Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Reykjaness

Mál nr. S-124/2018:

Ákæruvaldið

(Margrét Herdís Jónsdóttir saksóknarfulltrúi)

gegn

Degi Þór Hjartarsyni

(Guðmundur St. Ragnarsson lögmaður)

Ávana- og fíkniefni. Eignaspjöll. Fangelsi. Fjársvik. Hlutdeild. Nytjastuldur. Skaðabætur. Skilorð. Þjófnaður.

Ákærði sakfelldur fyrir þjófnað, nytjastuld, eignaspjöll, fjársvik og fíkniefnalagabrot. Ákærða gert að sæta fangelsi í sex mánuði en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið í þrjú ár. Þá var ákærða jafnframt gert að greiða skaðabætur og sakarkostnað.

II

Nytjastuld   og   eignaspjöll   með   því   að   hafa   föstudaginn   11.   ágúst   tekið vespuhjól heimildarlaust úr bifreiðakjallara að Jötunsölum 2, Kópavogi, skemmt það og skilið eftir við Salaskóla, Kópavogi.

Telst brot þetta varða við 1. mgr. 257. gr. og 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

III

Hlutdeild í þjófnaði, með því að hafa miðvikudaginn 9. mars átt þátt í þjófnaði A, kt. [...], í verslun Elko í Lindum, Skógarlind 2, 201 Kópavogi, með því að hafa opnað hurðina að inngangi verslunarinnar utan frá fyrir A svo hann kæmist út um innganginn með þýfið og fram hjá afgreiðslukössum.

Telst brot þetta varða við 1. mgr. 244. gr., sbr. 1. mgr. 22. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

IV

Fíkninefnalagabrot með því að hafa sunnudaginn 8. október haft í vörslum sínum 1,41 g af amfetamíni sem lögregla fann við leit á honum í strætóskýli við Hringbraut 2a, Reykjavík.

Telst brot þetta varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr., laga um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, sbr. lög nr. 13/1985 og lög nr. 68/2001, og 2. gr., sbr. 1. mgr. 14. gr., reglugerðar um ávana- og fíkniefni og önnur eftirlitsskyld efni nr. 233/2001, sbr. reglugerð nr. 848/2002.

V

Fyrir þjófnað og nytjastuld með því að hafa sunnudaginn 22. október, í íþróttahúsi við Versali 3, Kópavogi, stolið bakpoka sem í voru kveikjuláslyklar að bifreiðinni [...], Samsung Galaxy S5 sími, leðurveski og debetkort og í beinu framhaldi tekið bifreiðina [...] heimildarlaust við Versali 3, Kópavogi, og ekið henni á brott.

Telst brot þetta varða við 1. mgr. 244. gr. og 1. mgr. 259. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

VI

Fyrir fjársvik, með því að hafa, sunnudaginn 22. október, í félagi við B, kt. [...], blekkt starfsfólk í staðgreiðsluviðskiptum með framvísun á debetkorti C, sem ákærði hafði stolið fyrr sama dag, og með því svikið út vörur á neðangreindum stöðum, samtals að fjárhæð kr. 6.898, og þannig látið skuldfæra andvirði varanna á reikning C:

  1. Á veitingahúsinu Silfur við Fjarðargötu 13-15, Hafnarfirði, svikið út vörur að verðmæti kr. 4.000.
  2. Í   verslun   10-11   við   Fjarðargötu   13-15,   Hafnarfirði,   svikið   út   vörur   að verðmæti kr. 2.898. Teljast brot þessi varða við 248. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940.

    Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar. Þess er jafnframt krafist að fíkniefni þau sem haldlögð voru af lögreglu, sjá ákæruliði í kafla IV., verði gerð upptæk, sbr. 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65/1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233/2001.

Einkaréttarkröfur:

Vegna ákæruliðar I.2 gerir Sigurbjörn Gunnarsson, kt. [...], framkvæmdastjóri Lyfju hf. þá kröfu f.h. Lyfju hf., kt. [...], hér eftir nefndur kröfuhafi, að ákærði verði dæmdur til að greiða kröfuhafa skaðabætur samtals að fjárhæð kr. 12.429, auk vaxta samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001 frá þeim degi er hið bótaskylda atvik átti sér stað, eða hinn 17.08.2017, og þar til mánuður er liðinn frá birtingu kröfunnar, en síðan dráttarvexti, sbr. 9. gr., sbr. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001, frá þeim degi til greiðsludags. Jafnframt er krafist málskostnaðar að skaðlausu   samkvæmt   síðar   framlögðum   málskostnaðarreikningi   eða   að   mati dómsins, að teknu tilliti til virðisaukaskatts af málflutningsþóknun.“

Ákærði krefst þess í málinu að honum verði gerð sú vægasta refsing sem lög leyfa. Þá krefst verjandi ákærða hæfilegrar þóknunar sér til handa.

