Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Norðurlands eystra

Mál nr. S-396/2007:

Ákærandi:       Sýslumaðurinn á Akureyri

Ákærði:          X

Dómari:          Erlingur

Sigtryggsson héraðsdómari

D Ó M U R

nr. S-396/2007:

Ákæruvaldið

(Guðjón Jóel Björnsson fulltrúi)

gegn

X

Ítrekun. Líkamsárás. Fangelsi. Skilorðsrof.

Sakfellt fyrir líkamsárás, sem varðaði við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga. Tekin upp sjö mánaða fangelsisrefsing samkvæmt eldri skilorðsdómi og dæmt 8 mánaða óskilorðsbundið fangelsi.

X

Mál þetta, sem var dómtekið 11. desember sl., höfðaði sýslumaðurinn á Akureyri hér fyrir dómi þann 20. nóvember sl., með ákæru á hendur X; „fyrir líkamsárás, með því að hafa aðfaranótt mánudagsins 9. apríl 2007, á skemmtistaðnum Kaffi Akureyri, Strandgötu 7, Akureyri, slegið dyravörðinn [A] þungu hnefahöggi í andlitið, er hann hugðist vísa ákærða út af staðnum, með þeim afleiðingum að hann hlaut 1 cm langan skurð sem staðsettur var 1 cm ofan hliðlægu brúnar efri varar vinstra megin og náði í gegnum húðina og inn í munnhol, auk þess sem kvarnaðist örlítið upp úr hægri augntönn.

Telst þetta varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940, sbr. 10. gr. laga nr. 20, 1981.

Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar.“

Ákærði hefur komið fyrir dóm og játað sök.  Með játningu hans, sem ekki er ástæða til að efa að sé sannleikanum samkvæm, er nægilega sannað að hann hafi framið þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru og þar er rétt heimfærð til laga. Verður lagður dómur á málið án frekari sönnunarfærslu með heimild í 125. gr. laga nr. 19/1991.

Þann 14. september 2004 var ákærði dæmdur í fimm mánaða fangelsi, skilorðsbundið í þrjú ár og til greiðslu sektar, fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni.  Þann 3. apríl 2006 var hann dæmdur í 7 mánaða fangelsi, skilorðsbundið í þrjú ár, fyrir líkamsárás.  Dómurinn frá 14. september 2004 var þá dæmdur með.

Þann 31. janúar 2007 var ákærði dæmdur til greiðslu sektar fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna og var sviptur ökurétti í þrjá mánuði.

Ákærði hefur nú rofið skilorð dómsins frá 3. apríl 2006 og ber að taka hann upp og dæma honum refsingu í einu lagi, sbr. 60. gr. almennra hegningarlaga.  Ákærði hefur nú gerst sekur um ítrekaða líkamsárás.  Verður hann dæmdur í 8 mánaða fangelsi.  Með tilliti til þess að ákærði hefur rofið skilorð öðru sinni eru ekki efni til að skilorðsbinda refsinguna.

Dæma ber ákærða til að greiða allan kostnað sakarinnar, sem samkvæmt yfirliti nemur 3.500 krónum.

Dóm þennan kveður upp Erlingur Sigtryggsson héraðsdómari.

D Ó M S O R Ð :

Ákærði, X, sæti fangelsi í 8 mánuði.

Ákærði greiði 3.500 krónur í sakarkostnað.

Heimildaskrá

Lagaskrá

Lög nr. 19/1940 Almenn hegningarlög 1. mgr. 217. gr.