Lög um sölu ríkissjóðs á hlutafé í Landssíma Íslands hf.
Lög nr. 75/2001
Lagasafn. Íslensk lög 1. október 2020. Útgáfa 150c. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um sölu ríkissjóðs á hlutafé í Landssíma Íslands hf.
Lög nr. 75/2001
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
■ 1. gr. Heimild til sölu.
□ Heimilt er að selja allt hlutafé ríkissjóðs í Landssíma Íslands hf.
■ 2. gr. Skuldbindingar.
□ Um skuldbindingar og starfsemi Landssíma Íslands hf. á sviði fjarskipta fer samkvæmt leyfisbréfi útgefnu af Póst- og fjarskiptastofnun og reglugerð um alþjónustu.
■ 3. gr.3 Gildistaka.
□ Lög þessi taka þegar gildi.
□ …
■ Ákvæði til bráðabirgða.
□ Þrátt fyrir ákvæði til bráðabirgða II í lögum nr. 131/1997, um rafræna eignarskráningu verðbréfa, skal hlutabréf ríkissjóðs í Landssíma Íslands hf., útgefið 23. janúar 1998, vera ógilt við útgáfu á rafbréfum í félaginu í verðbréfamiðstöð án undangenginnar innköllunar.
□ Ákvæði 1. mgr. 20. gr. laga um hlutafélög gildir ekki um Landssíma Íslands hf. á meðan hlutafé er að fullu í eigu ríkissjóðs.
□ … 1)
1)L. 129/2003, 1. gr.