Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 22. janúar 2008.
Mál nr. S-27/2008:
D Ó M U R
nr. S-27/2008:
Ákæruvaldið
(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)
gegn
X
Lykilorð
Hegningarauki. Upptaka. Vopnalagabrot. Ávana- og fíkniefni.
Útdráttur
Dæmd sekt fyrir brot gegn vopnalögum og lögum um ávana- og fíkniefni.
X
Mál þetta, sem var dómtekið í dag, höfðaði sýslumaðurinn á Akureyri þann 17. desember 2007 með tveimur ákærum gegn A, B, C X. Málin voru sameinuð í mál nr. S-430/2007, en þáttur ákærðu skilinn frá því og dæmdur sér í lagi í þessu máli.
Ákærðu er gefið að sök að hafa miðvikudaginn 15. ágúst 2007 haft sameiginlega með A og B í vörslum sínum 4,33 grömm af amfetamíni, 1 stk. rafstuðbyssu, 2 stk. loftskammbyssur, 1 stk. hafnarboltakylfu, 1 stykki trékylfu og 1 stk. hníf sem lögreglan fann við leit í bifreiðinni LY-803 við Borgarbraut [...] á Akureyri.
Er þetta talið varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög nr. 13, 1985 og sbr. lög nr. 82, 1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana- og fíkniefna nr. 233, 2001, 1. mgr. 12. gr. og b- og e-liði 2. mgr. 30. gr. sbr. l. mgr. 36. gr. vopnalaga nr. 16/1998.
Þá er ákærðu gefið að sök að hafa, þriðjudaginn 14. ágúst 2007, saman með A og C, haft í vörslum sínum að [...] á Akureyri, 0,09 grömm af amfetamíni sem lögreglan fann við leit í húsinu.
Þetta er talið varða við 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65,1974, sbr. lög nr. 60,1980, sbr. lög nr. 13,1985 og sbr. lög nr. 82, 1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana og fíkniefna nr. 233, 2001.
Þess er krafist að ákærða verði dæmd til refsingar og til að sæta í sameiningu með A og B upptöku á 4,33 grömmum af amfetamíni, skráð í efnaskrá lögreglu nr. 12249, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001, 1 stk. rafstuðbyssu, 2 stk. loftskammbyssum, 1 stk. hafnaboltakylfu, 1 stykki trékylfu og 1 stk. hníf, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga nr. 16,1998 og 1. mgr. 69. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, en í sameiningu með A og C upptöku á 0,09 grömmum af amfetamíni skráðu í efnaskrá lögreglu nr. 12262, 1 stk. topp útbúnum til hassreykinga, 1 upprúlluðum 1.000 króna seðli með efnisleifum auk bréfs og plasts með efnisleifum skv. 6. og 7. mgr. 5. gr. laga nr. 65,1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233, 2001.
Ákærða sótti ekki þing, þrátt fyrir að hafa verið birt fyrirkall. Þar var þess getið að málið kynni að verða dæmt að henni fjarstaddri, sbr. 120. gr. laga nr. 19/1991. Er því heimilt samkvæmt 1. mgr. 126. gr. sömu laga að leggja dóm á málið að ákærðu fjarverandi, enda varðar meint brot ekki þyngri viðurlögum en þar er áskilið í a. lið. Verður ákærða sakfelld fyrir þá háttsemi sem henni er gefin að sök í ákæru og þar er rétt heimfærð til laga.
Refsingu ákærða ber að tiltaka sem hegningarauka, sbr. 78. gr. almennra hegningarlaga, við 80.000 króna sekt samkvæmt dómi upp kveðnum 18. desember 2007 fyrir brot gegn 1. mgr. 45. gr. a umferðarlaga og lögum um ávana- og fíkniefni. Refsing ákærðu ákveðst sekt til ríkissjóðs að fjárhæð 50.000 krónur, sem hún skal greiða innan fjögurra vikna frá uppsögu þessa dóms að telja, en sæta ella fangelsi í fjóra daga.
Gera ber efni og áhöld upptæk eins og krafist er í ákæru og nánar er rakið í dómsorði.
Dóm þennan kveður upp Erlingur Sigtryggsson héraðsdómari.
D Ó M S O R Ð :
Ákærða X, greiði 50.000 krónur í sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna frá uppsögu þessa dóms að telja, en sæti ella fangelsi í fjóra daga.
Gerð eru upptæk eru 4,33 grömm af amfetamíni, skráð í efnaskrá lögreglu nr. 12249, 0,09 grömm af amfetamíni skráð í efnaskrá lögreglu nr. 12262, rafstuðbyssa, tvær loftskammbyssur, hafnaboltakylfa, trékylfa, hnífur, toppur útbúinn til hassreykinga og eittþúsundkróna seðill með efnisleifum auk bréfs og plasts með efnisleifum.