Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 640/2019"
2 dómar fundust
Ágreiningur málsaðila laut að röðun K í launaflokk og álagsþrep samkvæmt stofnanasamningi frá 2022, sem tók við af fyrri samningi frá 2017. Byggði K einkum á því að óheimilt hafi verið að hrófla við röðun hennar samkvæmt fyrri stofnanasamningi, en með því að það var gert hefðu kjör hennar verið skert. Landsréttur leit til þess að samkvæmt stofnanasamningi frá 2022 féllu fyrri samningar úr gildi og þar kæmu ekki fram nein fyrirmæli um að líta bæri til fyrri ákvarðana við röðun í launaflokka og álagsþrep. Þá hefðu gögn málsins sýnt að K hefði hækkað í launum við breytingarnar, öndvert við það sem hún hefði teflt fram. Taldi Landsréttur að Í hefði ekki verið bundið af ákvörðunum um röðun samkvæmt eldri stofnanasamningi og að ekki væri á færi Landsréttar að endurskoða mat og ákvarða hvernig röðun starfs K ætti að vera, en það byggðist meðal annars á persónubundnum og matskenndum þáttum. Þá þótti Í hafa réttilega tekið tilliti til fagnáms K við grunnröðun hennar í kjölfar gildistöku stofnanasamningsins frá 2022. Var Í sýknað af kröfu K um greiðslu vangoldinna launa.
...Í bókun 1 við stofnanasamninginn 2022 er vísað til þess að starfsheitið heilbrigðisgagnafræðingur hafi verið tekið upp með reglugerð nr. 640/2019. Um ástæður þessa er meðal annars tiltekið í...
Fallist var á fjárkröfu stefnanda sem byggð var á því að henni hefði verið ranglega raðað til launa eftir að nýr stofnanasamningur tók við af eldri stofnanasamningi.
...og vísað til þess að með reglugerð nr. 640/2019 hafi starfsheitið heilbrigðisgagnafræðingur verið formlega tekið upp. Í ljósi þess að nám heilbrigðisgagnafræðinga hafi verið fært upp á háskólastig á...