og standa straum af útgjöldum sem voru því óviðkomandi og með því farið á svig við þær skyldur sem á honum hvíldu sem stjórnarmanni í félaginu. Verður stefndi Alessandro því dæmdur til greiðslu framangreindra kröfuliða sem nema samtals 24.337.764 krónum með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 frá þingfestingu máls þessa til greiðsludags, líkt og í dómsorði greinir.

- Kröfur varðandi kaup á húsgögnum, húsbúnaði o.fl., greiðslu eldsneytiskostnaðar og kostnað vegna fartölvu, síma og heyrnartóla Stefnandi gerir jafnframt kröfu um greiðslu skaðabóta úr hendi stefnda Alessandro, eða eftir atvikum endurgreiðslukröfu á hendur honum, vegna kaupa stefnda á húsgögnum, húsbúnaði og fleiru, greiðslu vegna eldsneytiskostnaðar sem félagið stóð straum af vegna notkunar stefnda Alessandro á sérstökum eldsneytislykli sem hann hafði til afnota hjá félaginu og kröfu vegna fartölvu, síma og heyrnartóla sem stefnandi staðhæfir að stefndi Alessandro hafi fengið til afnota en ekki skilað við starfslok.

Hvað kröfu stefnanda vegna eldsneytiskaupa áhrærir hefur stefndi Alessandro vísað til þess að hann hafi að jafnaði nýtt bifreið sína vegna ferða í þágu stefnanda, auk þess sem hann hafi margoft lánað eldsneytislykil sinn öðrum starfsmönnum stefnanda sem staðið hafi í snúningum fyrir félagið. Í málinu liggja fyrir kvittanir vegna umræddra eldsneytisúttekta. Vitnið Guðbjörg Björnsdóttir hefur fyrir dómi borið að stefndi Alessandro hafi, að minnsta kosti á einhverjum tíma, ferðast vegna félagsins og þar á meðal hafi hann sótt vörur til birgja. Þá liggur fyrir að vitnið Daníel Bergmann Róbertsson hafði einnig slíkan eldsneytislykil til afnota vegna starfa sinna hjá stefnanda. Að þessu virtu er það mat dómsins að stefnandi hafi ekki sannað með fullnægjandi hætti að umræddar eldsneytisúttektir hafi verið vegna notkunar stefnda í eigin þágu og verður ekki fallist á þá kröfu stefnanda. Verður stefndi sýknaður af kröfu stefnanda er þennan þátt í kröfulið hans varðar.

Kröfuliður um kostnað vegna húsgagna, húsbúnaðar og fleira er að mörgu leyti sama marki brenndur. Ágreiningslaust er að stefndi keypti umrædda búsmuni. Ágreiningur stendur hins vegar um það hvort þeir hafi verið nýttir í þágu stefnanda. Af framburði vitnisins Guðbjargar Björnsdóttur verður ekki afdráttarlaust ráðið um ástæður þessara útgjalda, en af honum má þó ráða að stefndi Alessandro hafi fest kaup á einhverjum búsmunum í þágu félagsins. Þá hefur stefnandi einungis lagt fram hluta þeirra kvittana sem kröfulið þennan varðar. Af þeim sökum verður ekki hjá því komist að sýkna stefnda af þeim kröfum sem þar eru hafðar uppi. Stefnandi hefur jafnframt engin gögn lagt fram til stuðnings kröfu sinni um greiðslu vegna fartölvu, síma og heyrnartóla sem varpað gætu ljósi á umfang þess tjóns sem hann telur sig hafa orðið fyrir vegna þessa. Jafnvel þótt stefndi hafi ekki andmælt fjárhæðum umrædds kröfuliðar verður allt að einu að gera þá lágmarkskröfu að stefnandi sýni fram á fjárhagslegt umfang ætlaðs tjóns, en stefndi Alessandro hefur í greinargerð sinni lýst því yfir að hann muni „skila umræddum munum þegar máli þessu hefur verið lokið“. Verður stefndi því sýknaður af kröfu stefnanda er þennan þátt í kröfulið hans varðar.

