Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Héraðsdómur Norðurlands eystra

Mál nr. S-360/2007:

D Ó M U R

nr. S-268/2007:

Ákæruvaldið

(Eyþór Þorbergsson fulltrúi)

gegn

X

(Arnar Sigfússon hdl)

Eignaspjöll. Hegningarauki. Hlutdeild. Skaðabætur. Skilorðsrof. Tilraun. Þjófnaður.

Tvítugur piltur var dæmdur í fangelsi fyrir þjófnað o.fl. Refsing samkvæmt eldri skilorðsdómi tekin upp og dæmt skilorðsbundið fangelsi.

Gegn ákærðu A, [X] og F, fyrir að hafa í sameiningu sunnudaginn 28. janúar 2007, brotist inn í húsnæði Endurvinnslunnar ehf., Réttarhvammi 1, Akureyri, í þeim tilgangi að stela þaðan verðmætum, en horfið á brott er innbrotsviðvörunarkerfi fór í gang.

III. (024-2007-800) Gegn ákærðu E, F, [X], B og A, fyrir að hafa aðfaranótt sunnudagsins 4. febrúar 2007 brotist inn í kvikmyndafyrirtækið Arnaraugað, Óseyri 2, Akureyri, og stolið þaðan í þrem ferðum sælgæti og gosdrykkjum að verðmæti um 35.000 kr., 7 stk. Genelee hátölurum, 2 stk. Peavey hátölurum, 12 rása hljóðblandara af gerðinni Behringer, stafrænu ljósaborði af gerðinni Behringer, stafrænu Sony myndbandstæki, Demon magnara, Hitachi stafrænum surround „splitter“, SIM2 myndvarpa til kvikmyndasýninga, Onkyo ED301 hljóðbreyti, 3 stk. ljóskösturum, Behringer stafrænu ljósaborði, Denon PMA-730 hljóðmagnara og AudioSonic DVD 2004 DVD spilara með fjarstýringu.

IV. (024-2007-613) Gegn ákærðu A, [X] og B, fyrir að hafa aðfaranótt laugardagsins 27. janúar 2007 brotist inn í verkstæðishús á Mýrarlóni á Akureyri og stolið þaðan Crescent topplyklasetti, gulri brettaskífu og ýmsum öðrum handverkfærum samtals að verðmæti um kr. 86.000,-.

V. (024-2007-1308) Gegn ákærðu A og B, fyrir að hafa aðfaranótt miðvikudagsins 21. febrúar 2007 brotist inn í þjónustuhús tjaldstæðis við Hamra á Akureyri og stolið þaðan tveim Alan 441 handtalstöðvum, myndvarpa af gerðinni Dell 1100 MP 1400 lumens HX4LY51, tölvulyklaborði og tölvumús og gegn D og [X] fyrir hlutdeild í framangreindum þjófnuðum, með því að aðstoða þá við að komast á vettvang, aka þeim af vettvangi eftir innbrotið og við að fela þýfið.

--- X. (024-2007-1654) Gegn ákærðu A, B og [X], fyrir að hafa um miðjan febrúar 2007, stolið bifreiðinni OX-346, af gerðinni Lada Sport, árg. 1995, þar sem hún stóð í Helgamagrastræti á Akureyri og flutt hana að Hrafnagili og síðan Melgerðismelum í Eyjafjarðarsveit.

B.

Eignaspjöll 024-2007-1370.

Gegn ákærðu A, B, C og [X], fyrir að hafa upp úr miðjum febrúar 2007 brotist inn í íbúðar- og útihús á bænum [...] í Eyjafjarðarsveit og valdið þar spjöllum á húsum, innréttingum og dráttarvélum í vélaskemmu.

Brot ákærðu samkvæmt liðum I, III-X, A kafla ákærunnar varða við 244. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940. Brot ákærðu samkvæmt II. lið A kafla ákærunnar varða við 244. gr., sbr. 20. gr. sömu laga. Brot ákærðu D og [X] samkvæmt V. lið A kafla ákærunnar varða við 244. gr., sbr. 22. gr. sömu laga.

Brot ákærðu samkvæmt B kafla ákærunnar varða við 1. mgr. 257. gr. almennra hegningarlaga nr. 19, 1940.

Þess er krafist að ákærðu verði dæmdir til refsingar.

Í málinu gera eftirtaldir aðilar bótakröfu á hendur ákærðu:

A. [Þ], gerir bótakröfu á hendur ákærðu í III. lið A kafla ákærunnar, að fjárhæð kr. 1.587.800 með vöxtum samkv. 7. gr. vaxtalaga frá tjónsdegi, en síðan dráttarvöxtum samkvæmt III. kafla vaxtalaga til greiðsludags.

B. --- C. [Æ], gerir bótakröfu á hendur ákærðu í B kafla ákærunnar, að fjárhæð kr. 445.000 ásamt dráttarvöxtum frá 2. mars 2007.“

Málið var upphaflega nr. S-268/2007, en þáttur ákærða, sem ekki sótti þing við þingfestingu, var skilinn frá og er dæmdur sér í lagi í þessu máli.

