Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 914/2014"

2 dómar fundust

Landsréttur birt 29. júní 2020

283/2020

Neytendasamtökin (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður) gegn Gísla Kristbirni Björnssyni og Almennri Innheimtu ehf (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu N um að lögbann yrði lagt við nánar tilgreindum athöfnum G og A ehf. N reisti kröfu sína á 1. gr. laga nr. 141/2001 um lögbann og dómsmál til að vernda heildarhagsmuni neytenda. Í úrskurði Landsréttar kom fram að ágreiningslaust væri að N hefðu sem félagasamtök á sviði neytendamála rétt til lögbannsaðgerða í þágu heildarhagsmuna neytenda að uppfylltum þeim skilyrðum sem sett væru í lögum nr. 141/2001. Samkvæmt 1. mgr. laganna væri ótvírætt að beiðni slíkra samtaka um lögbann þyrfti að lúta að háttsemi sem talin væri stríða gegn EES-gerðum sem væru taldar upp í viðauka við tilskipun 2009/22/EB eins og þær hefðu verið leiddar í íslensk lög en samkvæmt 2. mgr. sama ákvæðis kæmi fram að ráðherra kvæði á um hvaða EES-gerðir féllu undir fyrrgreindan viðauka með reglugerð. Í reglugerð nr. 914/2014 væru taldar upp ýmsar EES-gerðir á sviði neytendamála og sú gerð sem lyti að ætlaðri ólögmætri háttsemi í tengslum við neytendalán, og lögbannsbeiðni N fjallaði um, væri tilskipun 87/102/EBE, sbr. 2. tölulið 1. gr. reglugerðarinnar. Ljóst væri að sú tilskipun hefði verið felld úr gildi og leyst af hólmi með tilskipun 2008/48/EB frá 23. apríl 2008, um lánssamninga fyrir neytendur. Hefði síðarnefnda tilskipunin verið tekin upp í EES- samninginn og svo leidd í lög hér á landi með lögum um neytendalán nr. 33/2013. Af þessu væri ljóst að sú háttsemi G og A ehf. sem lögbannsbeiðni N laut að stríddi ekki gegn neinni gildri EES-gerð sem talin væri í reglugerð nr. 914/2014 eins og áskilið væri í 2. mgr. laga nr. 141/2001. Var N því talin bresta lagaheimild til að leggja fram lögbannskröfu fyrir hönd neytenda sem laut að háttsemi á sviði neytendalána. Var hinn kærði úrskurður því staðfestur.

...sama ákvæðis að ráðherra kveði á um hvaða EES-gerðir falli undir fyrrgreindan viðauka og hefur það verið gert með reglugerð nr. 914/2014. 11 Í umræddri reglugerð nr. 914...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 24. apríl 2020

K-4833/2019

Neytendasamtökin (Daníel Isebarn Ágústsson lögmaður) gegn Gísla Kristbirni Björnssyni og Almennri innheimtu ehf (Ómar Örn Bjarnþórsson lögmaður)

Staðfestur var úrskurður sýslumanns um að hafna kröfu Neytendasamtakanna um lögbann á innheimtu tiltekins aðila á svokölluðum smálánum.

...141/2001 hafi verið sett reglugerð nr. 914/2014 sem beri heitið „Reglugerð um EES-gerðir sem falla undir tilskipun 2009/22/EB og vernda hagsmuni neytenda“. Í reglugerðinni séu...