Héraðsdómur Norðurlands vestra
Dómur 13. desember 2006.
Lykilorð
Frávísun frá héraðsdómi. Kröfugerð. Laun. Sjómenn. Vinnulaunamál.
Útdráttur
Kröfu stefnanda um laun frá útgerðarfélagi vísað frá dómi vegna óvissu um réttmæti krafna hans.
Dómkröfur
Stefnandi krefst þess að stefndi verði dæmdur til að greiða honum 1.142.242 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu af 52.732 krónum frá 15. maí 2005 til 15. júní 2005, af 561.011 krónum frá þeim degi til 15. júlí 2005 en af 1.142.242 krónum frá þeim degi til greiðsludags. Þá krefst stefnandi málskostnaðar að viðbættum virðisaukaskatti úr hendi stefnda.
Stefndi krefst aðallega sýknu af kröfum stefnanda en til vara að kröfur stefnanda verði stórlega lækkaðar. Í báðum tilfellum krefst hann málskostnaðar úr hendi stefnanda.
II
Málavextir
Stefnandi hóf störf hjá stefnda hinn 7. september 2004 sem bátsmaður á bátnum Sindra ÞH-400 (áður Kristinn Friðrik ÞH-400). Báturinn, sem er dragnótabátur, landaði afla sínum einkum á Hofsósi. Að sögn stefnanda var hann háseti á bátnum í ársbyrjun 2005 en í byrjun apríl það ár tók hann við stöðu yfirstýrimanns allt þar til hann lét af störfum 16. júní 2005 samkvæmt samkomulagi við stefnda. Stefndi segir stefnanda hafa slasast á fingri í byrjun maí 2005 og að hann hafi verið í veikindaleyfi út þann mánuð. Þegar stefnandi hafi átt að koma aftur til starfa hafi hann tilkynnt að hann væri hættur og myndi ekki koma aftur til starfa hjá stefnda. Stefndi heldur því fram að stefnandi hafi fengið greidd staðgengilslaun út maí 2005 en hann hafi hins vegar ekki verið afskráður fyrr en 16. júní 2005.
Af hálfu stefnda er viðurkennt að skiptakjör stefnanda og annarra skipverja hafi ekki verið í samræmi við kjarasamninga. Meðlimir áhafnarinnar hafi samþykkt að ákveðið hlutfall af aðkeyptum kvóta hafi verið dregið frá áður en aflahlut var skipt milli útgerðar og áhafnar. Þetta hafi verið gert til að mögulegt væri að halda skipinu til veiða og þannig hafi atvinna áhafnarinnar verið tryggð. Á þessum tíma hafi kvótaverð verið hátt en fiskverð lágt. Stefnandi eða aðrir í áhöfn hafi ekki gert athugasemdir við þetta fyrirkomulag, hvorki í upphafi ráðningar eða við slit hennar.
III
Málsástæður og lagarök
Stefnandi heldur því fram að hann hafi verið vanhaldinn í launum á ráðningartíma sínum og einungis fengið greiddar 1.700.000 krónur fyrir vinnu sína. Stefnandi byggir mál sitt á því að hann hafi ekki fengið uppgjör vegna starfa sinna um borð í Sindra ÞH-400 í samræmi við ákvæði laga og kjarasamninga og bendir í því sambandi m.a. á niðurstöðu Verðlagsstofu skiptaverðs um uppgjörshætti stefnanda á aflahlut bátsins tímabilið janúar til júní 2005.
