Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 662/2010"

2 dómar fundust

Hæstiréttur birt 9. mars 2011

52/2011

Rammi hf (Karl Axelsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli R hf. á hendur Í var vísað frá dómi. Í málinu krafðist R hf. þess að viðurkennt yrði með dómi að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefði verið óheimilt að ákveða ekki með reglugerð þann heildarafla sem veiða mætti af úthafsrækju á fiskveiðiárinu 2010 til 2011. Í úrskurði héraðsdóms, sem staðfestur var í Hæstarétti með vísan til forsendna hans, var talið að í viðurkenningarkröfu R hf. fælist krafa um að dómurinn léti í ljós álit sitt á lögfræðilegu ágreiningsefni án þess að leyst væri úr því hver réttarstaða R hf. væri í því samhengi og án þess að kveðið væri á um réttindi hans og hagsmuni sem hann hefði lýst að hann hefði af því að veiðar á úthafsrækju yrðu takmarkaðar á fiskveiðiárinu. Slík kröfugerð væri ekki tæk og fullnægði ekki því skilyrði að R hf. hefði lögvarða hagsmuni af úrlausn um kröfuna. Þar með væru ekki uppfyllt skilyrði 1. og 2. mgr. 25 gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Sakarefnið ætti því ekki undir dómstóla og bæri með vísan til þess og 1. mgr. 24. gr. laganna að vísa málinu frá dómi.

...Með reglugerð nr. 662/2010, sem undirrituð var 18. ágúst sl., um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2010/2011, hafi reglugerð nr. 588/2010 verið felld úr gildi. Þar sé heldur...

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 18. janúar 2011

E-6974/2010

Rammi hf (Arnar Þór Stefánsson hdl) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl)

Stefnandi krafðist þess að viðurkennt yrði með dómi að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hafi verið óheimilt að ákveða ekki heildarafla sem veiða mætti af úthafsrækju á fiskveiðiárinu 2010/2011 með reglugerð. Málinu var vísað frá dómi þar sem stefnandi hafði ekki lögvarða hagsmuni af úrlausn dómsins um kröfuna.

...Með reglugerð nr. 662/2010, sem undirrituð var 18. ágúst sl., um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2010/2011, hafi reglugerð nr. 588/2010 verið felld úr gildi. Þar sé heldur...