Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 674/2014"
1 dómar fundust
Ö starfaði sem yfirlæknir heilsugæslunnar hjá HV. Í kjölfar sameiningar HV og HP undir heiti hinnar fyrrnefndu var Ö tilkynnt að að ákveðið hefði verið að leggja niður starf hans frá og með 1. janúar 2015. Naut Ö biðlauna frá þeim degi til 31. desember sama ár. Í málinu krafðist Ö í fyrsta lagi að viðurkennt yrði að niðurlagning starfs hans hefði verið ólögmæt. Í öðru lagi krafðist hann greiðslu vegna svokallaðra gæsluvakta sem hann taldi sig eiga rétt til á biðlaunatímanum. Í þriðja lagi krafðist hann miskabóta vegna ólögmætrar niðurlagningar starfsins. Hæstiréttur vísaði viðurkenningarkröfu Ö frá héraðsdómi með vísan til þess að Ö hefði ekki lögmæta hagsmuni af því að fá sérstaka úrlausn um kröfuna, enda yrði að leggja mat á ólögmæti niðurlagningarinnar kæmi til þess að taka þyrfti afstöðu til kröfu hans um miskabætur. Að því er varðaði rétt Ö til greiðslu fyrir gæsluvaktir vísaði Hæstiréttur meðal annars til þess að samkvæmt 1. mgr. 34. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins skyldi Ö halda „óbreyttum launakjörum“ á biðlaunatímanum. Gæsluvaktir hefðu verið óháðar vinnuframlagi Ö og yrðu þær því lagðar að jöfnu við samninga um fastar yfirvinnugreiðslur óháð vinnuframlagi sem í dómaframkvæmd Hæstaréttar hefðu verið taldar falla undir biðlaun. Var því fallist á kröfu Ö um greiðslu vegna þeirra. Kröfu Ö um miskabætur var á hinn bóginn vísað frá héraðsdómi með vísan til þess að hún væri í þversögn við kröfu hans um leiðréttingu á biðlaunum.
...Með reglugerð nr. 674/2014 um sameiningu heilbrigðisstofnana var tilkynnt ákvörðun heilbrigðisráðherra um að sameina Heilbrigðisstofnun Vestfjarða og Heilbrigðisstofnunina á Patreksfirði undir heiti hinnar fyrrnefndu. Sameiningin skyldi taka gildi 1...