Stefnandi heldur því jafnframt fram að stefndi hafi ekki gefið út launaseðla eða skilað sundurliðuðum uppgjörum. Því sé ómögulegt að segja til um hver rétt laun hans hefðu átt að vera. Af þeim sökum áætli hann aflahlut fyrir tímabilið september til desember 2004 og þá sé aflahlutur varlega áætlaður 225.000 krónur á mánuði. Stefnandi bendir á, eins og áður er getið, að Verðlagsstofa skiptaverðs hafi rannsakað uppgjörshætti stefnda fyrir tímabilið janúar til júní 2005. Þá hafi komið í ljós að nokkuð vantaði upp á réttan aflahlut. Miðar stefnandi aflahlut sinn fyrir þá mánuði við útreikninga Verðlagsstofu skiptaverðs. Í þessu sambandi vísar stefnandi til dóms Hæstaréttar í máli nr. 130/2001 en þar komi fram að útreikningar Verðlagsstofu skiptaverðs skuli teljast réttir nema að sýnt sé fram á annað með óyggjandi hætti.
Stefnandi sundurliðar kröfur sínar þannig:
7. til 30. september 2004 Aflahlutur (225.000 * 24/30) kr. 180.000 Aukahlutur bátsmanns kr. 45.000 Starfsaldursálag kr. 2.541 Hlífðarfatapeningar kr. 2.714 Fæðispeningar (752*24) kr. 18.048 Orlof 10,17% á kr. 248.303 kr. 25.252 Samtals kr. 273.555 Október 2004 Aflahlutur kr. 225.000 Aukahlutur bátsmanns kr. 56.250 Starfsaldursálag kr. 3.176 Hlífðarfatapeningar kr. 3.392 Fæðispeningar (752*30) kr. 22.560 Orlof 10,17% á kr. 310.378 kr. 31.565 Samtals kr. 341.943 Nóvember 2004 Aflahlutur (225.000 * 24/30) kr. 225.000 Aukahlutur bátsmanns kr. 56.250 Starfsaldursálag kr. 3.176 Hlífðarfatapeningar kr. 3.392 Fæðispeningar (752*30) kr. 22.560 Orlof 10,17% á kr. 310.378 kr. 31.565 Samtals kr. 341.943 Desember 2004 Aflahlutur (225.000 * 24/30) kr. 225.000 Aukahlutur bátsmanns kr. 56.250 Starfsaldursálag kr. 3.176 Hlífðarfatapeningar kr. 3.392 Fæðispeningar (752*30) kr. 22.560 Orlof 10,17% á kr. 310.378 kr. 31.565 Samtals kr. 341.943 Janúar 2005 Kauptrygging (136.415* 19/30) kr. 86.396 Starfsaldursálag kr. 1.728 Hlífðarfatapeningar kr. 2.307 Fæðispeningar (752*19) kr. 14.288 Orlof 10,17% á kr. 104.719 kr. 10.650 Samtals kr. 115.369 Febrúar 2005 Kauptrygging kr. 136.415 Starfsaldursálag kr. 2.728 Hlífðarfatapeningar kr. 3.642 Fæðispeningar (752*28) kr. 21.056 Orlof 10,17% á kr. 163.841 kr. 16.663 Samtals kr. 180.504 Mars 2005 Aflahlutur kr. 193.829 Starfsaldursálag kr. 2.728 Hlífðarfatapeningar kr. 3.642 Fæðispeningar (752*30) kr. 22.560 Orlof 10,17% á kr. 222.759 kr. 22.655 Samtals kr. 245.414 1. til 12. apríl 2005 Kauptrygging kr. 54.566 Starfsaldursálag kr. 1.091 Hlífðarfatapeningar kr. 1.457 Fæðispeningar (752*12) kr. 9.024 Orlof 10,17% á kr. 66.138 kr. 6.726 Samtals kr. 72.864 29. til 30. apríl 2005 Kauptrygging (204.623*2/30 kr. 13.642 Fast