- Liður 4 í dómkröfum stefnanda Af hálfu stefnanda er enn fremur höfð uppi óskipt fjárkrafa á hendur báðum stefndu, Alessandro Era og Era Trading ehf. Er fjárhæð kröfunnar 19.782.698 krónur.

Hafa stefndu gefið þær skýringar að útgáfa umræddra reikninga stefnda Era Trading ehf. hafi verið til samræmis við samkomulag á milli stefnda Alessandro og Luca Milanesi, þáverandi framkvæmdastjóra SANYpet S.p.A., stærsta hluthafa stefnanda, um hvatagreiðslur til stefnda Alessandro og greiðslur fyrir stjórnarsetu, auk þess sem hluti reikninganna sé vegna leigu á bifreið stefnda til stefnanda.

Stefndu hafa, hvað þennan kröfulið varðar, hvorki lagt fram skriflega samninga né aðrar haldbærar skýringar fyrir þeirri tilhögun sem hér um ræðir, auk þess sem stefndi Alessandro hefur, líkt og áður greinir, ekki gefið skýrslu fyrir dóminum. Þá hefur umræddur Luca Milanesi ekki heldur gefið skýrslu fyrir dóminum. Þar með hafa engar haldbærar skýringar verið gefnar því til stuðnings að vinnulaun stefnda Alessandro og önnur hlunnindi skyldu greiddar hinu stefnda félagi en ekki stefnda Alessandro sjálfum, líkt og eðlilegt hefði verið hefði verið samið um laun fyrir stjórnarsetu og hvatagreiðslur, líkt og haldið hefur verið fram af hálfu stefndu. Engin skrifleg gögn liggja því hins vegar til grundvallar. Þá verður ekki betur séð en að hið stefnda félag, sem er alfarið í eigu og lýtur alfarið stjórn stefnda Alessandro, hafi ekki verið í sérstökum rekstri, svo sem rekstri er lýtur að útleigu bifreiða eða annarra tækja eða að félagið hafi átt slíkar bifreiðar eða tæki. Í ljósi þessa sem og ákvæða 48. gr. laga nr. 138/1994 sem reifuð eru að framan er það mat dómsins að umræddar greiðslur til stefnda Era Trading ehf. hafi verið inntar af hendi án heimildar stefnanda til tjóns sem stefndu er skylt að bæta að fullu í samræmi við ákvæði skaðabótaréttar, sbr. 108. gr. áðurgreindra laga, en fjárhæð kröfunnar hefur ekki sætt andmælum af hálfu stefndu í greinargerð. Verður stefndu því gert að greiða stefnanda óskipt umkrafða fjárhæð, 19.782.698 krónur, með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 frá þingfestingu máls þessa til greiðsludags, líkt og í dómsorði greinir.

- Varakrafa stefndu Í málinu hefur stefndi Alessandro uppi kröfu um skuldajöfnuð á hendur stefnanda vegna vangreiddra launa. Hefur stefndi í því efni vísað til þess að ráðningarsamningur sem gerður hafi verið á milli stefnanda og stefnda Alessandro hafi verið vísað til útborgaðra launa. Samningurinn hafi þar með falið í sér skyldu til greiðslu þeirrar fjárhæðar sem þar er getið, 1.000.000 króna. Að mati dómsins er útilokað að fallast á þann skilning stefnda. Verður í því sambandi einkum að horfa til þeirrar meginreglu vinnuréttar að ákvæði um launakjör starfsmanna feli í sér heildarlaun, eða svokölluð brúttólaun, sem væri grundvöllur útreiknings skatta og annarra gjalda, auk þess sem slíkt verður beinlínis ráðið af orðalagi samningstilboðs aðila, en ákvæðið er efnislega samhljóða þeim óundirritaða ráðningarsamningi sem liggur fyrir í málinu og byggt er á af hálfu stefnda. Þá liggur ekkert fyrir um það í málinu að stefndi Alessandro hafi gert athugasemdir við það að laun hans væru ekki í samræmi við þann skilning sem hann vísar nú til eða að hann hafi sjálfur hlutast til um að launagreiðslur hans yrðu leiðréttar því til samræmis.

