Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 78/2006"
2 dómar fundust
Ágreiningur aðila laut að því hvort flugslys sem varð við Selá í Vopnafirði árið 2009 yrði rakið til stórkostlegs gáleysis Á við stjórn flugvélarinnar þannig að T hf., vátryggjanda vélarinnar, væri heimilt að skerða greiðslu bóta til Á úr slysatryggingu flugmanns vegna slyssins. Fyrir lá að T hf. hafði þegar greitt þriðjung bótanna en taldi sér heimilt að skerða bætur til Á um tvo þriðju hluta. Í dómi Hæstaréttar kom fram að sú háttsemi Á að fljúga vélinni langt undir lágmarksflughæð og skammt frá jörðu, þar sem mannvirkja hefði verið að vænta, fæli í sér slíkt frávik frá þeirri háttsemi sem mælt væri fyrir um í þágildandi auglýsingu nr. 55/1992 um setningu flugreglna, að háttsemin yrði metin sem stórkostlegt gáleysi. Við mat á því hvort og þá að hvaða marki skyldi skerða rétt Á til bóta úr slysatryggingunni, sbr. 1. mgr. 90. gr. laga nr. 30/2004 um vátryggingarsamninga, var litið til þess að sakarstig Á hefði verið hátt og að háttsemi hans hefði verið eina orsök slyssins. Gott veður hefði verið þegar slysið varð og aðstæður til flugs góðar. Þá hefði engin merki verið um alkóhól í blóði Á. Loks hefðu afleiðingar slyssins fyrir Á verið stórfelldar. Með heildstæðu mati samkvæmt framansögðu var réttur Á til slysatryggingabóta skertur um helming.
...laganna, og reglugerð nr. 78/2006 um skylduvátryggingar vegna loftferða. A. Slys ekki af völdum gálausrar háttsemi stefnanda Stefnandi byggi á því að hann hafi ekki sýnt af sér háttsemi...
Slysatrygging flugmanns.
...laganna, og reglugerð nr. 78/2006 um skylduvátryggingar vegna loftferða. A. Slys ekki af völdum gálausrar háttsemi stefnanda Stefnandi byggi á því að hann hafi ekki sýnt af sér háttsemi...