Við fyrirtöku málsins þann 13. nóvember sl. breytti sækjandi verknaðarlýsingu í ákæru með hliðsjón af afstöðu ákærða til hennar, þannig að ákærða væri gefið að sök að hafa átt hlutdeild að broti annarra ákærðu í III. kafla ákæru, með því að hafa ekið þeim á innbrotsstað og leyft þeim að geyma þýfi á heimili sínu og að hafa átt hlutdeild að broti A og B í X. kafla ákæru, með því að flytja bifreiðina frá Hrafnagili að Melgerðismelum. Teldist háttsemi ákærða samkvæmt þessum ákæruliðum varða við 1. mgr. 244. gr., sbr. 22. gr. almennra hegningarlaga.

Ákærði játar sök að ákæru svo breyttri. Með játningu hans, sem ekki er ástæða til að efa að séu sannleikanum samkvæm, er nægilega sannað að hann hafi framið þá háttsemi sem honum er gefin að sök í ákæru, með framangreindum breytingum, og þar er rétt heimfærð til laga, eins og heimfærslunni hefur verið breytt af ákæruvaldsins hálfu.

Ákærði er tvítugur. Þann 14. desember 2005 var hann dæmdur fyrir brot gegn 1. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga, en ákvörðun refsingar frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þann 12. maí 2006 sætti hann með dómi hegningarauka fyrir þjófnað, en ákvörðun refsingar var frestað á ný í tvö ár, skilorðsbundið. Þann 19. júlí sl. var hann enn dæmdur fyrir tvö þjófnaðarbrot. Voru nefndir skilorðsdómar þá dæmdir upp og ákærði dæmdur í tveggja mánaða fangelsi, skilorðsbundið í tvö ár. Brot þau sem ákærði er nú sakfelldur fyrir framdi hann fyrir uppsögu þess dóms. Ber að taka upp þann dóm og dæma málin í einu lagi og tiltaka refsingu eftir reglum 78. gr. almennra hegningarlaga, sbr. 60. gr. sömu laga.

Ákærði er í þessu máli sakfelldur fyrir eitt þjófnaðarbrot, eina þjófnaðartilraun, hlutdeild í þremur þjófnaðarbrotum og eignaspjöll í einu tilviki. Með öllum þessum brotum rauf hann skilorð samkvæmt dómi upp kveðnum 12. maí 2006. Ákærði var fullra 18 ára er hann framdi það brot sem hann var þá sakfelldur fyrir og hefur það því ítrekunaráhrif, sbr. 255. gr. almennra hegningarlaga. Refsing hans nú ákveðst fangelsi í fjóra mánuði.

Merki eru um að ákærði hafi bætt ráð sitt. Hann hefur skipt um umhverfi og stundar vinnu og nám til aukinna ökuréttinda. Hann er tiltölulega ungur að árum. Með vísan til þessa þykir fært að skilorðsbinda refsingu hans eins og nánar greinir í dómsorði.

Í málinu krefst Þ 1.587.800 króna í skaðabætur með nánar greindum vöxtum. Ákærði mótmælir kröfunni sem vanreifaðri. Með dómi réttarins 2. nóvember sl. í máli nr. S-268/2007 var kröfunni vísað frá dómi og ber að gera svo í þessu máli einnig.

Í málinu gerir Æ bótakröfu, sem getið er í ákæru. Ákærði mótmælir kröfunni sem vanreifaðri.  Með nefndum dómi réttarins var einn liður hennar dæmdur efnislega, en henni vísað frá dómi að öðru leyti. Voru C og D þá dæmdir til að greiða í sameiningu tjónþola 164.496 krónur ásamt dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 af þeirri fjárhæð frá 2. júní 2007 til greiðsludags. Verður ákærði dæmdur til að greiða sömu bætur, í sameiningu með C og D.

Ákærði verður dæmdur til að greiða þóknun skipaðs verjanda síns, Arnars Sigfússonar hdl.  Sami lögmaður var skipaður verjandi E, sem sætti ákæru í máli nr. S-268/2007 og var sá ákærði dæmdur til að greiða þóknun hans, 50.000 krónur. Með skírskotun til lokamálsliðar 2. mgr. 165. gr. laga nr. 19/1991 verður ákærði dæmdur til að greiða þá fjárhæð í sameiningu með nefndum E, en til viðbótar þá þóknun sem ákveða verður verjandanum vegna þess að hann þurfti að sækja þing á ný vegna fjarveru ákærða í upphafi.  Ákveðst hún 30.000 krónur að virðisaukaskatti meðtöldum.

Dóm þennan kveður upp Erlingur Sigtryggsson héraðsdómari.

D Ó M S O R Ð :

Ákærði X sæti fangelsi í fjóra mánuði, en fresta skal fullnustu refsingar hans og hún falla niður að liðnum þremur árum frá uppsögu þessa dóms að telja, haldi hann hið almenna skilorð 57. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955, að gerast ekki sekur um nýtt brot á skilorðstímanum.

Bótakröfu Þ er vísað frá dómi.

Ákærði greiði í sameiningu með C og D Þ 164.496 krónur ásamt dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 af þeirri fjárhæð frá 2. júní 2007 til greiðsludags.

Ákærði greiði þóknun skipaðs verjanda síns, Arnars Sigfússonar hdl., 80.000 krónur, þar af 50.000 krónur í sameiningu með E.