Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 696/2019"

2 dómar fundust

Landsréttur birt 5. júní 2025

388/2024

Penninn ehf (Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður) gegn VÍS tryggingum hf (Einar Baldvin Axelsson lögmaður)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

Ágreiningur málsins varðaði fjárhæð vátryggingarbóta sem V hf. bæri að greiða P ehf. á grundvelli rekstrarstöðvunartryggingar sem P ehf. tók hjá V hf. Sakarefnið varðaði fyrst og fremst það álitaefni hvort til frádráttar kröfunni skyldi koma launakostnaður sem V hf. byggði á að sparast hefði P ehf. á vátryggingartímabilinu. Í dómi Landsréttar var rakið að horfa bæri til þess hvernig ætla mætti að rekstur P ehf. hefði orðið ef tjónsatburður hefði ekki komið til, þar með talið þess kostnaðar sem fallið hefði til á umræddu tímabili. Ótvírætt væri að ef ekki hefði komið til stöðvunar á rekstri P ehf. hefði hann þurft að standa straum af greiðslu launa og tengdra gjalda vegna þeirra starfsmanna sem þar störfuðu. Var því fallist á það með V hf. að við útreikning raunverulegs tjóns P ehf. væri rétt að draga frá reiknaðri framlegð og tjóni þann launakostnað sem um ræddi. Lagt var til grundvallar að sá kostnaður hefði orðið 52.017.559 krónur, sem var umtalsvert hærri en krafa P ehf. Var niðurstaða héraðsdóms um sýknu V hf. því staðfest.

...Í forsendum matsgerðar tekur matsmaður fram að í reglugerð nr. 696/2019, sem stoð eigi í lögum um ársreikninga, séu gjöld flokkuð í fjóra flokka og þar séu laun og...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 16. apríl 2024

E-3107/2019

Penninn ehf (Gunnar Ingi Jóhannsson lögmaður) gegn Vátryggingafélagi Íslands hf (Einar Baldvin Axelsson lögmaður)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

Stórbruni varð í Skeifunni í Reykjavík í júlí 2014, en stefnandi rak verslun í einni af þeim fasteignum sem brann. Stefnandi hafði m.a. keypt rekstrarstöðvunartryggingu hjá stefnda og greiddi stefndi stefnanda bætur á grundvelli hennar í júlí 2015. Stefnandi taldi að með þeirri greiðslu væri tjón hans ekki að fullu bætt og hafa aðilar deilt um uppgjör bóta úr þeirri tryggingu allar götur síðan þá. Í þessu máli var stefndi talinn hafa bætt stefnanda tjón hans að fullu og var stefndi því sýknaður af kröfum stefnanda.

...Í forsendum matsgerðar tekur matsmaður fram að í reglugerð nr. 696/2019, sem stoð eigi í lögum um ársreikninga, séu gjöld flokkuð í fjóra flokka og þar séu laun og...