Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður fyrir "reglugerð nr. 632/1996"
3 dómar fundust
A varð fyrir líkamstjóni í umferðarslysi er hann varð fyrir bifreið sem B ók. Ekki var ágreiningur um bótaskyldu B og V hf. í málinu en aðilar deildu um árslaunaviðmiðun við útreikning skaðabóta vegna varanlegrar örorku, hvert hefði verið tímabundið atvinnutjón A, hvort A ætti rétt á bótum fyrir sjúkrakostnað og annað fjártjón og hvort hann ætti rétt á bótum á grundvelli 26. gr. skaðabótalaga. Hæstiréttur féllst á það með A að aðstæður hans væru óvenjulegar þegar ákveðin væru árslaun hans samkvæmt 2. mgr. 7. gr. skaðabótalaga þar sem vinnutekjur hans væru annars vegar reiknuð laun hans að meðtöldu framlagi í lífeyrissjóð og hins vegar hagnaður af rekstri einkafirma og síðar einkahlutafélags í hans eigu. Ljóst væri að hagnaður af rekstrinum síðustu þrjú ár fyrir slysið væri eingöngu til kominn vegna vinnuframlags A sjálfs. Var því talið rétt að taka tillit til hagnaðarins við ákvörðun viðmiðunartekna að því er varðaði bætur vegna varanlegrar örorku og tímabundins atvinnutjóns en ekki þótti koma til álita að taka tillit til hagnaðar A af sölu einkahlutafélagsins við mat á árslaunum hans. Þá var talið að A hefði sýnt fram á að hann ætti rétt til bóta vegna sjúkrakostnaðar, annars fjártjóns og framtíðarsjúkrakostnaðar. Hins vegar taldi Hæstiréttur að A hefði ekki sýnt fram á að B hefði með akstri sínum umrætt sinn sýnt af sér stórfellt gáleysi í skilningi 26. gr. skaðabótalaga og voru B og V hf. sýknaðir af kröfu A um bætur á þeim grundvelli.
...Orkustofnun hafi frá árinu 1996 starfað í tveimur deildum, stjórnsýsludeild og rannsóknardeild, sbr. reglugerð nr. 632/1996. Rannsóknarsviðið hafi starfað á markaði, ekki fengið fjárveitingar en verið gert að afla...
Málsaðilar gerðu samning um rétt eins þeirra, Norðurorku hf., til að leita að og vinna heitt vatn í landi hinna. Kveðið var á um það í samningi að greiðslur fyrir vatnið skyldu skiptast samkvæmt mati sérfræðinga Orkustofnunar. Vatn fannst og var nýtt. Áður en mat lá fyrir var Orkustofnun skipt upp og unnu starfsmenn Íslenskra orkurannsókna matið. Stefnandi var ósáttur við niðurstöðuna og aflaði nýs mats dómkvaddra matsmanna og ætluðu þeir jörð hans meiri hlutdeild í greiðslunum. Krafðist hann þess að miðað yrði við mat dómkvaddra matsmanna auk þess sem Norðurorka skyldi greiða sér það sem vantaði upp á þá fjárhæð sem honum hefði í raun borið að fá frá upphafi, miðað við mat matsmanna. Ekki var fallist á kröfu um að samningi aðila yrði vikið til hliðar heldur var talið að stefnandi væri bundinn við samninginn og var sýknað af kröfum hans.
...Orkustofnun hafi frá árinu 1996 starfað í tveimur deildum, stjórnsýsludeild og rannsóknardeild, sbr. reglugerð nr. 632/1996. Rannsóknarsviðið hafi starfað á markaði, ekki fengið fjárveitingar en verið gert að afla...
Máli vísað frá dómi þar sem viðhlítandi málsgrundvöll skorti.
...86, 2003, en með reglugerð nr. 632, 1996 um Orkustofnun hafi þeirri stofnun verið skipt upp þannig að stjórnsýsluhlutverk hennar hafi verið aðskilið frá rannsóknarstarfi og stjórnsýslan falin svonefndu orkumálasviði...