kaup kr. 216 Starfsaldursálag kr. 273 Hlífðarfatapeningar kr. 203 Fæðispeningar (752*2) kr. 1.504 Orlof 10,17% á kr. 15.838 kr. 1.611 Samtals kr. 17.449 Maí 2005 Aflahlutur kr. 316.899 Aukahlutur yfirstýrimanns 0,5 kr. 158.449 Starfsaldursálag kr. 4.092 Fast kaup kr. 3.237 Hlífðarfatapeningar kr. 3.042 Fæðispeningar (752*30) kr. 22.560 Orlof 10,17% á kr. 508.279 kr. 51.692 Samtals kr. 559.971 1. til 16. júní 2006 Aflahlutur kr. 200.865 Aukahlutur yfirstýrimanns 0,5 kr. 100.432 Starfsaldursálag kr. 2.182 Fast kaup kr. 1.726 Hlífðarfatapeningar kr. 1.622 Fæðispeningar (752*16) kr. 12.032 Orlof 10,17% á kr. 318.859 kr. 32.428 Samtals kr. 351.287 Samkvæmt framanrituðu kveðst stefnandi hafa átt að fá greiddar 2.842.242 krónur í laun og orlof á ráðningartímanum. Hann hafi hins vegar eingöngu fengið greiddar 1.700.000 krónur fyrir vinnu sína. Þá kveðst stefnandi hafa fengið óljós og röng uppgjör frá stefnda. Stefnandi kveðst fara þá leið að ráðstafa launagreiðslum upp í elstu kröfurnar fyrst. Því séu laun fyrir september 2004 til og með mars 2005 að fullu greidd, að fráteknu orlofi, og 29.244 krónur hafi verið greidd upp í laun aprílmánaðar 2005. Stefnandi heldur því fram að samkvæmt þessu eigi hann eftir að frá greitt orlof að fjárhæð 262.372 krónur, eftirstöðvar launa aprílmánaðar 2005 nemi 52.732 krónum, laun vegna maí 2005 nemi 508.279 krónum og þá nemi laun fyrir júní 2005 318.859 krónum. Samtals sé þessi fjárhæð 1.142.242 krónur sem sé stefnufjárhæð málsins. Þá kveður stefnandi stefnda engum greiðslum hafa skilað í staðgreiðslu skatta, lífeyrissjóð eða til stéttarfélags stefnanda. Af þeim sökum komi þeir liðir ekki til frádráttar launum hans.
Hvað lagarök varðar vísar stefnandi til sjómannalaga nr. 35/1985, einkum 6., 9., 27. og 32. gr. Þá byggir hann á kjarasamningi SSÍ og LÍÚ, einkum greinum 1.04-1.12. Einnig almennum reglum vinnuréttarins um greiðslu verklauna og 1. gr. laga nr. 55/1980. Varðandi orlof vísar stefnandi til kjarasamningsins sem áður er getið svo og laga nr. 30/1987 um orlof. Krafa um dráttarvexti byggist á III. kafla laga nr. 38/2001. Krafa um málskostnað er reist á 1. mgr. 130. gr. laga um meðferð einkamála og krafa um virðisaukaskatt á málflutningsþóknun byggist á lögum nr. 50/1988.
Stefndi heldur því fram að uppgjör launa stefnanda hafi verið með eðlilegum hætti. Stefndi hafi á árinu 2004 haft samtals 1.043.409 krónur í laun og af þeirri fjárhæð hafi hann fengið greitt á bankareikning sinn 732.682 krónur. Á árinu 2005 hafi laun hans numið 1.471.733 krónum og af þeirri fjárhæð hafi hann fengið greitt inn á reikning sinn eða eiginkonu sinnar samtals 1.118.109 krónur.
