Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 939/2003"
2 dómar fundust
L hóf töku lífeyris hjá T við 67 ára aldur árið 2002. T taldi að L hafi fengið ofgreitt vegna áranna 2003 og 2004. L fékk einnig greiddan lífeyri 2005 og 2006 en T taldi að L hefði ekki haft rétt til þess. Komu ofgreiðslurnar í ljós við endurreikning bóta. Var L tilkynnt með bréfum T að krafist væri endurgreiðslu ofgreidds lífeyris. Höfðaði L mál gegn T og krafðist þess að ákvörðun T um að krefja hann um endurgreiðslu yrði felld úr gildi. Talið var að T hafi skýrt tölulegar forsendur endurkröfu sinnar með fullnægjandi hætti við rekstur málsins fyrir héraðsdómi. Þá hafi T gætt andmælaréttar L með fullnægjandi hætti við töku ákvarðana um endurkröfuna og ekki væri hald í málsástæðum um að málsmeðferðarreglna hafi ekki verið gætt að öðru leyti. Var kröfum L því hafnað.
...í samræmi við 10. gr. þágildandi laga um almannatryggingar nr. 117/1993, sbr. reglugerð nr. 939/2003. Í bréfinu kemur fram að endurreikningurinn hafi verið gerður á grundvelli upplýsinga skattyfirvalda...
Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, um tiltekna skuld stefnanda vegna ofgreidds ellilífeyris, var felld úr gildi. Öðrum kröfum stefnanda varðandi skuldastöðu var vísað frá dómi án kröfu.
...í samræmi við 10. gr. þágildandi laga um almannatryggingar nr. 117/1993, sbr. reglugerð nr. 939/2003. Í bréfinu kemur fram að endurreikningurinn hafi verið gerður á grundvelli upplýsinga skattyfirvalda...