Héraðsdómur Norðurlands eystra
Dómur 23. janúar 2008.
Mál nr. S-419/2007:
S-419/2007
:
Ákærandi: Sýslumaðurinn á Akureyri
Ákærði: X
Dómari: Erlingur
Sigtryggsson héraðsdómari
D Ó M U R
nr. S-419/2007:
Ákæruvaldið
(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)
gegn
X
(Hreinn Pálsson hrl)
Lykilorð
Skilorðsrof. Umferðarlagabrot. Upptaka. Ávana- og fíkniefni. Ökuréttarsvipting.
Útdráttur
Dæmt í fangelsi í tvo mánuði fyrir brot gegn umferðarlögum og lögum um ávana- og fíkniefni. Skilorðsdómur dæmdur upp. Ökuréttarsvipting.
X
(Hreinn Pálsson hrl.)
Mál þetta, sem var dómtekið í dag, höfðaði sýslumaðurinn á Akureyri hér fyrir dómi þann 3. desember 2007 með ákæru á hendur X; „fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot, með því að hafa laugardaginn 6. október 2007 ekið bifreiðinni JÖ-352, undir áhrifum fíkniefna (Tetrahýdrokannabínól 2,2 ng/ml) og sviptur ökuréttindum, um Vestfjarðaveg frá Flateyri og áleiðis til Ísafjarðar uns lögreglan stöðvaði aksturinn í Tungudal á móts við skíðaskálann, og fyrir að hafa verið með í vörslum sínum 1,23 grömm af tóbaksblönduðu hassi sem lögreglan fann við leit í bifreiðinni.
Telst þetta varða við 1. sbr. 2. mgr. 45. gr. a., 1. mgr. 48. gr., sbr. 100. gr. laga nr. 50, 1987, sbr. 5. gr. laga nr. 66, 2006, og 2. gr., sbr. 5. gr. og 6. gr. laga um ávana- og fíkniefni nr. 65, 1974, sbr. lög nr. 60, 1980, sbr. lög nr. 13, 1985 og sbr. lög nr. 82, 1998 og 2. gr. sbr. 14. gr. reglugerðar um sölu og meðferð ávana og fíkniefna nr. 233, 2001.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, sviptingar ökuleyfis samkvæmt 101. gr. og 1. mgr., sbr. 4. mgr. 102. gr. nefndra umferðarlaga, sbr. 18. gr. laga nr. 66, 2006 og til að sæta upptöku á 1,23 grömmum af tóbaksblönduðu hassi, sem lögreglan lagði hald á og tilgreint er í efnaskrá nr. 12538, samkvæmt 6. mgr. 5. gr. laga nr. 65, 1974 og 2. mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 233,2001.
Ákærði hefur komið fyrir dóm og játað sök. Með játningu hans, sem ekki er ástæða til að efa að sé sannleikanum samkvæm, er nægilega sannað að hann hafi framið þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er rétt heimfærð til laga. Verður lagður dómur á málið án frekari sönnunarfærslu með heimild í 125. gr. laga nr. 19/1991.
Ákærði á nokkurn sakaferil að baki. Sá hluti hans sem hér skiptir máli felst í því að þann 05. janúar 2007 sætti hann sekt og sviptingu ökuréttar í tvo mánuði samkvæmt sátt fyrir brot g. 2. mgr. 37. gr., 1. sbr. 2. mgr. 45. gr. og 1. mgr. 46. gr. umferðarlaga. Þann 8. febrúar 2007 var hann dæmdur í fangelsi í einn mánuð, skilorðsbundið í tvö ár, fyrir brot gegn 231. gr. og 244. gr. almennra hegningarlaga. Þann 2. apríl sama ár var hann dæmdur í sjö mánaða fangelsi fyrir brot gegn 244. gr. almennra hegningarlaga. Voru þá dæmdar upp eftirstöðvar á eftirstöðvum refsingar samkvæmt dómi Hæstaréttar Íslands upp kveðnum 26. maí 2005, en framangreindur skilorðsdómur virðist þá ekki hafa legið fyrir dómara og var hann ekki dæmdur upp. Loks var ákærði dæmdur þann 12. júlí 2007 til greiðslu 400.000 króna sektar og sviptur ökurétti í tvö ár og sex mánuði frá 10. júní 2007 að telja fyrir ýmis brot gegn umferðarlögum, þar á meðal 45. gr. A þeirra.
Með vísan til 60. gr. almennra hegningarlaga ber nú að taka upp skilorð samkvæmt dómnum frá 2. apríl 2007 og dæma ákærða refsingu í einu lagi eftir reglum 77. gr. almennra hegningarlaga. Ákveðst hún með tilliti til sakaferils ákærða fangelsi í tvo mánuði.
Samkvæmt 6. mgr. 102. gr. umferðarlaga, sbr. 18. gr. laga nr. 66/2006, ber að svipta ákærða ökurétti ævilangt frá 10. desember 2009 að telja.
Gera ber efni upptækt eins og krafist er í ákæru og nánar er rakið í dómsorði.
Dæma ber ákærða til að greiða allan kostnað sakarinnar, 124.166 krónur, þar með talin þóknun skipaðs verjanda ákærða, Hreins Pálssonar hrl., sem ákveðst að virðisaukaskatti meðtöldum eins og greinir í dómsorði.
Dóm þennan kveður upp Erlingur Sigtryggsson héraðsdómari.
D Ó M S O R Ð :
Ákærði, X, sæti fangelsi í tvo mánuði.
Ákærði er sviptur ökurétti ævilangt frá 10. desember 2009 að telja.
Ákærði greiði 124.166 krónur í sakarkostnað, þar með talda þóknun skipaðs verjanda síns, Hreins Pálssonar hrl., 60.000 krónur.
Gerð eru upptæk 1,23 grömm af tóbaksblönduðu hassi, með nr. 12538 í efnaskrá lögreglu.