Stefndi heldur því fram að fullnaðaruppgjör hafi farið fram við stefnanda í samræmi við samkomulag sem gert var við stefnda og raunar aðra í áhöfninni. Stefndi heldur því fram að framlagðir launaseðlar sýni þetta svo og kvittanir fyrir innborganir á bankareikninga stefnanda og eiginkonu hans. Stefndi kveðst hafa skilað staðgreiðsluskrá fyrir árin 2004 og 2005 og staðið skil á staðgreiðslu vegna launa stefnanda. Þá kveðst hann einnig hafa staðið skil á öðrum gjöldum sem dregin voru af launum stefnanda. Þó viðurkennir stefndi að enn sé einhver skuld við lífeyrissjóðinn Gildi. Stefndi mótmælir sérstaklega fullyrðingum stefnanda þess efnis að hann hafi afhent stefnanda og öðrum skipverjum ófullkomin eða röng uppgjör og engu skilað af afdregnum gjöldum. Af þessum sökum mótmælir stefndi því að frádráttur á launaseðlum komi ekki til frádráttar á skuld stefnda enda séu þessir liðir greiddir.
Af hálfu stefnda er þess krafist að ef uppgjör Verðlagsstofu skiptaverðs verði lagt til grundvallar skiptum þá verði þær fjárhæðir sem fram koma á launaseðlum dregnar frá kröfum stefnanda. Það gangi ekki að þær kröfur séu tvígreiddar. Stefndi mótmælir sérstaklega kröfu stefnanda um laun fyrir júní 2005, enda hafi stefnandi hætt störfum eftir veikindafrí sem lauk í endaðan maí 2005. Fráhvarf stefnanda hafi hvorki verið vegna óánægju með laun né vegna þess að honum hafi verið sagt upp störfum. Þá telur stefndi að útreikningur aflahlutar fyrir desember 2004 standist ekki þar sem aflahlutur hafi ekki náð kauptryggingu en þann mánuð hafi einungis verið landað 17 tonnum af fiski úr bátnum. Stefndi telur að miðað við framlagða launaseðla og að teknu tilliti til athugasemda hans hafi stefnandi fengið laun sín að fullu greidd þó svo útreikningur launa einstakra mánaða kunni að vera eitthvað frábrugðinn milli aðila.
Hvað lagarök varðar vísar stefndi til almennra reglna samninga og kröfuréttar. Þá vísar hann til sjómannalaga. Kröfu um málskostnað reisir stefndi á 130. gr. laga um meðferð einkamála.
IV
Niðurstaða
Mál þetta var þingfest 12. september sl. Í því þinghaldi óskaði stefndi eftir fresti til að skila greinargerð sem hann gerði 10. október sl. Þá var málinu frestað til 24. október sl. og tekið fyrir þann dag. Þá varð útivist af hálfu stefnda en málið var að kröfu stefnanda tekið til dóms. Í 96. gr. laga um meðferð einkamála eru ákvæði sem mæla fyrir um hvernig skuli fara með mál þegar útivist verður af hálfu stefnda. Í 3. mgr. 96. gr. segir að ef stefndi hefur lagt fram greinargerð áður en þingsókn hans fellur niður megi gefa stefnanda kost á að svara vörnum hans í skriflegri sókn. Stefnandi óskaði ekki eftir að leggja fram sókn í málinu heldur lagði hann málið þá þegar í dóm.
Stefndi lagði eins og áður er getið fram greinargerð í málinu og þá lagði hann einnig fram nokkuð af gögnum, svo sem afrit launaseðla og afrit innborgana til stefnda. Þá fullyrðir stefndi að afdregin gjöld, þar með talin staðgreiðslugjöld, hafi verið greidd. Það var í verkahring stefnanda að færa fram gögn sem sýndu að fullyrðingar stefnda væru rangar en það hefur hann ekki gert. Af þeim sökum er svo mikil óvissa um réttmæti krafna stefnanda að ómögulegt er að skera úr ágreiningsefni málsins eins og það liggur fyrir dóminum. Ber því að vísa málinu frá dómi.
Rétt þykir að hvor aðili beri sinn kostnað af málinu.
Halldór Halldórsson dómstjóri kveður upp úrskurð þennan.
ÚRSKURÐARORÐ
Máli þessu er vísað frá dómi.
Málskostnaður fellur niður.
Halldór Halldórsson