Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 74/1983"
2 dómar fundust
S höfðaði mál gegn Í, M, R og K og krafðist skaðabóta vegna atvika sem urðu í störfum J, fyrrum eiginmanns S, við að setja upp milliveggi í Varmárskóla í Mosfellshreppi árið 1976. S hélt því fram að J hefði þá orðið fyrir asbestmengun sem leiddi til þess að hann lést úr krabbameini árið 2006. Greindi aðila m.a. á um hvort sannað væri að asbestmengunin hefði orsakað sjúkdóm J. S hafði ekki fengið dómkvadda menn til að leggja mat á hverjar líkur væru á orsakasambandi, að teknu tilliti til fyrirliggjandi upplýsinga, um atvik málsins en leitaðist þess í stað við að afla sönnunar um þetta með framburði læknis sem annaðist J. Í dómi Hæstaréttar kom fram að þótt læknirinn hefði lýst veikindunum og þeirri meðferð sem J fékk hefði framburður læknisins að stærstum hluta verið lýsing á þekkingu sem læknavísindin byggju yfir um orsakasambands milli asbestmengunar og sjúkdóms J auk álits hennar á ýmsum atriðum sem þar skiptu máli. Sönnun í einkamáli yrði ekki fengin með slíkum vitnisburði sérfræðings, auk þess sem lækninum hefði verið ókunnugt um ýmis atvik málsins. Gegn mótmælum stefndu þótti því ekki komin fram sönnun um orsakasamband milli ætlaðs tjónsatviks og sjúkdóms J og þar með tjóns S og voru Í, M, R og K því sýknuð.
...Notkun asbests hafi verið bönnuð með reglugerð nr. 74/1983. Stefnandi telur sannað í málinu að það hafi verið stefndi, íslenska ríkið, sem hafi fyrirskipað að asbest skyldi notað við...
Stefnandi höfðaði mál á hendur stefndu til greiðslu bóta vegna láts eiginmanns hennar. Byggði stefnandi á því að hann hefði látist af völdum asbestmengunar, sem hann hefði orðið fyrir við vinnu sína árið 1975. Stefndu voru sýknuð af kröfum stefnanda, þar sem talið var að stefndu bæru hvorki ábyrgð á grundvelli raka stefndu né bæri að beita hlutlægri bótaábyrgð.
...asbests sífellt farið vaxandi á þessum árum. Notkun asbests hafi verið bönnuð með reglugerð nr. 74/1983. Stefnandi telur sannað í málinu að það hafi verið stefndi, íslenska ríkið, sem...