Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 893/2024"

2 dómar fundust

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. nóvember 2025

E-5581/2025

Vélfag ehf (Sigurður G. Guðjónsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Jóhanna Katrín Magnúsdóttir lögmaður, Joint Stock Company)

Hafnað var kröfu stefnanda um að ógilda ákvörðun stefnda um synjun þess að aflétta frystingu fjármuna félagsins í vörslum A banka. Niðurstaða dómsins byggir á því að 2. mgr. 12. gr. laga nr. 68/2023, um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna, feli í sér skyldu ráðherra til að aflétta þvingunarráðstöfun gagnvart aðila sem beri sama eða svipað nafn og sá aðili sem sé á þvingunarlista. Hins vegar verði hvorki af lagaákvæðinu sjálfu né öðrum ákvæðum laganna dregin ályktun um að skylda ráðherra sé víðtækari en þessu nemi. Þá var talið að stefndi hefði sýnt fram á með fullnægjandi hætti að ástæða þess að stefnandi sætti þvingunaraðgerðum væri ekki sú að um nafnarugling væri að ræða heldur hafi verið leiddar líkur að því að félagið væri tengt þeim aðila sem er skráð á þvingunarlista.

...1439/2024 um breytingu á reglugerð nr. 893/2024, um þvingunar- aðgerðir varðandi Rússland. Í 2. gr. reglugerðar Evrópusambandsins er kveðið á um að frysta skuli alla fjármuni og efnahagslegan...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 25. nóvember 2025

E-5164/2025

Ivan Nicolai Kaufmann (Gestur Gunnarsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Jóhanna Katrín Magnúsdóttir lögmaður, Joint Stock Company)

Hafnað var kröfu stefnanda um að ógilda ákvörðun stefnda um að synja honum um að taka sæti í stjórn einkahlutafélags, sem sætir þvingunaraðgerðum á grundvelli laga nr. 68/2023, um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna. Einkahlutafélagið hafði fengið undanþágu frá þvingunaraðgerðum með tilteknum skilyrðum sem höfðu m.a. það markmið að tryggja að félag, sem er skráð á alþjóðlegan þvingunarlista, gæti ekki haft áhrif á ákvarðanir einkahlutafélagsins. Fallist var á það með stefnda að stefnandi hefði ekki sýnt fram á að seta hans í stjórn einkahlutafélagsins samræmdist þessu markmiði. Var í því efni vísað til þess að stefnandi hefði ekki sýnt fram á að raunveruleg eigna- og stjórnunartengsl þess félags sem er á þvingunarlistanum og aðila sem tengjast því, hefðu verið rofin með kaupum hans á hlut í einkahlutafélaginu.

...1439/2024 um breytingu á reglugerð nr. 893/2024, um þvingunaraðgerðir varðandi Rússland. Rökstuðn- ingur bankans er sagður hafa snúið að því að grunur væri um að félagið Norebo JSC...