Jafnframt verður ekki fallist á með stefndu að stefnandi hafi sýnt af sér tómlæti við að hafa uppi kröfur í málinu en ekki verður annað séð en að stefnandi hafi þegar hafist handa til innheimtu kröfunnar í kjölfar þess að stefndi Alessandro lét af störfum hjá félaginu, auk þess sem við mat á þessu verður að horfa til stöðu stefnda hjá félaginu, líkt og áður er getið.

Enn fremur er ekki fallist á með stefndu að skilyrði séu til þess að unnt sé að beita hinni almennu lækkunarheimild 24. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993.

- Krafa um staðfestingu kyrrsetningargerða. Kröfuliður 1 og 2 í stefnu Að virtri framangreindri niðurstöðu málsins eru staðfestar kyrrsetningargerðir þær sem gerðar voru annars vegar í innstæðum á bankareikningum stefnda Alessandro Era nr. […], […], […], […] og […] sem og kyrrsetning sem gerð var að kröfu stefnanda hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu 30. ágúst 2022 í innstæðum á bankareikningi stefnda Era Trading ehf. nr. […]. Er það mat dómsins, einkum með hliðsjón af búsetu stefnda Alessandro og takmörkuðum tengslum hans við landið, að ella myndi það draga mjög úr líkindum þess að fullnusta krafnanna takist eða hún verði að öðrum kosti verulega örðugri. Hefur það ekki áhrif á við mat á þessu þótt hinar dæmdu kröfur séu að nokkuð lægri fjárhæð en í kyrrsetningarbeiðnum greinir.

Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er jafnframt fallist á kröfu stefnanda vegna greiðslu kyrrsetningargjalds í ríkissjóð, en er þar um að ræða 25.000 krónur vegna hvorrar kyrrsetningar fyrir sig.

Eftir þessum úrslitum og með vísan til 1. mgr. 130. gr., sbr. 2. mgr. 132. gr. laga nr. 91/1991 verður stefndu gert að greiða stefnanda óskipt málskostnað sem telst hæfilega ákveðinn með hliðsjón af umfangi málsins líkt og í dómsorði greinir.

Af hálfu stefnanda flutti málið Gunnar Jónsson lögmaður. Af hálfu stefndu flutti málið Árni Freyr Sigurðsson lögmaður.

Þórhallur Haukur Þorvaldsson héraðsdómari kveður upp dóm þennan að gættu ákvæði 1. mgr. 115. gr. laga nr. 91/1991.

Dómsorð:

Stefndi, Alessandro Era, greiði stefnanda, Arctic Pet ehf., 24.337.764 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 14. september 2022 til greiðsludags.

Stefndu, Alessandro Era og Era Trading ehf., greiði stefnanda, Arctic Pet ehf., óskipt 19.807.698 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 14. september 2022 til greiðsludags. Staðfest er kyrrsetning sem gerð var að kröfu stefnanda hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu 31. ágúst 2022 í innstæðum á bankareikningum stefnda Alessandro Era nr. […], […], […], […] og […].

Staðfest er kyrrsetning sem gerð var að kröfu stefnanda hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu 30. ágúst 2022 í innstæðum á bankareikningi stefnda Era Trading ehf. nr. […].

Stefndu, Alessandro Era og Era Trading ehf., er sameiginlega gert að greiða stefnanda 1.200.000 krónur í málskostnað.

Þórhallur Haukur Þorvaldsson

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 247. gr.249. gr.
Lög nr. 32/1978 53. gr.1. mgr. 108. gr.
Lög nr. 31/1990 Lög um kyrrsetningu, lögbann o.fl. 1. mgr. 5. gr.1. mgr. 36. gr.80. gr.
Lög nr. 91/1991 Lög um meðferð einkamála 44. gr.54. gr.1. mgr. 115. gr.1. mgr. 130. gr.2. mgr. 132. gr.
Lög nr. 50/1993 Skaðabótalög 24. gr.
Lög nr. 138/1994 Lög um einkahlutafélög 44. gr.48. gr.51. gr.54. gr.2. mgr. 54. gr.108. gr.1. mgr. 108. gr.3. mgr. 108. gr.
Lög nr. 2/1995 Lög um hlutafélög 72. gr.
Lög nr. 38/2001 Lög um vexti og verðtryggingu 3. mgr. 5. gr.1. mgr. 6. gr.

Dómaskrá