Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 920/2013"
2 dómar fundust
A höfðaði mál á hendur L og krafðist þess að felld yrði úr gildi sjálfskuldarábyrgð sem hún hafði veitt með undirritun sinni á skuldabréf vegna námslána dóttur sinnar M. Fyrir lá að áður en A gekkst í ábyrgðina lagði L ekki annað mat á greiðslugetu M en það, sem fólst í mati á því hvort hún teldist lánshæf í skilningi úthlutunarreglna L, en við það kom í ljós að M var á vanskilaskrá. Í dómi Hæstaréttar kom fram að mat L á lánshæfi umsækjanda um námslán eftir úthlutunarreglum hans væri bundið við athugun á því hvort umsækjandinn væri í vanskilum við L vegna eldra láns, hvort bú umsækjandans væri til gjaldþrotaskipta og hvort hann gæti af öðrum sökum talist bersýnilega ótryggur lántaki. L hefði ekki gert grein fyrir því hvort könnun á síðastnefnda atriðinu tæki til nokkurs annars en athugunar á vanskilaskrá. Væri lagt til grundvallar að ekki væri gætt að öðru í tengslum við það skilyrði færi því fjarri að mat L á lánshæfi væri reist á upplýsingum meðal annars um áætlaðar tekjur umsækjanda á endurgreiðslutíma láns, aðrar skuldir hans og endurgreiðslur af þeim, eignir hans og áætlaðan framfærslukostnað, svo sem gera yrði við greiðslumat eftir viðurkenndum viðmiðum í skilningi 1. mgr. 4. gr. laga nr. 32/2009 um ábyrgðarmenn. Var því ekki talið að L hefði réttilega uppfyllt skyldu sína samkvæmt ákvæðinu til að leggja mat á greiðslugetu M. Ekkert lægi fyrir í málinu um fjárhag M, efnahag hennar eða tekjur, hvorki nú né þegar A tók skuldbindinguna á sínar herðar, og yrði því ekkert ráðið um hvað kynni að hafa verið leitt í ljós með réttilega gerðu greiðslumati. Þótt ætla yrði að almennt hlyti ábyrgðarmaður í þeim fjölskyldutengslum við lántaka, sem A væri við M, að búa yfir nokkurri vitneskju um aðstæður hans og fjárhag væri ófært að byggja á því að greiðslumat hefði ekki í þessu tilviki getað leitt í ljós atriði, sem áhrif gætu haft á töku ákvörðunar um hvort stofna ætti til ábyrgðarskuldbindingar. Var því talið óhjákvæmilegt að víkja til hliðar yfirlýsingu A um sjálfskuldarábyrgð á grundvelli 36. gr. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga og krafa A því tekin til greina.
...og reglugerð nr. 920/2013 um lánshæfis- og greiðslumat, sem sett var á grundvelli heimildar í þeirri málsgrein. Af sömu ástæðu ná einnig til áfrýjanda ákvæði 2. mgr. 4. gr...
Krafa stefnanda um að stefnda greiddi námslán, þar sem hún var ábygðarmaður, var tekin til greina.
...gr., reglugerð nr. 920/2013 um lánshæfis- og greiðslumat og 36. gr. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga með síðari breytingum (samnl.). IV Samkvæmt 1. mgr...