Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 885/2002"

2 dómar fundust

Hæstiréttur birt 28. nóvember 2013

333/2013

Samband sveitarfélaga á Austurlandi (Óskar Sigurðsson hrl, Gunnar Ingi Jóhannsson hdl) gegn Sterna, Travel (Daníel Isebarn Ágústsson hrl) og ehf (Bjarki Þór Sveinsson hdl)
Lykilorð: Lögbann. Einkaleyfi.

Með samningi við vegagerðina á árinu 2011 fékk SA einkaleyfi til að skipuleggja og sjá um almenningssamgöngur á Austurlandi, á grundvelli 1. mgr. 7. gr. laga nr. 73/2001 um fólksflutninga og farmflutninga á landi. Taldi SA að fólksflutningar sem ST ehf. annaðist á starfsvæði sambandsins fælu í sér reglubundna fólksflutninga og brytu þannig gegn einkaleyfi þess. Höfðaði SA því mál og krafðist viðurkenningar á því að ST ehf. væri óheimilt að stunda reglubundna fólksflutninga á tiltekinni áætlunarleið og að staðfest yrði lögbann sýslumannsins á Höfn við þeirri háttsemi. Hæstiréttur féllst á með héraðsdómi að leggja yrði til grundvallar að akstur ST ehf. á þeirri leið sem um ræddi, hefði verið einskorðaður við þann hóp sem hefði keypt svokallaða hringmiða og hefðu aðeins getað nýtt miðann til einnar hringferðar um landið, annað hvort réttsælis eða rangsælis, en ekki keypt far sem einungis gilti milli einstakra viðkomustaða innan hringleiðarinnar. Féllst Hæstiréttur einnig á að þessi skipan á akstri ST ehf. félli ekki undir skilgreiningu d. liðar 3. gr. laga nr. 73/2001 um reglubundna fólksflutninga, en ferðirnar hefðu ekki verið öllum opnar í skilningi þess ákvæðis. Þótt ferðir ST ehf. hefðu verið með reglubundnu millibili milli tilgreindra staða yrðu fólksflutningar félagsins í þessu sambandi taldir falla undir óreglubundna fólksflutninga samkvæmt f. lið 3. gr. laga nr. 73/2001 og hefðu þeir því ekki brotið gegn einkaleyfi SA. Var ST ehf. því sýknað af kröfu SA.

...ráðherra setji að fengnum tillögum ríkissaksóknara. Slík reglugerð hafi vissulega verið sett, sbr. reglugerð nr. 885/2002, um sektir vegna brota á lögum um fólksflutninga, vöruflutninga og efnisflutninga á landi...

Héraðsdómur Austurlands birt 6. maí 2013

E-69/2012

Samband sveitarfélaga á Austurlandi (Óskar Sigurðsson hrl) gegn Sterna Travel ehf (Bjarki Þór Sveinsson hdl)
Lykilorð: Lögbann. Lögskýring.

Sýknað af kröfu stefnanda, Sambands sveitarfélaga á Austurlandi, um viðurkenningu þess að stefnda sé óheimilt að stunda "reglubundna fólksflutninga" á tilgreindri áætlunarleið innan starfssvæðis stefnanda, þar sem ósannað þótti að fólksflutningar stefnda féllu að því hugtaki laga nr. 73/2001. Jafnframt var synjað kröfu stefnanda um staðfestingu lögbanns sem lagt hafði verið við reglubundnum fólksflutningum stefnda á sömu leið.

...ráðherra setji að fengnum tillögum ríkissaksóknara. Slík reglugerð hafi vissulega verið sett, sbr. reglugerð nr. 885/2002, um sektir vegna brota á lögum um fólksflutninga, vöruflutninga og efnisflutninga á landi...