Ákærði kom fyrir dóm 5. júní sl. og játaði sök samkvæmt öllum liðum ákæru. Þá samþykkti hann bótakröfu Lyfju hf. og andmælti ekki upptökukröfu ákæruvalds. Í ljósi skýlausrar játningar ákærða ákvað dómari að fara með mál hans samkvæmt 164. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Var málið því tekið til dóms án frekari sönnunarfærslu eftir að sækjanda og verjanda ákærða hafði verið gefinn kostur á að tjá sig um lagaatriði máls og ákvörðun viðurlaga.

Forsendur og niðurstaða:

Samkvæmt framansögðu hefur ákærði skýlaust játað sök í málinu. Að mati dómara   samrýmist   játning   hans   framlögðum   gögnum.   Brot   ákærða   teljast   því sönnuð og eru þau réttilega heimfærð til refsiákvæða í ákæru.

Samkvæmt vottorði sakaskrár ríkisins á ákærði nokkurn sakaferil að baki. Á árinu 2016 hlaut ákærði þrjá dóma, fyrir þjófnað, líkamsárás og fíkniefnabrot. Hinn 8. maí 2017 var ákærði dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands í 45 daga fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár, fyrir þjófnað og akstur undir áhrifum fíkniefna. Með þeim dómi var skilorðsdómur sem ákærði hlaut á árinu 2016 fyrir þjófnað dæmdur upp. Ákærði   gekkst   undir   tvær   sektargerðir   lögreglustjóra   14.   febrúar   2018   vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna. Þá var honum með dómi Héraðsdóms Reykjaness 16. mars sl. gert að greiða sekt og sæta sviptingu ökuréttar vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna og án þess að hafa ökuskírteini meðferðis.

Öll brot ákærða samkvæmt ákæru voru framin fyrir uppkvaðningu dóms Héraðsdóms Reykjaness 16. mars 2018 og áður en ákærði gekkst undir fyrrnefndar tvær sektargerðir 14. febrúar sama ár. Tvö brotanna voru jafnframt framin fyrir uppkvaðningu dóms Héraðsdóms Suðurlands 8. maí 2017. Öll hin brotin voru aftur á móti framin eftir uppkvaðningu dómsins og með þeim rauf ákærði því skilorð það sem kveðið var á um í dómnum. Samkvæmt því og með vísan til 60. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 ber að taka skilorðsdóminn upp og ákveða ákærða refsingu í einu lagi samkvæmt fyrirmælum 77. og 78. gr. almennra hegningarlaga.

Svo sem fyrr var rakið hefur ákærði skýlaust játað sök í málinu og samþykkt bótakröfu Lyfju hf. Ákærði er einungis 19 ára gamall og mun vera á leið í vímuefnameðferð. Að þessu gættu og að brotum ákærða virtum þykir refsing hans nú með vísan til þess sem að framan er rakið hæfilega ákveðin sex mánaða fangelsi. Eftir atvikum þykir mega fresta fullnustu refsingarinnar og skal hún falla niður að liðnum þremur árum frá uppkvaðningu dóms þessa að telja haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955.

Með   vísan   til   kröfugerðar   ákæruvalds,   gagna   málsins   og   tilgreindra lagaákvæða í ákæru ber að gera upptæk hin haldlögðu fíkniefni, 1,41 gramm af amfetamíni.

Í ákæru er höfð uppi skaðbótakrafa Lyfju hf. að fjárhæð 12.429 krónur, auk vaxta, dráttarvaxta og málskostnaðar, svo sem nánar greinir í ákæru. Ákærði lýsti því yfir fyrir dómi að hann samþykkti kröfuna og verður hann á grundvelli þess samþykkis dæmdur til greiðslu hennar, auk vaxta og dráttarvaxta með þeim hætti sem í dómsorði greinir og málskostnaðar sem þar þykir hæfilega ákveðinn.

Eftir úrslitum málsins, sbr. 1. mgr. 235. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, verður ákærða gert að greiða sakarkostnað málsins. Ákærði dæmist því til að greiða þóknun skipaðs verjanda síns, Guðmundar St. Ragnarssonar lögmanns, sem eftir umfangi málsins og að teknu tilliti til tímaskýrslu verjanda þykir hæfilega ákveðin svo sem í dómsorði greinir. Dóm þennan kveður upp Kristinn Halldórsson héraðsdómari.

D Ó M S O R Ð:

Ákærði, Dagur Þór Hjartarson, sæti fangelsi í sex mánuði en fresta skal fullnustu   refsingarinnar   og   skal   hún   falla   niður   að   liðnum   þremur   árum   frá uppkvaðningu dóms þessa að telja, haldi ákærði almennt skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. Ákærði sæti upptöku á 1,41 grammi af amfetamíni.

Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Guðmundar St. Ragnarssonar lögmanns, 295.120 krónur að virðisaukaskatti meðtöldum.

Ákærði greiði Lyfju hf., kt. [...], 12.429 krónur með vöxtum af þeirri fjárhæð samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 17. ágúst 2017 til 14. nóvember 2017, en dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. sömu laga frá þeim degi til greiðsludags, og 30.000 krónur í málskostnað.

Kristinn Halldórsson