Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 646/2007"
2 dómar fundust
N ehf. hélt því fram að F hf. og R hf. hefðu staðið saman að ólöglegri háttsemi með því að F hf. auglýsti og seldi fisk óslægðan en skilaði honum til kaupanda slægðum og án innmatar og R hf. gerði N ehf. reikning fyrir kostnaði við slægingu og flutning fisksins til og frá slægingarstað. N ehf. kvaðst eiga endurgreiðslukröfu á F hf. og R hf. vegna innheimtra gjalda og andvirðis innmatar sem hann hafði ekki fengið afhentan. N ehf. vísaði í ýmis lög máli sínu til stuðnings, þar á meðal samkeppnislög nr. 44/2005 „sem leggja bann við samkeppnishindrunum og misnotkun á markaði“. Talið var að verulega skorti á skýrleika málsreifunar í héraði. Fyrir Hæstarétti lagði N ehf. megináherslu á þá málsástæðu að F hf. og R hf. hefðu brotið gegn samkeppnislögum með því að misnota markaðsráðandi stöðu sína. F hf. og R hf. mótmæltu málsástæðum N ehf., þar sem um væri að ræða nýjar málsástæður og ekki hefði verið lagður fullnægjandi grundvöllur fyrir þeim í stefnu. N ehf. taldi hins vegar að með framangreindri tilvísun í stefnu til samkeppnislaga hefði málsástæða um misnotkun á markaðsráðandi stöðu verið nægilega reifuð en héraðsdómur hefði ekki fjallað um hana á fullnægjandi hátt. Fallist var á það með F hf. og R hf. að málatilbúnaður N ehf. hefði breyst mjög frá því sem var í héraði. Þá hefði hann í upphafi ekki verið nægilega skýr til að F hf. og R hf. hefðu getað tekið til varna á fullnægjandi hátt. Þótti því óhjákvæmilegt að vísa málinu að sjálfsdáðum frá héraðsdómi.
...Með reglugerð nr. 646/2007, sem gildi tók 1. september 2007, sbr. relugerð nr. 774/2007, var kveðið á um að þeir viðskiptahættir og uppboðsskilmálar, sem deilt er um í...
Deilt var um uppboðsskilmála á fiskmarkaði.
...Með reglugerð nr. 646/2007, sem gildi tók 1. september 2007, sbr. relugerð nr. 774/2007, var kveðið á um að þeir viðskiptahættir og uppboðsskilmálar, sem deilt er um í...