Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 980/2011"

2 dómar fundust

Hæstiréttur birt 11. febrúar 2013

65/2013

Beis ehf (Daníel Isebarn Ágústsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir hrl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli B ehf. gegn íslenska ríkinu var vísað frá dómi. Í dómi Hæstaréttar kom fram að með aðalkröfu B ehf. í málinu hefði verið farið fram á að dómstólar skýrðu nánar tiltekin stjórnvaldsfyrirmæli án þess að það tengdist úrlausn um ákveðið sakarefni en slíkt bryti í bága við 1. mgr. 25. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Þá var talið að samkvæmt 1. mgr. 24. gr. sömu laga brysti dómstóla vald til að leggja dóm á þær kröfur B ehf. sem lutu að því að viðurkennt yrði að félaginu væri heimilt að flytja inn nánar tilteknar vörur, þrátt fyrir bann stjórnvaldsfyrirmæla. Loks var talið að B ehf. hefði hvorki gert grein fyrir því í hverju tjón félagsins fælist né hver tengsl þess tjóns væru við hið ætlaða skaðaverk. Var hinn kærði úrskurður því staðfestur.

...Um vísvitandi brot á samningsskuldbindingum ríkisins sé að ræða þar sem umrædd ólögmæt regla, um íblöndun koffíns í önnur matvæli en drykkjavörur, hafi verið ítrekuð í reglugerð nr. 980/2011...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. janúar 2013

E-2438/2012

Beis ehf (Páll Rúnar M. Kristjánsson hdl) gegn íslenska ríkinu (Soffía Jónsdóttir hrl)

Fallist var á frávísunarkröfu stefnda með vísan til þess að kröfugerð stefnanda samrýmdist ekki ákvæðum 1. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991.

...Um vísvitandi brot á samningsskuldbindingum ríkisins sé að ræða þar sem umrædd ólögmæt regla, um íblöndun koffíns í önnur matvæli en drykkjavörur, hafi verið ítrekuð í reglugerð nr. 980/2011...